Lögberg - 09.05.1935, Blaðsíða 1

Lögberg - 09.05.1935, Blaðsíða 1
48. ARGANGUR WINNIPEG, MAN„ FIMTUDAGINN 9. MAÍ 1935 AFSTAÐAN GAGNVART ÞÝZKALANDI Ríkisátjórnar afmælið Úr borg og bygð SíÖástliðinn fimtudag bar víg- varnarrá'Östafanir þjóÖverja mjög á góma i lávarÖadeild brezka þings- ins. Kvað þar nokkuð við annan \tón, en í þeim ræðum, er Ramsay MacDonald hafði þá nýverið flutt í þessu sambandi. Voru það einkum þeir Esher vísigreifi og Lothian lá- varður, er héldu uppi svörum fyrir þýzku stjórnina og afstöðu hennar. Fór hinn síðarnefndi hörðum orðum um Versalasamningana og taldi þangað mega rekja beint ráðstafanir þær til vigbúnaðar, er nú væru efst á baugi með Þjóðverjum. Taldi hann óhjákvæmilegt að samning- arnir í heild sinni yrði teknir til end- urskoðunar, og þá ekki sízt það á- kvæði þeirra, er svifti Þjóðverja ný- lendum sínum. AUKIN ÚTGJÖLD TIL LOFTFLOTA Samkvæmt fregnum frá London þann 4. þ. m., er fullyrt að brezka stjórnin hafi ákveðið að láta smíða sex hundruð loftför til vígvarna, og er kostnaðurinn, sem slíkt hefir í för með sér, metinn á eitt hundrað og sextíu miljónir dala. Til þessa kvað vera stofnað með það fyrir augum, að loftflota styrkur Breta komi að minsta kosti við jafns við þýzka loftflotann. 1 Mr. Einar Einarsson frá La- Riviere, Man., kom til borgarinnar á miðvikudaginn á leið til Bowsman River, þar sem hann hygst að setj- ast að. Mrs. G. F. Gíslason fór suður til Brown', Man., síðastliðinn laugar- lag i kynnisför. Samferða henni varð Miss R. Ólafsson þaðan úr bygðinni. Jón Bjarnason Academy — Gjafir: Chr. Ólafsson, Winnipeg. .. .$25.00 Kvenfél. Árdalssafnaðar, Arborg, Man.............. 10.00 Mrs. Tbos. Freeman, Cavalier, N. D............ 1.00 Th. Eyford, Riverton, Man. 1.00 Aðalmundur Guðmundsson, Gardar, N. Dak............ 1.00 Mrs. Elín Thirdrikson, Sandy Hoolc, Man. (í minningu um ástkæra fósturdóttur, Enu Jóhannsson, sem var fyrver- andi nemandi skólans, d. 19. apr. 1935)................ 5-oo Thorsteinn Thorsteinsson, Beresford, Man. (pr. S. Sigurjónsson) ............ 1.00 í umboði skólaráðsins votta eg hér með vinsamlegt alúðarþakklæti fyrir þessar gjafir. Hans hátign Georg Bretakonungur og María drotning. Hið volduga, brezka heimsveldi, hélt hátíðlegt f jórðungsaldar rikisstjórnar afmæli konungs síðastliðinn mánudag. Var hátið- arhaldið lífrænn vottur um ást þá og virðingu, er konungurinn og fjölskylda hans i hvarvetna nýtur. Stórfenglegir viðburðir hafa gerst í ríkisstjórnartíð Georgs konungs, svo sem heimsstyrjöldin mikla frá 1914. Keisurum hefir hrundið verið af stóli, veldi liðast í sundur og öðrum nýjum skotið upp. En þrátt fyrir alt, hafa allar þessar bvltingar stuðlað að treysting þeirra tengsla, er knýta saman þær þjóðir, er brezku veldisheildina mynda. í þessu hefir konungurinn verið lífið og sálin, konungurinn, mannúðarmaðurinn og mannvinurinn mikli. Á þessum merku tímamótum í lifi hans streyma til hans og hinnar konunglegu fjölskyldu, hollustu óskir frá miljónum þeim hinum mörgu, er fagna yfir því að lúta honum sem þjóðhöfðingja. SEGIR AÐ LIKINDUM AF SÉR Liklegt þykir að Hon. Howard Ferguson, umboðsmaður Canada í London, láti af embætti áður en langt um líður.' Fylgir það sögunni, að heilsubilun muni þess valdandi. Getið er þess til að sendiherra Canada-stjórnar i Washington, Hon. W. D. Herridge, tengdabróðir Bennetts forsætisráðgjafa, muni taka við af Mr. Ferguson. STOFNANDI SKATA- IIREYFINGARINN AR KEMUR TIL WINNIPEG Síðastliðinn fimtudag kom hing- að til borgarinnar, ásamt frú sinni, lávarður Baden-Powell, stofandi skátahreyfingarinnar brezku. Var þeim fagnað á járnbrautarstöðinni af Tupper fylkisstjóra, Bracken forsætisráðgjafa og öðru stórmenni. Hafa hjón þessi öðlast heimsfrægð fyrir afskifti sín af máli þessu; hann sem stofnandi og núverandi yfirskáti, en frúin, sem forseti kvenskáta samtakanna. STÓRTJÓN A TYRKLANDI Þann 1. þ. m., urðu tilfinnanleg spjöll hér og þar á Tyrklandi af völdum landskjálfta. Fimtán smá- þorp hrundu til grunna og yfir tvö- hundruð manns týndu lífi, auk þess sem hátt á sjötta hundrað manna sættu meiri og minni meiðslum að því er símfregnir herma. MYRKSÝNN A FRAMTÍÐINA Rt. Hon. Arthur Meighen, fyrrum forsætisráðgjafi, flutti í vikunni sem leið ræðu í borginni London í On- tario-fylki, er dró upp næsta dökkar myndir af viðhorfi hinna ýmsu þjóða til friðarmálanna. Af mörgu skuggalegu, kvað Mr. Meighen þó skuggalegast umhorfs í Norðurálf- unni og Austurlöndum; væri helzt ekki annað fyrirsjáanlegt en harm- sagan mikla frá 1914, hlyti að end- urtaka sig; þegar alt kæmi til alls, væri það ótrúlega lítið, sem mann- kynið hefði lært i reynsluskóla styrjaldarinnar miklu. SPAIR STÓRKOSTLEGUM SIGRI Mr. Hepburn, forsætisráðgjafi í Ontario, tjáist ekki vera í miklum vafa um úrslit næstu sambands- kosninga. Komst hann nýverið þannig að orði: “Eg er ekki í miklum vafa um úr- slit sambandskosninganna; þær geta ekki farið nema á einn veg. Frjáls- lyndi flokkurinn, undir forustu Mr. Mackenzie King, vinnur þann stærsta kosningasigur, sem nokkuru sinni hefir unninn verið í þessu landi. Hin eina bjargarvon aftur- haldsmanna hlyti að liggja í því, að fá klofið frjálslynda flokkinn svo um munaði. Slíku verður samt sem áður ekki að heilsa. Þegar kjós- endur hafa sett sér að koma stjórn fyrir kattarnef, þá gera þeir það eftirminnilega. Við höfum dæmin fyrir okkur um úrslit fylkiskosning- anna í júní 1934. Kjósendur láta ekki blekkja sig hvað ofan í annað.” FRA JUGO-SLAVIU Almennar kosningar til þjóðþings- ins í Júgó-Slavíu fóru fram síðast- liðinn sunnudag. Lauk þeim með stórkostlegum sigri fyrir flokk þann, er Bogolyub Yevitch núver- andi forsætisráðgjafi styðst við; hlaut stjórnarflokkurinn 300 þing- sæti af 368 í neðri málstofunni. MEDALIUM ÚTBÝTT Tíu þúsund menn og konur í 1 Canada, hafa hlotið viðurkenningar medalíu í tilefni af aldarfjórðungs ríkisstjórnar afmæli Georgs Breta- konungs. HÖFÐINGLEG GJÖF Senator James Couzen frá Michi- gan, hefir nýverið bætt tveim milj- ónum dala við sjóð þann til styrktar umkomulausum börnum, er hann stofnaði árið 1929, með 10 miljón dala höfuðstól. Þó sjóður þessi sé einkum og sérilagi helgaður velferð barna í Michiganríkinu, þá má verja úr honum, samkvæmt skipulags- skrá nokkrum fjárhæðum til barna- verndar hvar í heimi sem er, þegar svo býður við að horfa. Senator Couzen er ættaður frá Chatham í Ontario, en fluttist ungur til Banda- ríkjanna. FRÆGIR STJÓRNMÁLA- MENN DÆMDIR TIL DAUÐA Síðastliðinn sunnudag, gerðust þau tíðindi i Aþenuborg, að tveir af frægustu st j órnmálamönnum hinnar grísku þjóðar, þeir Venizelos fyrrum forsætisráðgjafi og Nicholas Plastiras herforingi, voru dæmdir til dauða í herrétti, fyrir það að hafa átt upptök að síðustu tilraun til stjórnarbyltingar á Grikklandi. Báð- ir þessir menn höfðu flúið land og sagðir að dvelja í Afríku. Sak- sóknari hins opinbera lét svo um mælt, að Venizelos væri einn sá háskalegasti tækifærissinni, er uppi hefði verið með hinni grísku þjóð á seinni öldum; maður, er ávalt hefði verið vakinn og sofinn i því að skara eldi að köku sinni á al- þjóðarkostnað. S. W. Melsted, gjaldkeri skólans. 673 Bannatyne Ave., Wpeg. Á næstkomandi sunnudag, kl. 3 síðdegis fer fram helgiathöfn ásamt sýningu, er táknar hina ýmsu þjóð- flolcka hér með oss. Athöfn þessi verður haldin í Winnipeg Audito- rium, og er helguð mæðrunum og mæðradeginum. Gefst fólki þar kostur á að hlýða á margvíslegan hljóðfæraslátt og söng. Ræður flytja Rev. W. Gordon McLean og Mrs. W. J. Lindal. Mrs. B. S. Benson kemur fram á sjónarsviðið fyrir hönd íslendinga í íslenzkum skautbúningi. Karlakór íslendinga í Winnipeg heldur söngsamkomu í Hnausa Hall á þriðjudagskvöldið þann 21. þ. m., kl. 8.45. Þetta er í fyrsta sinn sem karlakórinn syngur á Hnausum, og má vafalaust búast við fjölmenni. Dans verður á eftir. Nánar í næsta blaði. VEITIÐ ATHYGLI- Nemendasamband Jóns Bjarna- sonar skóla heldur samkomu í Good- templarahúsinu á miðvikudagskveld- ið þann 15. þ. m., kl. 8.30. Verður þar meðal annars sýndur stuttur gamanleikur, er Mr. Moray Sinclair, sá, er nýverið hlaut 1. verðlaun í hinni dramatísku samkepni, er fram fór i Ottawa,'\ekur þátt i. Margt fleira verður þar til skemtana, er enginn má án vera. Dans á eftir. Aðgangur 35C. Fyllið húsið þetta kveld! MORAY SINCLAIR NÚMER 19 First Lutheran Church MOTHER’S DAY, MAY 12TH Tn the morning at 11 o’clook tliere will be a special service for Family Worship. Fathers and mothers, together with their children, are asked to attend, each family occupying a pew together. Same applies to brothers and sisters and close relatives. This is to be a Family Day and a Family Worship. T Fréttir frá Betel Þann 17. marz s. 1. hafði Betel sérstaklega góða heiinsókn. Heim- sækjandinn var Miss^Rósa Her- mannsson, söngkonan góðfræga. Söng hún fyrst nokkura valda ein- söngva, en lét síðan alt gamla fólkið syngja með sér, en var sjálf sem forsöngvari. Þótti þetta alt hin bezta skemtun. Mun heimsókn Miss Plermannson lengi i minnum höfð sökum ánægju þeirrar, er hún vakti með hinum listfenga og ágæta söng sínum.— Önntir heimsókn var að Betel þ. 18. apríl s. 1., á skírdag. Þann dag, árhvert, koma konurnar úr Minerva- bygð, suðvestur af Gimli. Hvorki hríðarveður né rigning hefir enn hamlað för þeirra, Þetta var þeirra fimtánda heimsókn. Veizlukost höfðu þær með sér, að venju, og var veitt með þeim mynd- arbrag, er íslenzkar konur kunna svo vel. Sunginn var sálmurinn “Ó þá náð að eiga Jesúm,” og að því búnu flutti Guðmundur Fjeldsted, fyrr- um þingmaður, fallega tölu fyrir hönd kvenfélagsins. Mrs. C. O. L. Chiswell, er konur höfðu boðið á mótið, skemti með upplestri.— Fyrir heimsóknina þakkaði Mar- grét Vigfússon. Mun forstöðukon- an hafa gefið henni það hlutverk. fórst henni það vel í alla staði. Var síðan skemt með glymjandi söng, er allir tóku þátt í. Sungnir valdir íslenzkir söngvar, eins og venjulega er gert við slíkar heim- sóknir. Lárus Árnason orti kvæði. Hafði honum komið það til hugar í seinna lagi, svo ekki var til nema fyrsta er- indið þá er konurnar komu. En brátt kom skáldandinn yfir Lárus aftur og lauk hann þá við kvæðið. Það er á þessa leið: “í fimtánda sinni þið sækið oss heim, með samhug og kærleik og trygðir. Ósk vor og bæn er að Guð ykkur geym’, og Guðs blessan krýn’ ykkar bygðir. Vorið er komið með sumar og sól, og suðrænu vindana hlýju; alt fer að grænka um grundir og hól, —já, Guðs blessan streymir að nýju. Þökk fyrir gleðina, gestir, í dag, þeir gleymast ei samfundir slíkir. Gott er að heyra þann gleðinnar brag, er góðmenska’ í hásæti ríkir.” Nokkur hópur af vistfólki fékk frýjan aðgang að leiknum “Maður og kona,” er hann var leikinn hér fyrir skemstu, og höfðu hina beztu skemtun. Sömuleiðis var hópur af vistfólki gestir lestrarfélagsins hér i bænum, er það hafði nýlega sam- komu. Af nafnkendum mönnum lengra að, er heimsótt hafa Betel nýlega, má nefna séra Jakob Jónsson, er heilsaði upp á heimilisfólk um leið og hann kom að flytja erindi á sam- komu lestrarfélagsins. Hefir gamla fólkið æfinlega ánægju af slíkum heldri manna heimsóknum. Almenn vellíðan er nú á heimil- inu, að því er frekast má vænta, þar sem hrumir og gamlir eru saman- komnir.—(Fréttaritari Lögb.). ISLEXDINGAR SÆMDIR AF KONUNGI 1 tilefni af fjórðungsaldar rikis- stjórnarafmæli hans hátignar Georgs Bretakonungs, hafa eftirgreindir ís- lendingar verið sæmdir heiðurs- medalíu: Dr. B. J. Brandson, prófessor; Mr. Einar S. Jónasson, þingmaður Gimli kjördæmis; Mr. Skúli Sig- fússon, þingmaður St. George kjör- dæmis; Miss Inga Johnson, for- stöðukona elliheimilisins Betel; Miss Salome Halldórsson, yfirkennari við Jón Bjarnason Academy. UNGM ENNAÞIN GIÐ Ungmennaþing eru algeng i öll- um kirkjufélögum nema okkar. Með þinginu 24. maí erum við þvi, eftir nokkurra ára svefnmók, að stíga framfaraspor. Það mun ekki ósatt að ungmenni okkar ýrnsu safnaða þekkist alls ekki, og haldi slíkt á- fram mun árangurinn verða sá að söfnuðir okkar leysast upp, af þvi að þeir yngri hafa ekki lært að starfa saman og skilja hverjir aðra, og því, er þeir fylla skörð þeirra, er vegna aldurs hníga og láta fé- lagsstörf á yngri herðar, þá sjá þeir alls ekki hversvegna íslenzkir söfn- uðir séu að hafa sérstakt félagsstarf, en sameinast ekki canadiskum kirkj. um. Látum okkur mætast í Winnipeg 24. maí og mynda fóstbræðralag. E. H. Fáfnis. Úr borg og bygð Hr. Jónas Kristjánsson héraðs- læknir á Sauðárkróki, er fyrir skömmu kominn til New York, til þess að kynna sér lækningar, sem gerðar eru með breytilegum fæðu- tegundum, eða mataræðisreglum. Var hann staddur í borginni East Aurora þann 2. þ. m., við stofnun þá, er Sun Diet Sanatorium nefn- ist. Frétt þessa fékk Lögberg frá bera Gretti L. Jóhannssyni, er lof- aði ritstjóra blaðsins að lesa bréf frá lækninum. Jónas Kristjánsson er einn af hinum mestu ágætis- mönnum í íslenzkri læknastétt og þyrstur eftir auknum fróðleik, þó farinn sé hann að komast á efri ár. Hann er bróðir Guðmundar Christie leikhússtjóra hér í borg- inni. Mr. og Mrs. Kári Bardal frá Toronto, komu h'ingað bílleiðis í vikunni sem leið í heimsókn til ætt- ingja og vina. Mr. B. J. Lifman, sveitaroddviti í Bifröst, var staddur í borginni seinni part fyrri viku. Mr. Davið Guðmundsson frá Ár- borg, kom til borgarinnar um miðja vikuna sem leið.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.