Lögberg - 02.01.1936, Qupperneq 1
49. ÁBG-ANGUR
WINNIPÍJG, MAN., FIMTUDAGINN 2. JANtJAR, 1936.
NÚMER 1
Kveiktu á kertum mínum
(Jólavísur)
Kveiktu á kertum mínum,
kertum, brunnum, drauma minna,
bjarta nótt með blysum þínum!
Kveiktu á kertum mínum,
kertum, daufum, trúar minnar,
gaiðleg nótt með geislum þínum!
Kveiktu á kertum mínum,
kvndli sannleiksástar minnar,
Drottins nótt m,eð djásnum þínum!
Kveiktu á kertum mínum,
kærleiksglæðum sálar minnar,
lífsins nótt með ljósum þínum!
Richard Beck.
Hin eilífa leit
Hvað ertu maður, eirðarlausi andi!
Ókunnur gestur þínu föðurlandi?
Ilvað er þín leit að láni, frægð og auði?
Launin, sem bíða: þrot og fall og dauði!
Hlauparans brjóst af mæði í marki springur.
Morðinginn síðast eigið lijarta stingur.
Fullhuginn efst af Himalaja hrapar.
Hamingjan sínu lokaveði tapar.
Kappinn, sem berst og' eignast lönd og álfur
endar með því að verða minstur sjálfur.
Myndin, sem gevmist lielzt er hinsta vörnin;
lieimurinn þekkir Vaterloo og örninn.
Þá, sem að djarfast leita á hafsins leiðir
líkblæjur sínar hrönnin vfir breiðir.
Svifhæsta vænginn engin ábyrgð styður,
Ámundsen flaug og sökk í djúpið niður.
—Enn þá skal stvrt í sortann út á sundið,
sótt á þau mið, sem enginn hefir fundið,
ennþá skal bratta og liáa hamra klífa
í himininn upp á nýjum vængjum svífa.
Ryðja skal merkur, byggja brýr og vegi;
brjóta þeim leið, sem fagna næsta degi,
starfsglöðum lýð, sem auðn í akra breytir.
Ávöxtinn stærsta moldin jar^ar veitir.
Aldrei skal hika, hættan lokkar, seiðir;
hugrekkið finnur alt af nýjar leiðir.
Öllu skal fórnað, lífið lagt að veði.
Leitin ér mannsins eina sanna gleði.
Að leita er alt, en lítilsvert að finna.
Lífið er slökt í fylling vona sinna.
Snauður er sá, sem eignast allan lieiminn;
auðugir þeir, sem leita um víðan geiminn.
Er lífið þá aðeins leit að falli og tapi,
lögmálið eitt: að sérhver stjarna hrapi?
Hefir þá enginn æðri máttur völdin,
sem ætlar þér nýja leit á bak við tjöldin?
Hvað hefir insta örsmæð þín að hvlja,
alvizkusmíð, er list ])ín helzt að dylja?
Hvað liefir yzta útsýn þín að geyma,
endalaust stærri, fegri og betri heima?
\
Pétur Benteinsson,
frá Grafardal.
—Dvöl.
DEYR AF SLYSFÖRUM
Seinni part dags á annan í jólum,
dó af slysi, Mr. G. F. Chipman, rit.
stjóri blaðsins Country Guide, sem
gefi'ð er út hér í borginni. Atburð-
ur þessi vildi til með þeim hætti, er
Mr. Chipman var staddur i gróðrar-
stöð þeirri, er hann starfrækti í
Charleswoodbygð, að skot hljóp úr
byssu, er hann hafði handleikis og
varð honum samstundis að bana.
Mr. Chipman var 54 ára að aldri;
hann var landskunnur af blaða-
mensku sinni, en frægur vitt um
heim fyrir afskifti sin af blómarækt.
Mr. Chipman var einn í hópi þeirra
manna, er djarflegast unnu að sam-
tökum bænda í Manitobafylki, og
þá ekki hvað sízt að þátttöku þeirra
í stjórnmálum. Gætti áhrifa hans
mikið og víða í kosningahríðinni
1922, er bændaflokkurinn kom til
valda hér í fylkinu, og Mr. Bracken
varð stjórnarformaður. Frá því
1926 fylgdi Mr. Chipman liberal-
flokknum jafnan að málum í sam-
bandspólitik, og var fylgi hans alla
jafna þungt á metum.
Jarðarför Mr. Chipmans fór fram
hér í borg að viðstöddu feikna fjöl.
menni á laugardaginn var.—
RAÐGJAFI MYRTUR
Símað er frá Shanghai þann 26.
f. m., að þá um morguninn hafi
Tang Yu-Jen, járnbrautaráðgjafi
hinnar kínversku stjórnar verið
myrtur. Það fylgir fréttinni, að
liann hafi þótt helzti hliðhollur Tap-
önum, og þarafleiðandi sopið af því
seyðið. Sjónarvottar töldu tvo unga
Kínverja hafa valda verið að til-
verknaði þessum.
JIEFST IIANDA / ALVÖRU
Hinn nýi utanríkisráðgjafi Breta,
hefir lýst yfir þvi, að hert verði
upp frá þessu stranglega á refsisam.
tökunum gegn ítalíu; verði þess nú
ekki langt að bíða unz bannaður
verði með öllu innflutningur á olíu
og kolum þangað til lands. Ýnisar
þjóðir, svo sem ,Grikkir, Frakkar,
Tyrkir, Yugo-Slavar og Rúmeníu-
menn, hafa heitið Bretum eindregn-
um stuðningi í því falli, að ítalir
stofni til árása í Miðjarðarhafinu.
Þess er og getið, að Spánn og
Portúgal telji sér skylt, samkvæmt
orði og anda Þjóðbandalagssáttmál-
ans, að vinna að refsisamtökum
gegn ítölum, unz yfir lýkur í of-
sóknum þeirra og hernámsferðuin á
hendur Ethiópíumönnum.
Áramót
Alt af hækkar markið meira,
mætti knúin tímans liönd.
Alt af berst og fellur fleira
feigt á ])ögul húmsins lönd.
Hulinn kraftur öllu yfir
örlaganna hjóli snýr.
Spekin sem í ljósi lifir
lífsins takmörk öllu býr.
Dagar, ár og aldir líða
út í þögult tímans haf,
sorgin þung og sælan blíða
sýna vísdóm hans er gaf.
Þegar líf vort léð af mildi
lýkur göngu liinsta dag,
verður aðeins eitt í gildi
okkar verk og hjartalag.
Gamla ár, þinn aftan hljómar,
öllu býður góða nótt,
senn hið nýja sólin ljómar
signir alt með von og þrótt.
Uyftum lmg og hönd á vegi,
höldum trú á líf.sins mátt.
Uögnum ársins fagra degi
fylgjumst vel af hug og sátt.
M. MarMsson.
FYIIRUM RÍKISSTJÓRI 1
N. DAKOTA, WM. LANGER,
SÝKNAÐUR AF AKÆRUM
Eins og mönnum vafalaust stend-
ur enn í fersku minni, var William
Langer vikið frá ríkisstjóra embætti
í North Dakota fyrir frekum tveim
árum ; var honum meðal annars bor_
ið á brýn meinsæri, sem og það að
hann hefði á óleyfilegan hátt veitt
fjárhagslegan stuðning einu aðal
málgagni sínu, eða ríkisstjórnarinn.
ar í þeirri tíð, “The Eeader.” Nú
hefir Mr. Langer verið alsýknaður
af öllum ákærum í þessu sambandi,
ásamt þremur samherjum sínum, og
er því hneykslismál þetta þar með
úr sögunni.
TVENNAR AUKA-
KOSNINGAR
Tveir af ráðgjöfum Sambands-
stjórnarinnar, þeir Hon. James G.
Gardiner, og fjármálaráðgjafinn,
Hon. Charles A. Dunning, verða
báðir að leita kosningar til Sam-
bandsþings, með því að hvorugur
þeirra var í kjöri við hinar almennu
kosingar, sem fram fóru þann 14.
október síðastliðinn. Aukakosning-
ar þessar fara fram þann 6. þ. m.
Mr. Gardiner býður sig fram í As-
siniboia kjördæminu í Saskatche-
wan; til höfuðs honum er settur
William Irvine, C.C.F., prédikari,
ritstjóri, leikritahöfundur, fyrver-
andi sambandsþingmaður, og hreint
ekki ósennilega sitthvað fleira. Mr.
Dunning leitar kosningar í Queens.
kjördæminu á Prince Edward
Island, og verður kosinn þar gagn-
sóknarlaust, síð því er símfregnir
þaðan að austan herma.
HASKÓLA KJÖRDÆMI A
SKOTLANDI BÝÐUR
RAMSAY MacDONALD
ÞINGSÆTI
Skozkir háskólar eiga þrjá þing-
menn í brezka þinginu. Eitt sætið
losnaði nýverið við fráfall Noels
Skelton, er kosinn var í síðustu þing-
kosningum á Bretlandi. Nú hafa
stjórnarsinnar í því kjördæmi sent
Mr. MacDonald áskorun um að
verða þar í kjöri og fullvissa hann
um kosningu. Eins og kunnugt er,
beið Mr. MacDonald alvarlegan ó-
sigur í Seaham kjördæminu fyrir
Mr. Shinwell, frambjóðanda verka.
mannaflokksins, en var þó endur-
skipaður í hið fyrra embætti sitt í
ráðuneyti Mr. Baldwins.
NÝTT RAÐIIÚS 1
VANCOUVER
Bæjarstjórnin í Vancouver hefir
ákveðið að láta reisa nýtt ráðhús þar
í borginni í tilefni af hálfrar aldar
afmæli borgarinnar. Carter-Halls-
Aldinger byggingaíélagið hefir tek-
ið að sér að koma stórhýsi þessli upp
fyrir $885,000.
FIMTIU ARA AFMÆLI
VANCOUVERBORGAR
Á ári því, sem nú hefir rétt hafið
innreið sína, heldur Vancouverborg
hátíðlegt hálfrar aldar afmæli sitt.
Er víðtækur undirbúningur þegar
hafinn, og má fullyrða að hátíðar-
haldið verði bæði stórfengilegt og
eftirminnilegt. “Fæðingardagur”
borgarinnar er talinn að hafa verið
4. júli 1886. Ráðgert er að afmæl-
isfagnaðurinn byrji þann 24. maí,
og standi yfir í einhverju formi til
þess 22. ágúst.
ENDI BUNDINN A VIÐ-
SKIFTADEILU MILLI
CANADA OG JAPAN
Frá því í júlímánuði síðastliðn-
um hefir staðið yfir viðskiftadeila
milli Canada og Japan, báðum aðilj-
um til tjóns, og þá ekki síðuV hinni
fyrnefndu þjóð. Nú hefir King-
stjórninni lánast að leysa svo þenna
Gordions hnút, að til stórra hags-
muna verður fyrir canadisku þjóð-
ina, og stuðlar auk þess að aukinni
samúð meðal þjóðanna beggja.
SENDIIIERRA SAMBANDl
SAGT UPP
Simað er frá Montevideo þann 28.
f. m., að Uruguay lýðveldið hafi
þann dag slitið sendiherrasambandi
við Rússland. Það fylgir sögunni,
að Uruguay stjórn sé ekki ugglaus
um pólitískan undirróður af hálfu
Sovietstjórnarinnar, og telji jafn-
vel líklegt, að hún hafi átt að ein-
hverju leyti þátt i nýafstöðnum
óeirðum í Brazilíu.
FÆR TRAUSTSYFIRLÝS-
INGU 1 ÞRIÐJA SINN
Þrisvar sinnum í vikunni sem leið,
var borin fram vantraustsyfirlýsing
í franska þinginu á hendur Laval-
stjórninni, og í öll skiftin gekk
sitjórrtin sigrandi af hólmi. Til-
raun var til þess gerð, að rökstyðja
vantraustsyfirlýsinguna með ákær-
um út af ráðstöfunum stjórnarinn-
ar í sambandi við hinar dularfullu
samningatilraunir um frið milli
ítala og Ethiópíumanna, er. kostuðu
utanríkisráðgjafa Breta, Sir Samuel
Hoare, í pólitískum skilningi, lífið.
KIPLING SJÖTUGUR
Þann 30. desember síðastliðinn,
átti skáldmæringurinn brezki, Rud-
yard Kipling, sjötugsafmæli. Hefir
hann dregið sig mjög í hlé úr hring-
iðu hins daglega lífs og lifir ein-
földu og kyrlátu lífi á bústað sínum
í Sussexhéraði. Oft og þrásinnis
var þess getið til, að Kipling hlyti að
verða hið viðurkenda “lárviðar-
skáld” þjóðar sinnar áður en langt
um liði, og þótti ýmsum hann frem.
um verðskulda þá viðurkenningu en
þeir John Masefield og Sir James
Barrie. Sem stendur er John Mase-
field hið “launaða lárviðarskáld”
hinnar brezku þjóðar.
RAUSNARLEG GJÖF
1
Thomas W. Lamont, meðeigandi
i J. P. Morgan fésýslufélaginu víð-
kunna, gaf Harvard háskólum hálfa
miljón dala í jólagjöf, til þess að
stofna þar nýtt prófessorembætti i
hagfræði.
STÖRF METIN AÐ
MAKLEIKUM
Svo má segja, að blöð þessa lands
séu því nær á einu máli um það, að
Ottawafundurinn nft'afstaðni miilli
Sambandsstjórnarinnar og stjórna
hinna einstöku fylkja, hafi hepnast
hið bezta og borið mikilvægan
árangur. Blaðið Montreal Gazette
(conservative) kemst meðal annars
þannig að orði:
“Er tekið er tillit til þess, hve
mörg og umfangsmikil þau við-
fangsefni voru, er fyrir fundinum
lágu, er sýnt, að meira vanst á en
viðgekst í liðinni tíð á svipuðum
ráðstefnum. Var það og athyglis-
vert, hver eining einkendi störf
fundarins.”
Hækkur sú hin mikla, 75 af
hundraði, er Sambandsstjórnin frá
ársbyrjun veitir fylkjunum til at-
vinnumálanna, hefir vakið fögnuð
um land alt.
SAMBANDSÞING KEMUR
SAMAN ÞANN 30. Þ. M.
Símað er frá Ottawa þann 31.
desember síðastliðinn, að sambands-
þingið í Ottawa verði sett á hádegi
þann 30. yfirstandandi mánaðar.
Líkur þykja til, að Pierre Cas-
grain, þingmaður fyrir Charlevox-
Sagueney kjördæmið í Quebec, verði
forseti neðri málstofunnar.
KOMIÐ TIL ÁRA SINNA
Þann 29. desember síðastliðinn
átti blaðið Halifax Chronicle 112
ára afmæli. Upphaflega hét blað
þetta “The Nova Scotian” og kom
hið fyrsta tölublað þess út þann 29.
desember árið 1824. Var hinn fyrsti
ritstjóri þess Joseph Howe, nafn-
kunnur stjórnmálafrömuður, er
fyrstur kom því til leiðar, að Nova
Scotia öðlaðist sjálfstjórn í svipuðu
formi sem nú viðgengst um hin
canadisku fylki. Þetta var árið
1848.
Frá Islandi
Or Skagafjarðarhcraði—
Refir hafa verið með allra mesta
móti i fjöllum umhverfis Skaga-
fjarðarhérað nú í haust. Undanfar-
ið hafa þeir verið mjög nærgöngulir
við sauðfé bænda. í haust hafa ref-
iv drepið 3 kindur á Gauksstöðum á
Skaga, 10 kindur á Skíðastöðum í
Larárdal, 3 í Skollatungu í Göngu-
skörðum.—Á Langholtinu í vestan.
verðu Skagaf jarðarhéraði sáust ný-
lega 2 tófur í áflogum og var önnur
skotin.
í Hegranesi hefir tófa hreiðrað
um sig í gömlu greni, en afar sjald-
gæft er að refir sjáist á þeim slóð-
um.—Nær 40 ár eru síðan tófa hef-
ir lagt í grenið.
Págœtur atburður—
Ferðamaður úr Húnavatnssýslu,
nýkominn að norðan, skýrir frá
þeim fágæta atburði er héij verður
lýst:
Síðastliðinn þriðjudag fóru 16
ferðamenn úr Norðurlgndi gangandi
úr Hrútafirði suður í sæluhúsið á
Holtavörðuheiði. — Var hjarn á
heiðinni, en ekki bílfært norðan til
sakir hálku. Þegar flokkurinn var
kominn upp á háheiði, flaug fálki
að manni einum framarlega í hópn-
um, svo nálægt að hann fór um 1
metra frá honum og um 1 metra frá
jörðu. Þegar að var gætt hafði
rjúpa flogið undan fálkanum inn !
hópinn og var hún svo gæf að hún
var handsömuð og borin suður í
sæluhús. Þaðan var hún flutt í bíln.
um ofan i Norðurárdal til þess að
örugt væri, að hún yrði eklci fálkan-
um að bráð. Þar var henni slept og
flaug hún til fjalls.
T unglfiskur—
Tunglfisk rak á Kálfafellsstaðar-
fjöru í Austur-Skaftafellssýslu 17.
þ. m. Fiskurinn var 265 cm. á
lengd, 300 kg. að þyngd. — Fiskur
þessi er 8. tunglfiskur, er sögur fara
af að fundist hafi hér við land. Hin-
ir 7 hafa fundist á síðustu 100 ár-
um. Fyrsta fiskinn rak árið 1835.—
Einn var tekinn lifandi ofansjávar
við Suðurland árið 1902. Hina hef.
ir rekið, þar með talið tunglfisks-
seiði, er rak í Grindavík 1931.
Úr Ótafsfirði—
Karlakór jólafsf jarðar “Kátir
piltar” söng í Ólafsfirði síðastliðið
laugardagskveld undir stjóm Theo-
dórs Árnasonar. Tólf lög voru á
söngskránni. Söngnum var vel tek-
ið. — Minningarguðsþjónusta um
séra Matthías Jochumsson var hald-
in síðastliðinn sunnudag í Ólafs-
fjarðarkirkju.
Unglingaskóli er starfandi í Ólafs.
firði í vetur. Nemendur eru 16.
Kennarar barnaskólans annast kensl-
una ásamt sóknarpresti.
Vísir 22. nóv.
Kennarinn: “Hvar dó Gregor-
íus páfi?”
Neinandinn: “Á blaðsiðu 28.”
Bátur nauðlendir—
Vélbáturinn Snyggur frá Vest-
mannaeyjum, eign Gunnars Ólafs-
sonar, 24 smál. að stærð, nauðlenti
á Ragnheiðrstöðum um kl. 5 í morg.
un. Menn björguðust. Báturinn var
í gærkvöldi á síldveiðum undan
Eyrarbakka og hélt heimleiðis til
Vestmannaeyja í nótt, en þegar hann
var kominn langleiðis til Eyja, kom
leki að bátnum svo mikill að vélin
stöðvaðist. Reyndu bátverjar þá að
bjarga sér á bátnum til Stokkseyrar,
en lekinn var svo mikill að þeir urðu
að nauðlenda á Ragnheiðarstaða-
fjöru.
Brim var mikið, en byrjað að falla
út og biðu mennirnir í bátnum, þar
til þeir gátu gengið í land. 1 dag
hefir verið bjargað því sem hægt
var að bjarga, en með flóðinu síð-
degis fór báturinn í tvent og er hann
að brotna í spón. •
—Vísir 21. nóv.
LAVARÐUR READING
DAINN
Á mánudaginn þ. 30. þ. m„ lézt
í London, einn af allra víðment-
ustu og áhrifamestu stjórnmála-
mönnum hinnar brezku þjóðar,
lávarður Reading, fyrrum land-
stjóri á Indlandi, og um eitt skeið
dómsforseti í hæztarétti Breta.
Reading lávarður var Gyðinga-
ættar. Auk þeirra embætta, sem
getið hefir verið, gengdi hann ráð-
gjafaembætti hvað ofan í annað,
og þótti einkum og sérilagi at-
hafnamikill þau árin, er hann
veitti forustu ráðuneyti utanrík-
ismálanna.