Lögberg - 05.05.1927, Page 1
ÚQ b cr i.
40. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 5. MAÍ 1927
II
NÚMER 18
Canada.
Hon. R. W. Craig, K.C., sem
verið hefir dómsmálará'Öherra í
Manitoba siðan Bracken stjórnin
komst tii valda, hefir nú sagt af
sér því embætti. Kom þaÖ ekki á
óvart, því þaS hafÖi áöur heyrst
aS hann væri ráSinn í því að hætta
aÖ gefa sig við stjórnmálum og
sækja ekki um kosningu við þær
kosningar, sem nú eru fyrir dyr-
um. Eftirmaður hans er William
James Major. Lagði hann af em-
bætjiseiðinn næsta dag. Mr. Major
er Englendingur, en kom hingað
vestur tvítugur að aldri. Tók em-
bættispróf í lögum 1913, í Winni-
peg og hefir stundað lögfræðis-
störf síðan. Við stjómmálum hef-
ir hann ekki gefið sig sérstaklega.
Mr. Major sækir um þingmensku
í Winnipeg að sagt er.
* * *
f júlimánuði í sumar er gert ráð
fyrir að eitt af skipum stjórnar-
innar, Stanley, verði sent frá Hali-
fax norður til Hudson Bay með
flugvélar og nálega fimtiu menn og
mikið af vistum, byggingaefni og
allskonar útbúnaði. Eiga menn
þessir að vera þar norður frá í
eina fimtán mánuði og athuga alt
sem við kemur siglingum um fló-
ann og sérstaklega innsiglingunni.
Þeir eiga að vera þar á flugi dag-
lega, hverju sem viðrar, allan þenn-
an tíma og kynna sér sem vandleg-
ast veðurlag ísrek og srtrauma og
hvað annað sem siglingum á þess-
ari leið getur viðkomið. Þegar
norður kemur verður þessu liði
skift í þrent. Hefir einn flokkur-
inn aðsetur sitt í Nottingham-eyj-
unni, annar í Port Burwell, en aðal
stöðvarnar verða á Baffin eyjunni.
Allir þessir staðir eru á því svæði
þar sem siglt er inn í sjálfan Hud-
son flóann. Öflug loftskeytatæki
verða einnig flutt þarna norður og
er gert ráð fyrir að leiðtogarnir
sendi skeyti til Ottawa svo að
segja daglega.
•* ■* *
Charlés A. Dunning, járnbraut-
arráðhera, kom til Winnipeg í vik-
unni sem leið og var þá á leið til
Regina og sagðist hann mundi
koma viða við í Vestur-Canada í
þessari ferð og þar á meðal fara
eins langt norður eftir Hudson flóa
brautinni, eins og járnbrautateinar
væru lagðir. Mr. Dunning sagði
blaðamönnum í Winnipeg, sem
fundu hann að íháli, að hann hefði
ekkert að segja þeim í þetta sinn
annað en það að hann væri á ferð
hér vestur í embættiserindum.
* * *
Tíðin hefir verið mjög úrkomu-
söm nú að undanförnu, víðast
hvar í Vestur-Canada. í byrjun
þessarar viku féll all-mikill snjór
víða í Alberta og á sumum stöðum
í Saskatchewan. í Manitoba hafa
verið rigningar miklar og kalsa-
veður. Vegir eru mjög illir yfir-
ferðar og bændur hafa enn mjög
lítið getað unnið á ökrum sínum
og er sáning mjög skamt á veg
komin og víða hefir alls ekki ver-
ið hægt að byrja á sáningu eða
vorvinnu' |á ökrum vegna bleyt-
unnar. Hins vegar er nú orðið
svo áliðið, að nauðsynlegt er að
koma hv,eitinu í jörðina sem fyrst
úr þessu og er því meir en lítið ó-
álitlegt ef ekki skiftir nú um tíð-
arfar innan skamms.
* * *
Árið 1926 var eytt til keyrsluvega
í Canada fjárupphæð, sem nemur
í öllum fylkjunum $45,563,000.
Þar af til nýrra vega $29.595,000,
en til viðhalds keyrsluvegum, áður
bygðum. $15.968.00 Alls voru
bygðar 5,788 mílur af nýjum veg-
um í Canada árið 1926, en pening-
ar voru notaðir til viÖhalds á meir
en fjörutiu þúsund mílum vegar.
Manitoba fylki varði alls $1,100,-
000 til vegabóta og þar af $950,-
000 til að byggja nýjar brautir,
sem voru all 665 mílur. Saskatch-
ewan fylki gerði 489 mílur af nýj-
um brautum og Alberta fylki 652
milur. Alt stefnir nú aö því að gera
vegina þannig úr garði, að hægt s:é
að komast eftir þeim í bílum,
hverju sem viðrar. Að öðrum kosti
ná vegirnir ekki tilgangi sínum.
* * *
Dougla^ Lorne Mc Gibbon lést
að heimil sínu í Montreal hinn 20.
f. m., 57 ára að aldri. Iðjuhöldur
mikill og fjármálamaður.
Bandaríkin.
Auðmaður í New York, John
Markle, er að gefa afar mikið fé
til sjóðsstofnunar í líkingu við
hina miklu sjóði, sem kendir eru
við Rockefeller og Cornegie og á
vöxtunum að vera varið til að
styrkja visindalega starfsemi. Sjóð-
urinn á að bera nafnið “John and
Mary K. Markle Eoundation”, og
verður byrjaður með $3,000,000.
* * *
Það dugar ekki fyrir fólkið í
Portland, Oregon, að vera úti á
götum borgarinnar á nóttunni, eða
frá miðnætti og þangaÖ til bjart
er orðið á morgnana. Þeir sem það
gera mega búast við að verða tekn-
ir fastir og setir i tukthúsið, sam-
kvæmt síðustu fyrirmælum borgar-
stjórnarinnar þar. Það sem komið
hefir þeim, sem þar ráða fyrir til
að gera þessar ráðstafanir, er það
að þar í borginni hafa nýlega rán
verið framin hvert eftir annað, og
náðu ræningjamir -48,000 á
skömmum tima, og voru ránin öll
framin að næturlagi.
Víðast, eða kannske alstaðar,
mun það vera lögum gagnstætt,
að þeir keyri bíla, sem hægt sé
um að segja, að þeir séu undir á-
hrifum víns. En óvíða mun vera
eins hart tekið á þessu, eins og í
rikinu Indiana. Þar hafa nýlega
verið samþykt lög, sem sem leggja
$100 til $500 sekt við fyrsta broti
eða þrjátíu daga til sex mánaða
fangelsi. Brjóti menn í annað
sinn, mega þeir búast við að lenda
í hegningarhúsinu í eitt ár að
minsta kosti og jafnvel í fimm ár.
Þetta þykir mörgum nokkuð hart
að gengið, en löggjafarnir þar
suður frá segja, að lögin séu
nauðsynleg, því drukkinn maður,
sem keyrir bíl, sé engu síður
hættulegur heldur en vitskertur
maður, sem hefir hlaðna byssu.
• • •
Flugmönnunum Bert Acosta og
Clarence V. Chamberlain hefir
hepnast að vera lengur uppi í
loftinu í einu heldur en nokkrir
aðrir hafa enn getað, eða 51 kl.-
stund, 11 mínútur og 20 sekúnd-
ur. Þreyttu þeir flugið hér um
bil 6 kl.stundinn lengur heldur en
Drounin og Landry gerðu á
Frakklandi í ágústmánuði 1925.
Vatnsflóð afskapleg hafa að
undanförnu verið, og eru enn, á
afar stóru svæði meðfram Miss-
issippi fljótinu. Hefir ákaflegur
vöxtur hlaupið í fljótið og marg-
ar aðrar stórár, sem í það renna.
Hefir fljótið víða flætt yfir
bakka sína og er talið að vatns-
flóðið nái yfir einar 11,000 fer-
mílur af landi og hefir það gert
ákaflega mikið tjón á ökrum,
byggingum og margskonar mann-
virkjum, sérstaklega á bændabýl-
um. Fréttirnar segja, að um þrjú
hundruð manna hafi farist í þess-
um vatnsflóðum og 150,000 orðið
heimilislausir, nú í bili að minsta
kosti. Tjón meira og minna hef-
ir flóðið unnið alls í sjö ríkjum.
Bretland.
Miss Megan Lloyd George, er
vanalega með föður sínum þegar
hann sækir stjórnmálafundi og
heldur þar ræður. Stundum segir
hún fáein orð á slíkum fundum, en
varla verður sagt að hún hafi hald-
ið stjórnmálaræðu fyr en nú í vik-
unni, sem leið. talaði hún þá á
stjórnmálafundi í London og var
aðal efni ræðunnar að segja kon-
unum að bæði ihaldsmenn og
verkamenn væru svo önnum kafn-
ir viÖ sin eigin flokksmál, að þeir
hefðu engan tíma til að sinna þörf-
um húsmæðranna, og því væri
lang best fyrir þær að hallast að
frjálslynda flokknum. Ekki segist
ungfrúin hafa í huga að sækja um
þingmensku nú fýrst um sinn.
Breskum blöðum verður mjög
skrafdrjúgt um þá' breytingu á
kosningalögum, sem stjórnin er að
koma á, að konur fái kosningarrétt
þegar þær eru 21 árs, í stað 30 ára,
eins og nú er. Sum stórblöðin, eins
og t. d. “Daily Mail” berjast ákaft
Mr. og Mrs. Kristján Albert.
giiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiBiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiimmiiii
Til Mr. og Mrs. Kristján Albert
í gullbrúðkaupi þeirra.
Þið bygðuð í vortrúnni bústað þann,
er bylurinn aldrei kaldan fann,
því yl-hjörtun daglangt dreymdi
drauma, sem enginn gleymdi.
Og því er svo heiðbjart og hlýtt í kveld,
að hjörtun geyma þann sama eld,
er ástin í æsku glæddi,
þótt umhverfis stormur næddi.
Að hafa jafn sólauðugt sjónarmið
og sumar í hjörtunum, líkt 0g þið,
er samlífsins sigurmerki, —
sælan í orði og verki.
Að finna’ ykkur ennþá jafn ung í liug,
með úitsýni stærra og hærra flug,
er vinunum vordags gróði,
vermdur í hjarta-ljóði.
á móti þessari breytingu. Daily
Mail, segir meðal annars, að ungu
stúlkunum sé ómögulega treystandi
til að greiða atkvæði skynsamlega,
og svo verði þær !sálfsagt alt of
“rauðar”. Öðrum blöðum þykir
þessar ástæður gegn lagabreyting-
unni æði léttvægar og segjast ekki
vita betur en að stúlkur séu alveg
eins skynsamar eins og piltarnir,
og segja að þeim sé engu síður
treystandi til aÖ fara vel með sinn
kosningarétt. En eitt er víst, að
þar sem kvenfólkið er í miklurn
meirihluta á Bretlandi, þá getur
það ráðið þar kosningaúrslitum,
þegar þessi fyrirhugaða lagabreyt-
ing er komin í gildi.
* * *
Á fundi óháðra verkamanna, sem
haldinn var í London hinn 18.
apríl, skuldbundu félagsmenn sig
til þess, að taka engan þátt í her-
þjónustu, ef til stríðs kæmi milli
Breta 0g Kínverja, þar á meðal
að neita því þverlega, að fram-
leiða hergögn eða flytja þau.
* * *
Fyrir brezka þinginu liggur
lagafrumvarp þess efnis, að það
takmarkar rétt manna til að
hefja verkföll. Nái frumvarpið
fram að gdnga, verða ólögleg öll
verkföþ, sem hafin eru í þeim til-
gangi hð neyða stjórnina til að
fallast á kröfur verkamanna, eða
sem á einhvern hátt eru hættuleg
þjóðfélaginu að áliti stjórnarinn-
ar. Frumvarpið veitir vernd
stjórnarinnar öllum þeim, sem
neita að taka þátt í ólöglegum
verkföllum. Er þetta lagafrum-
varp til orðið út af hinu mikla
almenna verkfalli, sem átti sér
stað á Bretlandi fyrir ári síðan.
Verkamannafélögin berjast ákaf-
lega gegn þessari lagabreytingu
og hafði það komið til orða að
hefja alment verkfall hinn 1. þ.
m. Af því verður þó ekkert. —
Hinn 29. apr. héldu verkamenn
þing mikið til að ræða þetta mál
0g voru á því þingi mættir full-
trúar verkamannafélaga, er telja
um fjórar miljónir manna. Ekki
náði sú hugmynd þar fram að
ganga, að hefja verkfall og var
mikill meiri hluti fulltrúanna
henni mótfallinn. Börðust þó
nokkrir hinna ákafari verka-
mannaleiðtoga af öllu afli fyrir
því, að verkfall væri hafið.
Baráttan gegn frumvarpi þessu
er ekki þar með lögð niður af
hálfu verkamanna, en hún verður
háð að mestu innan þings, en ekki
utan, enda eru verkamenn all-
f jölmennir á þingi og geta vel lát-
ið þar mikið til sín taka. Segja
fréttir frá London, að ekkert mál
hafi komið fyrir brezka þingið,
sem ákafari mótspyrnu hafi mætt
heldur en þetta, að undanteknu
heimastjórnarmáHnu írska, á
sinni tíð.
* * *
Beatty jarl leggur niður em-
bætti sitt hinn 31. júlí næstkom-
andi, sem æðsti yfirmaður brezka
flotans. Hefir hann gegnt því
embætti síðan 1919. Hann er nú
hálf sextugur að aldri, en var að
eins þrettán ára, þegar hann
fyrst fór að vinna á brezkum her-
skipum. Hlaut hann all-mikla
frægð og viðurkenningu í stríð-
inu og sérstaklega fyrir framkomu
sína 1 sjóorustunni miklu við
Jótland. Eftirmaður hans verð-
ur Sir Charles Madden.
Ilvaðanœfa.
Hinn nýi stjórnarformaður í
Japan, barón Tanaka, hefir látið
blöðin flytja þá skoðun sína, að
hann telji afskifti kommúnist-
anna á Rússlandi af málum Kín-
verja mjög hættuleg og sízt til
þess fallin, að friður geti komist
á í Kína, og telur hann sennilegt
að þau geti valdið friðslitum víð-
ar í Austurálfunni, en það séu
mál, sem Japanar geti ekki látið
sig litlu skifta, hvort friður sé í
nágrannalöndunum, eða hvort þar
logi alt í ófriði. Segir Tanaka, að
hann vonist til, að sínir “vinsam-
legu nágrannar”, Rússarnir. muni
vel skilja hvað hann eigi við með
því 1 að láta þennan boðskap frá
sér fara.
\ * * *
Þýzk stúlka, sem nefnir sig
Ethel Chiles, en heitir réttu nafni
Kate Gussfeldt, hefir verið tekin
föst í London á Englandi og sök-
uð um að hafa reynt að fá ferða-
skírteini undir fölsku yfirskini.
Yar hún dæmd í tveggja mánaða
fangelsi og verður svo flutt til
Þýzkalands. Lögreglan á Eng-
landi segir að hún sé njósnari.
Hefir stúlka þessi verið í ýmsum
löndum síðan 1925 og þar á með-
al í Canada.
ÁVARP,
flutt af Mrs. Haraldur 01s*n.
Heiðruðu, kæru gullbrúðhjón,
og gestir!
Eg hefi verið beðin að tala
nokkur orð til Mrs. Albért. Og
það hefði verið mér sönn ánægja,
ef eg hefði haft hæfileika til að
gjöra það á þann hátt, sem sæmi-
legt væri við svo hátíðlegt tæki-
færi.
Mrs. Albert hefir komist upp á
hæsta tindinn, eg ætla að kalla
það “Sigurhæðir”. Það eru mjög
fáar konur, sem eiga því láni að
fagna, að búa með manni sínum í
ástúðlegu hjónabandi í 50 ár.
Það er langur tími, og það er svo
ótölulega margt, sem hefir skeð
í heiminum á þessu tímabili. Þó
við að eins bindum okkur við okk-
ar eigin þjóð, þá er það mikil
breyting, sem hefir átt sér stað,
bæði heima á gamla landinu og
hér hjá þjóðarbrotinu vestan hafs.
En eg ætla ekki að fara út í þá
sálma, það hefir svo oft verið
talað um framfarirnar og breyt-
ingarnar frá frumbyggjaralífinu
og landanum hossað fyrir dugn-
aðinn.
Það er eitt, sem ekki hefir
breyzt á þessum 50 árum: Það er
trygðin hennar 'Mrs. Albert til
manns. síns. Eg er viss um, að
hún Mrs. Albert yrði önnur Berg-
þóra, að því leyti, að hún gengi
viljug undir feldinn með manni
sínum, ef til þess kæmi.
Mrs. Albert hefir ýms sér-
kenni fornkvennanna íslezku, t.d.
gestrisnina, hjálpsemina og dugn-
aðinn, þegar hún vill koma ein-
hverju í verk. Eg er viss um, að
flest af ykkur hafa einhvern tíma
0g mörg af ykkur oft verið gest-
ir hjá Mrs. Albert og fundið hve
innilega góð hún var gestum sín-
um. Það eru sumar konur, sem
hafa lag á því, að láta gestum sín-
um líða vel, og Mrs. Albert er ein
af þeim konum. Og svo er hjálp-
semin. Það eru margir, sem vita
um það, að Mrs. Albert hefir far-
ið frá heimili sínu, til þess að
hjálpa, þar sem veikindi og aðrar
bágar kringumstæður áttu sér
stað og rétt núna nýlega var eg
svo greinilega mint á það í sam-
bandi við þetta samkvæmi; það
var kona, sem lét í ljós, að sig
langaði til að vera með að heiðra
þessi hjón. Hún sagði: “Eg er
í skuld við Mrs. Albert; eg er
ekki búin að gleyma því, þegar
hún kom til mín og vakti með mér
yfir veiku barni okkar.” Eg er
viss um, að það eru fleiri, sem
muna svippð atvik frá fyrri tíð-
um. Og svo er dugnaðurinn. Við
kvenfélagskonur, sem höfum unn-
ið með Mrs. Albert, margar af
okkur frá 30—40 ár, getum borið
uiú, að Mrs. Albert hefir ávalt
sýnt dugnað og ósérplægni, þeg-
ar við höíjum verið að vinna fyrir
kvenfélagið. Mrs. Albert var um
langt skeið djákni hjá Fyrsta lút.
söfnuði, og þá þurfti hún oft að
taka á kröftunum til þess að
heimilið ekki liði við það sem
hún vann út á við. En heimili
Mrs. Albert hefir æfinlega ýerið
mesta myndarheimili og hún sýnt
þar bæði dugnað og rausn, og það
er vitnisburður þeirra, sem hafa
átt heimili hjá henni, og þeir eru
margir.
Iþg er ein af þeim fáu, sem hér
eru viðstaddir, sem sáu Mrs. Al-
bert, þegar hún var ung stúlka.
Eg vildi eg gæti dregið upp mynd
af henni, eins og hún leit út þá.
Eg býst við að hú,n hafi verið 16
til 17 ára, þegar eg sá hana. Eg
var þá unglingur, nokkrum árum
yngri. En það sem vakti athygli
mína var, hvað mér fanst hún
falleg; hún hafði mjög fagran yf-
irsvip, var fjörug, síbrosandi og
með mjög mikið gulbjart hár, svo
flétturnar, þegar hún nældi þær
undir húfuna, náðu niður á mitt
bak; og það þótti nú prýði á kon-
um í þá d^ga; og eg skal- segja
ykkur það fyrir satt, að ungu
piltarnir á Húsavík litu upp,
þegar hún Kristjana Kristjáns-
dóttir frá Flatey kom í kaupstað-
arferð þangað.
Eg sagði í byi-jun, að Mrs. Al-
bert hefði komist upp á Sigur-
hæðir. En hvað sér hún frá
þessum sigurhæðum sínum? Þeg-
ar þún horfir til baika, þá sér hún
liðna æfi sína, með öllum þeim
margvíslegu breytingum, sem
mannsæfin geymir í skauti sínu:
sorg og gleði, heilbrigði og van-
heilsu, uppfyltar óskir og vonir,
Mr. Paul Bardal, sá er leiddi söngflokk Fyrstu lút. kirkju til sigurs í
y^ hljómlistarsamk'ep 1 li Manitoba-fylkis ' þ. 29. apríl s. I.
sem hafa brugðist; en eg veit að
hún Mrs. Albert er svo bjartsýn,
að hún sér miklu meira af sól-
skini en skuggum. Það er tvent,
sem mér finst muni standa skýr-
ast fyrir hennar hugskotssjónum
nú á þessum heiðursdegi hennar;
það fyrra eru synirnir hennar,
sem ætíð hafa verið svo góðir við
hana; það eru svo ljúfar endur-
minningar frá þeim tíma, þegar
þeir voru heima hjá henni og
vildu alt gera henni til gleði.
En þó að kringumstæðurnar hafi
valdið því, að hún getur ekki
notið nærveru þeirra nú í seinni
tíð, er það svo óblandin ánægja
fyrir hana að frétta af þeim, og
velgengni þeirra og fjölskyldna
þeirra.
Hið síðara er maðurinn hennar,
sem hefir verið henni skjól og
skjöldur á liðnu æfinni, eða eins
og hún sjálf komst einu sinni að
orði: “Hann hefir borið mig á
höndunum í gegn um lífið”. Svo
hún Mrs. Albert hefir átt miklu
láni að fagna.
En hvað sjáum við, þegar við
horfum með henni Mrs. Albert
inn í framtíðina frá sigurhæð-
unum? Við sjáum undur fagurt
sólsetur, og það er haustkveld,
því akrarnir eru bleikir og laufin
á trjánum búin að fá sitt marg-
lita skraut; sólin sendir gullna
geisla yfir lög og láð, það er
friður og ró yfir öllu, eins og
náttúran sé að hvílast eftir vel
unnið dagsverk. Tvær persónur
leiðast niður hæðina, þau ganga
mjög hægt, eins og þau séu að
treina sér kveldkyrðina, og þau
raula undur blítt fyrir munni
sér:
“Vor er indælt, eg það veit,
þá ástar kveður raustin,
en ekkert fegra’ á fold eg leit,
en fagurt kvöld á haustin. *
Tölum við um trygð 0g ást,
tíma löngu farna,-
unun sanna’ er aldrei brást,
eilífa von guðs barna.”
Mr. Skúli Sigfússon, þingmað-
ur, var útnefúdur í einu hljóði á
fundi á Oak Point, á laugardag-
inn var, til að sækja um þing-
mensku í Sc. George kjördæminu
við næstu fylkiskosningar, af
hálfu frjálslynda flokksins.
9 til 1 og frá 2 til 6 að deginum
og svo a<5 kveldinu frá kl. 7.30 til 10
Þann 27. apríl síðastl. lézt að
heimili sínu í Grand Forks, N.-
Dak., John S. Johnson, hálfátt-
ræður að aldri. Var hann hálf-
bróðir Mr. Stefáns Johnsonar, að
694 Maryland SL hér í borginni.
Hinn framliðni lætur eftir sig
konu og tvær dætur.
Or bœmum.
ólafur Egilssoli frá Langruth,
Man., var staddur í borgiðni
fyrri hluta vikunnar. Sagði hann,
að í sínu nágrenni væri enn ekk-
ert byrjað að vinna á ökrum,
vegna þess að landið væri alt of
blautt til þess að hægt væri að
byrja á sáningu. Mr. Egilsson
kom til að leita sér lækninga. Með
honum var kona hans og dóttir.
Mrs. Arthur Lockerby (áður
Lína Baldwinson), lagði af stað
suður til Oakland, Cal., síðastlið-
ið laugardagskveld, ásamt börn-
um sínum fimm. Var maður
hennar kominn þangað fyrir rúni-
um þremur mánuðum, og hafa
þau ákveðið að setjast að þar
syðra.
Mr. Thór. Lifman, frá Árborg,
Man., leit inn á skrifstofu vora
síðastliðinn þriðjudag og bað
þess getið, að ‘Old Timers Dance’
og myndasýning, sem Arborg Im-
plements og Motors, hefðu á-
formað að halda þann 13. þ. m.,
hefði orðið að fresta sökum ó-
færra vega. Síðar verður aug-
lýst nær skemtisamkoman verður
haldin.
Nýir kosningalistar verða
prentaðir fyrir Winnipeg og aðra
bæi í fylkinu og notaðir við fylk-
iskosningarnar, sem fram fara i
Manitoba áður en langt um líður.
Skrásetning fer fram í Winnipeg
hinn 10., 11. og 12. þ.m. Er afar-
áríðandi að skrásetjast meðah
tími er til, því að öðrum kosti
geta menn ekki greitt atkvæði,
þegar að kosningunum kemur.
— Skrásetningar skrifstofurnar
verða opnar fyrnefnda daga kl.
Samkoman sem Dorkas félagið
hélt í Goodtemplarahúsinu í vik-
unni, sem leið, hin 27. apríl var
mjög vel sótt, og fólkið skemti sér
ágætlega.
Mr. og Mrs. T. M. Johnson frá
Brown, Man. hafa nýlega flutt til
borgarinnar ðg er nú heimilisfang
þeirra að 637 Alverstone St.
Árni J. Árnason frá Church-
bridge. Sask. kom til borgarinnar
á mánudaginr^É|fcr.