Lögberg - 03.04.1930, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FII.ÍTUÐAGINN 3. AFRÍL 1930.
Bls. 3.
ttýýýý$ý$$$$$S$ý$$ýýý3ý$SSSýýýýý$ý$Sý$ý$ýý$ýý$ýýýýýýýýýýýýýýýýýýý3ýý$ýýýýýýýýýýýý3ýýýýýý3ýý3ýýýýýýýýýýýýýSýýý$^3ý$$ýý$ýýýýýýýýýýýýýýýýýýSý3$$ýýýSý$ýý$ýýý$SS$ýý$Sýýý^^
Sérstök deild í blaðinu
SOLSKIN
Fyrir börn og unglinga
Brekkum
(Framh.)
“ó, eg er viss um, að það á langt líf fram-
undan, fyrst það endaði ekki æfi sína í jarð-
fallinu, ” sagði Óli Palli brosandi.
“Svo þú heldur það, Óli minn,” sagði
Bjarni. “Jæja, eg ætla þá að gefa þér þetta
litla líf, Óli. Ef þú getur látið það rétta við, þá
verður það þinn ábati, og ef ]>að á líf fram-
undan, þá skalt þii fá svo mikla mjólk handa
því, sem það getur torgað, og eins skal því
þá heimilt að tína í sig töðustrá af túninu í
sumar. Svo í haust verður það orðið þér
margra peninga virði.”
Óli Palli stóð alveg liöggdofa af undrun, og
vissi varla, hvort hann mátti trúa sínum eigin
evrum.
Bjarni virti drenginn fyrir sér og sá hvað
honum leið. Hann brosti þýðlega til Óla Palla
og mælti:
“Mér er þetta full alvara, Óli minn. Þú
mátt eiga lamibið. Og nú skulum við ganga inn
til konu minnar og biðja hana að leggja sínar
líknarhendur yfir lambið. Svo getur þú beð-
ið hana Siggu litlu að hugsa um það fyrir þig,
þegar þú ert ekki viðstaddur. ”
Þessi góðvilji og göfugmenska Bjarna hreif
Óla Palla svo, að hann liljóp upp um háls
hans, vafði hann örmum og kysti hann.
“Ekkert að þakka, óli minn,” sagði Bjami
hrærður yfir þessu innilega þakklæti og fögn-
uði drengsins. “Þú hefir mest til þess unnið,
góði minn,. því ef þú hefðir ekki verið svo lán-
samur að bjarga því, mundi það innan skamms
hafa orðið hræfuglum að bráð. En hvað emm
við nú að hugsa. Við skulum nú flýta okkur
inn með litlu pínuna og sjá henni fyrir nær-
ingu. Á eftir ætla eg svo að biðja þig að
hlaupa aftur á stað til að svipast um eftir
hrossunum, því eg má ómögulega sleppa kaup-
staðarferðinni á morgun. ”
“Já, já, það skal eg gjöra,” sagði' Óli
Palli, og eg skal ekki hætta, fyr en eg liefi
upp á þeim,” bætti hann við brosandi.
Þeir gengu inn í bæinn.
“Nei, mamma! Sko blessað litla lambið,
sem hann pabbi kemur með. ó, er það ekki
inndælt? ó, pabbi, er það veikt ?” sagði Sigga
er hún aðgætti betur hve vesældarlegt það var.
“Hm, — veikt, já, það er að minsta kosti
hungrað og illa til reika,” sagði Bjarni.
“ó, pínan litla,” sagði Sigga. “Það getur
ekki staðið á litlu fótunum sínum. Ósköp er
að vita hvað þú átt bágt, elskan litla.”
Á meðan Sigga var að hjala við lambið og '
láta vel að því, var Helga húsmóðirin önnum
áfin að búa því heilsudrykk. Hún blandaði
saman vatni og nýmjólk, lét í það svolítið af
sykri, helti því síðán í flösku og lét fjöðurstaf
niður í flöskuna, og í gegn um hann átti lamb-
ið að sjúga í sig þessa gómsætu fæðu.
“Það er bezt, að eg gefi þér helminginn af
þessu að byrja með. Það er að vísu lítið, en
litli maginn þolir ekki meira í einu. Það verð-
ur að gefa því bráðum aftur, ])egar innýfli þess
eru tekin að starfa,” sagði Helga.
“Ó, mamma! Lofaðu mér að gefa því,”
bað Sigga litla og rétti hendurnar út eftir
flöskunni, sem því var ætlað að drekka úr. Hún
setti fjöðurstafinn í munn litla lambsins og
undir eins og það fann volgan vökvann renna
í munn sinn, tók það til að sjúga og dilla róf-
unni.
‘ ‘ Ó, mamma! pabbi! og Óli Palli! ’ ’ sagði
Sigga liimin-lifandi glöð. “Lítið þið bara á,
livað það sýgur gráðugt pelann sinn. Blessað-
ur litli auminginn. Hann er glorhungraður. ”
“Sjáum til, það er þegar orðið bráð lif-
andi,” sagði Bjarni og leit hlæjandi til óla
Palla um leið og hann gekk út.
Þegar Sigga var búin að gefa lambinu að
drekka, það sem því var ætlað, fór hún og óli
Palli með það suður fyrir bæjarvegg, þangað
sem sólin skein heitast. Þau bjuggu því hvílu
í dúnmjúku grasinu og settust svo andspænis
hvort öðru með litla lambið á milli sín.
“Eg fann það. Eg á það”, sagði óli Palli
hróðugur og brosandi til Siggu.
“Þú fanst það. Þú átt það. Ertu að segja
satt, Óli Palli?” spurði Sigga undrandi.
“Já, eg skrökva aldrei,—ekki að þér Sigga,”
sagði Óli Palli og reitti gras með fingrun-
um.
“Eg vissi ekki, að þú ættir kindur, Óli,”
sagði Sigga.
“Eg á heldur ekki fleiri kindur. Hann
pabbi þinn gaf mér það áðan,” sagði óli Palli
og brosti til Siggu.
“að var fallega gjört af pabba,” sagði
Sigga og klappaði saman litlu lófunum sínum.
“En(-”
“En hvað Sigga? Hvað ætlaðir þú að
segja? ” spurði Óli Palli, því Sigga hikaði og
hætti við að enda setninguna.
“Ekkert. Það var ekkert, óli. Bara vit-
leysa,” sagði Sigga og hló.
“Eg veit hvað þér bjó í huga,” sagði óli
Palli og horfði brosandi til litlu vinu sinnar.
“Nei, Óli. Það veizt þú ekki,” sagði Sigga
og hristi glóhærða kollinn sinn.
“Þér þykir vænt um litla lambið. Mundi
þig ekki hafa langað til að pabbi þinn hefði
gefið þér það?” spurði Óli Palli dálítið glettn-
islega.
“Gefið mér lambið! Jú-jú, ja, eg veit ekki.
Nei, eg held ekki, því eg á bæði larnb og ær. En,
en það hefði nú samt verið undur gaman að
eiga lamb eins og þetta, og mega hjúkra því og
— og leika við það,” sagði Sigga.
“Já, eg hélt þetta,” sagði Óli Palli lilæj-
andi.
“Því datt þér það í hug?” spurði Sigga og
horfði rannsakandi á hann stóru, bláu augun-
um sínum.
“Eg vildi að eg væri lambið,” sagði óli
Palli og dæsti.
“Langar þig svona mikið til þess að vera
veikur, eins og það?” spurði Sigga glettin.
“Nei, nei. Eg á ekki við það,” sagði Óli
Palli. “Eg á við, að það væri gaman að mega
leika við þig og dansa í kringum þig eins og
lambið,” sagði Óli Palli og hló léttan, dillandi
hlátur.
‘ ‘ Dansa í kringum mig, eins og lambið, seg-
ir þú. Sýnist þér þá lambið þess vert, að það
dansi, þegar það liggur fárveikt hér á milli
okkar? Þú ert víst að reyna að vera skáldleg-
ur núna, Óli Palli, en þér tekst það illa. Þú ert
ekkert skáld,” sagði Sigga.
“Verð það ef til vill einhvern tíma,” sagði
Óli Palli drjúgur.
“Ekki held eg það. Þú ert ekki skáldlega
vaxinn”, sagði Sigga.
“ Jæja, svo eg er það ekki. Hvernig eiga þá
skáld að’vera vaxin? Geturðu sagt mér það,
Sigga?” sagði Óli Palli.
“Eins og hann Jón Jakob. Hann er skáld,
eins og þú veizt,” sagði Sigga.
En svo fór hún að hlæja. Og Óli Palli vissi
af hverju hún hló, svo hann hló líka. Þeim kom
báðum það sama í hug, það, að Jón Jakob var
sérlega ólánlegur í vexti og sjón. En hann var
skáld, það heyrðu ])au alla segja.
“Svo þú heldur, að eg geti ekki gjört vísu,
eíns og hann Jón Jakob?” spurði Óli Palli.
“Nei. En það væri nú samt ósköp gaman,
ef þú gætir það,” sagði Sigga.
“Á ég að reyna?” spurði Óli Palli.
‘Ja—á. Gerðu það, Óli”, sagði Sigga.
Óli Palli lagðist aftur á bak, og setti báðar
hendumar fyrir aftan hnakkann, horfði svo út
í bláinn og hugsaði. En Sigga sat á hækjum
sínum með hendumar í keltunni og horfði ým-
ist á Óla Palla eða lambið, sem virtist blunda
vært á milli þeirra.
Eftir dálitla stund, rís Óli Palli upp við oln-
boga og segir: “Eg er búinn að gjöra vísurn-
ar, Sigga.” ^
“Ei’tu búinn, strax! Það er þó ómögulegt.
Góði, lofaðu mér'að heyra þær,” sagði Sigga.
“Þú mátt þá engan láta vita um þetta,
Sigga,” sagði Óli Palli, “því eg er kannske
ekki eins gott skáld og Jón Jakob. En eg ætla
að verða það einhvem tíma.”
“Nei, nei. Eg skal engum segja neitt,”
sagði Sigga.
“Jæja, þá. En þú mátt heldur ekki hlæja
að mér, Sigga,” sagði Óli Palli, hálf-feimnis-
leSa-
“Hlæja að þér, Óli! Nei, það gjöri eg ekki.
Eða því heldurðu að eg færi til þess?” spurði
Sigga. . . '
“Af því þær em ef til vill ekki eins og þær
ættu að vera. Eg hefi ekki reynt þetta nema
tvisvar áður,” sagði óli Palli.
“Eg er viss um, að þær eru góðar,” sagði
Sigga. “Láttu mig nú heyra þær fljótt. Eg
skal taka vel eftir.” 4
Svo byrjaði óli Palli að hafa yfir vísumar.
“Eg ætla að kalla vísumar “Lambið mitt”,
sagði Óli Palli.
Langt uppi á dal í dimmri
og daunillri jarðar-holu,
einmana’ og yfirgefið,
aumingja lambið fann ég.
Blíðlegum bænar augum,
biðjandi á mig það starði.
Björgun því ljúfa léði’ eg
og lyfti í arma mína.
Heim með það léttur leið ég,
lundhýr, í hjarta glaður.
Bjarni svo góður gaf mér
gimbrina’ og fóðrið líka.
Fel ég svo lambið litla
leiksystur minni blíðri.
Veit ég í hennar liöndum
hendir það engin mæða.
“Vísumar eru ekki fleiri. Hvernig finst
þér þær vera, Sigga?” spurði Óli Palli.
“Þær eru alveg inndælar. Ekki hélt eg að
þú gætir þetta, Óli. Þú ert skáld, óli! Eg held
meira að segja, að þú yrkir betur en hann Jón
Jakob. Þær eru svo ljótar, sumar vísurnar
hans,” sagði Sigga.
“En hvað mér þykir vænt um, að þér skuli
líka þær, Sigga. Eg var svo hræddur um, að
þetta væri tóm vitleysa,” sagði Óli Palli.
“Nei, það er engin vitleysa, ÓIi. Þær eru
góðar og fallegar líka. Og — heyrðu, óli. Eg
er svo fjarska glöð yfir því, að þú skulir vera
skáld,” sagði Sigga.
“Á Ertu það? Af hverju?” spurði Óli
Palli.
“Ja, eg — eg veit það nú ekki vel,” sagði
Sigga og hló.
“Þá skal eg líka lofa þér að heyra meira
seinna,” sagði ÓIi Palli.
“Já, góði, gerðu það. Og — og viltu yrkja
eitthvað um mig, Óli?” bað Sigga.
“Eitthvað! Er þér sama hvort það er fall-
egt eða ljótt?” spurði óli Palli glettinn.
“Nei, Óli, auðvitað verður þú að hafa það
eitthvað fallegt,” sagði Sigga.
“ Jæja, þá. Eg skal reyna áður en langt um
líður,” sagði Óli Palli.
“Ó, hvað það verður gaman að fá vísur frá
þér, Óli,” sagði Sigga og klappaði saman litlu
lófunum sínum af gleði. “En — heyrðu, ÓIi!
Þu átt eftir að segja mér söguna um það, hvern-
ig það vildi til, að þú fanst lambið.”
“Já, það er satt,” sagði Óli Palli og brosti,
er hann hugsaði til þess atburðar.
“Hvar fanstu litla lambið, Óli?” spurði
Sigga.
“Niðri í jarðfalli langt uppi á dal,” sagði
Óli Palli.
“ó, blessaður litli auminginn, ó-sköp hefir
iþú átt bágt,” sagði Sigga og lét vel að sofandi
lambinu.
“Nú, nú! Hvað svo?”‘spuiði Sigga og
sneri sér að óla Palla.
Og í annað skifti þennan sama klukkutíma,
varð Óli Palli að segja söguna um hljóðið, sem
barst til eyrna hans neðan úr dalnum.
Sigga fylgdist svo vel með sögunni, að hún
lifði sig alveg sjálf inn í atburðina. Og Óli
Palli sagði hana með svo miklum sannfæring-
arkrafti og spenningi, að Sigga sá alla atburð-
ina í sama ljósi og hann. Og tíminn leið, en
þau vissu ekkert af því.
“Ó, eg held eg hefði orðið alveg voðalega
hrædd við hljóðin, óli.” sagði Sigga eftir að óli
Palli hafði lokið frásögninni.
Sigga stundi þungan.
“Hvemig hefðir þú nú farið að, Óli, ef ótæt-
íð hann frafellsmóri, Þorgeirsboli eða Langanes-
skotta liefðu verið þarna á ferðinni? Þau
hefðu tekið þig með sér og ef til vill—” -- --
Það fór hrollur um Siggu, svo hún gat ekki
endað það, sem hún ætlaði að segja.
“Og hefðu ef til vill étið þig, varst þú að
hugsa um að segja,” sagði Óli Palli og hló. —
“Nei, nei, Sigga. Á ég að segja þér nokkuð?
Þegar eg heyrði þessi skerandi vein berast, t,i)
mín neðan úr dalnum, þá taldi eg víst að þau
stöfuðu frá einhverju þessara óvætta, og var
kominn á flugstig með að hlaupa og flýja. En
eftir að eg yfirbugaði ótta minn og komst að
/■aun um, að þessi hljóð vora að eiirs liróp um
Ajálp frá ósjálfbjarga, litlu lambi, þá var eins
úg vald þessara ósýnilegu óvætta. yfir roér rén-
aði. Eg fór að efast um vald þeirra og veru-
leik. Og eg skal segja þér, Sigga. Eg held að
þessir óvættir, sem bæði eg og fleiri hafa verið
svo oft hrædd með, séu alls ekki til nema í í-
mynduðum hjátrúarórum og munnmælum. Og
þó nú svo væri, að einhverju leyti, þá hygg eg
að þau hefðu ekki þorað að taka mig.”
“Hvað segirðu, Óli? Ekki þorað! Held-
urðu virkilega, að þau hefðu verið hrædd við
þig?” spurði Sigga, og fór henni nú heldur en
ekki að finnast til um kjark, karlmensku og
þrek Óla Palla.
“Já,” sagði Óli Palli og nikkaði liöfðinu.
“Já, Sigga. Þau eru lirædd við mig, af því
þau vita, að Guð og verndartngillinn minn, eru
ávalt með mér og varðveita mig.”
Sigga horfði á óla Palla með aðdáun. Hún
hafði aldrei áður heyrrt, nokkum dreng tala eins
og hann. Stundum var hann svo dularfullur
. og alvarlegur, að hún skildi liann ekki, en þó
liafði hún unun af að hlusta á hanfi og athuga
þessar dulkendir hans. Og þegar hún horfði
inn í dökku, fallegu augun lians á þeim stund-
um, þá voru'þau föst og dreymandi, og henni
virtist hann horfa þeim svo langt, langt í bftrtu.
En þó gátu þessi sömu augu tindrað og skotið
eldingum og dansað af fjöri og glettum, ef svo
bar undir.
“Hver ör hann, þessi venrndarengill þinn,
sem þú berð svo mikið traust til?” spurði
j Sigga og leit alt í kringum sig til að vita, hvort
hún kæmi hvergi auga á liann.
Óli Palli liló, er liann leit til Siggu. “Þú
getur ekki séð vemdarengilinn minn,” sagði
hann. “Hann er ósýnilegur. En eg hefi samt
séð hann einu sinni og veit að það er ljómandi
falleg, lítil stúlka.”
“Ósýnileg — lítil — falleg — stúlka!” end-
urtók Sigga. “Þetta fer að verða spennandi.
En hvar er hún þá núna?” spurði Sigga og hló
léttum vantrúar-hlátri.
“Þetta er satt, Sigga,” sagði Óli Palli, er
hann sá, að hún trúði honum ekki fvllilega.
“Eg er ekki að skrökva, Sigga. Litla stúlkan
getur verið hér hjá okkur, þó við sjáum liana
ekki.” ‘
Svo skýrði Óli Palli henni frá draumnum,
sem hann drevmdi daginn sem hann sofnaði
út af grátandi sunnan í bæjarhólnum á Sveiná.
“Þetta er undarleg. Mjög einkennilegt,”
sagði Sigga, eftir að hún hafði hlýtt á frásögn
Óla Palla, Henni datt nú ekki í hug að efast
um, að Óli Palli segði satt. “Skyldu allir hafa
verndarengla? Heldurðu að eg hafi nokk-
um?” spurði hún.
“Já, Sigga. Eg er sannfærður um, að þú
átt veri^darengil, góðan verndarengil. Því all-
ir, sem eru góðir, eiga góða fylgjendur,” sagði
óli Palli.
“Er eg þá svo góð?” spurði Sigga glettin.
“Já, þú ert góð,” sagði Óli Palli og leit út
1 bláinn dreymandi augunum sínum.
“Heldurðu þá, að minn veradarengill sé
líka falleg stúlka?” spurði Sigga brosandi.
“Eg veit það ekki,” sagði Óli Palli.
“Eg vildi heldur, að það væri fallegur
drengur,” sagði Sigga og varð nú aftur alvar-
leg.
“Nú, því vildir þú það heldur?” spurði óli
Palli og leit nú fjörlegum augum til Siggu.
DR. B. J. BRANDSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor Graham og Kennedy Sts.
PHONE:’21 834 Office tlmar: 2—S
Helmili 776 Victor St.
Phone: 27 122
Winnipeg, Manitoba.
DR. O. BJORNSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
PHONE: 21 834 Office tímar: 2—3
Heimili: 764 Victor St,
Phone: 27 686
Wlnnipeg, Manitoba.
DR. B. H. OLSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
PHONE: 21 834 Office tlmar: 3—5
Heimili: 6 ST. JAMES PLACE
Winnipeg, Manitoba.
DR. J. STEFANSSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
PHONE: 21 834
Stundar augna, eyrna nef og kverka
sjúkdðma.—Er aB hitta kl. 10-12 f.
h. og 2-5 e. h.
Heimili: 373 River Ave. Tals.: 42 691
DR. A. BLONDAL
202 Medical Arts Bldg.
Stundar sérstaklega k v e n n a og
barna sjúkdöma. Er a8 hitta frft. kl.
10-12 f. h. og 3-5 e. h.
Office Phone: 22 296
Heimili: 806 Victor St. Slmi: 28 180
Dr. S. J. JOHANNESSON
8tundar lœkninffar Off yfiraetur.
Tll viStals kl. 11 f. h. tll 4 e. h.
og frfi. 6—8 a8 kveldinu.
SHERBURN ST. 532 SlMI: 30 877
H. A. BERGMAN, K.C.
íslenzkur lögfræSingur
Skrifstofa: Room 811 McArthur
Building, Portage Ave.
P. O. Box 1656
PHONES: 26 849 og 26 840
Lindal Buhr & Stefánsaon
lslenzkir lögfræSingar.
356 MAIN ST. TALS.: 24 963
peir hafa einnig skrifstofur a8
Lundar, Riverton, Gimli og
Piney, og eru þar aS hitta á
eftirfylgjandi tlmum:
Lundar: Fyrsta mi8vikudag,
Riverton: Fyrsta fimtudag,
Gimli: Fyrsta miSvikudag,
Piney: Pri8ja föstudag
I hverjum mánuBi.
J.RAGNAR TOHNSON
B.A, LL.B, LL.M. (Harv.)
Ulenzkur lögmaður.
Rosevear, Rutherford Mclntosh and
Johnson.
910-911 Electric Railway Chmbrm.
Winnipeg, Canada
Slmi: 23 082 Heima: 71 753
Cable Address: Roscum
J. T. THORSON, K.C.
islenzkur lögfræ8ingur
SCARTH, GUILD & THORSON
Skrifstofa: 308 Mining Exchange
Bldg, Main St. South of Portage
PHONE: 22 768
G. S. THORVALDSON
B.A, LL.B.
LögfræBingur
Skrifstofa: 702 Confederation
Life Building.
Main St. gegnt City Hall
PHONE: 24 587
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
601 PARIS BLDG, WINNIPEG
Fastelgnasalar. Leigja hús. Út-
vega peningal&n og eldsábyrgB
af öUu tagl.
PHONE: 26 349
A. C. JOHNSON
907 Confederation Life Bldg.
WINNIPEG
Annast um fasteignlr manna.
Tekur a8 sér a8 ávaxta sparlfé
fölks. Selur elds&byrgS og bif-
rei8a ábyrgBir. Skriflegum fyr-
irspurnum svaraö sainstundís.
Skrifatofuaími: 24 263
Heimasími: 33 328
ALLAR TEOVNDIR FLUTNINOA !
Nú er veturinn genginn 1 gar6.
og ættuB þér þvl a8 leita til mtn,
þegar þér þurfiS á kolum og
vl8 a8 halda.
Jakob F. Bjamason
668 Avlerstone. Slmi 71 398
pJÓÐLEOASTA KAFFl- OO
UAT-SÖLUHÓBIÐ
sem þessi borg hefir nokkum
tlma haft innan vébanda slnna.
Fyrlrtaks máltI8ir, skyr, pönnu-
kökur, rúllupylsa og þJ68ræknU-
kaffi.—Utanbæjarmenn fá sér
ávait fyrst hressingu á
WEVEL CAFE
«92 SARGENT AVE.
Slmi: 37 464
ROONEY STEVENS, eigandl.
GUÐRÚN S. HELGASON
A.T.C.M.
kennari I
Pianöspili og hlJómfrœOi
(Theory)
Kenslustofa: 540 AGNES ST.
Slml: 31 416
“Eg — eg veit það ekki. Eg held að — að
eg treysti honum betur að gæta mín,” sagði
Sigga með bamslegri einlægni.
Óli Palli hló.
“Það getur vel veríð, að þú viljir heldur
• dreng fyrir verndarengil, en eg vil ekki skifta
á honum og litlu, fallegu stúlkunni minni,”
sagði Óli Palli.
Og sakleysið bjó á meðal þeirra, hló í aug-
um þeirra og tengdi saman litlu hjörtun.
S P A K M Æ LI.
Hvorki tími né rúm geta skert vináttu
þeirra, sem eru algjörlega fullvissir, hvor um
annars mannkosti og verðleika, — R. Southey.
Alt af finst mér eg vera meir og meir að að-
hyllast þá skoðun Darvins, að ekkert sýni eins
vel gildi eða verðleika mannsins, eins og það,
hversu lengi hann getur haldið vináttu-sam-
bandi. — Anna Ritchie.
Tilfellin sjálf gera manninn hvorki veikan
né styrkan, heldiir verða þau til að sýna, hvað
hann í raun og veru er. — Thomas Kempis.
Þeir sem ganga ekki nærri virðingu ann-
ara, eru oftast virðingarverðir sjálfir. — Anon.
Snúið úr ensku af Jakobínu J. Stefánsson,
Hecla, Man.