Lögberg - 23.06.1927, Side 1
öohrrrj.
40. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 23. JÚNl 1927
/i
NÚMER 25
Canada.
Farið hefir verið fram á það
við sambandsstjórnina, að hún
veiti blindu fólki hér í landi líf-
eyri, eins og gert er á Bretlandi,
í Bandaríkjunum, Ástralíu, Nýja
Sjálandi og víðar,/'svo það óláns-
sama fólk þurfi ekki að lifa á góð-
gerðasemi almennings, en styrk-
urinn sé svo ríflegur, að blinda
fólkið geti fyrir hann veitt sér
það, sem alveg er nauðsynlegt til
lífsframfærslu. Það er hjálpar-
félag hinna blindu (Canadian
Federation of the Blind), sem á
fundi í Montreal hinn 17. þ.m.
hefir samið bænarskrá þess efnis
og sent stjórninni, en enn er ekki
kunnugt, hvernig* stjórnin tekur
þ)essu mál'i.
* * *
T. Eaton félagið hefir nýlega
keypt verzlunarhús mikið í Ham-
ilton, Ontario, og rekur þar nú
verzlun með svipuðum hætti, eins
og í VVinnipeg, Toronto*og Mont-
real. Þetta afarstóra verzlunar-
félag er að smá færa út kvíarn-
ar og kom upp fleiri og fleiri af
-sínum miklu sölubúðum, þar sem
seldar eru svo að segja allar vör-
ur, sem nöfnum tjáir að nefna,
nema vínföng og tóbak. Þetta
verzlunarfélag var byrjað fyrix'
58 árum af Timothy Eaton í Tor-
onto, en hefir síðan náð svo mikl-
um vexti, að fá dsgmi eru til og
gerir alt af meiri og meiri verzl-
un ár frá ári.
* ■* #
Á föstudaginn í vikunni sem
leið var maður tekinn fastur í
grend við Kiilarney, Man., sem
sakaður er um að vera valdur að
dauða þeirra tveggja kvenna, sem
sagt var frá í síðasta blaði, að
myrtar hefðu verið í Winnipeg
hinn 10. þ. m. eða þar um bil.
Maðurinn hefir verið fluttur til
Winnipeg og er nú haldið í mjög
ströngu varðhald'i. Lögreglan hér
telur það engum vafa bundið, að
hún hafi hér náð 'hinum rétta
sökudólg og að þetta sé sami
maðurinn, sem valdur sé a§ sams-
konar glæpaverkum eins og hér
voru framin og sem unnin hafa
verið í ýmsum borgum í Bandgi-
ríkjunum síðustu árin. Maður
þessi segir sitt í hvert éinn um
það, hvað hann heiti, ýmist Yir-
gil Wilson eða Earl Nelson. En
Harris heitir hann, ef þetta er sá
maður, sem álitið er og sem
naumast þarf að efa, því sann-
anirnar gegn honum eru mjög
sterkar, að því er lögreglan segir.
Væntanlega verður þetta mál ekki
rannsakað fyr en í haust, en mað-
urinn vandlega geymdur þangað
til. Hefir lögreglunni í Manito-
ba hér óneitanlega tekist giftu-
samlega, að handsama þenna
hættulega mann, að eins tve'im
vikum eftir að hann kom til Cáp-
ada, en sem nú árum saman hefir
leikið lausum hala í Bandaríkj-
unum og unnið þar mörg voða-
verk, án þess að lögreglan þar
hafi getað haft hendur í hári
hans. Með því að maður þessi er
nú handsamaður, er miklum ótta
létt af Winnipegbúum og öðru
fólki hér um slóðir.
Bandaríkin.
Bandaríkin Ihafa fengig nálega
sextán biljónir dala í rentur af
peningum þeim, sem þau eiga hjá
öðrum þjóðum. Er það hér um
bil fimm bilj. dala stærr’i fjár-
upphæð heldur en skuldirnar
nema, samkvæmt skýrslu fjár-
máladeildarinnar í Washington.
•» * *
Mr. Lowell, forseti Harvard há-
skólans, Robert !Grant dómari og
Samuel W. Stratton skólastjóri,
hafa tekið að sér að hjálpa Mr.
Fuller ríkisstjóra í Massachus-
etts til að rannsaka að nýju Cac-
co-Vanzetti málið.
Sannvirði.
Eftir Robert Quillen.
Vitur maður og annar, sem heimsk-
Ur er- kaupa stundum hlutabréf í
þessum olíufélögum, sem þykjast
®tla að græða auðfjár á olíu, sem
á að vera falin í jörðu hér eða þar.
Sá fyrnefndi kaupir hlutahréfin
eins og hvert annað bréfarusl og
hinn kaupir þau fullu verði og
sýnir þar með að hann er maður
einfaldur.
Sá sem gefur meira en sannvirði
fyrir hlutina, sannar þar með að
hann hefir ekki þau hyggindi, sem
í hag koma. Ekki er þetta þó algild
regla. Segjum t. d. að auðu lóðinni,
sem er næst við húsiS þitt, sé hald-
ið í of háu verði, en þú vilt kaupa
hana, til þess að hafa dálítið rýmra
um þig. Það að þú kaupir hana
fyrir hærra verð, heldur en nokkur
annar*vill fyrir hana gefa, sannar
ekki að þú sért ráðleysingi. Það er
engin fjarstæða að greiða það verð
fyrir hvern hlut, sem vera skal, sem
hann er þér virði, þó enginn annar
vilji borga eins mikið fyrir hann.
Vesalingurinn eða flónið, sem
allir líta niður á, eða kenna í brjósti
um, er sá sem gefur meira fyrir
það sem hann fær, heldur en það er
virði til hans.
Orðið flón, er notaö um alla sem
heimskir eru og sömuleiðis þá, sem
eru litils metnir í heiminum. Mað-
urinn, sem leggur á sig harða vinnu
og má ekkert aumt sjá og vill öll-
4im hjálpa, er bara flón í augum
þeirra, sem nú láta mest til sín taka
og sem mest er dáðst að í félagslifi
Vesturheimsmanna.
Ef þú heldur að þú sért býsna
hygginn og hefir gott vit á hvað
hæfilegt er að gefa fyrir það sgm
þú færð, þá mátt þú ekki vanrækja
að gera }>ér ljósa grein fyrir þvi
hvað þú gefur fyrir það sem þú
færð; hvað þú borgar fyrir þau
gæði lifsins, sem þú nýtur. Með
því móti getur þú gert þér grein
fyrir hvert þú i raun og veru ert
hygginn eða ekki.
Ein af vinum mínum hafði sett
sér það að græða eina miljón doll-
ara. Honum hepnaðist það ; en hann
lagði of mikið í sölurnár fyrir auð-
legðina. Meðan hann var önnum
kafinn að græða þetta fé, lenti f jöl-
skylda hans á glapstig’u.
Eg þekki annan mann, sem hafði
yfirburða hæfileika, sem söngmað-
ur. Hann sóttist eftir frægð, en
borgaði fyrir hana fyrirfram. Nú
er hann á heilsuhæli, til að hvíla
taugar sinar.
Þú vilt, ef til vill, láta á þér bera
i félagslífinu, verða þar leiðtogi.
Það hepnast ef til vill. Eg þekki tvo
af slíkum “leiðtogum” sem lita út
eins og útslitnir menn og verða alt
af að taka eitthvað meðal inn á
kveldin til að geta sofnað á nótt-
unni.
Eg þekki litla stúlku, sem er alt
af ári á undan jafnöldrum sinum í
skólunum. Með því að gera það
heldur hún við metnaði for-
cldra sinna, en hún verður að borga
hátt verð. Rósirnar eru horfnar af
vöngum hennar.
Maðurinn, sem þú lítur niður á,
og kallar flón af því að hann hefir
ekki komist eins hátt í heiminum
eins og þú og hefir minna úr að
moða, hann héfir máské gert sér
grein fyrir verðinu, sem hann þurfti
fyrir þetta að gefa og komist að
þeirri niðurstöðu, að það væri of
dýrt.
Mér dettur ekki í hug að halda
1 því fram, að þú ættir að draga úr
þinum eigin áhuga og löngun til
að komast áfram i heiminum, eða
neita þér um að nóta lífsins gæða.
Þú lifir bara einu sinni, og nú er
tíminn til að njóta lifsins. Maður
verður að grípa gæfuna þegar hún
gefst.
En þú ert dálítið óvarfærinn,
þegar þú sest við borðið og biður
um máltið handa sex mönnum, án
þess að gera þér nokkra grein fyr-
ir hvað máitíðin kostar. Það er fátt
sem kemur sér öllu ver heldur en
reikningar, sem eru miklu hærri,
heldur en maður býst við. Það ber
alls ekki vott um nirfilshátt, þó
maður gæti vel að verði.nu; það ber
aðeins vott urn það, að maður gæti
skynseminnar.
Það gerir ekkert hve vitur þú
þykist vera, eða hve mikill speking-
ur þú í raun og veru ert, ef þú
borgar meira fyrir lifsins gæði
heldur en þau eru virði, þá ertu í
raun og veru í náinni ætt við þá,
sem þú lítur á með heldur litilli
virðingu og kallar flón.
Greiðið þessum íslendingum atkvœði með tölunni 1, þann 28. þ. m.
WALTER J. LINDAL. < < r
þingmannsefni frjálslynda flokksins í Winnipeg.
EINAR S. JÓNASSON
þingmannsefni frjálslynda flokks-
ins í Gimli kjördæmi.
SKÚLI SIGFÚSSON
þingmannsefni frjálslynda flokks-
ins í St. George kjördœmi.
Ragnar E. Kvaran ...
J. J. Bildfell.........
Th. S. Borgfjord ....
Rögnv. Pétursson
-»v‘. !'
-
5.00
5.00
5.00
5.00
Alls $200.00
0r bœnum.
Islenzkir kjósendur í W.peg
Rækið skyldur yðar við íslenzkt þjóðerni, þann 28. þ.m., með því
að greiðá eina íslenzka þingmannsefninu hér í borginni, Mr. Walter
J. Lindal, forgangsatkvæði, No. 1. Með þeim hætti einum getið þér
trygt kosningu hans, og átt einum íslending fleira á þingi, sem
reglulegur vegsauki er að.
Nöfnin á þingmannaefnum frjálslynda flokksins, birtast í
rauðum lit á kjörseðlunum. Að eins skal merkja seðilinn með tölu-
stöfum. Sé seðill merktur með X, verður hann ógildur. Þess vegna
setjið þér tölustafinn 1 við nafn Lindals og haldið svo áfram
tölunum, 2, 3, 4, 5 og 6 við nöfnin á þingmannaefnuni frjálslynda
flokksins hér í borginni í þeirri röð, er þér helzt æskið. Eigi má
setja töluna 1 nema á einum stað á hvern kjörseðil, því að öðrum
kosti verður seðillinn ógildur.
Við atkvæðagreiðsluna um bjórsöluna, skulu seðlar merktir
með X.
Þjóðhátíðar-mál.
Þjóðhátíðarn^fndin óskar þess
enn getið, að allur undirbúning-
ur hennar með þátttöku íslend-
inga í gkrúðförinni fyrirhuguðu á
föstudaginn þann 1. júlí n. k.,
genjfur greiðlega. Lögréttusvæð-
ið er í smíðum og verður vandað
eftir föngum, og nefndin hefir
von um, að engin fyrirstaða verði
að fá þá 73 þingmenn, sem þar
eiga sæti. Af þeim 24 goðum,
sem þar ræða þjóðáhugamál sín,
verða allir fullar 3 álnir á hæð
og þar yfir, því hugmyndin er að
sýna hérlendri alþýðu, að þeir,
sem stofnuðu fyrsta lýðveldi
heímsins og skipuðu fyrsta þing
þess, hafi verið valið lið, jafnt að
likams atgerfi, andlegum þroska
og prúðmensku og framferði. Með
þessu á að sýna, að það hafi alt
verið alvörumenn, þar sem hvorki
vottaði fyrir hlátri né lófaklappi
í sjálfri Lögréttunni, né nokkru
öðru, er þar bæri vott um léttúð
eða ^ skemtisýningu. Þetta atriði
verður væntanlega tekið fram af
lögsögumanni, þegar hann ’segir
upp lög í byrjun þingseturibar.
Búninganefndin, sem skipuð er
þeim 6 npfndarkonum, sem aug-
lýstar hafa verið, og F. Swanson
og Dr. Blöndal, er vel á veg kom-
in með tilbúning búninganna fyr-
ir óbreytta þingmenn. En bún-
ingar goðanna, sem leigðir hafa
verið, eru allir í tíundu aldar
sniði því, sem viðgekst á Norður-
löndum um þann tíma, sem ís-
lcndingar settu sitt fyrsta þing.
Kvenbúningar þeir, sem sýndir
verða í City Park, eru í umsjá
Mrs. Ovidá Swainson. Hún hefir
öll ráð á sniði þeirra og gerð og
á vali þeirra kvenna, sem klæðast
þeim á hátíðinnl. Þarf ekki að
efa, að sú kona gangi svo frá því
verki, að það veki alþjóðar eftir-
tekt. Vel væri, ef einhverjar
konur í Winnipeg eða grendinni,
sem kunna að eiga faldbúning,
létu Mrs. Swainson vita það taf-
arlaust. Hún býr að 62 Sher-
brooke St., Winnipeg.
Fjármálin ein eru í óreiðu.
Féhirðir vor, hr. A. C. Johnson,
907 Confederation Life Bldg. hér
i borg, hefir enn ekki fengið sent
meijja en $200.00 til styrktar þátt-
töku máli voru, minna en 20 per
cent. af væntanlegum tilkostnaði.
Nefndin óskar, að fslendingar
vilji sinna þessari hlið málsins
meira en þeir hafa enn gert.
Nefndin hefir varið svo miklum
tíma og kröftum við undirbúning
Mrs. L. H. J. Laxdal, frá Mil-
waukee, C>re. kom til bæjarins í
vikunni sem leið. Hún kom í bíl frá
Gardar N.D. með systur sinni Mrs.
Eyjólfsson og syni hennar, sem
fóru heim aftur daginn eftir. Mrs.
Laxdal býst við afi dvelja hér fram
yfir helgi, og ætlar þá vestur í
Saskatchewan að heimsækja kunn-
ingjana —og síÖan til Vancouver
til systur sinnar Mrs. Frederickson
áður en hún fer heim. Hún sagði
alt gott að frétta af löndum, sem
heima eiga í veðurblíðunni í Ore-
gon.
Gift voru af séra Birni B. Jóns-
syni, io. júní, James Cox og Ver-
nice M. Weeks. Fór athöfnin fram
að 774 Victor St.
G. T. hússins. Þetta eru með-
limir beðnip að hafa hugfast.
Næsta guðsþjónustu samkoma*í
Betel söfnuði, er ákveðin sd. 3.
júlí, í Ralph Connor skóla, kl. 2
e. h. — Sambandsstjórnin hefir
gert þá ráðstöfun, að sá sunnp-
dagur skuli helgaður séxtíu áfá
hátíðahaldi þessa ríkis. Verður
umræðuefni þar að lútandi. Menn
ættu að finna hvöt hjá sér með
að gera athöfn þessa uppbyggi-
lega með nærveru sinni. — Virð-
ingarfylst. S. S. C.
Islenzk kona bíður bana.
Sex aðrir meiðast.
Á laugardaginn í vikunni sem
leið, vildi til það hörmulega slys,
að ofsaveður, sem gekk yfir nokk-
urn hluta Saskatchewan fylkis,
feykti um íveruhúsi Friðriks
bónda Guðmundesonar í grerid við
Mozart, Sask., og kviknaði i því
jafnframt, en húsmóðirin, Mrs.
Guðmundsson, dó þegar af þess-
um völdum, en alt hitt heimilis-
fólkið meiddist meira og minna,
sumt all-hættulega að sagt er;
nema Mr. Guðmundsson, sem er
blindur maður og orðinn las-
burða, hann slapp ósærður. Hitt
fólkið, sem meiddist, voru þrjú
börn þeirra hjóna, öll fullorðin:
Miss Alla Guðmundsson, Mundi
Guðmundsson og Ingi Guðmunds-
son. Enn fremur unglings piltur
og vinnumaður og aðkomumaður,
S. Kristjánsson að nafni. Menn
sem að vestan komu i morgun,
miðvikudag, vita ekki með vissu,
hversu hættuleg þessi meiðsli
kunna að reynast, en gera sér
vonir um, að alt fólkið muni lifa
af og ná sér aftur. Ingi Guð-
mundsson meiddist mikið í fæti,
en honum hepnaðist þó að bjarga
hinu fólkinu úr rústunum, sem
eftir stóðu af húsinu og sem
kviknað var i, eins og fyr segir.
Slysið vildi til kl. 1 e. h. þegar
fólkið sat að miðdegisverði, og er
haldið að fólkið hafi ekkert orðið
várt við ofviðrið fyr en það skall
yfir og tók þakið af húsinu og
braut það alt niður. ■* *
Nábúi Friðriks Guðmundssóftj
ar, A. Gislason, kom þarna að
skömmu eftir að slysið vildi til
og fékk hann þegar hjálp frá
Elfros, og var alt gert, eins fljótt
og mögulegt var, til að bjarga
hinu særða fólki og hjúkra því
eftir föngum.
Þetta veður gerði engan skaða,
sem teljandi sé, nema á þessu eina
heimili.
þátt'töku vorrar í skrúðgöngunni,
að henni finst hún verðskulda |
fulla samúð allra íslendinga í|
þessu máli og að Canada hafi
farið svo vel með allan þorra
fólks vors, að þess megi af því
vænta, að það minnist þess við
þetta tækifæri.
Gerið svo vel að hraða sem
mest að senda tillög yðar fil fé-
hirðis.
Rétt er og nauðsyrdegt að geta
þess að þeir 73 ixienn, sem ætla
að vera á skrúðvagni íslendinga,
verða að fara tímanlega á fætur
að morgni fyrsta júlí, því svo á-
skilur aðal hátíðarnefndin hér í
borg, að allir skrúðvagnar verði
komnir á sinn úthlutaða sffað til
skrúðfararinnar, ekki se'inna en
kl. 8.30 að morgni dagsins, og þá
að sjálfsögðu hver maður á sín-
um stað í hverjum vagni og þar
fullklæddur og að öðru leyti út-
búinn til fararinnar.
í næstu blöðum verður sagt,
hvar ísl. vagninn verður staðsett-
ur til skrúðfararinnar, sem hefst
frá Broadway og Main St. og fer
norður að Burrows Ave., snýr þar
við, fer suður Main St. og Port-
age Ave. og hana vestur til Sher-
brooke St., suður það stræti til
Broadway og austur Broadway
til Main St.. Þar verður skrúð-
förin uppleyst. — Reynt verður ,í
tíma að gera þátttakendum að-
vart um hvar og hvenær þeir
klæðist búningum sínum. Lesið
næstu viku blöð Lögb. og Hkr.
með athygli strax og þau koma
“úr pressunni”.
Óskað er, að allir, sem fúsir
eru að skipa sæti í vagninum,
verði til staðar í tæka tíð þann
1. júlí, svo að ekkert sæti þurfi
autt að vera fyrir seinlæti þátt-
takanda.
NEFNDIN.
WSlIiani Leonard Hawcroff og
Thorunn L. G. Thordarson, voru
gefin saman í hjónaband i'l. júní
að heimili íoreldra brúðarinnar, hr.
G. P. Thordarsonar og konu hans.
866 Winnipeg Ave. Dr. Björn B.
Jónsson vígði brúðhjónin. Var
skemtilegt samsæti hjá Thordar-
son hjónunum það kvöld. Ungu
hjónin fóru -skemtiferð vestur í
land.
Þjóhátíðartillög afhent féhirði
hátíðarnefndarinnar.
Þjóðræknisfélagið ...... $100.00
Kvenfél. Fyrsta lút, safn. 25.00
Hannes Lindal ............
Court Isafold, I.O.F......
Thorlákur Jónsson..........
Jónas Jónasson, Ft. R......
Jón Eggertsson ............
Árni Eggertsson ...........
25.00
10.00
5.00
5.00
5.00
5.00
Miðvikudaginn I. júní urðu þau
Mr. og Mrs. Árni Scheving, Hensel
N. D. fyrir þeirri sáru sorg að
missa eina liarn sitt io mánaða
gamalt. Var það mænuveiki, sem
leiddi litla barnið til bana. Föstu-
daginn 3. júní var barnið jarðsung-
ið af Séra H. Sigmar frá heimilinu
og kirkju Vídalínssafnaðar og voru
margir vinir og nágrannar viðstadd-
ir. Allir nágrannar og vinir hjón-
anna samhryggjast þeim, innilega í
þeirra sáru sorg.
Theodore L Blondal og Olive
Rannveig Arnason voru gefin sam-
an í hjónaband kl. 10. árdegis 18.
júní að heimili systur brúðarinnar,
Mrs. Campbell, 33; Hull St. At-
höfnina framkvæmdi séra Björn
B. Jónsson, D.D. að viðstöddum
skyldmennum og vinum brúðhjón-
anna. Eftir veizlu-fagnað stundar-
korn lögðu ungu hjónin á stað í bil
í skemtiferð suður um Bandaríki,
Gefin voru saman i hjónaband í
Fyrstu lútersku kirkju 18. júní
Basil Clive McAlpine og Laura Th.
Finson. Dr. Björn B. Jónsson gaf
saman, Að kirkjuathöfninni lok-
itini var veizla haldin að heitnili
foreldra brúðarinnar. Mr. og Mrs.
Finns Stefánssonar, 544 Toronto
St. Seint um kvöldið lögðu ungu
hjónin á stað í skenitiferð vestur
um fylki.
Þann 17. þ. m. söng söngflokkur
Eyrstu lútersku kirkju fyrir við-
varp hér í borginni, í sambandi við
demantsafmæli fylkjasambandsins
canadiska. Ennfremur söng Mrs.
S. K. Hall einsöng, en Mr. J. J,
Bíldfell flutti þriggja mínútna
ræðu á islenzku, er birtist í næsta
blaði. v
þessi efni og hugsað um þau, veit
Séra Rúnólfur Marteinsson! að biblían hefir míkið mentunar-
kom til borgarinnar á m'iðviku-
daginn í vikunni sem leið. Hann
hefir, eins og kunnugt er, þjónað
Hallgrímssöfnuði í Seattle í vet-
ur. Fór hann þaðan senmma í
maímánuði. Fór suður Kyrra-
ahfsströndina alla leið til Panama
og svo gegn um Panamaskurðinn
og norður til New York. Dvaldi
hann þar í nokkra daga og éinnig
í Washington og Chicago. Pré-
dikaði hann þar í borginni fyrir
all-fjölmennum hóp landa vorra.
Tekur séra Rúnólfur nú aftur við
starfi við Jóns Bjarnasonar skóla
og hefir hann verið ráðinn þar
skólastjóri. Gott verk og mikið
hefir séra Rúnólfur af hendi
leyst þar vestur á ströndinni, en
gott þykir vinum hans hér, að sjá
hann aftur í Winnipeg.
gildi og menningar, auk þess trú-
arstyrks, sem hún veitir þeim,
sem henni eru vel kunnugir.
Þrátt fyrir það, að biblían hef-
ir verið rannsökuð af hinni mestu
nákvæmrii í margar aldir, finna
þó þeir, sem bezt kynna sér hana,
þar ávalt nýjar opinberanir og
hugsjónir, sem tala til trúarþarf-
ar mannanna.
Það mundi vera erfitt að hugsa
sér nokkur trúarbrögð, sem ekki
bygðu aðal hugsjónir sínar á
kenningum þessarar miklu bókar.
Biblian hefir verið uppspretta
andlegs lífs og friðar, þe'im sem
notið hafa þeirrar blessunar að
kynnast henni, og alstaðar þar
sem hún er kend, göfgar hún og
glæðir hugmyndina um bræðra-
lag mannanna.”
Þessar setningar er að finna
í bréfi, sem forsetinn hefir fyrir
skömmu skrifað E. E. Thompson,
formanni sunnudagskóla í Wash-
Vigton, sem hafði boíþð forsetan-
um og frú hans, að sækja fund
skólans, en sem þau gátu ekki
sætt. Forsetinn harmar það, að
biblían sé nú minna lesin á heim-
ilunum í Bandaríkjunum, heldur
en áður var, þegar hún var aðal-
bókin á hverju heimili, og víða
eina bókin. Mr. Coolidge heldur
því fram, að biblíuna geti menn
lesið sér til uppbyggingar og trú-
arstyrkingar, hvort sem þeir held-
ur reu Modernistar og hallast að
hinni hærri kritik, eða þeir eru
Fundamentalistar, og halda fast
við hinar eldri kenningar.
íslendingadagur verður haldinn
að Hnausa.. Man. þann 1. ágúst
næstkomandi. Afarvönduð skemti-
skrá, ræður, söngur íþróttir og
kvæði. Skemtiskráin verður auglýst
§íðar í héild.
MiðVikudaginn 22. þ.m. verður
ekki fundur í stúkunni Skuld. En
29. júní og 7. júlí verða venjuleg-
ir fundir stúkunnar í neðri sal
Á aðfaranótt mánudagsins komu
til borgarinnar Mr. og Mrs. Kol-
beinn Sæmundsson og fjögur börn
þeirra hjóna. Komu þau í bíl
sínum alla leið frá Seattle,
Wash., þar sem þau hjón eiga
hein^a og h^fði ferðin geng'ið á-
gætlega. Mr. Sæmundsson var
áður hér í Winnipeg, og er hér
mörgum að góðu kunnur, en ár-
ið 1909 flutti hann vestur á
Kyrrahafsströnd og hefir verið
þar síðan, lengst af á Point Ro-
berts. Síðustu árin hefir hann
stundað guðfræðanám við lút-
erskan prestaskóla í Seattle og
lauk þar námi í vor og hefir nú
veriÖ kallaSur sem prestur Hall-
griirissafnaðar í Seattle. Verður
hann vígður í Fyrstu lút. kirkju
í Winnipeg á sunnudaginn kem-
ur forseta Hins ev. lút. kirkjufé^
lags, séra K. K. Olafson. Ekki!
fara þau Mr. Sæmundsson, frúj
hans og f jölskylda heimleiðis 1
strax eftir vígsluna, heldur dvelja ! þann 24. þ.m., verður haldinn
hér um stund hjá vinum sínum fUndur frjálslyndra manna og
og kunningjum. Meðan þau dvelja kvenna 1 Goodtemplarahúsinu á
hér í borginni, verða þau hjá Mr. j Sargent Ave. kl. 8 stundvíslega.
og Mrs. S. O. Bjerring, 550 Bann- j á fundinum talar þingmannsefni
ing stræti. j frjálslynda flokksins, Mr. Walter
-----------— | J. Lindal, á íslenzku. Klukkan
r 1.1 r .. l-ui' - hálfníu talar Mr. H. A. Robson og
Coolidge forseti um bibliuoa. ^ (rambjó5endur (ri4isly„da
“Undirstaða stjórnarfars vors, flokksins. \ íslendingar! Látið
og félagslífs, er að svo miklu ekki þetta tækifæri úr greipum
k.yti bygð á kenningum biblíunn- j ganga, heldur komið stundvís-
ar, að það yrði erfitt að styðja' lega klukkan átta.
þeséi grundvajlaratriði þjóðlífs- j Enn fremur talar Mr. Lindal, á
ins, ef trúin á þessar kenningarj ensku, á General Wolfe skólanum,
hætti að vera alment ríkjandi í Cor. Ellice og Alverstone, fimtu-
landi voru. * | daginn þann 23. þ.m. kl. hálf-
Hver maður, sem kynt hefir sér! fimm að kveldinu.
Stjórnmálafucdur.
Næstkomandi föstudagskvöld.