Lögberg - 25.01.1923, Side 4

Lögberg - 25.01.1923, Side 4
4Ue. LÖGBERG FIMTUDAGINN 25. JANÚAR 1923. Jögberg Gefið út hvem Fimtudag af The Col- mnbia Preis, Ltd./Dor. William Ave. & Sherbrook Str., Winnipeg, Man. Talnimari >-«327 N-6328 Jón J. Bíldfell, Editor Utanáskrift tíl blaðsins: THE COLUIHBIA PRESS, Ltd.p Box 3172, Winnipeg, ^aq. Utanóskrift ritstjórans: EDiTOR L0CBERC, Box 3172 Winnipeg, ^an. The "LöxberK" is printed and published by The Columbla Press, Limlted, in the Columbia Block, 863 to 817 Sherbrooke Street, Wlnnipeg, Manitoba Austur og Vestur Canada. iii. í síðasta blaði mintumst vér á nokkur atriði í sambandi viö Hudsonsflóa braulina, sem hvert eitt var nægilega veigamikið, til þess að stjómin í Canada og þeir aðrir sem bera velferð þjóðar- innar í heild sinni fyrir brjósti færu alvarlega að hugsa um það mál. „ / En það eru fleiri ástæður og jafnvel enn þýð- ingarmeiri, en þær sem taldar voru, fyrir því hvers vegna að þessi braut ætti að fullgjörast og það sem fyrst. Afstaða Sléttufylkjanna í Canada gagnvart alheims eða Evrópu markaðinum, er svo þýðing- armikil, þegar að ræða er um sölu á afurðum þeirra að hún krefst athyglis hvers einasta hugsandi manns, og þegar vér athugum hana, þá hlýtur maður að komast að raun um, að þegar aðstaða vor Sléttufylkja búanna í Canada er borin saman við afstöðu annara þjóða, sem eiga lífs- framfærslu sína að meira eða minna leyti undir komrækt, þá er ekki hægt að segja að hún sé sJæm. 1 Sléftufylkin í Canada liggja nær Evrópu hveiti- markaðinum en flest önnur lönd, sem hveitirækt stunda nokkuð til muna, nú sem stendur. Frá Winnipeg og til Liverpool á Englandi eru 4422 mílur og frá Edmonton í Alberta eru það 5247 rnílur, eða sem næst því. petta er ekki ýkja-langur vegur og ætti ekki að vera frágangs- sök, fyrir bændur, á báðum þessum stöðum að keppa við þær þjóðir, sem þurfa að senda vörur sínar mikið lengri leið til þess sama markaðar. Frá Argentinu og til Liverpool, eru 6000 mílur, frá Ástralíu eru 11000 mílur ef ffarið er í gegnum Suezskurðinn, en 11,700 kuður fyrir hom. En þó geta báðar þessar þjóðir, sem eru skæðir keppinautar Canada, sent hveiti sitt á alheimsmarkaðinn fyrir lægra gjald, heldur en Canada bændurnir geta, og fær því bóndi í Vest- urfylkjunum, sem er 6000 mílum "ær alheims- markaðinum, minna fyrir hveiti sitt, heldur en bóndinn í Ástralíu, eða bóndinn á Argentinu, sem er meira en þúsund mílum lengra í burtu. pað kostar bónda sem býr nálægt Edmonton, 46,26 cent á hvera mælir hveitis, að senda hann með járabrautum og skipum til markaðar og þegar verð á hveitinu er í kringum einn dollar, eins og það var síðastliðið haust, þá hefir hann sjálfur eftir, þegar hann er búinn að borga j árnbraíta og eimskipafélögunum, að eins um 54 cent, eða hann verður að iborga fast að helming af sölu- verði vöru sinnar, til þess að koma henni á mark- aðinn. Vér sögðum hér að framan, að frá Ed- monton og til Liverpool, væru 5247 mílur, þar af er landvegurinn frá Edmonton og til Montreal 2,247, en sjóleiðin 3000 mílur. Burðargjald undir hvern mælir korns frá Montreal og til Li- verpool er 6,97, nærri sjö cent, en kostnaðurinn við að flytja hann 2247 mílumar, sem eru á mi li Montreal og Edmonton er 39,29 cents. Flestum mönnum, sem komnir eru til vits og ára og nokkuð geta hugsað, mun koma samar. um að óhugsanlegt sé að landbúnaðar iðnaður- inn geti með nokkru móti þrifist því síður blómg- ast, með því að framleiðendur séu neyddir, til þess að borga helming eða því sem næst af allri framleiðslu sinni, til þess að geta komið henni til markaðar. Og þá er tvent, sem liggur fram - undan, að bæta kjör þau, sem framleiðendurnir eiga við að búa, eða að landbúnaðar framleiðsl- an eyðilegst og framleiðendumjr leita sér lífs- framfærslu annarstaðar. Vér segjum ekki að Hudsonsflóa brautin gé allra meina bót, en vér segjum það hiklaust að Sléttufylkin eiga ekki völ á neinu, sem jafn mikil áhrif hefði trl betrunar á hið gífurlega og ó- sanngjama flutningsgjáld, sem íbúar þeirra verða nú að sæta. pað þarf ekki skýran mann til þess að sjá hag þann, sem bændur mundu bera þar úr býtum. f Vér sögðum að þeir þyrftu- nú að borga 39,29 cent, undir hvem mæJir korns frá Edmonton og til Montreal, eða rúmlega það, og verður það sem næst 1,7 á hverja mílu. Ef Hudsons flóabraut- in væri fullgerð, þá styttist vegalengd sú, sem flytja þyrfti hveiti með jámbrautum, frá aðal- stöðvum Sléttufylkjanna um 971 mílu að jafnað- artali og þeir spararþví 1,7 cents á hverjum mæli hveitis á hverri af þessum 971 'mílu, og fá því 16 eentum meira fyrir hvern mæli hveitis, sem þá leið er sendur til alheims markaðsins, heldur en fyrir það sem sent er Montreal leiðina. Hugs- ið ykkur hvað það mundi þýða fyrir bænflur Sléttufylkjanna. Canadamenn seldu síðastliðið ár 327,000,000 mæla hveitis. Segjum að þrír fjórðu partar þeirrar framleiðslu hafi verið frá Sléttufylkjun- um eða um 245,000,000 mælar, og að helmingur- inn af þeirri uppskeru hefði verið sendur til mark- aðar með Hudsonsflóa brautinni, þá mundi hagn- aður sá, sem beint hefði komið í vasa bænda Sléttufylkjanna, numið alt að $19,600,000. Vér vitum ekki hvað margir bændur eru bú- settir í Vesturfylkjunum, en hitt vitum vér, að upphæð þessi hefði borgað margar skuldir, sem nú eru óborgaðar, og ekki getum vér varist þeirr- ar hugsunar að fult eins vel hefðu þeir verið að henni komnir eins og járnbrauta- skipa og korn- hlöðueigendurinir, sém fengu hana. Háttprýði. ‘Tíguleg framganga hrífur fegurðar tilfinn- ingu vora, meira en fögur mynd, eða fagurlega höggvið líkneski. Hún er fyrst af öllum fögr- um listum.” Emerson. Frumskilyrði fagurrar framgöngu er ‘að hafa vald yfir sjálfum sér. Háttprýði er ekki aðfengin dyigð. Ekki utanað lærðar reglur, né aðfenginn fegurðarhjúp- ur, heldur meðfætt andans göfgi. Næm rétt- lætistilfinning, staðfastur ásetningur, með að taka sér yfirsjópir annara aldrei tjl inntekta og að víkja aldrei af vegi sannleikans. Háttprýðí og kurteisi í viðmóti við þá, sem við höfum ein- hver viðskifti við eru aðals einkenni konu jafnt sem karlmanns. í félags og samkvæmislífi mamaanna er fast ákveðið fyrirkomulag, eða reglur um það hvemig fólk skuli hegða sér undir mismunandi kringumstæðum og við mismunandi tækifæri. Hugmynd sú, sem á bak við þær reglur lá í fyrstu var sú, að finna aðferð til þess að hnekkja hinni ófáguðu framgöngu, sem mönnum er svo eiginleg — að klæða dýrið í manninuim 1 skykkju óeigingirninnar. Góðvild og umhyggja fyrir þörfum annara, er frumtónninn í sannri háttprýði. Aðal atriði háttprýðinnar, er að umgangast alla eins og þá, sem æðsta stigi hafa náð í hátt- prýði. Háttprúður maður gefur aldrei gaum að því, þó honum sé sýnd ókurteisi og kemur fram við þá sem svo breyta, eins og þeir hefðu sýnt hina sönnu háttprýði gagnvart honum. Háttprýðina getur enginn maður borið á öxlum sér eins og kápu. Hún verður að vera samgróin eðli manns og anda, og því hóflegri, frjálsari og þýðari, sem framganga mannanna er, því meiri áhrif hefir maður, og því augljósar: verður háttprýði manns. Hermannaritið. Eins og mönnum er yfirleitt kunnugt, þá tók Jóns Sigurðssonar félagið að sér það vandaverk, að safna til og gefa út minningarrit íslenzkra herlmanna, og hafa konumar verið að vinna kappsamlega að því að undanföinu og má því verki nú heita lokið, því ritið er væntanlegt á markaðinn um næstu mánaða mót. Með fáum orðum er ekki hægt að lýsa því feikilega mikla verki, sem konur þessar hafa færst í fang, né þeirri alúð og fórnfýsi, er þær hafa sýnt, frá því að þær tóku verkið að sér og þar til nú, að því er lokið. En á fórnfýsi konanna er ekki að furða sig, því það er einkenni þeirra, og hefir ávalt verið, þegar um mikilsvarðandi mál hefir verið að ræða, og þá ekki sízt um þetta mál, sem liggur svo nærri hjarta þeirra margra. Um þýðingu þessa minningarrits hefir áð- ur verið talað hér í blaðinu og því ekki nauðsyn legt að fjölyrða um það að þessu sinni. Ei benda má þó á þá hlið þessa fyrirtækis, sem snýr að hinni sögulegu framtíð hins íslenzka þjóð- arbrots í þessu landi, því það er þessi bók, sem ein geymir heimildimar um það hvern ^átt að hinir íslenzku menn og konur tóku í málum lands þessa þegar mest á reið og hvemig að þeir reyndust, þegar karlmensiku þeirra og dreng- skap var haslaður völlur. þessi bók — þetta minningarrit, er og verður talandi vottur þess um alla ókomna tíð. Vér höfum ekki séð þessa bók enn og getum því ekki dæmt um hinn ytri frágang hennar, en vænta má að hann sé hugmyndinni samboðinn, r— áð bæði prentsmiðjan sem verkið gjörir og kon- uraar, sem tekið hafa að sér að gefa hana út, leysi ^erk siit vel af hendi. Vér að eins rituir '.ð hún er c stóni broti, bundin í ágætt band (leður á kjöl og hornum), að í henni eru 512 blað- síður og á annað þúsund mjmdir. En nú er eftir að vita hvaða viðtökum að bókin mætir hjá almenningi, — hvort að ís- lenzkur almenningur hér vestra metur-hið geysi- lega mikla verk, sem lagt hefir verið í útgáfu þessarar bókar og minningu hermannanna ís- lenzku nógu mikið, til þess að kaupa bókina, lesa hana og eiga. > Rétt finst oss í þessu sambandi að geta um það, að aðeins þúsund eintök af bókinni, hafa verið prentuð og þar af voru menn búnir að skrifa sig fyrir fullum f jórum hundruðum, áður en á veririnu var byr jað, svo það eru að eins sex hundr- uð eintök, sem til sölu eru og eru fullar líkur til að þau seljist upp á örstuttum tíma, og því betra fyrir þá sem bólkina vilja eiga (og það ættu sem flestir að vera), að senda inn pantanir sínar sem allra fyrst, eftir að hún kemur á markaðinn, til Mrs. P. S. Pálsson 715 Banning St., Winnipeg, á- samt andvirði bókarinnar, sem er $10,00. Bækur sendar Lögber^i. “Verzlunar ólagið” eftir Björn Kristjánsson fyrrum bankastjóra. Útgefandi Björn Krist- jánsson Reykjavík 1922. pessi bæklingur er ekki stór, að eins 71 blaðsíða í fremur litlu broti, / en hann hefir samt vakið meira rót í íslenzku þjóðlífi en nokkuð annað, sem gefið hefir verið út heima á ættjörðinni í seinni tíð. Rit þetta er tvent í senn: vörn fyrir kaup- mannastéttina á fslandi og árás á verzlunar fyrir- komulag sambands íslenzkra samvinnufélaga. Vér höfum enga tilhnegingu til þess að fara að blanda oss inn í deilumál bræðra vorra/ á ís- landi, en eftir því sem þessi tvö mál eru skýrð í riti þessu og eftir því sem umræðurnar í blöðun- um íslenzku um málið hafa fallið og eftir því sem einföldustu reglur hagfræðinnar kenna og öll reynsla manna þá fáum vér ékki betur séð, en að þetta séu orð í tíma töluð. Björn Kristjáns- son heldur fram í þessu riti sínu að það hafi yerið áform sambandsins að ryðja verzlunarstétt- inni ’íslenzku með öllu úr vegi, en taka alla verzl- un í sínar hendur. Um sannleiksgildi þessarar staðhæfingar er oss ekki kunnugt, en fremur teljum vér þetta ótrúlegt, sökum þess, að það sýn- ir svo mikla skammsýni af hálfu samvinnumanna, ef satt væri, að það eitt út af fyrir sig, væri ærin sönnun þess, að framsókn þeirra byggist meira á kappi en forsjá. Með verzlunarsféttinni dæi öll verzlunar sam- kepni í landinu, sem þó er hornsteinn allra heil- brigðra viðslkifta. Án verzlunarstéttarinnar væri íslenzka þjóðin ósegjanlega miklu fátækari. en hún nú er og jafnvel þótt samvinnu eða sam- bandsverzlun væri um alt land. Árás Björns Kristjánssonar á verzlunar fyrir- komulag sambandsins er ákveðin og afgjörandi. Hann bendir einarðlega á hættuna, sem honum virðist að sá félagsskapur sé að leiða yfir íslenzka verzlun og íslenzka þjóð, — sem sé lánsverzlun og ófrelsi það, sem lánsverzlun er alstaðar samfara. Hann segir að þessari sambandsverzlun sé svo komið, að um áraimótin 19211—’22, þá nemi skuldir hennar 4 miljónum og 400 þúsund krónum, sem sé meira en allar landbúnaðar afurðir fslands hafi numið árið 1914, og að í maí s. 1., hafi fram- kvæmdarstjóri sambandsins, talið skuldir þess að vera 8,132,894 kr. og 56 aura. Björn Kristjánsson, segir, að ráð sé gert fyr- ir að tala meðlima kaupfélaga þeirra, sem sam- bandið noti sé 8000 manns, svo ef þessi síðari tala er ábyggileg nemur skuldaábyrgð hvers þeirra við sambandið meiru en þúsund krónum, auk vaxt- anna af þessari upphæð, sem á 6% nemur árlega 547,797 kr. og 74 aurum, eða 68 kr. og 10 aurum á mann . Trygging sú, sem sambandið hefir fyrir þessu fé, eru óseldar vörur og eignir þeirra manna sem í félaginu eru og eru aflögufærir. pví á úti- standandi skuldir og verzlunarhúsa eignir félags- ins er naumast hægt að byggjá í því efni ef illa færi og sízt þá nema að litlu leyti. Ef það, sem hr. Bjöm Kristjánsison segir um ástand þessa verzlunarsambands er satt, þá getur ekki verið neinum blöðum um það að fletta, í.ð þar er um að ræða var.damál h'ið mesta, því það er ekki einasta að menn þeir, sem flæktir eru orðnir í þessar' skuldasúpu, geti ekki um frjálst höfuð strokib' á meðan ályrgðir hvíl;r á heim, heldur, geta hópar bænda, jafnvel heilar sveitir onðið öreigi og brælar ít1endva auðkýf'nga eins lengi eins og þeir geta nokkurs oikað, ef illa fer. En á hinn bóginn, ef þessar s^aðhæfingar Bjöms Kristjánssonar eru ekki sannar. Ef sambandíð er ekki sokkið í skuldasúpu þá, sem hann segir að það sé í. Ef þeir raern, sem hann segir að fastir séu orðnir í skuldaviðjum >ess, eru jafn íriálsir að eigum sínum urs og þeir voru. Ef þeir eru eins frjálsir að verzla með það litla af fé, snn þeir e ga jfir að ráða, hvar sem þeir vilja, því sýna þá ekki foricólfar samband°ins fram á það með ómótma-lanlegum rökum. Fúkyrði og brígsl á hendur manni þeim sem hafið heíir mál" á þessu þýðingarmikla máli, sannar ekkert og getur ekki fegrað málstað neins manns eða málefnis, en það virðist oss að séu aðal gögn mótmælendanna, sem enn hafa mótmælt á- kærum hr. Björns Kristjánssonar opinberlega. Sannleikurinn er sá, að það er á einkis manns færi að sanna, að láns verzlun sé eins affarasæl fyrir sjálfstæði einstaklinga og þjóða, eins og þeg- ar hönd selur hendi. Jakob Lindal frá Miðhópi. ÓÞegar eg (\ nóv. 1918) ritaði æfim. J. L. sem 'birtist í Alm. Ó. S- Thorgeirssonar 1920, þá endati eg hana meS erindum þeim, sem hér fara á eftir, en útg. feldi þau og fleíra úr — vegna “rúmleysis.”J Óhlutdrægt hér æfiferil þinn eg hef rakiö, sem var nokkur vandi. KveS eg þig svo, kæri bróðir minn, kossi andans meS og handabandi ! Svo þakka eg þeim, á lifsbraut þína og leiSi, sem lög?5u blóm af gótSum vinarhug. Þeim sjálfum lífsins veginn gæfan greiði, og gefi þeim í stríti þrek og dug. — Og Stepháns listum-prýddur ljóðasveigur, er legstein hverjum betri’ á vina-gröf. í honum eru: kendir, vit og veigur, sem varpar ljóma yfir tímans höf. / Æ minning þína mun eg, bróðir, geyma á meðan tóri eg í þessum heim? Oft mun eg enn þá um þig hugsa og dreymá, í unaiSs-ríkum, fögrum stjömugeim? F.n þegar kem eg, hitti eg þig heima, hvar horfum vib of bemsku og æsku seim; þar minninffarnar okkur til sín teyma, því — töframagnið ávalt býr í þeim. 7. Asgeir J. Ltnddl. Ástœðurnar fyrir því að hugur íslenzkra bænda hnegist til Canada Eftir að hafa lýst aS nvkkru Ihinum ýmsu hlunnindum, sem Vestur-Canada hefir að Ibjóða ís- lenzkum innflytjendum, sem og annara þjóða fólki, viljum vér leitast við að lýsa Alberta fylki nokkuS nánar. Auðvitáð á fylki þetta að ýtmsu samimerkt með Manitaba og Sask- atchewan, en eins og gefur að skilja, þar sem fylki þesgi taka yfir meira en þrjá fjórðu úr miljón mílna, þá liggur í augum uppi, að um talsvert mismunandi staðhætti hljóta að vera að ræða. Á iandabréfi Vestur-Canada, svipar Alberta mjög til hinna fylkjanna. En við nánari athug- un, verða menn varir við hreint ekki svo lítinn mismun. Veðr- áttufarið er talsvert ólíkt, enda er iþetta vestlægasta fylkið af hiu- um þrem svo kölluðu sléttufylkj- um. Hæðanmunurinn er alimik- ill, Manitoba uím 800 fet, Sask- atchewan að meðaitali um 1,600 fet en Alberta víðasthvar nokkru hærra, 0g grípur inn í Kletta- fjöllin á syðri helmingi veistur iandamæranna. Yfirborðið er óreglulegra, meira um hæðir, Ihálsa og dældir, en i hinum fylkipnum tveim og veðr- áttá sumstaðar líkari því, sem viðgengst í British Columbia. Auðsuppspretturnar frá náttúr- unnar hendi, eru margbreyttar, og atvinnuvegirnir þar af leiðandi líka. Albertafylki er stórt ummáis, 255,285 fermilur, lengdin frá noðri til suðurs sjö hundruð og fimtíu míiur. það er stærra en þýzkaiand, Frafekiand, Austurríki og Ungverjaland og er að fáum Ihundruðum fermlílna minna, en ilíkin Montana, North Dafeota og Minnesota til sajmans, en tvisv- ar sinnum stærra en Bretland og Irland. Ekrufjöldi fylkisins er 158,878,600. Af tölu þessari eru 1,510,400 ekrur ár og vötn, en 157,368,260' eferur lands. Með því móti, að áætla 76,068,260 efer- ur fyrir bert gróðuriítið land og svæði, sem þurfa framræslu með, má segja að samt sé að finna 1 fylkinu 81,300,000 ekra af iandi, sem auðveidlega má gera hæft tíl jarðyrkju og annarar framleiðslu, með tiltölulega litluim kostnaði. Af þessum ekrafjölda, eru 15,000, 000 ekrur opnar til iheimilisrétt- ar, mestmegnis í norður og mið- hiuta fylkisins. pað þarf ekfei annað en líta á landabréfið, til iþess, að sannfær- ast um, að fylkið er að byggjast jafnt 0g þétt norður á bóginn. Sýna það glöggast járnbrautirn- ar og hinir ýmsu bæjir. Mis- munurinn á ihilli staðhátta lí suð- ur og vesturhluta fylfeisins, er J æði mikili. Venjulega er talað um fýlkið í þrennu lagi, Suður- Mið- og Norður-Alberta. Er tals- verður munur á veðráttu og nátt- úruauðæfuim 'í hverjum fylkis- hlutanum um sig og þar af leið- andi einnig á starfræklslu hinna ýmsu iðnfyrirtækja. Suður-Alberta, takmarkast að norðanverður af Red Deer-ánni, sem er um hundrað míiur norður af Calgary. þessi hluti lands- ins, hefir verið nefndur nokkurs- konar paradís fyrir griparæktar bændur. Landið er !þar slétt að mestu, að undanteknu 60 mílna svæði að vestanverðu, er veit að KlettafjöUunum. Grasvöxtur er þar víðast bæði mikill og góður og þess vegna auðvitað, er grioa- rækt komin þar á það -blómgunar- stig, sem nú er orðin raun á. Á stöku svæðum er talsvert um timburtekju. Nokkuð er þar af ám og lækjum, en stór vötn engin. 'Mið-Alberta nær yfir svæðið frá Red Deeh, til hæðanna milli Athabaska og Peace Rivers. 1 þeim hlutanum, er Edmonton m-esta borgin. Gras er þar hærra og grófgerðara. Víða er þar mikið um runna og á vestur helm- in-gi svæðisins, er mikið um timb- ur.. Með fram ánum, er ágætur skógur, og er hann jöfnum hönd- ulm notaður til húsagerðar heima fyrir í fylkinu sjálfu og högginn og sendur til markaðs. Með fram Peace River, er enn mikið af óbygðu, frjósömu landi, iþótt talsvert sé þar um ný bygð- ahlög. Járnbrautir liggja úm hin norðlægari héruð, norðaustur og norðyestur frá Edmonton og meðfram þéim, er fólk jafnt og þétt að n-ema lönd/ -Skógar eru miklir í Norður-AI- iberta, einkum þó meðfarm ánum. Líkist norður hlutinn yfirleitt meir Mið-fylkinu en suður hlutan- um. í Mið- og Norður-Alberta, ligg- ur snjór að jafnaði lengur á jörðu, en í suðurhluta fylkisins. Er norðurlhlutinn víðasthvar miklu Ihæðóttari, en hinri tveir fylkis- hlutarnir hvor uim sig. Tals- verður mismunur er á veðráttu- fari í hinum ýmsu fylkisihlutum, ein-kum og sér lí lagi suður- og norðurhlutanum, og er jarðar- gróði allur iþar af leiðandi tals- vert mismunandi líka. iFramræsla ’í fylkinu, er víða mikil og Ihefir að henni verið unn- ið í sameimngu bæði af sambands og fy-lkisstjórninni. Er ilandið þurkað upp þar sem þess er þörf en vatni veitt á hin svæðin, er meiri raka þarfnast. Peace og Athabaska-árnar teljast til hins mikla Mackenzie kerfis og eru notaðar til áðurnefndra umbóta í norðurhluta fylkisins. Á þeim svæðum, eru tvö allstór vötn, svo sem Lesser -Slave og Athabaska. Bæði Athabaska og P-eac-e árnar eru s'kipgengar, hin síðarnefndu alira leiðina milli Fort St. John í British Columbia og Fort Ver- milioú. En sú vegaiengd fuilar 600 mílur. Sigla má eftir Atha- baska ánni, frá Japan með hafn- stað skamt frá Fort McMurray, til Athabaska vatns. Framræsiukerfi Saskatchew- en -árinnar, styðst einnig við Battl-e, Red Deer, Bow og Belly árnar. Nelson áin rennur úr Winnipeg vatni, út í Hud-sons flóann. Saskatch-ewan áin er skipgeng á lön-gum köflum, en þó helzti s-traumhörð. Flestar ár í Alberta eru djúpar, og eru tæki- færin til -vatnsorku í fylkinu, jrf- irleitt afarmikil. 1 suðurhluta fylkisins er á, er Milk River nefnist, sem tengd er á meir en sextiu mílna svæði við Missisippi k-erfið. peir lesendur Lögbergs, er æskja kynnu frekari upplýsinga un Canada, geta snúið sér bréflega til ritstjórans, J. J Bíldfells, Col- im'bia Building, William Ave. og íherbrooke St., Winnipeg, Mani- coba. Kaflar úr bréfnm frá Islandi, til ritst. Lögbcrgs. ------“Eg segi héðan allgóðar fréttir. Veðrátta til þessa mjög mild, og jörð auð. kemur það sér vel eftir þetta grasleysis sumar. Hér skamt frá ölfusár brúnni er ný-reist útibú frá Landsbankanum í Reykjavík og hefir það reynst vel i viðskiftalífinu hér austan fjalls. Veitir því forstöðu Eirík- ur Einarsson frá Hæli í Eystri- hreppi, mjög lipur maður í sinni stöðu. Hér er nú byrjað á hinni fyrir- huguðu Flóa-áveitu og hefir verið unnið að skurðum með miklu kappi undir umsjón Jóns Þorláks- sonar verkfræðings og ljúka má lofsorði á dugnað hans og alla hagsýni í allri forsögn verksins, o. fl. Eins og blaði yðar mun kunn- ugt hefir hins svonefnda Skeiðár- áveita, staðir yfir. fskurðagerðin) Hefir skurðagerðina tafið afar löng grjótklöpp er yfir varð að fara af óforsjálri mælingu, sá kostnaðarauki kostar fleiri tugi þúsunda. Fyrir þetta er búið að girða fyrir með mælingu á upp- tökum Hvítár á áveitusvæðið, sem nú er byrjað á. ------“Þingmálafundur fyrir Árnessýslu kjördæmi nýafstaðinn hér við ölfusárbrú við Tryggva- skála. Komu þar til umræðu ýms mál er þessa sýslu varða og enda landið alt. t. d. járnbrautarmálið er liggur undir rannsókn. Er í hug- um margra Árnesinga og Rangár- vallasýslu búa, að fá þessu máli hrundið í framkvæmd en dýrt er það, en hvað skal segja, á þessu ■ verður að byrja, því kyrstaða til lengdar er ómöguleg. Hvatning til þessa máls fengum við fyrir nokkru frá Vestur-íslendingi, er hvatti alvarlega til byrjunar á þessu, en eins og vant er lognaðist þetta út af, enda kom stríðið er drap allan fjárhagslegan mögu- leika, hér sem víðar. “Hér er talsverð úlfúð millí blaðanna “Lpgréttu og “Timans” Það síðara mún mega telja bænda- blað, en hitt stjórnarblað — marg- ir ætla að Tíminn hafi rétt fyrir sér í bankamálinu gagnvart ís- landsbanka, er farið~er svo gífur- lega illa með lánstraust landsins út á við — meðal annars með ó- innleysanleik seðlanna o. fl.Jf — Selfossi, 1. nóv. 1921, Símon Jónsson. ------“Kg flutti hingað frá Amhólsstöðu-m vorið 1920, og keypti þá þessa jörð — Hér kann eg miklu betur við mig en fyrir austan, enda er þetta einhver feg- ursta og bezta sveitin á þessu landi. Nú eru erfiðir tímar á fslandi, eins og víst víðast hvar i heiminum. En einhverjir mestu erfiðleikarnir eru, hvað okkur bændurnar snert- ir, þröngur og vondur markaður fyrir afurðir okkar, og mjög ófull- nægjandi samgöngur á sjó og landi. Þó er þetta misjafnt fyr-

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.