Lögberg - 10.10.1935, Side 1

Lögberg - 10.10.1935, Side 1
PHONE 86 311 Seven Lines ■ , >n *S** For Better Dry Cleaning and Laundry NtJMER 41 SAMHUGA ÞJÖÐ HRISTIR AF SÉR FIMM ARA KÚGUNAR HLEKKI Fregnir af heljarslóð Fregnir frá Ethiopiu bera með sér, að ftalir halda áfram hermd- arverkum í landinu; halda þeir áfram skothríð úr lofti yfir borg- ir og bæi og hlífast hvergi í; er mælt að fullar tvær þúsundir Ethiopiumanna hafi þegar látið líf sitt; hafa ítalir náð þremur all-stórum borgum á vald sitt. Þrettán þjóðir, sem meðlimir eru í Þjóðbandalaginu, hafi fund- ið ítali seka um brot á banda- Iagssáttmálunum, sem upphafs- menn að vígaferlum þessum; hafa þær ákveðið að heita gegn ítalíu þeim fyrirmælum sáttmál- ans, er kveða á um viðskiftabann. Marga furðar á að þetta skyldi ekki vera gert fyr, þó segja megi að betra sé seint en aldrei. Athyglisverð ummæli Eitt áhrifamesta íhaldsblaðið í þessu I landi, Montreal Gazette, komst þannig að orði i siðastliðn- um janúarmánuði, eftir að Mr. Bennett gerði heyrinkunn hin svonefndu umbótaákvæði sín vfir víðvarpið: “Vér höfum engu sérstöku ást- fóstri tekið við Mr. King. En þeg- ar forsætisráðgjafinn tekur sér það fyrir hendur, eins og hann nú gerir, að rekja sögu frjálslynda flokksins og tala í því sambandi um barnaþrælkun, vinnukúgun, sultarlaun og annmarka núgild- andi fjármála fyrirkomulags, er alt þetta stafi af, þá verður þess óhjákvæmilega krafist, að fullrar sanngirni sé gætt. Það er á al- manna vitorði, að Mr. King hefir alla jafna látið sér ant um að ráða bót á þeim misfellum sem hér um ræðir; og það var meira að segja barátta hans gegn slik- um óvinafagnaði, er öllu fremur leiddi til þes^ að þátttaka hans í opinberum málum varð slík, sem raun er orðin á, og að verka- málaráðuneytið var stofnað, á- samt mörgum öðrum mikilvæg- um löggjafar-umbótum, er í svip- aða átt gengu. Þetta alt gerðist mörgum árum áður en Mr. Ben- nett vaknaði til meðvitundar um þörfina á nýrri umhóta stefnu- skrá svona rétt fyrir kosningarn- ar.” • ___ * HON. L. A. TASCHEREAU, Quebec. HON. A. A. DYSART, New Brunswick HON. W. W. LEA, Prince Edward Island Stefnuskrár atriði frjálslynda fiokksins 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 Nýjar og ókveðnar ráðstafanir í þá átt, að bæta úr atv'nnuleysinu. Endurheinit tapaðra sölusambanda erlendis. Aukning innanlands viðskifta. Ráðstafanir undirstöðu-iðnaðinum til eflingar. Stjórnarumsjón til öryggis lánstrausti. Stjórnareftirlit með öllum tryggingum. Vernd og viðhald þjóðeignabrautanna. Lýðræði í iðnmálum. Stjóm, er lúti þingviljanum. Öryggi persónufrelsisins. Endurbætt kosningalög. Fjárlög án tekjuhalla. Góðvilji gagnvart umheiminum. Samfélagslegt jafnrétti innanlands. HON. T. D. PATTULLO, British Columbia. RT. HON. W. L. McKENZiE KING, forinfíi frjiilslynda flokksins. HON. JOHN BRACKEN, Manitoba Mannvænlegur lög- fræðingur Einn þeirra mörgu og efnilegu lærdómsmanna íslenzkra, er Lynn G. Grímsson, sonur þeirra Guðm. héraðsdómara Grímssonar og frú Grímsson að Rugby, North Dakota. Þessi ungi mentamaður lauk B.A. prófi við ríkisháskólann í North Dakota, en í júnímánuði síðastliðinn útski^faðist hann með hinum ágætasía vitnisburði í lögum frá Minnesota háskólan- um; hefir honum nú verið veitt- ur réttur til málaflutnings í Min- nesota-ríki. Er þetta hinum mörgu vinum Grimssons fjöl- skyldunnar hið mesta fagnaðar- efni. Grímu klæddur afturhaldsmaður. Að því er frekast verður séð, er Social Credit frambjóðandinn i Selkirk kjördæmi blátt áfram grímuklæddur afturhaldsmaður. Hann reyndi að ná útnefningu afturhaldsmanna á Stonewall fundinum, þar sem Mr. G. S. Thorvaldson var útnefndur en beið lægra hlut; hét hann Mr. Thorvaldson þá eindrægnu fylgi; nú býður hann sig sjálfur fram undir Social Credit nafni. HON. MITCHELL F. HEPBURN Ontario. HON. ANGUS MacDONALD, Nova Scotia. HON. J. G. GARDINER, Saskatchewan. Við kunningja Mr. Thorsons, sem ihaldsflokknum fylgir að málum, gaf Mr. Mills það ótví- rætt í skyn, að hann væri í kjöri með það fyrir augum að veiða at- kvæði frá Mr. Thorson. Menn geta gert sér i hugarlund hvaða erindi slík pólitisk randafluga og Mr. Mills auðsjáanlega er, á inn í Selkirk kjördæmi svona rétt fyrir kosningarnar. SÝNING A MALVERKUM EMILE WALTERS Eins og getið hefir áður verið hér í blaðinu, hefir T.. Eaton verzlunarfélagið tekið að sér sýn- ingu á nýjustu málverkum Emile Walters. Fór fyrsta sýningin fram í Toronto og sóttu hana á þriðja þúsund manns fyrsta dag- inn. Næst fer sýning þessi fram í Montreal, en hér í borg sýnir Eatons málverk þessi í búð sinni frá 1. til 15. nóvember næstkom- andi, og má vist telja að íslend- ingar færi sér það tækifæri i nyt, og fjölmenni á sýninguna. Skýrt verður frá tilhögun allri nánar siðar. Hin nýjustu málverk Mr. Wal- ters eru flest frá fslandi, og hafa hvarvetna vakið hina mestu að- dáun. McKenzie King leiðir þjóðina ut úr eyðimörkinni! Allir forsætisráðgjafar fylkjanna, að undantekn- um einum, fylkja liði undir fána frjálslyndu stefnunn- ar á mánudaginn þann 14. og styðja Mackenzie King til valda. Veitið Maybank, ]\Iutch, Hermanson og Booth eindregið og óskift fylgi í AVinnipeg, sem og fram- bjóðendum frjálslynda flokksins í þeim hinum öðrum kjördæmum öllum, þar sem íslenzkra áhrifa og atkvæða gætir! Minningarorð Jarðarför Jóhannesar heitins Bergmans, er andaðist á spítala hér í borg þ. 28. sept. s.l., fór fram, undir umsjón Bardals, frá heimili Sigfúsar Bergmans, í Víðinesbygð, í Nýja íslandi, þ. 3. þ. m. — Hinn látni var lengi bóndi í Geysisbygð og stundaði jafnframt steinsteypu- vinnu, öðru hvoru, eftir því sem færi gafst. Lætur eftir sig konu, Lilju Davíðsdóttur, frá Kárdals- tungu í Vatnsdal, og.eina dóttur, er Kristín heitir. Fóstursonur þeirra er Haraldur Norman, nú 18 ára. Þrír bræður hans eru á lífi, Jónas Berg- man hér i borg, er á fyrir konu Sig. riði systur Sveinbjörns Johnson, laga-pfófessors, Guðmundur Berg- mann, bóndi í Geysisbygð, er á fyrir konu Guðrúnu Jónsdóttur, systur dr. G. J. Midford, er var góðfræg- ur læknir nálægt Portland Ore., en er nú látinn; og Sigfús Bergman, er býr í Víðinesbygð og giftur er Vigdísi dóttur Mrs. Á Hinriksson á Gimli. Þrjár systur Jóhannesar eru einnig á lífi, Mrs. Sigríður Whitt- aker, hér í borg, Mrs. Lilja Hans- son, kona Guðmundar bónda Hans- sonar i Geysisbygð, og Mrs. Ásta Lárusson, kona Kristins bónda Lárussonar í Víðinesbygð. Einnig er móðir Jóhannesar enn á lífi, Kristín Jóhannesdóttir, síðari kona Jónasar bónda Bergmans frá Rófu í Miðfirði, háöldruð kona, til heim- ilis hjá Lilju dóttur sinni. All- margt ættingja og vina við jarðar- förina, bæði úr Geysisbygð og úr Viðinesbygð. Öll systkinin þar við- stödd og allmargt af tengdafólki, þar á meðal Andrés Davíðsson frá Gimli, bróðir Lilju, ekkju Jóhann- esar, sonur hans WI. A.' Davíðsson (contractor), héðan úr borg, og Mrs. Ragnheiður Bergman, ekkja Björns heitins Bergmans í Geysis- bygð og synir þeirra hjóna. Jarð- sett var i Kjarna grafreit. Séra Jó- hann Bjarnason jarðsöng. — Jó- hannes Bergman var dugnaðarmað. ur og dregur góður, er ýmsir, auk ástvina, munu sakna við burtför hans. STROKKUR GÝS í fyrradag fór Trausti Einars- son stjörnufræðingur austur að hvernum Strokk í Biskupstungum í þeim tilgangi að fá hverinn til að gjósa. Fór Trausti þessa för að til- hlutun forsætisráðherra. Lækkaði Trausti yfirborð vatns- ins um einn meter með þvi að dæla vatni úr hvernum, og bar það þann árangur, að hverinn gaus skömmu fyrir hádegi í gær. % Var gosið um 20 m. hátt og bár- ust upp með því kynstrin öll af grjóti og rusli, sem safnast hafði fyrir í skálinni. Var þyngsti steinn- inn 12 y2 kg., en margir um 5 kg. Hverinn hafði ekki gosið aftur, þegar blaðið frétti seinast. Strokkur hefir ekki gosið lengi undanfarið.—N. dagbl. 11. sept. Dánarfregn Á sunnudaginn þann 29. septem- ber síðastliðinn lézt að heimili sínu í Wynyard, Sask., merkisbóndinn Jóhann Tryggvi Frederickson, 78 ára að aldri. Mr. Frederickson var fæddur á íslandi árið 1857 og flutt- ist vestur um haf 1874, kvongaðist 1881 eftirlifandi ekkju sinni, Val- gerði, systur Dr. Björns B Jóns- sonar og þeirra systkina. Auk ekkj- unnar lætur Mr. Frederickson eftir sig fjórar dætur, Ethel í Wynyard, Mrs. T. Gorick í Prince Albert, Mrs. B. Hjálmarson í Regina og Björgu píanókennara i Winnipeg; einnig lifa hann tveir synir, Carl í Kandahar og B. Fréderickson í Saskatoon. Kjósið Thorson í Selkirk allir sem einn! Um það verður ekki deilt, að vestan vatnanna miklu, oq þó viðar sé leitað, mimi fá kjördœmi eiga kost á því að velja slíkan fulltrúa á sambandsþing, sem Selkirk-kjördœmið, þar sem Mr. J. T. Thorson er; mann, er sakir einlœgni, mælsku, lærdóms og mann- kosta, hefir vakið á sér álþjóðar athygli; mann, er slík- an orðstír gat sér á þingi, og það jafnvel fyrsta árið, að talað var þegar alment um hann sem ráðgjafaefni; nú er hann beinlínis skoðaður sjálfsagður í slíka stöðu, sigri frjálslyndi flokkiorinn í nœstu kosningum, sem ekki þarf að efa. Canadiska þjóðin þarfnast Mr. Thorsons á þing. Selkirk-kjördæmi hefir aldrei áður átt kost á slíkum afburðamanni, og íslendingar standa nú nær því en nokkru sinni fyr, að eignast ráðgjafa í sambandsstjórn þessarar þjóðar„ Málstaður canadisku þjóðarinnar krefst þess að Mr. Thorson verði kosinn á þing þann 14. þessa mánað- ar, og tslenzk þjóðrækni krefst þess líka.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.