Lögberg - 14.04.1927, Blaðsíða 7
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 14. APRÍL 1927.
Bls. 7
»
Líður að öllu leyti betur
og er hraustari.
Þess vegna er það, að Mr. F. Hart-
man ræður öllum til að nota
Dodd’s Kidney Pills.
Maðuh í Alberta þjáist af Nýrna-
veiki og læknast af Dodd’s
Kidney Pills.
Piers, Alta, 11. apríl (einuka-
skeyti).
“Mér hafa reynst Dodd‘s Kid-
ney Pills mjög vel við nýrnaveiki”
segir Mr. Fred. Hartman, sem er
alþektur og vel metinn maður í
Piers, Alta. “iEg átti vanda til
að vera ilt í bakinu, en síðan eg
fór að nota Dodd’s Kidney Pills,
liður mér miklu betur og er langt
um frískari. Eg fékk vond köst
og leið mjög illa. Þegar eg fór
að brúka Dodd’s Kidney Pills, fór
mér strax að batna.”
Það er alveg furða,’ hve margt
fólk lætur sér líða illa dag eftir
dag af verkjum, höfuðverk og
bakverk. Það líður mikið vegna
þess að það veit ekki hvernig það
getur losnað við kvalirnar. En
Dodd’s Kidney Pills hafa bein á-
hrif á nýrun. Þær styrkja þau
svo og græða, að þau vinna sitt
verk, sem er að hreinsa óholl efni
úr blóðinu.
Aðfiuningar G.A. í Hkr.
Frh. frá bls. 3
um, í helgisiðum og í starfsað-
ferð, en JodoKflokurinn eða nokk-
ur annar. Og það, sem þessum
flokki svipar til kristinna, að
þessu leyti, er ekki til kaþólskra,
heldur til reformeruðu kirkjunn-
ar. Um þetta atriði, í sambandi
við Shin-flokkinn, fer dr. Soper
svofeldum orðum:
“fThey are opposed to Christi-
anity, but pay it the high com-
pliment of copying its methods.
Preaching halls have been pro-
vided and sermons are delivered.
Sunday schools are conducted,
provided with the help and ap-
paratus of the Christian schools,
sometimes with a pathetic inab-
ility to put on the original touch,
W'hich would them soundly Budd-
histic. Young Men’s Buddhist
Associations have been organized,
in various cities, and a periodical
literture attempts to meet the
intellectual needs of the alert
young studens and the cultured
men and women. They are a
force to be recckoned on, with
an enormous following, and a
readiness to make almost any
move to meet the new situations
as they arise.” — (Bls. 247-248.)
Á íslenzku: “Þeir eru á móti
kristnum trúarbrögðum, en sýna
þeim samt þá virðingu, að stæla
starfsaðferð þeirra. Samkomu-
salir hafa verið bygðir, þar sem
prédikanir eru fluttar. Sunnu-
dagskólar eru í gangi, þar sem
notuð eru tæki og hjálparmeðul
kristinna skóla, og það stundum
með svo brjóstumkennanlegm ó-
mögulegleika að gefa þessu þann
frumlega blæ, að það geti heitið
verulega Búddhatrúarlegt. Búdd-
hatrúarfélög ungra manna hafa
verið stofnuð í ýmsum borgum,
fog blöð og tímrit er reynt að láta
uppfylla upplýsingarkröfur hinna
ungu, námgjörnu stúdenta og
mentaðra manna 0g kvenna. Þeir
er afl, sem taka þarf með í reikn-
inginn, hafa feiknamikið fylgi,
0g eru reiðubúnir að taka til
bragðs nærri hvað sem er, til að
mæta nýjum kringumstæðum
jafnóðum og þær koma í ljós.”
Hví skyldi nú G. Á. vera að
þvertaka fyrir, að Búddhatrúin
stæli nokurntíma kristna trú?
Ef G. Á. hefði ekki verið búinn
að skýra manni frá því, að hann
hefði kynt sér Búddhatrúna, þá
hefði maður sjálfsagt freistast
til að halda, að hann væri sum-
staðar þar hálf-ókunnugur. En
nú með því að hann er fróður um
þessi mál, þá verður maður að
ætla, að eitthvert aðgæzluleysi
hafi hent manninn, því sannleik-
urinn sýnist halda sig á talsvert
öðrum slóðum heldur en G. Á.
virðist fara sumstaðar í þessari
ritgjörð sinni.
Útskýring G. Á. trúnni á Am-
ida, í Japan, er rétt að því leyti,
sem sú trú var þar til áður en
Shinran kom þar til sögunnar.
Má þar sérstaklega tilnefna Jodo-
fiokkinn, er hélt mjög fram kenn-
ingunni um Paradís, þar sem
Amida réði fyrir. En með Shin-
ran breyttist trúin á Amida svo,
að hún verður nauðalik trú krist-
inna manna á Krist, eins og þeg-
ar hefir verið bent á. Þá er
spurningin: Hvar fékk Shinran
þessa kenningu sína? Próf. Arth-
ur Lloyd, háskólakennari í Tokyo,
hefir rannsakað þetta í mörg ár.
Er hann sannfærður um, að Shin-
ran, sem víst er að var í Kína um
nokkurt tímabil, hafi þar komist
i eitthvert samband við kristna
kenningu, en það er algjörlega
sannað, að í Kína voru kristni-
boðar Nestoriusalr kirkjunnar
fram á þrettándu öld, nefnilega
fram að eða fram yfir það tíma-
bil, er Shinran var þar í landi. Frá
heimkomu Shinran til Japan er
svo Amida boðaður sem frelsari
Búddhatrúarmanna. Þessi rann-
sókn prófessors Lloyd og niður-
staða sú, sem hann hefir komist
að, er hvorttveggja þess vert, að
á það sé minst. En mér skilst á
G. Á. að maður hafi engan rétt til
að álíta, að annarleg trúarbrögð,
eins og t. d. Búddhatrúin, hafi
orðið fyrir áhrifum frá kristn-
inni, nema maður um leið kann-
ist jafnframt við, að kristin trú-
arbrögð hafi líka orðið fyrir á-
hrifum frá annarlegum trúar-
brögðum. En mér skilst, að þeg-
ar um það er að ræða, að finna
það sanna á einhverju sviði, þá
komist svona jafnréttis slumpa
reikningur naumast að. Raunar
hefi eg aldrei neitað því, að kristin
trúarbrögð hafi stundum orðið
fyrir áhrifum af öðrum trúar-
brögðum. Eg veit meira að segja,
að slíkt hefir oft komið fyrir, og
það svo mjög, að kristnin hefir
stór-aflagast, eða jafnvel eyði-
lagst á vissum svæðum. Hinu
■ hefi eg neitað, að boðskapur
Krists og Nýja Testamentisins
eigi á nokkurn hátt rætur sínar í
heiðnum trúárbrögðum. Það vona
eg að G. Á. samsinni með mér.
Getum við þá verið á einu máli
um það og sjálfsagt margt íleira.
(9) Er það sem líkt er, að sjálf-
sögðu skylt hvað öðru?
Það er þá ein aðfinningin, eða
ásökun G. Á. í minn garð, að eg
haldi því fram, að það, sem líkt
er, hljóti að vera skylt. Er bezt
að láta G. Á. tala sjálfan:
“Sú ranga skoðun, sem kemur
í ljós í J-itgerð séra Jóhanns, og
sem er meginatriði ritgerðarinn-
ai, er að það sem er líkt einhverju
öðru, hljóti að vera skylt því.”
Það sem helzt mætti finna að
þessari sakargift er það, að hún
er ekki sönn. Það er nú kannske
ekki stórt atriði í hugum sumra
manna nú á dögum, en eg hygg
samt,, að flestir Séu svo gamal-
dags enn þá, að þeir vilji fremur
fara með það, sem er rétt, og þar
með G. Á. sjálfur. En honum
hefir einhversstaðar yfirsézt, er
hann las grein mína. Eg tók það
einmitt fram, þar sem eg mintist
á kenningu Búddha og heimspeki
Grikkja á hans tíð, er þá stóð
með blóma, að þó að þessu svip-
aði mjög saman, að því er meðal-
hófs kenninguna snerti, þá væri
það út af fyrir sig engin sönnun
fyrir sameiginlegum uppruna,
eða beinu samþandi þar á milli.
Svo G. Á. hefir lesið grein mína
fremur lauslega og ekki sýnt þá
nákvænvni, að því er þetta atriði
snertir, sem maður hefði búist
við hjá þeim, sem tekur sér það
hlutverk á hendur, að gefa öðrum
áminningu. Það eina, sem eg hefi
gjört í þessu efni, er það, að
benda á þau rök, sem eru afar-
sterk, og að sumu leyti ómótmæl-
anleg, fyrir því, að Búddhatrúin,
bæði fyr og síðar, hafi sniðið
kenningar sínar og hagað starfs-
aðferð sinni mjög eftir kristinni
trú. Eg hefi ekki orðið var við,
að G. Á. hafi hreyft sig til mót-
mæla, þeghr ,!gífurlegai* 'fullyrð-
ingar hafa sézt um það, að Krist-
ur hafi snapað saman hjá héiðn-
um fornaldarspekingum það, sem
hann kemur með í náðarboðskap
sínum. Og þó er at^ðvitað ekki
hægt að gjöra þá staðhæfingu,
nema með hinni mestu ósvífni og
stærstu óskamfeilni, algjörðu
blygðunarleysi, að því er snertir
óll rök. En því er maðurinn svona
hörundssár fyrir hönd Búddha,
þó bent sé kurteislega á, hvernig
kenningar hans hafa breyzt og
einnig á þau sennilegu rök,
hvernig breytingarnar ‘geti ver-
ið tilkomnar? Eg hefi reynt að
skrifa um þessi mál hlutdrægnis-
laust og styðjast við^það, sem eg
hefi fundið áreiðanlegast og bezt
þar að lútandi. Býst eg við, að
alt sanngjarnt fólk sjái það
glögt, ef það gefur því gætur.
Stundum er sagt, þegar ein-
hver fer að berjast fáfengilegri
baráttu, að hann “berjist við
skugganna sinn.” Það virðist mér
G. Á. hafa gjört í þetta sinn.
Hann hefir verið að berjast við
skuggann sinn. Aðfinningar hans
nær eingöngu sprottnar af mis-
skilningi, eða af ónákvæmni og
1 aðgæzluleysi, sem er lítt skiljan-
legt. Sé það nú lífsnauðsyn fyrir
G. Á. að hafa þá skemtun, að
“berjast við skuggann sinn,” þá
ei vonandi, að hann yerði aldrei
fyrir því slysi, sem henti íslenzka
fræðimanninn í fornöld, að tapa
skugganum sínum. En að hann
gæti líkst Sæmundi hinum fróða
Mæður, sem reynslu hafa,
segja, að Zam-Buk sé bezta með-
alið til að græða sár og hör-
undskvilla barna, vegna þess:
Að það er jurtameðal—engir
eitraðir litir.
Að það varnar sóttkveikju—
kemur í veg fyrir, að ígerð
hlaupi í skurði eða brunasár.
Að það er græðandi—dregujr
úr alla verki.
Græðir ávalt.
Jafn gott fyrir fullorðna.
Selt í öllum búðum og hjá
lyfsölum.
í því að vera ábyggilegur fræði-
naður, það held eg að væri
æskilegt.
Þá verður þó G. Á. að gæta síp
betur en hann hefir nú gjört.
Jóhann Bjarnason.
Fundargerð Sveitar-
stjórnar í Bifröst
Þriðji fundur sveitarráðsins var
haldinn p skrifstofu sveitarinn-
arinnar, í Arborg, dagana 2., 3.
og 4. marz 1927.
Viðstaddir voru: B. I. Sigvalda-
son, oddviti; G. Sigmundson, J.
Eyjolfson, M. Wojchychyn, T.
Ingaldson, S. Finnson, C. Tomas-
son, O. Meier, og F. Hakonson.
Oddviti setti fundinn 2. marz
kl. 8 síðdegis og bað skrifara að
lesa fundargerning frá síðasta
fundi.
Skrifari las fundargerninginn.
Eyjolfson og Wojchychyn lögðu
til, að fundargerningurinn \ væri
'samþyktur, eins og hann var les-
inn, — Samþykt.
í fundarbyrjun tók forseti það
fram, að sveitarráðsmönnum væri
ekki heimilt að framkvæma sjálf-
ir nokkra vegavinnu fyrir sveit-
arfélagið, sem borgað væri fyrir
og enn fremur, að þeim væri ekki
heimilt að nota nokkra peninga,
sveitnni tilheyrandi, til nauð-
synjaverka, sem fyrir kynnu að
koma, nema með skriflegu sam-
þykki oddvita. Eftir þessu bæri
sveitarráðsmönnum að haga sér
framvegis.
Mrs. Paul Barada, viðvíkjandi
innköllun á skatti af S E 18-23-
3 E.
Finnson og Wojchychyn lögðu
til, að engin skattheimt af fyr-
nefndu landi skyldi koma til
greina og að J. Eyjolfson sé falið
að líta eftir fjölskyldunni, ef
hjálp væri nauðsynleg. — Samþ.
Mrs. Stefak, viðvíkjandi inn-
köllun á skatti af S E 28-21-3 E.,
að upphæð $57.49, samkvæmt
samningi við sveitarráðið 1926.
Sigmundson og Wojchychyri
lögðu til, að þessir $57.49 séu
strykaðir út gegn S. E. Yi Sec. 28-
21-3 E. >— Samþykt.
John Máriaz mætti á fundinum
og bað um fátækrastyrk,
Finnson og Meier lögðu til að
veita honum $10.00 nú og skyldu
ástæður hans frekar rannsakað-
ar. — Samþykt. /
Mike Sumka mælrti á fundinum
viðvíkjandi kaupum á N E Yi
Sec 32-21-1 E.
Wojchychyn og Tomasson lögðu
til, að skattsöluskirteini fyrir N.
E. 32-21-1 E. sé selt Mike Sumka
fyrir $200.00 og séu $50.00 borg-
aðir strax og $150.00 1. nóv. 1927
eða fyr með 7 prct. vöxtum, og að
hann borgi skatt af landinu 1927
og sömuleiðis fyrir eignarbréf.—
Samþykt.
John Prezesníuk mætti við
víkjandi greiðslu á skatti af S.E.
34-23-2 E.
Finnson og Ingaldson lögðu til
að gefa eftir $37.00 af skattinum
á þessu landi, ef $100.00 væru
borgaðir nú strax. — Samþykt.
Sam Pasicka mætti á fundinum
viðvíkjandi John Pitniski, sem
hann flutti á Almenna spítalann,
og óskaði að sá kostnaður væri
borgaður.
Eyjolfson^ og Ingaldson lögðu
til að greiða Sam Pasicka $10.00
fyrir að flytja John Pitniski á
spítalann og heim aftur.—Samþ.
Frank Dolinsky mætti sjálfur
fyrir sveitarráðsmönnum og til-
kynti þeim, að hér eftir væri
hann ekki fær um að borga skatt
vegna þess hve gamall hann væri^
orðinn. Hann óskaði að fá leyfi
sveitarráðsins til að mega vera á
landinu ogj vera undanþeginn
skattgreiðslu.
Wojchychyn og Hakonson lögðu
til að leyfa Dalinsky að vera á
landinu S. W. y4 Sec. 24-21-2 E.
fyrst um sinn. — iSamþykt.
Mike Slavinsky fór fram á upp-
gjöf á nokkrum hluta af skatti á
N. W. V4 Sec. 20-21-1 E. Skatt-
ur fallinn í gjalddaga $170.00.
Hann bauð að 'greiða $100 sem
fulla borgun.
Eyjolfson og Sigmundson lögðu
til að ekkert væri gefið eftir af
skatti af þessu landi. Breyting-
artillaga frá Wojchychyn og Mei-
er, að Slavinski greiði $110 nú,
.$25 1. pkt. og afgangurinn gefinn
eftir. — Breytingartillagan samþ.
Eyjolfson 0g Wojchychyn lögðu
til, að hér eftir sé öllum málum
viðvíkjandi uppgjöf skatta á lönd-
um, sem eignarbréf eru fyrir, sé
vísað til Municipal Commission-
er. — Samþykt.
Nicola Midynski fór fram á
uppgjöf á skatti á landi S. W. 4-
22-2 E. Sveitarráðinu fanst ekki
ástæða til að gera nokkuð í þvi
efni.
^ohn Ratkowsky fór fram á
uppgjöf á skatti á N. E. 19-21-1
E. Sveitarráðið sá sér ekki fært
að veita þetta.
Mrs. (Tarachuk að S. W. 34^21-
1 E. bað um fátækrastyrk.
Sigmundson og Ingaldson lögðu
til að Wojchychyn sé falið að
kynna sér ástæður þessarar konu
og gefa skýrslu um þær á næsta
fundi. — Samþykt.
Otto Meier bað um fátækra-
styrk fyrir John Pritniski,
Sigmundson og Finnson lögðu
til að fela M. Meiej; að líta eftir
þörfum þessa manns og gera það
sem nauðsynlega þyrfti til að
hjálpa honum.—Samþýkt.
Oddviti skýrði frá, að sveitin
hefði fengið tilkynningu um
hækkun á niðurjöfnunarskránni,
er næmi $439,000. Hefði hann
falið skrifara að mótmæla þess-
ari hækkun, og einnig hefði hann
og skrifari farið til Winnipeg til
að mæta á fundi skattanefndar-
innar og vonaði hann að nefndin
mundi taka sanngjarnt tillit til
kröfu sveitarinnar.
Andrew Melnychuk, S. W. 34-21-
2 E. bauðst til að borga tveggja
ára skatfr á því landi, ef sveitar-
ráðið vildi ónýta skattsölu 1925—
Sveitarráðið vildi ekki samþykkja
það.
Thordur Anderson bauðst til að
borga $100 skatt á N.E. 2-23-3 E,
fyrir lok marzmánaðar, ef beiðni
um eignarbréf fyrir þessu landi
frá sveitarráðinu væri afturköll-
uð. Eyjolfson stakk upp á því,
að sveitin fengi eignarbréf fyrir
þessu landi og seldi Mr. Ander-
son þegar hann væri fær um að
borga fyrir það. Mr. Anderson
var ánægður með það.
Eyjolfson og Sigmundson lögðu
til, að fela Jóni Sigurðssyni, að
Vidir, Man., að yfirskoða og koma
jöfnuði á virðingu fasteigna í
Bifrastarsveit fyrir árið 1927,
fyrir $5.00 borgun á dag.—Samþ.
Næst kom fyrir útnefning em-
bættismanna. \
Eyjolfson og Sigmundson lögðu
til, að þessir menn séu skipaðir
vegabótastjórar fyrir árið 1927,
eða þar til að aðrir menn séu
skipaðir í þeirra stað:'
Deild 1: Laugi Helgason, Hnausa;
V. Sigvaldason, Geysir; S. B. Ein-
arson, Hinausa; S. Thordarson,
Hnausa; Jón S. Nordal, Geysir;
Jónas ólafson, Árnes; Frank Rud-
nicki, Jarslow; H. Godlhart,
Hnausa; S. E. Jóhannson, Bif-
röst.
Deild 2: J. Sigurdson, Riverton’.
G. O. Gíslason, Geysir; Sig. Thor-
arinson, Riverton; Mag. Ander-
son, Geysir; Joe Nordal, Geysir.
Deild 3: John Makuzy, Skylake;
Mike Kuz, Silver; D. Zar, Sky-
lake; Wasyl Stunyk, Silver.
Deild 4: B. S. Guðmundson, Ar-
borg; H. Nowaselski, Arborg; Sig
Pálson, Framnes; F. Fulta, Ar-
borg; Páll Th. Stevenson, Ar-
borg; M. Marko, Humrlik; E. L.
Johnson,
Deild 5: Wasyl Danezchuk, Mor-
weena; D. Chyzy, Vidir; Valdi
Sigvaldason, Vidir; O. Kozub,
Vidir.
Deild 6: Páll Jakobson, Hecla;
Jens Johnson, Hecla.
Deild 7: Kost Lysowick, Okno;
Dori Austman, Sylvan; Carl Wei-
keý Rosenburg; 'Tonas Hykowy,
Okno.
Deild 8: S. Pálson, Howardville;
O. Vigfússon, Hcíwardville; J.
Fetrazchuk, Riverton; Fred Paka,
Riverton. — Samþykt.
Wojchychyn og Meier lögðu til,
að þessir menn séu skipaðir
“poundkeepers” fyrir árið 1927,
eða þar til aðrir menn eru skip-
aðir í þeirra stað:
Deild 1: Sveinn Eyjólfsson Bif-
röst; Joe M. Einarsson, Hnausa;
Eli Einarson, Arnes; J. Nordal,
Geysir; John Saj, Bifröst;.
Deild 2: J. M. Jónasson, Geysir;
Magn. Eyjolfson, Riverton; Jul-
ius Sigurdson, Riverton; Sigfús
Björnson, Riverton; B. Hjörleifs-
son, Riverton; Sam. Zagazewski,
Ledwyn; B. Halldorson, Rivert.
Deild 3: John Sysak, Skylake;
A. Melnychuk, Silver; Mike
Traze, Silver.
Deild 4: Lulli Holm, Arborg;
Swain Swainson, Arborg; E. L.
Johnson, Arborg; P. S. Guðmund-
son, Arborg; Martin Luty, Ar-
borg.
Deild 5: Onafry Smolak, Mor-
weene; J. Jóhannesson, Vidir; W.
Kozub, Vidir; A. McDowell, Ar-
borg.
Deild 6: B. W. Benson, Hecla;
G. Tomasson, Hecla.
Deild 7: Alfred Miller, Rosen-
burg; R. Lysowivk, Vidir; B.
Crozwones, Sylvan; Jónas Jónas-
son, Vidir; M. Gulay, Sylvan;
Nick Fedora, Akro.
Deild 8: C. A. Hakonson How-
ardville, John Pawluk, Riverton;
Emil Petrachuk, Thornecliffe. ■—
Samþykt.
Eyjolfson og Finnson lögðu til
að þessir menn séu skipaðir lög-
reglumenn fyrir árið 1927, eða
þar til að aðrir menn eru skipað
ir þeirra stað:
E. G. Martin, Hnausa; Helgi
Stefánsson, Riverton; Joe T. Jon
asson, Riverton; J. Sigvaldason,
Vidir; Joseph Aberek, Okno; Mike
Traze, Arborg; Mike Chernowski,
Riverton; J. G. Spring, Howard-
ville; Nick Wasylyzyn, Skylake.
— Samþykt.
Finnson og Ingaldson lögðu til
að þessir menn séu skipaðir eld-
gæzlumenn fyrir árið 1927, eða
þar til að aðrir menn séu skip-
aðir í þeirja stað:
F. Finnbogason, Hnausa; A.
Milnychuk, Silver; A. Tarazchuk,
Skylake; A. Magnusson, Vidir;
Kr. Kristinson, Geysir; J. J. Doll,
Hecla; Mike Allan, Okno; S.
Brandson, Arborg; Joe Petra-
chuk, Riverton; Fi;ed. Palka,
Shorncliffe; Gestur Palson, Hecla
—Samþykt.
Hakonson—Lampel kosningin:
Stefna var tilkyt sveitarskrif-
ara að mæta í Winnipeg fyrir
hönd sveitarinnar, til að gefa á-
stæðu fyrir því, að sveitinni bæri
ekki að borga kostnað við kosn-
inguna.
Eyjolfson og Tomasson lögðu
til, að lögmanni sé falið að verja
þetta mál fyrir sveitarinnar hönd.
—Samþykt. — (Með tillögunni
greiddu atkvæði: Eyjolfson, Tom-
asson, Ingaldson, Finnson og Sig-
mundson; móti: Woychychyn og
Meier.)
Bænarskrá um almenna keyrslu-
braut í Mikley var lesin. — Mál-
inu frestað þar til síðar.
Bænarskrá um framlenging
Framnes brautarinnar var frest-
að til næsta fundar.
Bréf var leáið frá Louis Bujars
frá Sylvan, Man., þar sem hann
biður um fátækrastyrk handa
móður sinni.
Eyjolfson og Wojchychyn lögðu
til, að fela þetta mál O. Meier til
rannsóknar og afgreiðslu. — Sam-
þvkt.
Ingaldson og Finnson lögðu til
að framlenging Humrlik vegar-
ins sé frestað. — Samþykt.
Stadnek — S. E. 26-22-2 E.
Fyrverandi Sveitarféhirðir, Ing-
aldson, áagði sveitarráðinu að
John Stadnek ætti inni hjá sveit-
inni hér um bil $35.00 fyrir vega-
vinnu. Vildi Mr. Stadnek að þess-
ir peningar gengju upp í skatt,
er honum bæri að greiða. Sagði
hann, að þessi tala væri tekin eft-
ir minni, þar sem vegareikning-
arnir væru nú fyrir réttinum til
sýnis. SveiUrráðið ákvað, að
látið þetta bíða, þangað til reikn-
ingarnir kæmu aftur.
Mr. Ingaldson sagði, að þorpið
Arborg ætti $42.93 hjá sveitinni,
sem hefðu verið borgðir fram yf-
ir það sem rétt var.
Finnson og Eyjolfson lögðu til
að sveitin endurborgi þorpinu
þessa upphæð. — Samþykt.
Mr. I. Ingaldson hreyfði þvi
máli, að lána samkomuhús sveit-
arinnar fyrir fundi.
Eyjalfson og Wojchychyn lögðu
til, að lána húsið fyrir smáfundi
fyrir $1.00; en séu fundarmenn
10 eða þar yfir þá fyrir $2.00
hvern fund. — Samþykt.
Málil um keyrslubraut með fram
íslendingafljóti, um 24 og 25-23-
2 E. lagt yfir til óákveðins tíma.
Bréf frá fyrverandi sveitarráðs-
manni N. Pastukzenko, þar sem
hann krefst $16.00 skaðabóta.
Eyjolfson og Wojchychyn lögðu
til að borga honum $16.00—Sam-
þykt.
Tilboð var lesið frá J. Sig^
valdasyni viðvíkjandj vegastæði
um Sec. 8-23-4 E. Býður að gefa
sveitinni 3 ekrur af landi og
selja hitt fyrir $50.00 með því
skilyrði að landið sé varið með
girðingum.
Eyjolfson og Sigmundson lögðu
til, að fela lögmanni að gera
samninga við Mr. Sigvaldason
þessu viðvíkjandi. — Samþykt.
Bréf frá Laufás skólahéraði,
þar sem beðið er um eignarbréf
fyrir hálfri ekru, þar sem skól-
inn stendur.
Eyjolfson og Ingaldson lögðu
til að fresta þessu máli til frek-
ari athugunarý — Samþykt.
Að mölbera brautina sunnnan
við Hnausa—
Oddviti gat þess, að O. John-
son hefði samið um að mölbera
1V4 mílu fyrir 65c. hvert yard af
1% mílu fyrir 65c hvért yard af
möl. En sá hluti brautarinnar
væri 1% míla. Hér væri því %
míla fram yfir það sem hann
hefði samið um, en Q. Johnson
væri viljugur að mölbera þann
hluta fyrir 70c.. yardið. S. Kar-
dal hefði tekið að sér 1 mílu
fyrir 58c. yardið og J. H. Johann-
esson aðra mílu fjTÍr 70 á yardið.
En hann gæti ekki staðið við þá
samninga vegna þess, að hann
fengi ekki möl hjá Martin.
Sigmundson og Ingaldson lögðu
til, að Jóhannesson og Kardal sé
bætt upp 5c ó hvert yard af möl.
— Samþykt.
Mr. Sigmundson hreyfði því,
að nauðsynlegt væri að endur-
bæta Kjarna brúna.
Signiundson og Tomasson lögðu
til, að Mr. Ingaldson sé falið að
gera svo við brúna, að hún sé
fær fyrst um sinn.—Samþykt.
Fundi frestað til kl. 7.30 síð-
degis 4. marz 1927.
Forseti hreyfði þrí að gefa 20
prct. afslátt af skatti fyrir árið
1926, ef hann væri borgaður fyrir
vissan tíma. Sveitarráðinu leizt
ekki vel é það.
Innköllunarmaður, G. O. Ein-
Þessum Manni Var Aftur Farið,
Óstyrkur og Taugaveiklaður.
Mr. G. W. Alderson, Bazine,
Kans., var mjög aftur farið, þeg-
ar hann var 75 ára, veikur og
taugaslappur, og hafði veik nýru
og lifur. Hann segir: “Eg hefi
reynt margskonar meðul, en Nuga-
Tone hefir reynst mér bezt.”
Nuga-Tone læknaði lasleika hans,
veitti honum nýja krafta og þrek
og gerði hann feitari. Þessi mað-
ur er bara einn þeirra mörgu
þúsunda, sem góðs hafa notið af
þessu meðali.
Nuga-Tone er einnig ágætt við
magaveiki, lystarleysi, taugabil-
un, máttleysi og öllum slíkum las-
leika. Því fylgir ábyrgð, og ef
meðalið dugar ekki, þurfið þér
ekkert að borjja. Fáðu þér flösku
og reyndu sjálfur ágæti þess.
Forðastu eftirlíkingar. Heimt-
aðu Nuga-Tone.
arson las upp skýrslu um starf
sitt seinnipartinn í janúar og
febrúar.
Eyjolfson og Sigmundson lögðu
til, að keypt séu 8 eintök af “Mun-
icipal and Assesment Aet” til af-
nota fyrir sveitarráðsmenn. —
Samþykt.
Eyjolfson og Sigmundson lögðu
til að tími G. O. Einarsonar, sem
innköllunarmanns, sé framlengd-
ur til 1. maí 1927.
Breytingartillaga frá Finnson og
Ingaldson, að G. O. Einarson sé
ráðinn til 15. apríl 1927 með sömu
launum. — Breytingartillagan
samþykt.
Hjálmar Jóhannesson bað um
uppgjöf á skatti.
Sigmundson og Eyjolfson lögðu
til, að ef Jóhannesson borgaði nú
$60, af $80 sem hann skuldaði, þá
skyldi afgangur gefinn eftir
vegna tjóns af eldi, sem hann
hefði orðið fyrir. — Samþykt.
Sigmundson og Eyjolfson lögðu
til, að pftirfylgjandi útborganlr
séu samþyktar: 1— Spítalagjöld.
$685.25. Til verkfræðings, $214.50.
í’erðakqstnaður, $24.30. Arborg
brunnur, $1.50. Kostnaður, $11.75
Fátækrastyrkur, $46.10. Skaða-
bætur, $16.00. Deild 8, $13.00.
Kosntður $1.#0. Excise Stamps,
$3.00. Skrifs. kostnaður, $22.75.
Frímerki og símakostn., $31.50.
—Samþykt.
Eyjolfson og Ingaldson lögðu
til, að slíta fundi og að næsti
fundur verði haldinn í Arborg
25. apríl 1927. >— Samþykt.
Bernarsamþyktin og íslenskir rit-
höfundar.— Forsætisráðherra hef-
ir borist tilboð eða tilmæli frá
þjóðabandalaginu um að Island
gangi undir ákvæði Bernarsam-
þyktarinnar (um rithöfundarétt).—
MeÖ samþykt þessari er trygSur
réttur rithöfunda þeirra þjóða, er
samþyktin nær yfir, gegn heimild-
arlausri notkun á verkum þeirra,
svo sem með þýðingum eSa öðru
sliku. Hefir áSur lpomið til orða, aS
ísland gengi in í samþyktina, en
ekki orðið úr. — Forsætisráðhcrra
hefir nú skipaS þriggja manna
nefnd, til |)ess að gera tillögur um
máliS, og eru nefndarmennirnir
þessir: Þorsteinn Gíslason, ritstjóri,
dr. Guðm. Finnbogason, landsbóka-
vörður. og IndriSi Waage, formað-
ur Leikfélags Reykjavíkur.
—Vísir.
HOLT. RENFREW
&Com f í r y
Limited
Portage and Carlton
WINNIPEG
Óvanalegt verð á fallegum
nýjum klæðnaði fyrir vorið
Nú eru aðeins fáir dagar til páskanna. Veljið yður fatn-
aS nú strax. Komist hjá þrönginni á síSustu stundu.
Aldrei fyr höfum vér haft á boðstólum jafn góSan fatn-
að hvað snertir efni og sniö. Allar tegundir, sem út-
gengilegastar eru.
Fyrfr Kvenmenn og Ungar Stúlkur
Yfirhafnir frá -
Fatnaðir frá -
Kjólar frá -
Sportswear frá -
Hattar frá -
- $16.50
- $16.50
- $22.50
- $16.50
- $ 4.95
Glófar, Sokkar og fleira með álíka lágu verði.
Týskan heimtar
Fallega Fur Scarfs
Byrgðir vórar af Fur Scarfs úr tóu- eða oturskinnum
hafá aldrei verið eins miklar. Allar tegundir af lituðu fur.
Alt verð mjög sanngjarnt. Komið i búSina eSa skrifiS
oss eftir upplýsingum.
Kaupið Fur Yfirhöfn yðar nú
fyrir komandi ár.
Óunnið fur er mikið að hækka í veði og furkápur verSa
töluvert dýrari næsta haust. Kaupið furkápur af oss
Budget Buying Plan, sem er 10% út j hönd, og afgang-
urinn eins og yður er þægilegast. Kápurnar geymdar í
öruggum stað, þar til þér þurfiö þeirra, yöur aö kostn-
aðarlausu. Ef þér eigiö heima annarsstaöar, þá skrifiö
oss viðvíkjandi verölagi og því hvernig vér gerum við-
skifti við utanbæjar fólk.
VARNINGUR KARLMANNA
Vér seljum alt sem karlmenn þarfnast nema skófatnað
" FATNAÐl, YFIRHAFNIR, HATTA OG FURNISHINGS
mcð sanngjörnu vcrði.
Spyrjið eftir Tíu Viku Borgunarskilirálum á klæðDaði og yfir-
höfnum, 10 prct. út í hönd, og afganginn í 10 vikulegum af-
borgunum.
Aðal Umboðsmenn fyrfrr
SOCIETY BRAND CLOTHES.