Lögberg - 22.08.1935, Blaðsíða 1
48. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 22. AGÚST 1935.
NÚMER 34
Thoráteinn Oddsson
Fæddur 6. desember 1864—Dáinn 24. ágúst 1934
Hann þekti nngur strit og stríð,
en starði spurull út í geiminn
og sá í anda sælli tíð,
því sálin hans var skygn og dreymin.
Og hann var aldrei beggja blands
—á breyting fús, en stefnurækinn.—
1 flestu sást að hugur hans
var himinrænn og áframsækinn.
Þann yfirburð, sem aldrei sveik
hann átti — beztu lífsins gáfu —
að breyta von í veruleik
með vinnu, þegar aðrir sváfu.
Hann reiddi löngum refsivönd
að reginvöldum svika og pretta;
en góðu máli hjálparhönd
var honum alt af ljúft að rétta.
Sér eigin nægð ei nægja lét
—og nánastur þeim minstu var hann—
Með glöðum hló, með hryggum grét,
og hlut í allra kjörum bar hann.
Það stækkar bæði og styrkir mann
að stara um langar vökunætur
á bræðra sinna sorg—því hann
er sálarlaus, sem aldrei grætur.
Vér kveðjum genginn merkismann,
í mnna klökk,—en þakklát fögnum
að langan aldur lifir hann
í lands og þjóðar beztu sögnum.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Sambandsþing rofið—Nýjar kosningar
14. október
ÞINGM ANNSEFNI
FRJALSLYNDA
FLOKKSINS 1
SUÐUR-WINNIPEG
Á afarf jölmennum framboðs-
fundi, sem haldinn var í Walker
'leikhúsinu síðastliðið þriðjudags-
kvöld, var Mr. Reslie A. Mutch, út-
nefndur sem þingmannsefni frjáls-
lynda flokksins í Suður-Winnipeg
við í hönd farandi sambandskosn-
ingar, með allmiklu afli atkvæða
umfram gagnsækjanda sinn Mr. C.
A. Adamson.
Mr. Mutch er ungur áhugamað-
ur, er tekið hefir öflugan þátt í sam-
tökum frjálslyndra manna í þessari
borg og jafnan sótt fram þar sem
harðastur var bardaginn. Hefir
hann um allmörg ár haft með hönd-
um vandasamt trúnaðarstarf á aug-
lýsingaskrifstofu T. Eaton verzlun-
arinnar hér í borginni.
SKIPAÐ í IIVEITISÖLU-
RAÐ
Mr. Bennett hefir nýskipað eftir-
greinda menn í hveitisöluráð: John
McFarland, D. L. Smith og pró-
fessor H. F. Grant. Mr. McFarland
hefir ‘verið viðriðinn hveitisölu fyr-
ir stjórnarinnar hönd síðan 1930.
Mr. Smith hefir lengi fengist við
kornsölu, en prófessör Grant er
ungur maður, er embætti gegnir við
landbúnaðardeild Manitoba háskól-
ans.
MYNDAR RAÐUNEYTI
Þann 15. þ. m. tók við völdum á
Prince Edward Island nýtt ráðu-
neyti, er Hon. Walter Lea, liberal,
veitir forustu. Allir þingmennirnir,
þrjátíu að tölu, fylgja stjórninni að
málum, og er það einsdæmi í stjórn-
málasögu hinnar canadisku þjóðar,
að þingmenn allir séu af sama
flokki.
HÖRMULEGT FLUGSLYS
Þann 16. þ. m., vildi það hörmu-
lega slys til, að Will Rogers, kvik-
myndaleikarinn víðfrægi og Wiley
Post, heimskunnur flugmaður, fór-
ust i flugslysi skamt frá Point Bar.
row í Alaska. Þykk þokuslæða
hafði hulið alt umhverfis, þar sem
slysið vildi til.
STEVENS í WINNIPEG
Síðastliðið mánudagskvöld flutti
Hon. H. H. Stevens, foringi um-
bótaflokksins nýja, ræðu í Winni-
peg Auditorium fyrir miklu fjöl-
menni. Hefir Mr. Stevens ferðast
allviða um vesturlandið undanfar-
andi, til þess að boða landslýð hinn
nýja stjórnmála gleðiboðskap sinn.
ÍSKYGGILEGAR IIORFUR
Umboðsmaður ítölsku stjórnar-
innar hefir á nýafstöðnum fundi,
sem haldinn var í París til þess að
reyna að afstýra styrjöld milli ítalíu
og Ethiopiu, lýst yfir því afdrátt-
árlaust, að eins og málinu nú sé
komið, verði stríð milli þessara
tveggja jp'óða ekki undir nokkrum
kringumstæðum umflúið. Gaf hann
jafnframt í skyn, að ítalir mundu
segja sig úr þjóðabandalaginu nær
sem verða vildi og það fyrirvara-
laust. Eru horfurnar ískyggilegri
um þessar mundir í Norðurálfunni,
en þær hafa nokkru sinni verið síð-
an 1914.
ÞEGAR UPP STYTTIR
Fregnir frá Addis Ababa þann
20. þ. m., láta þess getið, að Ethi-
opiumenn þykist þess fullvissir að
Italir muni hefja árás sina í
Austur-Afríku jafnskjótt og rign-
ingum þeim stytti upp, er dunið hafi
þar á undanfarið.
Frá Islandi
Slys í Vestmannaeyjum.
í gær hrapaði maður til bana þar
sem hann var á lundaveiðum í svo-
nefndum Miðkletti. Hann hét Sig-
urður Helgason, búsettur hér í Eyj-
um, kvæntur maður og 4 barna fað-
ir.
Miðklettur heitir næsti klettur
við Heimaklett gegnt ytri höfninni,
en yzt heitir Yztiklettur. — Þarna
hafa menn verið að stunda lunda-
veiðar í háf undanfarna daga.
í gær fóru þeir Sigurður heitinn
Helgason og fleiri menn til lunda-
veiða. Skiftu þeir sér niður á klett-
ana og tók Sigurður sér stöðu á
Miðklettsb’rúninni. Er þar grasi
vaxið efst, en þverhnýpt bjarg fyr-
ir meðan, og að því fellur sjór og er
undir bjarginu 2—3 faðma dýpi.
í gærkvöldi þegar veiðimenn
héldu heimleiðis, var Sigurður horf.
inn og grunaði menn brátt að hann
hefði fallið fram af bjarginu í sjó.
Sigurður var alvanur veiðimaður
og gætinn. Geta sumir þess helzt
til, vegna þess að rigning var i gær
og grasið blautt á bjargbrúninni, að
honum hafi skrikað fótur i grasinu.
I gærkvöldi var hans ekki leitað,
en J morgun var farið út að Mið-
kletti og slætt þar sem mestar líkur
þóttu til þess að hann hefði fallið
i sjóinn. Sú leit bar engan árangur,
en síðdegis í dag fór vélbátur þang-
að með kafara, og fann kafarinn lík
Sigurðar fljótt á mararbotni, undir
klettinum. Kom vélbáturinn með
líkið hingað til kaupstaðarins í
kvöld.
—Mbl. 26. júlí.
GEYSIR 1IIAUKADAL GÝS
AÐ NÝJU
Á laugardaginn var fóru þeir dr.
Trausti Einarsson, Jón Jónsson frá
Laug og Guðmundur Gíslason lækn-
ir austur að Geysi í Haukadal. —
Samkvæmt þeim athugunum, sem
dr. Trausti gerði á hvernum í vor,
leit hann svo á, að líkur væru til
þess, að Geysir myndi gjósa að nýju,
ef vatnið yrði lækkað í hverahrúð-
ursskálinni. Þeir félagar hjuggu nú
mjóa frárenslisrauf í skálarbarm-
inn svo batnsborðið lækkaði. Var
því verki lokið um nón á sunnudag.
Laust eftir kl. 4 tók Geysir að
gjósa. Stóð gosið í 15 minútur.
Varð gosstrókurinn 45—50 metra
hár.
Klukkan rúmlega 6 á mánudags-
morgun gaus Geysir að nýju. Varð-
maður, sem verið hafði við hverinn
um nóttina, sagði að það gos hefði
jafnfel verið stórfeldara en hið
fyrra.
Eru því allar líkur til, að með
því að hafa vatnsborðið lægra i
hveraskálinni, en það áður var, megi
búast við því, að Geysir haldi áfram
að gjósa með svipuðum hætti og
áður, meðan hann var “í fullu f jöri.”
—Mbl. 30. júlí.
Mikill síldarafli í Faxaflóa.
Akranesi 26. júlí.
Vélbáturinn “Ármann” frá Akra-
nesi, eign Þórðar Ásmundssonar,
fór á síldveiðar í Jökuldjúp í gær,
lagði 27 net, og náði aftur 8, en 19
sukku í botn vegna sildarþunga.
Báturinn fékk 68 tunnur síldar.
Vélbáturinn “Ver,” eign Harald-
ar Böðvarssonar, er búinn að afla
220 tunnur síldar í fjórum legum.
í dag kom hann með á að giska 200
tunnur.
Vélboáturinn “Gylfi,” Sandgerði,
I lagði þar á land í gær 170 tunnur,
en losaði á lanc^ á Akranesi í dag,
170 tunnur. Hafði hann veitt þetta
í fyrrinótt. Öll síldin er fryst til
beitu.—Mbl. 27. júlí.
Risinn Jóhann Pétursson sýndur í
Dyrehavsbakken.
Danska blaðið “Politiken” segir
frá því, að íslenzki risinn, Jóhann
Pétursson hafi sýnt sig opinberlega
á skemtistaðnum Dyrehavebakken í
Höfn.
Börn, sem voru í sumarleyfi á
vegum blaðsins, voru mjög hrifin
af risanum og hrópuðu af fögnuði.
Jóhann Pétursson sefur á tveim
legubekkjum í “Peterlipshus.”
Mbl. 12. júlí.
Stjörnufáninn
á fslendingadaginn i Blaine, Wash.
Skín þú mikli, fagri fáni,
frelsistáknið st^örnum sett,
yfir þeirra lífi’ og láni,
er leggja rækt við þenna blett;
þeim, sem andans óðöl veittu
ættatigin Norðurlönd;
þeim, sem hyggni höfðu og neyttu,
að hljóta þessa fögru strönd.
Þenna lýsti fagra fána
fyrsti lýðvalds-morguninn;
þangað yzt sem brúnir blána
breiddist frelsisdagurinn.
í ótal hrotta-hretum glóði
hver hans stjarna sigurbjört,
lituð heitu hetjublóði,
hels er grúfði nóttin svört.
Hvarvetna með honum fóru
hugdirfð, ráðsnild, afreksverk.
Undir honurn hrifnir voru
heillir þjóðar ljóns úr kverk.
—Þeir sé oss á öllum tíðum
eftirdæmi og hvöt í senn,
' er með þessum fána fríðum
fremstir voru og beztir menn.
Fremst í broddi brjóstfylkingar
beri stjörnu-fánann hátt,
vaskir, ungir Islendingar,
sem aldrei verður ráðafátt;
frelsis-stjörnur fánans verði
fjörspár þeim, sem berst í vök;
sigurvonir hækki, herði
hjartaslög og andartök.
Vér þá heldur æðrumst eigi,
óskiftir í óskn og vörn,
sækjum fram og vörðum vegi,
verðum landsins óskabörn.
•
—Samt má aldrei, aldrei glejunast
okkar kæra, fagra mál;
slíkur arfur á að geymast
inst og dýpst í vorri sál.
Á miðvikudaginn þann 14. þ. m.,
tilkynti Mr. Bennett að sambands-
þingið hefði verið rofið og að nýj-
ar kosningar fari Jram þann 14.
október næstkomandi. Þessu jafn-
framt gerði forsætisráðgjafi heyrin-
kunna endurskipun ráðuneytis síns,
sem fólgin er í því, að Lt. Col. G. R.
Geary, einn af þingmönnum
Toronto-borgar verður dómsmála-
ráðgjafi í stað Hon. Hugh Guthrie,
er tekist hefir á hendur forustu
járnbrautaráðsins; J. Earl Lawson,
þingmaður York kjördmisins hins
vestra, verður tekjumálaráðgjafi;
William G. Ernst, þingmaður
Megi ætíð íslendingum
auðnast takmark giftuhátt,
og að sýna á öllum þingum
andans göfgi, vit og mátt;
nöfnin þeirra, og þeirra barna,
þjóðin geymi sögufest,
meðal hennar stóru stjarna,
er standa hæzt og lýsa bezt.
E. G. Gillies.
Jarðskjálftar enn í Indlandi.
I Quetta varð vart við jarð-
skjálfta í gærdag. Jarðskjálftakipp-
urinn stóð aðeins 15 sekúndur, og
var ekki sérlega snarpur. Ekkert
sérstakt tjón hlaust af honum, en
menn eru að sjálfsögðu mjög ang-
istarfullir i Quetta, ef jarðskjálfta
verður vart, sakir þeirra ógna, sem
þar dundu yfir fyrir skemstu.
Flugferðir í Noregi.
Riiser Larsen er kominn til Osló
að aflokinni, athuganaferð sinni í
Norður-Noregi en þangað fór hann
til undirbúnings reglubundnum far-
þegaflugferðum og til eftirlits með
starfi þar að lútandi. Hann segir,
að framtíðarhorfurnar séu mjög
góðar. Loftskeytatækin í flugvél-
unum og flugvélarnar yfirleitt hafa
reynst ágætlega. Meðal almennings
er feikna áhugi fyrir flugferðun-
um og eftirspurnin eftir farmiðum
er svo mikil, að ekki er hægt að full.
nægja henni.
Séra B. Theodore
Sigurðsson
prestur Selkirksafnaðar og frú
heiðruð með fjölmennu samsæti
á föstudagskvöldið var.
I tilefni af nýlega afstaðinni gift-
ingu séra Theodore’s og heimkomu
prestshjónanna úr brúðkaupsför
þeirra, efndi Selkirk-söfnuður til
virðulegs samsætis i samkomuhúsi
sínu síðastliðið fötudagskvöld, er
um 300 manns sátu, i heiðursskyni
við ungu hjónin, og skorti þar
hvorki gleði né góðan fagnað. Séra
K. K. Ólafsson forseti kirkjufélags.
ins, kom alla leið vestan frá Wyn-
yard til þess að stýra samsætinu;
leysti hann það starf af hendi með
þeim skörungsskap og þvi fjöri, er
veizlugestum mun seint úr mýini
líða.
Skemt var á víxl með stuttum
ræðum, kvæðum, einsöngvum og
kórsöng; ávörp flutt af safnaðar-1
forseta og forgöngumönnum hinna
ýmsu félagsdeilda innan vébanda
safnaðarins; báru þau öll ljósan
vott um þá virðingu, er séra Theo-
dore nýtur hjá safnaðarlýð sinum.
Til minja um mannfagnað þenn-
Queens-Lunenburg kjördæmis, tekst
á hendur forustu fiskiveiða ráðu-
neytisins, en Samuel Gobeil, þing-
maður í Compton kjördæmi er einn
hinna nýju ráðgjafa, og gegnir em-
bætti póstmálaráðgjafa.
Þá hefir og Mr. Bennett lokið við
að skipa í hin auðu sæti í öldunga-
deild; tveir nýir senatorar frá
Manitoba, hafa hlotið trúrra þjóna
verðlaun; eru það þeir John T.
Haig, einn af þingmönnum Winni-
pegborgar í fylkisþinginu, og Col.
Harry Mullins, sambandsþingmaður
fyrir Marquette kjördæmið.
an, var prestshjónunum afhent að
gjöf forkunnarfögur kaffisamstæða
úr skíru silfri með viðeigandi áletr-
an. Séra, Theodore þakkaði með
hlýjum og fagurlegum orðum á
ensku og íslenzku, þann heiður, ér
þeim hjónum hefði fallið í skaut
með samsætinu, gjöfinni og þeim
vinarhug, er að baki hvorutveggja
stæði.
Samsætið alt bar ákveðinn vott
þeirrar eindrægni, er jafnan hefir
einkent starfsemi Selkirksafnaðar.
Af utanbæjarmönnum, auk séra
Kristinns, tóku til máls séra N.
Steingrímur Thorláksson, J. J. Bíld.
fell og ritstjóri þessa blaðs.
Or borg og bygð
Stórt framherbergi, með eða án
húsgagna, er til leigu að 594 Alver-
stone St., heppilegt fyrir tvo, sem
vildu að einhverju leyti fæða sig
sjálfir. Einnig fæst fæði keypt, ef
óskað er. Sími 38 181.
Dr. A. B. Ingimundsson, tann-
læknir verður staddur í Hecla,
Man., þriðjudaginn 27. og miðviku.
daginn 28. ágúst næstkomandi.
Mr. J. G. Stephansson frá Kanda-
har, Sask., var staddur i borginni
síðastliðinn þriðjudag.
Mr. og Mrs. S. J. Ólafsson frá
Akra, N. Dak., voru stödd í borg-
inni í vikunni sem leið.
Dr. Tweed verður staddur í Ár-
borg á fimtudaginn þann 29. þ. m.
Mrs. Ingi Brynjólfsson frá Chi-
cago, 111., kom til borgarinnar um
siðustu helgi, ásamt dóttur sinni og
tveim sonum. Fór fólk þetta
snöggva ferð norður til Gimli, en
hélt vestur til Argyle á þriðjudags-
kvöldið x heimsókn til ættingja og
vina.
Mr. Jónas Anderson kaupmaður
að Cypress River, vlar staddur í
borginni ásamt frú sinni fyrri part
yfirstandandi viku.
Miss Margrét Jónasson, kenslu-
kona frá Edmonton, dvelur í borg-
inni um þessar mundir. Kom hún
hingað um helgina eftir sex vikna
dvöl í Minneapolis, Minn., hjá syst-
ur sinni og tengdabróður, Mr. og
Mrs. Hjálmar Björnson.
Séra Rúnólfur Marteinsson fór í
skemtiför norður til Churchill í lok
fyrri viku.
Miss Ingibjörg Hóseasdóttir, sem
dvalið hefir nokkra undanfarna
mánuði hér í borginni, fór vestur
til Mozart, Sask., síðastliðinn
fimtudag.