Lögberg - 09.08.1923, Blaðsíða 1

Lögberg - 09.08.1923, Blaðsíða 1
Það er til myndasmiður í borginni W. W. ROBSON Atiiugiö nýja staSinn. KENNEDY BLDG. 317 Portage Ave. Mót Eaton iil SPEiRS-PARNELL BAKING CO. ábyrgjast yður fulla vigt, beztu vörur fyr- ir lœgsta verð sem verið getur. R E Y NIÐ Þ AÐI TALSIMI: N6617 ■ WINNIPEG 35. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 9. AGÚST 1923 NÚMER 31 HARDING DAINN, COOUDGE TEKUR VID STJORNARVOLDUM Warren G- Harding. Forseti Bandaríkjanna Warren G. Harding, ilézt úr heilablóð- Jalli í San Francisco hinn 2. þ. m-, klukkan hálf átta að kveldi. Mr. Harding var sem kunnugt er, nýkominn úr Alaska leiðangrinum. pegar ti;l San Francisco kom, tók forseti isótt iþá er leiddi hann til bana eftir viku legu. Andlátsfregnin kom öllum mjög á óvart, með því að læknar höfðu fáum mínútum áður gefið út þá yfirlýs- ingu, að fuil ástæða væri til að ætla, að Mr. Harding væri kominr. yfir mestu hættuna. Við sjú’krabeðinn var Mrs Harding, er dauða manns hennar bar að. Warren G- Harding, var fæddur 2. dag nóvember mánaðar ár- ið 1865, á bóndabýli nálægt Corsica í Marrow sveitinni í Ohio- Árið 1882 lauk hann prófi við Central College í sama ríki. Tveim árum síðar keypti hann blaðið Star, sem gefið var út í bænum Marion og gerðist ritstjóri þess. Árið 1891 Kvongaðst Harding og gekk að eiga ungfrú Florence Elizabeth Kling, er borin var og barnfædd í Marion. Ríkissenator var hann kjörinn 1899 og endurkosinn tveimur árum síðar. Árið 1903 hlaut hann lieuten- ant-governors kosningu í Ohio- 1910 flutti hann útnefningar- ræðuna á iþingi Republicana í Chicago, er Wi'lliavn Howard Taft hlaut forseta útnefningu. 1914 var hann kosinn senator fyrir Ohio ríki í Washington þinginu. Hinn 12. júní 1920 var Mr. Harding útnefndur forsetaefni Republicaa og kjörinn með feykilegu at- kvæðamagni í nóvember byrjun það sama ár. pann 4- marz 1921 var Mr. Harding svarinn inn, sem forseti Bandaríkjanna, sá 29. í röðinni. Harding þótti hinn mesti hyggindamaður og varfærinn mjög í stjórnmálastarfi. Er •mikill harmur kveðinn að Bandaríkja þjóð- inni við hið óvænta fráfall hans. Jarðarför Mr. Hardings fer fram á morgun í heimabæ haAs, Marion í Ohio ríkinu, þar sem hann hafði eytt flestum sínum manndómsárum. Frá Islandi. Sjómannadeilurnar. Undanfarna daga hefir stjórn sjómannafélag'isins látið varna því, að skipin Gulltoppur og Glað- ur fengi vatn, og varð höfnin að leita hjálpar lögreg*Iunnar í gær til þess að láta vatnið úti. Nokkr- ir lögregluþjónar fóru þá á vatnsbátnum og kömu að Glað, sem bundinn er út af austur- bryggjunni. Lögreglustjóri var þar fyrir og nokkrir lögreglu- menn og þrír aðstoðamenn þeirra- Ekki var vatnsbátuinn fyr kom- inn að Glað, en nokkrir sjó- mannafélagar gengu út á skipið og urðu þá smáhnippingar milli þeirra og lögreglunar. .— For- maður sjómannafélagsins, Sigurj. A. ólafsson, var þar og átti lög- reglustjóri tal við hann og varð það þá úr, að Sigurjón vildi fyr- ir sitt leyti' 'láta það afskifta- laust, iþó að annað skipi fengi vatn. Var þá tekið til að dæla í það vatninu, en Sigurjón gekk í land og hugðu áhorfendur að alt 'mundi fara friðlsamlega. — En þegar hér var komið sögunni, voru þeir orðnir all-æstir, sem í landi voru, og þegar þeir sáu að skiipið fékk vatn viðstöðúlaust, þá vildu þeir ekki Ieyfa það og ruddust um borð, skáru á vatns- hólkana eða kiptu þeim upp, svo að vatnið rann niður, en lögreglan og aðstoðarmenn hennar skipuð- ust til varnar og varð snarpur aðgangur og barsmíðar- Særðust nokkrir menn af beggja hálfu. Einkanlega fékk einn maður mikinn áverka á hnakann og var sagt að hann hafi verið barinn með tómri flösku. Hann heitir Pétur Jóhannesson og var aðstoð- ar maður lögreglunnar. pessari viðureign lauk svo, að Sjómanna- félagar tóku vatnsbátinn af lög- reglunni og lögðu honum, — en áflogin hjöðnuðu af sjá'lfu sér. — Formaður sjóðmannafélagsins, Sigurjón A. Ólafsson, reyndi að stilla til friðar, eins og fyr seg- ir, því að hann vildi ekki ganga í berhögg við lögregluna og hafði beðið menn áður, að sýna henni ekkert ofbeldi. En hér fór eins og oft vill verða, þegar móður er á mönnum, að þeir sjást lítt fyrir og ráðast lí þau verk, sem betur væru ógerð. Sjálfsagt sjá nú margir, sem að þessu*m ofbeldisverkum unnu í gær, að þeir hafa tekið á sig þunga á- byrgð, og g'ert meira en þeir mundu sjálfir kjósa, að vel yfir- veguðu ráði. , Borgara'legar óeirðir eru mikU> alvarlegri en svo, að stofna magi til þeirra fyrir smávægilegan á- greining, er vel mætti jafna með milligöngu góðra manna. En milliganga annara t. d. land- stjórnarinnar, mun ekki hafa ver- ið reynd enn. Virðist þó svo, sem það hefði mátt fakast, að fá samkomulag u'm, að þessi tvö skip yrðu látin fara í friði, gegn því, að skipshafnir fengi það kaup, sem að samningum yrði milli sjómanna og útgerðarmanna. væri þá vel, ef forgöngumenn sjó- manna vildu vinna að þessu, en vafalaust 'mundi landstjórnin þá Til Ágústs H. Bjarnasonar. Hvert landnám í andans aldinreit, sló eldingu’ um rökkursali og lýsti hvern afdal í íslands sveit með óðsnild í sögn og tali. En vaknandi þjóðin jafn-t vorið leit í vitrings sem barnsins hjali. Af alfaraleiðinni oft fór sá, er eldinn til hæða sótti, því vitið er leitandans Völuspá, er vígir hann sigurþrótti. Og aldrei sá neinn hans blikna brá, þótt brysti í liðið flótrti. Með ættarlands fánann efst við hún, þú út hefir sótt á miðin, og fegrað með starfinu föðurtún um fjöldamörg árin liðin. Með átaki hverju þú ræður rún, svo rýmkast um hugar-sviðin. Með kveðjuna’ að heiman kær varð oss koma þín hingað vestur. Við minning um heimlandsins Huldufoss, er hátíðablærinn mestur. Flyt svo til ættlands vors ástarkoss, þú íslenzki, prúði gestur. Einar P. Jónsson. * Til Mr.ogMrs. Ag. H. Bjarnason í kveðjusamsæti í Winnipeg 7. ág. 1923. pú komst að sjá og kanna nýja vegi, þú komst að líta þinna bræðra sveit, þú komst með sjóð á sumar-hlýjum degi, að sá í okkar dreifða þjóðlífs reit. pinn svipur, vígður sönnu hetju blóði, oss sýnir ættarmerkin glögg og há, og máls þíns kraftur, mær í sögn og óði, er móðurlandsins tungurótum frá. Til heimalandsins helg þig skyldan kallar, en hér í vestri standa okkar bú. Og vit, hér þagna aldrei raddir allar, því íslendingar geyma von og trú. Hvert djúp má brúa bræðralagsins anda, svo blómin spretti köldu grjóti frá. Já, sýnum dáð og hefjumst allir handa því háa, göfga marki til að ná. Við kveðjum þig, með þínum kæra svanna, í þökk og minning fyrir gefna stund. pú sást vor ból og sveitir landnemanna, og svo er þitt að dæma slíkan fund. pó fjarlægð hamli frænda gleðimótum og frónska drengi skilji eyja -band, er eitt, sem geymist okkar hjartarótum: pín ást og trú á vorra feðra land. M. Markússon. beita sér fyrir því, að koma samn- ingum fram og miðla málum- En sem komið er, er málinu í óefni komið, því að stjórnin mun varla vilja hefj aneinar sáttatilraunir, nema sjómenn láti af öllu ofbeldi gegn lögreglunni. >—Vísir. » * * Aðalfundur Eimskipafélagsins. Ár 1923, laugardaginn 30. júnl var aðalfundur h. f. Eimskipa- félags íslands haldinn samkvæmt auglýsingu stjórnar félagsins dags. 22- desember 1922. Var fundurinn haldinn í Kaup- þingsalnu'm í húsi félagsins og settur klukkan 1,15 af formanni félagsins, Pétri A. ólafssyni, konsúl. — Stakk hann upp á Halldóri Daníelssyni hætaréttar- dómara sem fundarstjóra og var það samþykt með lófataki. Tók hann við fundarstjórn og kvaddi til fundarskrifara Lárus Jóhann- esson, cand. jur. Vitjað hafði verið um 22091 at- kvæðaseðla, eða fyrir 37,1% af öllu hlutafénu. Áður en gengið væri tfl dag- skrár mintist formaður félagsins Hallgrims Kristinssonar framkv. stjóra, sem látist hefði úr stjórn félagsins á árinu, og bauð því næst velkominn Svein Björnssou, sendiherra, sem var til staðar á fundinum. Var þvínæst gengið til dag- skrár fundarins. Formaður félagsins Pétur A- ólafsson, konsúll, tók fyrstur tjl máls. Lagði hann fram skýrslu um hag félagsins og farmkvæmd- ir á starfsárinu 1922 og* starfs- tilhögun 1923 og framtíðarhorf- Lýsti hann í aða'latriðunum rekstri og starfseími félgasins á umliðnu starfsári og gerði grein fyrir fyrirhugaðri tilhögun á starfsemi þess eftirleiðis. Gjaldkeri félagsstjórnarinnar, Eggert Claessen, abnkastjóri, tók næstur til máls, yfirfór ársreikn- ing félagsins í aðalatriðunum, og grði nánair grein fyrir ýmsum atriðum í honum. Spunnust nokkrar umræður út af dagskráarlið þessum og tóku til 'máls: Brynjólfur H. Bjarna- son, kaupm., Pétur A- ólafsson, Eggert Claessen, bankastjóri, 0g svöruðu tveir hinna síðarnefndu fyrirspurnum þeim, sem fram höfðu komið, f. h. stjórnarinnar. Að loknum umræðum þessum var reikningur félagsins sa'm- þyktur í einu hljóði. Var þvínæst tekinn fyrir 2- lið- ur dagskráarinnar, svohljóðandi: Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiftingu árs- arðsins.” Framsögumaður þessa liðs dag- skráarinnar var ritari félagsins, Jón Þorláksson verkfræðingur. Tók hann til máls lítn tillögur fé- lagsstjórnarinnar um skiftingu ársarðsins, sem rituð er aftan við ársreikninginn og gerði grein fyrir henn í einstökum atriðum. Kom fram breytingartillaga frá Hja'lta Jónssyni fra'mkvæmd- arstjóra, þess efnis að greiða stjórnendum félagsins 500 króna þóknun hevrjum fyrir störf þeirra í þágu félagsins s. 1. ár- Urðu nokkrar umræður um til- lögur istjórnarinnar og breyting- artillöguna og tóku þessir til máls: Hjalti Jónssón fram- kvæmdarstjóri, séra Magnús Bjarnason á Prestbakka, Brynj- ólfur H. Bjarnason, kaupm, Jón Bergsveinslson, forseti og Jón porláksson verkfræðingur. — Að þeim loknum var genið til at- kvæða og tillaga stjórnarinnar í 9. lið 2- samþykt með öllum greiddu'm atkvæðum, en breyt- ingartillögur Hjalta Jónssonar framkvæmdarstjóra; samþ. með 25. atkv. gegn 7 og þreytist 3. lið- ur stjórnartillögunaar yfirfærsla til næsta árs, samkvæmt því- í stjórn ;voru endurkosnir af hér búsettum stjórnarmeðlimum. Pétur A. ólafsson 'með 11284 atkvæðum, Hallgrimur Benedikts- son með 10363 atkv., og Halldór Þorsteinsson með 10327 atkv. — Næstir fengu ólafur Johnson 3454 atkvæði, Jón Björnsson 2683 atkvæði, Hjalti Jónsson 1766 atkv. Af há'lfu Vestur-íslendinga var kosinn Árni Eggertsson með 11- 438 atkvæðum- Endurskoðandi yar kosinn í einu hljóði pórður Sveinsson kaupm, og varaendurskoðandi Guðm. Böðvarsson sömuleiðis í einu hljóði. Ræddar voru og samþyktar nokkrar tillögur u'm breytingar á reglugjörð um eftirlaunasjóð fé- lagsins. Loks var gengið til síðasta dagskrár liðs, sem er svohljóð- andi: “Umræður^ og aíkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin.” Fundarstjóri lagði fram til- lögu frá Magnúsi Guðmundssyni um að félagið bjóði ríkisstjórn- inni að kaupa eitt eða fleiri ai skipum ríkissjóðs þannig að and- virðið yrði hlutafjúreign í félag- inu. Tóku fomaður félagsins og Magnús Kristjánss m til máls um hana- Var tillagan síðan borin upp og féKst ekxert atkvæði með henni. Samþykt var svohljóðandi til- laga frá Guðmundl Hlíðdal verk- fræðingi: “Fundurinn ályktar að lýsa því yfir í sambandi við breytingu sem gerð hefir verið á þessum fundi á 4. grein reglugerðar fyrir eft- irlaunasjóð félagsins, að hann ætlast til að félagsstjórnin sjái um, að eigendur þeirra skipa, sem Ei'mskipafélagið hefir út- gerðarumsjón á, greiði í efTTr- launasjóð félagsiijs hlutfallslegt gjald.” Loks var samþykt tillaga frá Þórði Bjarnasyni kaupmanni með 10 atkvæðum gegn 8 þess efni3, að endurskoðendum verði greidd 250 kr. launauppbót hverjum fyr- ir árið 1922. Danska krónan hefir falilð mjög að undanförnu, sem kunnugt er. Síðast liðinn miðvikudag var gengi ster'lingspunds í Khöfn kr. 26,55, en daginn áður 26,15- — Er þetta verðfall síðustu dagana kent hafnarverkfallinu í Eng- landi, af því að það gerir erfiðara að fyrir að koma dönskum út- flutningsvörum á markað. — TJt- lend gjaldeyriseign Þjóðbankans hefir au’kist síðasta mánuð við það. að seld hafa verið útlend rikisskuldabréf. Gu'lltrygging bankans fyrir seðlum er nú um 47% af seðlum í umferð, en þarf ekki að vera nema 33 og einn þriðji %; er nú ráðgert að selja nokkuð af gullinu úr lanid, og var eitthvað af því sent til Ameríku í síðustu viku. Er þetta gert til að 'hækka gengi krónunnar- Listasafn Einars Jónssonar er opið daglega þessa viku, kl. 2.—6 síðdegis. Aðgöngueyrir ein króna Nánari ákvarðanir verða síðar birtar um sýningartíma og sýn- ingardaga framvegis. Árið 1873 útskrifuðust 11 stú- dentar úr lærða skólanum í Reykjavík, og eru fjórir þeirra enn á Tífi- peir eru þessir: Guðm. Guðmundsson, læknir i Stykkishólmi, séra Jóhann por- kelsson dómkirkjuprelstur, séra Sigurður Jensson frá Flatey, séra Stefán M. Jónsson frá Auðkúlu. Eru þeir állir samankomnir hér í bænum, til að minnast 50 ára stúdentsafmælisins. — Sambekk- ingar þeirra sem dánir eru, voru þessir: Björn Jensson, fyrv- yfir- kennari, Brynj. Gunnarsson prestur á Stað í Grindavík, Hall- grímur Melstað, bókavörður, Jó- Calvin Coolidge. Hinn nýji forseti Bandaríkja þjóðarinnar Calvin Coolidge, er fæddur i Plymouth þorpinu í Vermont ríki, þann fjórða dag júlí mánaðar, árið 1872. Lauk hann prófi við Amherst lærða skólann 1895 með fyrstu ágætiseinkunn- Að því loknu, hélt hann til North- hampton og tók að stunda lögvísi. Lauk prófi í þeirri fræðigrein þrem árum síðar, sömuleiðis með hinum ágætasta vitnisburði. Settist Mr. Coolidge að í þeim bæ og kvongaðist Grace Goodhue, árið 1905. Eiga þau hjón tvo sonu á lífi- Calvin Coolidge hefir orð á sér fyrir hugrekki, segja þeir er bezt þekkja manninn, að hann blátt áfram kunni ekki að hræð- ast. Hvað ofan 1 annað var hann kosinn á ríkisþingið í Massa- chusetts og þótti hinn mesti atkvæðamaður í hvívetna. Ríkis- stjóra embætti í Massachusetts gengdi Mr. Coolidge um hríð, en var kjörinn til varaforseta í kosningunum 1920. 1 Nafn Mr. Coolidge varð kunnugt út um allan heim árið 1917 í sambandi við 'lögreglumanna verkfallið nafntogaða í Boston, er ihann rak hvern einasta lögregluþjón borgarinnar er í verkfallinu tóku þátt og skip- aði nýja menn í stöður þeirra- Þótti mörgum þar vera ærið djarflega teflt. Daginn eftir lát Hardings var Mr. Coolidge svarinn inn í for- seta embættið, frammi fyrir föður sínu'm, manni komnum fast að áttræðu. — Fullyrt er að Mr. Coolidge muni verða útnefndur í einu hljóði sem forsetaefni Republicana, við kosningar þær, er fram eiga að fara næstkomandi ár. han Malby, dó á háskólanum, Páll Vigfússon, umboðsm. Richard Ó- lafsson, læknir í Danmörku, séra Zóphónias Halldórsson, Viðvík. 25 ára stúdents afmæli eiga 30. þ. m- Magnús Jónsson prófessor, Guðmundur Hallgrímsson 'læknir, Þorkell Þorkelsson löggildingar- stjóri, Halldór Hermannsson pró- fessor, Jón S. Hjaltalín héraðs- læknir, Bjarni Jónsson banka- stjóri, Ari Arnálds bæjarfógeti, Sigfús Einarsson tónskáld, Sig-! urður læknir Jónsson í Færeyjum, Matthías Einarsson læknir, Matt-| hías Einarsson fornminjavörður, Bjarni p. Johnson má'lafærslu'mað- ur, Einar Jónasson sýslumaður, Þorsteinn Björnsson cand. theol-, porvaldur Pálsson læknir og Valdi' mar Steffensen læknir. Einn sambekkinga þerra er látinn, Tómas Skúlason. Hinir munu allir koma hingað nema Ari Arnalds, til þess að minnast af- mælisins með hátíðahöldum. Eldur kviknaði um kl. 9 í morg- un á miðhæð hússins' no- 11 við Grundarstíg. Það er þrflyft: steinhús á háum kjallara og nokkur herbergi á fjórðu hæð. Sjónarvottur sagði Vísi svo frá, að hann hefði séð eldinn gegnum glugga og hlaupið til að brjóta brunboða, en 1 sömu and- ránni heyrði hann brest og sprakk þá einn gluggi á miðhæðinni og eldblossann lagði þar út. Slökkvi- liðið kom mjög fljótt, en eldurinn komst á svipstundu upp á þriðju hæð og þaðan upp undir rjáfur, og einu sinni læsti hann sig niður á neðstu hæð, því að gólf öll og loft eru úr tré. Fólk bjagaðist með naumindum. Ein stúlka stökk út um glugga, komin að köfnun > reyk, og var gripin í segli, og sakaði hana ekki- Fleiri voru hætt kormnir. Húsið brann mjög innan, en ekki verður að svo stöddu sagt um skaðann, en ugglaust er hann mjög mikill. Eldurinn var slöktur fyrir há- degi. Innanstokksmunum varð bjargað úr kjallaranum og ef neðstu hæð, en litlu bjargað af hinum hæðunum. • 'Helgi Teitson hafnsögumaður andaðist í morgun, eftir örstutta legu í lungnabólgu. Hann var hniginn á efra aldur og hafði lengi verið hafnsögumaður i Reykjavík- F. C. Möller kaupmaður andað- ist hér í bænum í gærkveldi, eftir langvinna vanheilsu. Nýr sjónleikur eftir Kristján Albertsson, er nýkffminn út og heitir Hilmar Foss. Verður hans minst síðar. Ur bænum. Séra Halldór Johnson á Gimli, hefir verið kallaður til prests- þjónustu hjá Lút. söfnuðinum í Blaine og á Point Robert í Wash- ington, og býst hann við að fara vestur til þeirra safnaðar innan skamms. Mrs. Sigurborg Johnson, kona porsteins Johnsonar bónda í grend við Leslie, Sask., í kynnis- för hjá ættingjum sínum í Fram- nesbygð í Nýja íslandi, varð fyr- ir þeirri sorg að missa yngra son sinn, Steingrím að nafni, tæp'lega ársgamlan,, þ. 23- júlí s. 1. Barnið lézt úr lungnabólgu er það fékk upp úr mislingum. Jarð- arförin fór fram frá hei'mili Mr. og Mrs. Jóns Karvelssonar þ- 25. júlí. Séra Jóhann Bjarnason jarðsöng.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.