Lögberg - 29.12.1932, Síða 8
BIs. S.
LÖGBERG, FIMTUDAGTNN 29. DESEMBER 1932.
Ur bœnum og grendinni
Skuldarfundur á föstudögum.
Heklufundur í kveld, fimtudag.
Dr. Tweed verður í Árborg mið-
vikudaginn og fimtudaginn, 4. og
5. janúar.
Mr. Hjörtur Hjaltalín frá Moun-
tain, N. Dak., var gtaddur í borg-
inni um miðja vikuna sem leið.
Mr. Grettir Eglgertson verk-
fræðingur kom til borgarinnar
fyrir jólin og verður heima hjá
föður sínum, Mr. Árna Eggertson,
fram yfir hátíðarnar.
Mr. Sigurður Sveinbjörnsson
trúboði kom til borgarinnar í vik-
unni sem leið frá íslandi, þar sem
hann hefir verið nokkur undan-
farin ár.
Afmælishátíð stúkunnar Heklu,
nr. 33, verður haldin á fimtudags-
kveldið 29. desember. Til skemun-
ar verður: ræður, söngur o. fl.
Allir íslenzkir Goodtemplarar vel-
komnir.
Stúkan Skuld býður heim til sín
á föstudagskveldið í þessari viku
bæði “Heklu” og “Liberty”. Fjöl-
breytt prógram. Félagsmenn fjöl-
menni.
Messur í Gimli prestakalli næsta
sunnudag, á nýársdag, eru fyrir-
hugaðar þannig, að messað verð-
ur í gamalmennaheimilinu Betel
kl. 9.30 f.h., en að kvöldi kl. 7 í
kirkju Gimlisafnaðar. Allir vel-J
komnir. Mælst til að fólk fjöl-
menni.
Þann 9. þ. m. voru gefin saman
i hjónaband í Calder, Sask., af
séra S. S. Ohristophersyni, þau
George Herbert Martin og Jak-
obína Sigurlaug Margrét Einar-
son, Brúðurin er dóttir Jóhann-
esar Einarsonar og konu hans
Sigurlaugar, sem búa í grend við
Calder. Brúðguminn er af ensk-
um ættum.
Þ. 11. s. m. voru gefin saman i
hjónaband af þeim sama, þau
Clafur Johnson og Ingunn Gunn-
arson. Brúðguminn er sonur Ei-
lífs sál. Jónssonar og konu hans
Kristínar, sem lifir mann sinn, í
grend við Churchbridge. Brúður-
in er dóttir Eyjólfs Gunnarsson-
ar og konu hans Sigríðar, búandi
við fyrnefnt pósthús.
For Sale
GRAY’S HARDWARE
Sargent and Victor
In BULK or RETAIL
Less Than Cost
For Three Days
R. T. GRAY
Islenska matsöluhúsið
Par »em Islendlngar I Wlnnlpeg og
utanbæjarmenr. fá aér máltlölr og
lcaffi. Pönnukölcur, skyr, hanglkjö*
og rúllupylsa á taktelnum.
WEVEL CAFE
<92 SARQBNT AVB.
8fmi: 17 464
RANNVEIG JOHNSTON. elgandl.
John J. Arklie, sérfræðingur í
að reyna sjón manna og velja
þeim gleraugu, verður í Eriksdale
Hotel a’.lan fimtudaginn 5. janú-
ar og í Lundar Hotel á föstudag-
inn, 6. janúar.
í kveld, 29. desember, flytur
Mrs. W. J. Lindal útvarpserindi
um jólasiði á íslandi. í sambandi
við það erindi syngur Mrs. B. H.
Olson einsönlgva. Erindið hefst
kl. 8 að kveldinu. Winnipeg-deild-
in af National Council of Educa-
tion, sem Mr. Edward Anderson,
K.C., er forseti fyrir, hefir geng-
ist fyrir því, að útvarpserindi um
jólasiði í ýmsum löndum, hafa
flutt verið hér í Winnipeg nú að
undanförnu, eins og útvarpsnot-
endum er kunnugt, og er erindi
það, sem Mrs. Lindal flytur í
kveld, hið síðasa þeirra.
Gjafir til Betel.
Kvenfélag St. Páls safnaðar,
Minneota Minn......... $25.00
Kvenfélagið ísafold, í Vestur-
heimssöfnuði, Minnesota .... $10
Til jólaiglaðningar fyrir gamla
fólkið á Betel, úr Maxon dánar-
búi, sent af Mrs. Thor Guðmund-
son, Elfros, Sask............ $50
Innilega þakkað,
J. Jóhannesson, féh.
675 McDermot Ave., Winnipeg.
NÝ SÖNGLÖG FRÁ ÍSLANDI.
Þrjú einsöngslög .......... 50c.
Nokkur létt píanólöíg...... 50c.
eftir Sigurð Þórðarson, söngstjóra
Karlakórs Reykjavíkur.—Að dómi
listrænna manna hér sögð ágæt.
Islenzkt Söngvasafn, I. og II. hefti.
Safnað hafa og búið til prentun-
ar: Sigfús Einarsson og Halldór
Jónasson.. Hvert hefti .... $2.50
Bókaverzlun
Ólafs S. Thorgeirssonar,
674 Sargent Ave., Winnipeg.
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 27 117. Heima 24 141
JOHN GRAW
Fyrsta ílokks klæðskerl
AfcrreiOsla fyrlr öllu
Hér njóta peningar yðar sín a<5
fullu.
Phone 27 073
218 McDERMOT AVE.
Winnipeg, Man.
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast greiBlega um alt, wm aB
flutningum lýtur, smáum eCa etór-
um. Hvergl sanngjarnara ver8.
Heimiii: 762 VICTOR STREET
Sfml: 24 500
DR. T. GREENBERG
Dentist
Hours 10 a.i». to 9 p.m.
PHONES: Office 36 196
Res. 51 455
Ste. 4 Norman Apts.
814 Sargent Ave., Winnipeg
n
0
n
n
n
0
n
0
n
Burn Coal and Save Money
Per Ton
BEINFAIT LUMP $5.50
DOMINION LUMP ......... 6.25
REGAL LUMP 10.50
ATLAS WLDFIRE LUMP 11.50
WESTERN GEM LUMP 11.50
FOOTHLLS LUMP 13.00
SAUNDERS CREEK “Big Horn” Lump 14.00
WINNIPEG ELEC. KOPPERSCOKE 13.50
FORD OR SOLVAY COKE 14.50
CANMORE BRIQUETTES 14.50
POCAHONTAS LUMP 15.50
MCfURDY CUPPLY p0.1 TD.
Vs Builder*’ l3 Supplies Vsand JLl Coal
Officeand Yard—136 PORTAGE AVENUE EAST
94 300 - PHONES - 94 309
9
0
9
0
9
0
9
0
9
0
9
Jón Sigurður Pálsson
Hann var fæddur 23. júní 1869
á Reykjarhóli í Skagafirði á ís-
landi. Foreldrar hans voru þau
Páll Pétursson, bóndi á Reykjar-
hóli í Skagafirði og Margrét, dótt-
ir Magnúsar Jónssonar á Páfa-
stöðum. Fluttist hann til Ame-
ríku með foreldrum sínum árið
1876, þá sjö ára gamall. Foreldr-
ar hans settust að á Húsafelli við
íslendingafljót í Nýja íslandi, og
dvaldi hann þar með þeim fyrstu
árin. Síðar tók hann heimilisrétt-
arland skamt frá Riverton, er
%
hann nefndi Víðirtungu, reisti þar
bú og bjó þar ætíð síðan, þar til
að hann andaðist þann 17. ágúst
þetta ár.
Árið 1901 gekk hann að ei'ga
Kristínu, dóttur Björns Jónsson-
ar og Jóhönnu Símonardóttur, úr
Húnavatnssýslu á íslandi (fædd á
Fögrubrekku í Vatnsdal). Þeim
varð ekki barna auðið, en tóku
stúlkubarn, ólínu að nafni, til
fósturs, — þá á fyrsta ári. Náði
hún fullorðinsaldri, en dó árið
1925. Hún var gift Alfons Good-
man frá Riverton.
Hans nánustu eftirlifandi eru:
ekkjan, er áður er nefnd, og syst-
ir, Guðrún, kona merkisbóndans
Jóhanns Briem, í Riverton.
Jarðarför Jóns heitins fór fram
þann 19. ágúst, að fjölmenni við-
stöddu; húskveðja frá heimilinu
að Víðirtungu, og síðan útför frá
kirkju Bræðrasafnaðar til hins
hinsta hvílustaðar, í grafreit lút-
erska safnaðarins í Riverton.
Hann var jarðunginn af séra Sig-
urði ólafssyni, og séra Jóhanní
Bjarnasyni.
Jón heitinn var góður eilginmað-
ur og lét hag heimilis síns sitja
fyrir öllu. Hann var innilega trú-
aður maður. Frá því hann kom
til Fljótsbygðar, fram á dauða-
dag var hann meðlimur Bræðra-
safnaðar í Riverton. Gekk haftn
ótrautt fram í að styrkja og efla
þann félagsskap. Embættismað-
ur og fulltrúi safnaðarins var
hann í fjöldamörg ár. Velferð
safnaðarins munu fáir hafa borið
meira fyrir brjósti en hann. Við
fráfall hans var stórt skarð höglg-
við í þann hóp, er sér nú að baki
slíks manns, er Jón heitinn var.
Hann var ráðvandur, orðheldinn
og skyldurækinn, og reglumaður
var hann í orðsins fylstu merk-
ingu. í bindindismálum var hann
ötull starfsmaður. Þá er Templ-
arastúkan var stofnuð við íslend-
ingafljót, var hann einn af stofn-
endum þess félagskapar, og mun
jafnan hafa staðið framarlega í
þeirri starfsemi. Hann var fé-
lagslyndur, og er vitnisburður
þeirra, er með honum unnu að fé-
lagsmáluum sá, að hann bafi ver-
ið hinn ágætasti maður í allri
samvinnu; útsjónargóður og til-
löguhollur, og með næma tilfinn-
ingu fyrir því, sem rétt er og satt.
Áhuga hafði hann fyrir því, að
ráðið væri fram úr vandamálum
síns félafesskapar á sem'heilla-
vænlegastan hátt. Á fundum lét
hann óhikandi skoðun sína í ljós,
og fylgdi fast eftir því er var
sannfæring hans. Kom þar í ljós
óskiftur áhugi og hreinskilni.
Enda kom hann oft miklu góðu til
leiðar með framtaksemi sinni og
áhuga. Um það getur sá vottað,
er þessar línur ritar.
Bjartsýni og glaðlyndi einkendu
Jón heitinn, og það þrátt fyrir
hina löngu baráttu, er hanm háði
við sjúkdóm þann, er að lokum
leiddi hann til dauða. Hann var
skemtile'gur í viðræðum, orðhepp-
inn, og spaugsamur er svo bar
bar undir, en alvörugefinn og á-
kveðinn, þegar um alvörumál var
að ræða. Hann var einkar vin-
sæll. enda var hin dagfarslega
framkoma hans þannig, að hann
vakti virðingu, traust og hlýhug
hjá samferðafólki sínu. Því er
við brugðið, hversu meðlíðunar-
samur hann var, og fús til þess
að rétta bróðurhönd bágstöddum.
Vel'gjörðir sínar hafði hann ekki
í hámælum. Munu þó fleiri hafa
orðið aðnjótandi velgjörða hans,
en flestir hafa hugmynd um.
Fljótsbygðin íslenzka, við frá-|
fall Jóns heitins, sér á bak hins
mætasta manns. Það er óbætan-
legt tjón hvers bygðarlags, þegar
góður drengur, góður vinur og
góður nágranni er numinn á
brott.
Jóns heitins er sárt saknað af
eftirlifandi eilginkonu, systur,
vandamönnum og vinum.
Blessuð sé minning hans.
S.
Frá íslandi
Reykjavík, 24. nóv.
Landbúnaðurinn.
í tilkynning frá sendiherra
Dana í !gær segir svo:
Eftir áskorun Metúsalems Stef-
ánssonar búnaðarmálastjóra, hefir
prófessor Weis sent honum álit
sitt um rækunarskilyrði á íslandi,
og mun það birtast í Búnaðarrit-
inu.
Rannsóknir Weis prófessors
sýna það, að jarðvegur á ÍS'landi
stendur ekki að baki svipuðum
jarðvegi í Miðevrópu og á Norð-
urlöndum, um næringarefni fyrir
gróður. Hann er að vísu dálítið
fátækari að fosforsýru, og sér-
staklega kali, en auðugri að kalki.
Jarðveginum hættir ekki til þess
að súrna. Köfnunarefnisinnihald
jarðvegsins er furðu mikið. Það
má því segja, að hinn íslenzki
jarðgvegur sé álgætur.
Tíu sýnishorn, sem tekin voru
eftir nýjum aðferðum, sýna það,
að íslenzkur jarðvegur þarfnast
ekki kölkunar eða merglunar, er
annars staðar er nauðsynlegt skil-
yrði fyrir því að ræktun og garð-
yrkja geti gefið fullan arð. Eins
og íslenzki jarðvegurinn er, ætti
þar að vera skilyrði fyrir mjög
miklu gerlalífi. Hið mikla köfn-
unarefni er auðsuppspretta, ef
hægt er að leysa það úr læðinlgi,
en það er enn óráðin gáta, hvern-
ig sú þraut vinst bezt.
Prófessorinn bendir sérstaklega
á Korpúlfstaðabúið, sem talandi
tákn þess hvað hægt er að fram-
kvæma, þegar vísindi og reynsla
haldast í hendur. Hann leggur
það til, að túnræktinni verði hag-
að á heppilegri hátt en áður, að
bændur hafi fleiri kýr, auki
svínarækt og mjólkurbúa starf-
rækslu. — Mgbl.
Vandræði bænda.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, hvað hagur bænda er yfir-
'leitt bághorinn, hæði vegna mik-
illa skulda og verðfalls á öllum
landbúnaðarafurðum. Er sýnt, að
eitthvað verður að gera, ef bænd-
ur eiga ekki að flosna upp í
stórhópum.
Nú hefir ríkisstjórnin skipað
þriggja manna nefnd til þess að
athuga kjör bænda oíg vinna með
þingi og stjórn að þvv að finna
ráð landbúnaðinum til viðreisnar.
f þessa nefnd hafa verið skipaðir
þeir Pétur Ottesen, alþingismað-
urf, Tryggvi Þórhallsson, banka-
stjóri, og Sigurður Kristinsson,
framkvæmdastjóri.
Nefndin hefir þegar hafið starf
sitt og sett sig í samband við
banka og sparisjóði. Síðan mun
hún safna skýrslum frá verzlun-
um um land alt og eins frá bænd-
um sjálfum. — M!gbl.
MOQRE’S TAXI LTD.
28 333
Leigið bíla og keyrið sjálfir.
Drögum bíia og geymum. Allar
aðgerðir og ðkeypis hemilprðfun.
Flytjum pianos, húsgögn, farang-
ur og böggla.
Grænlandsleiðangur Breta
Eftirfarandi gerin er útdráttur
úr bréfi frá F. Spencer Chapman,
og segir frá brezka leiðangrinum
frá því Watkins fórst:
— Hinn 2y. ágúst (daginn eftir
að Watkins hvarf) leituðum vér
hans enn, en 22. ágúst löigðum vér
á stað til Angmagsalik, til þess að
síma hina sorglegu fregn heim.
Vér fórum í vélbáti vorum til
næsta fjarðar og höfðum hvala-
bát í eftirdragi og í honum voru
sleðahundarnir vorir, sex að tölu.
Vér skildum þá eftir hjá Eskimó-
um þar og þrátt fyrir mótbyr og
krappa öldu, tókst oss að komast
heilu og höldnu yfir Kangerdlufe-
suatsiak-fjörðinn. Það var kyrt og
sjólaust milli eyanna og vér náð-
um til Sermiligak- þá um kvöldið.
Eskimóar urðu harmi lostnir, er
þeir fréttu um afdrif Watkins og
sögðust hvað eftir annað hafa
varað hann við því að fara einn á
veiðar.
Hinn 23. ágúst komust véi
fram hjá skerjunum há Angmag-
salik, fremur af hepni heldur en
fyrirhyggu, og rendum inn á
Angma!gsalik-höfn með fána í
hálfri stöng. öllum brá þar í
brún, er þeir heyrðu sorgartíðind-
in. Vér settumst að há nýlendu-
stóranum, sendum skeyti heim og
biðum eftir svari.
Vér vissum, að vér urðum að
flýta oss til bækistöðva vorra
aftur. Skildum því hvalabátinn
eftir í Angmagsalik og héldum á
stað 29. ágÚ3t. Var það ætlunin,
að við Riley skyldum koma bráð-
lega aftur og sæka bátinn og 10
hunda, sem vér höfðum keypt þar,
og ýmislegar nauðsynar til vetr-
arins.
Vér fenlgum úrhellisregn allan
daginn og komumst ekki lengra
en til Kormint. Daginn eftir fór-
um vér til Sermiligak. ' Var oss
tekið þar tveim höndum og feng-
um nóg af sel að borða.
Hinum 31. ágúst gleymi eg aldr-
ei svo lengi sem eg lifi. Þá var
dynjandi illviðri og vér urð-
um undir eins holdvotir. Nú
var stórsjór milli eyjanna, en oss
gekk þó sæmilega þangað til vér
urðum að leggja út á opið haf,
suðvestur af Kangerdlugsuatsiak.
Þarna voru risavaxnar öldur, er
báturinn skoppaði á. Oft sáum
vér ekki annað en himininn yfir
oss. Og hafrótið versnaði stöð-
ugt. Hinir miklu borgarjakar rugg-
uðu eins og þeir hefði verið smá-
molar, og hvað eftir annað brotn-
uðu stór stykki úr þeim með braki
og brestum og heyrðust þruTnurn-
ar af því yfir sjávargnýinn. Haf-
öldurnar voru 20 feta háar og þar
scm þær skullu á björgunum o!g
endurköstuðust, mynduðu þær. óg-
urlegan súg og beljandi hring-
iður. Vélin í bátnum bilaði, þajð
hafði komist sjór að henni. En alt
í einu komst hún á stað aftur, oss
öllum til mestu undrunar, og þá
snerum vér við. Er oss öllum það
óskiljanlegt hvernig báturin afbar
hamfarir sævarins.
Vér tókum land hjá Saturnine
og lágum þar allan nsesta dag o!g
biðum þess, að hafrótið lægði.
Hinn 3. sept lögðum vér enn a
stað og tókst þá að komast leiðar
vorrar. Þegar vér komumst til
Vatnsfjarðar (Lake Fjord) vor-
i>m vér orðnir hræddir um það, að
Mikki (svo nefna allir Eskimóar
Enjar Mikkelsen), væri farinn
heimleiðis. En þegar vér komum
inn á fjörðinn, sáum vér skip hans
“Sökongen”. Lá það fyrir festum
fram undan tjaldi voru.
Mikkelsen hafði komið þangað
kvöldið áður, því að ofviðrið hafði
lika tafið hann. Hann lagði oss
til efni 1 timburhús. Danir eiga
það en þeir lána oss það þetta
ár. ’ Smiður af “Sökongen” reisti
grind hússins fyrir oss, en sjalfir
verðum vér að fullsmíða það. —
Watkins hafði sagt, að vér ættum
von á matvælum og kolum þarna,
en það reyndist miskilningur. Þo
fengum vér keypt dalitið al
hvoru tveggja.
Það eru lítil matvæli, er vér höf-
um til vetrarins: Dálítið af súkku-
laði, nokkuð af niðursoðinni mjólk.
100 pd. af smjörlíki, 50 pd. af
sykri, 300 pd. af hveiti, einn poki
af haframjöli og nokkrar dósir af
rcat, sem nefnist Munch—en ekki
neitt annað. Watkins hafði gert
ráð fyrir því, að vér gætum lifað
á selaveiðum og vonandi getum
vér það. — Lesb.
*'T. EATON C?
LIMITED
extends to
the Icelandic Community
of Winnipeg
Beát Wishes for a
Happy and
Prosperous New Year
Announcing the New and Better
MONOGRAM
LUMP . $5.50 Ton
COBBLE $5.50 Ton
STOVE . ..... $4.75 Ton
Saskatchewan’s Best
MINEHEAD
LUMP . $11.50 Ton
EGG .. $11.50 Ton
PREMIER ROCKY MOUNTAIN
DOMESTIC COAL
Wood’s Coal Company Limited
590 PEMBINA HIGHWAY
45262 PH0NE 49192
WEST END BRANCH OFFICE (W. Morris)
679 Sargent Ave.—Phone 29 277