Lögberg - 29.05.1913, Page 4

Lögberg - 29.05.1913, Page 4
LÖÚBERG, FIMTUÐAGINN 29. Maí 1913. LÖGBERG Geíið út hvern fimtudag af Thk CoLUMBIA pFESS LlMITED Corner William Ave. & StierbrooFe Street WlNNIPBG, — MANITOPA m 1 m 1 i STEFÁN BJÖRNSSON, EDITOR J. ,-v. BLÖNDAL, BUSINESS MANAGER UTANÁSKRIF T TIL BLAÐ^INS: The Columbia Press.Ltd. P. O. Box 3172, Winnipeg, Man. UTANÁSKRIFT RITSTJÓRANS. EDITOR LÖGBERG, P. O. Box 3172, Wmnipeg, Manitoba. TALSÍMI: GARkY 2156 Verð blaðsins $2.00 um árið. ! i ! I! I vj 1 Fjáreyðsla og treg lán. Svo segja þeir, sem kunnugast- ir eru þeirn hlutum, að aldrei hafi verið eins tregt um peningalán eins og í ár, á síðasta mannsaldri. að árinu 1907—S undanskildu. Þegar litið er á búskaparleg ýmsra þjóða að undanförnu, verður þetta vel skiljanlegt. Auk þess sem flestar þjóðir brúka meira fé til stórvirkja og einkum hervarna, heldur en nokkru sinni áður, j)á hafa þau tíðindi gjörzt í ár, sem valda enn meiri hrúkun fjár en á fyrirfarandi árum. Þartil má nefna sem dæmi, að Mexicó er nú að taka lán, sem nemur meir en 75 miljónum dala. Það land lagði upp peninga af miklu kappi, mest- allan þann tíma, sem Diaz sat þar að völdum. Frá þeim tima, sem uppreisnin hófst þar, hafa herir rekist aítur og fram tim landið og sóað auð þjóðarinnar, án þess að vinna neitt upp í skarðið. Nú e^u J)ær birgðir, sem þá söfnuðust fyrir, með öllu uppetnar, og landið \erður að lána stórfé hjá öðrum þjóðum, og borga það um ókomin ár með afrakstri af atvinnuvegum sínum, varningi sem er nauðsynja vara og hefir því stöðugt gildi, svo sem keti, skinnum, mais cg málmum. En það fé, sem farið hefir til ónýtis í Mexico á siðustu arum er lítils virði hjá því sem sóast hefir á Balkanskaga árið sem leið. Sá auðiir, sem þar hefir farið forgörðum, er æfa miki.l. Þær þjóðir, sem þar hafa háð hildarleik, eru nú í krcggum og sárbiðja hinar, sem setið hafa hj.i, að lána séT fé ineð hvaða kjörum, sem jrær vilja setja. En svo vill illa til fyrir þeim, að rétt þegar þeim liggur mest á, að fylla upp í skörðin, taka Frakkar og Þjóð- verjar enn dýpra í árinni en áður til þess að auka her, sjó cg Ioft- flota. Þegar sókst er eftir té með svo kappsamlegu móti, þá er lítil furða að vextir fari hækkandi, svo að J>eir jafnvel eru komnir upp í átta af hundraði, og ekkert útlit fyrir, að þeir sem skildinga eig), muni slaka til fyrsta kastið. Kosningar í haust. A þingi voru í Ottawa hefir það ■ gjörzt tiðinda, að cldungadeildin hefir enn á ný breytt vegaaga frumvarpi stjórnarir.nar, á J>á leið, ! að vegafé skuli úthli tað. ekki eft- ir geðþótta stjórnarínnaheldur eftir fólksfjölda í hinutn ýntsu fylkjum. Það er J>örf cg í raun- inní sjálfsögð umbót, með því að j þarmeð er tekið fyrir frei tingar ■ sem stjórnin J<ann að hafa til þess að útbýta vegaft'nu eftir viná t.t og pólitísku fylgi. en ekki ein-t göngu eftir þörfum landsins. Það er alveg vafalaust, að öldunga-! deildin hefir J>ar góðan málstaö að verja og er undarlegt, að stjórnin skuli ekki sjá það sjílf að 1 ún vinnur sér ekki annað en óþökk | og óvirðing sjálf-tæðra marm i með J)ví að reyna að troða lögun- | um i gegn, móti vilja þingsins. L*m flotamálið er það að segja, | að það er nú fyrir öldungadei d- i inni og þykir líklegt, að deildin | beiti öllum löglegum ráðunt, til 1 Jæss að fá J>að spursmál lagt urdir ' atkvtæði þjóðarinnar. Ekki aöeins j er þar um 35 miljóna útgjöld að ræða — 5 dala nefskatt á hvert mannsbarn í landinu, — heldur um nýja stefnu í landsmtlum, þvert ofan í viðtekna stefnu allra helztu manna þjóðarinnar. Það I hefir hafst fram gegnum þing með ofríki og 'hörkubrögðum, og þv?er ekki nema rétt og sjálfsagt að öldungadeildin beiti valdi sínu til þess að fá stjófnina til að bera það undir almenning. Það er því líklegt. að flotamálið verði þar felt, og ef svo verður. er því spáð, að stjórnin gangi til kcsn- inga með haustinu. Nýja guðfrœði Jóns próf. Helgasonar. (Framh.) Þær eru þegar orðnar feikna-langt mál, Trúmála- hugleiðingar .Tóns jirófessors Helgasonar í „lsafold“, og ekki séð fyrir endinn enn. Vér höfðurn hugsað oss að benda góðfúsum lesara á nokkrar af mörgum vanhugsuð- um 6g vansköpuðum ályktunum lians í hinum fyrri köflum hugleiðinganna, auk þeirra, er vikið var að í ritgjörð vorri urn þetta efni 1 „Sameiningunni“ síðast. En þarsem nú þegar sýnt er orðið, að áfram á að halda endalaust og allt- af bœtist grátt ofan-á svart, þá nennum vér ekki að halda þeim eltingaleik áfram. Vér hlaupum því vfir allt nema aðal-atriði málsins. Það er. fimmti kaflinn í „lsafoldar“ -hugleiðingum jtrófessorsins, sem er aðal-atríðið. Fyrir honum liverfr allt hitt. Enda er hann um „Grundvöll trúar vorrar.“ Þar útlistar liöf. hina nýju kenning sína um Jesúm Krist. Urn innihald kaflans er það að segja, að það er hrein og bein Cnítara-kenning, en mun lakar frá henni gengið en gjört er í ritum beztu kennimanna Únítara, svo sem Channing.’s og Parker’s og hinna snillinganna í Boston á naostliðinni öld, enda lengra gengið í afhjúpun guðdóms- ins í persónu Krists, heldr en höfundar Únítara-kenning- arinnar hér í landi gengu í fvrstu, að minnsta kosti dr. Channing. Próf. J. H. leitar að grundvelli fyrir trú sína. Hann athugar heilaga ritning, en hún revnist honum ófullnœgj- andi. TTann segir: „Vér vitum, að margt stendr í biblí- unni, sem ekki verðr lengr ábyggilegt talið. En með því er loku fvrir það skotið, að liún geti orðið mér það liið ó- bifanlega fullgildi, sem eg geti grundvallað á trú mína.“ Þá athugar hann hina „náttúrlegu opinberun“, sannanir þær fvrir tilveru guðs, sem „lieimspekilega hugsandi guð- frœðingar og guðrœkilega hugsandi heimspekingar höfðu klakið út.“ En svo segir liann, að Kant ilafi komið til sögunnar, og liann liafi ekki þurft annað en að anda á þessar sannanir, og þær hafi lirunið í grunn einsog spila- hallir. Loks leitar höf. til Jesú Krists, og þar finnr liann „grundvöll trúar vorrar.“ Hiklaust gjörir hann þá játn- ing: „Kristr er hellubjargið, sem trú vor hvílir á.“ Þessarri játning samsinna vitanlega allir menn, sem fcalla sig kristna, Únítarar sem.aðrir. En svo kemr spurningin, sem á leikr: Ilver og hvað er sá Jesús Kristr, sem vér allir nefnum grundvöll trúar vorrar, en sinn á livern hátt ? Jón próf. Helgason virðir Krist fyrir sér frá sjónar- miði nýja testamentisins og segist að þessu sinni leiða hjá sér spurninguna um trúverðugleik þess. Hann segist beina athygli sinni óskiftri að „sjálfum manninum, sem skýrt er frá í ritum þessnm.“ Mörgum fögrum orðum fer hann um manninn og lætr hann gnæfa hátt upp-yfir aðra trúarbragða-höfunda, Móses, Buddha, Konfúeíus og Múhameð. En þótt fagrt sé mál það, liafa þó margir Jieir, sem hafna guðdómi frelsarans, ritað um hann og dá- samlega yfirburði hans yfir aðra menn rniklu hugnæmara mál, og enginn þó með ineiri innileik en Renan, vantrúar- maðrinn frakkneski. Um það efni eru ekki deildar mein- ingar, hversu mikill og góðr maðr Jesús hafi verið, þótt nýfrœðinga-liöfðinginn Campbell vilji ekki viðrkenna syndlevsi hans. En hvað er hann svo, þessi mikli og góði maðr? Er hann maðr aðeins, eða er hann guð blessaðr am aldir, einsog postulinn segir ? Niðrstaða próf. J. H. er sú, að hann liafi verið guði fyllt sál. Skilgreining pró- fessorsins liljóðar svo: „Vér sjáum þannig, þarsem Jes- ús guðspjallanna er, guðfyllta sálu, mann, sem á hverju augnabliki lífs síns, einsog vér þekkjum það af guðspjöll- unum, er svo altekinn af guði, að öll framkoma hans í stóru og smáu, til orða og vérka, mótast af því.“ Rökleiðsla J. H. heldr svo áfram: Hann er sann- fœrðr um, að „þessi dásamlegi rnaðr4 ‘ hafi verið til og því hljóti sá guð að vera til, sem sál hans var gagntekin af. „Getum vér hugsað oss , að þessi guðfyllta sál hefði getað verið til, ef enginn guð væri tilf — —- Jesús Kristr er mér virkileiki. Sá virkileiki er því aðeins mögulegr, að guð sé til. Þess vegna er einnig guð virkileiki, guð Jesú Krists 0g vor.“ Á þennan hátt segir höf. að Jesús Kristr verði grundvöllr trúar sinnar: það sýnir sig á Jesú Kristi, að guð hefir haft áhrif á hann, — fyllt sálu hans. Þess vegna er guð til; og guðlegu áhrifin á Jesú eru svo góð, að maðr verðr hugfanginn af ásýnd hans, og hjarta vort hneigist fyrir hann í lotningarfullu trausti og til- beiðslu að „sjálfum guði.“ Með þessu er þá ljóslega kennt, að Jesús sé ekki „sjálfr guð“, en hann sé sönnun fyrir því, að til sé guð, af því guð hafi haft svo mikil áhrif á hann. Jesús er ekki annað en maðr, en maðr, sem hefir þegið meira en aðrir af guðs anda, er „guði fyllt sál“. Þetta er í rauninni al- veg sama sem Campbell kennir og sama sem Únítarar trúa. Hvergi hefir mér fundizt kenning guðfrœðinganna nýju um eðli Krists betr útskýrð en í prédikan einni eftir Campbell, sem prentuð er í því prédikana-safni hans, er nefnist Temple Sermons. Rœðan hefir fyrirsögnina: „Setjum svo, að Kristr væri maðr aðeins.“ Hann segir þar aftr og aftr, að Jesús sé aðeins maðr, en manneðlið í œðsta veldi sé guðdómlegt. Menn nái misjafnlega hátt upp til móts við guðdóminn. Þegar sem hæst sé komið, verði ervitt að aðgreina, livað guðlegt sé og hvað mann- legt, eða hvenær manneðlið verði guðlegt. Jesús hafi náð allra lengst, svo manneðli hans sé guðlegt umfram alla. Campbell gjörir lítinn eðlis-mun á guði og manni. Ann- arsstaðar hefir Campbell aftr haft sama orðtœkið um Krist einsog það, er séra Jón Helgason nú við hefir og margir aðrir á undan honum af nýguðfrœðingum: “guði fyllt sál.“- Það er fróðlegt að bera þessar nýju tilraunir saman við kenningar Únítaranna, sem verið hafa brautrvðjendr hinnar „frjálslyndu stefnu“ og búnir eru að sigla um þau sundin, sem nýguðfrœðingar eru nú að velkjast í. Hér er talað um Únítara-stefnuna einsog vér þekkjum hana af sögu hennar hér í Vestrheinu, þarsem vegr hennar hefir mestr verið. Það eru nú liðin um hundrað ár frá því hin nýja guðfrœði Únítara hófst í Boston 0g breiddi sig út um Ný-Englands-fylkin. Fremstr í flokki frumherja þeirrar stefnu var valmennið þjóðkunna dr. William Ellery Channing. Eg hefi fyrir mér ritverk eftir hann frá 1815. Þar lýsir hann trúarlegri afstöðu Únítara- prestanna og kemst meðal annars þannig að orði: „Meiri hluti presta vorra trúir'bví, að Jesús Kristr sé meira en maðr, að hann hafi verið til áðr en heimr var skapaðr, að hann hafi í bókstaflegum skilningi komið af himnum til að frelsa kyn vort.“ Nokkrir, segir hann, hafni þríein- THE DOMINION BANK 8ir EDMUND B. OSI.ER, M. P., Pre» W. D. MATTHEWS .Vlce-Pre*. C. A. BOGEIÍT, Gcncral Manager. llöfuðstóll borgaðu* . . . . $5,000,000 Viirusjóður Allur cignir . $70,000,000 pJEK GETTr) BYRJAD liI’.IKXIXG MEt) $1.00 Sumir stærstu reikningar í sparisjóðsdeild voru birjaðir í mjög sniáum stíl. Reikning má byrja með $1.00 eða meira. XOTKE DAXIE BRAXCH: Mr. C. M. DENISOX, Manager. SELKIKK HRAXCH: .1. ORISDALE, Xíanager. NORTHERN CROWN BANK AÐALSKKIFSTOrA í VVINNIPEG Höfuðstóll (löggiitur) Höfuðstóli (greiddur) & ing persóna guðdómsins, án þess að hafa gjört sér á- kveðna skoðun um eðli Krists; og enn sé þeir nokkrir í þeirra hóp, en mjög fáir, sem „trúi því, að Kristr hafi verið einungis mannlegr að eðli.“ Þannig var ástatt fyrir Únítörum, er trúmála-óeirðirnar miklu liófust hér í landi. Smámsaman lenti þeim meir og meir saman, nýju guðfrœðingum þeirrar tíðar — Únítörunum — og guð- frœðingum liins gamla skóla kalvínska rétttrúnaðarins, sem frá dögum Jónatans Edward’s liafði ráðið lögum og lofum í Nýja Englandi. Únítarar fœrðu sig upp-á skaft- ið og höfnuðu æ fleirum kenningum kirkjunnar. Komu þá fram í þeirra liópi margir lærðir og ágætir menn, svo sem próf. Andrews Norton, George Ripley, skáldið Emer- son, og einkum Theodore Parker. Hinn síðastnefndi gekk lengra miklu en sjálfr Channing, einkum í því að hafna kraftaverka-kenningum nýja testamentisins og því, sem þar er kennt um yfirnáttúrlega fœðing Krists og lík- amlega upprisu hans. Samt gekk hann þar ekki spori framar en nýju guðfrœðingarnir vorir. Nýtt tímabil í framþróun Únítara-kenningarinnar liefst um og eftir 1840, þá Theodore Parker gaf út merkustu rit sín. Dr. Channing gat ekki samþykkt kenningar Parker’s. Hann vildi ekki samsinnna kenningum þeim um kraftaverkin, sem Parker hélt fram. Sagði, að ef þeim væri hafnað, þá yrði að hafna Kristi; en liann liélt fast við þá skoðun, að Kristr væri yfirmannleg vera, enda þótt hann hefði hafn- að þrenningar-lærdómi kirkjunnar og endrlausnar-kenn- ingunni á mjög svipaðan hátt og séra Jón Helgason hefir liafnað endrlausnar-kenningunni í fyrirlestri sínum um það éfni. Eftir þetta voru um hríð tvær stefnur hjá Únítörum, alveg^insog nú er með nýguðfrœðingum vor- um. Önnur stefnan fylgdi kenningum Parker’s, og varð hún ofan-á hjá Únítörum; hin var íhaldsamari og í anda Channings; leituðu sumir fylgjendr hennar aftr í skjól evangeliskrar kirkju; sumir urðn máttarstólpar í liinum óbundnu söfnuðum Kongregazíónalista, en sumir að- hylltust síðar að öllu leyti kenninga-kerfi Únítara einsog það var frá Tlieodore Parker komið og haldizt hefir í megin-atriðum síðan óbreytt til þessa dags. Þeir, sem kunnugir eru upphafi og framþróun Úní- tara-stefnunnar hér í landi, geta ekki annað en séð, hversu líkt er á komið með þeirri stefnu og stefnunni, sem ræðr fyrir hinni svo nefndu „nýju guðfrœði“ í samtíð vorri. Theodore Parker segir um Únítarismusinn: „Hreyfing- in hófst meðal menntuðustu manna í þeim hluta Vestr- heims, þarsem menningin er mest, og meðal þeirra manna, sem ekki höfðu til brunns að bera trúarþroska hlutfalls- lega við vitsmuni sína og siðfágun.“ (Weiss’s Life of Parker, Vol. 1, p. 270.) Byr undir vængi fékk og Únítara- stefnan í liyrjun með bókmennta-Öldinni nýju, feerti uþp rann um sama leyti og á sama stað. Þá áttu enn fremr umbrot þau í stjórnmálum, sem um þær mundir höfðu svo mikið vald yfir hugum manna, sinn þátt í því að hrinda af stokkum nýrri stefnu í trúmálum. En það, sem öllu fremr bjó í haginn fyrir Únítara-stefnuna, var sá svefn til dauða, sem fallinn var á kirkjuna sjálfa í Nýja Eng- landi, eftir að liinn heiti eldr hreintrúarmanna—púrítana —hafði kulnað þar á glóðum, — trúin orðin að andlausum formum og dauðum siðum. Svipað þessu er ástandið nú hjá vorri þjóð, og líkt fer nýju guðfrœðinni hjá oss. Hún sprettr upp við höf- uðból menntunarinnar á Islandi, samhliða nýjum bók- mennta-straumum og þjóðmála-hreyfingum. En það, sem jarðveginn gjörir frjósaman fyrir nýja stefnu, er rœktarleysið, sem komið er þar í kirkjutúnið, þarsem hin gamla kirkja liggr í rústum, og svefn, þungr sem dauð- inn, hefir lagzt á sálir manna í faðmi fjötraðar ríkis- kirkju. En Únítara-stefnan hefir ekki náð mikilli útbreiðslu. Hún hefir ekki reynzt alþýðleg. Hún hefir ef til vill um- fram aðrar tegundir skynsemistrúar fullnœgt skynsemi ýmsra frœðimanna. En til hjartans hefir húu ekki náð, og með engu móti getr hún fullnœgt trúarþörf mannanna almennt. Henni reyndist óhœgt að haldá hjarta-trú Channing’s; hún hlaut að aðhyllast hin köldu skynsemd- ar-rök Parker’s. Þar er styrkleiki hennar, og þar er líka veikleiki hennar. Eins mun fara „nýju guðfrœðinni“. Hún er nú þeg- ar klofin í tvennt: annarsvegar eru þeir, sem fylgja rök- um hennar út-í æsar, og geta þá ekki annað, framknúðir af sínum eigin röksemdum, en siglt í kjölfari Únítara og annarra skynsemistrúarmanna; hinsvegar eru þeir, sem enn vilja bera kápuna á báðum öxlum, fylgja bæði skyn- semi-stefnunni og hinni gömlu kristnu trú,‘ og leitast við að samríma það tvennt. En það mun reynast, og hefir þegar reynzt, jafn-ókleift verk nú einsog ávallt áðr. Og það, sem áreiðanlega klýfr fylkingarnar nú einsog fyrr, er Jesús Kristr sjálfr. Það verðr kenningin um hann, sem verðr nýju guðfrœðinni til falls. Jesús Kristr er sá klettr, sem flóðið skellr á; þar skiftist það í tvö strauma-föll; fer annar straumrinn þeim megin, sem sú skoðun ríkir, að Jesús sé maðr og efcki meira, mikill og góðr maðr og siðameistari mannkynsins; en hinn straumr- inn fer þeim megin, þarsem sú trú ríkir, að Jesús sé guð, - heilagr og blessaðr um aldir, sem borið hafi syndir mann- anna og friðþægt þá við föðurinn. Það er einungis tvennt, sem legið getr fyrir mönnum hinnar nýju stefnu, annaðhvort að sameinast í skoðunum að öllu leyti Únítörum, ellegar þá hverfa aftr til uppruna- legrar evangeliskrar trúar. Og má vel vera, að gott leiði af hreyfing þessarri á þann hátt, að fyrir það að aftr rennr straumrinn inn-í farveg kirkjunnar fœri hann henni ný efni til nœringar og hressingar. Þess vil eg í íengstu lög vera fullvís, að fáir sé svo langt á veg komnir, að þeir ekki snúi aftr, þegar gteinilega kemr í Ijós, hvert leiðin liggr, einsog nú er augljóst orðið af „hugleiðing- um“ Jóns. próf. Helgasonar, einkum af áminnztum fimmta kafla þess ritmáls. Komnir eru tveir kaflar enn af „hugleiðingunum* ‘; en þar er ekkert nýtt og ekkert, sem nokkurt gildi hefir. Þeir kaflar eru til þess eins fallnir að sanna ummæli dr. Valtýs Guðmundssonar um . $6,000,000 t . $2,746,000 S rjÓRNENDUR: Sir D. H. McMillaD, K. C. M. G. Capt. Wm. Robinson H. T. Chanjpion Frederick Nation W, C. Leistikow Sir R P. Koblin, K.C.M.G, Allskonar bankastirf afgreidd.—Vér byrjum reikninga við einstaklinga eða félög og sanngjarnir skilmálar veittir. — Avisanir seldar til hvaða staðaar sem er á slatvdi. — Sérstakur gaumur gefinn sparisjóðs innlösum, sem hægt er að byrja með einum dollar Reutur lagðar við á hverjum 6 mánuðum, T. E. ThORSTEINSON, Ráðsmaður. Cor. Willim Ave. og Sherbrooke St. Winnipeg, Man. Formaöur Vara-formaöur Jas, H. Ashdown Hoo.Ð.C- Cameroo nýju guðfrœðina í nýútkominni „Eimreið“. Þar segir svo (að slepptu klúrvrðj einu) : „Ilún er-------hvorki fiskr né fugl; er nánast orðin Únítaratrú, en þorir ekki, eða vill ekki, kannaét við það, og þykist standa á gömlurn rétttrúnaðargrundvelli þrátt fyrir allt.“ Hver eftir ann- an hafa þeir nú kveðið upp-úr með það, liinum megin við hafið, bæði þeir, sem eru með og móti kirkju, að nýja guð- frœðin sé alsystir Únítaratrúarinnar. Þyki það óréttlátr dómr, er þá að kæra á undan oss. B. B. J. Fáeinar spurningar tii Heimskringlu. i- Ef það er lýgi að mútum hafi ' verið beitt við Gimli kosningarn- ! ar af hálfu stjórnarinnar, þá er 1 það glæpur af andstæðingum | þeirra að bera á þá slíka sök, og ! hvernig stendur á því að þeir eru i ekki dregnir fyrir lög og dómi fyr- 1 ir 'þann glæp? Roblin sagði sjálf- ur rétt fyrir kosningarnar að ef eitthvað glæpsamlegt kæmi fram af hálfu framsóknarmanna í sam- bandi við Gimli kosninguna, þá skyldi þeim engin vægð sýnd. Álítur Roblin þennan áburð sann- an? eða hvers vegna er það að hann lætur ekki hefja sakamál á hendur “lygurunum” og hreinsa hendur sínar? • •; rj»i -i ■ II. Ef það er lýgi aS brennivíni liafi verið útbýtt nieðal kjósenda í Gimli kjördæmi af hálfu stjórnar starfsmanna um síðastliðnar kosn- ingar og ef stjórninni þykir það ljótur áburður, 'hvers vegna hegnir þá ekki Roblin “lygurunum” með fangelsisvist samkvæmt dómi að afstaðinni löglegri rannsókn ? III. Er það ekki léleg frammistaða af lands- eða fylkisstjórn að láta það viðgangast óhegnt að glæpir séu bornir á saklausa menn eins og framsóknarmenn hafa nú gjört við íhaldsmenn? Er það ekki brot á stjórnarfarslegri skyldu sam- kvæmt emhættiseiði að láta það viðgangast órannsakáð ? IV. Er það ekki hálf óviðkunnanlegt þegar hjú vinnur á móti því sem húsbónda þess er hjartfólgnast. eins og t. cl. Gunnl. Tr. Jónsson amast við því að telja blessað brennivínið eitt af vopnum Rob- lins? Er nokkuð liklegra en það að Roblin telji brennivinið helg- asta vopnið sem hægt sé að beita við kosningar og láti því lið sitt nota það þegar í harðbakka slær? Enginn sem lesið hefir þingræðu Roblins getur efast um trú hans á mátt og helgi brennivínsins? V. ■ Hví var framsóknarmönnum neitað um rannsókn í máli þeirra manna er fastir voru teknir i Mac- donald kosningunni? Ef þeir voru sekir um glæp, var þá ekki stjórn- in skyldug að láta sanna það og hegna þeim fyrir? Ef þeir voru saklausir af þeim glæp sem á þá var borinn, var það þá ekki skylda stjóniarinnar að rannsaka má{lið og fríkenna þá? Attu þeir ekki borgaralega heimtingu á því? Hlutu þeir ekki að vera annað hvort sýknir eða sekir? Var það afsakanlegt ef þeir voru sekir að sleppa þeim án hegningar? Var það afsakanlegt ef þeir voru sak- lausir að sýkna þá ekki? Hvað mundi Tryggvi hafa sagt um slíkt hefði H. Hafstein átt hlut að máli? VI. Hver er munurinn " á því að múta kjósendum með peningum eða brennivíni og því að ógna þeim með þeím hótunum, að ef þeir kjósi ekki þann, sem stjórnin vilji, ])á skuli hún (stjórnin) beita þá þeim þrælatökum að neita þeim um réttmætar itmbætur? Eru nokkrar mútur til þrælmannlegri en þessar? Er stjórnin kosin fyr- ir fylkið eða flokkinn? Hvað mundi Tryggvi segja um stjórn- ina á íslandi í likum kringum- stæðum? Tryggvi sagöi að ef Gimlimenn kvsii Árna Eggertsson, þá fengju þeir ekki það sem þeir óskuðu eftir í umbótum; en yrði Taylor kosinn þá fengju þeir það. Er þetta satt ? Er það satt -að Roblinstjórnin sé svonai svívirði- leg? Mundi bún neita um sann- gjairná kröfu fyrir þá sök eina að‘ framberandi hennar hefði aðra skoðun en stjórnin sjálf í ein- hverju öðru máli? Mundi hún veita ósanngjarna kröfu fyrir þá sök eina að hún væri flutt af póli- tiskum jábróður? Eg spyr aftur, er Roblinstjórin svona skítug? Getur það verið satt? VIII. Er það virkilega alvara Heims- kringlu að við megum ekki horfa á neitt hér með Islendingsaugum, og að það sé óþegnhollusta að horfa á ættlenzka þjóðernið? Er þetta öll alvaran qieð þjóðernis- gumið okkar Vestur-Islendinga ? IX. Hversu mikið hefði það kostað Canada að láta fólkið greiða at- kvæði um flotamálið undir eins í byrjun? Hversu mikið hefir það kostað Canada að þæfa flotamálið í þinginu frá því það fyrst hófst og þangað til það var afgreitt frá neðri deild til hinnar efri? X. “Fari svo að öldungadeildin felli frumvarpið, mun stjórin kalla Islendingadagurinn. Nefnd sú *er stóð fyrir Islendinga- deg inum íWinnipeg síðastl. ár boðar hér með til almenns fundar Mánudaginn 2. Júní n, k. í neðri sal Goodtemplara hússins, kl. 8 e- m. Nefndin gerir þar reikningsskap ráðsmensku sinnar. Þar verður einn- ig kosin Islendingadags-nefnd fyrir Detta ár. Fjölmennið því einusinni, pað er það minsta sem þið getið gert fyrir þann dag. J. B. Skaftason, formaður nefndarinnar. R. T. Newland, ritari.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.