Lögberg - 04.10.1923, Blaðsíða 5
LÖGI2ERG, FIMTUDAGINN
4. OKTÓBER 1923
tíls. 5
DODDS >
Oodas nyrr.apillur eru bezta
nýrnameð&iið. Lækna og ífisrt,
bakverk, hjartabilun, þvagteppu
og önnur veikindi, sem starfa frá
nýrunum- — Dodd’s Kidney Pills
kosta 50c. askjan eða sex öskjur
fyrir $2.50, og fást hjá Öllum lyf-
sölum eða frá The Dodd’s Medi-
en 160 ekrur, eða fjórðungur úr
section. Auðvitað hefir fjöldi
bænda milkílu meira landrými,
sumir hálfa section og enn aðrir
640 ekrur eða jafnvel meira. Það
leiðir) því af sjálfu sér, að korn-
framleiðs'lan verður margfalt
meiri á bónda hvern, en á sér stað
í hinum eldri löndum. 'Meðal
uppskera hveitis verður því, sem
næst 16 ‘mælar af ekrunni, hafrar
32 mælar, bygg 24, rúgur 13 og
hör nálægt 9 mælum. Að vísu
verður þó uppskera í sumum
pörtum fýlkisins nokkuð meiri.
Heita má að sama ræktunar-
aðferð sé viðhöfð bæði við ný
lönd og gömul eins og bent hefir
verið á hér áður í sambandi við
búnað Manitobafylkis- Vænt-
anlegir innflytjendur þyrftu að
hafa það áva'lt í huga, að þótt skil-
yrðin fyrir kornrækt í fylki þessu
sé góð, þá er engan veginn æski-
legt, að binda sig einvörðungu
við þá tegund fra'mleiðslunnar og
þess vegna reynist griparækt jafn
hliða, venjulegast affarasælasti
búnaðurinn.
í fylki þessu eru ágæt skilyrðí
fyrir hendi til þess að koma korni
á markað. Alt korn er selt sam-
kvæmt iögum sambandsiþingsins
og lætur stjórnin umboðsmenn
sína skoða það og ákveða flokkun
þess.
Meginhluti þess korns, er flytj-
ast skal út, er látinn í kornhlöð-
ur — Elevators, sem nú eru að
íheita vná við hverja einustu
járnbrautarstöð. Allir kornkaup-
menn í Vesturlandinu, verða að
hafa stjórnarleyfi og ennfremur
næga tryggingu, svo þess vegna
geta bændur engu tapað og eiga
ekkert á hættu, að því er viðkem-
ur sölu uppskeru sinnar.
Ymist eru það mýlnufélögin,
kornkaupafélög og samvinnufé-
lög bænda, er eiga kornhlöðurnar.
Bóndinn getur ávalt eftir eigin
vild, ýmist flutt korn sitt tafar-
laust til kornhlöðunnar og fengið
fyrir það peninga út í hönd, eða
ef 'hann vill halda því upp á vænt-
anlega verðhækkun, þá getur
hann samt fengið það geymt í
kornblöðunni og fær við afhend-
ing skýrteini er sýnir mælatöl-
una- Kjósi hann heldur að láta
kornið í vagn, þá getur hann gert
svo, því járnbrautar félögin hafa
bygt samkvæmt lögu'm hleðslu-
palla við svo að segja hverja ein-
ustu brautarstöð.
Þótt Saskatchewan fylkí, sé ef lti
vil'l allra frægast fyrir hveiti-
framleðsluna, þá má hinu eigi
gleyma, að skilyrðin fyrir blönd-
uðum landbúnaði, eru einnig góð.
Má það bezt marka af þeim hin-
um risavöxnu framförum er naut-
griparæktin hefir tekið hin síðari
árin. Hin árlega s'mjörfram-
leiðsla fylkisins, nemur um 9,000-
000 punda, sem virt er á því sem
næst sex miljónir, níu hundruð og
tuttugu þúsundir dala. i—
Sauðfjárræktin í Saskatchewan,
er ti'ltölulega enn á bernsku-
skeiði. En er framlíða stundir
hlitur hún að taka miklum fram-
förum, iþví hin ágætustu skilyrði
eru þar fyrir hendi- Enda sýn-
ist áhugi bænda fyrir þeirri grein
framleiðslunnar, vera talsvert að
aukast.
Þeir, sem æskja frekari upp-
lýsinga um Canada, snúi sér til
ritstjóra Lögbergs, J. J. Bildfell,
Columbia Building, Cor. William
og Sherbrooke, Winnipeg.
Hljóð úr horni.
Akra, N-, Dak., 29. sept 1923.
Heiðraði herra ritstjóri.
Nú væri ga‘man að senda þér fá-
ar línur fyrir blað þitt, þó ekki
sé um mikið merkilegt að skrifa
héðan, enn þá er hægt að minnast
á ýmislegt annað. Ef til vill er
ekkert meira eftirtektavert nú á
tímum en hvað þið þar norður er-
uð orðnir útþandir af trúar-
bragða vandlætingum af allslags
tegundum. Það er eins og
þessi OModeration” lög ykkar, séu
farin að hafa áhrif á trúarlíf —
eða trúarástand ykkar, og er það
sízt mót von þegar alt er orðið
svona elskulegt í því sambandi
Krists afturkoma brátfum augljós ö!Iu fólki
Miljcnir, sem nú eru lifandi, deyja aldrei!
Veist þú að Kristur ER KOMINN, að öll tákn afturkomu hans eru
• komin fram, og eru að koma fram ?
Veist þú að vandamál þau sem maðurinn er að berjast við og hefir bar
istvið (sum í aldir) Kristur sjálfur er kominn til að ráða fram úr og
stofnsetja sitt ríki hér á jörðu ?
Veist þú að seinni koma Krists meinar&ð það eru miljónir manna nú
lifandi sem aldrei leggjast í gröfina, en munu lifa hér á jörðtileilífðar?
Þú ert boðinn og velkominn að heyra ræðu um þetta málefni af
W. H. PICKERING, af ræðumannadeild International Bible
Students Association.
I.0.G.T.»HaIl,Lundar,Man., 12. Okt. kl.7.30
Ókeypis aæti Engin samskot
■ ■■■■ ■ ■■■■■■ ■■■■■■■
KN■ ■ ■ B ■ ■ ■ ■■■■■■■■■■■!
Tilboð við opnun
Skólans
NEMENDUR, sem innritast til pRIGGJA mán-
aða við skóla vorn, fá ÓKEYPIS kenslu fyrsta
mánuðinn.
í VERZLUNARFRÆÐIDEILDINNI
Dagskóli, $15.00 á máauði
KveldskóM .... $6.00 á mánuði
TILBOÐ VID OPNUN SKÓLANS
priggja mán. dagskóli $30.00
priggja mán. kvöldsk. $12.00
10% afsláttur gefinn á öllu verkfræðis kenslu-
Rjaldi.
Vér bjóðum yður að heimsækja skóla vorn og
skoða hann. paÖ er undir sjálfum yður komið,
hvort þér innritist þar eða eigi; það er undir yðar
eigin dómgreind komið.
Vér erum sannfærðir um, að þér munið verða oss
sammála um það, að vér höfum stærsta, bezt
lýsta og bezt útbúna Prívat Skólann í landinu,
bygðan samkvæmt ströngustu heiibrigðisreglum.
Kensluaðferðir vorar eru þær beztu, er þekkjast.
Sérver nemandi nýtur persónulegrar tilsagnar.
pað kostar yður ekkert, að rannsaka starfrækslu-
aðferðir skólans, en getur komið yður að ómetan-
legu gagni.
UNITED TECHNICAL SCHOOLSLld.
Cor. Portage and Langside.. Phone N-6996
■iHIIIIBIIIBIIIIHlHIIIIHIHlBllliailllHIIIIHIIIHnilHIIIIHNIIHIIIIBIIIIHIIIIHII
1
■
M
m
■■
■
■
■
■
■
■
■
■
n
n
■
■
■
ÍHIII
iniia
|
'mh
hjá ykkur. Lítið á Heimskringlu
síðasta blað er útkom með fulla
10 dájka af andiegu efni. og meiru
lofað síðar, — slíkt eru engir
smáskamtar 1 litlu vikublaði, sem
kostar þó ekki meira en tveir pel-
ar af góðu “Scotch” eftir því sem
þar segir. Svo kemur Lögberg
býst eg við með aðra 10 eða 12
dálka bráðu'm af svipuðu efni —
því ekki — það blað kostar um
árið, lítið meira enn einn peli af
írsku “Koniaki” svo óþarfi er að
fást um hvaða efni er valið fyrir
kaupendur að lesa. Það er
annars án spaugs merkilegt hvað
íslendingar virðast að vera þol
inmóðir við þessa trúmáia prang-
ara sem sí og æ eru að þenja
kjaptinn um efni sem allir ættu
að vita að þeir hafa enga sér-
þekkingu um, en vaða þó elginn
með skítuga skóna yfir alt sevn
fyrir verður, hvað heilagt sem
það er fjölda af fólki með mis-
munandi skoðanir, reyna á allan
hátt að trana sér fram og svífast
einkis — jafnvel ekki þess að
orsaka óvild — já hatur á milli
þeirra sem ættu að bera bróður-
hug hvor till annars, ef þessu sí-
felda trúarnaggi, rógburði og lýgi
væri ekki 'haldið uppi.
F.inu sinni var það nokkurs kon-
ar “gentleman’s agreement” á milli
ísl. blaðanna, að utiloka sem mest
trúarstælur, og það var vel gjört
og bar góðan ávöxt. Nú eru aðrir
timar að byrja, virðist mér aS
minsta kosti, en óskandi væri, að
sem flestir rétthugsandi menn vildu
ljá liö sitt til þess að fyrirlíta óg
kveða niður sem fyrst þenna trú-
arhroka. sem nú geisar eins og logi
yfir akur á meðal okkar íslendinga
hér vestra, og sem virSist aS koma
mjög i bága viS innhyrSis samúS
manna hér yfir höfuS, en sem eitr-
ar hugsunarháttinn og eykur óvild
og sundrung á milli fólks á allan
hátt. ÞaS skal þó tekiS fram, aS
eg skal ávalt vera siðasti maður til
að fyrirdæma trúarlegar skoðanir
nokkurs manns eSa nokkurs flokks
manna. hverjar svo sem þær eru.
Eg skal fyrstur allra, sem kost eiga
á, rétta þróSurhönd hverjum manni
hvaSa trúarskoSanir sem hann
hefir á meSan eg veit aS hann ber
tilhlýSilega virSingu fyrir öSrum á
sama hátt. En þegar eg sé, aS far-
iS er aS útata það, sem öðrum er
dýrmætt, þá kýs eg aS fylgja
fyrstu röS, sem skipar sér á móti
þeim, sem þá aSferS brúkar. —í
þessu sambandi stilli eg mig ekki
um aS minnast á, að hugmynd mín
er aS þiS, ísl. blaSamennirnir í
Winnipeg, geriS heldur mikiS af
að hampa ýmsum herrum, sem frá
íslandi koma hingað til aS sýna
okkur Islendingum hér persónu
sína, lærdóm og annan mikilleik.
ÞiS hafiS hvaS eftir annaS hlaup-
iS þar á hundavöSuni, taliS fólkinu
í gegn um blöS ykkar trú um, aS
um mikla og göfuga menn væri
að ræða, en sem oft hefir sannast
aS vera blekking frá ykkar hálfu,
því viS nánari kynningu af sumum
af þessum dýrSlingum ykkar, hafa
þeir reynst—ef til vill veriS þektir
áður—fyrir aS vera vindbelgir,
hrokagikkkir og aS ýmsu leyti mis-
indismenn, sem enga heimtingu
gátu átt’til þess aS þeir væru dýrk-
aðir hér af almenningi, eða í dufti
væri hér skriðið fyrir þeim. Sjálf-
sagt er aS sýna hvei jum þeim gesti.
sem aS garði ber, tiíhlf'Silega kurt-
eysi og velvild, eftir því sem hann
er maSur verðugur, en heimska
tóm, aS vera aS hampa þeim sem á
en gan hátt eiga þaS skiliS, eins og
þið hafiS gjört ykkur seka í oftar
en einu sinni. Ef til vill finst ykk-
ur, aS eg meS þessum ásökunum í
ykkar garð ætti aS nefna nöfn til
sönnunar mínu máli, en í þetta
skifti aS minsta kosti skal eg þó
hlífast viS því, en ef til kemur, “er
þar hægur um hönd.” — Svo ekki
meira um þetta i brájS, en finni ein-
hver hvöt hjá sér aS reyna til aS
troSa höröum hælunt á þessum
skoSunum mínum, sem koma beifit
í bág viS trúmála fjasiS og Islend-
ingadekrið hér á “meðal vor”, þá
ertu vís til aS ljá mér aftur lítiS
skot í Lögbergi.
Eg þakka aS endingu séra Fr.
FriSrikssyni aS Wynyard fyrir
“orösendingu” hans í síðustu
Heimskringlu, sem .fordæmir »f-
dráttarlaust “skáldskap” þann, sem
beint var til séra Adams Þorgríms-
sonar í Heimskringlu stuttu áSur,
og sem auðsjáanlega köm frá hæfi-
legleikum og hvötum af lægstu
tegund. Séra Friðrik sýnir þar, aS
hann er “drengúr góður”.
Þúínabanina.
MeS ósk um minni trúarstælui
og íslendingadekur, en meiri upp-
skeru og brennivín, er eg þinn ein-
lægnr.
S. Thorwaldson.
(Dagur.)
Eins og 'kunnugt er, hefir jarð-
yrkjuvél sú, er púfnabani nefn-
ist, starfað hér á landi nú í þrjú
sumur. En svo virðist mér, sem
menn séu full þagmælskir um vél
þessa og vinnubrögð hennar, því
menn vita óglögg skil á henni, þar
sem hún hefir ekkert starfað- 1
fyrsta hefti Búnaðarritsins 1922
ritar forseti Búnaðarfélags Is-
lands, iSigurður Sigurðsson, all-
glögga lýsingu á vél þessari. Þar
er og einnig lagður fram kostnað-
arreikningur yfir að fullvinna
dagsláttuna mdð þúfnábananum
undir sáningu eða rótgræðslu.
Sömuleiðiís lítildháttar lýsing á
vinnubrögðum þúfnabanans og
gefur sú lýsing þá hugmynd, að
hann skili landinu full unnu. Sig.
Sig. keMist að þeirri niðurstöðu í
reikningsfærslu sinni að kostnað-
urinn við að fullvinna dagslátt-
unaárið 1921 hafi orðið 100 kr.
og telur það fullreiknað. En eg
hygg, að þessi kostnaðaráætlun
sé ekki rétt og skal hér gerð grein
fyrir þeirri skoðun, þar eg eg veit
að bændur og búnaðarfélög um
land alt, hafa mikinn áhuga fyr-
ir vél þessari og margir hafa þá
trú, að hún verði lyftistöng hins
íslenzka landbúnaðar, tel eg mér
skylt, að gefa þær upplýsingar
henni viðvíkjandi, er eg tel sann-
ar og réttar, bygðar á þeirri
reynslu, er eg hefi fengið við að
vinna að löndum þeim, er þúfna-j
baninn braut hér við Akureyri í I
fyrra sumar-
Alls voru brotnar hér við bæinn
um 180 dagsláttur. Kostaði sú;
vinna þúfnabanans 135 kr. á dag-'
sláttu. Mátti við þann kostnað
vel una, þó hann kæmi illa heima
við áðurnefnda kostnaðaráætlun.
En nú kom annað í ljós. sem fors.
Bún- hefir gleymst að geta í skrifi
sínu, að þúfnabaninn fullvinnur
ekki landið.
púfnabaninn vinnur að eins söm
plógur og herfi, að iþeim kosti við-
bættum, að þar sem þýfið er
smátt og lárétt, svo enga tilfærslu
þarf, skilur hann við grasrótina
að mestu ofan á.
Sé þýfið í meðallagi stórt og
þar yfir, skilur baninn við iþað
lítið jafnað og óhreyfðar lautirn-
ar. Þar sem svo hagar til, hverf-
ur sá góði kostur, að grasrótin
verði ofan á. pví við jöfnunina
grefst hún niður að meira eða
minna leyti. Að visu er öll til-
færsla slæm, en einlægt verður
að gera þá kröfu, að landið verði
véla- og skárarækt. Með því að
vinslu með þúfnabananuvn, má
heita að hann skilji við landið
fullunnið undir sáningu eða rót-
græðslu. Þó hygg eg, að ekki
geti komið til greina, að valta með
honum minsta kosti ekki deig-
lenda jörð, til þess er hann alt of
þnngur. Hvað vinsluna snertir á
því landi, sem hann á annað borð
getur fullunnið, er lítið út á hann
að setja, nema ef vera skyldi, að
hann vinni mýrar full grunt, því
eins og kunnugt er á loftið ó-
greiðari aðgang að þeim en mó-
unum-
Að jafna, herfa og valta dag-
sláittuna á eftir þúfnabananum,
sé þýfið í 'meðallagi stórt og þar
yfir, hefir mér reynst að kostaði
til jafnaðar í kring um 60 kr.
Kostar því dagsláttan fullunnin
195 kr., eða sem næst helmingi
meira, en gefið er í skyn í áður-
nefndri ritgerð. Þó hér hafi ver-
ið gerð grein fyrir því, hvað
kostað hefir að vinna lönd þau,
er nú hafa verið tilgreind, má
ekki álíta það algildar tölur, en
nota má iþær til hliðsjónar.
En nú er spurningin hvort ekki
kostar í raun og veru meira en
þetita að vinna dagsláttuna. Um
það verður ekkert sagt, fyr en
reikningar yfir rekstusrkostnað
þúfnabanans verða birtir. pví að
spurningin er: ber þúfnabaninn
sig með þessu gjaldi á dagsláttu?
Er því sjálfsagt, að landbúnaður-
inn geri þá kröfu, að fram verði
lagðir glöggir reikningar yfir
rekstur þúfnabanans, bygðir á
þeirri reynslu er fengist hefir
þessi þrjú sumur, sem hann hef-
ir strafað hér. Bændur og bún-
aðarfélög verða og einnig að gera
þá kröfu, áður en keyptir verða
fleiri þúfnabanar, að glöggar at-
huganir verði gerðar á vinnu-
brögðum þúfnabanans, bygðar á
gætni og fyrirhyggju. Því var-
hugavert er, ef þeir, sem láta
vinna, ganga út frá því, að þúfna-
baninn skilji við landið full unn-
ið hvernig sem það er á upphafi-
Því vel getur þó svo farið, að
menn sitji eftir með landið í
“tröð” verkfæralausir og hafi ekki
tök á að vinna það, svo það komi
að tilætluðum notum.
Einnig ber þess að gæta hvort
tök eru á, að gefa því landi næg-
an áburð, sem tekið er til rækt-
unar, því ræktun eins og kunn-
ugt er, byggist ekki á rányrkju
Ef notaður er tilbúinn áburður,
skal þess getið, að í meðalgóðan
jarðveg með sæmilegri áborn-
ingu kostar nú 57 kr. dagsl og er
þó ekki reiknaður flutningskostn-
aður.
Hvað það snertir að koma
þúfnabananum um landið, mun
það víðast hvar mega takast. Að
vísu fer hann ekki yfir stórgrýti,
krappa grafninga eða vatnsföll
séu þau dýpri en c- tvö fet.
Eins og gefur að skilja getur
komið fyrir, að þúfnabaninn bili.
Hafa orðið tilfinnanlegar tafir
vegna bilana í sumar. Verða
því þau svæði er taka þúfnaban-
ann framvegis til notkunra, að
athuga hvort svo góð verkstæði
séu í nánd, að hægt sé að gera við
bilanirnar. Einn aðalkostur
þúfnabanans er hvað hann vinnur
vel undir rótgræðslu, iþar sem
e'kki þarf að færa til. 1 því sam-
bandi er vert að geta þess, að það
er ekki nema tiltölulega stuttur
tími af sumrinu, sem má vinna
með honum í því augnamiði, að
eins snemma á vorin eða ekki fyr
en seint á haustin. Því sé gras-
rótin tætt 1 sundur um hásumar-
ið, skrælnar hún öll og deyr. Eg
efast því um, að sú staðhæfing
fors- í ritgerð hans í Búnaðarrit-
inu sé rétt, að vinna megi með
þúfnabananum alt sumarið dag
og nótt 200 ha. og þeir verði síð-
an alsprotnir eftir H—2 ár með
rótgræðslu. Minsta kosti væri
ekkert á móti því að fá einhverja
reynslu, áður en því er slegið
föstu. Það má enginn skilja
þessar línur á þann veg, að eg
sé að vinna hér á móti notkun
þúfnabanans, því mér er það full-
ljóst að með honum er stigið stórt
spor í áttina " til skjótra fram-
kvæmda á sviði íslenzkrar jarð-
ræktar, en öllum framkvæmdum
verður að fylgja fyrirhyggja.
Verður það iþví að vera efst á
dagskrá íslenzkra jarðyrkju-
manna, áður en fleiri þúfnaban-
ar eru keyptir, hvort hann er á-
byggilegur hyrningarsteinn land-
búnaðarins, því traustir skulu
hornsteinar hárra sala.
Akureyri 6. ágúst 1923
Gunnar Jónsson-
Aths.
Herra búfræðingur Gunnar
Jónsson á Akureyri hefir sýnt
mér ofanritaða grein sina, um
þúfnabanann og starfsemi hans,
með þeim tilmælum, að eg gerði
við hana athugasemdir, ef eg áliti
hennar. p£tta þakka eg honum
hré með.
Hvað ritgerð þessa snertir, á-
lít eg hana yfirleitt sanngjarna
og rétta í garð vélarinnar og sé
ekki ástæðu til að gera verulegar
athugasemdir við hana, þó eg að
vísu hefði kosið sumstaðar ítar-
legri umsagnir. T- d. þykir
mér of mikið, eða öllu heldur of
lítið sagt, að í meðalstóru þýfi og
þar yfir, skilji vélin við landið
“lítið jafnað.” Sannleikurinn
er sá, að þó þýfi sé nokkuð stórt,
jafnar vélin það raunar mikið, en
þó hvergi nærri til fulls, og því
betur sem það er betur gróið.
Einnig jafri&r fiún betur með
’mýrahnífnum en heiðahnífnum,
en þekking Gunnars nær einkum
til vinslu með þeim síðarnefndu,
þar sem þeir voru notaðir á lönd-
in, sem hann hefir fengist við í
sumar og dæmir hann eðlilega
eftir því. Af áðurgreindu álit
eg því 60' kr. kostnað á dagsláttu
við jöfnun eftir vélina of hátt
reiknað (á meðalstóru þýfi og
þar yfir), enda gefur hann í skyn
með réttu, að það muni ekki al-
gild tala.
Fínustu föt
skulu þveg.'o. úr
LUX
Heldur barnafötunum
hreinum.
Barnahúðin er svo viðkvæm, eð ekki ætti að nota nema
þau allra mýkstu ullarföt. Haldið barnafötunum
mjúkum og fallegum, með því að nota einungis Lux.
hinar hvítu, þunnu Lux plötur, leysast upp fljótt og
vel og skilja enga gula sápubletti eftir í þvottinum.
pess vegna ættu fín föt aldrei að vera þvegin úr
nokkru öðru.
Lux aðferðin er afar einföld. Dýfið að eins þvott-
inum ofan í hinn þykka lög, strjúkið úr þeim vatnið
og breiðið til þerris.
Lux skarar fram úr. Selt í innsigluðum rykheldum
pökkum !
LEVER BROTHERS LIMITED, TORONTO.
í öðru lagi tilgreinir hann að
eins hámarkið á verðlagi land-
brotsins ií fyrra og nefnir ekki
verðlag í ár, en hvorugt þetta mun
hann hafa kynt sér áður en hann
skifaði greinina, og er það or-
sökin, en ekki gert í þei'm til-
gangi að gera fyrirtækinu rangt
til. Taxtinn í fyrra var frá 117
—133 kr. pr- dagsl. eftir stærð
landspildanna og erfiðleikum á
að vinna, en meiri hluti þess
lands, sem brotið var hér"í fyrra,
mun hafa lent í hærri flokkun. í
ár er hann frá 92—133 kr. pr.
dagsl. Hvort það kostar í
raun og veru meira eða minna
get eg því miður ekki sagt um
með vissu, enda (þarf fleiri
reynsluár til þess, en -
verða sennilega lagðir fram, enda
sjálfsögð fcrafa, eins og nú er
komið.
Rúmið leyfir ekki lengra 'mál,
þó margt mætti fleira um þetta
segja, vil að eins bæta því við, að
vélinni má koma yfir flest vatns-
föll sem hafa góðan botn, séu
þau vel reið, en þau stærri á ísum
að vetri til.
Akureyri 14. ágúst 1923
Sigurður Egilsson
fá Laxamýri-
:—Dagur 23 ágúst.
Meira Brauð
Betra Brauð
Ódýrasla og heilnæmasta[foeðan er brauð-
ið, ef það er réttilega tilbúið.
Það sem vér höfum kappkostað, hefir ávalt
verið það, að láta vörugæðin ganga á undan
öllu öðru; þessvegna hafa brauð vor hlotið
þá einróma viðurkenningu, sem raun er á.
Efnisgœðin á undan nafninu,
hefir ávalt verið kjörorð vort
Canada Bread Company Limited
PORTAGE & BURNELL,
Talsími B 2017
WINNIPEG, WAN.
HUGSIÐ FYRIR SJALFA YÐUR!
Góður vinur mun ávalt ráðleggja yður, að gera öll viðskifti við
áreiðanlegar, tryggar og heilbrigðar stofnanir.
Ef þér hafið í hyggju að ferðast til Norðurálfunnar, eða fá vini
yðar og frændur til Canada, þá er engin önnur betri stofnun en Alloway
and Champion til að skifta við, en hún starfar í sambandi við Canadian
National Railways.
Eimskipa farseðlar með öilum línum
pað kostar ekkert að ráðgast við oss. — Nýjustu upplýsingar
ávalt við hendina.
Nú er tíminn til að ákveða sig.
ALLOWAY & CHAMPION
667 Mjain St.