Lögberg - 13.10.1910, Blaðsíða 4
4
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 13. OKTÓBER 1910.
LÖGBERG
gfiö út hvern fimtudag af Thk Lög-
(KRG PrIUTING & PUBLISHIHG Co.
Cor. William Ave. & Nena iit.
Winnipeg, - MANITOBA >
S. BJÖRNSSON, Editor.
J. A. BLÖNDAL, Bus. Manager
Utanáskrift:
TV Logfc«rg Printing & Pnblishing Co.
1», O. Bol i WI.NMPBO
Utanáskrift ritstjórans
Editor Logberg
I>. O. IIOX 3084 AVlNNIPKÖ
PHON'K m*is 221
Landkannanir nyðra.
Þegar vissa var fengin um þaft,
aS' sambandsstjórnin ætlaöi aö
leggja Hudsonsflóa brautina, tok
fyrir alvöru aö vakna hjá nionnum
áhugi á því aö kanna landiö þar
umhverfis er brautina ska. leggja,
emkanlega hér noröur af Manitoba
á því svæöi, sem Lau.'erstjómiu
befir lofaö aö bæta viö þetta fylki
og þegar er samþykt af Manitoba
stjórninni aö veita viötöku þá er
gert hefir verið út um fjármálin
þar aö lútandi.
Þetta landflæmi, sem bæta á
viö Manitoba, hefir rnátt heita ó-
kannað að mestu af hvítum mönn-
um, nema helzt þar sem veiðimenn
hafa fariö meö ám og vötrium
fram og aftur umhverfis stöövar
Hudsonsflóa félagsins. En þegar
'mælingamenn þeir er mæla áttu
fyrir Hudsonsflóa brautinni fóru
þar um, fengust nokkuö ábyggi-
legar fréttir um landslagiö alla
leiö noröur aö flóa, á vissu svæöi.
En það er eiginlega ekki fyr en
í sumar, að fréttirnar hafa orðið
verulega ítarlegar þaðan aö norö-
an. Hver landkönlnunarfefðm
hefir rekið aðra þó aö mest ha’i
aö vísu kveöiö aö leiöangri Grey
landstjóra og förunauta hans norö
ur þangaö. Blöðin hafa svo flutt
fréttir eftir þessum landkönnunar
mönnum, en af því aö þær íréttir
hafa borist meö æði löngu milli-
bili, hefir erfiðara oröiö aö átta
sig á þeim, en þaö sem nokkurn
veginn má telja óyggjandi er það.
sem nú skal greina;
í fyrsta lagi er þess að geta, aö
rök hafa verið færö að því, að bú-
seta á ströndum Hudsonsflóa aö
sunnan og vestan er ekki aö eins
möguleg, heldur og fýsileg og
líklega næsta skemtileg. Sama
mun aö nokkru leyti mega segja
um mikinn hluta landsins, sem
ligigTUf á milli flóans og Manitoba-
fylkis. Þaö er og kunnugt, aö
um síöastliönar tvær aldir hafa
skip gengiö út og inn um flóann á
hverju ári og þann tíma hafa
hvítir menn, þó fáir hafi veriö,
hafst viö á strönduhi flóans og
lifað góöu Hfi.
í annan staö er það nú taliö full
víst, aö mikar auðsuppsprettur séu
á þessu svæöi- Förunautum Grey
lávarðar, öllum merkum mönnum,
hefir borið saman um þaö, aö
landið þarna nyröra muni vera
fult af málmum og ekki skorti
annaö til þess aö vinna þá en viö-
unandi samgöngufæri.
í þriðja lagi er það engum vafa
undir orpið ,að vötnin þar nyröra
sem eru bæöi mörg og stór, eru
full af fiski. Þar er styrja 1 vötn-
um og ám, og hvitfiskur vænni og
betri en veiöist annarstaöar. Fleiri
fiskitegundir má enn telja, svo
sem silung, pike og pickerel.
I fjóröa lagi er í flóanum sjálf-
um mergö sela, hvala og rostunga.
Þar er og æðarvarp mikiö; flóinn
er fullur af grösugum eyjum víöa
meö ströndum fram óg eru þær
hið bezta varpland, svo aö býsna
er Ibjörgulegt )aö setjast þar aö
þó aö kalt sé vitanlega á vetrum.
í fimta lagi eru skógar afar-
miklir og ekki enn metið til neinn-
ar hlítar hvaö auður sá nemur
miklu, en mikill er hann eigi að
siöur.
Um akuryrkju er hins vegar
litiö hægt aö segja sem stendur,
því aö reynsla en ekki fengin svo
sem nein í þeim efnum. Þaö eitt
vita meun, aö Indíanar sem þar
búa, hafa sáö kartöflum og mat-
jurtum ýmiskonar um mörg ár
gefist vel.
Starfsmenn Hudsonsflóafélag®-
ins hafa og haft nautgripi, og
látið vel af því hve kýr geröu þar
gott gagn og talið gras þar kjarn-
gott til mjólkur og holda. Ætti
því aö geta oröiö þar allgóö gripa
rækt þó að lítiö yröi um komyrkju
ei landið bygöist.
Þaö leynir sér því ekki, aö eftir
nokkru er að slægjast þar sem
þetta landflæmi er og hlunnindin
viö flóannj og (hafa fréttimar
þarna aö noröan, þessar síðustu
og áreiöanlegustu staöfest þaö
enn betur en áöur, aö stefna lib-
erala í landamerkjamálinu, er
lang hyggilegust. Þaö atriöi í
stefnuskrá þeirra, sem um þetta
efni fjallar, er semsé á þá leið. aö
landamerkjamálinu veröi þann veg
heppilegast ráöiö til lykta, aö taka
tilboöi sambandsstjómarinnar um
landsviðhótina sem hún hýöur
þessu fylki, aö því viöbættu aö
fylkið fái um leið allar landsnytj-
ar sem um er aö ræöa á viðbótar-
svæðinu, svo sem mélma, trjávið,
fiskveiöi og annaö því um líkt.
En aðalskilyröi þess að hægt
veröi aö hagnýta sér þann auð,
sem óhræröur liggur þar nyröra,
er þaö, að Hudsonsflóahra’utin
veröi lögö, og sem betur fer get-
ur 'ckki komiö til mála aö hætt
veröi yiö þaö fyrirtælci. iÞegar
brautin er fullger, þá fer fólk aö
flytja þangaö norður stórhópum,
og þá mun smábyggjast landið út
frá hrautinni og þá veröur hvað
af hverju farið aö kanna óbygö-
irnar, sem enginn hvitur maöur
hefir stigið á fæti sínum hingaö
til svo aö kunnugt sé- Og ekki
er hægt aö kalla það ofi mikla
bjartsýni þó aö maður ætli, að þá
verði fundnar ýmsar auðsupp-
sprettur, sem nú er ókunnugt
um.
Talsímar.
Framfarirnar nú á tímum eru
margar og mikilfenglegar. Ef til
vill hafa þær þó orðið allra stór-
stígastar í þá átt ag greiöa fyrir
viöskiftum og samböndum manna
í milli um langa vegi, svo sem
með símskeytum, loftskeytum og
talsímum.
Ekkert viöskiftatækið er þó
meir brúkað en talsimarnir, og
hvergi eru þeir jafnjriikiö brúk-
aijir sem í Bandaríkjunum. Þar
eru talsímasamböndin um alt; þar
tengja talsímar saman bæi og
sveitir víöast hvar þar sem þétfc-
býlí er nokkuð aö ráöi. Telst
mönnum svo til, aö átta talsimar
komi þar aö jafnaði á hverja
hundrað íbúa, en í öðrum löndum
þar sem talsímar eru mest brúkv
aöir næst Bandaríkjum, koma ekki
nema þrír talsímar á hvert hun,dr-
aö íbúa. Næst mest er u mtalsíma
notkun í Canada og þá í Svíþjóð.
Á Þýzkalandi eru talsímar nálega
jafnmargir eins og í New York
ríkinu, og á Stórbretalandi eru
talsímar eigi fleiri en 1 Ohio ríki.
í Chicago eru fleiri talsímar held-
ur en 1 London, og helmingi fleiri
í Boston heldur en í París, og
Bandaríkjamenn einir sér eiga tal-
síma að þriðjungstali viö allar
Evrópuþjóðirnar.
Af því aö hér er verið aö bera
saman viöskiftasambönd í Evrópu
og Vesturheimi, er fróölegt aö ai-
huga bréfaskriftirnar beggja meg-
in hafs. í Bandaríkjum eru skrif-
uö svo mörg bréf árlega, aö þau
eru helmingur aö tölu viö þau
bréf, sem Evrópumenn skrifa ár-
lega. Bandaríkjamenn senda eitt
símskeyti á móti hverjum tveimur
sem Evrópumenn senda, og nota
helmingi oftar talsima. Hver fjöl-
skylda í Evrópu sendir aö meðal-
tali þrjú simskeyti á ári, þrjú bréf
meö pósti, og notar takíma einu
sinni í viku. Hver fjölskylda í
Bandaríkjum sendir aö jafnaði
fimm simskeyti á ári, sjö bréf með
pósti og notar talsima ellefu sinn-
um á viku. Fimm menn af hverj-
um hundrað eru Bandaríkjamenn,
þó eiga þeir 70 prct. af öllum tal-
símum í heiini og annast helming
allrar talsíma starfrækslu.
Aö eins í sex ríkjum í Evrópu
kveöur nokkuð aö ráöi aö notkun
talsíma. Þau ríki eru Þýzkaland,
Bretland, Svíþjóö, Danmörk, Nor-
egur og Sviss. í hinum Evrópu-
löndumim lcemur jafnvel ekki einn
talsími á hverja hundraö íbúa. í
Danmörku þó lítil sé eru fleirí tal-
símar en i öllu Austurríki. Finn-
ar eipra betra talsíma fyrirkomulag
er. Frakkar, þó undarlegt kunni aö
þykja,
Veröið á talsimum er mjög ó-
likt hjá hverri þjóö íyrir sig.
Dýrastir talsímar eru í Belgiu.
Þar kostar hver $273, en talsimar
á Finnlandi ódýrastir, hver þeirra
kostar aðeins $81.
Stjórnin í-Manitoba heföi átt aö
senda senda þangað verkfræðing
til athug.unar, áöur en hún gerði
út um talþráðakaupin sælu við
Bellfélagiö.
Dr. Kidd í gapastoknum
Alt um þaö, þótt mönnum veiti
misjafnlega að veröa sammála um
ýmislegt er viö ber á hnetti vorum
og' mörgu raíiglætinju takist aö
haldast uppf, eru þó'allflestir á
sama máli um þaö, aö eitthvert
sorglegasta tákn tímanna sé svik-
in og prettirnir, sem saklaus al-
þýða veröur aö þola bótalaust af
völdum kynjalyfja félaga og
skrumlækna. Þeir sem bezt þykj-
ast kunnir málavöxtum hika ekki
viö að telja þann ósóma meö svört
ustu blettunum á menning nútim-
ans. En sökum þess aö lyfjaplágu
þessarar gætir, á meöal menning-
arþjóðanna, lang sfcórvægilegast
og skaölegast í Banaríkjunum hér
i álfu, kemur ósjálfrátt sú hugsun
fram hjá manni, aö ötul samkepni
Bandaríkjamanna i að vilja skarn
fram úr í hvívetna, sé einnig hér
aöaldriffjöðrin í þessu mikla þjóö-
féfagi, er svo oft hefir beint þjóð-
unum í rétta átt til þess er göfug-
ast má telja meðal þeirra, hafi
fundiö þaö óberandi aö nokkur
önnur þjóð skipaði öndvegi, jafn-
vel í þeim verkahring er hún sjálf
h»efir með tilhlýöilegri viröing
valiö heitið: “The Great Americ-
an Fraud.”
íslenzk alþýöa hefir þó til
skamms tima mátt heita Iiafa orð-
ið blessunarlega út undan hjá
þessum ófögnuöi, því aö eg nefni
ekki Braman, Kínan né Volta-
krossinn til þesskyns bralls, kem-
ur til af því, aö þeim mætti likja
sem bamagamani viö þennan .jöt-
unmagnaöa hrikaleiik. Þótt sumir
aö vísu tældisí til aö brúka þau lyf
og kynjar, átti fólk þá naumast
annað verulega á liættunni en aö
vera fjármunalega “dregiö upp”
og haft aö skopi á cftir — einsog
sagt er aö Buhlner og Larsen hjá
Dönum heföi farist viö Islendinga
fyrir 25—30 árum, þegar þeir
voru búnir að fleka út úr þeim
40,000 kr. fyrir Braman sinn eitt
árið—; mönnum gefst þó færi á
ag halda flestum líffærum óskemd-
um; en með lyfjum þeirra manna,
sem hér er um aö ræða og flest
eða öll eru drepandi skaöleg, eru
þau ónýtt meö stöðugum meöala-
austri.
Guömundur læknir Hannesson
getur þess i all-langri grein í 56.
tölublaöi ísafoldar frá 31. Ágúst
s. 1., aö Dr. Jas. W. Kidd nokkur
sé svo nærgætinn og hugul-
samur aö sjá nú aumur á íslenzkri
alþýöu og bjóöi henni nú náöar-
sajmlega liðveizlu sína meö lyfj-
um sínum, er eigi aö vera allra
meina bót, og getur þess jafn-
framt til, aö af því Dr .Kidd sé
líklega amerískur, þá megi vel
vera aö einhver landanna þar
vestra, geti frætt íslendinga aust-
an hafs lítið eitt nánara um mann
þenna, sé hann lifandi eöa hafi
aimars nokkurn tíma veriö mann-
legu holdi klæddur. Sökum þess
aö mér ætti ekki aö vera svo þýð-
ingarmikið mál, sem hér er um að
ræöa, alveg óviðkomandi, stööu
minnar vegna, finn eg mér skylt
aö láta uppi nokkrar skýringar
sem mér eru kunnar um þetta
hneyksli, en tek það fram um leið
aö holdvistarvera Dr. Kidds er
mér fyllilega eins óljós og Guö-
mundi lækni.
Fyrir 5—6 árum gekk þetta
kynjalyfja prang svo fram úr öllu
hófi i Bandarikjum, að flesjtum of-
bauö, Nokkur mikilsmetin blöð
og tímarit þar í landi, með stjóm-
ina aö baki sér, tóku sig þá til og
sendu leynilega aö lyfjafélögun-
um og skrumlæknum .óívörúm, út
sérfræöinga í efnafræöi aö rann-
saka til hlítar meööl þeirra og
annars máliö í heild sinni. Þaö er
þessir menn höfðu aö segja máli
þessu viðvíkjandi var síöan prent-
aö ásamt mörgum þýöingarmikl-
um myndum til skýringar, svo að
hver og einn gæti sem auðveldast
séö og sannfærst. Ritið er eitt-
hvert hiö þarfasta, en jafnframt
þaö hörmulegasta, sem eg hefi
yfir farið. Eg hika ekki við aö
staöhæfa, sem sjálfs míns skoöun,
aö aldrei hafi dinglaö í gálganum
nokkur glæpamaöur fyrir saurugri
glæpi en þar getur, sé ástæönanna
og hugarþelsins ítarlega gætt.
Auk þess sem þjóöinni varö aö
blæöa árlega frá 75 til 100 milj.
dollara í maurahít þessara kynja-
Iyfja hákarla, varð hún — og þarf
hver og einn sem neytir samkynis
lyfja — sumpart aö svelgja i sig
vínanda af vers.tu tegund mor-
phini blönduðu og öörum deyfandi
lyfjum, eður þá meðalablöndun,
er ýmist höföu svo drepándi veikl-
aöa. verkan á hjartaö, eða örfuðu
svo um of störf lifrarinnar og
nýrnanna, aö þau líffæri hættu að
koma aö tilætluðum notum af því
bygging þeirra var ofboöið. En
þó taka svikin, sem á bak viö alt
þetta brask liggja, öllu öðru fram,
er leikin eru af þeim mönnum sem
æfðastir eru i listinni aö gera
þess kyns atvinnu aö æfisitarfi
sínu.
Þing og þjóö hefir því orðiö á-
sátt um, aö eini' vegurinn sem viö
blasi til aö stíga á hálsinn á þess-
um ófögnuöi ,sé aö opna augu
alþýöunnar fyrir þessu böli meö
hjálp blaða og timarita þjóöar-
innar. Margt bendir líka í þá átt
aö meö þessu ráöi líöi þessi pest
vonum bráöar undir lok í Banda-
ríkjum, líkt og holdsveikin fyrir
nútíðarmenning og heilnæmari
lifnaðarháttum, og þvi hröklast nú
garpamir undan til annara þjóöa
að leika þar spil sitt. Mönnum
kemur líka saman um, aö veröi
kynjalyfjunum útrýmt aö rnestu,
vcrði það ekki eingöngu beinn
fjárhagslegur gróöi í vasa þjóð-
anna og mörgu saklausu lifinu
bjargaö, heldur og einnig frelsist
mörg sálin frá aö veröa vín eða
deyfðameðala (c: morphin dg coa-
in) nautninni að -bráö.
I einu eiga öll kynjalyf sam-
merkt, sé um nokkra verulega
lagarkyns skamta aö ræöa, aö í
öllum þeim felst vínandi af verstu
tegund, reglulegt t'Slava romml“,
35—50 prct- og stundum langt yf-
ir þaö. öllum getur því auöveld
lega skilist hvaö af muni leiða
fyrir konur eöa þá böm, sem neyta
lyfja af því tagi er vínandi leynist
í meö þeim styrkleik, er tekið var
fram, máske fleirum sinnum á
The IMIVHNION B ANK
SELKIKK UTIBUIT).
AHs konar bankastörf af hendi leyst.
Sparisjóösd&ildin.
TekiP viti inBlögum, frá $1.00 aö upphæC
og þar yfir Hæsto vextir borgaöir tvisvar
simaum á ári. Viðskiftum bænda og ann-
arra sveitamanna sórstakur gauraur getmL
Bréfieg inniegg og úttektir af-greiddar. Ósk-
aö eftir bréfaviöskiftum.
Greiddur höfuöstóll...... $ 4,000,000
v».r?sjóSr og óskiftur gróði $ 5,400,000
Innlög almennings ........$44,000,000
Allar eignir..............$59,000,000
InnieigDar skírteini (letter of credits) seU
sem eru greiöanleg um allan heim.
J. GRISDALE,
bankastjóri.
dag, um lengri tíma, eða þá mor
phin eöa coain blöndur; engan
bata meinanna fá menn, en ásælni
í áfengi og deyfandi áhrif eftir á.
Þó skal það fyllilega játaö, að
undan sumum höfuðverkja meö
ölum þeirra linar höfuöverkinn i
bráö, en þaö byggist á sama prin-
sipi og “pic me up” og fleira af
þeirri tegund, og er fyrir aceta-
nilidið, sem í þeim öllum er und-
irstöðu meðalið; en svo getur Hka
tekist þannig til, að hjartaö alt í
einu hættu að slá. Svo að á bí-
amerísku, en meö samboöinni virð-
ing fyrir lækningunni, mætti kom-
ast svo aö oröi um einn eöa annan
er þaö henti, aö hann heföi “látist
1 stígvélunum”, með öðrum orðum
ef til vill betur viöeigandi orðum,
verið drepinn á svipstundu. Þaö
má mikið vera, ef það hvaö brátt
veröur um margan fyrir hjartabil-
un, hér í þessu landi, á ekki aö
neinu leyti rót sína aö rekja til
þessara kynjalyfjaöfga. Eins er aö
öllu leyti variö meö hósta og tær-
ingarmeöölin, sem þeir auglýsa og
folk telur skaðlaus, aö hóstanum
linar í svipinn fyrir ópíum og
cocainið, sem í þeim flestum er;
en séu þau líka notuö, sem æfin-
lega er gert, um lengri tíma, verö-
ur að stækka skamtinn, eigi þau
aö verða aö nokkru liði, og leiðir
óumflýjanlega til þess að lokumj.
aö sá er glæpst hefir á þeim til
lengdar, veröur aö ömurlegum
morphin eöa cocain s ræfli, þó aö
hann hjari. Alveg að sama brunni
ber meö öll hægðalyfin þeirra, aö
sá sem venur sig á aö brúka þau,
má ekki án þeirra vera eftir á, en
öll stórskemma þau líkamann, fyr-
ÆCSTA VERD HJÁ BANFIELD
„Victor“ siál stó
Venjulega $52.50 fyrir : 44.25
Lang skemtilegaAta og eldiviðardrýnsta
stó, sem nú er á markaöiniim. Brennii
bæði hörðum og lraum kolum, ,.coke'
>g viði, og eitt tonn af linkolum kemm
>ð betri notum í henni, heldur en harð
'OÍa tonn í oðrum stóm. Abyrgst af
hún reynist vel. Victor stóin ein hefit
heitan loftstraum, eldhoi sem eyðir reyi
ig sparar eldivið. \ jóg stór böknnar
ofti. ^öluverð..............'.$44 25
Vleðstórurn vatnskassa......$51 26
Fátíð kjörkaup á fyrirtaks
vönduðum gluggatjöldum.
Na-stu tvo daga getið þér fengið bezta
Point Venise. Duchess Point, og Saxony
Brussels hekluðgluggatjöld, fyiirminna
en verksmiðjuverð. Vér höfum hiua
fegurstu liti og beztu íegundir, en birgð
irnar svo miklan að vér verðum að
grynna á þeim. Hér eru sýnishorn:
Gluggatjöid venjul. $25.00 til $35.00,
seld nú, parið á .............819 90
Gluggatjöld venjul. $20.00 til $25 00,
seld dú, parið á ........... $14 90
Gluggatjöld venjul. $15 00 til $18.50,
seld nú, parið á ............$11.90
Giuggatjöld venjul. (12.00 til $14.00,
seld nú, parið á............ $8.90
Þér fáið nýjar, góðar og traustar vörur. Og ef yður
kemur betur að borga ekki alt 1 einu, þ>á er lán fúslega veitt.
Auk annarra þœginda, sem eru því samfara að kaupa hér,
þá megið þér treysta því, að hver hlutur sem vér seljum
hefir á sér það frægðarorð, sem gert hefir verzlun vora
ugga og vinsæla.
or-
Gólf-vaxdúkar, 39c
Mjög þyhkir, litaðir, gólf-dúkar, Með
tíglum og rósum, ljósirogdökkir. Hent-
ugir í eldhús og göng, þar sem ágangur
er mikill, tvö yards á breidd. Venjul.
6oc. Nú yardið..................39c
Nýmóðins gluggatjöld
fíngerð og gróf. Nokkurt úrval óseit
enn. Gróf frakknesk gluggatjöld, fall-
leg á lit og vel frá gengin, og fíngerð
skozk gluggatjöld. Litir, hvítir bleikir
o. fl. Venjul. 75C, goc, $1.00 og $1.15
yardið, ^e'd nú yardið fyri' .. 6O0
Gólfteppi
Enskir balmoralgólfdúkar, ferhyndir,
Einnsaumur að eins. Þétt ofnir og
munu líka vel að öllu leyti. Litir: ijós-
bláir og rauðieitir, með blómskrauti og
Austurlanda-skrauti.Atœrð Í“1 fi AA
10-0x12 o. $20 virði, hver tplv.UU
Enskir brusse! dúkar.ferhyrndir.Beztu,
gólfdúkar, þir sem mikill er umgangur,
auðhreinsanlegir og snotrir. Grænir-
rauðir ogbleikir. Stærð 9-0x10-6. Venju
lega $22, fyrir................$12.50
i'tærð 9-0x12-0. Venjul. $25.00,
' hver...................... $14.50
$5.00 járnrúm fyrir $3.65
Hvítsteind járnrúm með i 1-16 þuml.
stóipum, og sterkum göflum. Gyltir hún-
ar og hnúðar. ótærð 3 fet, 4 fet og 4 fet
og 6 þuml. Söluverð ...... $3 65
Góðar æðar-
dúns sængur
fyrir $6.75
$10.00 virði.
Þæreruinnfluttar, gerðar
úr hreinsuðum æðardún,
með satin veri, ljómandi
fallegu. V’el stórar. Venjul.
$io.oo.Nú séldar.. $6 75
$6.50 járnrúm fyrir $4.65.
Hvítsteind járnrúm með i 1-16 þuml.
tólpum og fimm sterkHm rimlum. Hálf
þuml. gyltar stengur efst
og gyltir húnar. Stærð:3
fet, 4 fet og 4 þuml. og 6
þuml. Verð.................$4.65
$10.00 Stúdents Stóll
fyrir $6.85
Klæddur góðu klæði.brfk-
urnar líka, sætid djúpt og
hvelft.
-S'öluvetð,
$6.85
HÚSGÖGN SELD MEÐ GÓÐ-
UM KJÖRUM.
J. A. BANFIELD
492 Main St.
Phones: m. 3661-2-3.
Hinir frœgu ofnar með heitum
loftstraumi.
Venjul. $12.50 fyrir $10.50
S3.50 í peningum, $3 mánaðarlega.
Reyklaus, loftheldur, gaseyðandi ofn,
mjög hentugur. Múrsteinn að innan ,
endurbætt rist og skörungur. Reynist
ágætiega. ð* 1 A C A
Söluverð...... ......i «plU.JU
Gólfdúkar
ENSKIR TBPESTRY DÚKAR,—
Ódýrir og hentugir í svefnherbergi,
Grænir, bleikir, rauðir og ;brúnir, með
austurlenzku blómskrúði
Vaualega 750 yarðið nú___ DUC.
ENSKIR BRUSSEK-DÚKaR,—
Fastofnir, endast árum saman. Rauðir
grænir, bláir, bleikir, rósóitir. Hent-
ugir í öll herbergi QAm.
Venjul-$1.50 yard, nú...«IUC.
LÍTIL BORGUN ÚT 1 HÖND,
HITT SMÁ AFBORGANIR