Lögberg - 02.01.1936, Blaðsíða 1

Lögberg - 02.01.1936, Blaðsíða 1
49. ÁBG-ANGUR WINNIPÍJG, MAN., FIMTUDAGINN 2. JANtJAR, 1936. NÚMER 1 Kveiktu á kertum mínum (Jólavísur) Kveiktu á kertum mínum, kertum, brunnum, drauma minna, bjarta nótt með blysum þínum! Kveiktu á kertum mínum, kertum, daufum, trúar minnar, gaiðleg nótt með geislum þínum! Kveiktu á kertum mínum, kvndli sannleiksástar minnar, Drottins nótt m,eð djásnum þínum! Kveiktu á kertum mínum, kærleiksglæðum sálar minnar, lífsins nótt með ljósum þínum! Richard Beck. Hin eilífa leit Hvað ertu maður, eirðarlausi andi! Ókunnur gestur þínu föðurlandi? Ilvað er þín leit að láni, frægð og auði? Launin, sem bíða: þrot og fall og dauði! Hlauparans brjóst af mæði í marki springur. Morðinginn síðast eigið lijarta stingur. Fullhuginn efst af Himalaja hrapar. Hamingjan sínu lokaveði tapar. Kappinn, sem berst og' eignast lönd og álfur endar með því að verða minstur sjálfur. Myndin, sem gevmist lielzt er hinsta vörnin; lieimurinn þekkir Vaterloo og örninn. Þá, sem að djarfast leita á hafsins leiðir líkblæjur sínar hrönnin vfir breiðir. Svifhæsta vænginn engin ábyrgð styður, Ámundsen flaug og sökk í djúpið niður. —Enn þá skal stvrt í sortann út á sundið, sótt á þau mið, sem enginn hefir fundið, ennþá skal bratta og liáa hamra klífa í himininn upp á nýjum vængjum svífa. Ryðja skal merkur, byggja brýr og vegi; brjóta þeim leið, sem fagna næsta degi, starfsglöðum lýð, sem auðn í akra breytir. Ávöxtinn stærsta moldin jar^ar veitir. Aldrei skal hika, hættan lokkar, seiðir; hugrekkið finnur alt af nýjar leiðir. Öllu skal fórnað, lífið lagt að veði. Leitin ér mannsins eina sanna gleði. Að leita er alt, en lítilsvert að finna. Lífið er slökt í fylling vona sinna. Snauður er sá, sem eignast allan lieiminn; auðugir þeir, sem leita um víðan geiminn. Er lífið þá aðeins leit að falli og tapi, lögmálið eitt: að sérhver stjarna hrapi? Hefir þá enginn æðri máttur völdin, sem ætlar þér nýja leit á bak við tjöldin? Hvað hefir insta örsmæð þín að hvlja, alvizkusmíð, er list ])ín helzt að dylja? Hvað liefir yzta útsýn þín að geyma, endalaust stærri, fegri og betri heima? \ Pétur Benteinsson, frá Grafardal. —Dvöl. DEYR AF SLYSFÖRUM Seinni part dags á annan í jólum, dó af slysi, Mr. G. F. Chipman, rit. stjóri blaðsins Country Guide, sem gefi'ð er út hér í borginni. Atburð- ur þessi vildi til með þeim hætti, er Mr. Chipman var staddur i gróðrar- stöð þeirri, er hann starfrækti í Charleswoodbygð, að skot hljóp úr byssu, er hann hafði handleikis og varð honum samstundis að bana. Mr. Chipman var 54 ára að aldri; hann var landskunnur af blaða- mensku sinni, en frægur vitt um heim fyrir afskifti sin af blómarækt. Mr. Chipman var einn í hópi þeirra manna, er djarflegast unnu að sam- tökum bænda í Manitobafylki, og þá ekki hvað sízt að þátttöku þeirra í stjórnmálum. Gætti áhrifa hans mikið og víða í kosningahríðinni 1922, er bændaflokkurinn kom til valda hér í fylkinu, og Mr. Bracken varð stjórnarformaður. Frá því 1926 fylgdi Mr. Chipman liberal- flokknum jafnan að málum í sam- bandspólitik, og var fylgi hans alla jafna þungt á metum. Jarðarför Mr. Chipmans fór fram hér í borg að viðstöddu feikna fjöl. menni á laugardaginn var.— RAÐGJAFI MYRTUR Símað er frá Shanghai þann 26. f. m., að þá um morguninn hafi Tang Yu-Jen, járnbrautaráðgjafi hinnar kínversku stjórnar verið myrtur. Það fylgir fréttinni, að liann hafi þótt helzti hliðhollur Tap- önum, og þarafleiðandi sopið af því seyðið. Sjónarvottar töldu tvo unga Kínverja hafa valda verið að til- verknaði þessum. JIEFST IIANDA / ALVÖRU Hinn nýi utanríkisráðgjafi Breta, hefir lýst yfir þvi, að hert verði upp frá þessu stranglega á refsisam. tökunum gegn ítalíu; verði þess nú ekki langt að bíða unz bannaður verði með öllu innflutningur á olíu og kolum þangað til lands. Ýnisar þjóðir, svo sem ,Grikkir, Frakkar, Tyrkir, Yugo-Slavar og Rúmeníu- menn, hafa heitið Bretum eindregn- um stuðningi í því falli, að ítalir stofni til árása í Miðjarðarhafinu. Þess er og getið, að Spánn og Portúgal telji sér skylt, samkvæmt orði og anda Þjóðbandalagssáttmál- ans, að vinna að refsisamtökum gegn ítölum, unz yfir lýkur í of- sóknum þeirra og hernámsferðuin á hendur Ethiópíumönnum. Áramót Alt af hækkar markið meira, mætti knúin tímans liönd. Alt af berst og fellur fleira feigt á ])ögul húmsins lönd. Hulinn kraftur öllu yfir örlaganna hjóli snýr. Spekin sem í ljósi lifir lífsins takmörk öllu býr. Dagar, ár og aldir líða út í þögult tímans haf, sorgin þung og sælan blíða sýna vísdóm hans er gaf. Þegar líf vort léð af mildi lýkur göngu liinsta dag, verður aðeins eitt í gildi okkar verk og hjartalag. Gamla ár, þinn aftan hljómar, öllu býður góða nótt, senn hið nýja sólin ljómar signir alt með von og þrótt. Uyftum lmg og hönd á vegi, höldum trú á líf.sins mátt. Uögnum ársins fagra degi fylgjumst vel af hug og sátt. M. MarMsson. FYIIRUM RÍKISSTJÓRI 1 N. DAKOTA, WM. LANGER, SÝKNAÐUR AF AKÆRUM Eins og mönnum vafalaust stend- ur enn í fersku minni, var William Langer vikið frá ríkisstjóra embætti í North Dakota fyrir frekum tveim árum ; var honum meðal annars bor_ ið á brýn meinsæri, sem og það að hann hefði á óleyfilegan hátt veitt fjárhagslegan stuðning einu aðal málgagni sínu, eða ríkisstjórnarinn. ar í þeirri tíð, “The Eeader.” Nú hefir Mr. Langer verið alsýknaður af öllum ákærum í þessu sambandi, ásamt þremur samherjum sínum, og er því hneykslismál þetta þar með úr sögunni. TVENNAR AUKA- KOSNINGAR Tveir af ráðgjöfum Sambands- stjórnarinnar, þeir Hon. James G. Gardiner, og fjármálaráðgjafinn, Hon. Charles A. Dunning, verða báðir að leita kosningar til Sam- bandsþings, með því að hvorugur þeirra var í kjöri við hinar almennu kosingar, sem fram fóru þann 14. október síðastliðinn. Aukakosning- ar þessar fara fram þann 6. þ. m. Mr. Gardiner býður sig fram í As- siniboia kjördæminu í Saskatche- wan; til höfuðs honum er settur William Irvine, C.C.F., prédikari, ritstjóri, leikritahöfundur, fyrver- andi sambandsþingmaður, og hreint ekki ósennilega sitthvað fleira. Mr. Dunning leitar kosningar í Queens. kjördæminu á Prince Edward Island, og verður kosinn þar gagn- sóknarlaust, síð því er símfregnir þaðan að austan herma. HASKÓLA KJÖRDÆMI A SKOTLANDI BÝÐUR RAMSAY MacDONALD ÞINGSÆTI Skozkir háskólar eiga þrjá þing- menn í brezka þinginu. Eitt sætið losnaði nýverið við fráfall Noels Skelton, er kosinn var í síðustu þing- kosningum á Bretlandi. Nú hafa stjórnarsinnar í því kjördæmi sent Mr. MacDonald áskorun um að verða þar í kjöri og fullvissa hann um kosningu. Eins og kunnugt er, beið Mr. MacDonald alvarlegan ó- sigur í Seaham kjördæminu fyrir Mr. Shinwell, frambjóðanda verka. mannaflokksins, en var þó endur- skipaður í hið fyrra embætti sitt í ráðuneyti Mr. Baldwins. NÝTT RAÐIIÚS 1 VANCOUVER Bæjarstjórnin í Vancouver hefir ákveðið að láta reisa nýtt ráðhús þar í borginni í tilefni af hálfrar aldar afmæli borgarinnar. Carter-Halls- Aldinger byggingaíélagið hefir tek- ið að sér að koma stórhýsi þessli upp fyrir $885,000. FIMTIU ARA AFMÆLI VANCOUVERBORGAR Á ári því, sem nú hefir rétt hafið innreið sína, heldur Vancouverborg hátíðlegt hálfrar aldar afmæli sitt. Er víðtækur undirbúningur þegar hafinn, og má fullyrða að hátíðar- haldið verði bæði stórfengilegt og eftirminnilegt. “Fæðingardagur” borgarinnar er talinn að hafa verið 4. júli 1886. Ráðgert er að afmæl- isfagnaðurinn byrji þann 24. maí, og standi yfir í einhverju formi til þess 22. ágúst. ENDI BUNDINN A VIÐ- SKIFTADEILU MILLI CANADA OG JAPAN Frá því í júlímánuði síðastliðn- um hefir staðið yfir viðskiftadeila milli Canada og Japan, báðum aðilj- um til tjóns, og þá ekki síðuV hinni fyrnefndu þjóð. Nú hefir King- stjórninni lánast að leysa svo þenna Gordions hnút, að til stórra hags- muna verður fyrir canadisku þjóð- ina, og stuðlar auk þess að aukinni samúð meðal þjóðanna beggja. SENDIIIERRA SAMBANDl SAGT UPP Simað er frá Montevideo þann 28. f. m., að Uruguay lýðveldið hafi þann dag slitið sendiherrasambandi við Rússland. Það fylgir sögunni, að Uruguay stjórn sé ekki ugglaus um pólitískan undirróður af hálfu Sovietstjórnarinnar, og telji jafn- vel líklegt, að hún hafi átt að ein- hverju leyti þátt i nýafstöðnum óeirðum í Brazilíu. FÆR TRAUSTSYFIRLÝS- INGU 1 ÞRIÐJA SINN Þrisvar sinnum í vikunni sem leið, var borin fram vantraustsyfirlýsing í franska þinginu á hendur Laval- stjórninni, og í öll skiftin gekk sitjórrtin sigrandi af hólmi. Til- raun var til þess gerð, að rökstyðja vantraustsyfirlýsinguna með ákær- um út af ráðstöfunum stjórnarinn- ar í sambandi við hinar dularfullu samningatilraunir um frið milli ítala og Ethiópíumanna, er. kostuðu utanríkisráðgjafa Breta, Sir Samuel Hoare, í pólitískum skilningi, lífið. KIPLING SJÖTUGUR Þann 30. desember síðastliðinn, átti skáldmæringurinn brezki, Rud- yard Kipling, sjötugsafmæli. Hefir hann dregið sig mjög í hlé úr hring- iðu hins daglega lífs og lifir ein- földu og kyrlátu lífi á bústað sínum í Sussexhéraði. Oft og þrásinnis var þess getið til, að Kipling hlyti að verða hið viðurkenda “lárviðar- skáld” þjóðar sinnar áður en langt um liði, og þótti ýmsum hann frem. um verðskulda þá viðurkenningu en þeir John Masefield og Sir James Barrie. Sem stendur er John Mase- field hið “launaða lárviðarskáld” hinnar brezku þjóðar. RAUSNARLEG GJÖF 1 Thomas W. Lamont, meðeigandi i J. P. Morgan fésýslufélaginu víð- kunna, gaf Harvard háskólum hálfa miljón dala í jólagjöf, til þess að stofna þar nýtt prófessorembætti i hagfræði. STÖRF METIN AÐ MAKLEIKUM Svo má segja, að blöð þessa lands séu því nær á einu máli um það, að Ottawafundurinn nft'afstaðni miilli Sambandsstjórnarinnar og stjórna hinna einstöku fylkja, hafi hepnast hið bezta og borið mikilvægan árangur. Blaðið Montreal Gazette (conservative) kemst meðal annars þannig að orði: “Er tekið er tillit til þess, hve mörg og umfangsmikil þau við- fangsefni voru, er fyrir fundinum lágu, er sýnt, að meira vanst á en viðgekst í liðinni tíð á svipuðum ráðstefnum. Var það og athyglis- vert, hver eining einkendi störf fundarins.” Hækkur sú hin mikla, 75 af hundraði, er Sambandsstjórnin frá ársbyrjun veitir fylkjunum til at- vinnumálanna, hefir vakið fögnuð um land alt. SAMBANDSÞING KEMUR SAMAN ÞANN 30. Þ. M. Símað er frá Ottawa þann 31. desember síðastliðinn, að sambands- þingið í Ottawa verði sett á hádegi þann 30. yfirstandandi mánaðar. Líkur þykja til, að Pierre Cas- grain, þingmaður fyrir Charlevox- Sagueney kjördæmið í Quebec, verði forseti neðri málstofunnar. KOMIÐ TIL ÁRA SINNA Þann 29. desember síðastliðinn átti blaðið Halifax Chronicle 112 ára afmæli. Upphaflega hét blað þetta “The Nova Scotian” og kom hið fyrsta tölublað þess út þann 29. desember árið 1824. Var hinn fyrsti ritstjóri þess Joseph Howe, nafn- kunnur stjórnmálafrömuður, er fyrstur kom því til leiðar, að Nova Scotia öðlaðist sjálfstjórn í svipuðu formi sem nú viðgengst um hin canadisku fylki. Þetta var árið 1848. Frá Islandi Or Skagafjarðarhcraði— Refir hafa verið með allra mesta móti i fjöllum umhverfis Skaga- fjarðarhérað nú í haust. Undanfar- ið hafa þeir verið mjög nærgöngulir við sauðfé bænda. í haust hafa ref- iv drepið 3 kindur á Gauksstöðum á Skaga, 10 kindur á Skíðastöðum í Larárdal, 3 í Skollatungu í Göngu- skörðum.—Á Langholtinu í vestan. verðu Skagaf jarðarhéraði sáust ný- lega 2 tófur í áflogum og var önnur skotin. í Hegranesi hefir tófa hreiðrað um sig í gömlu greni, en afar sjald- gæft er að refir sjáist á þeim slóð- um.—Nær 40 ár eru síðan tófa hef- ir lagt í grenið. Págœtur atburður— Ferðamaður úr Húnavatnssýslu, nýkominn að norðan, skýrir frá þeim fágæta atburði er héij verður lýst: Síðastliðinn þriðjudag fóru 16 ferðamenn úr Norðurlgndi gangandi úr Hrútafirði suður í sæluhúsið á Holtavörðuheiði. — Var hjarn á heiðinni, en ekki bílfært norðan til sakir hálku. Þegar flokkurinn var kominn upp á háheiði, flaug fálki að manni einum framarlega í hópn- um, svo nálægt að hann fór um 1 metra frá honum og um 1 metra frá jörðu. Þegar að var gætt hafði rjúpa flogið undan fálkanum inn ! hópinn og var hún svo gæf að hún var handsömuð og borin suður í sæluhús. Þaðan var hún flutt í bíln. um ofan i Norðurárdal til þess að örugt væri, að hún yrði eklci fálkan- um að bráð. Þar var henni slept og flaug hún til fjalls. T unglfiskur— Tunglfisk rak á Kálfafellsstaðar- fjöru í Austur-Skaftafellssýslu 17. þ. m. Fiskurinn var 265 cm. á lengd, 300 kg. að þyngd. — Fiskur þessi er 8. tunglfiskur, er sögur fara af að fundist hafi hér við land. Hin- ir 7 hafa fundist á síðustu 100 ár- um. Fyrsta fiskinn rak árið 1835.— Einn var tekinn lifandi ofansjávar við Suðurland árið 1902. Hina hef. ir rekið, þar með talið tunglfisks- seiði, er rak í Grindavík 1931. Úr Ótafsfirði— Karlakór jólafsf jarðar “Kátir piltar” söng í Ólafsfirði síðastliðið laugardagskveld undir stjóm Theo- dórs Árnasonar. Tólf lög voru á söngskránni. Söngnum var vel tek- ið. — Minningarguðsþjónusta um séra Matthías Jochumsson var hald- in síðastliðinn sunnudag í Ólafs- fjarðarkirkju. Unglingaskóli er starfandi í Ólafs. firði í vetur. Nemendur eru 16. Kennarar barnaskólans annast kensl- una ásamt sóknarpresti. Vísir 22. nóv. Kennarinn: “Hvar dó Gregor- íus páfi?” Neinandinn: “Á blaðsiðu 28.” Bátur nauðlendir— Vélbáturinn Snyggur frá Vest- mannaeyjum, eign Gunnars Ólafs- sonar, 24 smál. að stærð, nauðlenti á Ragnheiðrstöðum um kl. 5 í morg. un. Menn björguðust. Báturinn var í gærkvöldi á síldveiðum undan Eyrarbakka og hélt heimleiðis til Vestmannaeyja í nótt, en þegar hann var kominn langleiðis til Eyja, kom leki að bátnum svo mikill að vélin stöðvaðist. Reyndu bátverjar þá að bjarga sér á bátnum til Stokkseyrar, en lekinn var svo mikill að þeir urðu að nauðlenda á Ragnheiðarstaða- fjöru. Brim var mikið, en byrjað að falla út og biðu mennirnir í bátnum, þar til þeir gátu gengið í land. 1 dag hefir verið bjargað því sem hægt var að bjarga, en með flóðinu síð- degis fór báturinn í tvent og er hann að brotna í spón. • —Vísir 21. nóv. LAVARÐUR READING DAINN Á mánudaginn þ. 30. þ. m„ lézt í London, einn af allra víðment- ustu og áhrifamestu stjórnmála- mönnum hinnar brezku þjóðar, lávarður Reading, fyrrum land- stjóri á Indlandi, og um eitt skeið dómsforseti í hæztarétti Breta. Reading lávarður var Gyðinga- ættar. Auk þeirra embætta, sem getið hefir verið, gengdi hann ráð- gjafaembætti hvað ofan í annað, og þótti einkum og sérilagi at- hafnamikill þau árin, er hann veitti forustu ráðuneyti utanrík- ismálanna.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.