Lögberg - 17.01.1935, Blaðsíða 1

Lögberg - 17.01.1935, Blaðsíða 1
48. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMÍTUDAGINN 17. JANÚAR 1935 NÚMER 3 tH Messuboð :< '■ iviessuDOO n. ^FYBSTA LtíT. KIRKJA 1 WINNIPEö" | - SUNNUDAGINN 20. JAN. X 1. Hádegismessa (ensk) kl. 11—Annar þatt- & ur prédikana-kerfisins nýja : “The House f£ of Prayer.” Búist við mikilli aðsókn. 2. Kvöldmessa (íslenzk) kl. 7—Séra N. S. % Thorláksson er gestur í borginni og pré- dikar við guðs])jónustuna þetta kvöld. vwvct Alþingi slitið Þann 23. desember síðastliðinn, var Alþingi slitið eftir því nœr þriggja mánaða setu. Síðasta verk þingsins var það, að kjösa í eftirgreindar nefndir: Mentamálaráð: Árni Pálsson, Kr. Albertsson, Jónas Jónsson, Barði Guðmundsson, Pálmi Hann- esson. Þingvallanefnd: Magnús Guð- mundsson, Jónas Jónsson, Jón Báldvinsson. Landskjörstjórn: Jón Ásbjörns- soir, Þorst. Þorsteinsson hagst.stj., Magnús Sigurðsson, Vilmundur Jónsson, Ragnar Ólafsson lögfr. Til vara: Eggert Claessen, Einar B. Guðmundsson, Gissur Berg- steinsson, Finnbogi R. Valdimars- son, Þórólfur Eyjólfsson. Landsbankanefnd: Magnús Guð- mundsson, Gísli Sveinsson, Ingvar Pálmason, Jónas Guðmundsson, Sveinbjörn Högnason. Til vara: Pétur Þlalldórsson, Pétur Ottesen, Bjarni Ásgeirsson, Jón A. Péturs- son, Gísli Guðmundsson. Stjórn byggingarsjóðs (ný lög) : Jakob Möller, Jóbann Ólafsson, Stefán Jóh. Stefánsson, Þorlákur Ottesen. Endurskoðendur byggingarsjóðs voru kosnir: Jón Þorláksson og Ágúst Jósefsson. • Útvarpsráð (ný skipan) : Valtýr Stefánsson, Sigurður Baldvinsson, Pétur G. Guðmundsson. Til vara: Jón Ófeigsson, Hallgrímur Jónas- son kennari, Guðjón Guðjónsson kennari. Stjórn Síldarverksmiðju ríkisins: Sveinn Benediktsson, Jón Þórðar- s°n, Páll Þorbjörnsson, Jón Sig- urðsson. Endurskoðendur voru kosnir: Hannes Jónsson alþm. og Sophus Blöndal. Síldarútvegsnefnd (ný lög) : Sig- urður Kristjánsson útgerðarmaður, Siglufirði, Jakob Frímannsson, Ak. ureyri, Finnur Jónsson. Til vara: Loftur Bjarnason, Björn Kristjáns- sJn, Kópaskeri, Jón Jóhannsson sjómaður, Siglufirði. Lftirlitsmenn opinberra sjóða (ný lög);( Jakob Möller, Andrés yjólfsson, Sigurjón Á. Ólafsson. Eftirlits-ráð (ný lög). Samkv. ssum lögum á að skipa þriggja maiUla ráð til eftirlits með opinber. Vm rekstri. Ráðunum er skift í 3 ^okka: T- flokkur: Póstur, sími, útvarp s^''Paútgerð; þar voru kosnir: igurður Kristjánsson, Sigurvin -marsson, Sigurður Ólafsson gjald- er' ^jómannafélagsins. 2. flokkur; Tóbakseinkasala, á- engisverzlun, viðtkjaverzlun, á- )ur areinkasala; þessir kosnir: Jakob Möller, Guðm. Kr. Guð- mundsson skrifstofustjóri, Guð- mundur Petursson simritari,— 3- flokkur: Vegamál, vitamál, husameistari, ríkisprentsmiðjan og andssmiðjan. Kosnir voru: Ilall- dor Steinsson, Magnús Stefánsson vcrslm., Jón Guðlaugsson bilstjóri. Mbl. 23. des. þess GÓÐUR BOSKAPUR Ekki verður annað sagt, þrátt fyrir kreppuna, en vel hafi gengið búskapurinn í Minto-sveitinni hér í fylkinu. Er sveitarfélag þetta, eitt af fáum, þannig statt, að það skuld- ar hvergi grænan túskilding, en á til góða á banka tuttugu þúsund dali. Gjaldendur sveitarinnar hafa ekki verið breytingagjarnir að þvi er sveitarstjórnina áhrærði, sem marka má meðal annars af því, að ýmsir af forráðamönnum hafa átt sæti í sveitarnefnd urn þrjátíu ára tímabil, eða freklega það. Minto- sveit mun eiga innan vébanda sinna þá fullkomnustu bílvegi, sem fyrir- finnast í Manitobafvlki. HORACE CHEVRIER • LATINN Síðastliðinn laugardag lézt að heimili sínu hér í borginni, Mr. Horace Chevrier, kaupmaður, eftir langvarandi heilsubilun. Er með honum genginn grafarveg einn af ágætustu borgurum þessa bæjarfé- lags. Rak hann urn langt skeið verzlun þá á Main Street, er nefnd- ist .The Blue Store, eða Bláa búðin, eins og íslendingar alment kölluðu hana; hafði hann íslendinga löng- um í þjónustu sinni, svo sem Jakob heitinn Johnston, og áttu þeir naum- ast trúrri né ötulli talsmann, en þar sem hann var. Naut hann jafnan mikilla viðskifta af hálfu íslend- inga. Horace Chevrier var gáfaður maður og víðsýnn i mannfélagsmáL um; hann var með allra mælskustu mönnum og tók áhrifamikinn þátt í sjtórnmáium sem heitur stuðnings- maður frjálslyndu stefnunnar; var hann á ungum aldri kosinn á fylkis- þing og átti þar sæti í eitt kjörtíma- bil. Horace Chevrier var mála- fvlgjumaður mikill og máttu menn ávalt eiga þess vísa von að hann væri jafnast þar að hitta, er harð- astur var bardaginn. Ur borg og bygð “EITT AR A ISLANDI” Gleymið ekki samkomu kvenfé- lagsins í Fyrstu lútersku kirkju miðvikudagskvöldið 23. þ. m., kl. 8.15. Hr. Finnur Johnson flytur erindi: “Eitt ár á íslandi.” Ágæt- ur söngur. Góðar veitingar. Að- gangur ókeypis. Samskot. FRAMBOÐ TIL ÞTNGS Á afarfjölmennum fundi, sem haldinn var í Saskatoon þann 14. þ. m. var Dr. A. MacGillivray Young útnefndur sem þingmanns- efni frjálslynda flokksins í Saska- toon kjördæmi við kosningar þær til sambandsþings, er nú fara í hönd. Dr. Young átti sæti á sam- bandsþingi frá 1925 til 1930. ÞORRABLÓT / SEATTLE Öllum íslendingum í Seattle og grendinni veitist kostur á að mæt- ast í samkomusal Sambandskirkj- unnar í Seattle (7706—25th Ave. N.W.) laugardaginn 26. janúar, T935> 0& setjast þar að alíslenzkri máltíð, svo sem hangikjöti, rúllu- pylsu, slátri, sviðum, skyri og rjóma o. s. frv. Að lokinni máltið fer fram fjölbreytt og ágæta skemti- skrá. Alt þetta kostar aðeins 50C. Hér býðst ágætt tækifæri til að endurnýja gamlan kunningsskap og rifja upp fornhelgar minningar. ELDSVOÐI f SALTCOATS Á aðfaranótt mánudagsins, kom eldur upp í sölubúð M. Shore í Saltcoats, Sask., er orsakaði $20,000 tjón. Um það leyti er bygging þessi brann, hlóð niður lognmjöll, er mjög stuðlaði að því að fvrirbyggja út- breiðslu eldsins til nærliggjani húsa Jólakvöld Eftir Bóðvar frá Hnífsdal. Það ljómaði logskær stjarna á loftsins bláu tjöldum, þá voru hirðir á verði, það var fyrir nítján öldum.— I lítilli kofa-kytru kona sveinbarn ól og vafði reifa-voðum. Þá voru hin fyrstu jól. Þá fæddistu, Hvíti Kristur, konungur alls hins góða. Þú komst með nýja kenning og kærleik til allra þjóða. Hundruð og þúsundir hreifstu og hrífur enn—í kveld. Þú lagðir á lífsins arin leiftrandi jóla-eld. Þú svalaðir þyrstum sálum og syndarann vafðir að hjarta. Alla, sem leituðu ljóssins, þú leiddir á vegu bjarta. Þú sagðir þeim dæmisögur með sannleikans djörfu raust. Þú komst í kærleikans nafni, en krossinn að launum hlaust. Þú fluttir fagnaðarboðskap, en fár þína kenningu skildi, þó eru öll þinna orða enn þá í fullu gildi, en enn þá er sömu sögu að segja—því er ver, að fordæmi þínu fvlgja fáir—á jörðu hér. Komi þitt ríki, Kristur, konungur himins og jarðar. Kendu þjóð að þekkja það, sem mestu varðar. Gef þú oss hjarta, er hafi þitt heilaga orð í minnum. Gef þú oss sorg, ef af sorgum sjáandi verða kvnnum. Ljós þinnar eilíf'u ástar, allan geiminn fylli,— brúar hnatta 'hylji heimsendanna milli. Ó, þig vér þreyttir biðjum. Á þig vér særðir köllum, á þig, sem ert mestur manna og mestur af guðum öllum. Jón Bjarnason Ladies’ Guild. j þannig nefnist félagsskapur, sem Mrs. A. S. Bardal hefir gengist fvrir að stofna hér í borg, er beldur fundi sína annan miðvikudag hvers mánaðar. Tilgangurinn er sá, að aðstoða skólann á einn eða annan hátt, eftir því sem, ástæður leyfa Undirbúningsfundir voru haldnir á heimili Mrs. R. Marteinsson, 493 Lipton St., 21. nóv. og 9. jan. Á síðara fundinum var félagið full- stofnað. Embættiskonur eru: Heiðursforseti: Mrs. R. Mar- teinsson, forseti: Mrs. A. S. Bardal, vara-forseti: Mrs. D. H. Ross, skrifari: Mrs. C. C. Herald, vara skrifari: Mrs. G. M. Bjarnason, fé- hirðir: Mrs. J. G. Snidal, vara-fé- hirðir: Mrs. H. C. McCaw. Um 25 konur hafa þegar gengið í félagið og eru það aðallega mæður fyrver andi eða núverandi nemenda skól- ans. Þær hafa ákveðið að halda samkomu í skólanum 15. febrúar. Einlæg velvild til skólans er hreyíi aflið í þessu félagi. Menn muni eftir samkomudeginum. Prófessor Watson Kirkconnell flytur erindi um islenzka ljóðagerð á Agnes Street Labor Hall í kvöld (fimtudag). Auk þess verða sýnd- ar myndir frá fslands, sungnir ís- lenzkir söngvar og dansað á eftir. Aðgangur 15C. Bæjarráðsmaður Victor Anderson stýrir samkom- unni. Verkamannafélagið heldur skemtisamkomur á hverju fimtu- dagskvöldi. Þetta kvöld er sérstak- lega ætlað fyrir íslendinga. Þeir ættu að fylla húsið. HENTUG GJÖF Hermannarit Jóns Sigurðssonar fclagsins er ein hin hentugasta gjöf, er hugsast getur. Rit þetta flytur myndir og æfiágrip um 1300 íslend- inga, er þátt tóku í heimsstyrjöld- inni miklu. Ritið er til útsölu hjá forseta félagsins, Mrs. J. B. Skapta- son, 378 Maryland St., og hefir ver- ið fært niður úr $to.oo, er það upp- haflega kostaði, ofan í $3.00. Það er í leðurbandi og á hinum vandað- asta pappír. Félagið hefir gefið ýmsum háskólum og bókasöfnum hér í álfu og austanhafs, eintak af ritinu. Viðurkenningarbréf mörg fara einkar hlýjum orðum um bók- ina og telja hana með hinum merk- ustu og eigulegustu bókum, sem fá- anlegar eru. SAMSÆTI f tilefni af heiðri þeim, og viður- kenningu, er hr. Sveinn kaupmaður Thorvaldson í Riverton hefir ný- lega hlotið, hefir Þjóðræknisfélag- ið ákveðið að minnast þess viðburð- Saar-héröðin sameinast Þýzkalandi á ný Við atkvceðagreiðslu þá, er fram fór í Saar-dalnum síð- astliðinn sunnudag, um framtíðar yfirráð þess landsvæðis, urðu úrslitin þau, að yfir 90 af hundraði greiddra at- kvæða gengu sameiningu við Þýzkaland í vil Kjósendur höfðu um þrent að velja: Sameiningu við Þýzka- land, innlimun í Frakkland, eða þá að hlíta umsjá Þjóðabanda- lagsins, eins og við hafði gengist síðastliðin 15 ár. Atkvæði skiftust þannig: Með Þýzkalandi 476,089, með núverandi stjónarfari 46,618, með Frakklandi 2,093. Nokkur herafli og lögreglulið frá ýmsum þjóðum, mun enn verða um hríð á svæði þessu, eða þangað til opinber afhending fer fram af hálfu Þjóðabandalagsins. ar með því að gangaSt fyrir sam- ar hún getur framleitt alt það, sæti, er haldið verður í Fott Garry hótelinu i Winnipeg þann 24. þ. m. og hefst klukkan 6.30 e. h. Konur og karlar, sem þátt vilja taka í samsæti þessu eru beðin að gefa sig fram á skrifstofum íslenzku blaðanna, Lögbergs og Heims- kringlu, þar sem áskriftarlistar verða til staðar, og borga þar þátt- tökugjald, sem er $1.25 fyrir mann. inn. Til hægðarauka fyrir Islendinga ,i norðurhluta Nýja íslands verður einn áskriftarlisti hjá hr. Skúla Hjörlejifssyni í Riverton og geta þeir er vilja skrásett sig þar. Áskriftalistunum verður lokað 19. janúar næstkomandi og verða því allir þeir, er þátt vilja taka i sam- sætinu að vera búnir að skrásetja sig fyrir þann dag. Winnipeg 8. janúar 1935. /. J. Bíldfell, forscti. ELDUR UPPI / VATNAJÖKLI Frá Mælifelli í Skagafirði barst veðurstofunni fregn um það í gær, að sést hefði bjarmi og blossar i suður eða suðaustur að sjá úr Skagafirði. Eldbjarmi sást einnig frá ýmsum stöðum í austanverðri Húnavatnssýslu síðdegis í gær kl. 17—18, en ýmsir heyrðu drunur, | líkt og af skotum í fjarska. — Kl. 17 í gær sáust leiftur frá Raufar- höfn i hásuðri þaðan að sjá, rétt vestan við Bláfjall. Voru talin niu leiftur á 10 mínútum. Eldblossar sáust frá Grimsstöðum kl. 17.15 í gær, í stefnu um Herðubreið. Bloss- ar sáust með 1—3 mín. millibili.— Frá Þórunúpi í Rangárvallasýslu sáust eldglæringar í austri. —Vísir 24. des. NÝTT IÐNFYRIRTÆKl Fyrir nokkuru tók hér til starfa nýtt iðnfyrirtæki, Lakkrísgerð Reykjavíkjur h.f. Hefir, eins og | kunnugt er, verið flutt mikið til landsins af þessari vörutegund, og verður hiklaust að telja það til fram- fara, að hafist hefir verið handa um að stofna til framleiðslu á þessari vöru innanlands, til þess að geta fullnægt eftirspurninni, í stað þess að flytja vöru þessa frá öðrum löndum. Hefir þegar allmargt manna fengið atvinnu við lakkrísgerðina, en varan er fyrir nokkuru komin í nærri allar verslanir, sem slíkar vör- ur hafa á boðstólum, og hefir likað prýðilega, en eftirspurnin hefir far- ið jafnt og þétt vaxandi. Mikil á- hersla er lögð á að vandvirkni og fylsta hreinlætis sé gætt. T. d. er vert að taka það fram, að manns- höndin hreyfir ekki vöruna frá þvi hráefnin fara í vélarnar, þar til hún er komin í umbúðir. Aðeins fyrsta flokks nýtísku vélar eru notaðar og hefir yfirstjórn þeirra á hendi þaul- vanur maður, og lærður í iðninni, svo að engin mistök getur verið um að ræða í þessari framleiðslu. Verk. smiðjan hefir svo fullkomnar vélar, er land okkar þarf af þessari vöru, og vinnur nú í verksmiðjunni 10 manns. Framleiðsla Lakkrísgerðar Reykja- víkur h. f. er fyllilega samkepnisfær við samskonar vörur erlendar, bæði að því er verð og gæði snertir. Vísir 22. des. KRISTINDÓMURINN 1 RÚSSLANDI Ríkisforlagið rússneska hefir ný- lega gefið út bók, er nefnist: “Bar- áttan gegn trúarbrögðunum sam- kvæmt fimm ára áætluninni,” og er þar sagt frá árangrinum af guð- leysis-baráttunni. Ekki þykir hún hafa borið þann ávöxt, sem til var ætlast. Frá því er sagt, að hjá fólk. inu á sameignarbúunum, sem er alt í orði kveðnu kommúnistar, verði vart sterkrar trúhneigðar, meira en 90% af þvi hafi guðræknismyndir á heimilum sínum og við þær myndir fari stöðugt fram bænargerðir. Höf. kannast við það, að enn hafi ekki tekist að útrýma guðstrúnni úr rússnesku þjóðarsálinni. Meðal ann- ars er svo komist að orði í bókinni: “íhaldsstarfsemin hjá kirkjulýðn- um er stöðugt að færast i vöxt, alls staðar sér þess vott, að tilraunir til þess að hindra sósíalistiska upp- byggingarstarfið) hepnist, trúar- brögðin vinna á, en vantrúar-starf- seminni hrakar að sama skapi.” Slíkur vitnisburður frá kunnug- um kommúnista er eftirtektarverð- ur. Hann staðfestir þá sannreynd, að trúnni á Guð og kærleikanum til kirkjunnar verður ekki útrýmt með ofbeldi. En ytri kjör safnaðanna eru ekki glæsileg. Þar sjást nú ekki prestar i skrautlegum skrúða, heldur klæð- ast þeir lérefti, vinna og svelta, eins og aðrir. Og guðsþjónusturnar eru með öðrum blæ en áður var: söfn- uðirnir kjósa sér forstöðumenn, sem fara með bænirnar, lesa úr ritn. ingunni og taka til altaris. Trúaða fólkið heldur hópinn í smásöfnuð- unum í eindrægni, eins og var í fyrstu kristnu söfnuðunum. Það biður, biður og vonar. — Kirkja Rússlands er ekki úr sögunni. (Heimildir fyrir þessu er blað danska prestafélagsins, 12. okt. 1934). — Lesb. Mbl. í des. 1934. Stórfeld fjársvik í Soviet Rússlandi Rannsókn er nú lokið i málinu gegn starfsmönnum Sovietsbankans, og hafa 81 þeirra verið hneptir í varðhald. Fé það, sem þeir hafa svikið undan, nemúr mörgum milj- ónum gull-rúbla. Málssóknin mun hcfjast eftir nýár, og er talið að brot nokkurra af hinum ákærðu séu svo alvarleg, að þeir muni hljóta líflátsdóm. /

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.