Lögberg - 02.06.1927, Síða 1
40 ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 2. JÚNÍ 1927
I!
NÚMER 22
Walter J. Lindal.
Canada.
Magne Killen, hveitikaupmaður
frú Noregi var staddur í Winnipeg
í vikunni, sem leið. SagSi hann a'ð
viðskifti milli Noregs og Canada
hefðu all-mikið aukist síðustu árin
og gætu enn vaflaust orðið miklu
meiri, ef rétt væri með farið. Sér-
staklega sagði Mr. Killen að það
væri hveiti og aðrar korntegundir
og ávextir, sem Norðmenn þyrftu
að kaupa. Sagði hann að áður
hefðu þeir aðallega fengið hveiti
frá Rússlandi, en nú kaupi þeir
mest af þvi’ frá Canada og Banda-
ríkjunum, og áleit hann að hveitið
frá Canada væri hið besta, sem
hægt væri að fá nolikursstaðar.
* * *
Hveiti hefir hækkað mjög í verði
síðustu dagana, væntanlega vegna
votvi'ðranna. Var komið upp í $1.65
maí um helgina.
* * *
Sir Robert Borden, fyrverandi
stjórnarformaður í Canada er um
þessar rnundir við, Oxford háskól-
ann á Englandi og flytur þar fyr-
irlestra samkvæmt samningi við
nefnd þá, sem rieður yfir Rhödes
sjóðnum, sem ælaður er1 til menta-
mála.
* * *
Tekjur af símakerfi Manitoba-
fylkis voru á fimm mánaða tíma-
bili, sem endaði 30. apríl þ. á. $1,-
400,585, sem er $56,917 meira en á
satna tíma árið sem leið. Þeir sem
simakerfið nota og borga sín árs-
gjöld eru 68,232, eða 2,559 fleiri en
þeir voru fyrir ári síðan.
* * *
Sambandsstjórnin hefir slitið
viðskiftasamningi þeim, sem verið
hefir í gildi milli Canada og Rúss-
lands. Segir stjórnin að Rússar hafi
rofið þennan samning í vissum at-
riðum og geti hann því ekki hald-
ist i giidi. Lýsir stjórnin yfir því,
að þetta hafi verið gert eftir vand-
lega athugun og á engan hátt hafi
verið að þvi hrapað. Ennfremur að
þetta þýði alls ekki að viðskiftum
sé lokið milli þessara landa, þvi þau
geti vel haldið áfram án sérstakra
samninga milli þjóðanna. Það at-
nði sem hér er sérstaklega átt við
að brotið hafi verið, er það að í j
samningnum stendur að hver þjóð-
in um sig lofar hinni því að gera
en£a tilraun i þá átt, að hafa nokk-
ur áhrif á stjórnarfyrirkomulag
hmnar þjóðarinnar. Þetta atriði tel-
ur# stjórnin í Canada að stjórnin á
Rússlandi hafi brotið með því að
hafa hér í landi menn, sem hún
sjálf launar og ætlað er það hlut-
verk að gera Canada-menn ó-
ánægða með sitt eigið stjórnarfyr-
irkomulag. Stjórnin tekur það skýrt
fram, að viðskifti milli þjóðanna
geti haldið áfram þrátt fvrir þetta,
en ])ar sem Rússar hafi ekki haldið
sína samninga, geti þeir ekki lengur
notið hlunninda af fyrnefndum
samningi.
* * *
Á fimtudagskveldið í vikunni
sem leið, hélt liberal flokkurinn
í Winnipeg útnefningarfund til
að útnefna þingmannaefni fyrir
fylkiskosningarnar, sem fram fara
28. þ. m. Fjögur hundruð tuttugu
og níu fulltrúar mættu á fundin-
um og auk þeirra mikill fjöldi
fólks og bar fundurinn það1 ljós-
lega með sér, að frjálslyndi flokk-
urinn í Winnipeg er vel vakandi
og áhugunarsamur um þær kosn-
iagar, sem nú eru fyrir höndum.
Þegar allir voru komnir í sæti
og ’fundurinn settur, risu allir á
fætur og stóðu litla stund hljóðir
til að láta í ljós virðingu sína fyr-
ir minnirigu hins nýlátna leið-
toga, Hon. T. H. Johnson, og sam-
hrygð sína til fjöískyldu hans.
J. J. Morkin, . forseti liberal
flokksins í Winnipeg, var fundar-
stjóri. Fundurinn samþykti að
útnefna sex þingmannsefni, en
eins og kunnugt er, þá eru tíu
þingmenn alls kosnir í Winnipeg.
Þeir, sem kosningu hlutu, voru:
H. A. Robson, K.C., leiðtogi frjáls-
lynda flokksins í Manitoba; Mrs.
R. A. Rogers, sem kosin hefir ver-
ið í Winnipeg við tvær síðustu
fylkiskosningar. Voru þau bæði
þosih í einu hljóði. Hinir fjórir,
sem kosnipg hlutu, voru: Duncan
Cameron, Walter Lindal, John
MacLean og H. Ralph Maybank.
Stungið var upp á þremur mönn-
um þar að auki, en sem ekki náðu
útnefningu. Allir þeir, sem
stungið var upp á, fluttu stuttar
ræður, töluðu fimm mínútur hver
Meðan á því stóð að telja atkvæð-
in, flutti Mr. Robson ræðu. Hafði
hann ýmislegt að athuga við
gerðir Bracken stjórnarinnar, þau
fimm ár, sem hún hefir setið að
völdum, en þó miklu meira við
aðgerðaleysi hennar.
Einn þeirra manna, sem útnefn-
ingu hlaut, og sem því verður í
váli við kosningarnar, er íslend-
ingur, Mr. Walter Lindal lög
maður. Það dylst ekki, að mörg-
um íslendingum í Winnipeg er
það mikið ánægjuefni, að Mr. Lin-
dal hefir gefið kost á sér til
þingmensku, og mun þeim yfir-
leitt vera ljúft að styðja að þvi,
að hann nái kosningu, enda þykja
sterkar líkur til að svo verði.
■» * *
Vegná rigninganna síðastliðnar
vikur, hefir gengið mjög seint að
sá hveiti alstaðar 1 Sléttufylkjun-
um, en sérstaklega í Manitoba
en þó mun því nú hér um bil lok-
ið. Samkvæmt skýrslu, sem blað-
ið ‘Manitoba- Free Press’ flutti á
laugardaginn í vikunni sem leið,
er í þetta sinn hveiti sáð í miklu
færri ekrur heldur en í fyrra, eða
að eins 17,859,417 ekrur, en í
fyrra voru hveitiekrurnar 21,677,-
Einar Jdnasson
merkisberi frjálslyndaflokksins
í Gimli kjördæmi.
Á afar-f jölmennum fundi, er
haldinn var í Riverton, síðastliðið
þriðjudagskveld, þar sem mættir
voru fulltrúar frá því nær öllum
kjördeildum Gimli kjördæmis, var
Mr. Einar Jónasson, kjörinn í einu
hljóði merkisberi frjálslynda
flokksins, við fylkiskosningar þær,
er nú fara í hönd.
814. Er munurinn mestur í Mani-
toba, eða 25 af hundr, í Saskatche-
wan 20 af hundr. og í Alberta 10
af hundr. Kemur þetta til af
þvi, að landið hefir alt til þessa
víða verið svo blautt, að ekki hef-
ir verið hægt að sá í það. Ef
tíðin leyfir, verður væntanlega
sáð óvanalega miklu af öðrum
korntegundum, sem ekki þurfa
eins langan tíma til að vaxa eins
og hveiti, svo sem byggi, höfrum
o. fl.
■*• * *
Sumir þeirra, sem nú eru að
flytja til Canada frá Bretlandi,
koma hingað vel vopnaðir og hafa
með sér skambyssur og skotfæri,
til að verja sig, þegar hingað kem-
ur fyrir bjarndýrum, Indíánum og
útilegumönnum. Það væri ekki
mikið tiltökumál, þótt einstöku
mönnum detti þetta í hug, en hitt
er einkennilegra, að það er ein
af stjórnardeildunum á Englandi,
sem þessu ræður, sú sem eftir-
launamál hefir með höndum, og
þessir vopnuðu menn eru eftir-
launamenn, sem stjórnin borgar
laun sín fyrir fram fyrir nokkra
mánuði, svo þeir geti farið til
Canada og haft nokkra peninga
afgangs þegar hér kemur. En
stjórnin vill sjá um það, að þess-
um peningum sé ekki eytt í ó-
þarfa, og því fá þessir eftinlauna-
menn ekki alla upphæðina í pen-
ingum, neldur sumt af henni í á-
vísunum á ýmislegt, sem stjórn-
ardeildin álítur að þeir þurfi
helst á að halda. Er það sérstak-
lega klæðnaður og tvær skam-
byssur og skotfæri handa hverjum
manni.
Bretland.
%
Eins og getið var um í siðas
blaði, lét breska stjórnin lögreglur
rannsaka nákvæmlega bygingu þá
London, þar sem erindrekar Rús:
höfðu skrifstofur sínar. Var þ
borið við, að einhver stjórnarskji
hefðu tapast og grunaði stjómir
að þau mundu hafa lent í höndui
Rússa. Ekki munu þessi sérstök
skjöl haf fundist, en stjórnin líti
svo á a'ð hér hafi fundist þau gög
sem geri sér ómögulegt að halc
því sambandi, sem Bretar og Rús
ar hafa haft sin á milli. Ilefir þ-
Breta-stjórn, með samþykki þing
ins sagt stjórnarfarslegu sambam
við Rússa slitið og boðið sendisve
þeirra í London, sem virðist vep:
hafa all-f jölmenn, að hafa sig burt
og sönuúeiðis kallað sina umboð
menn heim frá Rússlandi. Eki
varð þingið þó sammála um þeti
og báru verkamenn fram tillö'g
þess efnis, að rannsaka málið be
ur, áður en sambandinu væri sliti'
Var sú tillaga feld með miklum a
kvæðaiyun.
Eins og nærri má geta pr mik:
umtal um þetta tiltæki brezl:
stjórnarinar, ekki á Bretlandi ai
eins, heldur út um allan heir
Finst ýmsum að hér sé ískyggile
ófriðarblika í lofti, en aðrir halc
að svo þurfi alls ekki að vera c
benda meðal annars til þess a
ekkert samband hafi stjórnir Banc
rikjanna og Rússlands sin á mil
og líti þó engir svo á, að þar sé <
friðarhætta yfirvofandi. Brezl
stjórnin lítur svo á. að því er sé
verður, að Rússar hafi mjög mi
beitt réttindum sínum þar i landi c
notað stöðu sina til undirróðurs c
æsinga og ekki geti komið til má
að það sé lengur liðið.
Ilvaðanœfa.
Tveir franskir flugmenn, Nun-
gesser og Coli, lögðu af stað í loft-
fari frá Paris á laugardaginn 7 mai
og ætluðu að fljúga þaðan til New
York, án jtess að koma nokkurs-
staðar við á leiðinni.. Þegar þeir
lögðu af stað stefndu þeir í áttina
til írlands, en síðan hefir ékkert af
þeim frést sem ábyggilegt getur
talist. Að visu sáu einhverjir til
loftfars vfir Nýfundnalandi tveim
THE FATHERS OF CONFEDERATION
MEMBERS OF THE QUEBEC CONFERENCE, OCTOBER, 1864
F. Palmer F. B. T. Carter R. B. Dickey
Hcwitt Bamard (Secy.) Ambroac Shea John A. Macdonald Peter Mitchell W. H. Pope J. M. Johnson
W. A. Henry E. B. Chandler Adama G. Archibald George E. Cartier Thomaa H. Haviland J. H. Gray A. A. Macdonald «
Charles Fiaher George Colea J. C. Chapaia i Sir Etienne Paachal Taché Alex. T. Galt J. Cockbum William McDougall J. McCuily
W. H. Steevea John Hamilton Gray Alexander Campbell Hector L. Langevin Oliver Mowat Thomaa D’Arcy McGee
Edward Whalen Samuel L. Tilley George Brown Charlea Tupper
*
Til kaupenda Lögbergs!
Þegar Lögberg hóf göngu sína, fyrir 40 árum, þá var það
ákveðið að blaðið skyldi borgað fyrirfram, eins og viðgengst um
flest hérlend blöð. Þrátt fyrir þann ásetning, skipaðist niálum
þvi miður þannig, að tiltölulega fáir greiddu andvirði blaðsins
fyrirfram, en þó var þeim sent það eftir sem áður. Leiddi þetta
til þess, að skuldir söfnuðust svo mjög, að einstökum kaupendum
varð tilfinnanlega örðugra um greiðslu, en ella myndi verið hafa.
Uppsagnir því aðeins gildar, að hlutaðeigandi kaupendur séu með
öllu skuldlausir við blaðið. Útgáfunefnd Lögbergs hefir nú ráðið
Ií þjónustu sína velmetinn mann til innköllunar fyrir blaðið hér í
borginni og trevstir því eindre gið að erindi hans verði í hví-
vetna vel tekið.
F. Stephenson, ráðsmaöur.
...
dögum síðar, en engin vissa virðist
vera fyrir því, að þar hafi þeir
Nungesser og Coli verið á ferð.
Mikið hefir þegar verið gert til að
reyna að finna mennina, en það
hefir, eins og fyr segir, enn ekki
hepnast og eru nú víst flestir orðn-
ir vondaufir um að þeir muni koma
fram hér eftir.
0r bænum.
Arni Eggertsson, J. J. Vopni, J.
J. Svvanson og Olgeir Friðriksson
verða erindrekar Fyrsta lút. safn-
aðar á næsta kirkjuþingi.
Metúsalem Jónsson frá Árborg,
Man., kom til borgarinnar á mánu-
daginn í þessari viku og fór heim-
leiðis aftur næsta dag. Hann var
að leita sér lækninga.
SKÓLALOKASAMKOMA.
Ársloka samkoma Jóns Bjarna-
sonar skóla var haldin í Fyrstu
lút. kirkju á mánudagskveldið í
þessari viku, og var hún bæði
vel sótt og skemtileg og fór
prýðisvel fram. Forseti skóla-
ráðsins, Dr. BjöVn B. Jónsson,
stýrði samkomunni, sem hófst kl.
8.30, eins og auglýst hafði verið.
Var þetta hin/ 14. ársloka sam-
koma skólans, því þaðjengi hefir
hann nú staðið. Skemtiskráin
var löng og góð. og stóð samkom-
an yfir í tvo klukkutíma. Séra. K.
K. Olafson, forseti kirkjufélags-
ins, kom til borgarinnar til að
vera á samkomunni @g hélt hann
aðal ræðuna og talaði til skóla-
fólksins, sem nú er að útskrifast
af skólanum, sextán að tölu. Af
hálfu skólafólksins fluttu ræður
Miss Lillian Thorvaldson og
Heimir Thorgrímsson. Er óhætt
að segja, að þeim fórst það báðum
vel og myndarlega. Mrs. Joanna
Stefánsson söng nokkra ein-
söngva, sem mikill rómur var
gerður að, sem vænta mátti, þar
á meðal tvo íslenzka söngva:
“Móðir við barn’’ eftir Björgvin
Guðmundsson, og “Komum, tín-
\im berin blá” eftir Jón Frið-
finnsson. Einnig sungu þau du-
et, Mi[s. Stefánsson og Mr. Árni
Stefánsson. Enn fremur sungu
tvö lög þeir herrar Jóhannsson,
Stefánsson, Thorólfsson og Sig-
mar. Hljóðfærasláttur var þar
einnig um hönd hafður og þótti
vel takast.
Miss Salóme Halldórsson, for-
stöðukona skólans, skýrði frá
hverjir af nemendum skólans
hefðu til þess unnið að nöfn
þeirra væru grafin á Arinbjarnar-
fcikarinn og eru þau þetta árið:
Signý Bardal, Harald Gísla^on,
Harold Jóhannsson, Lillian Thor-
valdson og Anna Marteinsson.
Nöfn þeirra, sem í þetta sinn
útskrifast af skólanum. eru:
Úr xi. bekk: Eyjólfur Ander-
son, Guðný Benjaminson, Hall-
dór Bjarnason, Margrét Einarson,
Franklin Gillies, Edward Magn-
ússon, HerSiann ólafsson, Magn-
ús Paulson, Magnús Thorlaksson,
Lillian Thorvaldson, og Guðrún
Thomsen.
Úr xii. bekk: Sella Johnson,
Anna Marteinsson, Mabel Reyk-
dal, Vigdís Sigurdson, og Heimir
Thorgrímsson.
0r Framnesbygð
í Nýja íslandi.
Þeir Framnesbúar hafa lestr-
arfélag, er “Mímir” heitir. Varð
það tuttugu og fimm ára gamalt
7. maí síðastl. Var þess minst
með hátíðarhaldi þann dag, er
fór fram í samkomusal bygðar-
innar. Mun margt fólk hafa ver-
ið þar viðstatt. Því miður var
fréttaritari Lögbergs ekki þar
staddur. hafði þá öðru að sinna
En gestir, er á mótinu voru, hafa
vakið athygli mina á tvennu, er
þar fór fram. Er annað ræða, er
Guðm. bóndi Magnússon flutti.
Hitt er kvæði, ort af Bergi J.
Hornfjörð og þar af honm flutt.
Hafði ræða Guðmundar stefnt í
þá átt, að vekja framgjarna unga
íslendinga til umhugsunar um
framtíð þeirra hér í landi. Var
sýnt fram á, hvað margt og mikið
gott býr í íslenzku þjóðerni, sem
ungir menn hér geta ávaxtað og
látið verða að einhverju nytsömu
og miklu, jafnframt og þeir læra
að nota sér það sem bezt er hér
fram boðið. Með því að sameina
þetta tvent, það merkilega sem
íslenzki arfurinn á í sér fólgið, og
það bezta, sem hér er að hafa og
læra af góðu fólki, taldi ræðu-
maður að væri hinn sanni vegur
til heilla og frama fyrir alt ís-
lenfckt ungt fólk í þessu landi. —
Guðmundur Magnússon er maður
bráðskýr og vel máli farinn. Var
gjörður hinn bezti rómur að ræðu
hans.
Kvæðið, er Bergur bóndi Horn-
fjörð flutti, hafa ýmsir samkomu-
gestir óskað eftir að fá að sjá á
prenti. Sendi eg það ’ því Lög-
bergi hér með. — Fréttar. Lögb.
* * *
FJALLKONAN
Flutt á 25. ára afmæli lestrarfé-
lagsins “Mímir” að Framnes
P.O., 7. maí 1927.
Heill þér árna, fslands drotning,
einu ljóði með,
fús eg vil þér veita lotning;
við það hugann gleð.
Að þú megir ísland vernda
alla heims um tíð,
og þér hagsæld ætíð senda,
árdags sólin fríð.
Margt á daga drifið hefur,
dimmum tímum á;
samt var gleði sorgum meður,
sem þig studdi þá.
Hungur, drepsótt, ís og eldur,
einokun og bann—
margur sonur sást þá heldur,
sem þig elska vann. —
Eftir þessa ógnar tíma
aftur lýsti til;
sæludagar, sem nú skína ,
sem þér leika’ í vil.
Aldrei framar aftur kemur
ógnar tími sá, I
hagsæld, frami verði, vinur,
vegi þínumv á.
Tign þú íslands ætíð sýnir,
óðals borna dís,
arfi þínum aldrei týnir,
er þá gæfan vís.
Börnum þínum þú skalt kenna
þeirra feðra dygð,
þá mun sæmdar sól upp renna
sælli yfir bygð.
B. J. Hornfjörðu
Hátíðarnefndin
er reiðubúin að starfa.
Hátíðarnefnd hefir verið mynd-
uð í fylkinu, til að styðja að há-
tíðahaldi í minningu um sextíu
ára afmæli sambandsins. Nefné
þessi hefir aðal-aðsetur sitt í
Winnipeg, en meðlimi hefir hún
víða í Manitoba. Sir James Aik-
ins, fyrverandi fylkistjóri, er for-
maður þessarar nefndar.
Tilgangur nefndarinnar er að
vekja áhuga innan fylkisins fyrir
hátíðahöldum í sambandi við sex-
tíu ára minningu Canada sem
skipulagsbundinnar þjpðar og að
aðstoða hátíðanefndir innan fylk-
isins. Vonast er til, að hver bygð
minnist dagsins á einbvern hátt,
svo að bæði ungir og aldnir verði
snortnir af sögunni um þróun
Canada.
Fylkisnefndinni er ant um, að
hjálpa nefndur.um í bygðunum, og
hún er reiðubúin að athuga öll
vandamál, sem bygðanefndirnar
leggja fyrir hana, sérstaklega
hvað útvegun ræðumanna snert-
ir og undirbúning sýninga, skrúð-
gangna og annara hátíðabrigða.
Einnig væri nefndinni þökk á. að
fá bendingar frá bygðanefndum,
sem gætu orðið öðrum til að-
stoðar.
öll bréf ættu að sendast til rit-
ara hátíðarnefndar Manitobafylk-
is, Dr. D. S. Woods, Room 327
Parliament Buildings, Winnipeg.
Háskólaprófin í Mani-
toba.
Nöfn islenzkra stúdenta, er gengu
undir próf.
AGRICULTURE
ist year: Hallur Bergsteinss.—iB.
4th year: Björn Pétursson—iá
$100.00 Scholarship.
5th vear: Leifur Bergsteinss.—iA.
MEDICINE
5th year: Larus >A. Sigurdson—
Pass.
Einar J. Skafeld—Pass.
ENGINEERING
ist year: Hanson, H. G. II.
Pétursson, H. S. II.
2nd year: Otto H. Bjarnason—iB.
Clifford P. Hjaltalín—iB.
Ed. W. Oddleifsson II.
3rd year: T. BorgfjörS, II.
F. Pétursson, iB.
4th year JCivil engineeringj H. I.
S. Borgfjörð—iB.
ýElectrical engineering) I. C.
Ingimundsson—iB.
ARTS AND SCIENCE
Hámark 4 stig fyrir hverja námsgr.
ist year:
Barney S. Bjarnason—12
Guðmundur S. Christie—20
Joe Freeman—20
S. Milton Freeman—20
Francis P. Gíslason—20
Harry G. Goodman—20
> Axel Oddleifsson—20
Kristinn Olafsson—20
Johann.H. Stadfeld—20
Barney ,Thordarson—20
2nd year: Harvey II. Arnason—20
Ethel Bergman—20
Egill Fáfnis—12
Fri'ðrik Féldsted—20
Sigfús Gillies—16
Beatrice Gíslason—20
Daniel Hallson—20
Thelma Jóhannsson—20
Ethel M. Johnson—12
Gyða Johnson—20
Tohn Oddstad—8
Sigurdur Sigmundson—20
Aldis Thorlakson—13
3rd year:
John Johnson—8
Gunnsteinn Johnson—12
Thorarinn Johnson—12
Harold T. N. Peterson—14
Theodore Sigurdson—16
, 4th year:
Heiðmar Bjömson—iB.
, Margaret Pétursson—iB.
Olof Sigurdson—iB.
Carl Thorelsson—II — Took
half of 4th vear work onlv.
Horítc Economics’ Diploma Course
at Agricultureal College.
Bertha Thorwardson—iB.
Svlvia Bildfell—iB.
Margaret Brandson—Special course
of 2tid. ^rd and 4th year subjects,
average iB.