Alþýðublaðið - 16.03.1921, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 16.03.1921, Blaðsíða 1
Alþýðublaðið Gefið át af Alþýðuflokknum. 1921 Miðvikudaginn 16. marz. 62. tölubl, Sjómannafólag’sfundurinn Tillaga forsætisráðherra feld. í gærkvöldi var haldinn fundur i Sjómannafélagi Reykjavíkur, og stóð hann frá kl. 7 til nær 11. Var tiiefni hans það er sagt var frá í blaðinu f gær: Tillaga Jóns Magnússonar. Báran var full. Tekn- ir voru inn í félagið 56 nýjir fé iagar, sem bæzt hafa við á þess um tveim dögum, síðan fundur var haldinn, en þá gengu 37 menn inn. Tala félagsmanna er nú tæpt þúsund, eða nákvæmar sagt 982. Sjómannafélag Reykjavíkur er því lang fjölmennasta verkalýðsfélagið á íslandi. Miklar umræður voru á fundin- um, og voru haldnar yfir túttugu ræður. Var að lokum samþykt tiliðga sú er birt er hér á eftir. En áður ea hún var borin upp, var eftir ósk formanns borin upp tillaga forsætlsráðherra, sem hljóð- aði svo: „Hvert fat af lifur þeirri, er kemur úr fiski þeim, sem hér er iagður í land, greiðist með 25 kr. í stað 52 kr. A móti því kemur uppbót þannig taiin: Hásetum greiðast So°/o af því verði fiskj- arins sem er yfir 150 kr. — hvert skippund ti! uppjafnaðar, — fisk iirinn þurfiskur eða matinn til þur- fiskjar. Að öðiu leyti samningurinn ó- breyttur. “ Tillaga þessi, serr. fer fram á að tekjur sjómanna yfir vertíðina rýrni um 500 ti! 700 kr., fékk íkkert atkvæði, en atkvæði á móti voru ekki talia, þar eð allir fund- armenn virtust vera það. Var síðan samþykt í einu hljóði eftrrfarandi tillaga: „Sjómannafélag Reykjavfkur hafnar tillögu þeírri, sem komið hefir frá forsætisráðherra, um breyt ingu á gildandi kaupsamningi, af þeirri ástæðu, að ef fyrirkomulag það, sem forsætisráðherra stingur upp á, ætti að vera viðunandi, væri óhjákvæmileg nauðsyn, að sjómenn tækju þátt i stjórn rekst urs togaranna og fisksölunnar, en það er of umfangsmikið mál til þess að komast í lag fyrir vertíð. Sjómannafélagið heldur þvi fast við gildandi samninga, en getur þó fallist á svofeldar breytingar: Lifrarverð 52 kr. pr. tunnu útborg- ist þannig: 30 kr. borgist strax samkvæmt ákvæðum samningsins, en afgangurinn, 22 kr. pr. tunnu, borgist ekki fyr en 1. október þ. á,, gegn 5% ársrentu er gangi til atvinnuleysissjóðs Sjómannafélags- ins. Lftur félagið þannig á, að með þessu hjálpi sjómenn til þess að koma skipunum til veiða, með því að iána þessa upphæð til út- gerðarinnar af lítilli getu. Breyting þesst á samningnum er bundin því skilyrði, að ríkissjóður ábyrgist greiðslu eftirstöðva lifrárverðsins. Loks skorar Sjómannafélagið á Alþingi og landsstjórn, að hlutast til um, að togararnir verði gerðir út þegar í stað.“ Alvarlegar áskoranir þurfa að fara að koma frá verkalýðnura, sera heild til þings og stjórnar, um að sjá um að það bæti hið hneyksl anlega ástand, sem á sér stað um togarane, að þeir séu Játnir liggja aðgerðalausir í böfn yfir hábjarg- ræðistímann. Lfklegasf er bezt að halda Alþýðuflokksfund á Austur- velli, meðan stendur á þingfuadi, en. láta sendinefnd faera þinginu fundarsamþyktina, og faera fund- inum aítur svar þingsins. Áhugaliði. Fjalla-Eyvindur verður leikinn anmað kvöld. P^Ó. Kunnugur maður sagði við mig í dag, er hann hafði lesið árétt- ingargrein F. Ö. i Visi í dag: „Mikil andsk. vitleysa er þetts. Ekki er undarlegt þótt þeir fái „undirballans* í útreikninginn sinn, ef alt er á sömu bókina lært og þetta. Þarna gerir hann trollunim aðeins að veiða 240 skpd. á a; 10 dögum, í stað þess að venjiv legasta veiðin hefir verið 320 —360 skpd., sjaldan þar undir, en mjög oft þar yfir. Eða verkunarkostnaðurinn. Að telja hann urn 40 kr. á skpd, En hæzti kostnaður við það hingað til hefir verið þetta á hvert skpd.: Þurkun út um holtin hjá ein- staklingum — en þeir hafa haft miklu meira upp á þann hátt, en að vinna á stöðvum útgeiðar- manna —................kr. 12,00 Þvottur................— 1,75 Akstur frarn og aftur . — 2,00 Yfirbreiðsla...........— 2,00 Aðgreining hátt reiknuð — 1,00 Samtals kr. x8,7S 1 þessu er þó aksturinn talinh Iengri en lengst gerist hér i bæ, yfirbreiðslunni að duga aðeins á eitt skpd. og aðgreiningin talin um 3/4 dýrari en venjulegast mun vera. Verkafólkið hefir aldrei notið þessa rnikla verkunarkostnaðar. Um hitt skal eg ekki segja — þykir þd ekki ótrúlegt — nema fiskverkunarstöðvar einhverra úr- gerðarmanna, sem tekið hafa fisk til verkunar af öðrum útgerðar- mönnum, hafi tekið 40 kr. fyrir verkunina. En þar hefir verið tek- inn drjúgur skildingur fyrir ekki neitt." Svo fórusf feonum hér um bil orð. Hver segir sannast? Hverjum á að trúa? „Spyr sá, et ekki veit.“ »4/2 G. k.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.