Lögberg - 29.12.1932, Page 4

Lögberg - 29.12.1932, Page 4
Bls. 4. LÖGBERG, FIMTUDAGINN 29. DESEMBER 1932. Högtcrg GeflB út hvern firatudag af THE COLUMBIA PRES8 LIMITED 695 Sargent Avenue . Winnipeg, Manitoba. Utanáskrift ritstjðrans. EDITOR LÖGBERG. 695 SARGENT AVE. WINNIPEG, MAN. VerO {3.00 um árið—Borgist fyrirfram The "Lögberg” is printed and published by The Columbia Prees, Limited, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba. PHONES S6 327—86 328 Björnátjerne Björnson 1832 — 11)32. Á þesisu ári, sem nú er að enda, er liðin heil öld, síðan norski skáldjöfurinn og frels- ishetjan, Bjömstjerne Björnson, var í heim- inn borinn. Hann er fasíldur 8. desember 1832, í sveit, sem Kviknir heitir í Eystridöl- um uppi í Dofrafjöllum í Noregi. Þar var þá faðir hans prestur, en annars er hann af norsku bændafólki kominn. Aldarafmælis Björnsons hefir þjóð hans nú minst með miklum og veglegum hátíða- höldum og hafa þanigað sótt fulltrúar frá ýmsum öðrum þjóðum, því Björason var ekki aðeins þjóðfrægur maður, heldur má um hann segja, með eins miklum rétti og marga aðra, sem það hefir verið sagt um, að hann sé maður heimsfrægur. 1 æsku var Björnson fjörhnokki mikill, en lítill námsmaður. Það var með naumindum, að hann náði stúdentsprófi og þó lélegu. og fékst aldrei við skólanám eftir það. Hér var því þó sízt um að kenna, að hann skorti gáfur, því þær hafði hann þegið óvenjulega miklar og fjölhæfar, en hitt hyggjum vér að mestu hafi valdið, að ákafinn og framsóknar- hugurinn hafi verið of mikill til þess, að hann ætti liægt með að festa hugann við námsgreinar. > Björastjerne Björnson var óvanalega til- komumikill maður í sjón og framkomu allri. Var glæsimenska hans honum styrkur mikill og vakti éftirtekt og aðdáun á honum, hvar sem hann fór. Auk þess var hann mælsku- maður svo mikill, að með fádæmum þótti. Svo segir Jón Ólafssön ritstjóri í grein uni Björason í Almanaki Þjóðvinafélagsins 1882, þegar Björnson var fimtugur: “Björnson er mælskumaður svo mikill, að eg hefi engan slíkan heyrt. Eg hefi eitt sinn heyrt hann tala til eitthvað 900 áheyrenda; þegar hann kfmdi að einhverju, þá hlógu allir áheyrénd- urnir; og er hann talaði viðkvæmt og vikn- aði, þá sá ég hvergi nokkurt andlit umhverf- is mig, sem ekki hefði bókstaflega tár f aug- unum. Eg hefði aldrei trúað því, ef eg hefði ekki séð það og reynt, að nokkrum manni væri það gefið, að spila svo á strengi mannlegra hjartna.” Það er ekki undarlegt, þó maður með slík- um hæfileikum, hafi mikil áhrif á þjóð sína og samtíð, þegar hann þar að auki er afar duglegur, framsækinn og áhugasamur um öll mál þjóðar sinnar. í sjálfstæðismáli Norðmanna tók hann afar mikinn þátt og átti vafalaust m.jög mikinn þátt í því, að Noregur varð sjálfstætt konungsríki og al- gerlega fráskilið Svfþjóð. Hann skapaði Ji-jóðarviljann, sjálfstæðisþrána, metnaðinn og sjálfstraustið. “Hann var hinn ókrýndi konungur Noregs, þar sem hann sat á óðali sínu,” segir í grein um hann í síðasta hefti Eimreiðarinnar. “En þegar einveran uppi í afskektu sveitinni greip hann, þráði hann sól og hita suðlægra landa. Hann var að koma úr einni slíkri ferð, þegar hann veiktist. Hann varð máttlaus öðru megin og alt sum- arið sat hann á svölunum fögru og horfði yfir mjúkar, samræmisbundnar línur fjall- anna, út yfir dalinn, þar sem hann hafði lifað þróttmestu og farsælustu ár æfinnar. Hann óttaðist ekki dauðann, en æfi hans öll hafði verið einn óslitinn lofsöngur til lífs- ins, hann átti svo margt að lifa fyrir, svo margt ógert. Hann varð að fara utan, og leita sér lækninga, hann skyldi fara utan, hvað sem hvTér sagði, þar komust engar mót- bárur að. Dag nokkura flutti síminn þau boð, að danski konungsvagninn væri á leiðinni upp- eftir til að sækja hann. ‘Með honum gæti hann farið hvenær sem hann vildi, og staðið við hvar sem hann vildi.’ Við landamæri Frakklands kom sendimaður á móti honum, sem gesti frönsku þjóðarinnar skyldi honum fylgt til Parísar. Þegar hann heyrði þetta, fanst honum æf- intýrið fullkomnað, eins og hann sæi andann, menninguna, hinn siðmentaða heim, lúta þeim, sem hafði varið allri æfi sinni til að berjast fyrr sannleik og fegurð. Það var æfintýraljómi yfir öllu lífi hans og æfintýraljómi yfir honum í dauðanum.” Ný húsleálrabók Kristur vort líf. — Prédikanir á öll- um sunnu- og helgidögum kirkjuársins. Eftir Jón Ilelgason, dr. theol, biskup vfir Islandi. Það J;efir löngum þótt viðburður í bók- mentum og kristnisögu þjóðarinnar, þá út hefir komið nýtt safn kristilegra hús- iestra. Hafa þær bækur veríð nefndar “postillur”. Hafa þær flestar verið eftir biskupa landsins, alt frá “Jónsbók” hinni gömlu til þessarar Jónsbókar hinnar nýju. A strjálbygðu landi, svo sem Island er, og meðan sveitaheimilin voru mannmörg, voru heimilis-guðsþjónustur sterkasti þátturinn í trúarlífi manna. Húslestrabækurnar vora því ómissandi og sumar þeirra urðu alþýðu einkar hjartfólgnar. Framan af árum hélzt sá siður í íslenzkum nýlendum hér vestra, að húslestrar vora lesn- ir á flestum heimilum hvern helgan dag. Minn- umst við, sem þá vorum börn í foreldrahús- um, þeirra stunda með viðkvæmu þakklæti og söknuði. Nú eru húslestrar lagí5ir niður víðast hér vesra, en í staðinn komin guðsþjónustugjörð í kirkjum all-víða. Sagt er, að húslestrar sé njú og fremur fátíðir orðnir á Islandi. Er það tjón, bæði þar og hér. Einhvers konar heimilis-guðsþjónusta er ómissandi. Einkum þar sem ekki eru opinberar guðsþjónustur fluttar að staðaldri. Væri það framför í kristi- lega átt, að fólk tæki aftur upp húslestra á heimilum sínum. Nýbyggjarair hér vestra, höfðu allir með sér húslestrabækur að heiman. Flestir lásu í Péturs-postillu, en sumir máttu ekki annað guðs orð heyra en Vídalín. Á síðari árum hafa íslendingar hér átt og elskað pré- dikanasafn síns eigin ógleymanlega kenni- föðurs, “Guðspjallanlál” dr. Jóns Bjarna- sonar, og mun all-víða í þá bók enn þá litið, þó sjaldnar sé en skyldi. Um þessa nýju húslestrabók Jóns biskups Helgasonar er það fyrst að seg^ja, að hún er fögur á að líta, frágangur allur hinn vand- aðasti; bandið prýðilegt, pappírinn ágætur, letrið stórt og skýrt og prófarkalestur í bezta lagi. Ágæt mynd af höfundinum í embættis- skrúða prýðir bókina. Er bókin talin gefin út á þeim degi, þá liðin eru fjörutíu ár frá því höf. steig í prédikunarstól hið fvrsta sinn. Minningu foreldra sinna, Helga lektors Hálf- dánarsonar og Dórhildar Tómasdóttur (Sæ- mundssonar), helgar höf. bókina með sonar- legri ást og hjartanlegu þakklæti. Alls eru í bókinni 66 prédikanir. Yfirleitt er fylgt kirkjuárs-hugmyndinni gömlu og tekið tillit til tíðaskifta. Texta-valið er ó- bundið. Tuttugu og þrjár prédikanir eru út af gömlu. guðspjalla-textunum, en 21 út af öðrum guðspjalla-textum, 18 út af pistla- textum og 4 út af textum í Gamlatestament- inu. Prédikana-safni sínu velur biskiíp nafnið: Kristur vort Uf, og gerir grein fyrir því í inngangs-orðum, að hann hafi viljað láta það vera megintilgang bókarinnar, að benda á Jesúm Krist og samband vort við hann, sem mannanna sanna og eina líf. Má það og full- yrða, að þeim tilgangi hefir hann náð, því allar prédikaniraar eru falslaus vitnisburð- ur um Krist, frelsara og drottin mannanna. Að bókin sé réttnefnd, má staðfesta með mörgum dæmum, en hér skulu aðeins tilfærð niðurlagsorðin úr hinni gullfallegu uppstign- ingardags-ræðu: “Vér nálgumst föðurhús- ið himneska sem frelsingjar Jesú Krists og hlutahafar í sigri hans.---------Hann, sem dó fyrir oss og er upprisinn oss til réttlæting- ar, hann, sem uppsteig til himna og situr guði föður til hægri handar, hann gefi oss öllum náð til þess að ganga inn til þeirrar dýrðar, er dagur lífs vors er á enda hér í heimi. Amen.” Um alt efni bókarinnar má það segja, að það sé hinn gamli, hreini kristindómur, boð- aður með hógværð og fluttur á Ijósan og skipulegan hátt. Höf. fylgir all-nákvæmlega þeim prédikunarmáta, sem um' aldir hefir tíðkast í kirkjunni og oss var kend í skóla, en vér margir bindum oss nú ekki við lengur. Er í hverri ræðu skýr inngangur að efninu (exordium) og efninu svo skift greinilega —- oftást í sína þrjá “orjiódoxu” flokka. Má og vel vera, að sá prédikunarmáti sé flestu ís- lenzku fólki kærastur. Allur andi bókarinnar er andi friðarins. Það er gleðiboðskapur hins eilífa friðar, sem oss er fluttur þar. Ádeilu-lestrar eru ekki húslestrar þessir, og framsetning öll er priíð- mannleg. Ekki er þó þetta á þann veg að að skilja, að ekki sé manni þar neitt sagt til syndanna, síður en svo. En það er ávalt gert blátt áfram og stillilega. Sýnishorn þess skal hér tilfært úr prédikaninni á jóla- daginn. “Jesús fæddist á allsherjar skrá- setninlgartíma. Vorir tímar eru líka, I andlegum skilningi, skrá- setningar-tímar, þar sem~ menn tr.ka sig upp og halda hver til sinnar borgar, til þess að láta skráseja sig, þar sem þeir hyggj- ast ieiga andlega heima. Margir láta skrásetjast í sveit fríhyggju- manna, af því þeim finst hinn gamli kristindómur vera orðinn ó- bæriiegt ok, með því að hann banni þeim að láta eftir girndum sínum, með tali sinu um synd, réttlæti og dóm. Þeir eru þó enn fleiri, sem vilja ekki fara svo langt. En þeir hneykslast á Jesú, aðallega af því, að skynsemi þeirra fær ekki skilið það, að Jesús hafi verið sonur hins lifanda Guðs, og þó mannssonurinn, fæddur af jarðneskri móður, og svo láta þeir skrásetja sig meðal skynsemistrú- armanna. Þeir vilja að vísu hlýða á ræðu Jesú Jósefssonar og fara enda lofsamlegum orðum um dæmi hans. Þeir telja kristindóminn góðan fyrir almenning og enda vel fallinn til að halda mentunarlaus- um almenningi í skefjum. En vegna eigin synda, finst þeim eng- in þörf á frelsara. En svo er Guði fyrir þakkandi, að einnig á vorum tímum liggur leið margra til Betlehem, til að skrásetjast meðal dáenda og tilbiðjenda barnsins Jesú. Eg efa það iekki, að við viljum öll á þessum jóladegi slást í för með þessum mönnum, til að skrásetjast ásamt þeim. Vor himneski faðir gefi oss þá náð til þess, að þessir dagar verði oss öllum gleðilelgir skrásetningar- dagar, þar sem vér með fögnuði getum i trú og tilbeiðslu tekið undir lofsöng englanna, er vér í dag gerum að umtalsefni voru.” Um afstöðu höf. við náðarmeð- ul kirkjunnar má dæma af prédik- aninni á skírdag. Er það hin þarf- asta hugvekja, og ve>l er þar far- ið með vandasamt mál. Lýst hef- ir verið vaxandi afrækslu drottin- le’grar kvöldmáltíðar þar í þjóð- kirkjunni og farið um það þess- um orðum: “En alt að einu verður ekki hjá því komist, að skoða afrækslu guðsborðsgöngunnar, er nú tíðk- ast svo alment, sem ærið athuga- vert tákn tímanna, og ærið sorg- legan vott hnignandi trúarlífs og þverrandi trúar-alvöru með kristn- um mönnum. Því hvað sem líður mismunandi útlistunum á helgi- dómi athafnarinnar, á þýðing hennar cg blessunar-áhrifum, þá verður því a'ldrei með rökum mót- mælt, að þetta er eina helgi-at- höfnin, sem Jesús Kristur hefir beinlínis lagt fyrir játendur sína að hafa um hönd til minningar um sig. Með því að afrækja guðs borð, eru menn komnir í fulla andstöðu vifr beina ósk stofnanda þessarar minningar-máltíðar.” Tilgangur minn með línum þessum er aðallega sá,. að vekja eftirtekt á bókinni hjá því fólki hér í Vesturheimi, sem enn kann að lesa íslenzkt mál. Þeir, sem hér halda við trú feðra sinna, vilja að sjálfsögðu eiga þess kost sem oftast, að svala sér við lindir kristilegra bókmenta móður-kirkj- unnar á ættjörðinni. Flestir sann- gjarnir menn munu nú vera á einu máli um það, að holl o’g heil- brigð stefna ráði í kristindóms- boðskap þeirra, er nú hafa leið- sögn andlegra mála á ættjörð vorri. Meðan leitast verður við að ha'lda uppi kristilegu félags- starfi á íslenzku hér í dreyfing- unni, væri það oss hinn mesti styrkur, að njóta andlegra áhrifa heiman að. Samúð — og ef unt væri samvinna — milli móður- kirkjunnar heima og dótturinnar hér, myndi lengja lífdaga íslenzkr- ar kristni í Vesturheimi til muna. Að sjálfsögðu bjóðum vér því velkomna hingað vestur guðsorða- bók þessa mikilsvirta manns, sem er umsjónarmaður kristninnar á ættjörð vorri. Bókina ættu sem flestir að eignast, þá hún kemur á boðstóla hér. Eg fyrir mitt leyti er hinum virðulega höfundi hjart* anlega þakklátur fyrir bókina: Kristur vort líf. Á Þorláksmessu 1932. Björn B. Jónsson. Bréf úr Borgarfirði (Niðurlag,) Að kvöldi þessa blíðviðrisdags kvaddi eg hinn fróða, og að mín- um dómi góða Stefán, við túnið á Víðimýri. Var hann þá búinn að segja mér margt og merkilegt um Skagafjörð og íbúa hans fyr og nú. — Enn þá eiga Skagfirðingar hagmælta menn og orðfima í bezta lagi, og er Stefán þar framarlega í flokki; en ekki flaggar hann með því við gesti sína. Þar verð eg að byggja á sögusögn annara. Til mikillar hamingju hélzt þurkurinn næstu daga og varð tjónið því minna en ella af komu minni í Skagafjörð. Ekki hefir Húnavatnssýsla ver- ið eins mikið lofuð fyrir fegurð, sem Eyja- og Skagafjörður, en þar má þó líta marga stórjörðina og sinn blómlegasta búskap. Langi- dalur er 31 km., frá Blönduósi til Bólstaðahlíðar norðan megin Blöndu. Er þar fjöldi stórbýla, en lítið ber þar á kotbæjum. Þar vissi eg um ýmsa myndarlega og mentaða bændur, en heimsótti að- eins einn þeirra, Hafstein Péturs- son á Gunnsteinsstöðum. Jónatan á Holtastöðum var annar sá bóndi sem eg þekti á þeirri leið, en tím- inn leyfði ekki viðstöðu þar. Sorg- ina var þá nýbúið að bera þar að garði, við lát hans nafnkendu konu, Guðríðar Sigurðardóttur frá Lækjamóti. Lækjamót í Víði- dal hefir lengi verið meðal nafn- kendustu jarða í Húnavatnssýslu. Þar bjuggu lengi sældar og sæmd- arbúi foreldrar Guðríðar, Sigurð- ur Jónsson og Margrét Eiríks- dóttir, og býr þar nú Jakob Lín- dal maður Jónínu dóttur þeirra hjóna. Jakob er vel mentaður og bæði þau hjón. Þar í túninu sá eg stóran og prýðilega hirtan trjá- og blómagarð. Jakob var um eitt skeið við gróðrarstöðina á Akureyri og hefir mikla sérþekk- ingu í öllu, sem viðkemur trjá- og blómarækt. Eg sagði honum frá vini mínum, Chris. Johnson í Du- luth, Minn., sem hefir meðal ann- ars sent mér mikið af trjáa- ög blómafræum og unnið að því með góðum leiðbeiningum, að slíkar sendingar mættu bera góða ávexti. Margt af því hefir þó kulnað út með öllu, en margt er líka lifandi hér sumt með góðu lífi, en sumt með litlum þroska. Jakob varð mikið hrifinn af þessum manni, sem svo mikla alúð lagði á það að senda ættjörðinni þau blóm og tré, sem hann taldi líklegust að lifa þar. Langaði hann til þess að komast í kynni við slíkan mann, ef unt væri. Eg lofaði því í upphafi þessa bréfs, að senda Borgfirðingum vestan hafs héraðsfréttir, en sé nú, að í þess stað hefi eg þotið bæði austur og norður. Ef eg ætti að bera saman kosti þessara héraða hvers um si!g, þa hugsa eg mér veðursæld mesta í Eyjafirði. mest af véltækum engjum í Skaga- firði, víðáttumest beitilönd í Húnavatnssýslu og bezta töðuvelli í Borgarfirði. Þetta er handa- hófs-áætlun, sem lítið er á að byggja. En eitt er víst, að stærst- ar og flestar eru heyhlöðurnar í Borgarfirði. Það eru hinar sunn- lenzku haustrigningar, sem mest hafa ýtt undir bændur að byggja þær, hér er naumast heldur það býli að finna, að ekki séu hlöður, ein eða fleiri, og margar bæði stórar ög vandaðar. Þá ber líka miklu meira á rækt- un matjurta hér í Börgarfirði heldur en í þeim bygðum norðan- lands, sem meðfrana þjóðleiðinni liggja. Fríðir eru þeir sýnum, Eyja- og Skagafjörður, um það get eg bor- ið af eigin sjón, enda hafa skáld- in sungið þeim lof og það að verð- leikum. En að margra dómi hvíl- ir mest hátignin yfir fjöllum og jöklum Borlgarfjarðar, þar sem hinn dásamlegi Eiríksjökull skip- ar öndvegið. Fögur þótti mér ræða Guðmundar S. Grímssonar dómara, sem hann flutti á íslend- ingadeginum í sumar og sem prentuð var í Lögbergi. Þegar 1 meir en priSjung aldar hafa Dodd'a Kidney Pills veri8 vi8urkendar rétta meBaliB vi8 bakverk, gigt, þvagteppu og mörgura fleiri sjúkdðmum. Fást hjA öllum lyfsölum, fyrir 50c askjan, e8a sex öskjur fyrir {2.60, e8a beint frá The Dodd’s Medicine Co., Ltd., Toronto, ef borgun fylgir. hann kom hér síðastliðinn vetur, til þess að líta yfir fæðingarstað sinn og feðrabústað, stóðu öll fjöll og jöklar í sínum fegursta búningi ög brostu við þessum virðulega, góða gesti. Himininn var heiður og ekki bærðist hár á höfði. Eg var glaður yfir því, að þessi eini dagur, sem hann mátti eyða í það að líta þá bygð, þar sem forfeður hans höfðu búið, skyldi vera svona blíður og bjart- ur. Þess minnist hann líka fag- urlega í ræðu sinni. Fyrir okkrum dögum flutti séra Benjamín Kristjánsson langt er- indi I útvarpið, um Vestur-fs- lendinlga. Þetta erindi var bæði vel flutt og fróðlegt. Dró hann ekkert af þeim heiðri, sem hann taldi ykkur eiga fyrir manndóm og mentun. Þar mintist hann líka á ást ykkar til ættlandsins og heimþrána, sem þrátt fyrir auð og allsnægtir ekki yrði með öllu upp- rætt. í niðurlagi þessara erindis kom hann með tillðgu, sem eg veit ekki til að borin hafi verið fyr fram. Hann vill fá ykkur aft- ur heim í ættlandið gamla og láta ísland kosta heimflutninginn. Þetta er bróðurleíg tillaga í garð þeirra Vestur-íslendinga, sem ekki hafa. við mikinn heim að skilja þar vestra, en að líkindum yrðu þeir í minni hluta, sem þetta þæðu, þótt boðið væri. iFyrsta vetrardag var héraðs- skólinn í Reykholti settur. í sam- bandi við setning skólans var skemtisamkoma ag mannfagnaður, bæði fyrirlestrar og söngur. Þar var karlakórinn “Bræðurnir” und- ir stjórn Bjarna bónda á Skáney, söngkennara skólans. Nemendur eru þar nú nær 89, og rúmar skól- inn ekki meira. Meðal annars er nú lögð mikil áherzla á sundkunn- áttu og urðu flestir þeir nemend- ur, sem þar voru í fyrravetur, mjög leiknir í sundi. Þar voru líka flokkar unglinga við sundnám í vor, eftir það að skólanum var slitið. Þannig er það líka á Laug- arvatni, að sund og íþróttir er ekki einasta stundað þar meðan skólakensla stendur yfir; þar við bætast íþróttanámsskeið eitt eft- ir annað. Á þessa tvo skóla, Reyk- holts og Laugarvatns, vill ungt fólk helzt komast. Aftur á móti dvínar nú óðum aðsókn að bsE^pda- skólunum, Hvanneyri og Hólum í Hjaltadal. Þar er þó alt fyrir hendi, vönduð skólahús og miklir og góðir kenslukraftar. Það er hverahitinn, sem gerir hin nýju skólahús sérlega aðlaðandi, og svo hafa piltar og stúlkur lö^igum fundið í því unað, að vera í ná- býli hvort við annað, og gerir það hina svo kölluðu “samskóla” eftirsóknarverðari fyrir æskulýð- inn, heldur en búnaðarskólana, sem eru einungis fyrir pilta. Það má telja með nýjungum hér í Borgarfifði, að hollenzkt fólk var hér hjá ýmsum bændum við heyskap í sumar. Það var alt há- skólafólk, siðlátt og vel mannað á allan hátt. Enga kröfu greði það til vinnulauna, nema fæðis og hesta til útreiða á sunnudög- um. Erindi þessa fólks var að kynnast hér landi og lýð og nema íslenzka tungu. Til landsins komu 32 Hollendingar, og voru þeir valdir úr tveim hundruðum, sem sóttu um að komast hingað. Þetta fólk var flest hér í • Borgarfirði, einn og tveir á bæ. Nú hefir Út- varp Reykjavíkur flutt lands- mönnum vinsamlegustu kveðjur frá fólki þessu, sem getur ekki

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.