Lögberg - 15.03.1923, Blaðsíða 4
Bls. 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN MARCH 15. 1923.
Jögberg Cefið út hvem Fimtudag af The Col- ambia Press, Ltd.^Cor. William Ave. & Sherbrook Str.. Winnipeg, Man. Talaimart N-6327 ofi N-6328
Jón J. Bíldfell, Editor
UtanAskrih til blaSsin*: TH€ eOlUHBIá PgESS, Ltd., Box 3lTt, Wnnlpsg, l(an. Utanáakrift ritstjóran*: tDiTOR L0CBERC, Box 317« Winnipeg, N)an.
The "Lögberg" la printed and publlahed by The Columbia Praaa, Llmtted, ln the Columbla. Block. U» t> *€7 Sherbrooke Btroet. Winnipeg, Manitoba
1 — — — —
Jón II. og Jandgæði Canada.
Út af auglýsingum frá stjóminni í Canada,
seim Lögberg flytur um kosti Canada, spyr Jón
nokkur II. ritstjóra Lögbergs að þvi, hvort það
sé landkostum þess lands að þakka að 92—93 af
hverjum hundrað bændum í Manitoba hafi bújarð-
ir sínar veðsettar og alt sem þeir hafi undir hönd-
um. #
pó að vér vitum að þessi spuming sé ekki
sett fram í neinum góðum tilgangi, þá samt virðist
oss rétt að svara henni að nokkm sökum landsins
sem hefir veit>t þessum Jón II. og svo mörgum fs-
lendingum lífs framfæri til fleiri ára. pó það hafi
notið lítil'la þakka, eða viðurkenningar hjá honum
og öðrum fleirum fyrir það, og erum vér ekki und •
an því að kvarta, því mönnum ferst í því sem öðru,
eins og þeir eru mennirnir til.
Eins og menn þeir, sem lesið hafa þessar
stjórnar-auglýsingar í Lögbergi vita, þá hafa þær
aðallega rætt uim gæði landsins, Canada, og fram-
tíðarmögulegleika þess. En gæði landsins og
mennirnir, sem í því búa, eru ekki eitt og hið
saima, svo þó þeir séu sokknir svo eða svo djúpt f
skuldir, sannar það með engu móti að landið sé
gæðasnautt.
pað er á allra vitorði, að afkoma manna er
undir hagsýni og atorku þeirra komin. Menn vita
að á saima stendur hversu mikið berst upp í hend-
ur sumra manna, að þá festist 'lítið við þá, og þó
minst, þegar tekjurnar eru mestar, og svo bætist
við þá tölu hópar manna, sem eru blátt áfraan of
latir að bjarga sér.
Er nokkurt vit í, að kenna skorti á gæðum
landsins eða landanna um afkomuleysi þeirra og
skuldabasl?
Landgæði Canada og náttúruauðlegð er mönn-
um orðin nú svo kunn, að enginn maður, sem vill
láta landið njóta sannmælis, efast minstu vitund
um þau, og þau standa opin hverjum sem vill koma
og reyna, og ef menn njóta þeirra ekki, þá er það
af því, að menn fást ekki til þess að sækja iþau
— menn reyna ekki.
í ísilenzkri bygð, ekki langt frá Winnipeg-borg
byrjaði einn framtaksamur fslendingur á því, að
rækta epli auk annarar jarðræktar, er hann stund-
aði, og auka þannig framleiðsluna og tekjur.
Framhjá þessum aldingarði hafa bygðar-mennirn-
ir ekið ár eftir ár og engum þeirra hefir dottið í
hug, að fá tré til þess, að setja niður í garð’sinn.
Skyldi þetta sinnuleysi vera landinu að kenna?
Ungir íslendingar full hraustir, hafa iegið hér
í Winnipeg, vetur eftir vetur, nöldrandi um vinnu-
leysi og vesaldóm, á meðan að rosknir menn
hafa farið norður í skóga og gripið upp $2,000 virði
af dýraskinnum á tveim mánuðum.
Haldið þið að það sé af skorti á landsgæðum,
að þessir ungu og hraustu menn liggja allann vet-
urinn í vandræðum og vesaldóm inn í bæ, sér til
niðurdreps og og öðrum til byrðar.
Vilja menn reyna að telja sjálfum sér, eða öðr-
um trú um, að land það sé snautt af gæðum, eem
framleiddi 325,000,000 mæla af hveitikomi síðast-
liðið ár, auk allra annara komtegunda, búpenings
afurða, fiskiveiða, námaframleiðsJu og skógar-
tekju.
Vildi þessí Jón II., eða einhver annar mað-
ur benda á nokkurt land í heimi, sem meira hefir
miðlað íbúum sínum af auði en Canada gjörði s. 1.
ár, þegar við fólksf jölda er miðað. q
petta sem hér að framan er sagt, er sagt í
þeirn einatilgangi, að láta Canada njóta sannmælis
að því, er landkosti snertir og að hnekkja tilraun-
um þeirra, sem eru að reyna að sverta landið í aug-
um annara á meðan það fæðir þá og klæðir.
1 rannsóknarstofum vísindanna.
pegar maður ferðast um þetta mikla megin-
land — um borgir þess og bygðir, og sér verksmiðj-
ur og verkstæði þúsundum saman — verksmiðj-
ur, sem taka yfir stór landflæmi og þúsundir á
þúsundir ofan vinna dag hvern að framleiðslu, |
sem send er til allra heimsins landa, mönnum til
þarfa og þæginda, þá stendur maður þrumu lost-
inn yfir mikilleik athafna mannanna, og því sem
vér köllum framfarir.
En vér hugsum ekki ætíð um, að allar þessar
verksmiðjur, öll þessi verkstæði, og öll þessi fram- -
leiðsla, er aðeins þáttur, eða réttara sagt nokkrir
þættir í lífsþræði vor mannanna. Vér hugsum
ekki um, að á bak við þessar verksmiðjur, verk-
stæði og athafnir allar, eru önnur verkstæði, aðr-
ar framleiðslulindir. pað eru efnarannsóknar-
verkstæðin þar sem vísindamennirnir hver í sinni
grein eru dag frá degi og ár fram af ári að brjóta
nýjar brautir í heimi andans og kanna hið ómæli-
lega djúp atorku og efnis.
pessir menn eru vegvísendumir á braut hinna
verklegu framkvæmda mannanna. peirra er að
sjá hættumar og stýra hjá þeim, sjá þurðina í einu
og öðru og bæta úr henni. peir eru auga og eyra
og uppfylling framtíðarvona fjöldans.
Eitt af því sem bíður úrlausnar þessara
manna, er orkuafl framtíðarinnar. peim hefir fyr-
ir löngu skilist, að hið sýnilega orkuafl, sem til
framleiðsunnar er notað, er óðum að eyðast og
ihlýtur að þrjóta innan skaimms.
peir skilja að námumar verða bráðum útgrafn-
ar og oKubrunnarnir tæmdir, og ef ekkert
sé hægt að finna, sem nota megi í stað kolanna,
olíunnar og brennisins, þá bíði mannanna eyði-
légging og vandræði á komandi árum.
pað er þess vegna, að vísindamenn Ameríku
og annara landa, hafa sérstaklega snúið sér að
orku framleiðslunni, og það sem þeir hafa sér-
staklega bygt von sína á, og byggja enn, er efnis-
breytingin, og þá hefir náttúrlega fyrsta urnhugs-
unar og ransóknarefni þeirra verið frumefnið
sjálft, og þar staðhæfa þeir að lykill framtíðar-
menningar mannanna sé að finna.
Nýlega er afstaðinn fundur, eða þing vísinda-
manna Ameríku, sem haldið var að þessu sinni í
Cambridge Mass. par mættu þeir sem fremstir
standa í hinum ýmsu vísindagreinum þessa lands,
til þess að bera sig saman um hver árangur orð-
inn sé af tilraunum þeirra á hinum ýmsu sviðum
vísinda greinanna og var fundur sá svo merki-
legur, að vert er að skýra frá honum nokkuð nán-
Frumefni.
Miklum tíma var varið til þess, að tala um
frumefnið, og fluttu doktoramir R. A. Millikan
og W .D. Harkins frá Chicago, T. W. Richard frá
Hanvard, Louis Bell og J. Q. Stewart frá Prince-
ton og S. A. Mitchell frá Virginia og fl., fyr-
irlestra um það efni.
öllum kom saman um, að enn væri uppruni
efnisins ófundinn, ,þó rannsókn í þá átt hefði fleigt
fram siðustu tuttugu árin. Hugmyndin um hið
ósýnilega efni (atoms) héldi sér enn, en hún hefði
verið skýrð, og að menn vissu nú, að á milli hinna
mismunandi efna væri skyidleiki og menn gerðu
sér grein fyrir þeim með fjölda og tilhögun raf-
eininga (electrons) og frumeininga (protons) í
hinu ósýnilega efni (atoms).
petta tvent, electrons) og protons, segja þeir að
só frumskilyrði efnisins, og lika rafurmagnsins.
Samfolöndun þeirra og takmörkuð rás, segja þeir,
að myndi efni.
pessar einingar, electron og proton, eru mjög
smáar. Dr. Miilikan komst að þeirri niðurstöðu,
að það mundi taka Chicago-búa alla 20,000 ár að
telja electrons eða rafeiningarnar, sem fara í gegn-
um mjóan lampakveik á einni sekúndu, með því
að vinna 24 stundir á dag.
pessar electrons, eða rafeiningar og þessi
protons eða frumeiningar eru 8.—100,000,000,000,
000 úr þujmlungi að þvermáli.
Pyngd iþessara frumeininga (protons) hvers um
sig er 6—100,000,000,000,000,000,000,000,000, úr
unzu. En electron er 1—1,845 sinnum léttari.
. Heilsufræðin.
Dr. Farrand forseti Comell háskólans, hélt
fyrirlestur um heilsufræði. Benti hann á framför
þá hina miklu, sem sú grein vísindanna hefði tekið
á síðari áruim.
Hann benti á, að ekki væri langt síðan að bæj-
ar og sveitabúar gjörðu sér litla rellu út af því, þó
einhver veiktist á meðal þeirra. Að læknirinn
hefði komið til þess veika og gjört það sem hann
hefði getað, svo hefði hann annað hvort risið úr
rekkju og tekið til síns starfa, eða dáið og verið
jarðaður og svo foafi ekkert meira verið um það
fengist. Nú hefir heiísufræðin komið því til
leiðar, að sveita og bæjafélögin lá/ta sig varða þeg-
ar menn leggjast sjúkir, bæði til þess, að vernda
sjúklinginn, en aðallega þó sveita eða bæjarfélög-
in frá útbreiðslu veikinnar.
Dr. Farrand benti á, að síðan farið var að
gefa þessari grein vísindanna verulegan gaum í
Bandarkjunum, sem mætti segja að hafi verið síð-
ustu fimtíu árin, þá hefði aldur manna lengst til
muna. Hann sagði, að árið 1870, hefði meðal
manns aldur í Bandarkjunum verið talinn 41 ár,
en 1910 52% ogo 1922 56. Til saJmanburðar tók Dr.
Farrand India, þar sem heilsufræðin og Iæknavís-
indin væru styst á veg komin og benti á, að þar
væri meðalmanns aldur talinn 24 ár.
Mönnum skilst, að á bakvið þessa framför og
göfugu viðleitni í heilsufræðinni, stendur sérstak-
lega ein stétt manna — lækna stéttin, sém hefir
ekki látið neina hættu ögra sér í sókninni á móti
hinum skæðustu meinsemdum mannanna, og hafa
margir þeirra látið lífið í þeirri viðureign, enda
foendir Dr. Farrand á það í fyrirlestri sínum.
Segir, að heilsufræðin eigi framþróun sína aðal-
lega að þakka læknisfræðinni er hafi lyft
dularhjúpi af upptökum og smittunarhættu fjölda
margra sjúkdóma, svo fólk hafi lært að varast þá.
DáKtið sagði ræðumaður að þeir sjúkdótnar,
sem læknisfræðin hefði ekki enn getað grafið fyr-
ir upptökin á hefðu aukist svo sem krabbamein.
En þó foefðu þeir sjúkdómar, sem stafa frá biluð-
um líffærum náð mestum þroska. pað sagði ræðu-
maður, að væri ekki neitt sérstaklega óttalegt, því
menn yrðu nú einu sinni, að deyja úr einhverju,
og ef læknisfræðin gæti verndað líf þeirra, þar til
líffærin væru orðin svo slitin að þau gætu ekki
framar gegnt skyldu sinnar, þá mættu menn vel
við una, og að það væri hið æðsta takmark lækna
vísindanna, unz að þau væru í færum um að beina
örvum sínum að dauðanum sjálfum.
Framh.
“íslendingar í Ameríku”
eftir Halldór Hermannsson.
petta er smárit, rúmar f jörutíu blaðsíður, sem
Halldór Hermannsson hefir ritað fyrir dansk-ís-
lenska félagið, er hefir fyrir markmið að auka
þekkingu á íslandi í Danmörku, og eins á hinn bóg-
inn, að útbreiða þekkingu á Danmörku á fslandi.
Ritið er Nr. 12 í safni, sem gefið er úí af félaginu,
og nefnist Dansk-Islandsk Samfunds Smaaskrifter.
í fyrsta kaflanum ræðir höf. um útflutninga
frá fslandi og stofnun ísienzkra nýlenda í Vestur-
heimi. Er þar mjög fljótt yfir sögu farið, sem
við er að búast í jafn stuttu riti, en greinilega er
sagt frá höfuðatriðum og ótrúlega miklu efni
þjappað saman á fáum blaðsíðum. Flestir staðir
sem íslendingar hafa tekið sér bólfestu í eru nefnd-
ir og öllum stærri bygðunum er lýst í fáum orð-
um. Smávegis ónákvæmni er að finna í þessum
kafla, eins og þar sem sagt er að íslendingar er
fluttu úr Nýja-íslandi til Norður Dakota, hafi
ferðast eftir Rauðá og Tunguánni, er falli í hana.
þeir ferðuðust víst annað hvort með jámbraut til
St. Vincent í Minneota og þaðan upp í íslenzku-
bygðina í Norður-Dakota, eða þá gangandi með uxa
sína alla leið. Tunguáin er smáspræna, sem renn-
ur í Pémfoina ána, og eftir henni hefir víst aldrei
verið neinn flutningur.
pá er annar kaflinn um f járhagsástnd, félags-
líf og kirkjumál. Er í honum, seím í landnáms-
kaflanum, sagt frá þvi helsta. pess er getið, að
nokkrir fslendingar hafi komist í embætti eða ver-
ið kosnir á þing í fylkjum' Canada, eða ríkjum í
Bandaríkjunum; en enginn þeirra er nefndur á
nafn nema Thomas H. Johnson einn. Hinna hefði
þó mátt geta, þótt nau'mast 'hafi þeir fengið sama
orðstýr og hann.
Kirkjumálin er nokkuð drepið á, helzt þó á
deilur í þeim efnum, og er vafasamt hvort sumar
ályktanir þar eru alls kostar réttar, svo sem það,
að prestar frá ísiandi hafi ekki getað haldist við
í kirkjufélaginu sökuim þröngsýni þess. Fyrst
framan mun það varla hafa verið orsökin til þess
að prestar komu ekki frá íslandi og tóku þjónustu
í kirkjufélaginu, enda hafa sumir, sem að heiman
hafa komið, verið þjónandi í þvi árum saman.
Öðru máli er að gegna nú, vegna breytinga þeirra
sem orðið hafa á íslandi á síðustu árum, en þó eru
víst enn margir prestar á fslandi, sem frjálslynd-
is vegna gætu átt heima í kirkjufélaginu. Um séra
Jón heitinn Bjarnason farast höf. þannig orð:
“Jón Bjarnason stóð framarlega sem leiðtogi,
hann var röggsamur, ósveigjanlegur og yfirleitt
mikill og heilsteyptur maður (”—en Förer af Rang,
energisk og uböjelig og í det Hele en stærk, hel-
stöbt Personlighed”). Og um séra Friðrik heit-
inn Bergmann segir hann:
“Bergmann var annan veg farið, hann var
raunar lærður guðfræðingur og aðlaðandi maður,
en maður getur varla varist þess, að verða var við
þvingaða viðleitni í ritum hans, sem ber <vott um
veika sannfæringu. (Bergmann var af en anden
Type, vistnok en lærd Teolog og vindende Person-
lighed, men í hans skrifter kan man næppe und-
gaa at lægge Mærke til en forceret Stræben, som
gærne er et Tegn paa en svag Overbevisning).”
Náttúrlega gefca menn lagt mikið eða litið upp
úr þessum samanburði, eftir því sem þeir vilja,
en hann er að minsta kosti ólitaður af persónu-
legu fylgi við mennina. 1 Annara kirkjuleiðtoga er
ekki getið til þess að 'leggja neinn dóm á þá.
pá er næsti kaflinn um málið, blöðin og bók-
mentir.
pessi kaflinn er, að mér finst, bestur. Viku-
blöðin fá mjög vægan dóm, þótt fundið sé að máli
og sumu öðru, og tímaritunum öllum má segja að
höf. beri mjög vel söguna. Á alla helztu rithöf-
unda er minst og það hlýlega, mest, sem við er að
búast á Jóhann Magnús Bjamason og Stepfoan G.
Stephansson, því eftir þá Iiggur mest.
Um Síephan segir hann:
“Mál hans er óvenjulega auðugt, kröftugt og
hreint, skáldskapur hans er alvarlegur. hugmynda-
ríkur og fullur af heppilegum samlíkingum, hann
er djúpur, stundum myrkur, en í honum er und-
irstreymi næmra en karlmannlegar tilfinninga.
Hann er ávalt talsmaður mannúðarinnar, en laus
við alla munklökkvi.” Dómur / höf. um önnur
skáld er og mjög sanngjam og eitt segir hann um
Kristján N. Júlíus, sem mörgum kann að hafa yfir-
sézt, nefnilega, að “þunglyndislegur undirtónn yf-
ir vonbrigðum lífsins” finnist oft í kvæðum hans.
í sérstökum kafla minnist höf. á Vilhjálm
Stefánsson, segir æfisögu hans í fáum orðum og
greinir frá starfi hans. Segir hann, að í Vilhjálmi
séu sameinaðar ágætar gáfur og gagnlegt vit.
Síðasti kaflinn er um sambandið við föður-
landið og framtíðarhorfur.
Hér erþað sem eg fyrir mitt leyti hlýt að vera
hinum háttvirta foöf. ósamdóma í sumu. Hami
heldur því fram, að íslenzkt mál hljóti að líða und-
ir lok í Vesturheimi áður en langt um líður, en
heldur samt, að samband við fsland) geti haldist.
Sömuleiðis telur hann það gagn bæði fyrir Vestur-
íslendinga og hérlendar þjóðir, að íslendingar hafi
ekki verið svelgdir upp sem einstaklingar jafnóð-
um og þeir hafi komið.
Eg heid naumast, að nokkrum kunnugum
blandist hugur um, að þjóðrækni hefir farið vax-
andi méðal Vestur-fslendinga síðari árin, en ekki
minkandi. Hversu lengi málið varir er undir vilja
og viðleitni komið. Hvaða lögmál er það, sem
þvingar okkur til að leggja niður málið í fram-
tíð? Sagan greinir vissulega ekki frá neinu
slíku órjúfanlegu lögmáli. Viljinn kemur hér til
greina og honum hefir óneitaniega vaxið ásmeg-
in hjá okkur Vestur-fsJ. í þessu efni nú nokkur
síðustu árin.
Höf. minnist á þjóðræknisfélagið og starf
þess, og lýkur lofsorði á ársrit þess.
Við Vestur-íslendingar megum vera Halldóri
Hermannssjmi þakklátir fyrir þetta rit hans.
pað er fræðandi og vingjarnlega ritað. Dönsk al-
þýða sem það er ætlað, veit sennilega ekki mik-
ið um okkur. Við hefðum ekki getað kosið fær-
ari né betri mann en Halldór Hermannsson er til
þess að kynna okkur þar. Skaði hve lítið hefir
verið gert að því, að kynna ökkur rétt í landi því
er höf. býr í.
G. Ámason.
Hámark flónskunnar.
Rit eitt er gefið út í Brooklyn, N. J., sem
heitir: “The American Hair-dresser/’ og flytur
það foman og nýjan vísdóm í sambandi við höf-
uðbúning ýmsra þjóða og þykir ábyggilegt 1
þeirri fræði.
Af hendingu barst oss febrúarhefti þessa
rits í hendur og gefur þar að líta á blaðsíðu 98
rnynd þá sem hér fylgir, með þeim fróðleik, að
það sem yngismærin hefir á höfðinu sé forn-
íslenzkur höfuðbúnaður: “Primitive head-dress of
a Bell of Iceland.” Oss þótti þetta svo merkileg
uppgötvun, að vér gátum ekki setið á oss, með
að lofa fslendingum að sjá hvaða hugmynd að
þessir blaðamenn í Brooklyn gjöra sér um ís-
lenzku kvennþjóðina og höfuðbúnað hennar til
forna og gefur þá hvorutveggja að líta á mynd-
inni hér að ofan.
Að tala um fljótfærni og þekkingarleysi hjá
þessum blaðamönnum nær ekki nokkúrri átt.
petta er þursaskapur, sem moldbúum einum er
samboðinn.
gengustu dýrategundir, sem sózt
er eftir sökum dýrmætra skinna,
eru muskrat, refir, marten, foifur,
fisher og lynx. Er mest af þess-
um dýrum í hinum norSlægari
héruðum fylkisins. Af öðrum
dýrategundum, sem veiddar eru
og dreifðar meira um fylkið, má
nefna timfourúlf, refinn, sléttuúlf-
inn, Wolferine, svarta, brúna og
gráýrótta foirni, weasél, skunk og
badger.
Svo að segja allar tegundir
hinna stærri dýra, sem sózt er
eftir til veiða er að finna í fjalla-
héruðunum, milli International
Boundary og Smoky River, að
undanteknum buffalos og Anú-
lópum. Allmikið af villifé o<
villigeitum, er að finna kringum
Pincher Creek, Banff og Jasper.
Banff og Jasper liggja innan
vébanda svæða þess, er Domin-
ion Parks nefnist og eru veiðar
þar því bannaðar, en frá stöðvum
þessum leggur fjö'ldi manns ár-
lega upp i veiðifarir. 1 hæðunum
meðfram Athafoaska ánni er krökt
af aWskonar dýrum. Einning er
mikið af dýrum í skógarbeltunum
ibeggja vegna Saskatchewan ár-
innar hinnar nyrðri. Mesti sæg-
ur músdýra hefst við í skógaribelt-
unum og er mikið veitt af þeim.
Á fjalllendinu norðan við Jasper
Park, er talsvert af Carifoou dýr-
um og yfirleitt á svæðunum norð-
an og vestan við Saskatchewan
ána. Antilópur hafa fundist með-
fram Canadian Pacific járnbrait-
inni, um hundrað milur austur
af Calgary.
iFuglaveiði er mikil hvarvetna
í fylkinu. Er þar einkum mikið
um anda og gæsaveiði. Við Less-
er Slave og Athabaska vötnin, er
slík vjeiði mljög alment stunduð
og með bezta árangi.
Veiðillöggjöf fylkisins bannar
með öllu, buffalo, elks og anti-
lópu veiði. Músdýr má aðeins
skjóta á tímabilinu milli 1. nóv-
emiber og 14. desember. Endur
og gæsir má skjóta tvær fyrstu
vikumar í desember, sléttuhænsn
og partridge, frá 1. október til 14.
nóvember, en Hungarian part-
ridge aðeins út októbermánuð.
Veiðileyfi til að mega skjóta
stórdýr, kosta foúsetta menn inn-
an fylkis $2,50, en aðkomumenn
$25,00; fulglaleyfi, $2.25 fyrir
innanfýlkismenn, en $5,00' fyiir
aökomumenn.
Leyfi iþarf einnig fyrir leið-
sögumenn og þjóna þá, er í veiði-
stöð vinna.
í flestum ám og lækjum Suður-
fylkisins, er allmikið um silung
og stunda margir þar silungs-
veiði, bæði sér til gagns og gam-
ans.
Peir lesendur Lögbergs, er æekja
vnnu frekari upplýsinga un
'anada, geta snúið sér bréflega
i ritstjórans, J. J Bíldfells, Col-
mbia Building, William Ave. og
iherbrooke St., Winnipeg, Mani-
l«a.
Ástœðurnar
fyrir því að hugur íslenzkra bænda
hnegist til Canada
Víðáttumikil flæmi í Alberta,
einkum suður og suðaustur hlut-
anum, eru því nær iskóglaus, eða
skógurinn þá svo smáger, að lítt
hæfur getur talist til húsagerðar.
Tálsivert er þar þó um allhátt
kjarr sumstaðar, er veitir búpen-
ingi sæmi'legt skjól. Með fram
ánum, er aftur á móti víða tals-
verður skógur, einkum greni. 1
hinum norðlægari héruðum fylk-
isins er timburtekja mikil og góð.
Skóglendi það, er mesta hefir
timburtekjuna, er um 5,416,00 ekr-
ur að ummáli og er gizkað á, að
timlbrið á þeirri spildu, muni
nema nálægt 21,000,000,000 feta.
Aðal timburtegundirnar, er fram-
leiddar eru sem verzlunarvira
eru greni, birki, fura tamarac og
Willow (Víðir). Mest er ura
timhurtekju í Crow’s Nest héruð-
unum, meðfram Old Man ánni '
Porcupine hæðunum. Einnig við
High River, Sheep Creek, Bow
River, Red Deer, Athabaska, Sask-
atohewan, Brazeau, Pemibina og
Mcleod. Ganga má út frá þv;
sem gefnu, að i hinum norðlægari
héruðum munu timburtekjan auk-
ast mjög, er framliða stundir og
fleira fólk tekur sér þar bólfestu.
Sú deild sambandsstjórnarinn-
ar, er annast um eftirlit með skóg-
um, hefir í vörslu sinni víðáttu
mikil skógflæmi. Er íþar gætt
sérstakrar varúðar, að því er
eldehættu snertir og strngum fyr-
irmælum fylgt í samfoandi við beit
og grisjun, pessi eru aðalsvæðin,
er stjórnin hefir eftirlit með:
Crow’s Nest, Bow River, Clear-
water, Braseau, Cöoking Lake,
Athabaska, og Lesser Slave.
Réttindi til timfourtekju á stöðv-
um þeseum, eru seld við opinberu
uppboði á skrfstofu umfooðs-
imanns Sambandsstjórnarnnar 1
umdæmi því sem um er að ræða.
Fiskiveiðar 'í Albert fylki, eru
all-þýðingarmikill atvinnuvegur.
Er þar mikið um fiskigöngur bæði
í fljótum og stöðuvötnum. Meg-
in veiðistöðvarnar eru í efri hluta
Miðfylklsins og í norðurhlutan-
um. Er þar mest um hvítfisk,
pike, pickerel, tulifoee og gull-
augu. Silungsveiði er að eins í
fáum vötnum fylkisins.
'Mikið er um dýraveiðar og
loðskinna vöru í Alfoerta fylki og
hefir fjölda manna austan um hat
fluzt þangað, til þess að. njóta
góðs af þeirri auðlegð. Upphaf-
lega voru þar smáar vöruskifta-
stöðvar, er keyptu loðvöru í stað
annars varnings. Mest eru það
þó Indíánar og kymblendingar, er
dýraveiðar stunda, er það í flest-
um tilfellum þeirra aðal atvinnu-
grein. Er áætlað að loðskinna-
framleiðsla fylkisins, nemi áriega
hátt á þriðju miijón dala. Al-