Lögberg - 21.11.1935, Síða 1
PHONE 86 311
Seven Lines
&$$!****
c»r•
For
Service
and Satisfaction
48. ÁRGrANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 21. NÓVEMBER, 1935.
NÚMER 47
Mikilvœg tímamót í sögu hinnar
Canadisku þjóðar
Viðskiftasamningar undirskrifaðir milli Canada og
Bandaríkjanna, víðtækari og veigameiri, en jafnvel ein-
dregnustu formælendur slíkra samninga höfðu látið sig
dreyma um.
Samningar þessir voru nndirskrifaðir á föstudaginn
var af Mr. King, forsætisráðgjafa hinnar canadisku j)jóð-
ar og Cordell Hull utanríkisráðgjafa Bandaríkjanna í
viðurvist Roosevelts forseta. Samninga þessara er frek-
ar minst á öðrum stað hér í blaðinu.
Urslit brezku kosninganna
Þjáðstjórnin brezka undir forustu Stanley’s Baldwin,
vinnur glæsilegan kosningasigur.
UPPSKERA HVEITIS I
CANADA
Samkvæmt upplýsingum frá hag-
stofu hinnar canadisku stjórnar, er
áætlað að hveitiuppskera þjóðarinn-
ar á ári því, sem nú er að lítSa, nemi
273,971,ooo mæla. Er það um tveim
miljónum minna en í fyrra.
IIEILIR A HÚFI
Þeir félagarnir fimm, er voru á
skipinu Luana, er fraus inni á Win-
nipegvatni fyrir þremur vikum,
komu allir til heimila sinna heilir
á húfi um miðja vikuna sem leið,
eftir langt og þjakandi ferðalag.
Menn þessir voru þeir Roy Cook,
John Fiddler, Allan Jones, Leifi
Hallgrímsson og Helgi Thomasson.
Hinir tveir fyrstnefndu eiga heima
í Selkirk, Mr. Hallgrímsson í River.
ton, en þeir Allan Jones og Helgi
Thomasson í Mikley. Eigandi skips-
ins er Mr. Chris. Thomasson út-
gerðarmaÖur í Mikley.
KVAT.T TIL FLOKKS-
ÞINGS
íhaldsmenn hér í fylkinu hafa á-
kveðiÖ að kveðja til flokksþings á
næstunni, með það einkum og sérí-
lagi fyrir augum, a'S velja sér for-
ingja, því eins og stendur eru þeir
sem höfuðlaus her. Getið er þess til,
að fyrir valinu verði annaðhvort
James Bowman, fyrrum forseti
Neðri málstofu sambandsþingsins,
eða Erric Willis fyrverandi sam-
bandsþingmaður fyrir Souris .kjör-
dæmið. Báðir þessir menn féllu í
nýafstöðnum sambandskosningum.
RAÐSTEFNA MILLI SAM-
BANDSSTJÖRNAR OG
FYLKJA
Forsætisráðgjafi sambandsstj órn-
arinnar, Mr. King, hefir lýst yfir
því, að sambands og fylkjastjórna
fundurinn fyrirhugaði, hefjist í
Ottawa þann 9. desember næstkom-
andi. Meðal annara mála, sem fyrir
fundi þessunt liggja, verða ráðstaf-
anir viðvíkjandi atvinnuleysinu, sem
og uppástungur um væntanlegar
breytingar á stjórnarskránni. Öllum
forsætjisráðgjöfum hinna einstöku
fylkja, hefir verið boðið að sækja
fundinn, og hafa þeir allir tekið
boðinu.
VEL AÐ VERIÐ
Hreinn ágóði af starfrækslu síma.
kerfisins. í Manitoba frá ársbyrjun
og til loka októbermánaðar, nemur
$1,234,078. Er það $97,000 meiri
upphæð en á tilvarandi tímabili í
fyrra. Ráðgjafi símamálanna er
W. J. Major.
ENDURKOSINN TIL
BORGARSTJÓRA
Við bæjarstjórnarkosningar þær,
sem fram fóru síðasta föstudag, var
George H. Bárefoot, endurkosinn
borgarstjóri í St. Boniface með 442
atkvæðum umfram gagnsækjanda
sinn, F. R. Dawse, fyrrum borgar-
stjóra.
KREFST LÆKKAÐRA
VAXTA
Símað er frá Washington þann
14. þ. m., aÍS Roosevelt forseti hafi
skorað á alla bankastjóra þjóðar-
innar, að beita sér fyrir lækkun
vaxta á útlánsfé nú þegar. Telur
Mr. Roosevelt hina háu bankavexti
vera hættulegan þránd í gotu fyrir
sjálfsagðri og óumflýjanlegri við-
reisn á sviði viðskiftalífsins. Ekki
fór Mr. Roosevelt nánara út í þessa
sálma en það, að óhjákvæmilegt
væri velfarnan þjóðarinnar vegna.
að vextir yrði nokkru lægri en sex
af hundraði.
MÁLVERKASÝNING
EMILE WALTERS
Mannfjöldi mikill af flestum, ef
ekki öllum þeim þjóðflokkum, er
þessa borg byggja, hefir daglega sótt
sýningu þá af málverkum frá íslandi
eftir Emile Walters, listmálara, er
opin hefir verið á 6. lofti Eaton
búðarinnar frá 11. þ. m. og heldur
áfram til þess 23.—
Málverk þessi, flest hver, eru af
frægum sögustöðum á íslandi; eru
mörg þeirra allstórfengileg, svo sem
af Þingvöllum og Eyjaf jallajökli. Á
hinn bóginn verður sú staðreynd
samt ekki undir neinum kringum-
stæð umflúin, að sögustaðirnir, þó
á þá slái æfintýraljóma liðinna alda,
erti ekki ávalt fegurstu staðirnir, og
gefa þarafleiðandi ekki ókunnugu
auga óskeikult yfirlit yfir glæsileg-
ustu sérkenni landsins. Engu að
síður hafa málverk þessi sérstætt
gildi fyrir íslenzka listmenning; yfir
þeim hvílir hressandi blær háfjalla
og jökla dranga óg dala, merktur ó-
þrotlegum litbrigðurti íslenzkra nátt-
úrudýrðar. Hrikafegurð íslands
nýtur sin öllu öðru betur í svip
þessara málverka; enda er það sú
fegurðin, sem ísland er auðugast af,
þó viða kenni innan um móðurlegr-
ar mildi.
Hr. Emile Walters er merkur
málari; um það verður ekki vilst.
Og með ferð sinni hinni síðustu til
íslands, og málverkum þeim að
heiman, er nú hafa nefnd verið, hef-
ir hann unnið íslenzku þjóðinni var.
anlegt gagn. Ensku dagblöðin tvö,
sem gefin eru út hér í borginni, fara
eínkar lofsamlegum orðum um mál-
verkasýningu þessa og málarann.
FRA
FYRIRLESTRAFERÐUM
ASGEIRS ASGEIRSSONAR
Fyrirlestrum hr. Ásgeirs Ásgeirs-
sonar fræðslumálastjóra hefir hvar.
vetna verið tekið með fögnuði, að
því er ráða má af þeim Bandaríkja-
blöðum, er oss hafa borist í hendur.
í höfuðborg North Dakota ríkis
var hinum góða gesti fagnað af rik-
isstjóra og öðru stórmenni; hlýddi
hálít þriðja þýsund manns á erindi
hans þar. Guðmundur Grímsson,
héraðsdómari, kynti Ásgeir hinum
mikla mannfjölda.
Á vopnahlésdaginn, þann 11. þ. m.
var Ásgeir aðal ræðumaðurinn í
Minneapolisborg. ísland gal naum.
ast fengið betri fulltrúa til þess að
mæla máli sínu í Vesturheimi, en
Ásgeir Ásgeirsson.
LÆTUR AF EMBÆTTI
Hon. D. G. McKenzie.
Síðastliðinn föstudag, gerði Hon.
John Bracken, forsætisráðgjafi
Manitobafylkis það heyrinkunnugt,
að landbúnaðarráðgjafi fylkisstjórn-
arinnar, Hon. D. G. McKenzie,
hefði ákveðið að láta af embætti í
lok yfirstandandi mánaðar. Missir
fylkisstjórnin með því úr þjónustu
sinni ágætan og samvizkusaman
mann. Mr. Mckenzie var fyrst kos-
inn á þing 1928 í Landsdown kjör-
dæminu eftir að þingmaður þess,
Hon. T. C. Norris, lét af þing-
mensku; gekk hann þá í ráðuneyti
Mr. Brackefts sem náttúrufríðinda-
ráðgjafi; því embætti gegndi hann
þar til eftir kosningarnar 1032, er
hann tókst á hendur forustu land-
búnaðarráðuneytisins. Þess er vænst
að Mr. McKenzie haldi áfram þing.
mensku unz núverandi kjörtímabij
rennur út. í byrjun næsta mánaðar
tekst Mjr. McKenzie á hendur stöðu
sem aðstoðar framkvæmdarstjóri og
varaforseti United Grain Growers
féíagsins.
BREYTING TIL
BATNAÐAR
Skálar þeir, sem starfræktir hafa
verið hingað og þangað um landið
fyrir atvínnulausa, einhleypa menn,
er hermálaráðuneytið í Ottawa hafði
áður yfirumsjón með, hafa nú ver-
ið fengnir verkamálaráðuneytinu til
fullrar forsjár, að því er símfregnir
frá Ottawa herrna.
UPPÞOT í CAIRO
Á fimtudaginn þann 14. þ. m.,
varð uppþot nokkuð í borginni Cairo
á Egyptalandi; voru tveir menn
skotnir til dauðs og nokkrir særðir.
Voru það, að sögn, einkum stúdent-
ar er i uppþotinu tóku þátt, og
kröfðust aðskilnaðar við Breta.
Stjórn Breta ber ítölum það á brýn,
að undirróður af þeirra hálfu hafi
orsakað óspektir þessar, og hefir
falið sendiherra sínum í Róm, Sir
Eric Drummond, að bera fram öflug
mótmæli við Mussolini gegn hvers
konar fylgisöflun á Egyptalandi.
FULLVELDI FILIPPSEYJA
VIÐURKENT
Þann 15. yfirstandandi mánaðar
gerðust þau tíðindi, að Filippseyjar
fengu formlega viðurkent fullveldi
sitt, eftir að hafa lotið öðrum i f jög-
ur hundruð ár. Hinn fyrsti forseti
lýðveldisins, Manuel Quezon, af-
lagði embættiseið þann dag í höfuð-
borg hins nýja lýðveldis, Manila, að
viðstöddu miklu fjölmenni. Meðal
stórhöfðingja, er viðstaddir voru,
má nefna þá John Garner vara-for-
seta Bandarikjanna og George Dem,
hermálaráðgjafa, er færðu Mr. Que.
zon og þjóð hans, ámaðaróskir frá
Roosevelt forseta. Sjálfsstjórn sú,
er Filippseyjar nú njóta, er bundin
við tíu ára tilraunastig; lánist íbú-
um þeirra ekki heimastjórnin, koma
Bandaríkin til sögunnar á ný, að
þeim tírna liðnum, eða jafnvel fyr.
KVEÐJA FRA
FRÚ JAKOBINU JOIINSON
í bréfi til ritstjóra þessa blaðs,
meðteknu síðastliðinn mánudag, bi'ð-
ur frú Jakobína Lögberg að flytja
hinum mörgu vinum sínum hér
eystra alúðarþakkir fyrir ógleyman. j
legar viðtökur þann tíma, sem hún i
dvaldi á þessum slóðurn, bæði á
leiðinni til íslands og eins eftir að
vestur kom. Sifjaliði hennar öllu í
Seattle leið upp á hið bezta, er hún
kom þangað úr sigurför sinni austan
um ver.
REFSISAM TÖK 1 GILDI
Síðastliðinn mánudag gengu í
gildi refsisamtök 52 þjóða gegn
Itölum, vegna árásar þeirra á
Ethiópíu. Hættu þessar þjóðir þá
allar kaupum á ítölskum vörum, og
takmarka mjög innflutning til ítalíu,
einkum á járni, stáli og olíu.
ENDURKOSNING TIL
BORGARSTJ ÓRA
Mr. Joseph A. Clarke, var endur-
kosinn til borgarstjóra í Edmonton
þann 13. þ. m., með afar miklu afli
atkvæði. Þessi vinsæli og harðsnúni
borgarstjóri i Edmonton-borg, geng-
ur þar alment undir nafninu “Fight.
ing Joe.”
HERSKYLDA A
BRETLANDI?
Simað er frá Lundúnum Jiann 14.
þ. m., að talið sé víst, að þess verði
ekki langt að bíða unz lögíeidd verði
herskylda á Bretlandi hinu mikla.
Að útgjöld til hers og flota verði
jafnframt aukin til muna, er hið ný-
kosna þing kemur saman, er heldur
ekki dregið í efa, eftir ummælúm
brezkra blaða að dæma.
GENGUR SIGRANDI AF
HÓLMI
Við endurtalningu atkvæða, hefir
G. G. MoGeer, borgarstjóri í Van-
couver, verið lýstur rétt kjörinn
sambandsþingmaður fyrir Vancou-
ver-Burrard kjördæmið með sex at-
kvæða meirihluta umfram næsta
keppinaut sinn, Arnold Webster,
C. C. F. Með kosningu McGeer’s
bætist frjálslynda flokknum eitt
þingsæti enn.
LOSTFAGUR VARNINGUR
OG LOSTÆTUR
Ingólfur Espólín hefir þegar vak_
ið mikla eftirtekt á hraðfrystum
matvörum, er hann hefir sent víðs-
vegar út um heim.
Eins og áður hefir verið skýrt frá
í ýmsum blöðum vorum, hefir hann
fundið upp sérstaka hraðfrystiað-
ferð, sem hefir mikla kosti fram
yfir þær frystiaðferðir, sem áður
hafa tíðkast. Ef vel er um hin
frystu matvæli búið, geymast þau
um langan tíma í kælirúmi án þess
að þiðna og má þannig senda þau
um áraveg til landa í framandi
heimsálfum. — Þegar þau svo eru
matreidd þar, reynast þau öldungis
sem ný væru og fersk, því að frostið
hefir að engu leyti spilt bragði
þeirra, en slíkt hefir ekki áður mátt
segja um frystar matvörur fram að
þessu.—Eg hefi sannfærst um að
svo er, af því eg sjálfur hefi prófað
vörurnar, bæði fisk, hrogn og skyr,
sem Espólín sendi mér. Eg og gest-
ir rnínir, sem fengu að smakka þær
með mér, dáðumst að vörunum, hve
laglega var um þær búið og hve
bragðgóðar þær voru eftir frysting-
una.
ömmur okkar, sefn ætið kviðu
fyrir hörðu frostunum vegna skyrs-
ins og súra slátursins í búrinu (sem
hvorttveggja varð bragðlaust óæti,
ef frostið gagntók það), — þær
ViÖ kosningar þær til brezka
þingsins, er fram fóru á fimtudag-
inn 14. þ. m., fóru leikar þannig, að
stjórn sú, undir forustu Stanley’s
Baldwin, er setið hefir að völdum
síðan 1931, vann frægan sigur. Alls
eiga sæti i neðri málstofu þingsins
614 þingmann; þar af telur stjórnar.
flokkurinn 434 sæti. Frjálslvnda
flokksins gætir vart á næsta þingi,
hefðu svarið fyrir að nokkurn tíma
mundi takast að hraðfrysta skyr án
þess það dofnaði á eftir. En þetta
hefir tekist með hraðfrystiaðíerð
Espólíns, og það svo vel, að nú má
senda skyrið okkar suður fyrir mið-
jarðarlínu til svertingja í Kóngó, og
það er sem óbreytt og alveg nýtt,
eftir að það hefir verið þítt í sjóð-
heitu vatni.
Þorskurinn var svoddan fyrirtak
að mér og gestum mínum varð eink-
um tiðrætt þar um, því þorskurinn
er nú einu sinni okkar merkasta
markaðsvara, okkar þjóðarsómi og
sá þjóðarstyrkur, sem öll vor sjálf-
stæðistilvera er undir komin. —■
“Þetta er sannur herramannsmatur,”
sagði einn. “Eg hefi nú aldrei feng-
ið betri fisk á æfi minni,” sagði
annar, og hann bætti við: “Svona
markaðsvara verður blátt áfram til
að bjarga okkur út úr skuldunum.—
Svona ágætur þorskur, borinn á
borð fyrir sælkerana í matsöluhús-
um stórborganna, verður á við okkar
allra beztu íslendingasögur og allan
skáldskap til að auglýsa vora stór-
gáfuðu, skólagengnu þjóð!”
Nú á dögunum sendi Espólin mér
litla myndabók eða albúm, sem kall-
að er. En þar voru á hverri síðu
upplímdar vel teknar, gljáfagrar
ljósmyndir, ekki þó af neinum fríð_
Ieiks mönnutn eða konum, heldur
þorskum, og þó ekki aðallega þorsk-
um í heilu lagi, heldur hraðfrystum,
laglega niðurskornum þorskbútum,
gaddhörðum; og skein í sárið, glært
og skínandi hvítt á víxl, líkt og
þarna væru silfurbergskristallar úr
Helgustaðaf jalli.
Ennfremur voru þarna skírar
myndir af hinum fallegu og smekk-
legu umbúðum utan um ísfiskinn.—
Kassar, fóðraðir innan með flóka-
pappa og fiskbútar vafðir hvítum
pappir, mismunandi stórir, V2, I, 6
kg. á þyngd, en utan á fiskpakkana
og kassana var letrað bæði á ensku,
þýzku og frönsku um innihaldið
(Icelandic filleted codfish) og leið-
arvísir hvernig skulf sjóða og steikja
fiskinn án þess að þíða bútana áður
en þeir séu settir í sjóðandi pottinn
eða á sjóðheita pönnuna.
Það er nærri ótrúlegt, hve mikla
þýðingu það hefir að snoturlega og'
vel sé um hverja vöru búið, til þess
að hún veki athygli og eftirspurn.—
Við þekkjum þetta læknarnir, sem
fáum iðulega sendar nýjar tegundir
lyfja í gljáandi skrautlegum umbúð-
um, sem smám saman útrýma eldri
lyfjunum.
Það er sem eg sjái útlendu kokk-
ana og húsmæðurnar þegar þær
opna Espólíns-bögglana og hvolfa úr
þeim kristallshvítum jökulhörðum
ísfisksbútunum ofan í pottinn. —
Iceland-fish! — Hvaðan skyldi
svona ísfiskur vera nema frá ís-
landi? Já, auðvitað frá Islandi,
þessu kalda landi, þar sem hann hef-
ir gaddfrosið í kuldanum um leið og
hann var dreginn upp úr sjónum!
Eða máske hefir hann verið pjakk-
aður fram með öxum eða íshöggi
út úr einhverri auðugri fisknámu
djúpt inni í Vatnajökli? Eða má-
þó Lloyd George næði að vísu kosn-
ingu. Aðal andstöðuflokkur stjórn-
arinnar verður verkamannaflokkur-
inn; jókst honum allmjög fylgi.
Þeir Ramsay McDonald, fyrrum
stjórnarformaður, og Malcolm son-
ur hans, nýlenduráðgjafi, tiiðu báð-
ir ósigur í kosningunum. Sir Her-
bert Samuel náði heldur ekki kosn-
ingu.
ske sagaður út úr hafsjökum þar við
strendurnar — Very interesting!
Chose remarquable!
. Steingr. Mattluasson.
—íslendingur 11. okt.
Or borg og bygð
Nýlátinn er hér i borginni Níels
Gíslason, plastrari, sextugur að aldri.
Mr. Guðmundur Sigurðsson ak-
týgjasmiður frá Ashern, Man., dvel-
ur í borginni um þessar mundir.
Séra Jóhann Bjarnason biður þess
getið hér í blaðinu, að honum hefir
verið gert aðvart af Canadian Pas-
senger Association, 320 Union Sta-
tion, hér í borg, að bækur þær fyrir
1936, er veita prestum niðursett far
á járnbrautum, eru nú reiðubúnar,
og að þeir prestar sem notið hafa
hlunninda þessara i ár geta fegið
næsta árs bók hvenær sem er, með
því að senda $2 til áðurnefnds f élags
ásamt umsókninni. Umsóknina má
fylla út á spjald, sem er aftast í
hverri bók, og er það einfaldasti og
þægilegasti mátinn. Niðurfærzlan
er á járnbrautum Canada megin, en
Bándaríkja prestar njóta þó sömu
hlunninda sem þeir er búsettir eru
norðan megin merkjalínu ríkjanna.
VEITIÐ ATHYGLI!
Junior Ladies Aid Fyrsta lúterska
safnaðar, heldur “St. Nicolas Tea”
seinni part dags og að kveldinu þann
3. desember næstkomandi, í sam-
komusal kirkjunnar. Pöntunum að
jólakökum veitir viðtöku Mrs.
Walter Jóhannsson, sími 35 707.
Nánar í næsta blaði.
Conveners: Mrs. W. R. Pottruff,
sími 36860; Mrs. S. Sigmar, sími
34 919; Mrs. G. Finnbogason, Agnes
Street.
ASKORUN.
Þá af meðlimum Þjóðræknisfé-
lags íslendinga í Vesturheimi, er
ekki þegar hafa greitt ársgjald sitt
fyrir yfirstandandi ár, vildi eg vin-
samlegast biðja jið senda mér það
við fyrstu hentugleika.
Árstillagið er einn dollar, og fá
allir félagar einn eintak af Tímariti
félagsins sent, sér að kostnaðarlausu.
Eg sendi föður mínum heim til
íslands nokkra af síðustu árg. Tíma.
ritsins og hann skrifar mér:
“Hjartanlega þakka eg þér fyrir
Tímaritið, sem þú sendir mér; það
er alveg skínandi rit, bæði að efni
og frágangi öllum, og félaginu til
stórsóma, og það vona eg að svo
lengi sem því riti er haldið út í sama
stil og af jafnmikilli prýði, þá hald-
ist íslenzkt þjóðerni við meðal landa
í Ameríku.
Þannig líta Islendingar heima á
ritið ykkar, kæru landar- Eflið
þjóðræknissamtök Vestur-íslend_
inga með því að ganga í Þjóðrækn-
isfélagið og greiða árstillag ykkar.
Guðmann Levy,
fjármálaritari.
251 Furby St.,
Winnipeg, Man.