Lögberg


Lögberg - 14.07.1927, Qupperneq 3

Lögberg - 14.07.1927, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 14. JÚLÍ 1927. Bls. 3. 43. Kirkjuþing Hins evangeliska lúterska kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi. HALDIÐ í WINNIPEG, MANITOBA, 22.-27. Júní 1927. Þá lagði skrifari fram ársskýrslu sína: ÁRSSKÝRSLA SKRIFARA Til kirkjuþingsins 1927. Tala safnaða kirkjufélagsins eru nú 56, eða einum söfnuðl færra en í fyrra, sem stafar af því eingöngu, að sameining tveggja safnaða í eina heild, er þá varí aðsígi, er nú fullgjör. Fólkstal fullorðinna í kirkjufélaginu má og heita hið sama og fyrir ári síðan. Aftur er tala ófermdra fullum tveimur hundruðum lægri. Mun þetta vera að kenna ónákvæmni nokkurri, er á sér víða stað i safnaðarskýrslunum. Er tala hinna ófermdu alveg vafalaust of lág, mjög víða, og sumir söfnuðirnir gefa alls enga skýrslu um fólk innan fermingaraldurs. Virðist mér bera meira á þessari óná- kvæmni í ár en nokkru sinni fyr. Býst eg við að samanlagt fólkstal í kirkjufélaginu sé i raun og veru æði mikið hærra, en kemur fram í tölum i ársskýrslu vorri í þetta sinn. Tala altarisgesta er talsvert lægri síðastliðið ár en hún áður var. Nokkuð margir söfnuðir gefa enga skýrslu um það efni. Eru sumir þeirra þó gamlir, starfandi söfnuðir, með stöðugri prestsþjónustu. Er annaðhvort að þar hefir orðið afturför, að því er þetta snertir, eða að aðgæzluleysi hefir átt sér stað, þegar skýrslurnar voru samd- ar. í einstaka tilfelli er getið um forföll er komið hafi í veg fyrir altarisgöngu. Getur það auðvitað komið fyrir og verið afsakanlegt. En að skýrslurnar nú skuli sýna nærri þrjú hundruð manns færra við kvöldmáltiðarborðið en áður var, það hygg eg stafi að einhverju leyti af ófullkomnum skýrslum, fremur en af þvi að svo ákveðin afturför hafi orðið i þessu efni innan kirkjufélagsins. Félagatal í ungmennafélögunum hefir og fremur gengið saman. Var sú tala í fyrra 769 en nú 579. Fé notað til safnaðarþarfa, eftir skýrslum að dæma, hefir og farið niður um full sjö þúsund. Er sú upphæð nú $30,815.75. í fyrra var þessi útgjaldaliður talinn að vera $37,901.34. Mun hér aftur vera gölluðum skýrslum um að kenna. Þó nokkrir söfnuðir gefi enga skýrslu að því er þetta snertirt Hafa sumir af þeim stöðuga prests- þjónustu og talsvert mikil útgjöld. Er nærri vafalaust að þessi út- gjöld safnaðanna eru í heild sinni æði mikið meiri en ársskýrslan sýnir í þetta sinn. 1 sunnudagsskólastarfinu hefir orðið heldur framför. Einum skóla nú fleira, að þvi er virðist, eri áður var. Eru skólarnir nú 35. Nemndatal níutiu hærra en var í fyrra, þá 2,095 en nú 2,185. Kenn- arar og starfsfólk sunnudagsskólanna nú talið að vera 252, eða tuttugu og þrem manns fleira en í fyrra. Er ánægjulegt að vita, að starfið góða meðal hinna ungu er fremur að taka framförum. Markmiðið ætti, í þessu efni, að vera sunnudagsskóli í hverjum söfnuði kirkju- félagsins. Það gæti hæglega orðið og verður, ef rétt er að farið i nálægri tið. Meiri vandvirkni, að því er skýrslur áhrærir, þarf að komast á í kirkjufélagi voru. Að öðrum kosti er næstum ómögulegt að gefa greinilegt yfirlit yfir hag þéss. Árborg, 21. júni 1927. Jóhann Bjarnason, skrifari. í nefnd til at! yfirvega ársskýrslur forseta og skr'ifara og að raða málum á dagskrá, voru kosnir þeir séra G. Guttorms- son, J. J. Swanson og B. M. Melsted. Dr. B. !B. Jónsson vakti máls á, að nefnd þessi ætti sem fyrst að fá tækifæri að íhuga það atriði í ársskýrslu forseta, er lýtur að andláti hins ágæta látna manns, Hon. Thos. H. Johnsons. Mundi nefndin semja sérstaka ályktan í því efni, sem þingið svo samþykti, og væri æskilegt, að sú þingsályktan kæmi fram sem fyrst, svo blöð, þau er vilja, geti birt hana taf- arlaust. Var það einróm samþykt af þinginu. Þá lagði féhirðir fram ársskýrslu sína: Kirkjufélagssjóðar 10. júní 1927. Tekjur—• í sjóði 10. júní 1926 ........................... Borguð safnaðargjöld............................. Innheimt fyrir Gjörðabók......................... Bankavextir .................................... Betel söfn., borgað af láni...................... Fært úr útgáfusjóði........... ......................... Útgjöld— Þóknun til skrifara.......................... $ 50.00 Þóknun til féhirðis............................. 100.00 Ferðakostnaður.................................. 60.60 Smá útgjöld af ýmsu tægi ........................ 142.93 Prentun Gjörðabókar............................... 68.25 Ábyrgð á féhirði.................................. 12.00 I sjóði ....................................... 683.00 $ 470.66 473.40 42.00 12.62 30.00 88.10 $1,116.78 $1,116.78 Eignir— 1 sjóði 10. júní 1926 ............................... $ 683.00 Ógreidd safnáðagjöld.................................... 224.00 Lán til safnaða.......................................... 57.50 Typewriter and Duplicator ................................ 81.00 —EEEE EE $1045.50 Yfirskoðað í Winnipeg, Man. 20. júní 1927. T. E. Thorsteinson. F. Thordarson. Heimatrúboðssjóður 10. júní 1927. Tekjur— í sjóði 10. júní 1926 ............ .................... $ 416.54 Tillög frá söfnuðum kirkjufélagsins.......... j........ 391.48 Mrs. C. Paulson, Hecla, Man. .......................... 3.00 Offur við guðsþjónustu á kirkjuþingi 1926 .................. 55.11 Frá Islendingum i Keewatin.................................. 24.55 Frá íslendingum í Piney..................................... 16.96 Frá íslendingum í Caliento................................... 6.00 Kvenfél,-Frelsis safn........................................ 5.00 Dorkas fél. Frelsis safn. . ^................................ 5.00 Kvenfél. Melankton safn..................................... 10.00 Kvenfél. Tilraun, Hayland................................... 10.00 Kvenfél. St. Páls safn..................................... 25.00 Ónefnd, Winnipeg............................................. 5.00 Kvenfél. Baldursbrá, Baldur ..... ..........'.......... 10.00 Kvenfél. Gardar safn...............................*... 10.00 Kvenfél. Vesturheims safn.................................... 5.00 Kvenfél. Vídalíns safn...................................... 10.00 Samskot við jólaborðið hjá S. í Wpg......................... 8.50 B. Walterson, Wpg........................................... 10.00 Trúboðsfélag Fyrsta lút. safn............................... 25.00 Kvenfél. Fyrsta lút. safn.................................. 50.00 Ónefndur vinur............................................... 5.00 J. S. GiIIis, Brown................................ ... .■ 5.00 K. Valgardsson, Gimli....................................... 5.00 O. Thorlacius, Dolly Bay..................................... 1.00 Mr. og Mrs. G. J. Oleson..................................... 2.00 Gjöld— Til Hallgríms safn.......................... $ 300.00 Sr. S. S. Christopherson......................... 300.00 Sr. R. Marteinsson, (Laun) ..................... 100.00 Sr. R. Marteinsson, (Ferðakostnaður) .... 15.15 1 sjóði ........................................ 404.99 $1,120.14 $1,120.14 Yfirskoðað í Winnipeg, Man. 20. júní 1927. T. E. Thorsteinson. F. Thordarson. Hciðingjatriiboðssjóðnr 18. júnl 1927. Tekjur— I sjóði 10. júní 1926 ................. ............... $ 2.88 Tillög frá söfnuðum kirkjufélagsins .... l............. 493.06 Skapti Sigvaldason, Lvanhoe............................ 15.00 Mr. C. Paulson, Hecla............................. .... 2.00 Kvenfélag St. Páls safn. .............................. 36.00 J. S. Gilies, Brown......................................... 5.00 Björn Jónsson, Churchbridge ................................ 3.00 Ónefnd, Winnipeg............................................ 5.00 Sd. sk. Grunriavatns safn................................ 5.50 Ónefndur vinur, Bradenbury .... ............................ 5.00 Ónefndur, Árborg............................................ 1.00 Kvenfél. Immanúels safn. Wynyard .......................... 25.00 Guðm. Oddson, Selkirk....................................... 1.00 G. T. Hjaltalín, Mountain............................... 4.50 Sd. sk. Gimli safn.......................................... 3.60 Séra P. Hjálmsson, Markerville............................. 10.00 Mr. og Mrs. S. S. Grímson og Mr. og Mrs. G. S. Grím- son, Red Deer.......................................... 15.00 Kvenfélagið Dörfung, Riverton.............................. 10.00 Mrs. L- Th. Björnsson, Riverton............................. 5.00 Kvenfél. Vídalíns safn.................................... 10.00 Mr. Guðni Olson, Minnesota................................. 10.00 Kvenfél. St. Páls safn..................................... 57.80 O. Thorlacius, Dolly Bay.................................... 1.00 Guðm. Guðmundsson, Linton................................... 2.00 Ónefnd hjón,'Winnipegosis................................... 5.00 Kvenfél. Herðubreiðar safn................................. 10.00 Bandalag Herðubreiðar safn.................................. 2.00 Kvenfél. Melankton safn.................................... 20.00 Mrs. Guðbjörg Freeman, Upham ............................ 5.00 Ónefnd, Winnipeg........................................... 10.00 B. S. Thorvaldson, Cavalier................................. 5.00 G. C. Helgason, Churchbridge................................ 5.00 Björn Jónsson Churchbridge ............................... 2.00 Magnús Magnússon, Ohurchbridge .......................... 1.00 Kvenfél. Bræðra tsafn...................................... 15.00 Helgi Thorláksson, Hensel................................... 6.00 Stephan Eyjólfsson, Edinborg................................ 5.00 Th. S. Laxdal, Mozart .... ................................. 5.00 Jón Hannesson, Akra......................r............ 5.00 J. S. Gillis, Brown...................................... 5.00 S. S. Hofteig, Cottonwood . ............................... 5.00 Halldór Anderson, Hensel.................................... 5.00 O. Th. Finnson, Milton...................................... 5.00 Ladies Missionary Society, Wynyard......................... 25.00 Mr. og Mrs. A. A. Johnson, Mozart .'.......... 10.00 Thorlákur Björnsson, Hensel................................. 5.00 Mr. og Mrs. Stgr. Johnson, Kandahar......................... 5.00 Sd. sk. Lundar safn......................................... 9.50 St. Gilbertson, Minneota.................................... 5.00 H. Guðbrandsson, Gardar.......................... .... 5.00 J. K. Ólafson, Gardar........................................ 5.00 O. K. Ólafson, Gardar....................................... 5.00 A. C. Johnson, Winnipeg .................................. 10.00 Sd. sk. Glenboro safn...................................... 12.15 Mr. og Mrs. G. J. Oleson, Glenboro.................... 3.00 Mr. og Mrs. Thomas Halldórsson, Mountain .................. 10.00 J. K. Johnson, Mountain.......................................5.00 Hans Einarsson, Gardar.................................... 5.00 Séra H. Sigmar............................................. 3.00 Kvenfél. Baldursbrá, Baldur................................ 10.00 S. S. Grimsson, Milton...................................... 5.00 Bandalag Selkirk safn...................................... 25.00 Trúboðsfélag Fyrsta lút. safn.............................. 38.45 J. J. Swanson, Winnipeg...................................... 5.00 G. B. Björnson, St. Paul.................................... 5.00 Guðjón ísfeld, Taunton...................................... 5.00 Trúboðs£élag Selkirk safn.....•....................... 75.00 Sd. sk. Selkirk safn.................................... 10.00 Sd. sk. Bræðra safn......................................... 5.00 Ónefndur .'................................................. 2.00 Th. J. Gíslason, Brown..................................... 5.00 Mrs. S. O. Paulson, Blaine.................................. 5.00 Fred Johnson, Hensel....................................... 5.00 S. B. Erickson, Minneota.................................... 5.00 Johann Briem, Riverton..................................... 5.00 Ben. Anderson, Cypress River................................. 5.00 Kvenfél."'Glenboro safn..................................... 25.00 Kvenfél. Björk, Lundar..................................... 25.00 Mr. og Mrs. Guðjón Rafnkelson, Stony Hill ................. 10.00 Halldór Anderson, Cypress River............................. 5.00 O. Anderson, Baldur.......................................... 5.00 Borgað L. B. Wolfe.......................... $ 350.00 f sjóði.................................... 907.44 $1,257.44 $1,257.44 Yfirskoðað í Winnipeg, Man. 20. júní 1927. T. E. Thorsteinson. F. Tltordarson. Kirkjubyggingarsjóður 20. júní 1927. í sjóði 10. júní 1926 .. ~. .............................. $ 289.00 Árdals söfn. borgað............................................. 50.00 Árnes sijfn. borgað............................................ 25.00 Selkirk söfn. borgað ........................................... 70.00 Lán Hallgríms söfn............................ $ 300.00 f sjóði 20. júní 1927 .............. ......... 134.00 — „$434.00 $434.00 Eignir— í sjóði 20. júní 1927 ................................. $ 134.00 Árdals söfn................................................ 150.00 Árnes söfn............................................... 150.00 Selkirk söfn............................................... 210.00 Hallgríms söfn.....................^................... 300.00 Loforð ógoldin ...................*.... ............... 200.00 $1,144.00 Yfirskoðað í Winnipeg, Man. 20. júní 1927. T. E. Thorsteinson. F. Tltordarson. Yfirlit yfir fjármál. Kirkjufélagssjóður ...................... $ 683.00 Heimatrúboðssjóður .......................... 404.99 Heiðingjatrúboðssjóður ...................... 907.44 Kirkjubyggingarsjóður...................... 134.00 í kirkjufélagssjóði í The Royal Bank, sparisjóðsdeild........................... $2,129.43 Yfirskoðað í Winnipeg, Man. 20. júní 1927. T. E. Thorsteinson. F. Thordarson. Fjárhagsskýrsla útgáfufyrirtœkja 10. júní 1927. Tekjur— Áskriftargjöld Sam.................................... $ Auglýsingar í Sam............ ........................ Peningar frá bókaverði................................ Útgjöld— i Prentun og útsending Sam. 1 maí 1926 til 1 maí 1927 ........................... $1,215.50 Borgað fyrir innköllun ...; ................ 20.90 Fært í kirkjufélagssjóð .................... 88.10 595.45 387.25 341.80 $1,324.50 $1,324.50 Yfirskoðað í Winnipeg, Man. 20. júní 1927. F. Thordarson. T. E. Thorsteinson. Efnahagsreikningtir xítgáfufyrirtœkjanna. Óseldar bækur og fleira, samkv. fylgiskj................... $2865.60 Sálmabækur hjá bókbindara................................... 286.44 Prentletur sálmabókar....................................... 147.00 Útist. áskriftargjöld Sam. 31 des. 1927 .... $2,100.00 Áætluð prentun og útsending Sam. maí— desember þ. á.............................. 700.00 •------- 1,400.00 Gjört ráð fyrir afföllum...................... 2,400.00 Mismunur —. eignir ......... .... ............ 2,299.04 $4,699.04 $4,699.04 Yfirskoðað í Winnipeg, Man. 20. júní 1927. F. Thordarson. T. E. Thorstcinson. . ’ Framh. á bls. 7. Bréf séra Matthíasar og óprentuð kvæðL Eg undirritaður auglýsti fyrir nokkru, að eg hefði í hyggju að gefa út áður en langt um líður ó- prentuð kvæð'i 0g bréf frá föður mínum til ýmsra kunningja hans. Jafnframt skoraði eg á allá, sem ættu í fórum sínum bréf eða kvæði, að gera svo vel og lána mér þau eða senda mér afrit af þeim. Þó stutt sé liðið síðan, hefi eg þegar fengið nokkurn bunka,, og býst við að safnið verði mikið áður en lýkur. Til þess að minna menn enn betur á, að verða vinsamlega við tilmælum mínum, hefi eg hugsað mér með nokkru millibili, að birta í nokkrum tímaritum og blöðum eitt og eitt af kvæðum þeim eða bréfum, sem mér verða send. Á þessu byrja eg nú í dag með ein- um bréfkafla. í gær var hr. Páll Bergsson í Hrísey Svo vænn að senda mér nokkur bréf, er hann átti frá föð- ur mínum. Um leið og eg þakka honum sendinguna, leyfi eg mér að setja hér útdrátt úr einu bréf anna: “Akureyri, 2. nóv. 1905. Kæra þökk fyrir þína ýsu— þarna færðu hálfa vísu, spyrður þínar fyrir fjórar, feitar, nýjar, þykkar, stórar. En ekki kann eg á að gizka áður en kref eg téða fiska, hvaða gæði gamla Braga geymi þær í sínum maga. Ekki í maga, heldur höfðum, hitti eg nóg af samanvöfðum óskasteinum—eða kvörnum— einstaklega vel til kjörnum. Úr þeim steinum strax eg seiði . sterka töfra, þá er leiði ríkan hlut á hverjum degi heim til þín úr Ránar-legi; einnig það, að ósk þín rætist, og að hvað, sem vantar, bætist, öll þín auðna eflist, kætist, alt þitt böl til fjandans tætist. Lifðu sæll í ljósi þvísu, lifðu sæll við þorsk og hnýsu, lifðu sæll í lofsöngs-vísu, lifðu sæll — og meiri ýsu. Ekki er vakurt, þótt riðið sé — á Pegasusi. Allir komnir upp í háttinn, einn eg sit við hörpusláttinn, , enda verð nú ýsu-þáttinn, opin, trú’ eg, stendur gáttin. Þér sjáið, að þetta er rímbeygla r;tuð éins og úr pennanum fellur, annars hefi eg sjaldan látið þá konst eftir mér — nema stöku sinnum í bréfum til góðs kunn- ingja. Þess konar er mest alt komið fyrir kattarnef og stein- gleymt Fyrir 20 árum gisti eg hjá góðum skólabróður, og las hann mér lengl skrítlur úr göml- um bréfum. Loks spurði eg hver ort hefði. Það kom þú upp úr soðinu, að það var alt frá minni ruslaskjóðu. Maðurinn var séra Páll Sigurðsson, síðast í Gaul- verjabæ. Þér fáið hér með mín- ar tfjórar ']jóða-[ýsuspyrður. Það er heldur léleg ljóða-ýsa, nærri því tóm erfiljóð. En samt nenni eg ekki að skammast mín fyrir allan fjöldann af þéim. Og enn á eg 40—50 erfiljóð, auk ótal týndra og tröllum gefinna. Item fáið þér 2. bindi af Her- læknissögum Z. Topelíusar, og loks leikinn Gísla Súrsson, því ef þér eigið hann áður, getið þér not- að hann til einhvers annars, eg á ærið nóg af honum óselt — mink- un hvað þjóðin er mikið barn, að skilja ekki þann leik, því að hann er meistralega saminn — af enskri stúlku. Dimmviðri í dag og logndrífa; útlitið líkt og í íslands innri póli- tík og — á horfum þessa eyfirzka höfuðstaðar. Líklega er, að bæj- argreyið hrynji ekki né hvolfist kollhnýs í Poljinn úr þessu, en “krach” fær hann líklega, því alt of margir “svindla” sig áfram með oftrú á bankana, en hvorki kendir Við trú á Drottinn, sjálfa sig, síldina eða framtíðina.” Nuga-Tone Gerir Þá Hrausta sem Veiklaðir Eru. Nuga-Tone hefir gert krafta- verk síðustu 35 árin í þeim efn- um, að gefa fólki aftur heilsu sma, dugnað og áhuga, og það í millíóna tali, bæði^örlum og kon- um, sem af ýmsum ástæðum hafa mist heilsuna að meiru eða minna leyti, og eru_ ekki orðnir nema hálfir menn við það sem þeir voru og ættu að vera. Hversu vel með- alið hefir reynst ótal öðrum, ætti að sannfæra þig um gæði þess. Það er óþarfi að dragast með einhvern kvilla, sem rænir þig heilsu, fjöri og ánægju, þegar Nuga-Tone getur hjálpað þér og losað þig við þá kvilla, sem eru því valdandi, að þér finst þú vera gamall og ónýtur, meðan þú enn ættir að vera í fullu fjörí og njóta lifsins. Nuga-Tone bregst þér aldrei og það er selt með fullri tryggingu og peningum skilað aftur, ef þú ert ekki á- nægður. Fáðu þér flösku strax í dag og vertu viss um, að fá Nuga-Tone. Eftirlíking er ekki neins virði. Hæsta verð fáið þér fyrir Rjómann yðar frá “Co.-Op.” vegna þess að útibú er rétt í nágrenni við yður, sem kemur í veg fyrir að hann skemmist á löngum flutningi. Sendið allan yðar rjóma til COOPfRATIVE CRfAMERIES LTa Faðir minn átti bréfaviðskifti við fjölda manna víðsvegar um land og erlendis, og var fljótur að svara, þegar honum var skéifað til. Var þá algengt, að stökur fylgdu í bréfunum og stundum heil kvæði. Megnið af þessum kveðskap er því dreift víðsvegar og týnist óðum, því það var að eins stöku sinnum, sem hann fékk tíma til að taka afrit af slíku. Akureyri, 19. maí 1927. Steingrímur Matthíasson. —íslendingur. borgari þessa lands. Hann andaðist 21. marz sl .. að Birkilandi hjá dóttur 's'inni og tengdasyni. Fluttist þangað frá eignarjörð sinni Sandnesi, að eins til þess að liggja þar banaleguna. Vinir og vandafólk kveður hann með söknuði og ástarþökk. J. S. frá Kaldbak. Œfiminning. Helgi Sigurðsson. Hann var fæddur 'á Kúskerpi í Engihlíðarhreppi í Húnavatns- sýslu 12. febr. 1844. Faðir Hefea var Sigurður Vigfússon bóndi á Kúskerpi, voru þe'ir Sigurður og Helgi, afi séra Jóhanns Bjarna- sonar, bræður. Móðir Helga Sig- urðssonar, kona Sigurðar á Kú- skerpi, var Guðrún ólafsdóttir, ættuð af Skagaströnd. Helgi var tekinn í fóstur á þriðja ári af hjónunum Jóni Jóns- syni og Guðbjörgu Halldórsdótt- ur á Tungu í Gönguskörðum í Skagafjarðarsýslu. Þar var hann 15 ár. 1862 fór hann að Þingeyr- um til ekkju Magnúsar Olsens og var þar tvö ár. Að þeim tíma liðnum fór hann suður í Borgar- fjörð. Þar kvæntist hann árið 1872 eftirlifand'i konu sinni, Val- gerði Brynjólfsdótttur bónda á Hreðavatni. Hún var fædd á Hreðavatni 4. ág. 1853. Brynj- ólfur faðir hennar var stórbónd'i. Hann var Einarsson hreppstjóra á Hreðavatni. Móðir Valgerðar, kona Brynjólfs, var Guðrún Hann- esdóttir úr Húnavatnssýslu. Eft- ir sjö ára dvöl í Borgarfirði fluttu þau Helgi og Valgerður norður í Húnavatnssýslu og bjuggu á Kirkjubæ. Þaðan fluttu þau til Ameríku 1893 og settust strax að í Mikley, námu þar land og nefndu Sandnes. Af 13 börnum þeirra hjóna lifa þrjú: 1. Þorste’inn Brynjólfur, er kona hans látin, hét jGuðríður Jó- hannesdóttir, ættuð af Skaga í Húnavatnssýslu. 2. Anna Sigríð- ur, gift Þorbergi Brynjólfssyni á Birkilandl. 3. Guðbergur Ástín- us, kvæntur Ingibjörgu Gunnars- dóttur Goodman, frá Winnipeg. 4. Sigríður, dóttir Helgu, stjúp- dóttir Valgerðar, er kona Péturs Bjarnasonar á Melstað í Mikley. Helgi heitinn Sigurðsson, var ó- svikinn íslendingur í húð og hár. Skapaður til þess að heyja baráttu lífsins án þess að hopa um eitt fet. 1 svip hans lá ættarmót hinsj forna norræna víkings, sem var i*eiðubúinn að sækja því harðar fram, sem mótstaðan var meiri. | Hann var maður afburða dugleg- ur og brá aldrei í barningi lífs- ins, þó að á gæfi á bæði borð—j að undanteknu því, þegar hannj varð að sjá á bak börnunum sín- um á landamerkjum lífs og dauða. Þá kiknaði hugur kappans og hárið hvítnaði. En hann rétti úr sér aftur og hélt leiðar sinnar, gegndi kvöðum skyldunnar og bar harm sinn í hljóði. Hann var maður barngóður með afbrigð- um og mátti yfirleitt ekkert aumt sjá. Helgi sál. var búmaður góður og farnast vel í Sandnesi, enda var hann starfsmaður mikill og gekk að verki alt fram að bana- legunni — þá hálf níræður. Er slíkt fágætt. Það mun óhætt að slá fram þeirri staðhæfing, að göulu landnemunum hér í Mikley — sem nú eru flestir til moldar gengnir — var ekki fisjað saman, en þó hygg eg að Helgi á Sand- nesi hafi skákað þeim öllum í á- tökum við ell'i og örbirgð. Helgi var greindur vel og bók- hneigður. Hann var gestrisinn og góður heim að sækja. Var honum yndi að ræða um liðna tíð, því að hugurinn dvaldi “heima”. ísland var honum landið helga— hann sá alla hluti í íslenzku ljós'i, það ljós brást honum ekki, þó að hann dveldist síðari hluta æfinn- ar í framandi landi. Hann vann sitt verk vel og trúlega, meðan dagur var á lofti og langt fram á kvöld, 0g var góður og tryggur HELGI SIGURÐSSON, undir nafni Valgerðar konu hans. Ljósin mín dóu við dauða þinn. Ó, dimt er í heiminum, vinur minn! Nú kemurðu aldrei aftur inn með ylinn, þó döpur eg þreyi og kvíði konianda degi. Svo ástríðu-fult hefi’ eg unnað þér, að örlög Bergþóru eg kysi mér. Ást hennar hátt yfir aldirnar ber, ung var hún gefin Njáli og með honum brann á báli. Ung gaf eg Helga ást mína‘ og trú, aldin og farlama syrgi ’ann nú. Hugurinn mænir á Heljar brú, —heimurinn einskis virði— um lífið eg lítið hirði. Eg sá þig alt af sem ungan svein og aldrei því breytt gátu skilyrði nein; sú æskunnar hugsjón í heiði skein þó hrumur þú værir og farinn, af ellinnar ofviðrum barinn. Það húmar—og ekki’ er mér hlát- ur í hug, þó hlægir mig eitt, að með kjarki og dug, sem hetja hófst þú hið hinsta flug án hjálpar—þú skuldar ei ne’in- um, þú varðist með viljanum einum. Eg veit ei hvort vinur til vinar fer, því vonir fáu hvísla að mér, en annars heims—einasta ósk mín er— aldrei til lífs að vakna, ef þarf eg þín þar að sakna. —J. S. frá Kaldbak. Skriðjökull. (Hringhenda.) Jakar skiljast jöklum frá, jarðar dyljast teigir, sundur myljast björgin blá, breiðir hyljast vegir. —M. I. Frá Islandi. Keflavík, 10. júní. Bátar hafa ekki komið að enn, verða sennilega 3-4 daga úti enn. Einn bátur kom að í gær, reri með línu og aflaði vel. 1 Sand- gerði hafði einn bátur róið í fyrradag og komið að í gærkv., aflað sama og ekkert. Hallgeirsey, 10. júní. Tíðarfar frábærlega gott, gras- vöxtur með allra bezta móti á þessum tima árs. Suðurlands- skipið kom nýlega á ýmsa staði á hina hafnalausu Suðurlands- strönd, svo sem Vík, Skaftárós, Hvalsíki, Ingólfshöfða, Holtsós, og Hallgeirsey, og þykir frásagn- arvert, að skipið tafðist að eins tvo sólarhringa vegna brima (í Hvalsíki), að öðru leyti gekk upp- skipan eins vel og ef hafnir væru á þessum stöðum. >— Róið var nýlega frá söndum og fengu mer.n 24—43 í hlut. Úr Landeyjum reri einn bátur til Dranga. Slík- ar Drangaferðir voru almennar áður, nú frekar “sport” — Tvö framboð eru komin fram hér í sýslunni, frá Einari Jónssyni og Klemens Jónssyni og væntanleg frá Skúla Thoarensen, Gunnari frá Selalæk og Björgvin sýslu- manni, og ef til vill fleirum. Hafa 2 Reykvíkingar verið tilnefndir, j sem líklegir eru til framboðs, en hvað af verður, er óvíst, en hins- vegar má telja víst um framboð Skúla, Gunnars og Björgvins. Suðurlandsskipið kom með síma- j staura í Fljótshlíðarlínuna, sem verður lögð í vor, frá Efra-Hvoli að Múlakoti.—Vísir.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.