Lögberg - 20.11.1930, Page 4
Bls. 4.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 20. NÓVEMBER 1930.
Högberg
Gefið út hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS, LTD.,
Cor. Sargent Ave. og Toronto St.
Winnipeg, Manitoba.
Talsímar: 86 327 og 86 328
Einar P. Jóiisson, Editor f
Utanáskrift blaðsins:
The Columbia Press, Ltd., Box 3172
Winnipeg, Man.
Utanáskrift ritstjórans:
Editor Lögberg, Box 3172, Winnipeg, Man.
Verð $3.00 um árið. ■ Borgist fyrirfram.
The “Lögberg” is printed and published by
The Columbia Press, Limited,
695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba.
V ——■*—»—-—-—-—■"—-—"—"—"—" "—”—"—■—4*
Fundur um Indlandsmálin
Fyrir skömmu var stofnað til fundar í Lund-
vínum um Indlandsmálin; fundinn setti hans há-
tign George Breta-konungur, en megin ræðuna
við það tækifæri flutti forsætisráðgjafinn brezki,
Mr. Ramsay MacDonald. Tilgangurinn með
fundi þessum var sá að ráðslaga um það, með
hverjum hætti að helzt mætti hrinda í fram-
kvæmd slíkum stjómarbótum fyrir hönd Ind-
lands, er til varanlegs gagns mætti verða ind-
versku þjóðnmi, sem og brezka veldinu í heild.
Að fundi þeim, er hér um ræðir, stóðu allir
pólitísku flokkamir brezku, ásamt leiðandi
mönnum úr flestum flokkum og stéttum Ind-
verja.
Við fundarsetninguna voru staddir forsætis-
ráðgjafar hinna brezku sambandsþjóða, þeir, er
samveldisstefnuna sátu.
Oftar en einu sinni hefir Bretum verið lagt
þa$ til ámælis, hve fátt þeir hefði látið sér við-
víkjandi sjálfstjómarkröfum Indverja. Við
nána athugun ástandsins, eins og það í raun og
veru er, verður samt tæpast með sanni sagt að
slíkar aðfinslur hafi haft við veruleg rök að
styðjast; haldgóður þroski er sjaldan hraðfara,
og þegar tekið er tillit til þess, hve margvísleg
þau öfl era á Indlandi, er stjóm Breta á að etja
við, væri engan veginn sanngjamt að kveða upp
stranga áfellisdóma yfir meðferð hennar á þeim,
þótt vafalaust megi réttilega að hinu 0g þessu
finna.
Indverska þjóðin er feykilega mannmörg,
landið auðugt og víðáttumikið; þjóðin er skift í
óteljandi flokka, er að siðvenjum 0g trúarskoð-
unum era harla ólíkir; innan vébanda þjóðar-
innar, er að finna hámentaða einstaklinga og
stéttir, jafnframt því sem svo er þar margt af *
ólæsu fólki, að tala þess er legíó; getur ekki hjá
því farið að slíkt verði enn um langt skeið, al-
varlegur 'þrándur í götu fyrir æskilegum við-
gangi lýðræðishugsjónanna með hinni inversku
þjóð.
Sérhver sá, er fylgst hefir að nokkru með
þróunarsögu stjómarfyrirkomulagsins hjá hin-
um ýmsu þjóðum, hlýtur að viðurkenna að það
sé engan veginn neitt smáræði, sem unnist hefir
á í umbótaáttina með indversku þjóðinni síðast-
liðin fjörutíu árin. Arið 1882, vora ráðstafanir
gerðar í þá átt, að veita ýmsum borgum á Ind-
landi réttindi til viðurkends bæjarstjómar fyrir-
komulags, með líku sniði og nú gengst við hjá
öðram þjóðum innan takmarka hins brezka
veldis; leiddi slíkt til mikils góðs og glæddi með
þjóðinni metnað og ábyrgðar tilfinningu; þrem
áram síðar var stofnuð þjóðsamkundan, Na-
tional Congress, en árið 1909 var fyrst tekið til
þess fyrir alvöra að rýmkva um kosningarrétt-
inn; þó var stærsta sporið stigið í þá átt árið
1929, er innfæddum Indver jum var veittur kosn-
ingaréttur í miljónatali; var þá einnig rýmkað
næsta mikið til um valdssvið bæja og héraðs-
stjóma. Þetta sama ár skipaði stjóm Breta þá
hina konunglegu rannsóknarnefnd, undir for-
ustu Sir John Simons, er heimsótti Indland,
ráðgaðist þar við mætustu menn hinna ýmsu
flokka, og fékk að loknu starfi tillögur sínar
brezku stjóminni í hendur í vetur sem leið. Svo
frjálsmannlegar vora tillögur nefndarinnar
yfirleitt, að furðu gengur næst að þeim skyldi
ekki vera betur tekið, en raun varð á. 1 tillög-
um þessum er meðal annars gert ráð fyrir því,
að tala kjósenda skuli þrefölduð verða; að kom-
ið verði á fót skipulagsbundnum fylkisstjóm-
um, hvar helzt er telja megi víst, að fólk hefði
náð þeim þroska, að geta nytfært sér slíkt fyrir-
komulag, og að takmarkið, sem stefna bæri að
skyldi vera það, að stofna á sínum tíma til
fylkjasambands með líku sniði og því, er við-
gengst í Canada og Ástralíu, eða með öðram
frjálsum sambandsþjóðum Breta.
Margir indverskir áhrifamenn, hafa tjáð sig
hlynta því fyrirkomulagi, sem hér er um að ræða
og þykjast sjá í því svo mikilvægar réttarbætur,
að lítt verjanlegt yrði að ganga þær á snið. Á
hinn bóginn líta Nationalistar, eða hinir ein-
dregnustu málsvarar þeirra þannig á, að með
þessu sé ekki nándar nærri gengið nógu langt í
sjálfstæðisáttina, og að þarafleiðandi beri þjóð-
inni að hafna þeim uppástungum vafningalaust,
er í nefndarálitinu felast. Fyrir tíu áram, eða
svo, liefðu leiðandi menn Nationalista vafalaust
litið svo á, að hér væri um svo margar og mikil-
vægar réttarbætur að ræða, að ekki kæmi til
nokkurra mála að hafna þeim. En afstaða
þeirra nú, frá hvaða sjónarmiði sem skoðað er,
hlýtur að teljast talandi vottur um það, hve
sjálfstæðisþráin hefir færst í aukana hin síðari
árin og hvern kynjamátt vaknandi þjóð hefir til
branns að bera.
Hver veit nema miklu betur hefði tekist til
um árangur Simon-nefndarinnar, ef einhverjir
innfæddir Indverjar hefðu átt í henni sætif
Fram hjá því var samt sem áður af einhverjum
ástæðum gengið, er nefndin var skipuð.
Báðir gömlu stjómmálaflokkarnir brezku,
hafa veizt allmjög að MaeDonald-stjórninni
fyrir afskifti liennar af Indlandsmálunum, án
þess þó að hafa, að því er bezt verður séð, upp
á nokkuð annað betra að bjóða; ekki þó er ör-
grant um, að svo kunni augu þeirra að opnast á
mikilvægi málsins, að þeim veitist vitund hægra
með að átta sig á sjálfstjórnar kröfum Indverja
og réttmæti þeirra, en nú virðist eiga sér stað.
Skyldur Breta gagnvart indversku þjóðinni,
eru næsta víðtækar, og þær hvíla á herðum allra
brezkra stjómmálaflokka jafnt.
Indverska þjóðin fómaði miklu fyrir veldis-
heildina brezku, meðan á heimsstyrjöldinni síð-
ustu stóð, og hún lét þær fórnir fúslega í té. Hún
verðskuldar því fylstu samúð brezkra stjómar-
valda, sjálfstæðiskröfum sínum viðvíkjandi, og
mun slíkt í framtíðinni verða báðum aðiljum
fyrir beztu.
Stjórn sú, er nú fer með völd á Bretlandi, er á-
kveðið lilynt sjálfstæðiskröfum Indverja, án
þéss þó að hún sé líkleg til þess að hrapa að
nokkra, því henni skilst vitanlega hve vandmeð-
farið málið er. Takist henni fyrir viturlegar
tillögur fundar þess, sem nú hefir nefndur verið,
og með hliðsjón af uppástungum annara beztu
manna hinnar brezku þjóðar, að koma Indlands-
málunum í viðunandi horf, hefir hún ekki til
einkis barist.
»---------------------------—-------------1-
Einkennileg afstaða 1
Tekjumálaráðgjafi sambandsstjómarinnar,
Hon. E. B. Ryckman, er nýlega kominn heim úr
fimm vikna ferðalagi um Vesturlandið; fór
liann alla leið til British Columbia til þess að
kynna sér hag almennings, að því er austanblöð-
unum segist frá. Svo kvað hann fólkið í því
fylki líta björtum augum á lífið, að það væri
jafnvel ófáanlegt til þess að viðurkenna að hart
væri í ári. Orðið kvaðst ráðgjafinn hafa þess
var, að námamenn 0g bændur í Alberta, væri
ekki sem ánægðastir með kjör sín og framtíðar-
horfur; þó hefði það fengið sér undranar hve
margir væri þar vestra í raun og vera sann-
færðir um það, að vissasti vegurinn út úr ógöng-
unum væri falinn í tollvernd. Ekki hafa nú
samt Alberta bændurnir fengið neitt sérstakt
orð á sig fyrir að vera hátollamenn fram að
þessu.
1 júlímánuði síðastliðnum málaði flokkur sá,
er Mr. Ryckman telst til, ástandið hér í landinu
þannig, að ætla hefði mátt að þjóðin væri í raim
og vera komin á vonarvöl; og alt sem aflaga
fór, átti að vera King-stjóminni að kenna. Ekki
er um það að villast, að margt var að þá, en svo
er það líka enn. Era líkur til, að svo hafi ástand-
ið breyst til hins betra á fáum mánuðum í Brit-
ish Columbia, að þar sé nú ekki framar nokkuð
að? Þó virðist oss nokkuð kveða við annan tón
í ýmsum blöðum þaðan að vestan.
Mr. Ryckman telur það undranarvert, hve
margir af íbúum Vesturlandsins séu hlyntir há-
tolla stefnunni; vera má að ráðgjafinn hafi eitt-
hvað fyrir sér í því, með því að slíkir menn era
ávalt fleiri en þeir ættu að vera. En haldi hann
það í alvöru, að íbúar Sléttfylkjanna hafi svarið
hátollafarganinu hollustueið um aldur og æfi, er
hætt við að hann kunni að sæta nokkram von-
brigðum, 0g það áður en verulega langt um líð-
ur. Mætti í þessu sambandi benda á það, að
ekki er nú lengra um liðið en síðan í september,
er framsóknarmennirair að vestan, fordæmdu á
aukaþinginu tollmúrakerfi Mr. Bennetts og hétu
lágtollastefnunni óskiftu fylgi.
Væri nú svo, sem því miður ekki er, að á-
standið í Vesturlandinu hefði batnað eins mik-
ið undanfarandi og Mr. Ryckman lætur af,
myndi slíkt að sjálfsögðu hafa orðið alþjóð
manna hið mesta fagnaðarefni. En skyldi ekki
hveitibóndinn og verkamaðurinn hafa nokkuð
aðra sögu að segja?
Það þarf áreiðanlega meira en fimm vikna
ferðalag um Vesturlandið, til þess að kippa því
öllu í lið, er þar fer aflaga um þessar mundir,
hvort heldur það nú er Mr. Ryckman eða einhver
annar, sem ferðast.
Eftirtektarvert
+—---------------------------------------•+
Nýlega var lögreglumaður í Manitoba fund-
inn sekur um manndráp og dæmdur í tíu ára
fangelsi. Hann hafði skotið konu til dauðs þeg-
ar hann var svo drakkinn að hann kunni ekki
fótum sínum forráð.
Allskonar slys, morð og sjálfsmorð eru birt í
blöðum daglega, sem beint eða óbeint era afleið-
ingar áfengisnautnar; 0g þeim er lítill gaumur
gefinn. Af því svo vildi til að hér var um einn
af embættismönnum þjóðarinnar að ræða, hefir
þetta slys vakið meiri eftirtekt en ella.
Herra J. H. Riddell, forstöðumaður Wesley
skólans skrifar bréf í blaðið Free Press á laug-
ardaginn, þar sem hann tekur þetta slys til al-
varlegrar íhugunar. Bréf hans er einkar merki-
legt, og leyfi eg mér að biðja Lögberg að birta
það í íslenzkri þýðingu.
“Riddari dæmdur í fangelsi.
Til ritstjóransFyrir nokkram dögum var
ungur riddari (Mounted Police) kærður 1 Dau-
phin fyrir morð, fundinn sekur um manndráp
og dæmdur í tíu ára fangelsi. Þessi ungi maður
hét------jan, sleppum því, minst gerir til um
nafnið. Fáir þektu hann og eg vildi sízt hafa
það á samvizkunni að verja nokkurri ögn af
bleki til þess að gera dekkri blettina, sem fallið
hafa á hann sjálfan og fólk hans. Því vafalaust
á hann einhversstaðar ástvini og ættingja með
svíðandi sáram, sem engin mannleg hönd á
smyrsl til að mýkja eða græða.
Þessi ungi maður heyrði til þeim flokki, sem
mjög mikillar virðingar nýtur í öllu Vestur-
landinu og eftir því að dæma, sem fram kom við
réttarhaldið, hafði hann gott álit að öllu leyti.
Eftir því sem oss er sögð fréttin vildi það til
3. september á þýðinarmiklu hátíðahaldi að
þessi ungi maður skaut til dauðs varnarlausa
konu. Hann var tekinn fastur, fékk sanngjaraa
réttarfærslu og óhlutdræ^a og var dæmdur í tíu
ára fangelsi.
Margir lásu fréttina í blöðunum, hrystu höf-
uðuð dapurlega og sögðu svo með kæraleysisblæ
í röddimii: “Enn þá einn glæpamaðurinn!
Veslings ræfillinn! Hann hefir víst ekki átt
betra skilið!” Og þegar fangelsisdyi nar lok-
uðust þar sem þessi ungi maður var og byrjaði
hin löngu einveruár, þá gleymdum vér smátt og
smátt þessu atviki.
En er það annars mögulegt eða eðlilegt að
vér getum gleymt því? Getum vér hrandið úr
huga voium þessum hryggilega atburði og verið
eins rólegir eftir sem áður? Ætti ekki mann-
félagið að spyrja hvemig á því standi að eitt af
bömum þess með ekkert ilt í huga, skyldi geta
leiðst þannig afvega? Höfum vér fullkomlega
gert skyldu vora þegar vér höfum látið þennan
unga mann hafa sanngjama réttarfærslu, mælt
til hans nokkram hughreystingaroi’ðum og síð-
an svift hann og sjálfa oss tíu dýrmætum starfs-
og líísárum, og um leið fest við mannorð hans
blett, sem aldrei verður að fullu af þveginn ?
Mannfélagið ætti sannarlega í minsta lagi að
grenslast eftir ástæðum, sem til þessarar voða
hörmungar leiddu. Hverju er alt þetta að
kenna? Hundrað raddir kalla upp of segja:
“Ungi maðurinn er sjálfur valdur að því.” Það
er nú svo; en hvenær skyldum vér geta losað
huga vom frá þessum voðalegu einstaklings á-
kærum, Það að ungi maðurinn hafi sjálfur átt
að bera ábyrgð gerða sinna, dettur engum í hug
að efa; en er það ekki augljóst að í sambandi
við þetta komi til greina félagsleg ábyrgð?
Þessi ungi maður var drukkinn, svo drakkinn,
að hami auðsjáanlega vissi ekki hvað hann var
að gera. Þegar hann rankaði við sér á leiðinni
til Dauphin spurði hann í barnslegri einfeldni
hvernig á því stæði að hann væri tekinn fastur.
Þessi voðalega sýn, sem honum var að birt-
ast, var rétt eins 0g skelfilegur draumur, hann
vissi bókstaflega ekki að neitt verulegt hefði
komið fyrir.
Áfengið hafði deyft eða svæft skynsemina og
numið í burtu siðferðisþrekið, 0g háðsyrði eða
stríðnisorð konu höfðu þau áhrif á hann þegar
áfengið hafði svift hann skynseminni, að hann
framdi þennan voða glæp.
Hér hljóta menn að spyrja: Hver veitti
honum fengið? Hvaðan kom það? Stjórnimar
bæði í Manitoba 0g Saskatchewan hafa áfengis-
sölu. En þær verzla með þessa vöru fyrir þá
sök, að þjóðfélagið—fólkið—af ásettu ráði bað
þær um það með atkvæðum .sínum. Þegar
þannig er ástatt er þaðl þá mögulegt fyrir þjóð-
félagið að þvo hendur sínar af allri ábyrgð á því
sem eitt af börnum þess hefir aðhafst í því sam-
bandi? Var það ekki í raun réttri þjóðfélagið,
sem veitti eitrið, sem orsakaði það, að þessi ungi
maður framdi glæp, sem hann hefði allsgáður
ekki látið sér til hugar koma, hvað þá heldur
unnið?
Ungi maðurinn var sekur, sorglega sekur, en
sekt hans á sér orsakir, sem þjóðfélagið hlýtur
að bera hlutfallsábyrgð á—meðbræður hans era
meðsekir honum. Ábyrgðin er félagsleg, ekki
einungis einstaklingsábyrgð.
Eg er ekki að afsaka þennan unga mann; eg
er ekki að halda því fram að honum sé ranglega
hegnt, en eg er að reyna að gera það skiljanlegt
að mannfélagið beri mjög ákveðna ábyrgð á
þessum glæp og ætti að minsta kosti að spyrja
sjálft sig hvers vegna það veitti þessum unga
manni drykkinn, sem varð bein orsök til þess að
eyðileggja hann.
En hvenær skyldum vér annars vakna til
meðvitundar um vora félagslegu ábyrgð? Vakna
til fullrar meðvitundar um þýðingu orðanna :
‘Enginn lifir sjálfum sér eingöngu.’ ”
Sig. Júl. Jóhamiesson þýddi.
I
%
Frá Hensel, N. Dakota
17. nóv. 1930.
Mánudagskveldið þ. 10. þ. m.
leið fljótt með gleði, söng og ræð-
um, hjá Mr. og Mrs. S. T. Björn-
son, þegar nálega 40 bílar komu
aðvífandi kl. 8V2. Það var reglu-
lelgt “surprise party” eða “house-
warming”, eins og við köllum það
á ensku, það er ekki vel gott að
þýða það á íslenzku með jafnfá-
um orðum, en auðvitað er mein-
ingin sú að koma að fólki óvöru,
heimsækja það án þess að það
hafi hugmynd um slíka heimsókn.
Svo sýndist það og í þetta sinn;
þrátt fyrir það tóku húsráðendur
vel á móti þessum mannfjölda.
Þegar fólk hafði farið úr yfir-
höfnum og jafnað sig dálítið, voru
sungin tvö erindi úr kvæði Jón-
asar Halllgrímssonar “Hvað er svo
glatt?” Næst flutti séra Stein-
grímur Thorlaksson bæn. Þá sagði
A. M. Ásgrímson nokkur orð, gat
þess, að ástæðan fyrir þessan
heimsókn væri, að samfagna heim-
ilisfólkinu með nýja, vandaða í-
búðarhúsið, sem bygt var síðast-
liðið sumar, og sem er eitt af
allra myndarlegustu húsum hér í
bylgð, og sérstaklega frábrugðið
því, sem maður á að venjast, þarl
sem það er steypt að utan, en það
er afar vandaður og endingar-
góður byggingarstíll, en um leið
býsna dýr.
Séra H. Sigmar stýrði dag-
skránni, sem var eins og vanalega
er við slík tækifæri, ræðuhöld og
söngur..
Er séra Sigmar ágætur fram-
sögumaður á slíkum skemtimót-
um, fyndinn í orðum og kátur, en
það er einmitt það sem þarf, til
þess að allir séu í góðu skapi og
með létta Innd.
Ræður manna verða ekki birtar
hér, þess að eins getið, að auk
séra Sigmars og séra Thorlaks-
sonar, sem báðir héldu ræður,
þá töluðu einnig: Tryggvi Ander-
son og Jósef Einarsson; hefðu
sjálfsagt margir fleiri viljað taka
til máls, en ein kvöldstund er fljót
að líða. Mrs. B. S. Thorwaldson
sagði brot úr ferðasö'gu sinni til
íslands og annara landa í Evrópu
síðastliðið sumar; var það ágæt-
lega flutt, að því er mál og fram-
burð snerti.
í lok dagskrár afhenti séra Sig-
mar þeim hjónum vandaðan stól
að gjöf, frá þessum vinum þeirra,
sem ofurlítinn þakklætisvott fyr-
ir það, hvað þau hefðu verið þess-
ari bygð og fólkinu, sem í henni
býr. Þakkaði Mr. Björnson fyrir
heimsóknina og vináttuna, sem
þeim væri sýnd með þessu.
f meir en þriðjung aldar hafa
Dodd’s Kidney Pills verið viður-
kendar rétta meðalið við bakverk,
gigt, þvagteppu og mörgum fleiri
sjúkdómum. Fást hjá öllum lyf-
sölum, fyrir 50c. askajn, eða sex
öskjur fyrir $2.50, eða beint frá
The Dodds Medicine Co., Ltd.,
Toronto, ef borgun fylgir.
er mest sungið, — en þetta er nú
dálítill útúrdúr.
Það var fleira haft til skemtun-
ar þetta kveld, en búið er að
minnast á; það var hlegið, þegar
einn ræðumaður sagði, að unga
fólkið gæti fengið að dansa í
gamla húsinu. Eg hygg að það
hafi verið næsti ræðumaður þar
á eftir, sem vildi snúa þessu við,
og láta gamla fólkið dansa þar,
en hvernig sem fólki talaðist til
um það, þá varð niðurstaðan
þessi, að bæði ungir og gamlir
dönsuðu í gamla húsinu, en þeir,
sem ekki tóku þátt í dansinum,
þéldu áfram að skemta sér í nýja
húsinu.
Þegar prógramið var búið, báru
konurnar fram kaffi með nógu
brauði og ísrjóma; þær eru nú alt
af samar við sig, alt af jafn-dug-
legar og ósérhlífnar. Þær áttu
sinn skerf í því að þetta sam-
sæti varð skemtilegt, og þó þeim
sé sjaldnast þakkað, þá vita þær
það og skilja, að þakklæti er í
huga okkar allra. ,
Að öðru leyti sýndist alt hjálpa
til að gera kvöldið ánægjulegt;
veðrið var eins yndislegt og bezt
getur verið um þetta leyti árs,
skafheiðríkt, glaða tunglsljós og
blæjalog, og allir vegir þurrir,
enda mátti svo segja, að öll bygð-
in væri saman komin þarna, eða
um 150 manns. Sýnist það vera
nokkuð margt, fyrir eitt heimili,
en þó að vísu væri hvert sæti skip-
að, sem kallað er, þá bar að öðru
leyti ekki svo mjög mikið á, að
þröngt væri, og eg held að öllum
hlutaðeigendum verði kvöldstund-
in efirminnileg.
A. M .A.
Þá sagði samkomustjóri, að
söngflokkurinn, sem eiginlega var
nú mjög fámennur, að minsta
kosti í byrjun, væri orðinn svo
góður, að hann gæti sungið “Ó,
guð vors lands”. Annars var
mikið sungið hjá Björnsons fólk-
inu þetta kvöld af hinum gömlu
íslenzku lögum og kvæðum, sem
engin þjóð í heimi á önnur eins
kynstur af. Það er eins og skáld-
in hafi kent í brjósti um gömlu
eyjun’a, að vera sett svona norð-
arlega á hnöttinn; það Iítur út
fyrir, að þau hafi kept hvert við
annað um að yrkja sem fegurst og
ódauðlegast um hana, sbr. kvæði
Kristjáns Jónssonar: “Norður við
heimskaut í svalköldum sævi, svíf-
andi heimsglaumi langt skilin
frá”, og ótal fleiri. Sem sagt, séra
Sigmar lét syngja mörg þessi ís-
lenzku lög; sjálfur er hann ágæt-
ur söngmaður og þau hjón bæði;
hann er einnig Þingeyingur að
ætt, og þar veit ég mest fjör og
gleði á öllum mannfundum, þar
eru beztar ræður fluttar og þar
WONDERLAND.
“Call of the Flesh”, kvikmynd-
in, sem Wonderland leikhúsið
sýnir á fimtudaginn og föstudag-
inn, mun mörgum þykja skemti-
leg. Á laugardaginn og mánudag-
inn sýnir leikhúsið myndina “Sonð
0‘ My Heart”. Þar syngur hinn
ágæti tenór söngvari John Mc-
Cormick. “Anybody's War”” verð-
ur sýnd á þriðjudaginn og mið-
vikudaginn. Moran og Mack vekja
mikinn hlátur hvar sem þeir sjást
og heyrast.
Banatilræði
Hinn 14. þ. m. var forsætisráð-
herra Yuko Hamoguchi 1 Japan
teýnt banatilræði. Var hann stadd-
ur í járnbrautarstöð í Tokio, er
maður skaut á hann og særði hann
miklu sári og hættulegu. Maður-
ir.n, sem morðtilraunina gerði,
var þegar tekinn fastur. Ekki er
kunnugt, hvers vegna hann vann
þetta verk.
I
Kjósið
Fred. H. Davidson
sem bæjarfulltrúa
fyrir
2. kjördeild.
Hann er yður að góðu
kunnur sem fyrverandi
bæjarfulltrúi og
borgarstjóri.
Setjið töluna 1 gengt
nafni Davidson
FRED. H. DAVIDSON