Lögberg - 23.05.1935, Qupperneq 1
48. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 23. MAÍ 1935
NÚMER 21
PRÓFESSOR SVEINBJÖRN JOHNSON
Hinn mikilsvirti og ágæti íslendingur, Sveinbjörn Johnson, '
prófessor í lögum við rikisháskólann í Illinois, og fyrrum dómari
í hæztarétti North Dakota ríkis, hefir orðið fyrir þeirri miklu
sæmd, að vera til þess valinn af Roosevelt forseta, að takast á
hendur yfirumsjón með úthlutan alls þess fjár, er Illinois-ríki
fellur í skaut i hlutfalli við önnur ríki af þeirri $4,800,000,000 f jár_
hæð er þjóðþingið í Washington hefir afgreitt, samkvæmt kröf-
um forseta, atvinnulífi þjóðarinnar til viðreisnar, sem Director
of the National Emergency Council for the State of Illinois. Verð-
ur prófessor Sveinbjörn milligöngumaður milli stjórnar Illinois-
ríkis og sambandsstj órnarinnar í Washington. Líklegt þykir að
fé það, er Washingtonstjórn leggur Illinois-ríki til með þessum
hætti, nemi alt að þrjú hundruð miljónum dala. Allar uppástung-
ur um fjárframlög úr þessum alþjóðar viðreisnarsjóði Illinois-
ríki til handa, verða að öðlast fullkomin meðmæli prófessor Svein-
björns, áður þau verða tekin til íhugunar og afgreiðslu af sam-
bandsstjórn.—
Ofanskráðar upplýsingar bárust Dr. Birni B. Jónssyni bréf-
lega í hendur, og sýndi hann Lögbergi þann góðvilja að leyfa því
að verða þeirra aðnjótandi. Nýkomin Bandarikjablöð flytja einn.
ig þessa frétt.
Prófessor Sveinbjörn Johnson er með allra ágætustu Vestur-
íslendingum, og maklegur í hvívetna þeirrar stórsæmdar, er hon-
um hefir með þessu í skaut fallið. Hann var, sem kunnugt er, einn
þeirra, er fyrir hönd Bandaríkjastjórnar, heimsótti ísland í tilefni
af Alþingishátíðinni 1930.
Virðulegt samsæti
I heiðursskyni við Jónas Krist-
jánsson lækni frá Sauðárkrók, er
hingað kom snöggva ferð fyrir síð-
ustu helgi, stofnuðu þau Guðmund-
ur leikhússtjóri Christie bróðir hans
og frú Christie til veglegs kveðju-
samsætis á Marlborough hótelinu
síðastliðið þriðjudagskvöld og buðu
þangað þrjátíu og tveim gestum.
Var þetta stórveizla og hin ánægju-
legasta í alla staði.
Dr. Rögnvaldur Pétursson stjórn-
aði samkvæminu og flutti allítar-
lega ræðu. Þeir aðrir gestir, er til
máls tóku, voru Gísli Johnson, Dr...
Bi. J. Brandson, frú Guðrún John-
son, Dr. M. B. Halldórsson, Dr.
Sig. Júl. Jóhannesson, Friðrik
Sveinsson, Einar P. Jónsson, Sof-
fonías Thorkelsson, Árni Eggerts-
son og frú Sigríður Sveinsson.
Sungið var mikið af íslenzkum
þjóðsöngvum undir stjórn frú Guð-
rúnar Helgason. Heiðursgesturinn
þakkaði samsætið með fögrum og
hlýjum orðum, auk þess sem bróðir
hans og tengdasystir þökkuðu gest-
unum fyrir komuna og sagðist ágæt.
lega.
Jónas læknir Kristjánsson er einn
af ágætustu og fjölhæfustu mönn-
um hinnar islenzku þjóðar; eigi að-
eins á sviði læknavísindanna, heldur
og á öðrum sviðum mannlegra at-
hafna. Hann lagði af stað heim á
leið á miðvikudagsmorguninn, og
fylgdi Guðmundur bróðir hans hon-
um til Minneapolis. Þetta var i
þriðja sinn, sem Jónas læknir kom
til Winnipeg, og verður vonandi
ekki í síðasta skiftið.
SKIPAÐUR ÓPERUSTJÓRI
Tenórsöngvarinn canadiski, Ed-
ward Johnson, hefir verið skipaður
framkvæmdarstjóri Metropolitan
óperunnar í New York, sem eftir-
maður Herberts Witherspoon, er
lézt þann 10. þessa mánaðar. Ed-
ward Johnson er fæddur í bænum
Guelph í Ontario fylki, hefir lengi
dvalið í Bandaríkjunum, og er tal-
inn með beztu tenórsöngvum á
meginlandi Norður-Ameríku.
SÆMD DOKTORS-
NAFNRÓT
Miss E. Cora Hind, sú er um
langt skeið hefir annast um búnað-
armála ritstjórn blaðsins VVinnipeg
Free Press, hefir verið sæmd
doktorsnafnbót í lögum af háskóla
Manitobafylkis. Hefir Miss Hind
aflað sér frábærra vinsælda í stöðu
sinni. ______________
FJÖLSÓTTUR LIBERAL
FUNDUR
Á föstudagskvöldið var, kom
satnan margt manna, þeirra, er
frjálslynda flokknum fylgja að
málum á Royal Alexandra hótelinu,
til þess að hlusta á f jóra þingmenn
flokksins í Sambandsþinginu, er
voru á leið til Ottawa. Voru það
þeir Hon. Charles Stewart, fyrrum
innanríkisráðgjafi; John Vallance,
Onward, Eask.; G. W. McPhee,
Yorkton, og Dr. J. P. Howden, St.
Bbniface. All-hvasyrtir voru ræðu.
menn í garð Bennett-stjórnarinnar;
einkum þó og sérílagi í sambandi
við tollmálin og úrræðaleysi hennar
gagnvart atvinnuleysinu. Spáðu þeir
því, að þunnskipaðar yrði fylkingar
Mr. Bennetts að afstöðnum kosn-
ingum.
STJÓRNARLÁN HEIMA
FYRIR
Á viðvikudaginn þann 15. þ. m.,
lágu frammi listar til áskriftar fyrir
$60,000,000 láni, er sambands-
stjórn hafði ákveðið að taka til end-
urgreiðslu á gömlum lánum, sem
voru í þann veginn að falla í gjald-
daga. Um kvöldið höfðu fjármála-
ráðuneytinu borist fleiri umsóknir,
en hægt var að fullnægja. Tuttugu
miljónir láns þessa eru i átta ára
ríkisskulda bréfum, en fjórutíu
miljónir í tuttugu ára samskonar
tryggingum.
IIARLA SKIFTAR
SKOÐANIR
Fyrir skömmu fór Roosevelt for-
seti fram á það við þjóðþingið í
Washington, að starfstímabil hinnar
svonefndu viðreisnar löggjafar,
National Recovery Act, yrði fram-
lengt til tveggja ára. Efri málstof-
an var með öllu ófáanleg til þess að
verða við þessari kröfu forseta, en
ákvað í þess stað að framlengja líf
téðrar löggjafar um tíu mánaða
skeið. Nú hafa málsvarar stjórn-
arinnar í neðri málstofunni lýst yfir
því, að annaðhvort skuli forseti fá
að öllu framgengt vilja sinum, eða
þá að löggjafarbákn þetta fái að
deyja “náttúrlegum dauða,” þann 16.
júni næstkomandi, með því að
fyrsta reynslustig þess er runnið
út.
SENATOR JOHN LEWIS
%LATINN
Siðastliðinn laugardagsmorgun
lézt að heimili sínu í Toronto,
Senator John Lewis, 77 ára að
aldri. Stundaði hann um langt skeið
blaðamensku og þótti einn hinna á-
hrifamestu blaðamanna hinnar
canadisku þjóðar, bæði sem ritstjóri
við Toronto Globe og Toronto Star.
Stóð hann framarla í fylkingu
frjálslynda flokksins og var skip-
aður Senator árið 1925.
FJÓRIR NAZISTAR
NAÐAÐIR
Forsetinn í Lithaugalandi, An-
tanas Smetona, hefir náðað fjóra
Nazista, sem dæmdir höfðu verið til
dáuða fyrir samsæri, er að þvi laut,
að koma Ketnel landsvæðunum
undir Þýzkaland á ný.
ÞJÓÐVERJAR IIERVÆÐ-
AST FYRIR BREZKA
PENINGA
Blaðið Financial Times, sem
gefið er út í Lundúnum, kemst
þannig að orði þann 20. þ. m.:
“Sé yður ant um að fá vitneskju
um það, hvernig því er háttað, að
gjaldþrota þjóð, eins og Þýzkaland
sé í óða önn að hervæðast, þá verð-
ur sá gáta ekki leyst í Berlín, heldur
hér á staðnum. Englands banki er
nú að undirbúa lán handa Þjóðverj.
um, sambærilegt við 750,000 sterl-
ingspunda lánið, sem Montague
Norman afhenti Dr. Schacht í síð-
astliðnum desember. Fyrir þá upp-
hæð keypti þýzka stjórnin nikkel,
járn, aluminum, olíu og togleður.
Sé Hitlerisminn háskalegur, þá er
hinn brezki kapítalismi það ekki
síður, eða brezkir peningar, er til
þess er varið að hervæði Þjóð-
verja.”
HVAÐ ELSKAR SÉR LlKT
Heimskingjar margir hópast saman,
hefir þar hver af öðrum gaman.
Eftir því sem þeir eru fleiri,
eftir því verður heimskan meiri.
K. N.
Frá Islandi
Stórgjöf til björgunarskútu við
Faxaflóa. I dag afhenti hr. borgar-
ritari Tómas Jónsson Slysavarna-
félagi Islands kr. 500.00 — fimm
hundruð krónur — að gjöf til björg-
unarskútunnar við Faxaflóa. Gjöf-
in er gefin af borgarritaranum og
systur hans Ragnheiði, í minningu
um foreldrar þeirra Jón Tómasson
og Kristínu Magnúsdóttur, er
bjuggu hér í svokölluðu Jónshúsi á
Grímsstaðaholti síðan nokkru fyrir
aldamót. Gjöfin er afhent á 78.
afmælisdegi föður systkinanna. —
Jón Tómasson var hinn mesti öðl-
ingsmaður vel þektur af öllum
Reykvíkingum allan þann tíma er
hann bjó hér í bænum, hann stund-
aði sjóróðra og var formaður í tugi
ára. en það eru þessir menn, sem
bezt hafa skilið aðbúnað sjómanna
yfir höfuð. Þeir menn, er hafa
stundað sjó við Faxaflóa árum sam.
an á opnum bátum hafa margir
komist í hann krappan, sem kallað
er.—Það er vel, þegar maður eins
og Tómas borgarritari, ungur
mentamaður, sem aldrei hefir
stundað sjó, setur sig svo inn í kjör
sjómanna, að hann og þau systkin-
in heiðra minningu foreldra sinna á
þann hátt, sem miðar að því að bæta
aðbúnað, og draga úr hættum sjó-
manna. — Um leið og eg kvitta
hér með fyrir þessa göfugu og eft-
irbreytnisverðu gjöf, færi eg gef-
endunum hjartans þakkir félags
vors.
F. h. Slysavarnarfélags Islands,
« Þorst. Þorsteinsson.
Jón Bjarnason Academy—Gjafir:
Kristján Einarsson, Gimli . .$10.00
Mrs. Helga Sumarliðason,
Seattle, Wash............. 5.00
Kvenfél. Herðubreiðarsafn.,
(pr. Mrs. L- Thorleifson)
Langruth, Man............. 5.00
John Gíslason, Gimli ........ 2.00
Mrs. Gu$rún Helgason,
Langruth, Man............. 1.00
í umboði skólaráðsins votta eg
hér með vinsamlegt þakklæti fyrir
þessar gjafir.
Á. W. M’elsted,
673 Bannatyne Ave.
Winnipeg, Man.
FRÚ JAKOBINA JOHNSON
SKALDKONA
Eins og Vestur-íslendingum er
kunnugt, hefir íslenzká þjóðin boð-
ið frú Jakobínu heim til sumardval-
ar. Er hún þessarar viðurkenningar
fyrir löngu makleg, sakir nytsams
og fjölþætts bókmentastarfs. Fagna
hinir mörgu vinir hennar yfir heim-
boðinu og árna henni fararheilla;
er frú Jakobínu von hingað á sunnu-
dagskvöldið kemur.
Frú Jakobína er fædd þann 24.
dag nóvembermán. 1883, að Hólma-
vaði í Aðalreykjadal í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Voru foreldrar hennar
þau Sigurbjörn Jóhannsson skáld
frá Fótaskinni og María Jónsdóttir.
Fluttist Jakobína hingað til lands
árið 1889 með foreldrum sínum og
ólst upp i Argylebygð Hún giftist
um haustið 1903 ísaki Jónssyni
húsagerðarmeistara frá Háreksstöð-
um í Jökuldalshreppi og eiga þau
sjö börn. Eftir Jakobínu liggur
mikið bókmentastarf, sem hún von-
andi á þó eftir að auka allmikið við.
Eru frumsamin kvæði hennar mörg
hver ágæt og þýðingar hennar af
íslenzkum ljóðum á enska tungu þær
langvönduðustu, er þjóð vor enn
hefir eignast.
MISS JANE ADDAMS LÁTIN
Á þriðjudaginn var, lézt i Chi-
cagoborg, Miss Jane Addams, fræg
um víða veröld fyrir starfsemi sína
í þágu friðar- og mannúðarmálamþi.
Hafði hún verið sæmd friðarverð-
launum Nóbels. Miss Addams var
því nær hálf-áttræð að aldri.
Or borg og bygð
Frá Gimli, 20. maí 1935
Herra ritstjóri:
I gærkveldi vorum við um tólf
manns samankomið á indælu heim-
ili ágætra hjóna hér í bænum, til að
hlusta á útvarpið frá Fyrstu ís-
lenzku lútersku kirkjunni í Winni-
peg. Ræðan fanst oss meistaralega
samin og söngurinn ljómandi. Sér-
staklega varð sá er þessar línur
skrifar hrifinn af sönglagi Mr.
Hall; þar er manni gefið tækifæri
að heyra hina fögru millirödd
(contralto), sem oftast verður út
undan i kórsöng. Svo eftir að hafa
nært sálu og líkama, þá fór hver
heim til sin, ánægðari eftir en áður.
Með auknum bróðurkærleika og
þakklæti fyrir útvarpið, með góðri
von um að heyra annað í nálægri
framtíð,
G. B. Ingimundsson.
Mr. Ármann Björnsson skáld frá
Winnipegosis, Man., dvaldi í borg-
inni nokkra daga i vikunni sem leið.
Hann hélt heim á föstudaginn.
Mr. H. C. J. Brand, sonur Mr. og
Mrs. Thor Brand, Ste. 5 Camelot
Apts., hér í borginni og Mr. J. A.
Blöndal, sonur Mr. og Mrs. Ásgeir
Blöndal, lögðu af stað áleiðis til Is-
lands á mánudaginn í vikunni sem
leið. Gerðu þeir ráð fyrir að fara
til London og dvelja þar nokkra
daga áður en þeir sigldu frá Leith.
Ekki mun það ákveðið hvað lengi
þeir dveljast heima.
Halli Gunnsteinn Björnsson frá
Riverton og Anna Eluke frá Árborg
voru gefin saman í hjónaband hér
í borginni af dr. Birni B. Jónssyni,
þann 16. þ. m.
Ritarar hinna ýmsu safnaða hins
Ev. lút. kirkjufélags eru alvarlega
ámintir um að tilkynna herra J. J.
Vopni, 597 Bannatyne Ave., Win-
nipeg, hvað marga erindreka hver
söfnuður býst við að senda á kirkju-
þing, sem haldið verður í Wjnnipeg
í júní næstkomandi Áríðandi er að
þessar upplýsingar komi sem fyrst
því margra gesta er von í tilefni af
jubilee hátíð kirkjufélagsins.
The Young People’s Convention
of the Evangelical Lutheran Synod
will be held in the First Lutheran
Church, Victor St., on May 24, 25,
and 26. Special Young People’s
Service at 11 a.m. Sunday, May 26.
ist Session, 2 o’clock Friday—
Registration of delegates and
reports.
2nd Session, 8 p.m. Friday—
Guest speaker Rec. Jakob Jónsson
—Miscellaneous program.
3rd Session, 2 p.m. Saturday—
Current business.
Dinner at 6.30 Saturday, First
Lutheran Church—
Guest Speaker Rev. Peter Pilkie.
Dance, 8.30, at Picardy Salon —
Tickets for dinner and dance
50C per person.
Everybody welcome to attend any
or all sessions. •
Ragnar H. Hagnar heldur Piano
Recital í Music and Arts Bldg.,
þann 7. júni næstkomandi.
Victor B. Anderson bæjarfulltrúi
kom úr för sinni vestan frá Van-
couver á þriðjudagskvöldið ásamt
föruneyti sínu. Hafði ferðafólk
þetta notið hinnar yndislegustu
ferðar bæði hvað veður og viðtökur
áhrærði.
Ingólfur Guðmundsson
(Dáinn 19. janúar 1935)
Hin hógværa gleði þér hugþekkust var,
en livumleiðast ofmælgis-raus.
Og gott hugðu snauSir til gistingar þar
sem greiSinn var formálalaus,
og viSmótiS einlægt og handtakiS hlýtt,
og hispurs- og uppgerSarlaust.
Þú unnir því foma, varst næmur á nvtt,
ef nytsamt þaS virtist og traust.
Og ferS þín var hiklaus á framfara braut,
en falslaust var stigiS hvert spor,
0g magngjafi þar þér í mótlæti og þraut
það mannvit og rólega þor,
sem brosir að ó'bænum ofstæpis-glóps,
sem ærzlast með skrum-mæli ný,
sem skeytir ei eggjunum ofdirfsku-hróps,
né æðrast við huglausra gný.
Og almennings vinsæld og hylli þá hlaust,
og hamingjan studdi þitt bú.
Svo farnast þeim öllum, sem festa sitt traust
við feðranna drengskap og trú,
en hafna þeim glitrandi hjáguða sæg,
sem hégóminn reisti á stall,
—og þeim verður kvöldvakan hugljúf og hæg,
og lieimboð: ið síðasta kall.
Kristján S. Pálsson.
ATHS.—Ingólfur heitinn kom hingaÖ vestur 1920,
og dvaldi hér vetrarlangt. Eignaðist hann hér marga
vini sakir góðvildar og ljúfmannlegrar framgöngu.
• —Ritstj.