Lögberg


Lögberg - 15.11.1923, Qupperneq 4

Lögberg - 15.11.1923, Qupperneq 4
Bí* 4 AÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. NÓVEMBER 1923. Eögberg Gefið út hvem Fimtudag af The Col- usikia Pre**, Ltd., iCor. Sargent Ave. & Toronto Str.. Winnipeg, Man. TalHÍmari N-G327 ofi N-0328 Jóa J. Bíldfell, Editor Utaná8krift til biaðsins: TME eOLUMSIA PRESS, Ltd., Bo*3m. Winnípag. Nlan. Utanáskrift ritstjórans: EOlTOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, tyan. The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press, L.imited, in the Columbia Building, 695 Sargent Ave., Wirfnipeg, Manitoba. Til kaupenda Lögbergs. Um leið og vér þökkum kaupendum vorum fvrir viðskiftin á þessu ári, sem nú er svo mjög' farið að líða á, erum vér knúðir til þess af; minua þá á, að framtíð blaðsins er komin undir því, að það sé borgað. Ekkert blaij/ getur haldið áfram að koma út, ef kaupendurn- ir standa ekki í skilum, og sízt þau blöð, sem eins og Lögberg hafa í lengri tíð verið seld fyr- ir minna verð en það kostar að gefa þau út. Kaupnedur Lögbregs hafa nú hátt upp í fjögur ár fengið Lögberg fyrir minna verð, en nokkurt annað blað, sem þeir liafa keypt, jafn- stórt, og^ oss er kunnugt um, að kaupendurnir eru útgáfunefndinni þakklátir fyrir það., Er/ liakkiætið eitt er létt á metaskálunum. Á því getur ekkert blað lifað til lengdar. Menn verða líka að borga fyrir það. Þegar að sijórnarnefndin réð við sig að lialda við hið gámla verð blaðsins, þrátt fyrir það þótt verðið væri sett upp til muna á öðrum blöðum, þá hélt hún, að kaupendur blaðsins mundu virða þá viðleitni og að þeir mundu virða hana á þann hátt, að borgrr blaðið fljótt og skilvíslega; en á því hefir orðið misbrestur í alt of mörgum tilfellum. Vér höfum reynt að bera það með eins mikilli þolinmæði og oss hef- ir vorið unt1— verið eins vægir í kröfum við menn eins og vér sáum oss fært, en það liefir hvorugum málsaðila gjört gott. Kæruleysi kaupendanna margra hefir aukist og útistand- andi skuldir blaðsins vaxið með ári hverju, þai til nú að þær nema stórri upphæð. Eins og flestum kaupendum blaðsins er kunnugt, þá hefir Columbfh Press félagið orð- ið að fara í mikinn kostnað á þossu yfirstand andi ári við að koma sér upp nýrri byggingu og þarf því frernur nú en nokkni sinni fyr á öllum útistandandi skuldum að halda. Vilja nú ekki þeir, sem skulda blaðinu fyrir eitt eða fleiri ár, sýna oss og því þá velvild, að greiða skuldir sínar tafarlaust og sýna með Jrví, að jieir meti það sem stjórnarnefnd Lögbergs hef- ir gert fyrir þá ? Vér vitum, að dýrtíðin hefir verið mikil og er enn; en í henni höfum vér verið að reyna að taka þátt með því að selja kaupendunum blað- ið fýrir helmingi lægra verð, borið saman við önnur blöð af sömu stærð, heldur en það hefði kostað þá, ef vér þefðum fylgt sömu reglu með söluverðið og þau hafa gjört. • Þessa þátttöku í dýrtíðar erfiðleikunum. vonum vér að allir kaupendur blaðsins meti, með því að standa í skilum með eldri og yngri skuldir við blaðið. fslendingar hafa fengið orð á sig fyrir orðheldni og skilvísi fjrr og síðar; en það er eins og margir þeirra liafi gleymt þessum dygðum, þegar til þess hefir komið, að borga vestur-íslenzku blöðin, því vér teljum víst, að hjá engum blöðum, sem út eru gefin hér í landi séu eins mikil vanskil á borgun eins og hjá ís- lenzku blöðunum, og virðist það vera orðið að andstygðar-ávana eða þefð, sem verður að1 breytast, ef blöðin eiga að geta haldið áfram að koma út. Vér segjum ekki, að þessi ávani sé kaup-^ endum einuin að kenna. Hann á rót sína líka að rekja til útgefendanna. Mönnum er kunn- ugt um reglu ]»á, sem hérlendir blaðaútgefend- ur fylgja í þessu efni, nefnilega þeirri, að hættu að senda blöðin til þeirra, sem ekki borga þau. og þá verða kaupendurnir annað hvort að borga eða vera án blaðanna. Þessari reglu hafa íslenzkir blaðaútgefendur aldrei fylgt hér í landi, og þess vegna sitja þeir nú með stór- skuldir á bókum sínum og tapa á blaðaútgáf- um sínum. Vér sögðum áðan, að Lögberg ætti stórfé útistandanili fyrir ógreidd áskwiftargjöld hjá Vestur-íslendingum. Þetta fé verður blaðið að fá greitt nú í haust. Það er mesta heimska, bæði fyrir útgefendur og kaupendur blaðsins, það er þá af þeim, sem skulda blaðinu, aðy halda lengur áfram án þess að gera upp sakir sínar hreint og ærlega. Blaðið getur ekki stað- ist það og kaupendur *geta ekki staðið sig við það sóma síns vegna. Vér viljum því í bróðerni, en allri alvöru. tilkynna þeim, sem skulda Lögbergi fyrir eitt eða fieiri ár, að jiær skuldir verða að grgiðast fvrir næstkomandi áramót, eða J)á að vér verð- nm að takí^ til þeirra ráða, sem lög landsins heimila og kringumstæðurnar krefjast. Bœjarstjórnar-kosningarnar. “Tímamir breytast og mennirnir með,” segir gamalt íslenzkt máltæki, og finst oss það eiga við um í höndfarandi bæjarstjórnar- kosningar í Winnipeg. Hér á fyrri áruin, þegar lítið eða ekkert var borgað fyrir að sitja í bæjarstjórn, þegar að menn létu til leiðast skyldunnar og gagnsiníj vegna, sem þau gátu unnið bæjarfélaginu, að gefa kost á sér í það embætti, þá sóttu embættin eftir mönnunum, en mennirnir ekki eftir em- bættunum. Nú er þetta öðm vísi. Staða ^essi er nú nægilega vel launuð til þess að hún se ei*t- irsóknarverð frá því sjónarmiði. Euda hafa að líkindum aldrei fleiri sótt um þær stöður lieldur en einmitt nú. Menn segja ef til vill, að það sé gott — að það beri vott um vaknandi áhuga fólksius og næmari skilning á velferðarmálum bæjarfélags- ins.- En slíkt er þó að voru áliti engan veginn aðalástæðan fyrir þessum vaknandi áliuga, sem sumir kalla, en sem frá voru sjónarmiði er rétt néfnt stétta-stríð. v Frá öndverðu hefir óhreinskilni í hugsun, í orði og í verki verið til ills og valdið meira tjóni í heiminum heldur en nokkuð annað. Og svo er það enn í dag. Það er því bezt fyrir mann að ganga hreint til dyra í þessu sambandi og kannast við, að hér sé ekki um neina vakning að ræða, ekki um neina þrá til þess að efla eindrægni, enga livöt til þess að auka velvild, enga viðleitni til þess að knýt’a þetta bæjarfélag saman svo það geti betur beitt kröftum sínum að settu marki. Hér er í aðsigi stríð — stríð á milli verka- fólksins, eða öllu heldur leiðtoga verkafólksin? annars vegar, og annara stétta þessa bæjarfé- lags hins vegar. Stríð er undir flestum kringumstæðum eyðileggjandi og ógeðfelt. Þó geta verið til réttmæt stríð, þegar um einhverja lífræna hugsun er að ræða, sem velferð einstaklinga og heilla1 þjóða byggist á. En þau sundra æfin- lega kröftum, vekja hatur og valda erfiðleik- um. A síðustu árum hefir risið.liér upp í Win- nipeg öflugur flokkur verkamanna, með J>eim einloeitta ásetningi að ná yfirráðum í bæjar- stjóra. Og til hvers? Til jæss að geta komið 1 í ramkvæmd, að svo miklu leyti sem bæjar- malin snertir, sínuin sérskoðunum og sínum á- hugamálum. Oss er sagt, að menn eigi rétt til siuna sérstöku skoðana og að það sé kjarni lýðveldis hugsjónanna að menn fái að efla þær skoðanir og berjast fyrir þeim. Þetta er satt og ekki satt. Satt að því levti að sérskoðanir manna og mannflokka eiga rétt á eér^eins lengi og þær stefna að velferðartak- marki heildarinnar. En engin sérskoðun á rétt á sér, sem vill þroska sig og 'sinn flokk á kostn- að heildarinnar. ■- > Það er eitt af stormeinuhi nútíðariunar að hinir ýmsu flokkar eða stéttir, sem svo mjög hugsa um sinn eigin hag að þeir eða þær gíeyma að heildarþroskinn og velgengni lieild- arinnar er komin undir sameiginlegum hags- munum og samvinnu heildarinnar, 0g að mesta ogagn, sem þær geta unnið þessu bæjarfélagi og ollum öðrum bæjar eða þjóðfélögum, er að berjast svo hart fyrir sínum sérmáium, að þau verði til óánægju og sundrungar. Oss dettur ekki í liug að segja, að verka- menn hafi ekki rétt til að vera í bæjarstjórn. eða að þeir eigi ekki að vera þar. Það sem vér segjum eða leggjum^ áherzlu á í þessu sam- bandi, er það, að þeir séu }>ar ekki sem mál- svarar sérstaks flokks eða stéttar innan bæj- arfélagsins, heidur^em heildarinnar. Frá voru sjónarmiði á engin stétt eða flokkur manna rétt á að vonast eftir, að tals menn þeirra séu studdir til kosninga, hvorki nú né endranær, heldur þeir menn aðeins, sem- tala mali allra bæjarbúa jafnt, menn, sem ekki þékkja neinn stéttámun eða stéttaskifting að því er til bæjarmálanna kemur, en bera Tag alra jafnt fyrir brjósti. \'ér minnumst j>ess( ekki, að eins margir hafi nokkurn tíma sótt úm kosningu til bæjar- sjórnar eins og nú, bæði konur og karlar—kon- ur og karlar, sem bæjarbúar vita engin deili á, vita ekkert, hvort þau hafa nokkuð af hæfileik- um þeim, sem slíkt starf krefst, eða livort þau þekkja starofið í starfsmálum þeim, sem þau eru að biðja bæjarbúa að fá sér í hendur, og þó hefir aldrei verið þörf á hæfari mönnum í bæj- arstjórn í Winnipeg en einmiít nú. Frambjóðendur í bœjarstjórnina í Winnipeg Fyrir borgarstjóra: S. J. Farmer, fyrver- andi borgarstjóri, og Robert Jacob, lögfræð- ingur. _ I fyrstu kjördeild sækja um sæti í bæjar- stjórn: J. G. Sullivan, verkfræðingur, sá er setið hefir í bæjarstjórninni fyrir j)á kjördeild; R. J. Shore, fasteignasali, sem hefir líka verið í bæjarstjórninni og sækir aftur um embættið; A. R. Leonard, fyrverandi öldurmaður; nýir: T. Fox-Decent, fasteignasali; W. E. Milner, W. A. James, Daniel W. Campbell og A. E. Ham. | 1 annari kjördeild: Frederick H. David- son, fyrverandi öldurmaður og borgarstjóri; John O’Hare, fráfaraúdi öldurmaður, og Tlios. Flye; nýir: Vietor B. Anderson, prentari hjá Columbia Press; Mrs. Jessie Kirk; Mrs. Helén Armstrong, Mrs. Edith Hancox og C. #F. Czer- winski. í þ.riðju kjördeild: fráfarandi öldurmenn. J. A. Barry, John Blumberg og Herbert Jones) nýir: Percy Ellor, J. L. Wigginton, John Mc Crum og Matthew Popovitch. í skólastjórn bjóða þessir sig fram: í fyrsu kjördeild: Arthur Congdon, A. E. Bowles, \Villiaip A. Matheson, Fi C. Chambers. 1 annari kjörd.: Garnet Coulter, A. H. S, Murray, Lorae J. Elliott, alt lögfræðingar Max Stobart og James Mclntyre. 1 þriðju kjörd.: Robert Durward, Dr. H. A. McFarlen, Robert A. Bruce og Marcus Hyman. “The Playhou.se’’ Leikhúsin eru ekki lítill þáttur í lífi borga og bæja. Þau hafa verið og eru stórveldi í hugsanabeimi manna — stórveldi til góðs eða ills. 1 heimi leiklistarinnar hefir bylting og breyting átt sér stað, eins og allsstaðar annars- staðar. Ilreyfimyndahúsin, þar sem myndir lífsins, ljótar og fallegar, líða fyrir augu áhorf- endanna í óslitinni heild og menn geta hallað sér aftur á bak í mjúkum stólum, drukkið með augunum það sem fyrir ber, en látið hugsunina sofa, útrýmdu að mestu hinum eldri og erfið- ari klassisku leikjum, svo menn héldu jafnvel um tíma, að dagar þeirra væru taldir, og það ekki að áíitæðulausu, því að svo liöfðu hreyfi- myndahúsin með sínum vélamyndum, illum og góðum, heillað hugi fólksins, að klassisku leik- húsin stóðu tóm, þegar vísa varð fóki frá hin um vegna rúmleysis. Menn vildu ekki lengur hlusta á speki Shakespeares eða list Richards Wagners. Hinir förnu meistarar leiklistarinn- ar stóðu hljóðir og hnípnir og horfðu á fólkijj —almenningsálitið, ganga úr vegi og fram hjá sér. Sem betur fer, virðist ])ossi æðisalda mann legs hugsunarleysis, vera að falla um allan heima og líka hér í Winnipeg. AðsóSnin að liek- húsum þeim, sem sýna hina “klassisku” leiki, er aftur að aukast og eitt nýtt leikhús, sem úð- ur mátti telja í tölu hreyfimyndahúsanna, hef- ir nú bæzt f tölu þeirra klassisku, það ,er Pan- tages leikhúsið á Market Street, sem undir. nýrri stjórn eða nýjum herrum, hefir verið skírt upp og heitir nú The Playliouse. ArinaÖ markvert atriði í sambandi við það, er vert að benda á og það er, að Islendingur efnilegur og myndarlogur, hr. Þorsteinn Borgfjörð, er einn af aðal eigendum og stjórnendum þessa leik^ húss. Vér óskum hr. Borgfjörð og jicim félögum til lukku með þetta fyrirtæki og líka með - j)að, að jieir ^kuli vera búnir að breyta um leiki í j>essu húsi og innleiða þangað klassik í stað- inn fyrir vélamyndir og allslags skrípaleiki sem þar gat áður að líta. Síðast liðna viku var þar lcikinn leikur, senj heitir “Ellefta boðorðið”, sorgarleikur gamall og nýr, þar sem ótrvgðin fær sín óumflýjanlegu endaiok. Leikendurnir allir voru frá New York og leystu hlutverkin vel af hendi—sumir á,- gætlega. Þegar Islendingar eru að ráða við sig, á hvaða leikhús xeir eigi að fara það og það kveldið, j)á ættu þeir e’kki að glevma The Play- house á Market stræti. Þar er alt af að sj;j góða leiki. Húsið er með beztu leikhúsunum í bænum og aðgangurinn seldur *á sanngjörnu vcrði. Andrew Bonar Laww \ Við lát lians er fallinn í valinn, einn af á- hrifamestu stjórnmálamönnum brezka veldisins og jafnframt sá af sonum hinnar cariadisku þjóðar, er mestri tign hefir náð. 1 lífi hans og sjtarfi, birtust flestir góðkostir jijóðarinnar, í þoirra skýrustu og sönnustu mynd. Bonar Law var framúrskarandi yfirlætislaus maður, hug- rakkur, ráðvandur og bjartsýnn. Krókaleiðir' í pólitík voru honum ekki tamar. Sannfæring- in var lionum fyrir öllu, hvað sem pólitiskum hagsmunavonum eða fylgi leið, Trúin á mál staðinn, ásamt heilbrigðri dómgreind, greiddi götu þessa merka manns til frægðar og frama, A.ldrei nokkurn tíma gægðist fram hjá honum síngirni, og verður slíkt jiví miður, ekki sagt um alla stjórnmálamenn. Hann setti almenn-; ingshaginn ávalt framar sínum eigin hagsmun- um og lifði æfina á enda, æðrulaus, fáskiftinp og virtur jafnt af öllum flokkum. Andrew Bonar Law taldist til íhaldsflokksr ins brezka. En þrátt fyrir það, var hann þó í flestum greinum víðsýnn og frjálslyndur. M minsta kosti var hann umburðarlyndari flest iim mönnum fremur. Þegar David Lloyd George stofnaði bræð ings ráðuneyti sitt á stríðstímanum, tókst Bon^ ar Law á hondur hið vandasama embactti fjár- mála ráðgjafans. Honum skildist manna bezti að á þeim erfiðleika. árum reið jrjóðinni meira á einlægni, en lijaðningavfgum milli hinna ein- stöku flokka. Þess vegna kvaðst hann engu ó fúsari til starfa, sem undirmaður Lloyd George en þótt honum hefði sjálfum verið boðin stjórn- arforystan. Var hann þegar kjörinn málsvarf samsteypuflokksins á þingi. Enginn smáræðis vandi mun það hafa verið, eins og gefur að skilja, að halda í hemilinn á jafn ósamstæðri hjörð og þeirri, er bræðingsstjórnin studdist við, því víst er um j>að, að ýmsir áhrifamenn af hinum gamla skóla íhaldsstefnunnar, svo sem Sir George Younger; litu Lloyd George og stjón hans alt annað en hýru auga. Stjórnmálahafið var krökt af blindskerjum, en hið glögga stýri- mannsauga Bonars Law, átti vafalaust ekki hvað minstan jiáítinn í J)ví, að stjórnarfleyinu hlektist aldrei á. Markmið hans var, að halda bræðingsflokknum saraan, j)ar til séð væri fyrir' enda ófriðariris, livað svo sem síðar tæki við. — Ahyggjur, vökunætur og erfiði á tímabilinu 3917—1918, veikti til muna heilsu fjármálaráð- gjafans og flýttu fyrir aldurtila hans. Nokkrií áður en kosningarnar síðustu fóru fram á Bret-; landi, varð hann að láta af embætti sökum heilsubrests. Ilrestist hann j)ó allmikið brátt Konan ætti að hafa bankabók s JERHVER kona liefii* í liyggju sérstaka aðferð við innkaiip sín liún liefði iMíiiingana. pau ættu að veraforréttindi hverrar konu, að hafa umráð yfir húspeningunum. pá getur hún sjálf lagt niður fyrir sér það sem hún þarfnast og sparað í þeim tilgangi peninga. Ef þér eruð hyggin húsmóðir, þá munuð þér spara í þessu augnamiði. Skildingar í Pyngjunni, eru ekki lerfgi að hverfa — þér / fáið freistingu til að eyða þeim. Geymið peninga yðar þar sem þeir eru tryggir, en þó ávalt til taks, hvenær sem þér þarfnist þeirra. Biðjið um vora nytsömu minnisbók. Hún ' sýnir yður hve fljótt að lítið spari- sjóðs innlag ávaxtast. THE ROYAL BANK 0 F C A N A D A Höfuðstóll og viðlagssj. .. $41,000.000 Allar eignir....... ... $519,000,000 SHgOMgdmaMBtlll Meðlimir Grain Exchange, Winnipeg Produce Clearing Association, Fort William Grain Exchange, og Grain Claims Bureau. LICENSED AND BONDED Northwest Commission Go. LIMITED Telephone A-3297 Grain Exchange, Winnipeg, Man.. lloom 376 íslenzkir bændur! Munið eftir íslenzka kornverzlunarfélaginu, það gæti borgað sig að senda okkur sem mest af kornvöru yðar. þetta árið. — Við seljum einnig hreinsað útsæði og “option” fyrir þá, er þess óska. — Skrifið á ensku eða íslenzku eftir upp- lýsingum. Hannes J. Lindal. Peter Anderson. aftur, var kjörinn leiÖtogi íhaldsflokksins og leiddi hann til sigurs í kosningunuiri með mikl um nieiri hluta. Var sjálfur kosinn pieð feyki legu afli atkvæða í einni Glasgow kjördeildinni Tæpa níu inánuÖi sat Bonar Law að völdum: var heilsu hans j)á þannig farið, aÖ hann sí> sér eigi fært að gegna embætti lengur og beiddist lausnar. Sjúkdómur í hálsinum ágerðist æ meir og meir, — kom síðar í ljós, að um krabba var að ræða og dró það til eins og hins sama. — Áhyggjur og erfiði stríðsáranna, höfðu slitiö kröftum hans. 1 raun og veru var hann eimi, þeirin, er lagði lífið í sölurnar í stríðinu mikla Það var að eins fyrir ákafa þrábeiðni, að Bonar Law tókst á hondur stjórnarforystuna á Englandi. Honum var ljóst, að heilsan leyfði ekki slíkt ábyrgðarstarf, en þjóðarinnar vegna vildi hann ekki skerast úr leik. Stjórnarfor menskan varð svo skamvinn, að eftir henni einni væri tæpast sanngjarnt að reyna að dæma' manninn. Þó er víst, að hans megin áhugamá! var það, að koma fjárhag þjóðarinnar á fstan grundvöll og ráða bót á atvinnuleysinu. Hefði hans notið lengur við, er góð ástæða til að ætla að hálf önnur miljón manna liefði ekki setið auðum höndurn á Bretlandi í dag. Eins og áður hefir verið drepið á, var . Bonar Law Canadamaður, — fæddur og uppal- inn í þessu vestræna víðveldi. Af æfistarfi , hans gæti þjóðin lært margt, en þó einkum drengskapinn, stefnufestuna og yfirlætisleysið. Ástœðumar fyrir því að hugur íslenskra bænda hneigist til Canad. 70 Kafli. Fyrir hálfri öld eða svo, mátti heita að Sa’skatchewan fylki væri óbygt. Hin litla jarðrækt er þektist þar þá, var á mjög ófull- komnu stigi. Stórar Buffalo hjarðir undu sér í þá daga lítt truflaður á beit um hin víðáttu- miklu sléttuflæmi. Indíánarn- ir þóttust hafa tekið sléttuna að erfðum og"þW af leiðandi hefðu aðrir ekkert tilkall til hennar. Nokkrir stórhuga æfintýra- menn, tóku að leita þangað vest- ur fyrir rúmum þrjátíu árum. En jafnskjótt og tekið var að leggja járnbrautirnar; þyrptist tfólk að úr öllum áttum. Jarðvegurinn er framúrskarandi auðugur að gróðrarmagni og á því voru ný- byggjar ekki lengi að átta sig. Erfiðleikarnir voru að ’miklu leyti hinir sömu og átti sér stað 'í Manitoba, en ur^u þó talsvert fljótar yfirstignir. Nú hafa verið reistir skólar og kirkjur um alt fylkið. Símalínur tengja borg við borg og sveit við sveit. Bifreiðar eru komnar á allflesta bóndabæi og járnbrautarkerfin liggja um fylkið þvert og endi- langt. Alls eru um 6000 mílur af járnbrautum í fylkhiu og er það meira en í nokkru öðru fylki, að undanskildu Ontario. Nútíðarþægindi í iðnaði, sam- göngu mog verzlun, hafa kffmið í stað öiðugleikanna, sem land- nemalífinu voru 'samfara. En þótt nú séu við hendina flest þau þæg- indi, sem nútíminn þekkir, þá þarf samt engu að síður að leggja fulla rækt Við störfin. Kornyrkja út af fyrir sig, stuðl- ar miklu fremur að því að veikja jarðveginn en styrkja. Þetta skildist landnemunum fljótt og þess vegna tóku þeir að stunda griparækt jöfnu’m höndum. Örðugt var til markaðar héí’ fyr á árum, eins og gefur að skilja og áttu bændur oft þar af leiðandi örðugt með að láta hveitiræktiná borga sig. Nú er þetta allmjög breytt til hins betra. Hvar sem bóndinn á heima í fylkinp, á hann tiltölu- lega mjög skamt til kornhlöðu og járnbrautarstöðvar. Á liðnum árum hefir miklu ver- ið úthlutað af heimilisréttarlönd- um í fylkinu og er þar mikið eft- ir. En rétt er að geta þess, að í flestum tilfellum, eru þau nökkuð frá járnbraut. En ‘hins ber jafnframt að gæta, að við út- breiðslu bygðörlaganna, koma járnbrautirnar af sjálfu sér. Mikið er af góðu*m lönd- um í fylkinu, er fást til kaups, fyrir þetta frá fimtán til þrjátíu dali ekran og má venjulegast þá þau með slíku'm skilmálum, að borga má fyrir þau á mörgum ár- iim. Ræktuð lönd kosta vitan- lega nokkuð meira, 0g fer það alt eftir því í hverju helzt að umbæt- \ /

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.