Lögberg - 25.07.1935, Qupperneq 1
48. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 25. JÚLl, 1935.
NÚMER 30
Frú Lára B. Sigurðson
Fjallkona Islendingadagsins (Demants hátíðarinnar)
á Gimli, 5. ágúst, 1935.
Jakobína Johnson skáldkona
Nú vorgyðjan brosir við blikandi ós
og býður þig velkomna heim,
hún breiðir á veg þinn sín vinhlýju ljós,
sem vaka um náttheiðan geim,
og landið J)ér heilsar með dreymandi dögum,
sem dýrast þú unnir í kvæðum og sögum.
Nú finnur ])ú ilminn af f jólu og reyr
um fagurlit gróandi tún,
þú lifir við fossinn þann draum sem ei deyr
í dýrð yfir háfjalla brún,
og ljóðin 'hans nemur við bergfallið breiða
í brosandi vorfaðmi íslenzkra heiða.
Nú smalann þú lítur með lagðþétta hjörð,
liann ljóðar með svönum á ferð,
og bóndann, sem ávaxtar íslenzka jörð
og uppsker sinn fábreytta verð;
sú jörð geymir ættstofnsins auðugu rætur,
um eilífa daga, um lýsandi nætur.
Nú smalann þú lítur með lagðþétta hjörð,
hann ljóðar með svönum á ferð,
og bóndann, sem ávaxtar íslenzka jörð
og uppsker sinn fábreytta verð;
sú jörð gevmir ættstofnsins auðugu rætur,
um eilífa daga, um lýsandi nætur-
Og þú sér hvar djúpleiðir dregur frá strönd,
hið dáðríka sjómannalið,
er stórfleyi siglir með sæmd út í lönd,
og sækir á fiskauðug mið,
þar gullið er ríkast, sem bygð vorri breytir,
og bætir vor óðul um strandir og sveitir.
I f jarlægri álfu við heimslistarhljóm
af hjarta og vorelskri sál,
þú undir í draumi við ættjarðar blóm
og elskaðir sögunnar mál,
því bezta og fegursta lýstir í ljóðum
og landið vort kyntir með framandi þjóðum.
Komjolessuð og sæl, til að sjá ]>etta land,
þess sveitir og göfugu þjoð,
og findu hér trygðanna tállausa band
sem titrar við skyldleikans blóð,
og sjáðu hér alt eins og sál þína dreymdi,
og söngljúfur óður J)íns barnshjarta geymdi.
Og öllum, sem víðfrægja land vort og lýð
á lýsandi menningarbraut,
sé heimkoman fögur, og farsæl hver tíð,
sem framtíðin ber þeim í skaut,
og blessaðu alfaðir ástrfkum höndum
öll íslenzku börnin í framandi löndum.
Kjartan ólafsson.
—Mbl. 22. júní.
Sigurför Frjáls-
lyndu stefnunnar
SíðastliSinn þriðjudag fóru fram
almennar fylkiskosningar á Prince
Edward Island, er engan sinn líka
munu eiga í sögu hinnar canadisku
þjóðar. Þingmenn fylkisins eru 30
aÖ tölu, og vann frjálslyndi flokk-
urinn, undir forustu Walters S. Lee
hvert einasta þingsæti. Afturhalds-
stjórn hefir setiS að völdum á
Prince Edward Island síðastliðin 5
ár. A8 afstöðnum þessum sögu-
ríku kosningum, á afturhaldsflokk-
urinn nú ekki einn einasta fulltrúa
á þingi.
Þ.JÓÐMINNINGA R DAGAR
Fjölmennið á þjóðminningardag-
ana að Hnausum, Gimli, Seattle,
Blaine og Wynyard.
HálfráV aldar afmæli Þingvalla-
nýlendunnar í Saskatchewan, verSur
haldið hátíðlegt á föstudaginn kem-
ur. Þangað streymir fjölmenni.
Á Iðavelli við Hnausa er jafnan
gestkvæmt, og þá þarf ekki að efa,
að mikill mannfjöldi sæki demants-
hátíðina á Gimli þann 5. ágúst.
Þjóðræknir Islendingar f jölmenna
jafnan á íslenzka þjóðminningar-
daga.
DEILAN MILLl ÍTALIU OG
ETIIIOPIU
Síðustu fregnir af máli þessu
hniga í þá átt, að Bretar muni stað.
ráðnir í að .gera alt, sem i valdi
þeirra stendur til þess að stemma
stigu fyrir árás Italíu á land
Ethiopiumanna, og að miðlunartil-
raunir verði hafnar á ný af hálfu
ÞjóÖbandalagsins. Mælist viðbún-
aður Mussolinis gagnvart Ethiopiu
hvarvetna illa fyrir.
BENNETT SKIPAR I
EMBÆTTI
Á •mánudaginn þann 22 ])., m.
dubbaði Mr. Bennett upp tíu fylgi-
fiska sína til framtiðardvalar i efri
málstofunni; þar af eru þrír úr nú-
verandi ráðuneyti, eða þeir Hon. E.
N. Rhodes, f jármálaráðgjafi, Hon.
Arthur Sauve, póstmálaráÖgjafi og
Hon. J. A. McDonald, er átt hefir
sæti í stjórninni án þess að veita
forustu nokkurrf ákveðinni stjórn-
ardeild. Hinir sjö eru: Hon. Don-
ald Sutherland, fyrrum þingmaður
og ráðgjafi; Col. James Arthur,
þingmaður frá Parry Sound; Mrs.
Iva Fallis, Peterborough; George
Jones, New Brunswick; Col. Thom-
as, Pictou; Felix Quinn, Halifax;
J. L. P. Robichaud, náverandi þing-
maður Digby kjördæmisins. Enn
eru sjö sæti auð í öldungadeildinni,
þar á meðal tvö frá Manitoba. Verð-
ur sennilega skipað í þau öll áður en
langt um líður. Þá hafa og nokkrir
verið skipaðir i dómarasæti.
Talið er nokkurn veginn víst, að
núverandi innanríkisráðgjafi, Hon.
Murphy, þingmaður Nepawa kjör-
dæmisins í Manitoba, muni hljóta
Senators embætti.
SKIPAÐIR 1 FRAM-
KVÆMDA RNEFNI)
Þeir Hon. G. S. Harrington, fyrr-
um forsætisráðgjafi í Nova Scotia,
Tom Moore, forseti Trades and
Labor Congress of Canada, og N.
B. Bandet, fésýslumaður í Mon-
treal, hafa verið skipaðir til þess að
hafa með höndum framkvæmdar-
stjórn hinnar nýju sambandslöggjaf-
ar um trygging gegn atvinnuleysi.
LENDIR 1 BÍLSLYSl
William Langer, fyrrum ríkis-
stjóri í North Dakota, lenti i bíl-
slysi á sunnudaginn þann 21. þ. m.,
skamt frá Aneta J>ar í ríkinu, og
sætti alvarlegum meiðslum, að því
er símfregnir frá Valley City herma.
GEORGE WILLIAM
RUSSELL LÁTJNN
Nýlátinn er í Bournemouth á
Englandi, írski rithöfundurinn,
George Wlilliam Russell, sextíu og
átta ára að aldri. Liggur eftir hann
mikið safn ljóða, er, talin eru að
hafa all-verulegt bókmentagildi. Mr.
Russell gaf sig jafnframt mikið við
akuryrkju, og gerðist brautryðjandi
með hinni írsku þjóð í þeim efn-
um. #
LÆKNING VIÐ KRABBA f
Um fátt hefir tíðræddara verið
þessa dagana, en þá yfirlýsingu Dr.
Connells við Queens hákólann, að
líkur nokkrar væri til að hann hefði,
í samráði og samstarfi við stéttar-
bræður sina við þessa stofnun,
fundið upp meðal við krabbameini,
eða meðal, er að nokkru mundi
stemma stigu fyrir útbreiðslu þessa
ægilegasta af öllum sjúkdómum
mannkynsins. Engar staðhæfingar
hefir Dr. Connell enn gert í þessa
átt, en tjáist á hinn bóginn hafa til
þess gilda ástæðu að ætla aÖ upp-
götvanir sinar séu líklegar til árang_
urs.
FRA ÍSANDI.
Sjúkrahússbygging á Húsavík
byrjuð. — Búið er að grafa fyrir
kjallaragrunni spítalans á Húsavík,
og er áformað að byrja á bygging-
unni um næstu helgi. Sparisjóður
Húsavíkur hefir gefið 2,000 krón-
ur til spítalans, Kaupfélag Þingey-
inga 1,000 krónur, ónefndur maður
1,000 krónur og Kvenfélag Húsa-
víkur 670 krónur, en auk þess hafa
borist til spítalans allmargar minni
gjafir.—Alþ.bl.
Síldveiði er hafin.—Síldveiði er
þegar hafin frá Siglufirði. Fyrsta
skipið, sem kom með síld var línu-
veiÖarinn Pétursey frá Hafnarfirði.
Kom Pétursey inn í fyrrakvöld með
400 mál og landaði í ríkisverksmiðjþ
una.
I fyrrinótt komu linuveiðararnil
Höskuldur, Hrönn, Nanna og
Minnie. Hafði Minnie 480 mál, eú
hinir um 300.
Sjómenn sögðu að mikil áta sé í
síldinni og að svo líti út sem mikil
síld sé úti fyrir.
I nótt hvesti skyndilega og varli
vont í sjóinn. Komu flest skipifi
inn. I
Um 50—60 skip stunda nú síld'-
veiðar héðan og eru skipin sem óð-
ast að koma hingaÖ. Munu fleiri
skip stunda síldveiðar héðan í sum-
ar en undanfarin sumur og meira
fjölmenni á Siglufirði nú en und-
anfarið.
Hin nýja síldarverksmiðja ríkis-
ins tekur til starfa á fimtudaginn.
I ríkisverksmiðjuna eru komin nú
pm 1,000 mál og er saltað í hennar
þró. Alþ. bl. 4. júli.
Arsrit Rœktunarfélags Norður-
lands, 31. árg., er komið út. Auk
skýrsla frá búnaðarsamböndunum,
flytur það ýmsar athyglisverðar
greinar, m. a. um votheysgerÖ og
belgjurtirnar og þýðing þeirra i ís-
lenzkri jarðrækt.
Kenslubú á Staðarfelli. Nýaf-
staðinn aðalfundur Búnaðarsam-1
bands Dala- og Snæfellsnessýslu
samþykti að skora á ríkisstjórnina'
að stofnsetja á þessu vori kenslubú
fyrir Vesturland og verði alið þar
upp sauðfé til kynbóta og komið á
fót stofnræktun svina til undaneldis
á félagssvæðinu. Stofnfé til slíks
bús, upphaflega um 10 þús. kr., hef-
ir veriÖ lagt frarn fyrir nokkrum
árum.—Nýja dagbl.
Ur borg og bygð
Mr. Bergur Johnson frá Baldur,
Man., dvelur í borginni þessa dag-
ana.
Mr. B. Lifman, sveitar oddviti i
Bifröst, kom til borgarinnar á mánu-
daginn.
Þær frú Anna Paulson frá Re-
gina, ekkja W. H. Paulson fyrrum
þingmanns í Saskatchewan og dóttir
hennar frú Margrét Thorvaldson
frá Saskatoon, lögðu af staÖ vestur
til Foam Iyake, Sask., á þriðjudags.
kvöldið, eftir nokkurra vikna dvöl
hér i borginni. Var frú Paulson,
eins og getiÖ var áður um hér i blað_
inu, skorin upp á Almenna sjúkra-
húsinu, og hefir legið þar síðan. Er
hún nú komin á góðan veg með að
verða albata. Frú Margrét hefir
dvalið þenna tíma hjá frú Guðnýju
Paulson að 784 Beverley St.
Dr. Hermann Marteinsson, sonur
þeirra séra Rúnólfs Marteinssonar
og frú Marteinsson, hefir dvalið í
borginni undanfarna daga hjá for-
eldrum sinum; hefir hann undan-
farandi stundað lækningar í bænum
Pas. Dr. Marteinsson leggur af
stað til Evrópu í septembermánuði
næstkomandi, þar sem hann hyggur
á framhaldsnám um hrið.
50 ára afmæli Frelsissafnaðar í
Argyle.
Á sunnudaginn kemur, 28. júlí,
verður minst 50 ára afmælis Frelsis-,
safnaðar í kirkju safnaðarins að
Grund. Byrjar minningin með há-
tímamessu kl. n f. h., þar sem séra
H. Sigmar prédikar. Um kvöldið
kl. 8.30 verður svo afmælissamkoma
i Argyle Hall. Verða þar ræður
fluttar og söngur mikill og verður
þar ekki aðeins minst safnaðarins,
heldur líka kvenfélagsins, sem stofn-
að var fyrir 50 árum og á afmæli
sitt einnig nú. Allir eru velkomnir
að taka þátt í þessum fagnaði og
væri okkur ljúft aÖ vel sæist virðing
sú, er við berum fyrir þeim, sem
stofnuðu hvorutveggja félagsskap-
inn og að vér einnig mættum finna
til metnaðar að starfa að þeim hug-
sjónum, sem staðist hafa tímans
straum og enn þá eru beztu hug-
sjónir kristinna manna.
E. H. Fáfnis.
Til leiðbeiningar fyrir þá, sem
sækja Islendingadaginn á Gimli 5.
ágúst næstkomandi; verður ferða-
áætlun C.P.P. til Gimli þann dag
sem hér segir;
Frú Whnnipeg: Kl. 9.25 f. m.,
kl. 10 f. m., kl.1.45 e- m-» kl. 5.20
e. m.—Kemur til Girnli: kl. 11 f. m.,
kl. 12 á hádegi, kl. 3.45 e. m., kl.
7.20«. m.—Frá Gimli til Winnipeg:
kl. 7.20 e. m., kl. 7.50 e. m., og sér-
stök lest kl. 11 e. m.
Fargjöld fyrirfullorðna fram og
til baka $1.25, fyrir unglinga milli
5 og 12 ára 65C. Börn yngri en 5
ára ferðast frítt.
Lestin, sem síðast fer að kvöldinu
frá Gimli, fer norður að Lóni
Beach stöðinni og tekur fólkið þar;
hún stanzar einnig við aðalstöðina,
og tekur þar þá, sem þar kunna að
bíða.
Mr. F. Stephenson framkvæmdar-
stjóri Columbia Press Ltd., lagði af
stað á mánudaginn ásamt frú sinni,
I skemtisiglingu um Winnipegvatn,
norður til Norway House. Gerðu
þau hjón ráð fyrir að verða um
hálfsmánaðartíma að heiman.
Dr. Ófeigur Ófeigsson, kom heim
á mánudaginn eftir rúma hálfsmán-
aðar dvöl i Rochester, Minn. Lct
hann hið bezta af hinni stuttu veru
sinni ]>ar syðra. Þau Dr. ogWírs.
Ófeigsson munu dvelja um hríð á
Gimli.
Dr. Richard Beck frá ríkisháskól-
anum í North Dakota, er nýkominn
til borgarinnar. Er hann á leið til
Saskatchewan, og flytur ræður á
hátíð Þingvallanýlendunnar, sem og
á l>jó8minningardeginum í Wyn-
yard.
A læknaþingi, sem haldið var ný-
lega í bænum Minnedosa hér í fylk-
inu, var Dr. B. J. Brandson aðal-
ræðumaðurinn.
Þær Miss Pearl Pálmason fiðlu-
leikari og Miss Snjólaug Sigurðson,
píanisti, hafa ák'vyðið að halda
hljómlistarsamkomu í Nýja íslandi
á næstunni. Fyrsta samkoma þeirra
verður í Árborg á föstudagskvöldið
þann 9. ágúst, en sú næsta þar á
eftir væntanlega í Riverton á mánu.
daginn þann 12.
Mr. og Mrs. Sigurður Emerson
frá Madison, Wis., komu til borgar.
innar um miðja fyrri viku, ásamt
Arthur syni sinum og konu hans. I
för með þeim var einnig systir Sig-
urðar, Mrs. S. T. Björnsson frá
Hensel, N. Dak. Ferðafólk J>etta
brá sér norður til Winnipeg Beach.
—Sigurður Emerson kom barn.
ungur til þessa lands ftá Kálfsstöð-
um í Skagafirði. Hefir hann lengi
stundað bakaraiðn, en hefir nú með
höndum umsjón skólahúsa í Madi-
son.
Frú Anna McKay er nýkomin
heim austan frá Toronto, eftir
þriggja vikna dvöl hjá Signýju
systur sinni (Mrs. John David
Eaton).
Mr. Valentine Valgarðson skóla-
stjóri frá Moose Jaw, Sask., dvelur
í borginni þessa dagana, ásamt f jöl-
skyldu.sinni. Er hann sonur þeirra
Mr. og Mrs. Ketill Valgarðson að
Gimli. Systir hans er Mrs. G. J.
Johnson að 109 Garfield Street.
Mr. Jónas Helgason frá Baldur
Man. er staddur i borginni og ráð-
gerir að dvelja hér um tveggja vikna
tíma.
Mr. John A. Vopni, sonur þeirra
Mr. og Mrs. J. J. Vopni hér í borg-
inni, ritstjóri frá Davidson, Sask.,
hefir dvalið í borginni undanfarandi,
ásamt syni sínum. Fór hann austur
til Toronto á þriðjudaginn til þess
áð sitja þar ársfund félagsskapar
þeirra manna, er ensk vikublöð gefa
út í Canada.
ALÚÐAR ÞÖKK
Öllum þeim hinum mörgu vinum,
er auðsýndu okkur kærleiksríka
samúð í sjúkdómsstríði og við frá-
fall elskaðrar eiginkonu og móður,
Sesselju Eggertson, flytjum við hér
með vorar innilegustu hjartans
þakkir, sem og þeim, er við útförina
heiðruðu minningu hennar með ná-
vist og blómagjöfum. Sá, sem einn
öllu ræður launi þessum vinum okk-
ar kærleikslund þeirra og nærgætni
í okkar garð.
—Winnipeg 24. júlí, 1935.
Asbjörn Eggertson og synir.