Lögberg - 11.04.1929, Side 6
B!s. e.
LÖGBERG FIMTUDAGINN 11. APRÍL 3929.
Mánadalurinn
EFTIR
JACK LONDON.
“Þú hlýtur að liafa víða farið, kona góð.
Fyrst þú hefir liaft þjónustufólk af svona
mörgum þjóðflokkum, ” sagði Saxon.
Gamla konan hló.
“ .Já, en einkennilegasta fólkið, sem eg hefi
þekt, voru svertingjar einhvers staðar sunnan
úr heimi. Þ^eir voru notaðir eins og þrælar.
Þeir voru mannætur og afar viltir. Þegar þeir
gerðu eitthvað, sem þeir máttu ekki, eða voru
latir, þá var þeim refsað með því, að þeir voru
lamdir með ólum um krókdílshiið. En hvemig
sem með þá var farið, þá hljóðuðu þeir aldrei.
Það þótti þeim lítilmannlegt. Eg mair alt af
eftir litla Vibi. Hann var hara tólf ára gam-
all, og var minn þjónustuisveinn. Stundum var
hann barinn svo, að' hann var allur blóðrisa á
bakinu, og eg grét oft yfir honum, og þegar
hann sá mig, gera }>að, þá bara hló hann og
sagði, að þegar hann væri orðinn stór, þá
skyidi hann jafna á hvíta manninum, sem
hefði barið sig. Það var Bruce Ansley, enskur
maður, sem )>að hafði gert. En hann varð aldr-
ei stór, því hann strauk einn daginn og villi-
mennimir náðu honum og átu hann upp til
agna. ’ ’
Það fór hryllingur um Saxon við að heyra
þetta, en Mercedes hélt áfram.
“Það var fjörugt líf á þeim dögum, en í
meira lagi slarksamt. Þú getur naumast trúað
því, góða mín, að á þremur árum drukku þessir
Englendingar svo mikið af kampavíni og skozku
brennivíni, að það hefði verið nóg í stórt stöðu-
vatn og þeir töpuðu þrjátíu þúsund sterlings-
pundum á nokkurs konar gróðrarstöð, sem þeir
voru að fást við. Ekki dollurum, heldur pund-
um, sem er sama og hundrað og fimtíu þúsund
dollarar. Þeir lifðu eins og prinzar, meðan
peningarnir entust. Það var reglulegt höfð-
ingjalíf, en langt frá að vera háfleyigt eða skyn-
samlegt. Eg varð að ,selja helminginn af öll-
um mínum fallegu skrautgripu í Nýja Sjálandi,
að þessu lóknu. Bruce Ansley skaut sig, þeg-
ar alt var komið á höfuðið. Roger fór að vinna
hjá einhverjum fvrir átta sterlingspund um
mánuðinn.,. En Jack Gilbraith komst bezt út
úr því. Fólk hans á Englandi var auðugt
höfðingjafólk og hann fór þangað, en það vildi
ekki hafa hann heima, isvo það gaf honum aft-
ur mikla peninga til að byrja á einhverju nýju
fyrirtæki á Indlandi, eða Sumatra, eð einhvers
staðar suður í heimi.”
Þegar Saxou var komin heim, og var að
búa til kvöldverðinn handa Willa, þá var hún
að velta því fyrir sér, hvernig í ósköpunum
hefði getað á því staðið, að þessi gamla kona
kona hefði yfirgefið sitt æskuheimili, }>ar sem
hún hafði auð og allsnægtir, og flækst út um
víða veröld og að lokum lent í Oakland hjá
gamla Barry Higgin.s. Gamli Barry var ekki
líklegur til, að hafa eytt sínum hluta af hundr-
að og fimtíu þúsund dölum í óhófi, og þó enn ó-
líklegri til að hafá"nokkum tíma átt slíkan auð
Þar að auki hafði hún minst á aðra menn, en
ekki hann.
Gamla Mrs. Higgins hafði sagt margt fleira
en það, sem hér er greint, g Saxon skildist, að
hún hefði verið í svo að segja öllum löndum og
í ótal borgum, bæði í hinurn gamla og hinum
nýja heimi. Hún hafði jafnvel verið í Klon-
dyke fyrir tíu árum, og hún hafði lauslega
minst á ýmislegt þar, ein óg t. d. námamenn-
ina, sem spiluðu um gullsandinn og keyptu
fyrir hann brennivín. Saxon skildist, að Mrs.
Higgins hefði alt af verið í einhverjum félags-
skap viðf menn, sem þannig voru skapi farnir,
að peningarnir hefðu farið gegn um greipar
þeirra eins og vatn.
III. KAPTTULI.
Saxon var það öllu öðru ríkara í huga, að
gæta þess vandlega, að ást Willa til sín kólnaði
aldréi, og alt af ætlaði hún að láta sér þvkja
jafn vænt um hann og vera honum jafn-góð, en
einhvern grun hafði hún um, að þetta hepnað-
ist kannske ekki. Henni fanst að Mrs. Higg-
ins mundi geta gefið sér góð ráð í þessum efn-
um. Hún vissi svo margt. Hún hafði hvrnð
eftir annað gefið henni { iskyn, að hún vissi
fleira heldur en flestar aðrar konur.
Tíminn leið, viku eftir viku, og Saxon heim-
sótti gömlu konuna livað eftir annað. En Mrs.
Higgins talaði um alt annað en það, sem Saxon
vildi helzt fræðast um. Hún kendi lienni að
hekla og gaf henni ýms góð rað því viðvíkjandi,
livernig ætti að fara með þvott og einnig hvern-
ig haganlegast væri að kaupa til búsins.
Svp var það einn daginn, að Mrs. Higgins
var alveg sérstaklega liðugt um mólbeinið.
Það var því líkaist, að orðin keptust við af öll-
um mætti, að komast út úr henni. rétt eins og
}>au væru lifandi verur, sem ættu lífið að levsa~!
Það voru undarlegir glampar í augunum og
hún var óvanalega rjóð { andliti. Saxon fann
vínlykt og hún varð þess fljótt vör, að gamla
konan hafði fengið sér í staupinu. Saxon leizt
engan veginn vei á þetta, og hún varð hálf-
hrædd, en samt settist hún uiður og fór að fást
við einhver.ja sauma, s;em hún hafði haft með
sér, og hlustáðí a þetta orða-flóð, sem Mercedes
lét frá sér fara.
“Hlustaðu nú á mig, góða mín,” sagði Mrs.
Higgins. “Eg skal segja þér nokkuð um karl-
mennina. Þú mátt ekki vera heimsk, eins og
liitt fólkið, sem lieldur að eg sé annað livort
hálfviti, eða þá galdrakona og mesti galla-
gripur. Iíugsaðu })ér t. d. Maggie Donahue,
sem alt af breiðir fyrir andlitið á barninu sínu,
}>egar við mætumst á götunni. Það er nú að
vísu rétt, að eg hefi verið töluverð töfrgkona,
en mínir töfraír koma allir fram í viðs’kiftum
mínum við karlmennina aðeins. Eg er fróð um
* marga hluti, góða mín, mjög fróð. Eg get sagt
þér um samband karls og konu, það sem feg-
ur.st er og bezt af því , og það sem ljótast er
líka. Eg }>ekki, hvað þeir eru ruddalegir og
hvað þeir eru undarlegir, og þeir fara oft afar-
illa með he;mskar og fáfróðar stúlkur, sem
ekki skilja þá eins og þeir eru eða kunna tökin
á þeim. Kvenfólk er yfirleittfc hefmskt, í þess-
um sökum að minsta kosti. Eg er ekki heimsk,
enda er. eg ini orðin gömul kona, og eg er lík
öðrum konum í því, að eg tsegi ekki hvað göm-
ul eg er . En þrátt fyrir það, að eg er svona
gömul, þá liefi eg samt vald á karlmönnunumi
Ekki ungu piltunum, auðvitað, heldur þeim,
sem eru á mínum aldri, eða þar um bil. Það
var sú tíð, að eg hafði vald á ungu mönnunum.
Þessi hæfileiki kemur sér vel fyrir mig, því eg
á enga æt'tingja og ekkert fé. Alt sem eg á, er
vísdómur og endurminningar, en það eru stór-
fengilegar, konunglegar endurminningar. —
Margar aðrar konur verða að ganga alls á mis,
eða þá lifa á góðgerðasemi annara, eða opin-
berum styrk. Þetta geri eg ekki. Eg hefi mann
til að vinna fyrir mér. Auðvitað er það nú ekki
nema gamli Barr>’ Higgins, einhentur og stirð-
ur og seinn'eins og uxi, en karlmaður samt, og
undarlegur og skrítinn, eins og allir aðrir
karlmenn. — En eg hefi átt elskhuga um mína
daga, unga, glæsilega, með taumlausar ástríð-
ur, og eg hugsa með náægju til þeirra gömlu og
góðu daga, því eg hefi lifað og notið lífsins.
Mínar endurminningar frá yngri árunum, eru
ekki allar skemtilegar, en þær eru meira skemti-
legar en leiðinlegar. Eg hefi ekki lifað eftir
vissum, settum reglum, sem ekki má út af
bregða. Það er ekki að lifa. Eg gef ekki tú-
skilding fyrir þessa menn, sem aldrei hugsa um
neitt nema ágóðann og sjá alt lífið { dollurum
og centum.
Þú þarft margt að læra, unga kona. Til-
breytingin. í henni er liinn mikli máttur kon-
unnar. Hafi ’konan ekki þann hæfileika, að
geta alt af breytt til, þá verður maðurinn eins
og tyrkneskur harðstjóri. Hafi hún þann hæfi-
leika, þá er maðurinn hennar auðmjúkur þjónn.
Ef þú vilt, að manninum júnum þyki alt af vænt
um þig, þá mátt þú ekki vera alt af eins. Þú
verður að geta breytt til í það óendanlega. Þú
verður að vera nokkurs konar blómagarður,
þar sem tilbreytingin er óendanleg og alt af eru
ný og ný blóm að springa út með alls konar
gerð og litum. Manninum má aldrei finnast,
að hann sé búinn að slíta upp síðasta blómið.
Þú verður að gæta þess, unga kona, að í Eden-
garði ástarinnar er einn snákur, sem eyðilegg-
ur alla sæluna, ef þér ekki hepnast að merja
höfuð hans, og sá snákur er þe'tta liversdags-
lega tilbreytingarleysi. Mundu það, að vera
aldrei of auðsveipin. Karlmennirnir sýnast
vera grófgerðir og ástríðufullir, en konan er
það í raun og veru enn meira. — Nei, það er
ékki til nein.s að hafa á móti því. Þú ert bara
barn enn þá. Konan er ekki eins viðkvæm eins
og maðurinn. Eins og eg viti það ekki? Kon-
urnar tala um og segja, frá leynilegum kunn-
ingsskap bænda sinna við aðrar konur. Það
segja karlmenn aldrei um konur sínar. Hvern-
ig stendur á }>essu ? Það er bara ein skýring
til, og hún er sú, að þær eru ekki eins viðk\7æm-
ar, kæra sig minna, en það er þeirra yfirsjón.
“Þú átt að vera vitur, unga kona. Taktu
aldrei af þér grímuna, og })ú verður að hafa
margar grímur. Þú verður að hylja sjálfa þig
í ótal slæðum, en þær verða að vera fallegar
og glæsilegar. Láttu aldrei síðustu blæjuna,
sem þú hylur þig með fyrir bónda þínum, vera
alveg dregna til hliðar. Þú verður að hafa
margar grímur, ótal, nýja og nýja á hverjum
degi. En bóndi þinn má ekki s'kilja, að þetta sé
þannig. Hann má ekki halda, að grímurnar
séu margar. Honum dugar ekkert minna, en
að hafa þig alla, sál og líkama. Honum á að
finnast, að hann hafi þig alla, en það má ekki
vera svo þar fvrir. Með öðrum orðum, mann-
inum þínum verður að finnast, að þú hafir eitt-
livað í eigu })inni, sem hann sé enn ekki búinn
að njó'ta, en sem hann þráir og sækist eftir.
Ef honum finst, að hann hpfi fengið alt sem
þú átt til, þá fer hann að sækjast eftir ein-
hverju öðru — öðrum konum. Þú þarft helzt
að vera eins og blómagarður, sem alt af hefir
nóg af nýjum og nýjum, fögrum blómum.
Heimskar konur, og þær eru flestar heimsk-
ar, halda að þær hafi unnið alt, þegar þær gift-
as't. Svo hætta þær öllum tökum og verða
feitar og jmnglamalegar og leiðinlegar, og þær
liætta að hafa ánægju af lífinu og gleyma ást-
inni. Þær eru svo óttalega heimskar. En þú,
unga, litla kona, þú átt að setja þér það, að
vinna nýjan og nýjan sigur á hverjum degi, og
einhyern tíma kemur að því, að þér finst að
það 'sé ekkert meira að vinna, en þá er ástin
öll búin. Gættu þess, að ástin er ó.seðjandi.
Láttu manninum þínum mikla ást 1 té, gefðu ó-
spart, en láttu honum samt alt af fiimast, að
liann þurfi meira.‘”
Mps. Higgins stóð alt { einu, og gekk þvert
vfir herbergið. Saxon gat ekki annað en veitt
því eftirtekt, hvað þessi gamla kona bar sig
vel og tígulega. Henni var full-ljóst, að þetta
var engin ímyndun, heldur veruleiki.
“Eg hefi enn naumast kent þér að þekkja
fvrstu stafina í stafrófi ástarinnar,” sagði
Mrs. Higgins, }>egar hún kom oftur og settist
I niður.
Hún hél't á hljóðfæri í hepdinni, fallegu og
afar haglega gerðu. Það var einna líkast gít-
ar, en þó töluvert frábrugðið. Hún lék á liljóð
færið, og hún söng. Saxon skildi ekki orðin,
því söngurinn var á einhverju útlendu tungu-
máli. Lagið hafði hún heldur aldrei áður
lieyrt, eða neitt annað svipað því, en það skildi
hún fullvel, að það var einhver angurblíður
ástasöngur, og hann hafði þau áhrif á hana, að
henni fanst hún komast í einvers konar draum-
leiðslu ástand. Og þegar lagið var á enda, var
Saxon farið að svima, og það var eins og hún
væri ekki með öllu sjálfráð liugsana sinna.
“Jafnvel þótt maðurinn haldi, að hann
þekki þig alla eins og gamla sögu, sem hann
hefir marg-lesið, })á mundi þó þrá hans til þín
vakna á ný, ef þú gætir sungið þennan söng
fvrir hann, eins og eg svng hann. Skilurðu mig,
kona góð? Veiztu hvað eg er að segja?”
Saxon hneigði höfuðið til samþykki.s. Henni
fundust .varir sínar of Jiurrar til þess að hún
gæti talað.
Mr§. Higgins byrjaði aftur að leika á hljóð-
færið og syngja. Saxon skildi, að það væri
franskur söngur, sem hún var að fara með.
Söngurinn var ákaflega fjörugur og það úr
liófi fram, að Saxon fanst. -
“Þessi söngur fellur mér ekki eins vel,”
sagði hún.
Mercedes vpti öxlum.
“Þeir hafa allir eitthvað sér til ágætis, þess-
ir ástasöngvar. Það verður að vera tilbreyt-
ing í þeim, eins og öðru, ef þeir eiga að verða
að tilætluðum notum. Sumir söngvar eru til
að friða æstar tilfinningar, aðrir til að æsa
þær, en þeir hafa allir sína þýðingu, ef maður
kann með að fara. Þú ert, enn barn í öllum
þessum sökum, en þú ert á góðum vegi, og þú
getur lært.
Mesta list konunnar er að yfirvinna karl-
mennina. Ástin er undirstaða allrar listar og
það er hennar vegna, að nokkur list er til. Á
öllum öldum hafa verið til vitrar konur. Vís-
dómurinn er meiri en fegurðin. Þessum vitru
konum hafa jafnvel prinsar og prélátar æfin-
lega lotið. ”
Mrs. Higgins liélt áfram að tala lengi eftir
þetta, og iSaxon hlustaði á hana, en .skildi þó
ekki nema lítinn hlu’ta af því, sem hún sagði.
Henni fanst ræða gömlu konunnar vera því lík,
sem hú.n hugsaði ,sér hraunflóð, brennandi,
eyðileggjandi. Samt gat hún ekki komið sér
að því, að standa upp og fara burtu. Það var
eitthvað, sem hélt henni fastri, þótt henni meir
en ofbyði margt af því,sem gamla konan sagði,
og vildi í raun og veru ekki hlu.sta á það.
“Þetta er nú fyrsta lexían,” sagði Merce-
des loksins og hló hálf óeðlilega. “En hvað
gengur að þér? Þetta sýnist ekki ganga fram
af þér.”
“Eg er hrædd,” sagði Saxon í hálfum hljóð-
um, og það var grátstafur í kverkum liennar.
“Þú gerir mig hrædda. Eg veit ekki mikið, og
mér hefir aldrei dottið neitt þessu líkt í
hug—”
“Það er ekki undarlegt, þó þú sért hrædd,”
sagði Mercedes. “Þetta er hræðilegt, en það
er líka hátíðlegt og stórfengilegt. ”
IV. KAPITULI.
Alt frá barnæsku hafði Saxon verið greind
og glöggskygn á marga hluti, þó þekking henn-
ar væri mjög takmörkuð og sjóndeildarhring-
urinn heldur þröngnr. Þegar hún var barn að
aldri og var hjá Cady og konu hans, hafði hún
veitt mörgu eftirtekt fram yfir það, sem börn
á hennar aldri vanalega gera, og sumt af því
hafði orðið henni til góðs, þó ætla mætti, að það
hefði haft gagnstæð áhrif. Þess hójn voru í
raun og vdtu góðhjörtuð, þó siðferðismeðvit-
und þeirra væri mjög ábótavant. Mrs. Cady
hafði flestum konum betur lag á því, að við-
halda ást og virðingu bónda síns, hvaða stöðu
sem þær tilheyra, og fáar stúlkur á hennar reki
höfðu valið eins vel eins og hún, þegar þær
völdu sér eiginmenn.
Ilún liafði sjálf, af eigin ramleik, mvndað
sér hugmyndir um ástina og hjónabandið. Hún
hafði vandlega tamið sér næmleika og smekk-
vísi og forðaðist alt, sem grófgert var. Henni
var það fullkomlega ljóst, að^éf hún lítillækkaði
sjálfa sig, þá lítilhekkaði hún ástina jafnframt.
Ahlrei hafði Willi komið svo heim, síðan þau
giftust, að hún hefði ekki tekið honum glaðlega
og með prúðmensku og kurtesi. Henni var það
heldur ekki dulið, að }>að var langt frá því, að
það væri þýðingarlaust að gera ýmislegt smá-
vegis, sem hann átti ekki von á, en sem bar
þess vott, að hún hafði það jafnan í huga, að
endurgjalda ást lians og gera honum glatt í
sinni. ímvndunarafl hennar var sístarfandi
og góða greind hafði hún þeg’ið í vöggugjöf.
Hún gerði sér ljósa grein fyrir }>ví, livað liann
var frjáls og örlyndur og hve mikla löngun
liann liafði til þess að alt, sem lionum tilhevrði,
væri sem fegurst og fullkomnast, og eins }>ví,
hve framúrskarandi hreinlátur hann var, bæði
hvað snerti sjálfan hann og alt, sem í kringum
hann var. Hann var aldrei grófgerður eða
ruddalegur. Hann endurgalt blíðu hennar og
umhyggjusemi ávalt í sömu mynt. Það var
henni samt ljóst frá upphafi, að ástríki hjóna-
bandsins hvíldi aðallega á henni, og mundi æf-
inlega gera. Hann gerði vanalega það, sem
rétt var og göfugt, vegna þess að honum var
það eðlilegt og öllu eðli hans samkvæmt. Hún
þar á móti gerði sér grein fvrir því, , hvers
vegna hún gerði þetta eða hitt. Hennar dóm-
greind var miklu ljósari en hans. Og henni
var það fyllilega Ijóst, að hún hafði eignast
ágætismann.
KAUPIÐ AVALT
LUMBER
hjá
THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD.
Yard: HENRY AVE. EAST. - - WINNIPEG, MAN.
Office: 6th Floor, Bank of HamiltonChamber*
En þrátt fyrir það, að hún skildi hlutverk
sitt sem eiginkona, fles’tum konum betur, þá
hafði }>ó samtal hennar við Mercedes Higgings
vakið hjá henni ýmsar nýjar hugsanir, sem
lienni höfðu aldrei áður til hugar komið. Yf-
irlei-tt var langt frá þri, að hún féllist á það
sem Mercedes hafði sagt, en samt sem áður
voru þó einhver sannlenksbrot í sumu af því,
sem hún hafði sagt. Gamla konan liafði áreið-
anlega mikla lífsreynslu og álvktanir hennar
voru bygðar á hennar eigin reynslu. Margt af
því, sem hún liafði sagt, fan.st Saxon vera
langt frá öllu skaplegu og sæmilegu, og sumt
af því skildi hún alls ekki, en var })ó ekki viss
um, að það væri alt vitleysa. Nokkuð var það,
að, samtal hennar við Mercedes hafði hjálpað
henni til að skilja betur en áður hvernig á því
stóð, að mörg hjónabönd mishepnuðust svo
hrapallega, eins og hún vissi, að raun hafði
víða á orðið.
Saxon stundaði nú heimilisverk sín með enn
meiri alúð, en nokkru sinni fyr, og hún lagði
líka meiri stund á að verg sem bezt til fara og
líta sem bezt út. Hún reyndi að kaupa eins
haganalega ‘til búsins, eins og hún bezt kunni,
og kaupa það eitt, sem gott var og vandað, án
þess þó að gleyma því, að henni bar nauðsyn til
að gæta sparseminnar. Hún las stöðugt kven-
deildina í dagblaðinu og hún las tímarit, sem
konum voru sérstaklega ætluð og hafði frían
aðgang að þeim á lestrarsal einum þar f ná-
grenninu. Af þessum lestri aflaði hún sér
töluverðrar þekkingar á því, hvernig hún sjálf
gat viðhaldið fegurð sinni. Hún gerði sér það
að fastri reglu, að taka vissar líkamsæfingar á
hverjum degi, sem allar miðuðu að því, að gera
líkamann sem fegurstan og fimastan. Willi
vissi ekkert um þetta. Þetta var ekki þess eðl-
is, að rétt væri að segja honum nokkuð frá því.
En hann naut samt afleiðinganna. Hún fékk
bækur lánaðar í Camegie l>ókasafninu og hún
lærði margt viðvíkjandi heilsufari og öllu eðli
konunnar, sem Sarah eða konan í barnaheim-
ilinu, eða Mrs. Oady, höfðu aldrei minst á við
hana einu orði.
Eftir langa umhugsun, gerðist hún kaup-
andi að fcímariti, sem hún hélt að bezt væri við
sitt hæfi, og sem til þess var ætlað að leiðbeina
kvenfólki í hannyrðum ýmiskonar. Þessu við-
víkjandi hafði hún líka lært ýmislegt af öðrum
ritum, sem hún hafði séð: í lestrarsalnum. Oft
hafði hún æði lengi staðið utan við búðar-
glugga, þar sem hannyrðir og margskonar
kvenfatnaður var til sýnis, og gert sér grein
fyrir, hvernig þetta og hitt væri búið til. Það
var líka oft, þegar hún fór inn í slíkar búðir til
að kaupa eitthvert smáræði, að hún notaði
tækifærið og skoðaði margt annað, seni hún
ekki keypti, í þeim tilgangi að sjá hvernig það
væri búið til. Um þetta skeið var hún alvarlega
að hugsa um, að læra að mála á postulín, en
hætti við það, þegar hún komst að því, hve
mikið það kostaði.
'Smátt og smátt skifti hún um sinn ódýra
nærfatnað, og fékk sér annan, sem að vísu var
líka ódýr, en miklu laglegri og haganlegar til-
búinn. I þeim efnum hafði hún lært margt,
síðan hún giftist, eins og í ýmsum öðrum efn-
um, þó hún hefði lítillar tilsagnar notið hjá
öðrum. Hún kunni býsna vel að fara með
þvott, áður en*hún giftist, því hún liafði langa
réynslu í þeim efnum, en þar hafði hún líka
lært töluvert af Mrs. Higgins, enda hélt hún
fötum sínum og rúmfatnaði eins hreinum og
fallegum sem allra bezt mátti vera. t einhverju
riti sá hún þess getið, að konur á Frakklandi
hefðu fyrir skömmu tekið upp þann sið, að hafa
á höfðinu mjög fallegar og haglega gerðar
liúfur, þegar þær neyttu morgunverðar. Saxon
sá vel, að það var þýðingarlaust fyrir hana, að
búa sjálfri sér til slíka húfu, því sjálf varð hún
að búa til morgunmatinn, áður en hún neytti
hans. En þó leið ekki á löngu, þangað til hún
Yar búin að fá alt sem til þess }>urfti að búa til
eina slíka húfu, og hún lagði sig fram um, að
gera hana sem allra fallegasta og vandaði sig
sem mest hún mátti við að búa hana til. Þegar
hún var búin, sýpdi hún Mrs. Higgins hana, og
fékk ómælt lirós fyrir fráganginn á henni.
Saxon var afar iðin við að búa til ýmiskon-
ar fatnað handa sjálfri sér og eins borðdúka,
línlök, koddaver og fleira, jafnvel smá gólf-
dúka úr pjötlum og afklippum, sem þá var eitt
af hinuip nýju uppfyndingum og hafði ekki
þekst áður.
MALDEN ELEVATOR
COMPANY, LIMITED ,
Stjórnarleyfi og ábyrgB. ASalskrifstofa: Grain Exchange, Winnlpeg
Stocks - Bonds - Mines - Grains
Vér höfum skrifstofur I öllum helztu borgum f Vestur-Canada, og
einka sfmasamband við alla hveiti- og stockmarkaöi og bjðCum því viO-
skiftavinum vorum hina beztu afgreiðslu. Hveitikaup fyrir aðra eru
höndluð með sömu varfærni og hyggindum, eins og stocks og bonds.
Leitið upplýsinga hjá hvaða banka sem er.
KOMIST 1 SAMBAND VIÐ RAÐSMANN VORN A pEIRRI
SKRIFSTOFU, SEM NÆST YÐUR ER.
Winnipeg
Regina
Moose Jaw
Swift Current
Saskatoon
Calgary
Brandon
Rosetown
Gull Lake
Assiniboia
Herbert
Weyburn
Biggar
Indian Head
Prince Albert
Tofield
Edmonton
Kerrobert
Til að vera viss, skrifið á yðar Bills of lading: "Advise Malden
Elevator Company, Limited, Grain Exchange, Wlnnipeg.”