Lögberg - 01.12.1932, Page 6
Rla. fi
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. DESEMBER 1932.
Macklin kapteÍDD
— Endurminningar hans. —
EFTIR
RICHARD HARDING DAVIS.
I.
Það sýnist kannske ofdirfskufult af mér,
svo ungur sem eg er, að ráðast í það, að
skrifa æfisögu mína, eða að minsta kosti
nokkrar endurminningar úr lífi mínu. Menn
láta það vanalega dragast þangað til þeir
hafa afrekað eitthvað í lífinu, sem einhverja
þýðingu hefir og þess or vert að segja frá,
eða ef það er ekki fyrir iiendi, þá bíða þeir
þó að minsta kosti þangað til þeir eru orðnir
g'amlir menn. Þá fara þeir margir að segia
frá því tímabili í sögunni, sem þeir hafa lif-
að, og þá sérstaklega frá því, sem þeir hafa
gert, eða þá því, sem þeir höfðu ætlað að
gera. En lífsstaða mín, sem er sú göfugasta
lífsstaða sem er til, hermenska, er slfk, að
henni fylgir mikil hætta, og er því vissara
fvrir mig að byrja lieldur fyr en seinna að
skrifa endurminningar mínar, því þó enginn
viti hvenær dauðann kann að bera að hönd-
um, þá verður því ekki neitað, að þar er her-
maðurinn þó í enn meiri óvissu heldur .en
flestir aðrir menn. Hverjum þeim, sem þátt
tekur í roustum, er hollast að treysta aldrei
mikið á morgundaginn. Hann kemur kann-
ske aldrei — ekki fyrir hann.
Eg er því að liugsa um, að segja frá þvl
núna strax, þessu litla, sem eg hefi gert og
sem fyrir mig hefir komið; fyrstu tuttugu og
þrjú árin af æfi minni, eða eg ætla að skrifa
það niður á blöð, hvort sem nokkur kann að
lesa þau eða ekki. Eg ætla svo að halda
þessu áfram, mánuð eftir mánuð, svo ef eg
skyldi hrökkva upp af einhvern tíma bráðum,
fyrirvaralaust, þá verður lífsbók mín, með
siínum tekju- og útgjalda dálkum, fullgerð til
síðustu mánaðamótanna á æfi minni. rétt eins
og höfuðbókin hjá góðum bókhaldara. En
ef svo skyldi fara, að eg yrði gamall maður,
sem náttúrlega getur vel verið, því sumir
hermenn verða gamlir, og ef eg skvldi þá ráð-
ast í að skrifa æfisögu mína eða endurminn-
ing, þá gætu þessi blöð komið að góðu haldi
og orðið til þess að þar yrði minna af mi.s-
sögnum, sem oft eiga sér staS í slíkum skrif-
um, en sem gleymksan veldur.
Þegar eg nú hugsa um það verk, sem eg
hefi tekið mér fyrir hendur að gera, þá skilst
mér, að það sé tvent, sem mestu varðar í lífi
hvers manns, og það er hvernig honum hepn-
ast að velja sér konu og hvaða lífsstöðu hann
kýs sér. HvaS mig snertir, kemur nú ekki til
með konuna, þar sem eg er ógiftur, en um
mína eigin lífsstöðu hafði eg ekkert að segja,
því strax meðan eg var barn, var mér valin
lífsstaða, og eg átti aldrei neins annars kost,
en að verSa hermaður. Eg er alinn upp á
heimili, þar sem hermenskan sat í fyrirrúmi
fyrir öllu öðru og öll mín mentun á uppvaxt-
anírunum var við það miðuð, að eg ætti að
verða hermaður. Jafnvel þótt mig hefði
langað til að búa mig undir einhverja aðra
lífsstöSu, sem reyndar var ekki, þá efast eg
mjög um, aS eg hefði átt þess nokkurn kost.
Jafnvel þótt eg hefði verið undir eitthvað
annað búinn, þá er eg hér um bil viss um, að
mér hefði svo kipt íkyniS, aS eg hefSi orSiS
hermaSur engu aS síSur. ÞaS er hvort-
tveggja, aS eg er af hermönnum kominn í
báðar ættir, og það var eins og mér væri það
runnið í merg og blóð, að hafa einhverja
innri þörf á því, aS-'lenda í orustum og víga-
ferlum, og eg vona fastlega, aS ef þaS ein-
hvern tíma kemur fyrir mig, aS lenda í veru-
legri orustu, þá reynist eg, þessi síðasti
Macklin, ekki nein ættarskömm. * f
Eg kalla sjálfan mig hinn síðasta af ]>ess-
ari ætt, eða með þessu nafni, Macklin, vegna
þess, að í fyrra, á afmæiisdaginn minn, þeg-
ar eg var tuttugu og tveggja ára,,þá fastréð
eg, að eg skyldi aldrei gifast. Eg virði kon-
umar og dáist að þeim og eg hefi orðið veru-
lega ástfanginn af tveimur þeirra að minsta
kosti, en hermaSurinn má ekki skifta sjálfum
sér milli konunnar og föðurlandsins. ÞaS er
mikið hæft í því, sem einhver prófessorinn
sagði einu sinni, að fáni föðurlandsins væri
ekki ósvipaður afbrýðissamri unustu.
Sá, sem ákvað það, strax þegar eg var
barn, að eg skyldi verSa hermaður, var afi
minn, faðir móður minnar. Hinn afi minn
var dáinn fyrir mitt minni og báðar ömm-
ur mínar. Þessi afi minn var hinn mikli og
þjóSkunni hershöfSingi, John M. Hamilton.
Eg er enginn ritliöfundur og eg bæði óttast
og gleðst jdir ]>ví, aS sverðið verði mér á-
valt handtamara og þægilegra í hendí, held-
ur en penninn. En eg vildi, þó ekki væri
nema rétt sem snögvast, að eg gæti liaft svo
gott vahl á pennanum, að eg gæti réttilega og
skilmerkilega lýst Iireysti hans og dreng-
skap, en ekki síður blíðlyndi hans og prúð-
mensku. Eg veit, að hann var umhyggju-
samur og blíðlyndur, því þó eg liafi aldrei
átt móður til að annast mig, eins og inóðir
annast son sinn, þá saknaði eg þeirrar um-
hyggju aldrei. Og eg veit hve hugaður og
hraustur hann var, því um það má lesa í
sögu þjóðar minnar. I mörg ár var hann
mér bæði faðir og móðir, vinur og félagi.
Hann kendi mér skólalexíur á daginn og hann
kendi mér bænir á kveldin, og þegar eg var
veikur af öllum þessum sjúkdómum, sem
börnin verða að ganga í gegn um, flest eða
.öll, þá sat hann hjá rúminu mínu og raulaði
við mig, þangaS til eg sofnaði, eða hann sagði
mér sögur af stríðinu. Það var sakleysi
barnssins og hreinskilni, sem hann átti svo
mikið af ílund sinni,'sem var þess valdandi,
að eg gat talaS við hann um alla hluti, alveg
eins og hann væri jafningi minn og jafn-
aldri. Seinna hætti mér við að skopast dá-
lítið að umhyggjusem hans. ÞaS var þegar
mér fanst eg vera orðinn fullorðinn maður,
En honum fanst eg vera bara bam. Þar
skifti í tvö horn og hvorugur hafði alveg rétt
fyrir sér. Aldrei á æfinni finst manni víst,
að maður sé eins vitur, eins og þegar maður
er átján ára, eða þar um bil, og svo aftur,
]>egar maður er um áttrætt. Og þegar eg var
átján ára, þá fanst mér afskiftasemi hans af
mer vera alt of mikil. JleS umburðarleysi
æskunnar gat eg ekki séð, að þetta kom alt
af því, að honum þótti svo vænt um mig.
HefSi eg bara getað skilið þetta, þá hefði eg
hugsað um hann á annan hátt, en eg gerði á
þeim árum. Xú sé eg þetta, en nú er það orð-
ið of seint. En hann hlýtur að hafa skiIiS
mig. Hann vis.si, hvernig eg leit alt af upp
til lians og hvað eg elskaði hann og reyndi
að líkjast honum í öllu, og aldrei var eg svo
heimskur eða ósanngjarn, að skella skuldinni
á hann, Jtegar mér gekk illa, en afsaka sjálf-
an mig. Ef liann skiidi mig ekki þá, þá er eg
viss um, að hann gerir það nú. Eg má ekki
til þess hugsa, að hann skilji mig okki og
fyrirgefi mér ekki.
Bezti hluti æfi minnar voru bernskuár mín
á heimili Iians viS Hudson-fljótið. ÞaS er í
dálítilli lægð, sem er skógi vaxin og það er há
girðing kring um húsið, svo það sést varla
af akveginum. Herbergið, sem eg man bezt
eftir, snýr þannig, að þaðan sézt út á ána.
Ef maður horfir út um gluggana, þá sér mað-
ur þessi stóru skip alt af á siglingu, upp og
ofan ána og skemtiskipin með ótal flöggum,
smábáta og stór vöruflutnings skip. Það er
opið eldstæði í þessu herbergi og milli þess
og bókaskápsins var mitt uppáhalds sæti.
Afi minn sat í leðurstól viS borðið, og oft sat
, eg á sessu við fætur hans. KrosslagSi eg þá
fætuma og sneri bakinu að knjám hans, en
andlitinu að eldstæðinu. Eg get enn séð blað-
síðurnar á bókunum, sem eg las við birtuna
af viðareldinum í eldstæSinu. Og eg get enn
heyrt, hvininn í vindinum í strompinum á
húsinu og í trjánum fyrir utan, og eg get
heyrt til skipanna á ánni, þegar þau gáfu
hvert öðru merki í þokuni um leið og þau
keptpust við að komast sem fyrst til hinnar
miklu borgar, sem þarna var fyrir neðan oss.
Enn get eg líka fundið, hve 'brennandi heitt
mér var á andlitinu, sem sneri að eldinum,
þó hrollur færi nm bakið' á mér, þar sem eg
sat við kné afa míns og hann sagði mér af
Indíánum, sem höfðu veitt villidýr í skógn-
um, rétt aftan við húsið okkar, og frá Indí-
ánunum, som hann hafði sjálf'ur barist við
úti á sléttunum. Með ímvndunarafli barns-
ins, gat eg heyrt hróp þeirra og háreysti,
þegar þeir á nóttunni komu úr fylgsnum sín-
um og réðust með mikilli grimd á hvítu
mennina, og eg get lieyrt gólið í úlfunum, þar
sem þeir fóru hópum saman um snævi þakt-
ar slétturnar. Þegar eg hugsa um sjálfan
mig, eins og eg var þá, þykir mér vænt um
litla drenginn, sem sat þarna og hugsaði svo
mikið um sögurnar, sem honum voru sagðar
og allar kyngimyndimar, sem hann sá i elds-
loganum, litinn dreng, sem enn átti enga ó-
vini, eða öfundarmenn; hafði ekki orðiS fyrir
einum sárum vonbrigðum og hafði engum
orðiS til meins og þekti svo sem ekkert utan
þeirra veggja, sem skýldu honum, og svo -sem
enga menn, aðra en hinn gamla, hugaða her-
manna, sem var hans fvrirmynd í öllum hlut-
um, traust hans þegar á reyndi, vinur og leik-
bróðir.
Eg vissi þá ekkert, og eg veit mjög.lítið
enn, um göður minn og móðu'r. 1 hvert sinn,
sem eg spurði afa minn einhvers þeim við-
víkjandi, svaraði hann á þá leið, að hann
skyldi segja mér um þau einhvern tíma
seinna, þegar eg væri kominn til aldurs.
Hvort hann átti við það, að eg yrði myndug-
ur, tuttugu og eins árs að aldri, eða þá aS það
væri einhver viss tími í lífi mínu, sem mér
væri hentast að heyra þetta, það vissi eg
aldrei og fæ ahlrei að vita það. En eg gat
mér til um þetta, og réði ýmislegt af orSam,
sem hann lét stundum falla þessu viðvíkj-
andi og af ýmsu„ er eg hefi síðan heyrt, þó
það sé reyndar lítiS, því eg spyr aldrei ó-
kunnuga um mitt eigið fólk. Af einhverjum
ástæðum skildu foreldrar mínir skömmu eft-
ir að þau voru gift og komu mér til afa míns,
en faðir minn gekk í her Sunnanmanna.
Mig langar til að láta mér finnast, að eg
muni eftir móður minni,-og mér finst að það
hljóti að vera svo, því eg hefi einhverjar end-
urminningar um ungan kvenmann, sem var
vön að sitja viS gluggann og horfa á skipin,
sem fram hjá fóru. ÞaS var stór mynd af
móður minni í stofunni okkar, og það er ekki
ómögulgt, að ])essar endurminningar mínar
stafi frá þeirri mynd. Hún dó skömmu eftir
að við komum til afa míns, og eg var á þriðja
árinu, en eg er hér um bil viss um, að eg man
eftir henni. ÞaS var aldrei nein önnur kona
í húsinu og mynd hennar er býsna skýr í
huga mínum, þar sem hún sat við gluggann.
FaSir minn var af írskum höfðingjaættum
kominn og fyrirliSi í hernum, en kom til
Bandaríkjanna til að bæta kjör sín. ÞaS var
rétt fyrir stríðið, og strax þegar það byrjaði,
gekk hann í her Sunnanmanna, þó hann sjálf-
ur væri þá í Norðurríkjunum, eða borginni
New York. Af því litla, sem eg hefi heyrt
um hann, ræð eg það, að hann hafi verið
nokkuð kæruláus og ófyrirleitinn. En þeir
fáu, sem þektu hann nokkuð verulega, segja
allir, að hann hafi haft marga ágæta kosti og
þeim þótti öllum vænt u rnhann; eg er hrædd-
ur um, að stúlkunum hafi þótt fullvænt um
hann líka. Eg veit ekki meira um hann en
þetta, nema eina sögu um hann, sem afi minn
sagði mér.
“Þú skyldir ekki trúa öllu, sem þér kann
að verSa sagt um föður þinn,” sagði hann,
“því það getur vel veriS, að þeir, sem mest
liafa um hann að segja, hafi ekki skilið hann.
Þegar þú ert orðinn fullorðinn, skal eg segja
þér sögu hans, en alt, sem þú þarft að vita
þangað til, er livernig liann dó.” Það er stutt
saga. Faðir minn var í skotgröf, sem hann
og menn hans höfSu haldið í nokkrar klukku-
stundir gegn harðri skothríð. Þegar óvin-
irnir voru komnir svo nærri, aS þeir fóni að
beita byssustyngjunum, þá bjóst hann þegar
til að taka á móti þeim, en rétt í þeim svifum
var einhvers staSar kölluð skipun um að
halda undan og meir en helmingur af mönn-
um hans hlupu sem fætur toguðu. Faðir minn
stökk upp úr gröfinni og kallaði til manna
sinn: “Komið þið aftur, drengir, við skul-
um taka á móti þeim.” ÞaS getur skeS, að
hann liafi misskilið fvrirskipanirnar og þess
vegna ekki hlýtt þeim. En nokkuð var ]>aS,
aS liann stóð þarna og baðaði út höndunum
og kallaSi á menn sína, og var því-í eins góðu
skotfæri eins og vera mátti. En þeir komu
ekki til hans og óvinirnir skutu og hann féll
endilangur á jörðina. Fyrirliði óvina deild-
arinnar var á undan sínum mönnum, og þeg
ar hann kom á skurðbakkann, sá hann aS all-
ir voru farnir. Þeir höfðu allir flúið. Hann
sneri sér hlæjandi til sinna manna og kallaði
til þeirra: “KomiS þið hingað, hér er bara
einn maður, og hann er dauður!”
En faðir minn leit upp og á manninn, sem
stóð þarna yfir honum og greip í sverðskeið-
arnar hans.
“Ekki dauður, en að devja,” sr.gði faðir
minn» “Og það ep betra en að leggja á
flótta, eða finst yður það ekki?”
“Og þetta er nú sagan,” var afi minn van-
ur aS segja við mig, “sem þú þarft að Iæra
og muna um föður þinn, en um alt annað, sem
hann gerði, skiftir ekki miklu máli.”
Þegar eg var tíu ára, var eg sendur á skóla
í grend við Dodd's Ferrv, sem var nokkurs-
konar undirbúningsskóli fyrir hermanna-
skólann. Eg var ósköp ónýtur í skólanum.
Eg lærði dálítið í leikfimi og ýmsu þess kon-
ar, en þar fyrir utan varð sú skólaganga mér
að litlu gagni, og ekki varð eg lieldur skól-
anum til mikillar ánægju eða sóma. Hefði
eg verið nokkuð svipað því eins áhugasamur
um skólalærdóm minn, eins og afi minn var,
þá hefði eg fengið verðlaun í öllum greinum,
en eg gat ómöguloga fengið nokkurn áhuga
fyrir þessum skólalærdómi, hvaS mlkið sem
eg reyndi til þess, til að þóknast afa mínum.
Sérstaklega var það reikningurinn, sem var
mér alveg óviðráðanlegur, og það svo, að eg
gat ekki einu ,sinni skilið einföldustu reikn-
ingsreglur. Á hermannaskólanum var reikn-
ingurinn líka nærri orðinn þess valdadi, að
Bandaríkin mistu góðan hermann, þar sem
eg var. Eg held sjálfur, að eg hafi haft liæfi-
leika til að vinna orustu með djörfu áhlaupi,
en eg get aldrei reiknað út hæðarmismun á
landslagi og margt, annað því líkt, sem her-
listin telur nauðsynlegt.
Mér var illa við allar námsgreinir, nema
helzt “ utskýringar” Cæsars. ÞaS var ekki að-
eins vegna námsgreinanna sjálfra, heldur líka
vegna þess, að vegna þessa náms átti eg þess
ekki kost, að eiga eins oft tal við afa minn og
hlusta á allar sögurnar, sem hann var vanur
að segja mér á hverju kveldi. Margar þess-
ar 'sögur kunni eg svo að segja orð fyrir orð,
en eg bað hann oft að segja mér þær aftur
og aftur, og altaf vöktu þær hjá mér metnað
og löngun til hernaðar og hetjudóms. Mér
fanst herfrægðin þá vera það eina, sem nokk-
úrs væri um vert. Afi minn hafði tekið þátt
í stríðinu við Mexico, átt í ótal skærum yið
Indíána, og loks verið í borgarastríðinu, og
hann kunni frá mörgum stórmerkilegum at-
burðum að segja, eða það fanst mér, að
minsta. kosti. Hann var mjög yfirlætíslaus
og laus við alla sjálfrhælni, sem er nú reynd-
ar dygð sem eg hefi aldrei getað gert sérlega
mikið úr,. því mér hefir altaf fundist, að álit
heimsins á sjálfum þér, fari að miklu levti
eftir því, hve mikið eða lítð þú sjálfur gerir
úr þér. Ef þú heldur þér ekki sjálfum fram,
þá er þess heldur lítil von, að aðrir geri það.
ÞaS getur þú verið viss um. Eg man ekki
til þess, að eg heyrði hann nokkurn tíma
segja nobkrum eldri mönnum þær sögur, sem
hann sagði mér, en sem hefðu vel getað orðið
til að vekja hans eigið frægðarorS. Einu
sinni heyrði eg hann aukheldur segja öðrum
hreystsögu af sjálfum sér, sem eg kunni, en
hann léi eín þar ekki við getið, en sagði að
einn af mönnunum í sinni herdeild hefði gert
])etta. Eg var eins og hver annar krakki,
fljótur til að leiðrétta þetta,, því nú þóttist eg
eg vita betur, en eg fann að honum líkaði það
stórum miður og hann roSnaði eins og ung
stúlka, og áminti mig síðar um að vera ekki
svona frekur, þar sem fullorðnir menn væru
við staddir. Svo yfirlætislaus var hann, að
hann faldi í svefnherbergiuu snnu þrjú sverð,
sem lionum höfðu verið gefin, sitt í livert
sinn, í heiðursskyni fyrir hreystilega fram-
göngu á vígvellinum. Eitt þeirra var frá
hahs eigin liersveit, annað frá fólkinu, sem
heima átti í sama bæ og hann, og var það gef-
ið honum, þegar hann kom frá Mexico, og hið
þriðja frá fólkinu í New York ríki. Eg gat
ekki með nolckru móti fengið hann til að taka
sverðin ofan í stofuna, svo gestir ættu kost á
að sjá þau. Fvrir mitt leyti fæ eg ekki skilið,
til hvers slíkar heiSursgjafir eru, ef maður
má ekki sýna þær vinum sínum, en þarf að
fara í felur með þær. Vanalega eru slík
sverð þannig gerð hvort sem er, að þau koma
að heldur litlu haldi í bardögum. Þau eru
ekki til þess gerð.
Ef ekki hefði verið fyrir nokkrar litmynd-
ir af bardögunum í Mexico, sem héngu á
veggnmn í stofunni okkar og nokkrir Tndí-
ána bogar og örvar og eitthvað af skamm-
byssum, hefði enginn getað látið sér detta í
hug, að okkar heimili væri heimili eins af
helztu hershöfðingjum vorra tíma. Þið meg-
ið vera viss um, að eg gleymdi því ekki, að
sýna gestum okkar þessa dýrgripi í hvert
sinn, sem eg hafði nokkurt tækifæri til þess.
Sérstablega var eg samt áhugasamur um, að
sýna öllum vopn Indíánanna og svo skamm-
byssumar, sem eg vissi að hefðu stundum
vérið notaðar til að vinna á óvinunum í bar-
dögum. f hvert sinn, sem afi minn fór út,
annað livort til að ganga eitthvaS sér til
hressingar, eða þá að spila við nagrannana,
þá tók eg þessar skammyssur og liáði einvígi
við sjálfan mig fyrir framan spegilinn, og
hafði eg mikla skemtun af þeim leik. MeS
vinstri hendinni hélt eg vasaklút yfr höfðinu,
en hélt skammbys-sunni í hægri hendinni nið-
ur með síðunni. Svo lét eg klútinn detta
og miðaði þá vandlega á sjálfan mig í spegl-
inum og lézt skjóta. Stundum féll eg og dð
og flutti þá altaf dálitla ræðu áður en eg
gaf upp öndina. En sundum feldi eg óvin
minn og stóð þá brosandi yfir honum um
stund.
Afi minn tilheyrði Aztec klúbbnum, _svo
nenfda, sem var sofnaður af herforingjum
frá Baiularíkjunum, sem ])átt tóku í hernað-
inum í Mexico. Hann sótti ársfundi þessa
félags og einu sinni, þegar sá ársfundur var
lialdinn í Philadelphia, fékk eg aS fara með ^
honum. Það var lengsta ferðin, sem eg
hafði þá farið að lieiman, og enn man eg vel
oftir flestum atvikum úr þeirri ferð. ASal-
atriðið á þessum fundi var miðdagsverður,
sem haldinn var í húsi Pattersons hershöfð-
ingja, og um morguninn, áður en sá miðdags-
verður var fram reiddur, söfnuSust allir fé-
lagarnir saman í garðinum utan viS húsiS.
Afi minn lét mig fara þangað með sér og
þarna voru einmitt margir þeirra manna,
sem eg liafði svo oft heyrt hann tala um. Eg
var f jarskalega feiminn og eg varð fyrir von-
brigðum, því þessir menn, sem eg hafði liugs-
að um eins og hetjur, voru allir gamlir og
gráhærðir öldungar. HvaS Patterson liers-
höfðingja viðvíkur, þá var hann sá eini, sem
var nokkurn veginn eins og mér fanst liann
ætti að vera, því þó hann væri að vísu gam-
all, þá var hann samt ekki eins ellilegur ems
og hinir og hann hélt sér meira til og var
betur til fara heldur en hinir. Eg man að
eg gerði mér hugmynd um aS hann mundi
vera mjög líkur hertoganum af Wellington. •
Þó eg væri þá ekki nema tíu eða tólf ára gam-
all, skapaði eg mér hugmynd um alla mikla
hershöfðingja, alt frá Alexander mikla nið-
ur til vorra tíma.