Lögberg - 18.08.1927, Síða 8

Lögberg - 18.08.1927, Síða 8
bls. 8 cÆGRERG, FIMTUDAGINN 18. ÁGÚST 1927. Dr. Tweed verður í Árborg á miðvikudaginn og fimtudaginn, 24. og 25. þ.m. Dr. Einar J. Skafel, ungur og efnilegur læknir, ríýútskrifaður af læknaskólanum, fór á þr'iðju- daginn vestur til Kamsack, Sask., þar sem hann ætlar að setjast að sem læknir. Jón skáld Stefánsson frá Steep Rock, Man., hefir verið staddur í borginni undanfarandi daga. Mr. Ágúst Vopni, bóndi víð Harlington, Man., var staddur í borginni í vikunni sem leið. Hann lét vel af uppskeruhorfum í sinni bygð. Mr. og Mrs. Jón Finnson frá Mozart, Sask., komu til borgar- innar um helgina með son sinn t'il lækninga. Mr. Björn Austfjörð, frá Hen- sel, N. Dak., kom til borgarinnar í vikunni sem leið. Mr. F. Snædal, kaupmaður frá Steep Rock, Man., kom til borgar- innar í verzlunarerindum í vik- unni sem léið. Mr. Björn Thorvaldson og Mr. Jóhann Stefánsson frá Piney,! Man., komu til borgarinnar á | sunnudaginn í bíl og fóru aftur á j þriðjudaginn. Rase Theatre Flmtu- fðstu- og laugardag þessa viku Stðrt og mikið tvöfalt prðgram Maril Prevost Almost a Lady —og— The Police Patrol Mánu- þriðju- og miðviudag næstu viku THE FALSE ALARM Skemtileikur og Nýjungar Fimtudaginn, 11. þ.m., voru þau Bergsveinn Erickson frá Mary Hill, Man., og Alexandra Margrét Elínborg Brynjólfsson frá Lundar, gefin saman í hjóna- band, af séra Rúnólfi Marteins- syni, að 493 Lipton St. Heimili þeirra verður að Mary Hill. Mr. og Mrs. J. J. Bildfell, og báðar dætur þeirra, Miss Hrefna Bildfell og Miss Sylvia Bildfell, fóru á miðvikudaginn í bíl suður Mrs. Snjólaug Guttormsson, til Bandaríkja. Ætluðu fyrst til frá frá Riverton, stjúpmóðir Gutt-i Minneopolis, og St. 'Paul og það- an til Detroit, Mich, þar sem son- ur þeirra, Mr. Jón A. Bildfell, er nú, og svo ýmsra fleiri staða þar syðra. Gerðu ráð fyrir að vera orms skálds, dvaldi í borginni síð- ustu viku, á heimili þeirra Mr. og Mrs. S. Samson. Mrs. Gutt- ormsson er nú komin yfir áttrætt, en heldur sér framúrskarandi vel, bæði til sálar og líkama. Hún hélt heimleiðis síðastliðinn laug- ardag í bíl með þe'im Samsons- hjónum. Sunnuda^inn þann 14. þ.m. lézt á Almenna sjúkrahúsinu hér í borginni, Björn Björnsson frá Cypress River, eftir tæpa viku- legu. Dó hann úr krabbameini. Líkið var flutt vestur til Cypress River og fór jarðarförin þar fram síðastliðinn þriðjudag. Hiná framliðna verður nánar minst síðar. að he'iman svo sem þrjár vikur. Ferðataska tapaðist nýlega í grend við Winnipeg Beach, Gimli eða Árborg. Á töskunni stð nafn Toronto borgar. Finnand'i vin- samlegast beðinn að skila henni, gegn fundarlaunum,, til Rawlin- son, 49 Balmoral Place, Winnipeg. Eimreiðin. — Þá er annað hefti hennar, fyrir yfirstandandi ár, komið hér vestur, og sent héðan til kaupenda. Er þess óskað, að þeir, sem ekki hafa allareiðu borgð fyrir árganginn, sendi und- irrituðum það gjald ($2.50) við bráðustu hentgleika, því augljóst er t'il þeirra, að fullur helming- ur árskostnaðarins er allareiðu framlagður af útgefandanum, og sem ekkert lætur sparað, til að gjör það fallega úr garði. Arnljótur B. Olson, 594 Alverstone St., Winnipeg. Mr. Grettir Eggertsson, rafræð- ingur, sonur Mr. Árna fasteigna- sala Eggertssonar, er nýkominn ty borgarinnar, í kynnisför til fóður síns, stjúpmóður, systkina og annara frænda og vina. Grett- ir er útskrifaður af háskóla Manitobafylkis, en hefir dvalið tvö síðastliðin ár í Boston, Mass., starfað þar í þjónustu voldugs verkfræðingafélags, og getið sér hinn bezta orðstír. Er hann hinn mesti efnismaður og drengur hinn bezti. Mr. P. Sveinsson á bréf á skrif- stofu Lögbergs. Ungfrú Þorstína Jackson, rit- höfundurinn og fyrirlesarinn góð- kunni, er væntanleg hingað til borgarinnar fyrir mánaðamótin. Er ráðgert, að hún fIytji hér tvo fyrirlestra, annan á íslenzku, en hinn á ensku. Hefir hún meðferð- is yfir hundrað litmyndir að heim- an, þær fegurstu og fullkomn- ustu, sem nokkru sinni hafa sýnd- ar verið. Nánar auglýst síðar. Á miðvikudagskveldið í éikunni sem leið, héldu ungu mennirnir (Young Men’s Club) í Fyrsta lút. söfnuði samsæti, í samkomusal kirkjunnar, og buðu þangað einum af félögunj sínum, Mr. Lincoln Johnson, sem heiðursgesti. Var tilefnið það, að h'inn 19. þ.m. ætl- ar hann að gifta sig og er konu- efnið Miss Pearl Thorolfsson. Kveldverður var fram reiddur og gerðu ungu mennirríir honum góð skil. J. Ragnar Johnson skipaði forsætið og hélt aðal ræðuna fyrir minni heiðursgestsins. Höfum vér það eftir sumum þeirra, er heyrðu, að Ragnar hafi flutt fjör- uga ræðu og skemtilega. Þá tal- aði og John DaVidson og afhenti heiðursgestinum fallegan lampa (Bridge lamp), sem var gjöf frá þeim, er viðstaddir voru, og svar- aði Lincoln með stuttri en skemti- legri tölu. Enn fremur töluðu þeir Kári Bardal, Thor. Melsted, Ed. Baldwinson og Leo Johnson. Hljóðfæraslátt lögðu þéir til bæði mikinn og góðan, George Vigfús- son, Walter Bellows og Art Mc- Phee. Vér höfum það fyrir satt, að ungu mennirnir hafi skemt sér ágætlega, þrátt fyr'ir það, að stúlkurnar voru ekki viðstaddar í þetta sinn, þó gera megi ráð fyr- ir, að þeim sé öllum eins farið, eins og nú er fullsannað, hvað Lincoln snertir, að þeir vilji heldur hafa stúlkurnar með sér en móti. Þ. 8. ág. s.l. lézt að heimili sínu í Framnesbygð í Nýja íslandi, ísak bóndi Jónsson, hátt á fjórða ári yfir sjötugt. Var fæddur í Stapaseli í Stafholtstungum í Borgarfirði syðra, þ. 3. des. 1853. Mun hafa flutt til Vesturheims um eða fýrir 1880. Var að mestu í Dakota um tuttugu ára skeið, eða frá því um 1880 og t'il 1901, að hann og ýmsir aðrir þar að sunn- an fluttu til Nýja íslands og námu Árdalsbygð og Framnesbygð. ísak átti einn son, Aðalstein Sig- urjón; er kona hans Helga Sig- ríður, dóttir Kristins bónda Krist- inssonar, er býr í Framnesbygð, en átti áður heima í Dakota. Hjá- þéim hjónum, syni sínum og tengdadóttur, átti ísak heima, því sjálfur var hann um það hættur búskap. Farinn mátti hann heita að heilsu og kröftum á síðustu tíð og lá rúmfastur frá því á síð- astliðnum vetri. Jarðarförin fór fram frá heimilinu þ. 11. ág. — Séra Jóhann Bjarnason jarðsöng. Stjórn lslands hefir með sím skeyti falið umboðsmanni sínum hér, A. C. Johnson konsúl, að senda blómkrans til að leggja á kistu Stephans G. Stephanssonar skálds, sem viðurkenningarvott frá stjórn og þjóð. Gerði kon súllinn, þegar er hann fékk skeyt ið, ráðstafanir til þess, að þetta væri gert. WONlDERLAND. “The Third Degree” héitir kvik- myndin, sem sýnd verður á Won- derland leikhúsinu fimtud., föstu- dag og laugardag í þessari viku, og þar leikur Dolores Costello að- al hlutverkið. Myndin er mjög spennandi og sýnir ýmislegt, sem tvær fjölskyldur hafa saman að sælda, en sem eru gagn ólíkar og mjög misjafnlega settar í lífinu. Myndin sýnir lífið í New York og kemur þar margt í ljós, sem fáir hafa hugmynd um. Margir kann- ast við Miss Castello frá kvik- myndinni “The Sea Beast” og er þefta í fimta sinn, sem hún leik- ur meiri háttar og vandasöm hlutverk. B j ör gvinss j óður iniu Áður auglýst........... $3,076.93 Rev. H. S'igmar, Mountain 5.00 $3,081.93 T. E. Thorsteinson, féh. Jóns Bjarnasonar skóli. Á hverju ár'i hefir það komið sér vel fyrir nokkra unglinga að fá verustaði í Winnipeg, þar sem þeir gæti unnið fyrir fæði og húsnæði, til þess að stunda hér nám. Án þess hefðu sumir á eng- an hátt getað náð æðri skóla- mentun. Hið sama verður tSIfeU- ið í ár. Vil eg nú biðja alla íslendinga hér í borg, sem hafa í hug að bjóða nemendum þess háttar kjör, að láta mig tafarlaust um það vita. Enn fremur vil eg biðja alla þá nemendur, sem hafa þörf á svona löguðum kjörum, að láta það ekki dragast að segja mér frá því. Ef elfki er kostur á nægi- lega mörgum þess háttar stöðum meðal fslendinga, má vel léita til annara. Auglýsingar um þetta efni í ensku blöðunum, hafa vanalegast haft. árangur, að minsta kosti þegar um stúíkur var að ræða. Rúnólfur aMrteinsson. Tel. 33 923. 493 Lipton St. Wpg. VÍSUR. Batnar tíðin, bráðnar snjór, bjarta lengir daginn. Grænka hlíðir, glitrar sjór, gróðri prýðist haginn. ISólarblossar bjóða títt blómum kossa léða. Vindar hossa vængjum þýtt, vorljóð fossar kveða. Hallgr. Austmann. Á sunnudaginn kemur, hinn 21 þ.m., flytur séra N. !S. Thorlaks son sína kveðjuræðu í kirkju Sel- kirk safnaðar, kl. 11 að morgnin- um. Altarisganga fer fram við þá guðsþjónustu. Það er búist við, að alt safnaðarfólkið, sem mögulega getur, verði viðstatt og allir aðrir eru sömuleiðis vel- komnir. Séra N. S. er nú, eins og kunnugt er, að hætta Við fasta prestsþjónustu, eftir fjörutía ára prestsstarf. Mr. Sigfús Joel og Mr. J. W. Magnusson frá Winnipeg, brugðu sér vestur til Churchbridge, Sask., á föstudagskveldið var og sátu gullbrúðkaup þeirra Mr. og Mrs. Eiríks Bjarnasonar á laugarrdag- irín. Mr. Joel er tengdasonur þeirra hjóna. Þeir komu aftur heim á mánudagsmorguninn. TIL ÞÍN. Kvéiktu ljós, já lýstu lá, legðu rós á brautir mínar. Gleddu þá, sem gleðja má, og græddu þá, sem nauðir þjá. Láttu þá, sem liggja í dá, ljósi ná og blómið skína, og vanda um þá, sem Vilja sá villirós í greinar þínar. Melsted. Gerðu svo vel að leiðrétta, (sjá Lögb. síðasta tölublað, 8. bls.): Snorri Kjernested er sonur Hall- dórs Kjernested og Sigrúnar konu hans frá Kjalvík — ekki Kjólsvík, eins og stóð í blaðinu. Sig. Ö. Mr. Stefán Eiríksson frá Blaine, Wash., var nýlega skorinn upp á Almenna sjúkrahúsinu hér * í borginni. Dr. B. J. Brandson gerði pppskurðinn. Er Mr. Ei- ríksson á góðum batavegi. Sunnudaginn 28. ágúst prédik- ar séra H. Sigmar í Brown, kl. 3 e. h. Við þá guðsþjónustu fer fram ferming og almenn altaris- ganga. Þann sunnudag verða ekki aðrar guðsþjónustur í presta- kalli séra Haraldar. VAKA. Tímarit handa Islendingum, frægðandi og fjölbreytt að efni, hefir oss nýlega borist í hendur, frá útgefendunum, og kunnum þeim beztu þakkir fyrir. Er þetta júlíheftið, en innihaldið, sem hér seg*ir: Jóhann Sigurjónsson: Sorg, kvæði. Sigurður Nordal: öræfi og öræfingar. Jón Pálsson: Hornriði og fjall- sperringur. Ágúst H. Bjarnason: Framfar- ir síðustu fimtíu ára. ólafur Lárusson: Stjórnar- skrármálið. Baugabrot: Sigurd Ibsen: Veiðihundurinn. Chesterton: Um að elta hattinn sinn. Alpha: Málað andlit. Orðabelgur — Á. H. B.: Banka- frumvarpið og bankaráðskosning- in. S. N.: Kosningabarátta. Ritfregnir eftir Á. H. B., K. A., G. F., Guðm. G. Bárðarson og Steinþ. Sigurðsson. Kristínar Fró, er nafnið á nýrri Ijóðabók, eftir Kristínu Hansdóttur hér í borginni. Er bókin prentuð í prentsmiðju Ól- afs S. Thorgeirssonar, og kostar $1.50. Fæst hún þar til kaups, sem og hjá höf. að 732 McGee St- Oss hefir enn ekki unnist tími til að lesa bók þessa, og höfum því ekkert frekar um hana að segja að sinni. Tvö bréf til Floatnefndarinnar: “Eg meðtók 10 eintök af mynd- 'inni, sem þú sendir mér, í gær- kveldi, svo eg hefi'enga selt enn- þá, en eg sendi þér andvirðið nú strax ($12.50), hvernig sem með söluna fer. — Þúsund þakkir fyr- ir dugnað ykkar og alla frammi- stöðu. íslendingar eru í stórri þakklætisskuld við ykkur.” “Beztu þökk frá okkur hjónum báðum til ykkar nefndarfólks fyr- ir sæmd þá, sem starf ykkar vann þjóðbroti okkar með þáfttöku ísl. í skrúðförinni 1. júlí s.l. — Okk- ur leizt strax í byrjun vel á nefnd- ina, sem valin var. í henni voru menn, sem æfinlega og alstaðar má treysta á fyrir dugnað, ráð- vendni og ráðsnild; einnig var valinn í þá nefnd maður, sem við hyggjum að sé öllum íslendingum í þessu landi fremri að smekkvísi og listfengi. — Svo leggjum við hérmeð 5 dala miða í Floatsjóð- inn.” Til sölu. Fjögur, fimm og sex herbergja hús til sölu í Westurhluta Win- nipegborgar. Beztu skilmálar, sem þekst hafa, á yfirstandandi árstíð. -— Auðveldar mánaðar- afborganir. D. W. BUCHANAN 157 Maryland St. Phone 33 818 Fágœtt kostaboð. Fleiri og fleiri mönnum og kon- um á öllum aldri, meðal alþýðu, er nú farið að þykja tilkomumikið, á- nægjulegt og skemtilegt, að hafa skrifpappír til eigin brúks með nafni sínu og heimilisfangi prer.t- uðu á hverja örk og hvert umslag. Undirritaöur hefir tekið tekið sér fyrir hendur að fylla þessa almennu þörf, og býðst nú til að senda hverj- um sem hafa vill 200 arkir, 6x7, og 100 umslög af íðilgóðum drifhvít- um pappír (water-marked bondj með áprentuðu nafni manns og heimilisfangi, fyrir aðeins $1.50, póstfrítt innan Bandarikjanna og Canada. Allir, sem brúk hafa fyrir skrifpappír, ættu að hagnýta sér þetta fágæta kostaboð og senda eftir einum kassa, fyrir sjálfa sig, ellegar einhvern vin. F. R. Johnson. 3048 W. Ö3th St. Seattle, Wash. THE W0NDERLAND THEATRE Fimtu-Föstu- og Laugardag ÞESSA VIKU Dolores Costello The Third Degree Aukasýning laugardagseftirmiðdag Juvenile Musicians, Singers and Dancers Mánudag Þriðjudag og MiSv.dag Elinor Glyn’s í The Only Thing REBERGI $1.50 06 UPP EUROPIAN PLAN KENNARA vantar fyrir Víðir skóla, No. 1460, í átta mánuði, frá 15. sept. til 15. des 1927, og 1. febr. til síðasta júní 1928. Verð- ur að hafa minsta kosti 2nd class Professional mentastig. Tilboð- uni, sem tiltaki æfingu og kaup, verður veitt móttaka af undir- rituðum, til 30. ágúst þessa árs. Víðir P.O., Man., 30. júlí 1927. J. Sigurðsson,, Sec-Treas. G. W. MAGNUSSON Nuddlæknir. 607 Maryland Street OÞriðja hús norðan við Sarg.) Prone: 88 072 Viðtalstími: kl. 3-7 e.h. og á Sunnudögum frá 11-12 f.h. Exchaagi Taxi Sími 30 500 $1.00 fyrir keyrslu til allra staða innan bæjar. Gert við allar tegundir bif- reiða, bilaðar bifreiðar dregnar hvert sem vera vill. Bifreiðar geymdar. WankFng, Millican Motors, Ltd. Til leigu, þrjú góð herbergi í Apartment Block, helzt með hús- munum. Bæði herbergin og hús- munirnir eru í ágætu standi. Leiguskilmálar aðgengilegir. Er byggingin örskamt frá sporbraut, I skemtigarði og Almenna sjúkra-| húsinu. Mjög hentugt pláss fyr-j ir tvær stúlkur. Upplýsingar gef- ur 1 Finnur Johnson, The Colum- bia Press, 695 Sargent Ave. LELAND HOTEL City Hall Square TALS.A5716 WiNNIPEG FRED DANGERFIELD, MANAGER r The Viking Hotel 785 Main Street Cor. Main and Sutherland Herbergi frá 75c. til $1.00 yfir nóttina. Phone J-7685 i CHAS. GUSTAFSON, eigandi ; Ágætur matsölustaður í sam- ; bandi við hótelið. “Það er til ljösmynda smiður í Winnipeg” Phone A792I Eatons opposite W. W. R0BS0N 317 Portage Ave. KennedyBldg ÞJÓÐLEGASTA Kaffi- og Mat-söluhúsið sem þossl borg beflr nokkurn túna baft lnnan vébanda slnna. Fyrirtaks máltí8ir, skyTb pönnu- kökui, rullupylsa og þjóCrfeknls- kaffi. — Utanbæjarmenn íá sé. avalt fyrst hressingu á WEVEL CAFE, 6i)2 Sargent Ave Stmi: B-3197. Kooney Stevens, elgandá. GIGT Ef þu hefir glgt og þér er llt bakinu eða f nýrunum, þá gerCir þfl rétt I aö fá þér flösku af Rheu matic Remedy. Pað er undravert Sendu eftir vttnisburBum fólks, sevn hefir reynt þaö. $1.00 fiaskan. Pöstgjald lOe. SARGENT PHARMACY Ltd. 709 Sargent Ave. Phone A3455 LINGERIE VERZLUNIN 625 Sargent Ave. Látíð ekki hjálíða að líta inn í búð vora, þegar þér þarfnist Lingerie eða þurfið að láta hemútitcha. Hemstitching gerð fljótt og vel. lOc Silki. 8c.Cotton Hár krullað og sett upp hér. GCNNLACGSSON, RtgnoOl Winnipeg mrs. s. Talsími: 26 126 G. THOMIS, C. THUSDN A. SŒDAL PAINTER and DECORATOR Contractor Painting, Paperhanging and Calsomining. 475 Toronto St. Ph.: 34 505 C. J0HNS0N liefir nýopnað tinsmiðaverkstofu að 675 Sargent Ave. Hann ann- ast um ait, er að tinsmíði lýtur og leggur sérstaka áherzlu á aðgerðii á Furnaoes og setu-r inn ný. Sann- gjarnt verð, vönduð vinna og lip- ur afgreiðsla. Sími: N-0623. Heimasími — N-8026. Gefið að Betel í júlí. S. A. Sigvaidason, Ivanhoe, Minn.....................$20.00 G. S. Bardal, Ivanhoe, Minn 5.00 Mr. og Mrs. R. Marteinsson 5.00 Miss Guðbj. Goodman, Glen- borro, ................... 2.00 Mr. og Mrs. J. H. Paulson, Lampman P.O., Sask..... 10.00 Mrs. Ásta Regoul, Winnipeg, í minningu um móður sína, Mrs. O. Freeman........... 5.00 Mrs. J. Julius, Winnipeg.... 2.00 Bjarni Jónsson, Selkirk .... 2.00 Ólafur Freeman, Wpeg .... 5.00 Mrs. Halldóra Gunnlaugson, Winnipeg ................. 1.00 Mrs. Björg Johnson, Wpeg 1.00 Mrs. A. Benson, Bottineau, North Dakota....'........ Mrs. W. Freeman, Bisbee.../ Mrs. G. Freeman, Bisbee .... Mr. og Mrs. Helgi Jónsson, Winnipeg................. Mr. og Mrs. Dr. A Blöndal 10.00 Mrs. G. Egilson, Árnes P. O. ull, $8.00 virði. Vinkona frá Winnipeg, rúm- fatnað, $35 virði. Miss S. Thorlacius, Wpeg.... 7.00 Gefið til féhirðis: Rev. Kolb. Sæmundsson .... 10.00 Mr. S. Stévenson, N. Y..... 5.00 Wlnnilega þakkað. J. Jóhannesson, 675 McDermit Ave., Wpeg. 5.00 5.00 5.00 1.00 $50.00 verðlaun Ef Mér Bregst að Græða Hár. ORIENTAL HAIR ROOT HAIR GROWER Frægasta hármeðal í heimi. Sköll- óttir menn fá hár að nýju. Má ekki notast þar sem hárs er ékki æskt. Nemur brott nyt í hári og aðra hörunds kvilla í höfðinu. $1.75 krukkan. Umboðsmenn óskast. Prof. M. S. Crosse 839 Main St., Winnipeg, Man. RDSE HEMSTiTCHING SHQP GleymiiÖ ek'k! ef þiö ihafiö, sajuma eöa Hemstiching eöa þurflö aö láta yílrklæöa hnappa aÖ koma meö þaö tifl :804 Sargent Ave. Séretakt athygll veitt ma.lt orders. Verö 80 bómuLl, 1 Oc sílkl. HELGA GOODMAN. elgandi. Við seljum úr, klukkur og ýmsa gull og silfur-rriuni, ódýrar en flestir aðrir. Allar vörur vandaðar og ábyrgðar. Vandað verk á öllum úr- aðgerðum, klukkum og öðru sem handverki okkar tilheyrir. Thomas Jewelry Co. 666 Sargent Ave. Tals. 34 152 Blómadeildin Nafnkunna Allar tegundirfegurstu blóma við hvaða tækifaeri sem er, Pantanir afgreiddar tafarlaust Islenzka töluð í deildinni. I4iingja má upp á sunnudög- um B 6151. Robinson’s Dept. Store, Winnipeg DRS. H. R. & H. W. TWEED Taimlæknar. 406 Standard Bank Bldg. Cor. Portage Ave. og Smith St. Phone A-6545 Winnipeg Sendið korn yðar til UNITED grain GROWERS E- M Sumarhitinn er hœttulegur Maturinn skemmist flJOt- lega á þessum heitu dcjgum, og skemdur matur spillir heilsunni. Gætið matarins og vernd- ið heilsuna meö Is—vanræk- ið þaö ekki, þaö kostar lítið. Pantiö Isínn og isskápinn í dag; þægilegir borgunar- skilmálar. ADrrir Strong, Reliable Business School MORE THAN 1500 ICELANDIC STUDENTS HAVE ATTENDED THE SUCCESS BUSINESS COLLEGE OF WINNIPEG SINCE 1909. It will pay you again and again to train in Win- nipeg where employment Is at its best and where you can attend the Success Business College whose graduates are given preference by thousands of em- ployers and where you can step right from school into a good position as soon as your course is finished. The Success Business College, Winnipeg, is a strong, reliable school—its superior service has resulted In its annual enrollment greatly exceeding the combined yearly attendance of all other Business Colleges in the whole province of Manitoba. Open all the year. Enroll at any time. Write for free prosþectus. Meyers Studios 224 Notre Dame Ave, Allar tegundir Ijós- mynda ogFilms út- fyltar. Stœrsta Ljósmyndastofa í Canada < W##/ Bank of Hamilton Chambers WINNIPEG Lougheed Building CALGARY Fáið beztu tryggingu sem hugsanleg er. BUSINESS COLLEGE, Limited 385y2 Portage Ave. — Winnipeg, Man. sasasasaia'^sasasasasasas'asHSHSHS » 3a>asas i Frá gamla landinu, Serges og Whipcords við afar sanngjörnu verði. Sellan & Hemenway MERCHANT TAILORS Cor. Sherbrook og William Ave. Phone N-7786 CIMDMNMCIFIC NOTIT) Canadian Paciflo eimsklp, þegar þét feröist til gamla landslns, fslanda, eða þegar þér sendið vinum yöar far- Sjald til Canada. Ekkl hækt a» fá betri aðbúnaS. Nytlzku sklp, útibúin meö öllum þeim þægindum sem skip má velta. Oft farlð á milli. Fargjald á þriðja plássl mllll Can- ada og Keykjavíkur, $122.50. Spyrjist fyrir um 1. og 2. pláss far- gjald. Leitið frekari upplýsinga hjá um- boðsmanni vorum á staönum et)< skrifiö W. C. CASEY, General Agrant, CaiuuUan Paelfo Steamshlps, Oor. Portage & Main, Wbinlpeg, Man. eða H. 8. Bardal, Sherbrooke St. Winnlpeg

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.