Lögberg


Lögberg - 23.01.1936, Qupperneq 1

Lögberg - 23.01.1936, Qupperneq 1
49. ÁB/GrANGrUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 23. JANCTAR, 1936 NÚMER 4 HANS HATIGN GEORGE BRETAKONUNGUR LATINN Brezka veldið syrgir látinn þjóðhöfðingja—Prinsinn af Wales tekur við konungdómi og kýs sér titilinn Edward VIII HANS HÁTIGN GEORGE KONUNGUR V. HANS HÁTIGN EDWARD KONUNGUR V III. Frá Islandi Maður, sem talinn var af í óveðrinu kominn fram. Hannes Benediktsson í Hvamm- koti í Skagafirði var meðal þeirra, sem menn óttuðust að hefði orðið uti í óveðrinu um s.l. helgi. Fréttaritari Morgimlilaðsins á Sauðárkróki skýrði svo frá í síma- viðtali í gær, að Hannes hefði kom- ist heim til sín um nóttina heilu og höldnu. Vitneskja um þetta fekst ekki fyr, sókum þess að simi var bilaður og engar fréttir bárust þessvegna ?f Hannesi. Hannes var á miðri Laxárdals- heiði þegar óveðrið skall á. Hann var á heimleið frá Sauðárkróki með 2 hesta, en sú leið er um 26 km. Bcejarbruni í Svarfaðardal. Síðastl. þriðjudagskvöld brann nýtt timburhús á Efstakoti í Svarf- aðardal. Fólkið bjargaðist nauðulega. Ilúsið sjálft var vátrygt en innbú ekki. Hetjuvcrðlaun úr Carnegiesjóði hafa þau hlotið, Anna Bjarnadóttir h tra-Felli i Þingeyjarsýslu og Brant Jóhannesson verkamaður á Húsavik. Fengu þau 400 krónur hvort. — Anna Bjarnadóttir, sem er ekkja Hjálmars heit. Lárussonar mynd- skera bjargaði manni, sem var að drukna i læk rétt hjá Ytra-Felli vor- ’ð 1934. Maður þessi var frá Fergstöðum í Skriðuhverfi og var á leið heim til sín frá Ytra-Felli þegar slysið vildi til. Þannig er hátt- að til, að hann þurfti að fara yfir læk, sem rennur rétt hjá túninu. 1 læknum er tveir djúpir hylir, en milli þeirra er brot, sem farið er á ylir lækinn. — Rétt eftir að maður- lr>n fór frá bænum, heyrði Anna óp Uá læknum. Flljóp hún til og sá þá að maðurinn hafði fallið í hyl- mn. Var hann alveg að drukna þeg- ar Anna kom að, Var hún með prik 1 hendi og tókst hennf að láta mann- inn ná í priksendann og dróg hann síðan á land. —Mbl. 21. des. LÆKKAR INNFLUTNINGS- tolla Stjórnin í Brazilíu hefir lækkað að mun innflutningstolla á ýmsum tegundum canadiskrar framleiðslu þangað til lands. Gildir þetta eink- tun og sérílagi um margar vörur, sem unnar eru úr togleðri og niður- soðinn lax, auk þess sem Brazilíu- stÍorn jafnframt því gengst undir að hækka ekki toll á saumavélum frá því, sem nú er. Verzlunarmálaráðgjafi hinnar canadisku stjórnar, Mr. Euler, gerði nýmæli þetta heyrinkunnugt á föstu- óagmn var, og lét þess getið um leið, a. v<cnta mætti mikils hagnaðar af "'nnUiýju ráestöfun * afTÖKU hauptmanns frestað kveðift hafði verið, að aftaka runo Hauptmanns, þess, er fund- jar sekur um morð sonar þeirra nnr ierghs hjónanna, skyldi fram ara klukkan 8 á föstudagskvöldið V:r;^vo að segja um elleftu stundu, re?5 Harold Hoffman, ríkisstjóri 1 New Jersey, að fresta aftökunni í þrjátíu daga. Sandringham, 21. j a n ú a r. (Canadian Press hraðfrétt). Hinn ástsadi konungur Breta, George V., fékk liægt andlát á mánudaginn, rétt fyrir mið- nætti. Prinsinn af Wales tók sam- stundis við konungdómi, og kallast King Edward VIII. Hinn 70 ára gamli konungur var meðvitundarlaus, er dauða hans bar að. LÆTUR VEL YFIR Blaðið Montreal Gazette, sem telja verður eitt allra áhrifamesta málgagn íhaldsflokksins í landinu, lætu vel yfir því, hve giftusamlega Prince Edward Island hafi fekist til um það, að láta Hon. Charles A. Lunning, fjármálaráðgjafa, ná þar kosningu gagnsóknarlaust. Blaði þessu farast meðal annars þannig orð: “Bæði Ontario og Quebec fylki hefði getað vel staðið sig við að opna þingsæti fyrir Mr. Dunning, og verða með því aðnjótandi hinna mikilvægu áhrifa hans í stjórn landsins sem eigin fulltrúa. Af ein. hverjum ástæðum, sem vonandi er að þau skilji sjálf, létu þau tækifær- ið sér úr greipum ganga. Prince Edward Island vakti auðsjáanlega betur á verði. íbúar þess keyptu heldur ekki köttinn í sekknum; um það ber ljóst vitni ræða Mr. Dun- nings daginn sem framboðsfrestur- in í Queens kjördæmi rann út, þar sem hann skýrði afstöðu sína til hinna ýmsu og mikilvægu velferð- armála Strandfylkjanna, svo sem járnbrauta og flutningsgjaldamál. anna. Kjósendur Queens kjördæm- isins sýndu í því góða fyrirhyggju, að losa Mr. Dunning við ástæðulaust kosningaþjark. Af þessu ættu önn- ur kjördæmi og önnur fylki að gcta talsvert lært, þegar um er að ræða að fá kosinn ráðgjafa í aukakosn ingu að nýlega afstöðnum almenn- um kosningum í landinu.” Heiimfr hátign, María drotn ing, Prinsinn af Wales og aðr- ir meðlimir liinnar konunglegu fjölskyldu voru við dánarbeð- inn, ásamt biskupinum af Can- terbury. Konungurinn lézt kl. 11.55, eða 5.55 Central Stand- ard Time. Hafði aðeins verið veikur fjóra daga; fyrstu fregnir af sjúkdómi lians bár- ust út um heim á föstudaginn var, er tilkynt var að hann lægi allþungt haldinn af kvefi. Hinn LÆTUR AF FLÖTA- FORUSTU Þann 17. þ. m., lét Beatty aðmíráll af flotaforustu brezka flotans, er hann hefir haft á hendi frá því um árslokin 1916Í er hann varð eftir- maður Jellicoe lávarðar. Þennan dag varð Beatty 65 ára gamall, og var honum þá veitt lausn frá embætti með fullum eftirlaunum. PÓLFARARNIR KOMNIR FRAM Þeir fluggarparnir, Lincoln Ells- worth og Robert Hollick-Kenyon, er töpuðu samböndum við umheim- inn fyrir rúmum 7 vikum, sakir bil- aðra viðtækja, eru nú komnir fram eftir ferðaflug og sveim um isauðnir suðurpólsins. Hafði þeirra leitað verið mikið og víða. Nú eru þeir félagar heilir á húfi á leið til mann- heima með skipinu Discovery II, og víst talið að þeir komi til New Zea- land þann 27. þ. m. Búist er við margháttuðum vísindaárangri af för þeirra félaga, er nærri lét að kostaði þá lífið. INNHEIMTA TEKJU- SKATTS Símað er frá Ottawa þann 15. þ. m., að á níu mánuðum fjárhagsárs- ins, sem endaði þann 31. desember síðastliðinn, hafi tekjuskattur sá, er Sambandsstjórnin innheimti, numið $73,423,126. Er þetta $18,702,478 meiri upphæð en á tilsvarandi tima árið áður. nýi konungur, áður Prinsinn af Wales, leiddi móður sína guát- andi út úr dánarherberginu. Jarðarförin fer fram þann 28. þessa mánaðar. Konungar og ráðuneytis for- setar um allan hinn mentaða heim hafa sent hinum nýja konungi, ekkjudrotningunni og fjölskyldu hennar, fagurorðuð samúðarskeyti í tilefni af frá- falli hins ástsæla konungs. Um veturinn 1933 afgreiddi' fylk- isþingið í Manitoba lög, er kváðu á um ahnennan launaskatt, er nema skyldi 2 af hundraði; var vinnuveit- endum falið á hendur að innheimta þenna skatt, það er að segja draga hann frá kaupi þjónustufólks síns. Starfsmenn Sambandsstjórnar í í Manitoba mótmæltu þessum skatti og þverskölluðust við að greiða hann. Báru þeir mál sitt undir dóm- stóla Manitobafylkis og töpuðu þyí þar ; tóku þeir það þá til hæztaréttar Canada, og töpuðu því jafnframt þar, samkvæmt dómsúrskurði þann 15. þ. m. Eiga menn þessir nú ekki annars úrkosta en greiða skattinn allan frá þeim tíma, er skattalög þessi gengu í gildi og nemur sú upp- hæð til samans um þrjú hundruð þúsundum dala. Fleygt er því að svo geti farið, að máli J^essu verði vísað til hæztarétt- ar Breta, þó ekki hafi aðiljar fram að þessu, komist aÖ fastri niðurstöðu því viðvíkjandi. TEKJUHALLI t ONTARIO Samkvæmt yfirlýsingu frá Hon. Harry Nixon, fylkisritara Hepburn. stjórnarinnar í Ontario, nam tekju- hallinn $10,440,670 við lok síðast- liðins marzmánaðar. Er þetta um þrem miljónum meiri upphæð en Hepburn forsætisráðherra gerði ráð fyrir í umræðunum um fjárlögin í fylkisþinginu i fyrra. 1 vor sein leið, hélt brezka veldið hátíðlegt fjórðungsaldar ríldsstjórnarafmæli hins ný- látna konúngs síns. Hans liátign Edward kon- ungur VIII. er 41 árs að aldri og ókvæntur. Krýning lians fer ekki fram fvr en að ári liðnu; hefir hann með konung- legri tilskipan kunngert að hirðiii beri sorgarklæði í næstu níu mánuði. SJÖTÍU OG ÞRIGGJA ARA Á föstudaginn þann 17. þ. m., átti brezki stjórnmálamaðurinn heims- frægi, David Lloyd George, sjötíu og þriggja ára afmæli. Er hann maður bráðern og þrunginn af lifs- fjöri. Hann hélt upp á afmælisdag- inn i bænum Marrakesh í þeim hluta Marocco, er telst til Frakklands. I síðustu kosningum til brezka þings. ins, var Mr. Lloyd George éndur- kosinn í Carnarvon kjördæmi sínu, þrátt fyrir það þó megin þorrin af frambjóðendum frjálslynda flokks- ins félli í val; þar á meðal þingfor- ingi flokksins, Sir Herbert Samuel. RUDYARD KIPLING LÁTINN Síðastliðinn laugardag lézt í Lundúnum, skáldið og rithöfundur- inn, Rudyard Kipling, 70 ára að aldri. Var hann skorinn upp við magasjúkdómi, en dó fjórum dög- um síðar.— Rudyard Kipling, höfuðskáld þjóðarinnar brezku í seinni tið, var fæddur i Bombay á Indlandi þann 30. desember árið 1865, og gaf sig við blaðamensku framan af æfinni; aflaði hann sér brátt heimsfrægðar fyrir lýsingar sínar i söguformi frá Indlandi. Að þvi er snilli í ljóð- formi viðvikur, er hann talinn einn af fáum. Lik Kiplings var brent samkvæmt fyrirmælum hans, en öskukrukkan grafin í skáldareitnum við West- minster kirkjuna. Falcons láta til sín taka Falcons hockey flokkurinn er jafnt og þétt að færa sig upp á skiftið, og vekja á sér víðtæk- ari athygli. Fór flokkurinn til Kenora á föstudaginn var og þreytti þar kappleik við liarð- snúna heimamenn. Urðu leiks- lok þannig að Falcons gengu sigrandi af hólmi með átta viiminga á móti fjórum. GERIR KRÖFU. UM NÝLENDUR Útbreiðslumála ráðherra Þjóð- verja, Dr. Paul Goebbels. flutti ræðu í Berlín á föstudagskvöldið var fyr- ir tuttugu og fimm þúsundum manna, þar sem hann kvað tíma vera til þess kominn, að umheiminum skildist það, að Þjóðverjar yrði að fá nýlendur. “Það rekur að því.” sagði Dr. Goebbels,” að við verðum knúðir til þess að heimta nýlendur þjóð okkar til handa, með þvi að nauðsyn brýtur ávalt lög.” AFSKAPLEGT FLUGSLYS Frá bænum Goodwin i Arkansas- ríki, er simað að á miðvikudaginn hinn 15. þ. m., hafi fólksflutninga flugskipið “Southerner,” farist skaint frá Little Rock og 17 manns beðið bana. Er þetta stærsta flug- slysið, sem þekst hefir í sögu hinnar amerísku þjóðar. Flugskip þetta var eitt hið vandaðasta, er hugsast getur og útbúið öllum nýtizku þæg- indum. Örstuttum tima áður en slysið vildi til, hafði útvarp skipsins sent út þær fregnir, að alt væri með heilu og höldnu innanborðs, og að skipið, eða drekinn, myndi lenda á nákvæmum áætlunartíma. Opið bréf Rochester 19. jan. 1936. Kæru Vestur-Í slendingar! Við þökkum ykkur alla þá alúð, gestrisni og vináttu, sem þið sýnduð okkur meðan við dvöldum og ferð- uðumst meðal ykkar. Við erum ekki að minnast á neina menn eða konur sérstaklega, þvi hvar sem við kom- um eða dvöldum, nutum við sömu gestrisninnar og hlýleikans. Áreiðanlega verðið þið og sam- verustundirnar með ykkur okkur ó. gleymanlegar og ómetanlegar. Við þökkum ykkur þó miklu fremur fyrir öll þau hlýju og ástriku orð og gerðir í garð íslands og Austur-ís- lendinga, sem við urðum svo víða aðnjótandi og vör við. Það eru margir, sem við vildum og ættum að skrifa, en við biðjum þá að afsaka slóðaskapinn. Góð liðan. Kærar kveðjur. Margrct og Ófeigur J. Ófeigsson. c-o Mayo Clinic, Rochester, Minn. U.S.A. 30 fjár fórst á Melrakkasléttu í óveðrinu. I stórviðrinu aðfaranótt 15. þ. m. gekk sjc>r yfir túnið á Rifi á Mel- rakkasléttu og bar yfir það mikið af möl og grjóti. Braut brimið til grunna annan hliðarvegg i f járborg og féll þá nið- ur þakið yfir margt fé og fórust þar 30- kindur, en margt fleira fé er tneira og minna meitt og sennilega er ekki nema sumu af þvi lífvænt. Sömu nótt tók brimið gevmslu- skúr í Skinnalóni á Melrakkasléttu. —Mbl. 20. des. HÆSTARÉTTAR CRSKURÐUR

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.