Lögberg - 16.01.1936, Page 1

Lögberg - 16.01.1936, Page 1
5: PHONE 86 311 Seven Lines K1'0' jSfr*’” For Better Dry Cleaning and Laundry 49. ÁRGrANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 16. JANÚAR 1936 NÚMER 3 DEILIR A ÞJÓÐBANDA- LAGIÐ Sir Roger Keyes, einn af hinum atkvæöamestu fiotamála foringjum Breta og þingmaður North Ports- niouth kjördæmisins, flutti þann g. K m. ræðu í ungmennafélagi einu innan vébanda kjördæmis síns, þar sem hann deildi stranglega á þjóð- bandalagið fyrir tvíveðrung í al- þjóðamálum. Komst hann meðal annars þannig að orði: “Mér finst bæði ilt og ömurlegt 61 þess að vita, að brezkum æsku- lýð sé talin trú um að þjóðbanda- lagið s^óhjákvæmileg aflstöð heims- friðnum til verndar, með því að slíkt er einungis hugarburður. Hinar lát- lausu tilraunir Bandalagsins í þá átt að fá þjóð vora til þess að draga úr vopnaviðbúnaði um leið og allar aðrar þjóðir sýknt og heilagt auka her sinn og flota, geta auðveldlega 61 þess leitt, að komið verði að oss að óvörum, og mörgum vorra ágætu sona, er hin gömlu og úreltu herskip vor hafa innanborðs, verði fórnað í þágu falskra friðarkenninga.” JOIIN GILBERT LjATINN Þann 9. þessa mánaðar lézt að heimili sínu í Hollywood í Kali- forníu, kvikmyndaleikarinn heims- frægi, John Gilbert, 38 ára að aldri, fæddur þann 10. janúar 1897 í borg- inni Utah. Hans rétta nafn var John Pringle, en Gilberts nafnið tók hann upp eftir að hann gekk í þjónustu kvikmyndalistarinnar. Banamein hans var hjartabilun. John Gilbert var eigi aðeins frábær sem leikari, heldur þótti hann í hví- vetna hinn mesti æfintýramaður. Fjórum sinnum'hafði hann kvænst og skilið að lögum við allar konur sínar; voru þær allar leikkonur; við þá síðustu skildi hann í síðastliðnum niaímánuði; höfðu þau verið gift í tæp tvö ár; dóttur eignuðust þau, sem nú er níu mánaða gömul, og var úún falin forsjá móður sinnar, er skilnaðarmáli foreldra hennar lauk. FORSETI EFRI MAL- STOFUNNAR Símað er frá Ottawa þann 13. K m., að Senator Walter E. Foster, fyrrum forsætisráðherra í New Brunswick hafi verið skipaður for- séti í efri málstofu sambandsþings- ins. Tekur hann við af Senator B. B. Blondin, er Mr. Bennett skipaði * forsetastöðu að afstöðnum kosn- ’ngum 1930. Mr. Foster veitti for- ustu fylkisstjórninni í New Bruns- w,ck frá 19x7 til 1922, en senators- t>gn hlaut hann árið 1928. FlMM til sex maltíðir A DAG Howard W. Haggard, prófessor viÖ Yale háskólann, ber auðsjáan- iega engan kvíðboga fyrir því, að folk ofeti sig, sem kallað er. Til þess að vinna sér fé og frama, segir pró. fessorinn að menn verði að neyta að uunsta kosti fimm til sex máltíða á a&- Bað sé vísindalega sannað, að uienn hugsi skýrast og komi mestu 1 verk fyrstu tvo til þrjá klukkutím- a,1a eftir hverja máltíð, auk þess Un ^að séu hinar skaðlegustu firr- Ur að maginn þarfnist hvíldar. Ff VISA t’ ,C? snernina fer á fæur, með^1 m°rgUm Blutum bætur me® " SWsiS graur gotter b6kaSlltaJ sknfa ljoð í lítið kyer að öllu fögru gefa ^ gleyma næturdofa, bágt eiga þeir, sem bjarta 1 sofa. Austfirsk kona “Hlín.” FORSÆTISRAÐGJAFI DEYR Hon. Walter M. Lea. Hinn 10. þ. m., lézt á sjúkrahúsi í Charlottetown, Hon. Walter M. Fea, forsætisráðgjafi á Prince Ed- ward Island, 61 árs að aldri. Haf ði hann verið næsta heilsuveill síðustu tvö árin, og stjórnaði kosningahríð sinni í síðastliðnum júlímánuði, sem leiðtogi frjálslynda flokksins í fylki sínu, af sjúk'rabeði. Úrslit þeirra kosninga urðu sögufræg, með því að frjálslyndi flokkurinn vann þirig- sætin ölí, 30 að tölu. Tókst Mr. Lea þá á hendur stjórnarforustu fylkis- ins í annað sinn. Nokkurn bata á heilsu virtist hann fá undir haustið og frman af vetri; sótti hann meðal annars hinn nýafstaðna fund í Ot- tawa rnilli sambandsstjórnarinnar og stjórnar hinna einstöku fylkja. En nokksu eftir að heim kom af þeim fundi, fékk hann þungt kvef, er snerist upp í lungabólgu, er leiddi 61 bráðs bana. Mr. Lea var á margan hátt sér- kennilegur menningarfrömuður, og ruddi braut mörgum og mikilvægum umbóta fyrirtækjum innan vébanda fylkis síns; einkum þó á sviði land- búnaðarins; stuðlaði mjög að ýmis- konar samtökum meðal bænda; kom á fót jarðeplaræktar samlagi og hlynti að margvíslegri samvinnu með bændum, er jók á velfarnan þeirra; sjálfur var hann fyrirmynd- ar búmaður^ og sóttu þangað marg- ir hollar leiðbeiningar viðvíkjandi búnaði. Mr. Lea var ákafur eljumaður og hlífði sér lítt, jafnvel þó eigi gengi hann ávalt heill til verks. Með hon. um er genginn grafarveg einn af hinum ágætustu borgurum hinnar canadisku þjóðar. MUNAR UM MINNA Samkvæmt yfiriýsingu verzlunar- ráðgjafans í Ottawa, seldi hveitisölu- nefndin nýja undir forystu James R. Murráy, 60,000,000 mæla af hveiti fyrsta mánuðinn eftir að hún tók til starfa. Mest hefir verið um söluna innan takmarka brezka veld- isins, þó Bandaríkin hafi einnig keypt töluverðan slump. ÞRJÚ HUNDRUÐ MANNA FARAST Símað er frá Bogota þann xi. þ. m., að um þrjú húnlruð manns hafi farist þann dag í Colombiaríkinu, af völdum landskjálfta. Stjórnin í Colombia sendi samstundis læknis- hjálp og vistir til þeirra héraða, er harðast voru leikin. ASGEIR ASGEIRSSON í bréfi til ritstjóra þessa blaðs, er þess getið, að hr. Ásgeir Ásgeirsson fræðslumálastjóri og fyrrum for- sætisráöherra íslands, hafi nú lokið fyrirlestrahöldum sínum í Banda- ríkjunum. Hefir hann ferðast víða, og getið sér hvarvetna hinn bezta orðstír; fyrirlestrum hans hefir all. staðár verið tekið hið bezta, og lofs- orði lokið-á ljúfmannlega fram- kornu hans; hefir hann reynst Is- landi heillavænlegur fulltrú hvar sem leið hans hefir legið. Meðan Ásgeir stóð við í höfuð- borg Bandaríkjanna, átti hann einkaviðtal við Roosevelt forseta, auk þess sem ýrnsir ráðgjafanna, svo sem þeir Cordell Hull, utanríkisráð- gjafi, Wallace landbúnaðarráðgjafi og Roper innanríkisráðgjafi, héldu honurn veizlur. Mun Ásgeir vera í þann veginn að leggja af stað heitu. Þann tírna, sem Ásgeir hefir dvalið í New York, hefir hann verið gestur þeirra Mr. og Mrs. Emile Walters. MERKUR BLAÐAMÐUR LATINN Síðastliðið mánudagskvöld lézt að heimili sínu hér í borginni, einn af nafnkunnustu blaðamönnum hinnar canadisku þjóðar, Thomas B. Rob- erton, meðritstjóri dagblaðsins Win- nipeg Free Press, 56 ára að aldri. Lesendur Free Press könnuðust vafalaust bezt við hann af stöfun- um T. B. R., er stóðu undir flestum ritgerðum hans; mun rnarga reka jninni til frásagnar hans af fylkis- þinginu í Manitoba, er gengu undir nafninu “Under the Dome.” Var fyndni hans víða viðbrugðið. Mr. Roberton var óvenju glöggskygn á þókmentir; gegndi hann í mörg ár ritdómarastarfi hjá blaði sínu ; þótti hann mildur dómari í þeim efnum, þó skringilega kæmist hann oft og einatt að orði um það, sem honurn fanst rithöfundunum vera áfátt í. Hann var prúður maður og hlýr í viðmóti og aflaði sér fjölda trúnað- arvina hvar sem leið hans lá. REFSISAMTÖK GEGN ITALIU Símað er frá Lundúnum þann 14. þ. m., að líkur séu til að stjórn Breta beiti sér fyrir því, að hert verði á refsisamtökunum gegn ítalíu. Er líklegt talið að hinn nýi utanrikisráðgjafi, Anthony Eden, muni \refjast þess að lagt verði strangt bann við flutningi á olíu inn yfir itölsk iandamæri. KIPLING SJÚKUR Rudyard Kipling, skáldjöfurinn brezki, var skorinn upp á sjúkra- húsi í Lundúnum síðastliðinn mánu- dag, og er talið tvísýnt um líf hans. Mr. Kipling hélt hátíðlegt sjötugs afmæli sitt fyrir hálfum mánuði; kom hann ásamt konu sinni til Lundúna þann 9. þ. m., og veiktist þar skömmu síðar. Voru honum veitt bókmentaverðlaun Nobels árið 1907. FRA AFRÍKUSTRÍÐINU Síðustu fregnir af styrjöldinni milli ítala og Ethiópíumanna láta þess getið, að hersveitir hinna síðar, nefndu hafi unnið sigur mikinn á hinum ítalska árásarher og endur- numið borgina Makale. Er nú haf- inn hinn mikli, árlegi rigningakafli í Ethiópíu, og rná slíkt vel til þess leiða, að Italir fái ekki haldið áfram hernaði mánuðum' saman. Er þess og jafnframt getið til, að til þess geti auðveldlega komið, að þeir verði áður en langt urn líður 61 þess neyddir að semja frið. PAUL BARDAL. Mr. Paul Bardal, bæjarfulltrúi, hefir verið kosinn í einu hljóði for- maður nefndar þeirrar, er um at- vinnuleysismálin fjallar fyrir hönd Winnipegborgar úyfirstandandi ári. Er þetta virðuleg staða, en jafn- framt ein hin vandasamasta og á- byrgðarmesta innan vébanda bæjar- félagsins eins og nú hagar til. VERÐUR NEÐRIMAL- STOFU FORSETI Simað er frá Ottawa þann 14. þ. m., að ákveðið sé að King forsætis- ráðherra tilnefni Pierre Casgrain, þingmann Charlevoix-Saguanay kjördæmisins i Quebec sem forseta r.eðri málstofu Sambandsþingsins, er þing kernur saman þann 6. febrú- ar næstkonxandi. Mr. Casgrain hef- ir átt sæti á þingi siðan 1917. SOCIAL CREDIT FLOKKURINN í Alberta kaupir blað. Frá Calgary er sírnað þann 15. þ. m., að stjórnarflokkurinn í Al- berta, undir forustu Williams Aber- harts, hafi keypt blaðið Calgary Albertan, eina morgunblaðið, sem gefið er út í Albertafylki. Fram- kvæmdarstjórn blaðsins verður þrátt fyrir þetta hin sama og áður. EFTIRLITSNEFND MEÐ LANUM Á fundi þeim, er staðið hefir yfir í Ottawa undanfarna daga, milli Sambandsstjórnarinnar og fulltrúa hinna einstöku fylkja í sambandi við fjármálin hefir svo talast 61, að skipuð verði nefnd, er eftirlit hafi með öllum lánum fyrir hönd sám- bands og fylkjastjórna, með líku sniði og nú gengst við í Ástralíu. Er ráðgert að nefnd þessa skipi fjármálaráðgjafi Sambandsstjórn. arinnar og allir fjármálaráðgiafar fylkjanna. Svo er ennfremur til ætlast, að forseti Bank of Canada verði ráðunautur nefndarinnar. Nefnd þessi skal f jalla um og kveða á urn sérhverjar þær fjármálalegar ábyrgðir, sem Sambandsstjórn kann að ganga i fyrir fylkin. MYNDAR NÝTT RAÐU- NEYTI Hon. Thane A. Campbell, hefir aflagt embættiseið sem stjórnarfor- maður á Prince Edward Island, i stað Walters M. Lea, sern lézt í vik- unni sem leið. Mr. Campbell gegndi enxbætti d'ómsmálaráðgjafa frá því að Mr. Lea myndaði ráðuneyti sitt í júlimánuði síðastliðnum. Hinn nýi stjórnarformaður er 40 ára að aldri, fæddur þann 7. dag ýúlímánaðar ár. ið 1895. Flestir ráðgjafanna eru þeir sömu og í Lea-stjórninni, að undanteknum búnaðarmálaráðgjaf- anum, Hon. William H. Dannis, sem eigi hefir áður gegnt ráðgjafaem- bætti, þó lengi hafi átt sæti á þingi. Er hann á sjötugasta og öðru ald- ursári. REYKJAVÍK — ISLAND EFTIR 100 AR Amerískur rithöfundur hefir tek- ið sér fyrir hendur að lýsa borginni New York eins og hann hugsar sér hana eftir 50 ár. Áætlanir sinar miðar hann við þær framfarir, sem átt hafa sér stað síðastliðin 50 ár. Með ámóta hraða í rás viðburð- anna gerir hann ráð fyrir, að íbúar borgarinnar muni ekki verða færri en 50 miljónir. í stað einstakra húsa muni verða komnar geysistórar sambyggingar, aðallega úr málmi og gleri, alt að 250 hæðir. Aðal sam- göngurnar verði ofan við húsin, gangstéttir á þökunum, en spor- brautir og flugleiðir þar fyrir ofan. Loks álítur hann að allur hraði hafi þá færst svo mikið i aukana, að nú- timamanni veittist erfitt að hugsa sér slíkt. Ýmsir fleiri rithöfundar og hug- vitsmenn hafa reynt að skapa sér mynd af þeirn tíma, sem í hönd fer eftir tugi ára. En#sumir þeirra eru svo gætnir að bæta því við, — að ef 61 vill bendi flestar líkur til þess, að mannkynið hafi tortímt sjálfu sér með eiturþoku, helgeislum eða öðru þvíliku innan næstu hundrað ára. Slikt er e. t. v. nokkuð mikil svart- sýni , þó að öðru hvoru berist fregn- ir af nýjum uppgötvunum, sem gera mönnum kleift að leggja heil land- svæði í auðn á svipstundu. Einhver h/ugmyndaríkur Islend- ingur ætti að koma með mynd af þvi íslandi og svo sérstaklega þeirri Reykjavik, sem líkur eru 61 að 61 verði eftir t. d. 50 ár eða 100 ár. Það gæti orðið bæði fróðlegt og skenxtilegt — ekki sízt fyrir þá kyn- slóð, sem nú er óborin, en verður uppi árið 1985 eða árið 2035 og langar til að vita hvernig við — for. feður hennar—höfum hugsað okkur hina ókomnu tirna.—Dvöl. FLOTAMALAÞINGIÐ t LUNDÚNUM Staðið hefir yfir í Lundúnum undanfarna viku, og stendur yfir enn, fimm velda fundur, er það verkefni hefir með höndurn, að kveða á um það hvort tiltækilegt sé að draga að einhverju leyti úr vig- vörnunx á sjó. Að fundi þessum standa Bretar, Bandarikjamenn, Japanir, ítalir og Frakkar. Eftir síðustu fregnum af stefnu þessari að dæma, horfist þunglega á um árangur. Þykja Japanir eink- um óg sérilagi óþjálir takmörkun flotans viðvíkjandi, og er jafnvel talið líklegt að þeir gangi þá og þeg- ar af fundi og alt lendi í öngþveiti. HITABELTI utan við gufuhvolfið. Nafnkunnur enskur vísindamað- ur, prófessor Appleton, hefir komist að því, eftir margra rnánaða rann- sóknir, að fyrir utan gufuhvolf jarð- ar er hitabelti, sem ír.enn hafa ekki haft hugmynd um áður. Þar er svo mikill hiti, að hann mundi bræða málma og er loku skotið fyrir drauma mannanna að geta flogið til annara hnatta. Appleton prófessor álítur, að eftir því sem lengra dragi frá jörðunni, eftir því verði hitinn meiri, alveg þveröfugt við það, sem menn hafa haldið fram áður, að alt af yrði kaldara og kaldara eftir þvi sem lengra kæmi út í himingeiminn. At- huganir hans eru bygðar á nákværn- um mælingum og sendingu raf- strauma upp í háloftin. Stjórn Ethiópíu hefir kært til Þjóðbandalagsins yfir þvi, að flug- her ítala hafi varpað sprengjum á kirkju Blánxanna og orsakað með því dauða tiu manna, er hlýdd.u á helgar tíðir. Þorkell í Hraundal Eftir Jón Magnússon. Mér þungt er lífs að þreyja, er þú ert frá mér dáin. Til þín mitt klökkva kvæði eg kalla út í bláinn. Þú varst mín sorg, minn sigur, mín sól á liðnum árum, því okkar harmur, Helga, var hamingja í sárum. Við mættumst ein í æsku, þótt engin hermi saga; og þig frá þeirri stundu eg þráði alla daga. Mér alt varð þá að engu, sem áður gleði vakti. Og orðlaus ástir mínar eg' óf 0g sundur rakti. Eg reyndi raunir margar, þinn riddara unga og fríða, er sá eg sverði gyrðan um sveitina þvera ríða. Og svo kom sveinninn annar og sveik þig, Helga, í trygðum. Þá fanst mér sólin sortna og sumarið hverfa úr bygðum. Þeir börðust beittum sverðum, uns báðir féllu í valinn. Þá vaknaði í vafa mín von í brjósti alin: Að tjá þér lxug minn, Helga, þig heim í bæinn leiða, og umhyggju og ástúð á allan veg þinn breiða. Og' loksins, loksins komstu, og lánið við mér brosti, því engin íslenzk kona þér átti fegri kosti. En þú varst sveipuð sorgum, og sál þín gljúp af klökkva. Þín fyrsta ást var eldur, sem ei var hægt að slökkva. Og sál mín brann í sárum, að sjá þig gráta og líða. Eg veit þær undir allar. til æfiloka svíða. Með öðrum helgað hjarta, þú hneigst að mínum barmi, og gafst mér aðeins óminn af -öllum þínum harmi. —Flúðir.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.