Lögberg - 26.01.1928, Page 7

Lögberg - 26.01.1928, Page 7
LíöGBERG, FIMTUDAGINN 26. JANÚAR 1928 B1&. 7. Einingarhugsjónin í *ögu Norðmanna Eftir Torkell I. Lövland, ræð.m. Á stofnfundi “Félags Norð- manna í Reykjavík” 18. okt. 1927, flutti Torkell I. Lövland ræðis- maður einkar fróðlegt erindi um einingarhugsjónina í sögu Norð- manna. Skýrði hann einkar ítar- lega frá viðburðuum 1905, þegar Norðmenn fengu sjálfstæði sitt aftur að fullu, og bygði >ar með- fram á heimildum, sem til þessa hafa verið litt kunnar. Noregur sameinaðist í eitt ríki eftir orustuna í Hafursfirði, sem venjulega er talið að hafi staðið 872. 'Hefir þó merkasti núlifandi sagnfræðingur Norðmanna, Halv- aan Koht, leitt ýms rök að því að orusta þessi hafi staðið nokkrum árum síðar, en það skiftir ekki máli í þessu sambandi. Eftir fall Ólafs konungs helga á Stikklastað festist ríkiseiningin á ný; síðar jók Sverrir konungur konungs- valdið og hámarki sínu náði Nor- egsveldi hið forna á dögum Há- konar gamla. En þá fer að halla undan fæti og bráðlega hefst hið hikla niðurlægingartímabil í sögu Noregs, 400 ára nóttin, sem Hen- rik Ibsen kallar, í Per Gynt, og landið komst undir andleg og ver- aldleg yfirráð Dana. Dönsk tunga breiddist út í landinu, einkum með siðbótinni, því lítið var. prentað annað en guðsorðabækur, og þá vitanlega á dönsku. Það voru ekki nema sveitabygðir, og þá helst þær afskektustu, sem héldu trútt við tungu sína, sem þó vitanlega breytltist smátt tog \smátt. En þegar fer að líða á 18. öldina fer þ.jóðinj að rumska fyrir alvöru og raddir þeirra hugsjónamanna, sem þá létu til sín heyra, voru fyrir- boði nýs tíma. Árið 1811 kom fram fyrsti árangurinn af þjóðernis- vakningunni þá var háskólinn í Ósló stofnaður, en hann hefir sið- a verið ein hin mesta lyftistöng r.ndlegra framfara og þjóðernis- þroska í landinu. Með friðnum i Kiel var Noreg- ur afhentur Svíum eins og hver önnur nýlenda. Stórveldin stóðu á bak við þá ráðbreytni. Danir urðu að sæta kostum hins sigarða, en Svíar, sem verið höfðu bandamenn Napoleons, fengu sigurlaunin þar sem Noregur var, og voru þau svo ríflega úti látin til þess að bæta Svíum upp missi Finnlands, sem þeir höfðu orðið að láta af hendi við Rússa. En Norðmenn mót- roæltu vitanlega þessum aðförum og tóku Kristján Friðrik rinz til konungs yfir sig, og sömdu stjórn- arskrá, er enn þá gildir í flestum atriðum. Er hún eftirtektarverð fyrir það, hve ákvæði hennar eru frjálsleg í samanburði við þáver- andi grundvallarlögannara þjóða. Hefir stjórnarskráin norska verið talin frjálstegasta stjórnarskrá Evrópu, alt þangað til lýðréttis- hugmyndin sigraði í ýmsum lönd- um eftir lok ófriðarins mikla. — Til dæmis voru aðalsréttindin úr logum numin 1821, en sumstaðar í öðrum löndum gilda þau enn. Konungdómur Kristjáns Friðriks varð skammgóður og varð hann að hröklast úr sessi, með því að all- ar tilraunir til að leita styrks hjá stórveldunum, urðu árangurslaus- ar. En verk Eiðsvallarmanna 1814 bar þó mikinn árangur, því svo samhuga stóðu þeir, að Svíar sáu sér ekki fært að malda í mó- inn og í stað þess að verða jafn- ósjálfstæðir og þeir áður höfðu verið í sambandinu við Dani, þá íengu þeir eftir 1814 fult sjálf- stæði í innanlandsmálum sínum og stjórnarskráin, sem þeir höfðu samið handa hinu alsjálfstæða konungsríki, hélzt óbreytt í flest- um atriðum, eftir að löglegt sam- band var komið á. En út á við voru Svíar “yfirþjóðin” og sænsk- ir menn fóru með utanríkismál Norðmanna. Sakir ókunnugleika binna sænsku erindreka á norsk- um málum, urðu oft tilfinnanleg raistök á meðferð utanríkismál- anna. Er “Bodö-málið” einkum frægrt orðið, en út af því urðu Norðmenn að greiða stórfé vegna handvammar hinnar sænsku ut- anrfksstjórnar. Sjálfstæðis meðvitundin óx smám saman byr fram á síðari hluta aldarinnar sem leið, en fór þó hægt. Noregur átti við mjög hægláta og værugjarna embættis- mannastjórn að búa og almenn- ingur réði litlu um stjórnmál. En nú er Johan Sverdrup, hinn mikli þjóðræðis- og sjálfstæðishöfðingi, kominn til sögunnar og 1884 fell- ur ríkisréttardómur á þáverandi stjórn, ráðuneyti Selmers. Em- bættismannavaldið var fallið, en lýðræði og þingræði komið i stað- inn. Sverdrup var tvímælalaust mesti stjórnmálahöfðingi Noregs á öldinni sem leið, þó ekki tækist honum hið sama, sem Chr. Mich- elsen tókst 1905: að sameina alla norsku þjóðina. En svo mikið var þó vald hans, að honum tókst að auka sjálfstæði landsins, t.d. með haráttu sinni gegn þeirri skoðun, sem kom fram hjá Svíum og sum- um Norðmönnu, að konungur gæti synjað staðfestingu eigi að eins á almennum norskum lögum, held- ur og á stjórnarskránni. Sverdrup hélt því fram, að konungur hefði engan rétt til að synja stjórnar- skrárbreytingum staðfestingar og hvað lög snerti hefði hann að eins frestandi synjunarrétt. Og sú skoðun vann sigur. Skömmu seinna fer að rísa deila sú, er í raun réttri varð upphaf viðburðanna 1905: konsúlamálið. Norðmenn kröfðust þess, að mega sjálfir annast að einhverju leyti erindrekstur erlendis og enn- fremur að norski fáninn hreinn fþ. e. án sambandsmerkis), skyldi viðurkendur á heimshöfunum, en þessu svöruðu Svíar með bláköldu nei. Um þær mundir sem deila þessi hófst, voru Norðmenn alls ekki undir það búnir að ná rétti sínum með valdi, svo að í ófriði hefðu þeir eflaust farið halloka. En eftir stjrnarfarslegan sigur 1865 taka þeir að bæta hervarnir sínar, herinn fær ný vopn og góð og virkin við Kongsvinger og Fredérikssen, sem bæði vita að ladamærum Svía, voru endurbygð mjög rammbyggilega og ný virki, bygð við landamærin, í örje, Dingsrud og Hjelmkollen. Átti Georg Stang mestan heiðurinn af þessu. En mjög voru þeir í mikl- um meiri hluta, sem vildu halda áfram samningunum við Svía, og þar á meðal menn eins og Björn- son, Sig. Ibsen og Michelsen. — Stjórnin, sem mynduð var 1903 hafði á stefnuskrá sinni: “Aðeins að semja.” Þá er það, að Michelsen tekur upp hina gömlu vinstristefnu, sem hann kallar: að finna nýjar leiðir og setja sér ný markmið. Annað- hvort að fá konsúlamálinu fram- gengt eða rjúfa sambandið við Svía. Og loksins snemma á ár- inu 1905 sameinast allir flokkar um þessa stefnu og Michelsen myndar sterkustu samsteypu- stiórnina, sem nokkurn tíma hefir setið i Noregi. Þingið samþykkir konsúlslögin og sendir þau konungi til undir- skriftar 27. maí. Norðmenn væntu þess, að konungur mundi láta undan síga þeim eindregna þing- vilja, er að baki stóð. En hann neitaði að undirskrifa lögin. Ten- ingunum var kastað. Það var Jörgen Lövland, sem þá var “statsminister” Norðmanna í Stockholmi og bar frv. fram fyr- ir konung. óskar konungur var þá nýtekinn við ríkisstjórn á ný eftir langvinn veikindi og var alls ekki heilbrigður. Jafskjótt og hann neitaði að undirskrifa, til- kynti Lövland, að hann legði nið- ur völd sín og fyrir alla stjórn- ina. Þegar bóka skyldi neitun konungsins, sem jafnframt skyldi undirskrifuð af Lövland, benti hann konungi á, að með því að hann hefði lagt niður völd, gæti hann ekiki undirskrifað. Kon- ungur vildi ekki fallast á þetta, en. þá greip krónprinsinn, núver- andi Svíakonungur fram í og sagði: Jú, Lövland hefir rétt fyr- ir sér. Gekk þá fyrst uþp fyrir konungi hvað skeð væri: að hann væri orðinn þess ómegnugur að gefa út skipanir, er Noreg vörð- uðu. Gekk hann þá af fundi, án þess að kveðja, en varð litið aftur í dyrunum og sá, að krónprinsinn tók í höndina á Lövland. Sneri hann þá við og kvaddi einnig. Leið nú og beið rúma viku, án þess að konungi tækist að fá neinn til- að mynda stjórn, enda var ekki við því að búast, svo einhuga sem þing og þjóð var í málinu. En þessa daga var unnið osleitilega í ósló, og loks aðfaranótt 7. júní tókst að yfirbuga mótstöðu sjö þ'ngmanna, sem hræddir voru við að leggja út í skilnað. — Morgun- inn eftir var haldinn hinn merk- asti fundur i sðgu norska stór- þingsins og stóð hann ekki nema rúman klukkutíma. — Las Berner forseti þar upp tilkynningu þess efnis, að þar eð konungur hefði neitað að taka við lausnarbeiðni stjórnarinnar, hefði hún lagt völd sín í hendur þingsins, sem hins rétta aðila í stað konungsválds- ins. iSiðan samþykti þingið sam- hljóða tillögu forseta um, að fela stjórninni að fara með völdin, ekki að eins venjuleg ráðneytis- völd, heldur og völd þau, er áð- ur hefðu verið hjá konungi. Stórtíðindin er gerst höfðu flugu í einu vetfangi um allan heim. Út í frá voru aðgerðir þingsins kall- aðar bylting og er óskar konung- ur heyrði fréttina, varð honum að orði: “Það er hafin stjórnarbylt- ing í Noregi.” — En Norðmenn sjálfir töldu sig ekki hafa gert annað en þeir höfðu fulla heim ild til, samkvæmt stjórnarskrá ríkisihs. Um alt land var úrslit- unum fagnað einhuga, eins og líka mátti sjá af atkvæðagreiðslunni síðar um sumarið, er segja skyldi til um, hvort þjóðin væri sam- þykk gerðum stórþingsins 7. júní. Aðeins 184 atkvæði sögðu nei. Seinni hluta sama dags var aft- ur haldinn fundur í stórþinginu til þess að semja ávarp til þjóðar- innar og næsta helgan dag á eft- ir, 11. júní, sem var hvítasunnu- dagur , var haldin þakkarguðs- þjónusta og boðskapur þingsins fluttur frá öllum aðalkirkjum í landinu. En þá var máske mestur vand- inn ennj eftir. — Hvernig mundu Svíar taka þessu? Mundu þeir sætta sig við það sem orðið var, eða grípa til vopna? Yissulega munaði það ekki nema hársbreidd, að stríð yrði milli bræðraþjóð- anna, og að því var afstýrt, má mest þakka fyrirhyggju stjórnar- innar og þar næst ötulu starfi nokkurra sænskra friðarvina. Jafnframt því, að Michelsen var formaður ráðuneytisins, var hann i raun réttri forseti hins kon- ungslausa ríkis frá 7. júní þang- að til að Hákon konungur kom til Noregs 25. nóvember um haustið. Stjórnin hafði haft viðbúnað til að taka afleiðingunum af ríkis- slitaákvörðuninni; t. d. hafði hún haft leyni-erindreka erlendis til þess að tala máli Norðmanna hjá stórveldunum og tryggja Noregi viðurkenningu þeirra. — Helstir þeirra, sem unnu að þessu, voru þeir sendiherrarnir Wedel-Jarls- berg og Vogt, Friðþjófur Nansen, dr. Urbye, nú sendiherra í Moskva og Johs. Jurgens, núverandi sendi herra í Róm. Af erlendum stjórn- málamönnum með stórveldunum, má ekki sízt þakka Landsdowne lávarði og utanríkisráðherra Dana Aaben-Lewetzau greifa, fyrir gott starf og að alt fór friðsamlega að lokum. í Svíþjóð var stór flokkur manna, sem ávalt hafði staðið á móti öllum norskum kröfum og se nú vildi hefja strið við Norð- menn fyrir hvern mun. Var Rappe hershöfðingi foringi þessara ó- friðarseggja. Norðmenn voru, vegna umbóta þeirra, sem gerðar höfðu verið á hernum og virkjum, eftir 1895, allvel undir ófrið bún- ir, og skal ósagt látið hvernig úr- slitin hefði orðið, þó til ófriðar hefði komið. En líka voru í Sví- þjóð áhrifamiklir menn, sem tóku öflugt í strenginn gegn ófriði, t.d. Hjalmar Branting og hinn göfugi stjórnmálamaður Adolf Hedin, sem; kallaði ófrið við “bróðurmorð.” Norðmenn Fulltrúar Svía og Norðmann.i setust á ráðstefnu í Karlstad um sumarið og gekk þar í miklu þófi. Meðal fulltrúa Norðmanna var Jörgen Lövland, sem 15. júní um vorið hafði tekið að sér forstöðu hins nýja norska utanríkisráðu- neytis. Bréf þau og skeyti, sem fóru á milli hans og Adolf Hedin um þær mundir, sýna með átakan- legum hætti hinn einlæga friðar- vilja dauðsjúks manns, sem þrátt fyrir miklar líkamlegar þjáning- ar er sívinnandi að því að varð- veita friðinn. (Því miður verður að sleppa þeim úr þessari endur- sögn á fyrirlestrinum). Hedin dó þetta sama sumar, 20. september, en friðnum var þá borgið. Lengst stóð í þófi um kröfu þá, er Svíar gerðu til Norðmanna, að þeir rifu niður virkin á landamærunum. — Norðmenn gengu um síðir að þeirri kröfu, og engan mun iðra þess nú. Það er vitanlega ómögulegt að gefa glögga mynd af því, hvern- ig áhrif íregnin mikla h'afði á þjóðina 7. júní. Henrik Verge- land kemst svo að orði í smáriti einu um viðburðina 1814: “Ynd- islegra ár hefir engin þjóð upp- lifað en Norðmenn 1814. Fingur guðs sést í viðburðum þess. Þess vegna á tilfinning trúarkends þakklætis að blandast gleði þjóð- arinnar á frelsishátíð hennar.” — Með sama réttii má heimfæra orð þessi tiL viðburðaanna /1905 og úrslita þeirra, sem á því urðu. Meðan Norðmenn voru í sam- mandi við Danmörku, rúm 400 ár, og við Svíþjóð í 91 ár, gafst oft tilefni til væringa. En síðan Norð- menn fengu fult sjálfstæði sitt og hafa leyst tengslin við Svía á frið- samlegan hátt, hefir samkomulag þjóðanna og vinfengi verið betra en nokkru sinni fyr. Og allir þeir Norðmenn, sem til ábyrgðar finna, kosta einmitt kapps um að lifa í friði við hinar norðlægu þlóðirnar líka, og þá fyrst og fremst íslenzku þjóðina og dönsku Sem einkunnarorð Norðurlanda samvinnunnar vildi ræðumaður taka orð Bjðrsons 1 hinu fagra kvæði hans: Elsk din næsta, du kristen sjæl, træd ham ikke med jernskodd hæl, ligger han end i stövet! ti alt som lever er underlagt kjærlightens gjenskaper magt, blir den bare prövet. —ÍLesb. Mbl. Náttúran. (Goethe.) Náttúra! Hún umlykur og um- faðmar okkur — við getum ekki komist út úr henni, og við getum ekki komist dýpra niður í hana. Óbeðið og fyrirvaralaust tekur hún okkur I hringdans sinn og snýr okkur áfram með sér, unz við þreytumst og hnígum úr hendi hennar. Hún skapar endalaust nýjar myndir; það sem er,. var aldrei áður, það sem var, kemur ekki aftur; alt er nýtt og þó ávalt hið sama. Við lifum mitt í henni og erum henni ókunnugir. Hún talar við okkur í sífellu, en lætur ekki upp við okkur leyndardóm sinn. Við orkum í sífellu á hana, og höfum samt ekkert vald yfir henni. Hún virðist hafa haft allan hugann á einstaklingseðlinu, og henni verður ekkert úr einstak- lingunum. Hún byggir 1 sifellu, og eyðir í sífellu, og að vinnustöð hennar verður ekki komist. Hún lifir í eintómum börnum, en móðirin, hver er hún? Hún er völdundurinn mikli; úr einfaldasta efni vinnur hún stærstu andstæð- ur, h'inni i'mestu fullkomun nær hún, án þess að virðast hafa nokk- uð fyrir; hinni nákvæmustu á- kvörðun nær hún, ávalt hjúpuð einhverjum mjúkleika. Sérhvert verk hennar hefir sitt eðli, hvert fvrirbrigði hennar er algerlega sérstætt, og þó er alt eitt. Hún leikur sjónleik. Hvort hún sér hann sjálf, vitum við ekki, og þó leikur hún hann fyrir okkur, sem stöndum úti í horni. í henni er eilíft líf, verðandi og hreyfing, og þó miðan henni ekk- rt áfram. Hú ummyndast að ei- lífu, og ekkert augnablik er kyrr- staða í henni. Stöðugleika þekkir hún ekki, og bölvun sína hefir hún lagt við kyrrstöðuna. Hún er ákveðin; skref hennar eru föst, undantekningar hennar sjaldgæf- ar, lög hennar óbreytaleg. Hugsað hefir hún og íhugað í sí- fellu, en ekki eins og maður, held- ur eins og náttúra. Hún geymir sér sinn ákveðna allsherjarskiln- ing, sem enginn getur ráðið í. Mennirnir eru allir í henni, og hún í öllum. Henni ferst vingjarn- lega við alla, og hún gleðst, þvi meira sem menn vinna af henni. Við marga leikur hún svo á huldu, að hún leikur til enda áður en þeir taka eftir því. Einnig hið ónáttúrlegasta er náttúra, einnig hinn aumasti odd- borgaraskapur hefir eitthvað af snildaranda hennar. Sá sem sér hana ekki alstaðar, sér hana hvergi rétt. Hún elskar sjálfa sig, og festir endalaust óteljandi augu og hjörtu á sjálfri sér. Hún hefir lagt sig fram, til þess að njóta sjálfrar sín. Sífelt lætur hún nýja njót- endur vaxa, óþreytandi að gefa sig til kynna. Hún gleðst yfir blekkingunni. Hverjum þeim, sem eyðir blekk- ingunni í sjálfum sér og öðrum, refsar hún eins og grimmasti harðstjóri. Þeim, sem fylgir henni með trausti, þrýstir hún eins og barni að hjarta sínu. Börn hennar eru óteljandi. Eng- um synjar hún alls, en hún á eft- irlætisgoð, sem hún veitir óspart gjafir sínar og leggur mikið í söl- urnar fyrir. Hún heldur vernd- arhendi sinni yfir hinu stóra. Hún þeytir börnum sínum fram úr óskapnaðinum, og segir þeim ekki hvaðan þau koma né hvert þau fara. Þau eiga að halda á- fram; brautina þekkir hún. Hún hefir fáa aflvaka, en aldrei útslitna, sístarfandi, sífjöl- treytta. iSjónleikur hennar er ávalt nýr, af því að hún skapar ávalt nýja áhorfendur. Lífið er fegursta uppfynding hennar, og dauðinn er sjallræði hennar til þess að fá sem mest líf. Hún sveipar manninn í dimmu og knýr hann endalaust í áttina til Ijóssins. Hún getir hann háðan jörðunni, tregan og þungan, og kýr hann alt af upp aftur. Hún veitir þarfir, af því að hún elskar hreyfingu. Undravert, að hún skuli koma allri þessari hreyfingu af stað með svo litlu! Hver þörf er velgerð, sem er fljótt fullnægt og vakin fljótt á ný. \'eiti hún nýja þörf, þá er það ný uppspretta nautnar; en hún kemst brátt í jafnvægi. Á hverju augnabliki tekur hún hið lengsta tilhlaup og á hverju augnabliki hefir hún náð mark- inu.. Hún er sjálfur hégóminn, en ekki fyrir okkur, því að okkur hefir hún gert sig mikilvægasta af öllu. Hún lætur hvert barn leika að sér, hvern heimskingja dæma um sig, þúsundir ganga sinnulausar yfir sig, án þess að sjá neitt, og af ðllu' hefir hún ánægju, í öllu sér hún sér hag. Menn hlýða lögum hennar, einnig þá er menn spyrna móti þeim; menn starfa með henni, einnig þegar þeir vilja vinna á móti henni. Alt, sem hún gefur, gerir hún að velgerð, því að hún gerir það fyrst ómissandi. Hún bíður, svo að menn þrái hana; hún flýtir sér, svo að menn verði ekki leiðir á henni. NÆTURGISTING. Að bygðum eitt sinn bera bærinn stóð við sjó á grænu láði. Drepa högg á dyr mér varð að ráði, dagsett var, þá næturhvíld eg þáði. Út kom bóndi’ að ætlan minni gáði, ekki hýr var fólinn sinnis bráði; á kollhettuna kauðans víða gljáði, hún kámug var, eg allvel að því gáði, hans, á fötum hver þar saumur fláði, hvítum, svörtum stagað alt með þráði. Eg húsa beyddist, hann því valla jáði, hnussa nam, í allar áttir gáði. Marnum hófa mjög hann lítið stráði, moðrusli á stallinn niður sáði, í baðstofuna bauð hann mér, eg þáði, brúðurin hans á gólfi vefinn kljáði, af kulda börnin kaunin ofmjög þjáði, því konu tetrið engan gluggan skjáði; ullar reitur eg um kvöldið táði, þó ekki væri það að einu ráði. borinn var inn bruðningur* og gráði, Býsn af þessu hafði hver hver sem náði, svo^dan réttur1 sagði eg væri dáði, seggurinn tók það gjörvalt upp með háði, hann ýgldi sig, sem ekki góðu spáði, ekki neitt samt vont eg við hann rjáði. Tif rúms mér fylgdi snúðuglegur snáði, snart að segja þegar eg fötum náði, flær og annað fleira við mig rjáði, ferlegt stríð svo nógur gafst mér kláði; þá morgna tók eg mig í burtu hrjáði, mér það se'nna enginn heldur láði; alt í kring um kotið vatnið fláði, klárnum nærri hvergi þar eg áði. Hjónin þessi nú þótt enginn náði, nóg var gott að einhver um þau skráði. *) Soðin fiskbein. — Þula þessi er eignuð Hall- grimi Péturssyni. J. K. Kárdal. Hún hefir enga tungu né mál- færi, en hún skapar tungur og hjörtu, sem hún talar með og finnur til í. Kóróna hennar er ástin; að eins í ástinni er unt að komast nærri henni. Hún leggur djúp á milli ailra vera, og alt leitast við að sameinast. Hún hefir einangrað a!t, til þess að draga alt saman. Með fáeinum tygum úr bikar ást- arinnar, bætir hún fyrir líf fult af mæðu. Hún er alt. Hún umbunar sjálfri sér og refsar sjálfri sér, gleðst og kvelur sjálfa sig. Hún er hörð og mild, yndisleg og hræði- leg, máttvana og alvoldug. Alt er alt af til í henni. Fortíð og fram- tíð þekkir hún ekki. Nútíð er henni eilífð. Hún er gæzkurík. Eg vegsama hana með öllum verk- um hennar., Hún er vitur og kyr- lát. Menn hrifsa ekki af henni neinar skýringar, ógna henni ekki til að gefa neinar gjafir, sem hún gefur ekki af frjálsum vilja. Hún er kæn, en í góðum tilgangi, og bezt er að taka ekki eftir kænsku hennar. Hún er heil, og þó ávalt ófull ger. Eins og hún er nú, getur hún ávalt verið að. Hún hefir látið mig inn í heim- inn, hún mun einnig leiða mig út. Eg trúi henni fyrir mér. Hún má ráða yfir mér; hún mun ekki leggja hatur á verk sitt. Eg var ekki að tala um hana; nei, það, sem satt er, og það, sem rangt. er, j alt hefir hún talað. Alt er henn-| ar sök, alt er hennar verðung. Yngvl Jóhannesson þýddi. —Eimreiðin. GAMAN OG ALVARA. Ljóðerindi, flutt í samsæti, sem Mrs. Ingibjörgu Peterson var haldið að Betel, Gimli, Man., 30. ágúst, 1927. Eitt sinn hérna um daginn út eg gekk í bæinn. Mér á götu mætti frú. Sögu hún mér sagði, svona í fljótu bragði: að hún ætti enga kú. Mér hún sagði meira, —mega allir heyra: Imba væri orðin gift bóndinn héti Bjarni, býr til net úr garni,— einlífinu öllu svift. Hót eg varð ei hissa — í huganum vildi kyssa þessa ungu, fögru frú. í helgu hjónabandi hennar greiðist vandi, þó hún eignist aldrei kú. Hér er “glatt á Hjalla”, hér er margt að spjalla. um æskufjörið, líf og land. Hér í helgum ranni, hafa sveinn og svanni saman hnýtst í hjónaband. Ungu Ingibjörgu alla reiðu fjörgu, en nú er orðin egtavíf, sögð er þessi saga: sífelt ár og daga: án þín, kona, er ekkert líf. Margur myndi kjósa meyju fagra, ljósa— henni sitja hjá á bekk. OBjarni hlaut nú happið, hart er þreytti kappið, káta fyrir konu fékk. Nú skal minni mæla, má hér enginn skæla, fáein þó eg fleipri orð. ÖIl við óskum yður: Ástin, heiilsa, friður ykkur leiði’ um lög og storð. Hafið nú í huga: hót ei látið buga, mæðu byr þó blási mót. Hér í herrans nafni, hafið guð í stafni, á lífsbát yfir lagar fljót. Nú er búið ballið, burt með ungdóms rallið, alvaran í sæti sezt. Sameinaðar sálir, sætast heimsins málið, það er vandamál—og mest. Ekki að ganga með kvef. ÁTTU ekki vini þína þurfa að minna þig á að losna við kvef- ið. Smittaðu ekki viðskiftavinina og ef til vill þitt eigið fólk. Til að losna við kvef er fljótasti og viss- asti vegurinn að nota PEPS. Þegar Peps taflan leysist upp í munninum, þá gefur hún frá sér holl og græðandi efni. Þeim efn- um andar þú að þér og dregur þau inn í lungnapípurnar og ofan í lungun. Peps gjöra öll andfærin hraust og heilbrigð. Þær hreinsa lungna- pípurnar af óhollum efnum _ og koma í veg fyrir bólgu og sárindi og halda allri hættu frá lungun- um. Taktu engin misgtip. Þú verður að fá Peps töflurnar, með- aliðsembú andar að þér. Peps Fást nú í öllum lyfjabúðum og öðrum búðum. 25c. askjan, með 35 töflum í silfurpappír. Nafnið Peps er á hverri töflu. Guðs og hölda hylli hljótið nú með snilli, ykkur trygða skreyti skart, sem í bæ og bygðum, beitið öllum dygðum, þá mun lífið ljóma bjart. Hér er hjóna skálin, hér mín þagnar sálin, hér við drekkum heill og von. Guð oss alla geymi, gegn um lífs andstreymi: óskar Lárus Árnason. iBið svo: Guð að blessi brúðhjón ungu þessi, veit þeim gleði, vit og þrótt. Héðan geng eg glaður, gamall, blindur maður. Guð gefi öllum: Góða nótt! INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS Amaranth, Man................................B. G. Kjartanson. Akra, N. Dakota...........................B. S. Thorvardson. Arborg, Man..............................Tryggvi Ingjaldson. Árnes, Man. .. ............................F. Finnbogason. Baldur, Man. .. !...............................O. Anderson. Bantry, N.Dakota...........................Sigurður Jónsson. Beckville, Man.............................B. G. Kjartanson. Bellingham, Wash........................Thorgeir Símonarson. Belmont, Man...................................O. Anderson Bifröst, Man...............................Tryggvi Ingjaldson. Blaine, Wash...........................Thorgeir Simonarson. Bredenbury, Sask...........................................S. Loptson Brown, Man....................................T. J. Gislason. Cavalier, N. Dakota.......................B. S. Thorvardson. Churchbridge, Sask..........................................S. Loptson. Cypress River, Man.....................................Olgeir Frederickson. Dolly Bay, Man.............................Ólafur Thorlacius. Edinburg, N. Dakota.........................Jónas S. Bergmann. Elfros, Sask..........................Goodmundson, Mrs. J. H. Foam Lake, Sask............................Guðmundur Johnson. Framnes, Man..............................Tryggvi Ingjaldson. GarSar, N. Dakota.........................Jónas S. Bergmann. Gardena, N. Dakota..........................Sigurður Jónsson. Gerald, Sask................................................C. Paulson. Geysir, Man...............................Tryggvi Ingjaldsson. Gimli, Man.....................................F. O. Lyngdal Glenboro, Man..............................Olgeir Fredrickson. Glenora, Man.....................................O. Anderson, Hallson, N. Dakota.......................Col. Paul Johnson. Hayland, Man..............................................Kr. Pjetursson. Hecla, Man................................Gunnar Tómasson. Hensel, N. Dakota...........................Joseph Einarson. Hnausa, Man.................................F. Finnbogason. Hove, Man.....................................A. J. Skagfeld. Howardville, Man............................Th. Thorarinsson. Húsavík, Man....................................G. Sölvason. Ivanhoe, Minn........................................B. Jones. Kristnes, Sask................................ Gunnar Laxdal. Langruth, Man................................John Valdimarson. Leslie, Sask....................................Jón Ólafson. Lundar, Man.....................................S. Einarson. Lögberg, Sask.....................................S. Loptson. Marshall, Minn.......................................B. Jones. Markerville, Alta................................O. Sigurdson. Maryhill, Man.....................................S. Einarson. Milton, N. Dakota.............................O.O. Einarsson. Minneota, Minn......................................B. Jones. Mountain, N. Dakota.........................Col. Paul Johnson. Mozart, Sask..................................H. B. Grímson. Narrows, Man..................................Kr Pjetursson. Nes. Man.....................................F. Finnbogason. Oak Point, Man...............................A. J. Skagfeld. Oakview, Man.................................ólafur Thorlacius. Otto, Man........................................S. Einarson. Pembina, N. Dakota..............................G. V. Leifur. Point Roberts, Wash............................S. J. Mýrdal. Red Deer, Alta.................................O. Sigurdson. Reykjavík, Man.................................Árni Paulson. Riverton, Man................................Th. Thorarinsson. Seattle Wash...................................J. J. Mýrdal. Selkirk, Man....................................G. Sölvason. Siglunes, Man..................................Kr. Pjetursson. Silver Bay, Man.............................Ólafur Thorlacius. Svold, N. Dakota............................B. S. Thorvardson. Swan River, Man.................................J. A. Vopni. Tantallon, Sask....................................C. Paulson. Upham, N. Dakota.............................Sigurður Jónsson Vancouver, B. C...............................A. Frederickson. Víðir, Man................................Tryggvi Ingialdsson. Vogar, Man.....................................Guðm. Jónsson. Westbourne, Man..............................Jón Valdimarsson Winnipeg, Man.............................Olgeir Frederickson. Winnipeg Beach, Man..............................G. Sölvason. Winnipiegosis, Man.....................Finnbogi Hjálmarsson. Wynyard, Sask................................G. Christianson.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.