Lögberg - 07.04.1910, Side 2
LÖGBERG, FIMTUÐAGItfN 7. APRÍL 1910.
Lífsgleði og langlífi.
Eftir 'Ólaf Isleifsson.
Erindi flutt á búnaðarnámsskeiöi
að Þjórsártúni 21. Jan. ’io.
“Nú er gaman að lifa, mamma
mín,” sagði Sigríður á Gnund uin
leið og lnTn kom inn til móður sinn
ar, snemma morguns í Júná. “Nú
er gaman að fara snemma á fætur
og skoða alla morgundýrðina. Þú
ættir nú að koma út í blessað sól-
skinið og blíðuna til að' hressa þig
og létta af l>ér þunglyndis farginu
iog áhyggjunum. .ÍÞÍú ættir ,bara
að sjá alla vordýrðina núna, sem
er að breiða sig yfir alt. Sóleyjan
<: • komin í hlaðvarpann og fífillinn
er að springa út i brekkunni. Nátt-
döggin situr enn þá á nýgræðingn-
ami eins og glitrandi kristalsperlur
rg bU'S'-aðir vorfuglarnir syngja
svo undur fagran og margraddað-
an söng. F.g sá hvar lóan flögraði
til og frá um loftið og sagði dýrð-
in, dýrðin. Eg liorfði á ljóshjúp-
uð morgunský, sem komu liðandi
stinnan úr höfum á vængjum vor-
h'æsins. Alt eru þetta sigurboðar
vorsins, því nú er vor í lofti og á
láði. Og svo loftið, hvað það er
hreint og heilnæmt úti núna. Ef
að hægt væri að opna gHtggann
hérna, þá gætirðiu rekið út höfuðið
og heyrt og séð alla dýrðina. Þá
gætirðu teigað langan teig af heil-
næmu lífslofti og hlustað á lífsóm
æskunnar. En þvi tniður er ekki
hægt að opna gluggann. Þú ættir
að reyna að ganga með mér héma
tipp að Skygnir, eg held þú hlytir
að hafa gott af því.”
"Að þú skulir geta talað svona,
Si”ga mín; þú'veizt þó, að það
eru af mér barnalætin. Eg hefi
liaft annað að gera um dagana, en
að vera að hoppa og hýja út um
tún og hóla, hlýða á fuglasöng og
lesa á blóm. Æfiferill minn hefir
tkki verið blómcnn stráður og fugl
ar loftsin, hafa ekki fylgt mér
með söng. Hvað heldurðu að ná-
grannar mínir segðu, ef þeir sæju
mig vera að spássera út um hóla,
eg sem varla get staulast út og
inn itm bæinn. Og þú ert að tala
um loftið hérna inni. Að flestu má
nú finna. Þú ert þó fædd og upp-
alin í þessari baðstofu og hefir þér
getað fariö fram, þó aldrei hafi
verið opnaðii'r gluggJ.“’
"En, góða mamma! það ætti þó
hver einasta baðstofa að vera full
af hreinu og nýju lofti og hreinni
Hfsgleði. Og þvi skyldi maður
ekki mega njóta saklausrar á-
nægju hverrar líöandi stundar?”
Það er ekki svo lítið til af fólki
með svipaðar lífsskoðanir eins og
garnla konan á Grund, sem finst
alt sitt fif vera emtóm myrkurs
ferð. En þeim, sem fara að ganga
í myrkri, vill oft verða svo dimt
fyrir augum, að }>eir tsjá ekki hina
hjörtu hlið lífsins. En þegar menn
hætta að sjá nokkra birbui af lífinu,
þá er hættan vís. Það er heilbrigðu
cðli samkvæmt, að sækjast eftir
birtunni — sækjaú eftir ljósinu,
lífinu og gleðinni.
\ ið ek'kert er eins hættulegt að
komast á kant við, ef svo mætti að
orði komast, eins og Hfið sjálft.
Þegar svo er komið, hætta menn
gersamlega að sjá nokkra birtu af
lífinu; hjá þeim verður lífið ein
flóttaför, en geta þó aldrei flúið
sjálfa sig.
F'.Vlk er alt af misjafnlega á sig
komið til að taka á móti því óblíða
er lífið réttir að því. Það er eins
og sumir tíni alt það mótdræga
saman, sem fram við þá hefir kom
ið, eaman í eina afarstóra byrði,
sem alt af er að smáþyngjast, og
með þessa byrði er, þrammað lot-
ið og beygt fram til grafar.
Maðurinn er ekki í heiminn
fæddur að eins til þess að þjást og
deyja, heldur til þess að þroskast,
bæði vitsmr.uialega og siðferðis-
lega og lifa það aldursskeið, sem
hann hefir möguleika að ná frá
fyrstu hendi.
Eað hefir afarmikla þýðingu
fyrir Iieilbrigði og liðan mannsins,
hverjar lifsiskoðanir hann hefir,
hvort hann er bjartsýnn, glaðlynd-
ur, og skapsmunir hans í góðu
lagi. Jafnaðargeð, von og glað-
lyndi eru góðir fönmautar lífsins
og nauðsynlegir fyrir viðhald
þ«ss. Þrái maðurinn ekki að lifa
og ná háoim aldri, bendir það á,
að hann sé eitthvað ekki vel heil-
brigður eða að hann sé farinn að
þreytast undir byrði Hfsins.
En margir eru orðnir þreyttir á
lífinu áður en æfisól þeirra er hátt
á loft 'komin, og geta margvíslégar
orsakir að því legið, svo sem of
mikil lífsnautn, ólhóf, óhollur fé-
lagsskapur, hugarvíl, sjúkdómar
og margt fleira, sem eg mun drepa
á síðar.
Sá maður, sem hefir ofþreytt
sig í andlegri eða líkamlegri á-
reynslu, þarfnast bæði líkamlégr-
ar og andlegrar hressingar. Og
bezta hressingin er oft glaðlegt
viðmót, vinsamlegt orð, og oft get-
ur ein einasta uppörfun, ljúfmann-
lega látin i té, hrest og styrkt þann
sem er að láta hugfallast í baráttu
lífsins.
Oft má sjá hvað skyndileg upp-
fyllirig á því, er maðurinn hefir
þráð nijög, hefir mikil áhrif á
hann. Nýr lifsstraumui streymir í
skilyrði fyrir hendi og verður því
að varöveitast vel frá allri skað
semi og óhreininduni. Vér eigum
möguleika að þroskast andlega og
ná andlegri fullkomnun, ef vér æf-
um vora andlegati krafta og gefum
gætur að röddum tímanis, og vér
höfum möguleika að forðast sjúk-
dóma og ná hláumi aldri, ef vér æf-
um og herðum líkama vorn,— og
vér gætum varfiðar, hreinlætis,
hófisemi og reglusemi í sniáu sem
stór(u. Vitanlega kostar þetta
nokkra sjálfsafneitun cg einlægni
cn fjöldi rnanna er svu lyntur, að
vilja helzt lifa eins og verkast vill
og neyta sem bezt þeirra lífsþæg-
inda og nautna, isem hendi eru
næst, og neyta sinna ótömdv
krafta af handa hófi, setjast is-vo
að, þegar þeir hafa náð vissum
árafjölda, og bíða svo rólegir
gegn um líkama og*sál og breytir j dauða sms.
aliri ytri ásýnd og framkomu hans. I Menn eyða svo nuklu af lifi isínu
Sama er að segja verði menn j til óþarfa, bæði með ofnautn og
skyndilega fyrir vonbrigðum eða oskynsamlegri ofra.utn, eða þá með
sorgar áfelli; hvað inenn eru þá
fljótir einis og að hverfa inn í
sjálfa sig og hníga saman. Slokkni
lífsgleðin í huga mannsins, þá
hverfur 1‘íka fjörið og starfslöng-
unin. Það er ekki ósvipað fyrir
taugakerfi mannsins —; að fara
varhluta af áhrifum gleðinnar —
eins og fyrir jurtina að fara var-
hluta af áhrifum sólarljóssins.
En hversu nauðisynleg sem gleði
og glaðlyndi er fyrir líðan manns
ins, þá gengur mönnum mjög mis-
jafnt að vera glaðir og gera aðra
glaða, Alt af liður manni betur i
nærveru siuimra rnanna en annara.
Sumir hafa svo góð áhrif á oss að
oss líður miklu betur í nærveru
þeirra, gleði yl leggur frá þeim og
þeir færa manni nýtt líf. Hvert
orð, málrólmur, hreyfingar, lát-
bragð og öll framkoma snertir svo
notalega tilfinninigar vorar, og ber
vott um næma kurteisi. Aftur
finnur maðoiir kuldann leggja af
sumum mönnum við nálægð þeirra
og getur ekki liðið vel eða notið
sinnar réttu gleði í nærveru þeirra.
Á hverju heimili ætti að vera
nóg af lireinu og nýju lofti og
hreinni lífsgleði. Hvert h,eimili
ætti að vera gróðrarreitur glað-
lyncljs og glaðværðar og allra
góðra siða, því sú gleði verður
hverjium jöfnust og notadrýgst, er
hann nýtur á heimili sínu. Allnr
vilja vera á þeim heimilum, þar
sem nóg er af glaðlyndi og reglu-
semi — þar sem hver sýnir öðrum
mannúð og kurteisi í ismáu og
stóru, þar sem allir umgangast
hver annan sem jafningjar, bæði
yfirmenn og undirgefnir. ‘Þeir
sem alast upp á slíkum heimilum,
bera það með sér hvar sem þeir
fara.
Það er eins og sumir menn sjái
aldrei glaðan dag; þeir eru sífelt
kaldir og óþýðir í viðmóti og fáuw
getur liðið vel í sambúð við þá.
Sá, sem ekki getur borið virðingu
fyrir annara tilfinningum, þarf
ekki að vænta mikillar samúðar
frá öðrum.
Aldrei getur maður búist við
gleði eða tekið henni hjá þeim, er
maðciir veit að býr yfir óhreinum
hvötum; og víst er um það, að þar
sem hinar óæðri hvatir ná taum-
haldi yfir mönnum, frá þeim hin-
um sömu flýr gleðin. Sá, til dæm-
is, sem er gulur og grænn af öf-
und^ líður sjaldan vel, en kemur
mörgui illu til leiðar. Öfundin eitr-
ar hugsanalíf þess, er hana elur, og
gefur honum aldrei frið og gerir
þeim oft ilt, sem fyrir henni verð-
ur. Til þeiss að geta notið sannr-
ar gleði, þarf maðurinn að geta
borið velvildarhug til allra —
gleðjast af velgengni annara og
táka þátt í kjörum þeirra sem mið-
ur gengur., Maður þarf alt af að
vera sér þess meðvitandi, að hafa
viljað öðrtuim vel af hreinum hvöt-
um; þá höfum vér ástæðu til að
vera glaðir, og þá fyrst getum vér
gert aðra glaða, þegar þeir vita
það að vér höfum ekki falska vin-
áttu að bjóða.
Vor einasta aleiga er lífið sjálft.
Það er gjöf, sem vér höfum veitt
móttöku, og er til vor komið ón
þess vér getum nokkuð á móti því
staðið, því enginn er orsök í sjálfis
síns tilveru. Þ'essi gjöf er það
dýrrnætasta, sem vér eigrum og
ríður því mjög á því, að fara vel
með þetta dýrmæti, og láta sér
verða sem mest úr því. Þessi dýr-
mæta gjöf, Hfíð, á sér ótakmark-
aða möguleika og fullloomnunar-
of miklu aðgerðarleysi, því að að-
gerðaleydð er eins hættulegt fyrir
þá sem ná vilja háum aldri, eins
og of mikil áreynsla. Margir
sleppa öllum tökum á lífinu, þegar
þeir hafa náð viissitm árafjölda, til
þess, eins og þeir komat að orði,
að hafa rólegt sent eftir er æfinn-
ar, en fyrir sumum byrjar þá fyrst
órósefhi og eftirsjá. Það er ekki
eins mikið varið í það, eins og
■sumir kunna að ætla, að lifa i að-
gerðarleysi. Því aiuik þess sem
jiað á illa við flesta ]iá. er vanir
eru starfi, og eyðir manninum
miklu fyr en hæfileg áreynsla, þá
hefir það líka þau áhrif, að menn
eiga svo erfitt að byrja á nokkru
aftur og verður ]>ví sama sem upp
gjöf.
Hjá fáum er æfin isvo löng, að
vert sé að ganga til hvílu á meðan
sól er enn hátt á lofti. Sumir hafa
látið smíða sér líkkistan sína á með-
an þeir voru á ernum fótum, og
geymdu þær svo uppi á skemmu
lofti í mörg ár. og þótti þetta lýsa
fyrirhyggju mikilli. En hætt er
við því, að '?á lifi ekki sér eða sín-
um til mikils gagns, úr því að lík
kista hans er komin upp á
skemmuloftið.
Þann, sem langar að ná háum
aldri og losast jafnframt við elli-
kvilla, verðoir að temja sér sjálfs-
afneitun og lifa eftir vissum regl-
um og helzt að byrja á því ungur.
Hann þarf að æfa likama og sál
með hæfilegri líkamlegri og and-
legri áreynslu; hann þarf að gæta
hófsiús í mat og drykk, forðast alt
áfengi og isterka drykki. Þá er
og hreinlæti nauðsynlegt. Hrein-
læti eykur gildi mannsins og er
þar að auki þýðingarmikið atriði
fyrir heilbrigði og vörn mót mörg-
um sjúkdómum; það glæðir einn-
ig feguirðar tilfinning mannsins og
venur hann á reglusemi.
Plið eðlilega ástand lífisins er
heilbrigði, að menn lifi lausir við
alla sjúkdóma og losni við elli-
kröm og kvilla — að menn lifi sig
upPj ef svo mætti að 'orði komast,
þar til ekkert er eftir , slokkni svo
út af eins og ljós á lampa, þegar
ljósmetið er á þrot'um. Þetta er
hinn eðlilegi gangur líísins, þó það
reynist oftast öðru vísi. Þessurn
ömurlegu gestunx ellinnar hefir
maðuir gert heimboð til sín á fyrri
d. gum æfinnar með óhyggilegum
l.ícmismáta, og þessir hcimboðn-
gestir svíkjast ekki um að koma
tii vor.
Mikið af sjúkdómum vorum
höfum vér fengið fyrir vangá,
kæruleysi og þekkingarleysi. En
heilbrigðisfræðinni fer óðum fram
og læknar eru alt af að finna full-
komnari varnir á móti sjákdóm-
um. Jafnvel hinir ósýnilegoii Övin-
ir lífsins, sem alt af eru til taks að
ráðast á oss, ef vér stöndum höll-
um fæti, eða ef nokkurt hlé verður
á lífsvöminni af vorri hálfu, eru
smámisaman að missa mátt sinn
eftir því sem ljós vísindanna skýr-
ist.
Eg skal koma hér með nokkur
atríði viðvíkjandi langlífi, sem eg
hefi tekið úr “Secrefcs of long life”
eftir prófessor Boyd Laynard.
Þau eru þess verð, að þeim sé
gaiumur gefinn.
“Fyrst af öliu er, að meltingar-
færin séu x góðu lagi og heilbrigð.
Án þess að hafa hraustan maga,
getur enginn náð hSum aJdri.
“Forðastu alt óhóf, einkum í
mat og drylck.
“Lifðu ekki að eins til að eta, en
ettu til að lifa. Veldu þér fæðoxi-
Verðlaun þau, sem gefin eru
“ROYAL CROWN SOAP”Æ™t
HaldiC saman umbúöunum og "Coupons” þau eru verðmæt.
í skiftum fyrir
9? UMBÚÐIR ERU
P R E S C O T
Karlmanna úr, kassinn er gullrendur
20 ára ábyrgð. Stilt fjöður, stilt
gangverk, upphlaypt umgjörð.
Ókeypis fyrir 2000 umbúðir eða
85.50 °g 3°° umbúðir.
Þetta er áreiðanlegur stundavísir.
Vér mælum með honum. Vér höfum
önuur verðlaun, sem oflangt yrði hér npp
að telja.
Sendið eftir ókeypis
verðlaunalista
Address Koyal Crown Soaps, Ltd
PREMÍUDEILDIN WlNNIPEG, MAN.
tegundir, sem bezt falla fyrir melt- 1 vel starf sitt dag hvern, getur að
inguna og næra líkamann. j degi loknum lagst glaður og á-
“Skoðaðu hreint loft, sem þinn nægður til hvíldar; hann hefir lif-
bezta vin. Andaöu sem allra mest
að þér af þeiss lífgjafaefni foxy-
gen) á daginn. Sofðu fyrir opn-
um gbigga á nóttunni., Hafðiu að
minsta kosti efstu ríiðuna opna til
liálfs. Fylg þessu jafnvel um há-
vetur; það er eitt af leyndardóm-
ununr að lengja lífið.
Hafðmi hreint hugarfar og hrein
an líkama; hreinlæti er siðferðiis-
þroskun og er hið bezta vigi móti
sjúkdómum.
“Vertu hvorki hugsjúkur né
kvíðinn. Þetta kann að þykja köld
ráð, sem hægra sé að gefa en
haikla; samt sem áður verður
maður oft var við fólk, sem er yf-
irbugað af haigarvíli, og hugarvíl
getur verið banvænt.
“Lærðu að elska starfið, en liata
iðjuleysið; latir menn verða aldrei
tíræðir. Hafðu reglubr.ndnar hreyf
ingar eða líkamsæfingar á hverj-
uni degi úti undir benu. lofti.
Farðu snemrna til ihvílu og hafðu
nógan isvefn. Varastu geðshrær-
ingar. Mundu að shkt styttir líf-
dagana á vissu stigi, og er þar að
aoiiki stundum banvænt. Hafðu
einhvern tilgang að lifa. Sá mað-
ur^ sem engan tilgang hefir eða
ekkert að lifa fyrir, verðtir isjald-
an gamall.
“Lcitaðu að góðum rnaka, en
ekki of snemma.
“Reyndu um fram alt að hafa
stjóm á geði þínu. Sá maður sem
stöðugt er háðaur áilirifum geðs-
hræringa sinna, fær aldrei að vera
í rólegti ástandi, sem er þó svo
nauðsynlegt fyrir viðhald lífsins.
Hjartað ætti ekki að vera of við-
kvæmt. Aðalorsök vorrar innri
eyðingar eða hinnar ósjálfráðu
hnignunar, er fólgin í hinni stöð-
ugu hringráis blóðsins. Sá sem
hefir 100 æðaslög á mínútflnni,
hlýtur að eyðast mikliui fyr en sá,
sem hefir 50. Þeir sem liafa tíð
æðaslög og láta hvert hégómamal
æsa og ýfa hugann og á þann hátt
auka hreyfingar hjartans, þeir eru
ekki Hklegir að ná háum aldri, þar
eð alt fif þeirra er stöðug hitasótt.
Fólk ætti aldrei að venja sig á
að skoða fifið tilgangslaust, fieldur
sem meðal til þess að ná hærri ftill
kommun og að tilvera vor og örlög
stefni ávalt að hærra markmiði, er
háð sé áframhaldandi þroska upp
við. •
Sérhver ætti að afla sér sem
allra mest af tiltrú og trausti ann-
ara; af því leiðir góðgimi, vinátta,
mannúð og aðrar dygðir. Hugs-
aðu þér hvern mann góðan þar til
)ú hefir reynt hið gagnstæða, og
jafnvel þá, ætti maður að líta á
hann eins og, þann, seih fer villur
vegar og sem framar þarfnaist með
aumkvunar en haturs og harðra
dóma. í raniminni mtrndi maður-
inn vera góður, ef hann værí ekki
tældur af fávizku, misskilningi og
af falskri hagsmunavon. Því meir
sem maðurinn ber af góðum ósik-
um til allra þeirra, sem umhverfis
hann eru, því meir maim hann gera
aðra hamingjusama og því meiri
iselu mun hann sjálfur njóta.
Berðu ekki áhyggju fyrir morg-
undeginum, en starfaðui eérhvern
dag sem það væri þinu síðasti dag-
ur án þess að hiugsa um morgun-
dagimn. Sá sem gerir sér það að
áhyggjuefni, hvað hið ókómna
muni leiða í ljós, missir ánægjox,
Hðandi stundar. Framtíðin er af-
kvæmi nútímans, og sá, isem rækir
að daginn til enda, fylt hans hlut
°g lagt traustan grundvöll að
íramtíðarheill.
fFrarnh á 3. bls.J
A. 8. BARDAL,
selui
Granite
Legsteina
alls konar stærðir.
Þeir sem ætla sér að ka; •
LEGSTEINA geta því fengið þa
með mjög rýmilegu verði og ættu
að senda pantanir sem fyrst til
A. S. BARDAL
121 Nena St.,
THE DOMINION BANK
á horninu á|Notre Dame ogNena St.
Greiddur höfuðstóll $4,000,000
Varasjóðir $5,400,000
Sérstakur gaumur gefinn
SPARISJÓÐSDEILDINNI
Vextir af innlögum borgaöir tvisvar á ári.
H. A. BRIGHT, ráösni.
Kostaboð Lögbergs
Nýir kaupendur Lögbergs, sem
borga fyrir fram ($3.00) fyrir
einn árgang blaðsins fá ókeypis
hverjar rvær af neðangreindúm
sögum, sem þeir kjósa sér;
Hefndin..........
Rudolf greifí .. .
Svikamylnan .. .
tDenver og Helga .
Lifs eða líðina.. .
Fanginn i Zenda .
Rupert Hentzau..
ATlan Quatwmain
4«.
5<».
5«.
5«.
5°e.
| inos. n joiinson
® islenzkui lögfræðingur
X og málafærslumaður.
® Skrifstofa:—Room 33Canada Life
X Block, S-A. horni Portage og Main.
2 ÁRitun: P. O. Box 1056.
1 Talsími 423. Winnipeg.
OOOOOOOO O' 000000
o
Ilraust b'óm. o
--- O
í hverjnxi heimiK, þar sem o
Baby’ Own Tablets eru notað- o
o ar, munuð þér sjá rjóð, hraust o
0 góðleg börn, af því að töfl- o
o urnar hreinsa magann og inn- o
o yflin, hjálpa meltir.gunni og o
O halda við góðri heilsxi'. Og o
o þér getið óhætt gefið þær ný- o
o fæddum bömum eins og stálp -o
o uðoiim. Mrs. A. F„ McLeod, o
o Woodstock, Ont„ farast svo o
o orð ; — “Eg hefi notað Baby’s o
o Own Tabets síðan barnið mitt o
o var tveggja vikna, og hafa o
o þær reynst mér ágætlega við o
o barna sjúkdómum, einkum þó o
o m,agaveiki, i'nnantökum, tann- o
o tökuþrautum.” — Seldar hjá o
o lyfsölum eða sendar með pósti o
o fyrir 25C. askjan frá The Dr. o
o Williams’Medicine Co., Brock o
o ville, Ont. o
000000000 0000000
Dr. B. J.BRANDSON
® Office: 650 William Ave.
X TF.I.KPHONK 8!>.
tfc Officb-Tímar: 3—4 og 7 — 8 e. h.
jji Hbjmili: 620 McDermot Ave.
m Telkphosk taon.
I Winnipeg, Man.
$ Dr. O. BJ0RN80N |
») •
»
Office: 650 William Ave.
nELEPHONE, 80.
•)
1 El.EniUSK, M, ,.
s Office tímar: 1:30—3 og 7—8 e. h. »
*'
.) HeImui: 620 McDermot Ave. %
^ Tki.ki-iionk, 4300.
« Winnipeg, Man. •>
«4«4«4S® S*S4S*S*S*S S*S«*S
*S® S*S*SASAS*S*S. S* S*S*S *
5 Dr. I. M. CLEGHORN, M. D. I
Jjj la kni, og yflrsetumaOur. »
•) Hefir sjálfur umsjón á öllum %
meðulum.
ELIZABETH STREET,
BALDUR — — MANITOBA
. ...................
0» ina hvenær sem þörf gerist. (%
SÆS*, S*S*SÆÆS*S*.S*S* S«S\*CS
J. G. SNŒDAL
TANNLŒKNIR.
ENDERTON BUL DNG,
Portage Ave., Cor. Hargrave St.
Suite 313. Tals. main 5302.
45C
5«.
Kjðrdóttlrin ...........5«
Dr. W. J. McTAVISH
Office 724J Sargent Ave.
Telephone Main 7 4 0 8.
I 10-12 f. m.
Office tfmar ■: 3-5 e. m.
( 7-9 e. m.
— Heimili 46 7 Toronto Street
Cor. Ellice.
•J TELKPHONE 7 2 76.
i IfllMflPfifi
A. S. Bardai
121 NENA STREET,
selur líkkistur og annast
om útfarir. Allur útbún-
aður sá bezti. Ennfrem-
ur selur hann allskonar
minnisvai'ða og legsteisa
Toleplxone
GRAY& JOHNSON
Gera við og fóðra Stóla og
Sauma og leggja gólfdúka Sofa
Endurbæia húsbúnað o. fl.
589 Portage Ave., Tals.Main5738
S. K. HALL
WITH
WINNIPEG SCIIOOL of MUSIC
Stcdios 701 Victor St. & 304!Uain St.
Kensla byrjar ista Sept.
SÖM
VEGGJ A-AL M ANOK
eru mjösr fallea. En fallesri eru þau f
UMGJORÐ
Vér höfum ddýruatu og beztu myndaramma
í bænum.
Winnipeg Picture Frame Factory
Vérsækjum og skilnm myndunum.
PfcoggMain228g'^ 117 Nena Street
William Knowles
321 GOOD ST.
Járnar hesta og gerir við
hvað eina.
Eftirmaður
, C. F. Klingman,
321 Good St.
•mmmmmmrnmmmmmmmmmmmmmmm.
A. L. HOUKES & Co.
í selja og bua til legsteina úr
[Granit og marmara
Tals. 6268 - 44 Albert 8t.
W1 NIPEG