Lögberg - 29.12.1932, Blaðsíða 1
45. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 29. DESEMBER 1932
NÚMER 52
r---------------------------------------------7
| Break! Break! Break!
Eftir Tennyson.
I
(iný þú, gný þú, ó sær!
Við grástein þinn, kaldan sem ís.
Og ég vildi ég fengi með orðum það innt,
sem inst mér í huga rís.
Ó, vel er syni sjómannsirts það,
með systur að leik verður kátt,
• og að farmannsins drengur í fleytu
á firðinum syngur dátt.
Og skipin í hátign halda
í hlé, sem við múlann er traust,
og mætti ég þrýsta horfinni hönd
og hlýða á þagnaða raust.
Gný, gný, gný,
við geigvænleg björg þín, ó, sær!
en mildi þess dags, sem dáinn er,
mér dagað ei aftur fæt.
(Jón Runólfsson þýddi.)
+---------------------------— ---------------—■
Háskólamálið
Prófessor Watson
Kirkconnell
Mig minnir að það væri um
vortíma árið 1898, að við sátum
fjórir við kaffidrykkju í Reykja-
vík í húsi frú Ingibjargar frá
Esjubergi: Það var Guðmundur
landlæknir Björnsson, Bjarni
kennari Jónsson frá Vogi, Jó-
hann Sigurjónsson og ég.
Um ýmislegt var rætt og fanst
okkur öllum að Guðmundur
Björnsson bera höfuð og herðar
yfir okkur hina í öllu, sem á !góma
bar; enda hafði Jóhann haldið því
fram í opinberri ræðu nokkru áð-
ur, að hann (Guðmundur) væri
fjölhæfastur allra þálifandi ís-
lendinga.
Áður en upp var staðið, lágði
Bjarni Jónsson það til, að við
skyldum allir þrír yrkja sína vís-
una hver um Guðmund. Hvernig
á þeirri uppástungu stóð, man eg
ekki, en hitt er mér enn í minni,
að Jóhann Sigurjónsson mælti
tafarlaust tvær vísur af munni
fram. Minnist eg ekki að hafa
séð þær á prenti, þótt þær séu svo
einkennilegar og vel ortar, að þær
ættu að geymast. Vísurnar eru
þannig:
“Margfalt skamtað einum er,
öðrum hófi minna:
Guð hefir, held ég, gefið þér
af gáfum okkar hinna.
Skekkju gáfna skifting í
skilið fólk ei getur;
enginn sér þó eftir því,
ef þú verð þeim betur.”
Mér detta þessar vísur í hug,
þegar eg minnist prófessor Wat-
son Kirkconnells. Hann er gædd-
ur svo einkennilegum gáfum, að
vafasamt er hvort nokkur maður
fyr eða síðar hefir staðið honum
jafnfætis í lærdómi og bókvísi á
ýmsum sviðum. Skaparinn hefir
sannarlega tekið rífle!ga til, þegar
hann skamtaði honum, eins og
Jóhann Sigurjónsson segir um
Guðmund Iandlæknir. Og að hann
verji þessum miklu gá£um flest-
um öðrum betur, það játa þeir
fúsast sem hann þekkja bezt.
Eg hefi áður ritað örfáar lín-
ur í Lögberg um þennan einkenni-
'lega mann; en hann hefir sannar-
lega unnið til þess, að íslendingar
kynnist honum fleiri og þekki
hann betur, en þeir gera. Þjóð-
hátíðarárið 1930 gaf hann út stóra
bók og vandaða; var hún gefin út
sem minning um hátíðina og í
heiðursskyni við íslenzku þjóð-
ina; en alt innihald hennar voru
enskar þýðingar íslenzkra skálda
að fornu og nýju. í bókinni er
einnig gullfallegt kvæði, ávarp til
íslands, ort af Kirkonnell sjálf-
um. Það kvæði birtist hér í lausri
■þýðingu:
“Fjallkona prúð, sem faðmar
úfinn sjár,
frumgetin dóttir víkings — sál
hans gædd —
Vagga þín bærð af bárum, snævi
Jclædd,
bernska þín hörð, og mörg þín
æskutár.
Samt varðst þú snemma frjáls,
með þúsund þrár,
Þingvelli signdir-»-vé úr steini
brædd —
þar skyldi hjá þér frjálsum
mönnum fædd
fyrsta þjóðstjórn, sem lifði
þúsund ár.
Þjóðir, sem æska þín var lokuð
bók,
þúsund ár helguð frelsi, blessa’
í da!gj
þigðu því hlýjan óm, sem end-
urtók
ódauðle'gt bergmál þinni
skáldasál
tónbrot frá hug, sem hreif þitt
stóra lag,
heilsan með lotning þýdda á
erlent mál.”
Hér skal fyrst stuttlega gerð
grein fyrir því, hver þessi maður
er — hvert hann á rót sína að
rekja — og síðan í örfáum drátt-
um skýrt frá störfum hans og
stefnu.
Prófessor Watson Kirkconnell
er fæddur árið 1895 í Port Hope
í Ontariofylki; var faðir hans
Thomas Kirkconnell, mentamaður
mikill; hann var skólastjóri í Port
Hope, og hét kona hans Bertha
Watson. Sonur þeirra ber því
nafn þeirra belggja. Hann er
canadiskur í báðar ættir mann
fram af manni yfir hundrað ár.
Dr. Kirkconnell, faðir hans, varð
hásólastjóri í Lindsay í Ontorio
árið 1998. Þar stundaði Watson
nám og skaraði svo langt fram úr
öllum, að slíks eru bókstafle'ga
engin dæmi fyr né siðar. Hlaut
hann þar öll þau verðlaun, sem
hér eru talin: Hin svokölluðu ráð-
I herra-verðlaun fyrir frábæra
kunnáttu í stærðfræði; Mowat-
verðlauin, einnig fyrir kunnáttu í
stærðfræði; Wi'Uiámsons verðlaun-
in fyrir kunnáttu í enskum fræð-
um og sagnfræði; Ellen M. Nikle
verðlaunin fyrir kunnáttu í stærð-
fræði og ensku; Forbes McHardys
verðlaunin fyrir kunnáttu í stærð-
fræði og nýju málunum; Nicholls
verðlaunin fyrir kunnáttu í ensku,
frönsku og Þýzku; McLaughlin
verðlaunin fyrir kunnáttu í ensku,
latínu, þýzku og frönsku, og skrá-
setjara verðlaunin fyrir kunn-
áttu í latínu, ensku, sagnfræði,
stærðfræði o!g náttúruvísindum.
Að þessu loknu hóf hann nám
sitt á Qneens háskólanum og lagði
þar sérstaka stund á gömlu mál-
in, latínu og grísku. Þaðan út-
skrifaðist hann með meistara-
nafnbót eftir þrjú ár og var þá
tæplega fvítugur. Á Queens há-
skólanum fékk hann fjölda verð-
launa og heiðurspeninga og sér-
stakan heiðurspening úr gulli
fyrir framúrskarandi kunnáttu í
grísku og latínu.
Hugsa mætti, að Kirkconnell
hefði verið svo mikill “bókaorm-
ur”, að hann hefði í engu öðru
tekið þátt. En því fór fjarri.
Hann var, auk þess að stunda
nám sitt eins og hann gerði, hrók-
ur alls fagnaðar og leiðtogi í flest-
um félagsskap. Hann var í rit-
stjórn skálablaðsins á Queens há-
skólanum, tók mikinn þrátt í í-
þróttum og leikfimi — var líf og
sál í skólanum yfir höfuð.
Þegar hann útskrifaðist, stóð
stríðið mikla sem hæst; ætlaði
1 hann þá tafarlaust í herþjónustu,
en var ekki nógu hraustur til
(Framh, á 5. bls.>
Rannsóknarnefndin hefir tekið
sér hvíld fram yfir nýárið, en
heldur þá aftur áfram starfi sínu.
Mun þessari löngu rannsókn, út
af fjártjóni Manitoba hásólans,
nú bráðum lokið, en þó kvað vera
eftir að kalla enn einhver vitni,
sem ekki hafa enn verið yfirheyrð
og kannske að yfirheyra frekar
vitni, sem áður hafa mætt fyrir
nefndinni. Kemur það betur og
betur í Ijós, eftir því sem rann-
sókninni er haldið lengur áfram,
hve óskapleg óreiða hefir verið á
fjárhaldi háskólans, ekki bara
síðustu árin, heldur nú í meir en
tuttugu ár. Það er fyrir nefndina
að segja, þegar hún hefir lokið
rannsókninni, hvert hér er nokkr-
um öðrum um að kenna, heldur en
Machray, pg ef svo er, þá hverj-
um.
Stríðsskuldimar
Bretar borguðu Bandaríkjunum
$95,500,000 af stríðsskuldunum
hinn 15. þ. m., eins og til stóð.
Engu að síður krefjast Bretar
nýrra samniniga um stríðsskuld-
irnar og að þessi greiðsla verði
þar fyllilega tekin til greina.
Fjórar aðrar þjóðir fylgdu dæmi
Breta og borgað það, sem þeim
bar að borga í þetta sinn. Alls
greiddu Evrópu-þjóðirnar Banda-
ríkjunum í þetta sinn um $100,-
000,000 í gulli o!g Bandaríkjapen-
ingum. Meiri hluti Evrópuþjóð-
anna borguðu samt ekkert, og eru
Frakkar og Belgiumenn þar á
meðal. Vildu stjórnirnar í báðum
þessum löndum borga, en þingin
ekki og urðu stjórnirnar því að
segja af sér. Svona standa nú
sakirnar, í stuttu máli sagt, þegar
þetta er skrifað, en töluverðar
líkur þykja til, að Frakkar muni
borga sinn hluta áður en langt
líður, þó þingið neitaði því í
bráð.
Senator Ross
Hinn 14. þ.m. andaðist í Vict-
oria, B.G., Senator John H- Ross,
76 ára að aldri. Hann var einn
með bézt þektu og vinsælustu
stjórnmálamönnum 1 Vestur-Can-
ada o>g hefir hann stöðugt gefið
sig við þeim málum, síðan hann
var ungur maður, og látið sér
mjögt ant öm velferðarmál þessa
lands, en þó sérstaklega Vestur-
Canada, og hefir hann átt þar
heima, aðallega í Moose Jaw, síð-
an 1882, en fæddur var hann og
uppalinn í London, Ont.. Senator
var hann frá 1904.
Eimskipafélagið
Eimskipafélag Islands hefir nú
gefið út ferðaáætlun skipa sinna
fyrir árið 1933, og skal hér í
stuttu máli skýra frá því helzta,
sem þessi ferðaáætlun birtir
manni í fljótu bragði:
Gullfoss verður í förum milli
Kaupmannahafnar og IReykjavík-
ur og fer auk þess ferðir milli
Reykjavíkur og Akureyrar. —
Brúarfoss verður í förum milli
Kaupmannahafnar, Leith og
Reykjavíkur, og fer auk þess ferð-
ir til Breiðafjarðar og Vestf jarða.
— Lagarfoss verður í förum milli
Kaupmannahafnar, Leith og Aust-
ur og Norðurlands. — Goðafoss
verður í förum milli Hamborgar,
Hull og Reykjavíkur. Auk þess
fer hann hraðferðir til Vestur- og
Norðurlands. — Dettifoss verð-
ur á sömu siglingaleið. — Selfoss
verður i förum milli Antwerpen,
Leith og Reykjavíkur.
Frá Kaupmannahöfn verða sam-
tals 32 ferðir á árinu, þar af 8
hraðferðir beint til Reykjavíkur,
16 ferðir til Reykjavíkur með við-
komu í Leith og 8 ferðir til Aust-
ur- og Norðurlands. — Frá
Reykjavík til Kaupmannahafnar
verða 25 ferðir, þar af 16 ferðir
beina leið, 7 með viðkomu í Leith
og 2 með vikomu á Austfjörðum.
Frá Hambrog verða samtals 23
ferðir, þar af 22 til Reykjavíkur
með viðkomu í Hull og 1 til
Reykjavíkur með viðkomu á Aust-
fjörðum. — Frá Reykjavík til
Hamborgar verða samtals 22 freð-
ir, þar af 21 með viðkomu í Hull
og ein frá Vestur- og Norður-
landi.
Frá Antwerpen verða 11 ferðir
hingað með viðkomu í Leith eða
Hull. En héðan verða 10 ferðir
til Antwerpen, með viðkomu í
I Leith.
I
| Gert er ráð fyrir einni ferð til
London og þaðan, með viðkomu í
Hull eða Leith.
Á árinu verða farnar 29 hrað-
ferðir frá Reykjavík til Akureyr-
ar og sömu leið til baka. Enn
fremur 12 ferðir til Breiðafjarð-
ar og Vestfjarða, og þaðan 10 til
Reykjavíkur aftur, en tvær norður
um 'land til útlanda..
Á þessu ári eiga skip Eimskipa-
félagsins að fara samtals 65 ferð-
ir til útlanda, en 67 ferðir frá út-
löndum ti! íslands. — Mgbl.
Frá íslandi
Reykjavík, 26. nóv.
Á bæjarráðsfundi, sem haldinn
var í gær, var lagt fram bréf frá
Knud Zimsen borgarstjóra, þar
sem hann fer fram á, að sér verði
veitt lausn frá embætti.
Þegar hann fékkfrí frá störfum
í sumar, sakir heilsubilunar, var
það álitið, að hann mundi geta
tekið við borgarstjórastörfum aft-
ur eftir nokkra hvíld. En síðan
hann kom heim, hafa læknar hans
litið svo á, að hann hafi ekki
fengið þá heilsubót, sem vonast
var eftir, og hafa þeir aftekið, að
hann mætti taka við borgarstjóra-
störfum aftur, því heilsa hans
leyfði það alls ekki. — Mgbl.
ísfirðingar hafa leigt þrjá tog-
ara í sambandi við menn hér í
Reykjavík, til þess að flytja báta-
fisk til Englands. Hefir þetta
gengið sæmilega og hafa bátarn-
id ekki verið nema um viku að
fylla hvern togara. Fjórir farm-
ar hafa verið seldir í Englandi og
meðalverð þeirra mun vera um
1000 sterlp. Tveir seinni farm-
í arnir voru seldir í þessari viku,
j annar fyrir 771 sterlpd., en_hinn
, fyrir 1054 sterlpd. — Mgbl.
Kirkjan
— Útvarpið síðasta.
Guðsþjónustan, sem útvarpað var frá Fyrstu lútersku
kirkju 18. þ. m., hafði borist um allar bygðir íslendinga og
heyrst ágætlega um N. Dakota, Manitoba, og Saskatchewan.
Mikill fjöldi bréfa hefir borist söfnuðinum og 'lætur fólk í
ljós ánægju og þakklæti. Viða höfðu stórir hópar fólks
safnast saman til að hlýða á jólamessuna í Winnipeg. Og
út í afskektum héruðum og fiskiverum við stórvötnin höfðu
menn notið messunnar og glaðst við hana. Úr öllum áttum
er þess óskað, að útvarpað verði guðsþjónustum frá Fyrstu
lútersku kirkju eins oft og unt sé. All-margir hafa sent
smáar fjárupphæðir til að standa straum af fyrirtækinu.
Með því sumir hafa óskað þess, að nöfn þeirra sé ekki birt
í blöðum, þá verður ekki framar getið nafna þeirra, er í út-
j varpssjóðinn leggja. En með línum þessum vottar söfnuð-
1 urinn þakklæti sitt öllum þeim, sem peninga hafa sent hon-
um upp í útvarps-kostnaðinn.
Fyrir hönd Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg færi eg
öllum þeim, sem hlut eiga að málið innilegt þakklæti fyrir .
hlýju kveðjurnar og blessunar-óskirnar, sem söfnuðinum
hafa borist í hundraða tali. öllum útvarps-vinum vorum
um aflar íslenzkar bygðir óskum vér blessunar Drottins á
árinu, sem nú fer í hönd.
Winnieg, 27. des. 1932.
Björn B. Jónsson.
Nýárs messur
í Fyrstu lútersku kirkju.
Nýársdag—
Kl. 11 f.h.—ensk guðsþjónusta, ræðuefni: Carry On!
Kl. 7 e.h.—ísl. guðsþj., ræðuefni: “Einhversstaðar
í tilverunni.” B. B. J.
Bennett á heimleið
Bennett forsætisráðherra lagði
af stað heimleiðis, frá London,
hinn 21. þ. m. Eftir því, sem
fréttir þaðan skýra frá, var hann
í bezta skapi, þegar hann lagði af
stað, og kvaðst vera sannfærður
um, að nú færi kreppunni að létta,
og breytin'gin til meiri velgengni
mundi byrja á næsta ári. Kvaðst
hann hafa séð þess merki í þess-
ari síðustu ferð sinni til Eng-
lands, að þar væri nú margt að
breytast til batnaðar, og svo
mundi einnig verða annarstaðar,
og þá ekki sízt í Canada. Það er
gott að taka því.
Manitoba borgar
í þessum mánuði féllu í gjald-
daga $6,158,000, sem Manitoba-
fylki skuldaði í New York. Þar
við bættust hálfs árs rentur, eins
og eðilegt var, en þar við bættust
líka $936,165, sem á þeim tíma var
gengismunurinn á dollar Banda-
ríkjanna og Canada. Þessa miklu
fjárupphæð, $936,165, hefir Mani-
tobafylki orðið að greiða fram
yfir það, sem það í raun og veru
skuldaði. Því veldur gengismun-
urinn. Vafalaust hefir verið svo
um samið, að þessa skuld, höfuð,-
stól og rentur, bæri að greiða í
Bandaríkjapeningum eða gulli.
Skuld þessa hefir Manitobafylki
nú greitt að fullu, að nokkru leyti
með peningum, sem fengust fyrir
fylkisskuldabréf, sem selt voru í
september í haust, og að nokkru
leyti með lánum frá Royal bank-
anum og Dominion bankanum.
Eldsvoði í Tokio
Hinn 16. þ.m. kviknaði í afar-
stórri sölubúð í Tokio, sem var
átta hæðir, og fór eldurinn um
fimm efri hæðirnar. Var fjöldi
fólks í búðinni, þegar þetta kom
fyrir, bæði fálkið, sem þar vann,
og fjöldi fólks, sem þar var komið
til að kaupa eitt og annað. Fórst
þarna fjöldi fólks, flest konur og
börn, en hvað margt, verður ekki
séð af þeim fréttum, sem borist
hafa frá Tokio.
Launalækkun
Bæjarstjórnarmennirnir í Win-
nipeg hafa verið að stríða við að
lækka sín eigin laun, nú í heilt ár,
eða nálega það. Loksins var það
samþykt á bæjarstjórnarfundi
hinn 19. þ. m., að lækka laun bæj-
arstjóra og allra bæjarráðsmann-
anna um 10 per cent. o& gengur sú
launalækkun í gildi með byrjun
næsta árs. Það gekk ekki á !góðu
að koma þessu í gegn, því bæjar-
ráðsmennirnir, sem verkamanna-
flokknum (I.L.P.) tilheyra, börð-
ust ákaflega móti þessu. Þetta
sannar þó engan vegin, að þeir
séu ágjarnari heldur en aðrir
menn, en þeir eru á móti allri
launalækkun. Þar á móti þótti
hinum bæjarráðsmönnunum ófært,
að lækka ekki sín eigin laun, þar
sem laun allra þeirra, sem hjá
bænum vinna, hafa verið lækk-
uð. Borgarstjóri hefir $5,000 árs-
laun, og bæjarráðsmenn $1,200
árslaun. Lækka þau nú um 10
per cent, eins og fyr segir.
Bennett í London
Bennett forsætisráðherra Can-
ada fór til London í þessum mán-
uði, eins og áður hefir verið getið
um hér í blaðinu. Var honum þar
tekið með miklum virktum af kon-
ungi og ráðherrum og öðrum
höfðingjum. Dagblöðin í London
höfðu meira um hann að segja á
hverjum degi, heldur en konung
og drotningu frá Danmörku, sem
voru þar stödd um sama leyti.
Bretakonungur Igerði Mr. Bennett
að Knight of Grace of the Vener-
able Order of the Hospital of St.
John og Jerusalem in the British
Realm. Hvað þessi langi titill
þýðir, það má kóngurinn vita.
Verður sendur úr landi
Peter Veregin, leiðtogi Doukho-
boranna í Canada, var í haust
dæmdur til þriggja ára fangavist-
ar í Prince Albert, fyrir mein-
særi. Þegar fangavist hans er úti,
verður hann fluttur úr Canada til
Rússlands, þaðan sem hann kom.