Lögberg - 10.01.1929, Side 8
Bls. 8.
LÖGBERG FIMTUDAGINN 10. JANÚAR 1929.
v / ABYGGILEG PENINGA TRYGG-
M ING í HVERJUM POKA.
Robin Hood hveitimjölið
er malað úr bezta úrvals
vorhveiti—því bezta af upp-
skerunni í Vestur-Canada_
RoblnHood
FI/OUR
Ur bænum.
Fimtudaginn 3. jan., voru þau
Alfred Ray Aikenhead frá Nee-
pawa, Man., og Rannveig Elín
Goodman frá Piney, Man., gefin
saman í hjónaband, af séra Rún-
ólfi Marteinssyni, að 493 Lipton
St. Heimili ungu hjónanna verð-
ur að Neepawa.
Um síðustu áramót lézt að heim-
ili sínu að Langruth, Man., hús-
frú Margrét Finnbogadóttir, kona
Erlendar Erlendssonar, þar í
þorpinu. Voru þau hjón meðal
hinna íslenzku frumbyggja í landi
hér. Hin framliðna var jarðsung-
in þann 4. þ.m. af séra H. J. Leó.
Auk ekkjumannsins lætur hin
framliðna eftir sig fjóra sonu og
þrjár dætur. Verður æfiatriða
hennar nánar minst hér í blaðinu
síðar
Hinn 28. f.m. andaðist að 624
Victor 5t., hér í borginni, Mrs.
Ingibjörg Oddson, 85 ára að aldri.
Tarðarförin fór fram á gamlárs-
ag frá útfararstofu A. S. Bar-
^ als. Dr. Björn B. Jónsson jarð-
ing.
Það hræðilega slys vildi til í
Selkirk, Man., á jóladaginn, að
veir menn, sem unnu hjá Can-
a ián Insulating félaginu, duttu
ofan í sjóðheitt strámauk, vegna
þess að pallur, sem þeir stóðu á,
brotnaði undan þ«im. Brendust
þeir svo stórkostlega, að þeir lét-
ust báðir eftir fáa daga. Nöfn
þeirra voru: Marínó Magnússon
31 árs að aldri, kvæntur maður,
og Donald McLeod.
Frónsfundur verður haldinn
þriðjudagskveldið 15. þ.m. í neðri
sal G. T. hússins kl. 8. — Á eftir
starfsfundinum flytur séra Benja-
mín Kristjánsson erindi. — Áríð-
andi mál liggja fyrir fundinum og
er fólk beðið að fjölmenna og
koma í tíma. Nefndin.
Heimsfræga myndin, "Ben Hur”,
verður sýnd af John S. Thorstein-
son á eftirfylgjandi stöðum:
LUNDAR, 11. og 12. jan.
HNAUSA, 15. jan.
ARNESI, 16. jan.
GIMLI, 17. jan.
RIVERTON, 18. og 19. jan.
-Mrs. J. S. Thorsteinson syngur
með myndinni. Mr. Ingar Telmer
leikur á píanó. — Það er óþar|i að
skýra þessa sýningu, því flestum
eða öllum íslendingum er vel kunn
sagan Ben Hur. — Aðgangur 75c.
fyrir fullorðna, 50c. fyrir háskóla-
stúdenta, og 25c. fyrir börn innan
14 ára aldurs.
—Myndin verður ekki sýnd að
Árborg, eins og áður var auglýst.
Mrs. Laxdal
Veitið athygli!
Líknarfélagið Harpa heldur
“Silver Tea” og “Whist Drive” að
heimili Mrs. Johnson, 694 Mary-
land St., þriðjudaginn þann 15. þ.
m„ frá kl. 2—6 e.h. og eftir kl.
8 að kveldinu. Er þess að vænta,
að fólk fjölmenni, því hér er um
sérlega þarfan líknarfélagsskap að
ræða, er veitt hefir mörgum um-
komuleysingjum og sjúklingum
ásjá og aðhlynning. Hafið þetta
hugfast, og látið Hörpu njóta
verðskuldaðs stuðnings við þetta
tækifæri.
Mr. J. J. Bildfell, Dr. Rögnvald-
ur Pétursson og Mr. Þorvaldur
Pétursson, lögðu af stað til
lands á nýársdag.
Frá því hefir þegar verið skýrt
í Winnipeg-blöðunum, að látist
hafi að heimili sínu, 502 Maryland
St. hér í borg, húsfreyja Ingibjörg j
Sigurðardóttir Laxdal, fimtudag-
inn 13. des. síðastliðinn.
Ingibjörg var fædd að Ljárskóg-
arseli í Laxárdal í Dalasýslu, á ís-
landi, 7. dag maímán. árið 1858.
Foreldrar hennar voru þau hjón-
in, Sigurður Sigurðsson og Mar-
grét Egilsdóttir. Þegar Ingibjörg
var 4 ára, misti hún móður sína
og fór þá til afa síns og ömmu,
Egils Jónssonar og Margrétar
jg. > Markúsdóttur, er bjuggu að Horn-
stöðum í sömu sveit. Hjá þeim
var hún til 18 ára aldurs. Var hún
þýðing, eftir það í vistum, þangað til hún
Fór þá
Hefir þú skilið hvaða
rás helztu viðburða hins liðna árs fór til Canada árið 1883.
KENNARA vantar fyrir Siglu-
nes skóla No. 1399, frá 1. febr. til
30. júní. Umsækjandi þarf að
hafa 3rd Class Professional Cer-
tificate. Tilboðum sint til 20. jan.
0. Johnson, sec.-treas.
Vogar P. 0., Man.
Taflbikarinn Islenzki er sá fa.ll-
egasti verðlaunagripur, sem til er
í Canada, og á hr. H. Halldórsson
heiður skilið fyrir þá veglegu gjöf.
—Hefir því komið til umræðu, af
nokkrum taflvinum, að leitt sé að
keppa ekki um áðurnefndan bikar
og tilraun gjörð til að fá Jóns
Bjarnasonar skóla til að tefla í,
og má fullyrða að hann fáist, ef
menn vilja Ijá okkur lið og mæta
á fundi, er haldinn verður í Thom-
as Jewellry búðinni, 627 Sargent
Ave., föstudaginn þann 11. jan.,
kl. 8 e. h. — Fyrir hönd nokkurra
taflvina, C. Thorlakson.
FYRIRLESTUR verður haldinn
í kirkjunni nr. 603 Alverstone
stræti, sunnudagin 13. jnaúar,
klukkan 7 síðdegis. Efni: Fram-
þróunarkenningin bori saman við
kenningu ritningarinnar viðvíkj-
andi uppruna lífsins á jörðinni.
Hvaða áhrif hafa þessar kenning-
ar, hvor um sig, á mannfélagið?
Hvor þeirra er áreiðanlegri ? Er
það fáfræði, sem kemur sumum
mönnum til að trúa sköpunarsögu
Biblíunnar? Er það veruleg
þekking, sem kemur öðrum til að
fylgja framlþróunarkenningunni?
—Komið og heyrið þennan fróð-
lega fyrirlestur. Allir boðnir og
velkomnir! Virðingarfylst,
Davíð Guðbrandsson.
hefir? Ef ekki, þá lestu janúar-j einnig faðir hennar, stjúpa og
númer Stjörnunnar. Stjarnan kost- systkin.
ar $1.50 um árið og fær þú liðinn Þau eru nú öll dáin. Faðir
árgang í kaupbætir um leið og þú . hennar var seinustu ár æfinnar
gjörist kaupandi og sendir inn | hjá Markúsi Jónssyni í Argyle-
andvirðið. Utan'áskriftin er:|bygð. Var kona hans stjúpdóttir
Stjarnan, 306 Sherbrooke St„ Win- Sigurðar. Jóhannes bróðir henn-
nipeg, Manitoba. D. G.. ar, bóndi í sömu bygð, einnig dá-
inn, og sömuleiðis Kristjana sy&t-
ir hennar gift Kristjáni Dalmann
að Baldur, Man.
Hinn 10. jan„ 1885, giftist Ingi-
björg Böðvari Gíslasyni Laxdal,
er lifir konu sína. Er hann úr
sömu átthögum á íslandi, alinn
upp í sömu sveit. Hefir heimili
þeirra lengstaf verið héa í Winni-
peg. Fyrir 40 árum síðan fluttu
þau í húsið 502 Maryland St:, þar
sem þau hafa ávalt átt heima síð-
an, að undanteknum þremur ár-
um, er þau voru út við Manitoba-
vatn. Þegar þau fluttu í það hús,
var fáment á því stræti og mjög
ólíkt umhorfs við það sem nú er.
Með ráðdeild og atorku hafa þau
lifað þar farsælu lífi og börnin
þeirra komist til manns.
Þau eignuðust sjö börn. Þrjú
Stúkan Hekla I.O.G.T., hefir á-
kveðið að halda tombólu og dans,
þann 21. þ.m„ til arðs fyrir stúk-
una. Samkoman verður haldin í
efri sal Good Templara hússin og
byrjar stundvíslega kl. 8 síðdegis.
Hún lofar góðum dráttum og
góðri skemtun, eins og hún er við-
urkend fyrir í liðinni tíð.
Komið! Njótið góðra skemt-
ana og styrkið gott málefni. —
Lesið auglýsingu vora í næsta
blaði. Nefndin.
Vinnukona, sem kann að mat-
reiða, óskast í vist nú þegar til
Mrs. McNulty, 138 Harrow St.
WONDERLAND.
Hinn góðkunni leikari, Ken
Maynard, leikur aðal hlutverkið í
leiknum, “The Glorious Trail” og
þykir honum aldrei hafa tekist
eins vel upp eins og einmitt í þess-
um leik. Þessi kvikmynd verður
sýnd á Wonderland leikhúsinu,
þrjá síðustu dagana af þessari
viku. — Myndin, sem leikhúsið
sýnir þrjá fyrstu dagana af næstu
viku, “The Crowd”, er ein af hin-
um allra tilkomumestu kvikmynd-
um. Efni Ieiksins er hér innlent
og tekið úr daglega lífinu, sem
allur almenningur kannast við
og skilur.
JÓLAGJAFIR TIL BETEL.
H. J. Helgason, Sexsmith,
Alta ............... $25.00
G. S. 0„ Winnipeg........ ío.OO
J. Jónasson, Wpeg .... ... 5.00
The Laidies Aid at Svold,
North Dak............ 10.00
Egilson Bros., Calder, Sask. 15.00
Stefán ólafsson, Lundar .... 5.00
Innilega þakkað,
J. Jóhannesson, féh.
675 McDermot Ave„ Wpg.
BJÖRG FREDERICKSON
Teacher of Piano
Ste 8, Acadia Apts. Victor St.
Teleph^oí 30 154
Laugardagsskóli Tróns,
byrjar á laugardaginn kemur þ.
12. þ.m. Skólinn verður í neðri sal
Goodtemplara hússins og byrjar
stundvíslega kl. 2. — Eru öll ís-
lenzk börn velkomin, og eru for-
eldri beðin um að nota skólann
sem bezt þann tíma, sem hann er,
fyrir börn sín. Deildin “Frón”
gerir alt sem í hennar valdi stend-
ur til að þessi kenslustund verði
að sem beztum notum fyrir börn- j
in. Komið öll, börnin góð, og I
komið í tíma.
—Stjórnarnefndin.
þeirra dóu ung;. hin fjögur lifa:
Einar, bóndi við Baldur, Man.;
Sigurður, búsettur í Charleswood,
Man.; Ingvieldur, gift A. P. Caver-
ly, til heimilis í Winnipeg; og Jó-
hannes, einnig búsettur í Winni-
peg. Synirnir eru allir kvæntir.
Ingibjörg var all-mikið biluð á
heilsu hin síðari ár. Þjáðist hún
af nýrnasjúkdómi, er nefnist
Bright’s Disease, og varð það
hennar banamein. Fjórar vikurn-
ar síðustu lá hún rúmföst. Ást-
vinirnir nánustu, eiginmaðurinn
og börnin, voru hjá sjúkdómsbeði
hennar síðustu stundirnar. Var
henni það ekki lítið sæluefni og
þeim hugarfró, að veita henni þá
aðstoð, er þau máttu.
Ráð og rænu hafði hún fram í
andlátið. Hún vissi að hún var
að kveðja og bjó sig á allan hátt
undir skilnaðarstundina. Hún
kveið ekki fyrir heimkomunni. Hún
vissi á hvern hún trúði. Því var
hún örugg viðvíkjandi framtíð-
inni eilífu. En hún bar umhyggju
fyrir ástvinunum, sem hún var að
skilja eftir. Móðurleg umönnun,
rósemi og athugun sýndi sig í hin-
um ýmsu ráðstöfunum, sem hún
gjörði. Meðal annars sagði hún
fyrir um helztu atriðin áhrærandi
sína eigin útför. Því síður lét hún
ógjört nokkuð það, sem laut að
undirbúningi fyrir eilífðarveruna.
Hún var jarðsungin, af séra
Rúnólfi Marteinssyni, laugardag-
inn 15. des. Stutt húskveðja var
flutt á heimilinu, þar sem hún var
búin að vera svo lengi og sem
henni þótti svo undur vænt um.
Þar hafði hún lifað sælar stundir
með ástvinum sínum, og þá ósk
fékk hún uppfylta, að mega deyja
þar. Aðal-útfarar athöfnin fór
fram í sal Good Templara. Stúk-
an Hekla var eini félagsskapurinn,
sem hún tilheyrði. Vildi hún því
að lík sitt mætti eiga þar kveðju-
stund. Fyrir hönd stúkunnar
mælti hr. Gísli P. Magnússon
nokkur vel viðeigandi kveðjuorð.
Líkið var moldum ausið í Brooke-
side garfreit. Fjöldi vina fylgdi
henni til grafar.
Ingibjörg var sérstaklega væn
kona. Hún stóð frábærlega vel í
stöðu sinni sem eiginkona og móð-
ir. Hún kom allstaðar fram til
góðs, vildi í hyívetna láta gott af
sér leiða. Hún unni kirkju og
kristindómi af heitu hjarta og
vildi af fremsta megni liðsinna
góðum málefnum. Það, að nafn
hennar ekki stóð á safnaðarskrá,
stafaði á engan hátt af kulda eða
áhugaleysi gagnvart kristnum
málum. í ríkum mæli var hún
gædd velvild, félagslyndi og hjálp-
fýsi. Hún var ósérhlífin, atorku-
söm og hyggin í starfi. Það var ó-
vanalega bjart yfir henni. Hin
djúpa, einlæga velvild hennar,
skein henni ósjálfrátt úr augum.
Einhvern veginn bar hún með sér
birtu og yl, svo að návist hennar
vakti gleði og vellíðan.
Með sanni getum vér ávarpað
hana með þessum orðum:
“Trúfasta, hreina, sæla sál
svifin til ljóssins stranda.”
Hún kvaddi rétt fyrir jólin, og
fékk því ekki að halda þessi ný-
liðnu jól með ástvinum sínum hér
á jörðu, en himnafaðirinn veitti
henni þá bæn, sem börnin hans
biðja:
“Loks á himni lát oss fá,
að lifa jólaglðei þá,
sem aldrei tekur enda.”
Ingibjörg hefir lokið góðu clags-
verki, unnið vel og lengi, unnið af
samvizkusemi og dugnaði, unnið í
anda hans, sem sagði: “mér ber
að vinna meðan dagur er.” — Guð
blessi dýrmætar endurminningar
ásvinanna um hana. “Sælir eru
þeir framliðnu, sem í Drotni eru
dánir, því þeirra verk fylgja
þeim.” R. M.
ROSE
THEATRE
Sargent and Arlington
Fallegasta leikhúsið í vest-
urhluta borgarinnar.
Fimtud. Föstud. Laugard.
Þessa viku
44A Flame
in the Sky”
Mikill loftfars leikur, sem
sýnir gaman og alvöru.
“Yellow Cameo” No. 4
Gaman Æfintýr
Mánud. Þriðjud. Miðvdag
Næstu viku
Mikil Tvígild sýning
“Peaks of Destiny,>
Margskonar vandi sem endar
í hámarki
Einnig
Monte Blue og Myrna Loy
í leiknum
“Bitter Apples”
Gaman Fréttir
TIL LEIÐBEININGAR
fyrir þá, sem kynnu að vilja ná sér
í sönghefti mitt, Our Songs, vildi
eg ileyfa mér að geta þess, að eg
hefi nýlega flutt frá San Franc-
isco, Cal„ til Point Roberts, Wash.
íslendingar geta enn fengið heftið
frá mér á $1.50. Áritun mín er
sem fylgir:
Magnús Á .Árnason.
Point, Roberts, Wash.
Nýárs-guðsþjónustur og árs-
fundir safnaða.
Mozart, 6. jan„ kl. 2 e. h.
Wynyard, 13. jan. kl. 2 e. h.
Foam Lake, 20. jan. kl. 2 e. h.
Kandahar, 27. jan. kl. 2 e. h.
Enskar guðsþjónustur í Elfros 13.
og 27. jan kl. 7.30 e. h. — Allir
boðnir og velkomnir. Með vin-
semd. C. J. Olson.
$500-00 fundarlaun
Fimm hundruð dala fundar-
launum heitir maður, sem á
fimm $1,000.00 Province of
Alberta 5% Bonds, sem falla
í gjalddaga 15. febr. 1940, en
sem töpuðust á ’Portage Ave.
í Winnipeg, mánudaginn 31.
des. 1928. Þessum fundar-
launum er heitið hverjum
þeim, sem gefur upplýsing-
ar er leiða til þess, að þessi
Bonds finnist, eða finnur
þau sjálfur.
Hver sá, sem eitthvað kann
að vita um þessi Bonds, get-
ur skrifað til “Box 10, Lög-
berg” og óskað eftir trúnað-
arviðtali við eigandann.
Þessi Bonds voru tekin upp
af manni, sem þannig er lýst,
að hann hafi verið um þrí-
tugt, dökkleitur i andliti, al-
rakaður og var í Machinaw-
treyju og með dökka húfu.
Leit út eins og námamaður
eða skógarhöggsmaður.
Continuous
Daily
2-1 1 p.m.
Telephone 87 025
Wonderland
Saturday
Show
starts ! p.m.
FIMTUD. FÖSTUD. LAUGARD. þessa vilku
KEN MAYNARD
1N
“The Glorious Trail”
Stan Laureland Oliver Hardy in Comedy, also Tartan
MANUD., ÞRIDJUD. MIDVIKUD. 14., 15. og 16. Jan.
“THE CROWD”
með ELEANOR BOARDMAN og JAMES MURRY
EXTRA — “The New Collegians” and Screen Snapshots
Influenza—“Flúin”
Sótt þessi gengur nú í Canada og Bandaríkjunum — Enn er
hún ekki eins skæð eins og árið 1918.
Veikin er-mjö næm, og er hætt við að þeir, sem hana hafa,
fái líka lungnapípu bólf/u, innýflabólgu eða lungnabólgu.
Hvernig verjast skal “FIú”
1. Að halda heilsunni í sem beztu lagi.
2. Hafið líkamsæfingar úti við.
3. Hafið nægilegan svefn í loftgóðu herbergi.
4. Forðist margmenni.
5. Þvoið yður oft um andlit og hendur og ávalt á undan
máltiðum.
6. Ef þér eruð að hósta eða hnerra, þá gerið það í hrein-
an vasaklút; það er þeim vörn, sem nærri yður er.
7. Fylgið skilyrðislaust ráðum læknisins.
8. Komið ekki til þeirra, sem veikina hafa, nema nauðsyn
beri til.
9. Hafið ekki áhyggjur út af flúnni.
Hvernig þekkja má “Flú”
Veikin byrjar oftast þannig, að manni fer að líða “einhvern
veginn undarlega’ og hefir verki um allan líkamann. Hefir
“kvef í höfðinu” og dálítinn hósta. Blóðhitinn vex og stundum
fær maður uppsölu eða niðurgang.
Komi þessi sjúkdómseinkenni í ljós og séu þau vanrækt, fer
oft að bera á hósta og verkjum fyrir brjóstinu, og er þá hætt
við lungnabólgu. Gleymið því ekki, að lungnabólga er oft
bráðhættuleg.
Hve»-nig fara skal með “FIú”
1. Farið tafarlaust í rúmið.
2. Kallið læknirinn strax og gerið eins og hann segir yður.
3. Verið í rúminp þangað til læknirinn segir, að þér megið
fara á fætur.
4. Munið, að þér eruð ekki albata, eða úr hættu, þó þéf
finnið ekki lengur til veikinnar.
5. Haldið hitanum í herberginu í 68 gr. F. og hafið nóg
af hreinu lofti.
THE DEPARTMENT OF PUBLIC HEALTH
Regina, Sask.
Hon. J. M. Uhrich, M.D. F. C. Middleton, M.D.
Minister. Acting Deputy Minister.
5t<H><H><H><H><H>J><H><H><H><K><H><H><H>í><H><H><H><H><H><H><H>l><H><H>0-í>CH>í>í>fi^
FISHERMENS SUPPLIES LTD.
401 Confederation Life Bldg., Winnipeg.
TANGLEFIN NETTING “Veiða meiri fisk”
Efnisgæðin fyrst, nafnið á eftir.
Tilbúin af National Net and Twine Co.
Vér höfum vanalegar stærðir fyrirliggjandi og sendum pant-
anir yðar með næsta pósti.
Verðlista, sem gefur allar upplýsingar um þær vörur, sem
vér höfum fyrirliggjandi, verður sendur yður ókeypis, ef þér
óskið þess.
FISHERMEN’S 5UPPLIES, LTD.
401 Confederation Life Bldg., Winnipeg. Sími 28 071
Kjörfundur
Court Vinland
Canadian Order of Foreáters
í
Good Templara húsinu
Þriðjudagskvöldið
15. Janúar kl. 8.
Embættismenn kosnir og
settir í embætti. Áríðandi
mál tekin fyrir á þessum
fundi. — Áríðandi, að sem
flestir meðlimir sæki þenn-
an fund.
Rosedale Kql
Lump $12.00 Stove $11.00
FORD COKE $1 5.50 ton
SCRANTON HARDKOL
POCA LUMP og
CANMORE BRICQUETS
Thomas Jackson & Sons
370 COLONY ST. PHONE: 37 021
Séra Jóhann Bjarnason kom
sunnan frá Upham, N. Dak„ eftir
helgina; hefir hann þjónað Mel-1
anktsons söfnuði mánaðartíma.
‘Geysir”, íslenzka bakaríið, 724
Sargent Ave„ talsími 37 476. —
Tvíbökur seldar nú á 20c. pundið
þegar tekin eru 20 pund eða meira
Kringlur á 16 cent. P.antanir frá
löndum mínum úti á landi fá
fljóta og góða afgreiðslu.
G. P. Thordarson.
Stofnað 1882
Löggilt 1914
D D. Wood & Sons, Ltd.
kolakaupmenn
Vér þorum að hætta mannorði voru og velgengni
á viðskiftin.
SOURIS — DRUMHELLER
FOOTHILLS — SAUNDERS CREEK
POCAHONTAS — STEINKOL
Koppers, Solway eða Ford Kók
Allar tegundir eldiviðar.
Not - Gæði - Sparnaður
Þetta þrent hafið þér upp úr því að skifta við oss.
SIMI: 87 308 Ross Ave. and Arlington St.
Vér færum yður kolin hvenær sem þér viljið.
A Strong, Reliable
Business School
UPWARD OF 2000 ICELANDIC STUDENTS HAVE
ATTENDED THIS COLLEGE SINCE 1909.
The Success College, of Winnipeg, is a strong,
reliable school—its superior service has resulted
in its annual enrollment greatly exceeding the
yearly attendance of all other Business Colleges
in the whole Province of Manitoba. Open all
the ‘year. Enroll at any time. Write for free
prospectus.
BUSINESS COLLEGE, Limited
385^ Portage Ave. — Winnipeg, Man.