Lögberg - 25.04.1935, Qupperneq 1
48. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN„ FIMTUDAGINN 25. APRÍL 1935
NÚMER 17
ATHYGLISVERÐ UMMÆLI
Blaðið Victoria Times, liberal,
sem gefið er út í borginni Victoria
í British Columbia, kemst þannig að
orði, eftir að hafa gerkynt sér til-
lögur þeirrar konunglegu rannsókn-
arnefndar, er að því vann að kynna
sér verzlunarháttu i Canada:
“Augljóst er það, svo ekki verð-
ur um vilst, að tillögur meiri hluta
nefndarinnar, margar hverjar, séu
með öllu óframkvæmanlegar, og að
þær hafi verið sniðnar til með hlið-
sjón af því hve skamt er til kosn-
inga. Sumar þeirra eru þess eðlis,
að þær ríða í bága við stjórnskipu-
legan rétt fylkjanna og krefjast
þessvegna þar að lútandi löggjafar
af hálfu fylkisþinga. Hinsvegar eru
aðrar, er hrinda má í framkvæmd án
íhlutunar frá hinum einstöku fylkj-
um með sambandsþings löggjöf
einni, en sem sá varnagli fylgir, að
ganga megi frá fullgilding þeirra
seinna.
Ákvæði þau, er lúta að endur-
bættri starfrækslu verzlunarhringa
og annara stórfyrirtækja, yrði lík-
legri til árangurs, ef gert væri jafn-
framt ráð fyrir verulegri lækkun
verndartolla. I>á sýnist það og var-
hugavert, hve stjórninni er veitt vítt
svigrúm til þess að hrinda hinum og
þessum umbótaákvæðum nefndar-
álitsins í framkvæmd með stjórnar-
ráðs samþykt, í stað þess að þingið
ráði þar eitt um.”
LANDSKJALFTI OG
IIÖRMUNGAR
Símað er frá Taihoku, höfuð-
borginni á eynni Formosa, þann 22.
þ. m., að ógurlegur landskjólfti hafi
geysað yfir norðvestur hluta þessa
eylands síðastliðinn sunnudag, og or-
sakað feykilegt manntjón. Áætlað
er að um þrjár þúsundir manna hafi
látið líf sitt á landskjálftasvæðinu,
og hátt á tólfta þúsund sætt meiri
og minni meiðslum. Drepsóttir hafa
auk þess gosið upp, sem reynst hefir
því nær ókleift að stemma stigu fyr.
ir. Formosa-ey telst til Japan og
liggur um 90 mílur undan ströndum
Kína. Hefir stjórn Japana brugðist
við og sent þangað öll hugsanleg
flutningatæki með vistir, auk fjölda
lækna og hjúkrunarkvenna. Þá er
og símað frá Hong Kong, að brezk
htrskip, sem þar liggja hafi boðið
fram hjálp sína nær sem vera vilji.
FJARVEITING SVO UM
MUNAR
Neðri málstofa þjóðþingsins í
Washington, hefir afgreitt að heita
má óbreytt frumvarp Roosevelts
forseta um $2,783,200,000 fjárveit-
ingu til samfélagslegra mannúðar-
mála, svo sem ellistyrks, mæðra-
styrks, atvinnuleysisstyrks og barna-
verndar. Var frumvarpið samþykt
með 372 atkvæðum gegn 33. Líkur
munu til að fjárveiting þessi sæti
snarpri andspyrnu í öldungadeild-
inni, þó stjórnin njóti þar að visu
nægilegs meirihluta til þess að
tryggja henni framgang.
ELDSVOÐII FISHER
RRANCH
Á aðfaranótt föstudagsins langa,
kom eldur upp í samlagsbúðinni í
Fisher Branch hér í fylkinu, er
breiddist út til nærliggjandi verzl-
unar og matsöluhúss, og orsakaði
um sex þúsund dala tjón. Nokkrar
manneskjur urðu fyrir meiðslum
meðan á slökkvitilraunum stóð.
IIERSKYLDA FRAMLENGD
Franska stjórnin hefir framlengt
herskyldutíma í sjóhernum um sex
mánuði. Hinn venjulegi timi er tvö
ár. Hefir meirihluti þings fallist á
þessa ráðstöfun stjórnarinjiar.
Mr. Thorvardur Thorvardson
Þessa unga og efnilega mentamanns
var stuttlega minst i síðasta blaði,
en myndamót þá hvorki til taks né
þess vis von. Thorvardur er sonur
Mr. B. S. Thorvardssonar kaup-
manns að Akra, N. Dak. Er hann
framarla í hópi þeirra mentamanna
islenzkra úr Dakotabygðunum, er
gert hafa garðinn frægan.
FRA RÚLGARIU
Allstormasamt hefir verið á
stjórnmálahafi Búlgaríu þjóðarinn-
ar undanfarandi vikur. Hafa öld-
urnar einkum risið út af því, hvort
herinn yrði til þess kvaddur að
mynda alræðisstjórn, eða þingræð-
isreglum fylgt. Þykir liklegt að
sterk Fascista samtök eigi sér stað
innan vébanda hersins, er hrifsa
vilji undir sig völd. Boris konung-
ur hallast eindregið á sveif þing-
ræðismanna og hefir falið Andrea
Toscheff ráðuneytismyndun, Gegndi
hann áður sendiherra embætti, en
hefir lítt gefið sig við opinberum
málum um hríð; fyllir hann flokk
vinstri manna. Ekki er enn séð fyr-
ir endann á því hvernig honum tekst
til með þvi að við raman reip er að
draga.
REV. JOHN PRINGLE
LATINN
Á föstudaginn þann 19. yfirstand-
andi mánaðar, lézt að Lowell í Mas-
sachusett ríki, Rev. John Pringle,
nafnkunnur canadiskur kennimað-
ur, 83 ára að aldri. Fékk hann mik-
ið orð á sig sem áhrifa-prédikari í
Klondike á þeim árum, sem mest
bar á gull-æðinu þar um slóðir (jg
allir ætluðu sér að verða miljóna-
mæringar á augnablikinu. Þótti Rev.
Pringle gripa all ómjúklega á ýms-
um þeim kýlum, er námalífinu voru
samfara norður þar.
NÝTT VARNARSAMBAND
Fregnir frá París þann 20 þ. m.,
láta þess getið, að nokkrar líkur séu
til að Frakkar og Rússar stofni til
varnarsambands sín á milli áður en
langt um líður. Fylgir það sögunni
að Rússar hafi sótt mál þetta af
kappi og boðið fram margvísleg
hlunnindi sem undirstöðu fyrir
varnarsáttmála milli þjóðanna.
DREGUR SIG I HLÉ
Fullyrt er að núverandi dóms-
málaráðg j af i sambandsst j órnarinn.
ar, Hon. Hugh Guthrie, verði ekki
í kjöri við næstu kosningar, og sé
staðráðinn í því að draga sig með
öllu í hlé af sviði stjórnmálanna.
Mr. Guthrie var fyrst kosinn á þing
sem liberal árið 1900 og fylgdi þeim
flokki fram á árið 1917, er hann
gerðist ráðgjafi í bræðingsráðuneyti
Sir Roberts Borden.
ÞJóÐBANDALAGIÐ
RREGÐUR HITLER UM
SAMNINGSROF
Á fundi Þjóðbandalagsins, sem
haldinn var í Geneva síðastliðinn
fimtudag, var samþykt yfirlýsing,
er í sér fal bitra ásökun yfir því
tiltæki Hitlers, að telja hina þýzku
þjóð undanþegna þeim ákvæðum
Versalasamninganna, er reglur settu
um herafla hennar. Voru það
Frakkar, Englendingar og Italir, er
að framgangi yfirlýsingarinnar
unnu. Er fregnin barst til Berlínar,
urðu málsvarar Hitlers óðir og upp.
vægir og töldu afstöðu þessara þrí-
velda bera vott um óskynsamlegan
hefndarhug, er Evrópit-friðnum
hlyti að stafa hætta af.
Á laugardaginn átti Hitler 46 ára
afmæli, og voru í tilefni af því mikil
hátiðarhöld víðsvegar um Þýzka-
land.
SENATOR BELAND
LÁTINN
Síðastliðinn mánudag lézt i borg-
inni Kingston í Qntariofylki, Hon.
1 H. S. Beland, senator, og fyrrum
1 heilbrigðismálaráðgjafi í ráðuneyti
Mackenzie King, tæpra sextíu og
fimm ára að aldri. Hinn látni sena-
tor lauk ungur prófi í læknisfræði,
og naut mikils álits í fræðigrein
sinni. Hann var staddur í Belgíu
þegar styrjöldin mikla frá 1914
braust út, og gerðist sjálfboða lækn-
ir við hermannaspítala hinnar
belgísku þjóðar. Skömmu seinna
var Dr. Beland tekinn til fanga, og
samdi í tilefni af þvi bókina ‘‘My
Three Years In a German Prison.”
THOMAS JACKSON
LÁTINN
Síðastliðið sunnudagskvöld lézt að
heimili sínu hér í borginni, af hjarta-
bilun, Mr. Thomas Jackson, bygg-
ingameistari, og eldiviðarkaupmað-
ur, 72 ára að aldri. Var hann mörg
um íslendingum að góðu kunnur.
Árið 1925 stofnaði Mr. Jackson
byggingafélag það, er Nelson River
Construction Company nefnist og
viðskifti hefir rekið víðsvegar um
landið. Mr. Jackson lætur eftir sig
ekkju ásamt þrernur börnum. Hefir
John sonur hans nú með höndum
forustu byggingafélags þess og eldi
viðarverzlunar er gengur undir
nafninu Thomas Jackson and Sons.
RAKU UPP STÓR AUGU
Ýmsir brezkir blaðamenn ráku
upp stór undrunaraugu, og fyltu
blöð sín með fyrirspurnum til stjórn
arinnar á mánudaginn var, um það,
hvernig á því stæði að hans hátign
konungurinn hefði sent Adolf Hitler
hamingjuóskaskeyti í tilefni af 46
ára afmæli hans. Vildu þeir fá fulla
vitneskju um það, hvort slikt hefði
gert verið fyrir atbeina stjórnar-
innar, eða konungurinn hefði tekið
1 þetta upp hjá sjálfum sér. Síðar
upplýstist það, að hér væri um kur-
teisisvenju að ræða, er gilti um for.
ustumenn stórþjóða hverníg svo sem
til hagaði um pólitíska afstöðu.
HEFIR t HÓTUNUM
Senator Huey Long, þetta póli-
tíska fyrirbrigði í Louisiana, hefir
hótað að koma þvi til vegar að ríki
þetta segi sig úr lögum við ríkja-
sambandið ameriska, ef stjórnin í
Washington láti það ekki afskifta-
laust, hvernig rikisþingið hagi stefnu
sinni í f jármálunum; það sé Wash.
ington óviðkomandi með öllu, þó
ríkisþingið afgreiði f járveitingar, er
í för með sér hafi auknar skuldir
sveitafélaganna í Louisiana.
Frá Islandi
Ritari íslenzka félagsins í Ham-
borg, Björn Sveinsson, hefir tilkynt
Háskóla Islands að rektor Háskól-
ans í Hamborg ætli að stofna til
stúdentaferðar hingað til lands í
sumar og geri ráð fyrir að 30 þýzkir
stúdentar verði i förinni og kemur
liann sjálfur með þeim. Ætla þeir
að dvelja hér 10—12 daga og ferð-
ast um landið, eftir því sem við
verður komið, til þess að kynna sér
það. Gert er ráð fyrir að stúdent-
arnir dvelji hér á einkaheimilum og
að þeir verði skoðaðir fremur sem
gistivinir í landinu heldur en ferða-
menn. Jafnframt er gefið fyrirheit
um það, að jafnmargir íslenzkir
stúdentar skuli fá sams konar við-
tökur í Þýzkalandi og jafnlanga
dvöl þar ókeypis fyrir milligöngu
Háskólans í Hamborg. — Mbl. 4.
apríl.
Nútíðin, kristilegt sjómannafélag
opnaði sjómannastofu á Akureyri 1.
júlí í sumar sem leið. Aðsókn hefir
verið mjög mikil.—Komu þangað t.
d. 6,099 gestir frá 1. júlí til 31 des-
ember, 8 samkomur voru haldnar og
sóttu þær 2,785 menn. Á sama tíma
voru á sjómannastofunni skrifuð
414 bréf; gaf hún bréfsefnin og sá
um útsendingu þeirra. Nú hefir
félagið sett á fót handavinnukenslu
og sækja hana 40—50 börn.—Mbl.
4. apríl.
Reynt að grafa upp lík í Vest-
mannaeyjum.
Ub næst síðustu helgi tilkynti frú
Anna Gunnlaugsdóttir, ekkja Hall-
dórs heitins Gunnlaugssonar læknis
í Vestmannaeyjum, til bæjarfóget-
ans, að rótað hefði verið í gröf
manns hennar. Fulltrúi bæjarfógeta
og Stefán Árnason lögregluþjónn
fóru þegar í kirkjugarðinn til að
athuga vegsummerki. Sáu þeir þá
að grafið hafði verið í öðrum enda
leiðisins og lágu moldarhrúgur við
leiðið. Er þeir gættu betur að sáu
þeir spor í moldinni eftir stígvél og
mátti sjá að þau höfðu verið slitin.
Mældu þeir sporin vandlega og tóku
ljósmyndir af þeim.
Grunur féll nú á ungan mann,
Árna Byron Sigurðsson.
Var gerð húsleit á heimili hans,
fundust þar moldug gúmmístígvél og
kom stærð þeirra heim við mæling-
ar þær, sem gerðar voru við gröf-
ina i kirkjugarðinum. — Játaði
Árni Byron að hafa þá um morg-
uninn, kl. um 7, farið upp í kirkju-
garð og hafi hann ætlað sér að grafa
upp lík Halldórs heitins læknis og
“vekja hann til lífsins.” Hafði
hann tekið með sér reku og byrjað
að grafa upp gröfina, en sú reka
var ekki i lagi og fór hann þá aftur
niður í bæinn og tók þá reku úr
kjallara í húsi Ólafs Lárussonar
læknis.
Honum tókst þó ekki að grafa
upp gröfina, því steinhella er steypt
yfir kistuna og varð hann að hætta
við svo búið að sinni. Þó kvaðst
hann hafa ákveðið að fara aftur
næstu nótt með sleggju til að brjóta
helluna og ná líkinu.
Sem ástæðu fyrir þessu einkenni-
lega athæfi, segir hann vera að hann
sé meðl. í trúarflokki sem nefni sig
Hvítasunnusöfnuð, og sé trú þeirra
að hægt sé að lífga menn frá dauð-
um ef ekki sé liðin meir en 120 ár
frá fæðingu þeirra.
Eftir yfirheyrsluna var Árni
Byron Sigurðsson úrskurðaður í
gæsluvarðhald og siðan. var hann
fluttur hingað til Reykjavíkur og
settur á Nýja Klepp til athugunar.
Mbl. 2. apríl.
Anægjuleg samkoma
Hátíðlegar voru páska-samkom-
urnar í Fyrstu lútersku kirkju, en
nýstárlegust sú, er haldin var á ann.
an í páskum, að kvöldinu til.
Fyrir þeiri samkomu gekst Ung-
mennafélag safnaðarins. Var það
söngleikur út af páskasögunni,
Easter Cantata, eftir A. Monestel.
Um sjötíu manns voru í söng-
flokknum, alt ungt fólk nema sumir
sólóistanna. Aðal-sólóistar voru
þau frú Sigríður Olson (hlutverk
Maríu) og George Douglas (hlut-
verk Jesú). Voru þau hlutverk bæði
vel af hendi leyst og var einkutn
söngur frú Sigriðar dásamlegur.
Aðrir Sólóistar voru frú Unnur
Simmons, Thor Johnson og Roy
Aikenhead. \
Hljóðfæraflokkur lék undir. Var
ungfrú Eleanor Henrickson við
slaghörpuna en Pálmi Pálmason og
hans félagar við önnur hljóðfæri.
Söngstjórn alla hafði frú B. Violet
ísfeld. Hafði hún æft flokkinn af
mikilli alúð og með svo góðum á-
rangri, að undrun sætir. Er ekki
ofsagt, að aðdáun vakti sá heilög
hrifning, sem lýsti sér í kórsöngn-
um. Var augljóst að frúnni hafði
auðnast að vekja sálir unga fólksins
til lofgerðar um dásemdir Drottins.
En það mun hámark helgrar listar
að—sálin syngi.
Samkoman var afar f jölmenn, og
leyndist ekki, hve mannfjöldinn gaf
sig allan á vald söngsins.
Látin var sú ósk í ljós á samkom-
unni að svipaðir söngleikir yrðu hér
eftir ætíð haldnir í Fyrstu lútersku
kirkju á annan í páskum. ,
Mr. John Anderson sveitarráðs-
maður frá St. Andrews, Man., er
staddur í borginni um þessar mund-
ir.
Úr borg og bygð
G. T. stúkan Skuld heldur al-
menna skemtisamkomu fimtudaginn
20. rn'ai n. k. Skemtiskrá auglýst í
næstu blöðum. Aðgangur ókeypis.
—Nefndin.
Jón Bjarnason Academy — Gjafir:
Dr. P. H. T. Thorláksson,
Winnipeg .................$50.00
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðar,
Cypress River, Man....... 5.00
Mrs. Lilja Alfred, Langruth 1.00
Mrs. H. Sigurdson, Árnes .. 5-°°
Mr. Ófeigur Sigurdson,
Red Deer, Alta............. 5.00
Mr. Hinrik Johnson, Ebor .. 2.00
Mr. S. Sigurjónsson, Brandon 1.00
Mr. John Hannesson, Svold 3.00
Mrs. Steinunn Stefánsson,
Árborg, Man............... 5.00
Mr. S. Sölvason, Westbourne 3.00
Mr. B. Ingimundson,
Langruth, Man............. 2.00
Mrs. Margrét Kjartanson,
Amaranth, Man............. 2.00
Mrs. S. Severson, Grafton .. 5.00
Fyrir þessar gjafir vottar skóla-
ráðið hér með vinsamlegt þakklæti.
N. W. Melsted,
gjaldkeri skólans.
673 Bannatyne Ave., Wpg.
Látið ekki hjá líða að f jölmenna á
sumarfagnað þann, sem kvenfélag
Fyrsta lúterska safnaðar efnir til í
Fyrstu lútersku kirkju á fimtudags-
kveldið þann 25. þ. m.
Blaðið Winnipeg Free Press get-
ur þess i fréttadálkum sínum þann
20. þ. m., að Dr. Vilhjálmur Stefáns.
son hafi í ræðu daginn áður í Pitts-
burgh, staðhæft að írar hafi fund-
ið Ameriku frá sex til sjö öldum
áður en Columbus þar þar að landi.
Mintist Dr. Stefánsson og í ræðu
sinni á bókfell, ritað af írskum
munki 820, þar sem lýst væri land-
námi íra á íslandi um þær mundir,
jafnframt því sem heimildir væri í
skjalasafni páfa, er leiddu í ljós, að
páfi hefði gert Grænland að bisk-
upsdæmi árið 1126. Að því er frétt
þessi hermir, lét Dr. Stefánsson svo
ummælt að Columhus hefði fundið
Vestur-Indlandseyjar manna fyrst-
ur.
Mr. Jón Halldórsson frá Lund-
ar, kom til borgarinnar á mánudag-
inn með Oscar son sinn til lækn-
inga.
Mr. Arinbjörn S. Bardal, útfarar.
stjóri, átti 69 ára afmæli síðastlið-
inn mánudag. Er hann fæddur í
Svartárkoti í Bárðardal þann 22.
apríl 1866. Mr. Bardal er langtum
yngri og sprækari en alment gerist
um menn á þeim aldri, og fullur af
æskugáska. Lögberg óskar honum
alls velfarnaðar í tilefni af afmæl-
inu.
Skáldkonan Laura Goodman
Salverson, er stödd í borginni um
þessar mundir í gistivináttu Mrs.
H. J. Lindal, 912 Jessie Ave.
Mrs. Jón Skúlason frá Geysir,
Man., kom hingað til borgarinnar til
þess að leita sjr lækninga síðastlið-
inn mánudag.
Bjart og rúmgott herbergi fæst til
leigu nú þegar að 591 Sherburn St.,
milli Portage og St. Matthews. Upp-
lýsingar á staðnum. Sími 35 909.
Jón Bjarnason Ladies’ Guild will
hold a dance on Friday Evening,
April 2Óth, at 8.45, in the School,
Home St.—Refreshments will be
served.
MALVERK AF pINGVÖLLUM
Eftir listmftlarann víðkunna Emile Walters.