Lögberg - 06.02.1936, Side 1

Lögberg - 06.02.1936, Side 1
PHONE 86 311 Seven Lines R«!g tol ‘t'* Ar»^° For Better Dry Cleaning and Laundry 49. ÁBOANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 6. FEBRÚAR 1936 NÚMER 6 Hennar hátign ekkjudrotningin þakkar þegnum brezka veldsins af hrœrðum liuga hluttekningu í sorginni í tilefni af fráfaUi konungs. Hennar hátign María ekkjudrotning, sendi út frá Bucking- ham liöll þann 30. f. m., ávarp það, sem hér fer á eftir: Frá Islandi Sigurður Gunnarsson, fyrver- andi prófastur, lézt að heiinili sinu í gær. Séra Sigurður var fæddur að Desjamýri eystra 25. maí 1848, sonur þeirra hjónanna Gunnars Gunnarssonar, síðar bónda á Brekku, og Guðrúnar Hallgríms- dóttur. Hann lauk stúdentsprófi 1870 -og útskrifaðist úr Prestaskólan- um þrem árum síðar. Næstu ár- in fékst hann við kenslu, fyrst í Héykjavík og síðar á ísafirði. Ár- ig 1878 réðist hann prestur að Ási í Fellum og fjórum árum síðar að Valþjófsstað. Helgafells- prestakall var honum veitt 1894 og fluttist hann þá lil Stykkis- hólms. Þar dvaldi hann fram til 1916, er hann sótti um lausn frá prestskap, vegna raddbilunar, sem gerði honum ófært að gegna embætti sínu áfram. Fluttist hann þá til Reykjavíkur og hefir lengstum búið með dóttur sinni, frk. Sigríði Gunnarsson. Sigurður var prófastur i Norð- ur-Múlasýslu 1890-94 og Sna'fells- sýslu 1895-1916. Hann var þingmaður Sunnmýl- inga frá 1891-99 og Snæfellinga 1909-11 og 1914-15. Árið 1873 kvæntist hann Soffiu Einarsdóttur frá Brekku. Af börrtum þeirra hjóna náðu aðeins tvær dætur fulorðinsaldri, frk. Sigriður og Bergljót, fyrri kona Haralds heit. Níelssonar. Slgurður var hinn mesti at- gerfismaður til líkama og sálar, eins og hin mörgu trúnaðarstörf, er hann gegndi, benda lika til. Hann var glímumaður mikill á yngri árum, og er það í minnum haft, að hann var annar þeirra, sem fékst til að sýna Kristjáni Niunda íslenzka glímu á Þing- völlum 1874.—N. Dagbl. 8. jan. RAÐSTEFNA UM SOLU HVEITIS Verzlunarráðgjafi sambands- stjórnarinnar, Hon. W. D. Euler, hefir tilkynt að kvatt verði til fund- ar í Winnipeg, þann 25. þ. m., við- víkjandi hveitisölunni og ráðstöf- unurn þar að lútandi. Á fundinn eru boðaðir hveitiræktarbændur, hveiti- sölunefndin nýja, kornkaupmenn, sem og þeir, er heitimylnur starf- rækja. Fundarkvöð þessi hefir í hvívetna mælst vel fyrir. Forseti bændasamtakanna í Manitoba, Mr. J. S. Wood, komst meðal annars þannig að orði um mál þetta: “Hugmyndin er ágæt. Við ættum að geta fært alþjóð manna heim sanninn utn það, fyrir munn þeirra, er um útflutning hveitis annast, að það borgi sig vel, að kaupa cana- diskt hveiti. Þeim mun fleiri sem umboðsmenn vorir verða út á við, þess betra fyrir bóndann.”. FRAKKÁR A NALUM Símað er frá Lundúnum þann 1. þessa mánaðar, að Frakkar s.éu á nálum og gangi með öndina í háls- inum yfir fregnum frá Berlín^ í- mynduðum eða sönnum, um það, að Þjóðverjar séu í óða önn að undir- búa sig til þess að senda herafla inn í þau Rínarhéröð, er samkvæmt Versala-samningunum, eiga að vera friðhelg og afvopnuð. Fkki verður enn sem komið er með nokkurri vissu nokkuð um það sagt, hvor* ótti Frakka í þessum efnum sé á rökum bygður, eða það gagnstæða, þó vitað sé á hinn bóginn, að Þjóð- verjar leggi mikið kapp á að auka herafla sinn um jæssar .mundir. KALDASTUR JANÚAR- MÁNUÐUR A 48 ÁRUM Samkæmt nýútkominni skýrslu frá veðurathugana stofunni í Ot- tawa, var síðastliðinn janúarmánuð- ur sá frostharðasti á síðastliðnum fjörutíu og átta árum. Var meðal frost 13.1 neðan við núll. í janúar. mánuði 1888 nam frostið að meðal- tali 14.1 neðan við núll á sólarhring. NÍRÆÐUR ' Þessi ágæti íslendingur, Jón Jóns- son frá Svarfhóli i Mýrasýslu, átti niræðisafmæli á laugardaginn var, fæddur þann 1. febrúar árið 1846; nýtur öldungurinn enn ágætrar heilsu. Á afmælisdaginn heimsóttu hann margir vinir, að heimili dóttur hans, frú Þorbjargar Sigurðsson, 492 Dominion stræti hér í borginni, tíl þess að samgleðjast honum. Börn hans, auk frú Þorbjargar, eru Jón H. i Vancouver, Stefanía í Santa Monica, Cal. og frú Ólafía Melan í Riverton. Systir hans er frú Valgerður Sigurðsson í Riverton. Lögberg óskar hinu níutíu ára unga afmælisbarni til hamingju. ÁRSÞING MJÓLKUR- FRAM LEIÐENDA Síðastliðna viku hélt félagsskap- ur mjólkurframleiðenda þessa fylkis, Manitoba I4airy Association, árs- þing sitt á Royal Alexandra hótel- inu hér i borginni. Mættir voru þar 350 fulltrúar úr hópi framleiðenda, mjólkursala og smjörgerðarmanna. Sartiþykt var á þingi þessu áskorun til fylkisstjórnarinnar, er í þá átt gekk, að tryggja framleiðendum varanlegt eftirlit með sölu mjólkur í samræmi vjð það, er nú gengst við. Þá lýsti þingið yfir velþóknun sinni á núverandi reglugerðum um flokk- un rjóma, auk þess sem farið vár fram á það, að brýna fyrir sam- bandsstjórninni, að leyfa eigi meifi innflutning smjörs frá Nýja Sjá- landi og Ástralíu en svo, að hagur canadiskra framleiðanda yrði að fullu trygður. Meðal utanfylkis- ræðumanna voru prófessor J. B. Fitch frá háskólanum í Minnesota og Mr. Allan C. Fraser frá Ottawá, skrifari National Dairy Council fé- lagsskaparins í Canada. . Lét Mr. Fraser þess getið, að eins og nú hag. aði til hér í landi, gaefi mjólkur- framleiðslan af sér fyllilega eins mikið og hveitiræktin. FYLKISÞTNG KEMUR SAMAN Hon. John Bracken, forsætisráð- herra Manitobafylkis, hefir tilkynt að fylkisþingið verði sett þann 18. þessa mánaðar. Ekki hefir neitt látið verið uppi um þau löggjafar- atriði, er þingið sérstaklega tekur til meðferðar, þó telja megi víst að ýms þeirra standi í beinu samræmi við ákvæði þau, er afgreidd voru á Ottawafundinum í desember, milli sambandssjjórnarinnar og stjórna1 hinna einstöku fylkja. Þrjú sæti verða auð, er þingið kemur saman. Gimli kjördæmi misti þingmann sinn,. Einar S. Jónasson, í surnar er leið. Tvö Winnipeg sæti hafa losnað við það, að John T. Haig var skipaður senator, en Ralph Maybank kosinn á sambandsþing. AFRIK U S TRÍÐIÐ Fregnir frá stríðinu milli ítalíu og Ethiópíu um siðastliðna helgi, bera það með sér, að háðar hafi ver- ið harðar og mannskæðar orustur bæði á norður- og suður-vígstöðv- unúm. Á laugardaginn var símað frá Addis Ababa, að Italir hefðu beðið feikna ósigur í hinum svo- nefndu Tembienf jöllum ; er mælt að mannfallið. hafi numið 3,000, en 5.000 verið teknir til fanga. Símað er frá Rómaborg á mánudagsmorg- uninn, að á suður-vígstöðvunum hafi hinar ítölsku hersveitir unnið mikinn sigur á Ethiópíumönnum, tekið þúsundir til fanga og stökt ógrynni liðs á flótta. Um þessar mundir er nýlega haf. inn hinn árlegi rigningakafli í Ethiópíu, þar sem svo má að orði kveða að alt fari á flot. Er fullyrt að Italir, sem óvanir eru slíku steypiflóði, verði knúðir til þess að halda kyrru fyrir mánuðum sáman. Regnið bítur ékki á innfædda Ethiópíumenn og þarf þvi ekki að gera ráð fyrir tilslökun af þeirra hálfu fyrir gegndrepu sakir. LÆTUR EKKI AÐ SÉR HÆÐA Fregnir frá Montrea' láta þess getið, að George H. Montgotnery, fyrir hönd raforkufélaga þeirra ýmissa, er Hepburn stjórnin í On- tario sagði upp samningum við í fyrra, hafi farið fram á það við sambandsstjórnina, að ógilda löy- gjöf fylkisþingsins í Ontario þessu viðvíkjandi. Ekki kvaðst Mr. Hep- burn telja liklegt, að Ottawa-stjórn myndi sinna kröfum orkukóngaijna í Quebeck; en ef til þess kæmi, væri hann staðráðinn í því að rjúfa þeg- ar þing og efna til nýrra kosninga; svar kjósenda yrði aðeins á einn veg; ákveðin traustsyfirlýsing á gerðuni fylkisstjórnarinnar í málinu. MERKUR STJÖRNMALA- MAÐUR LATINN Síðastl. föstudag lézt í Aþenu- borg, einn af áhrifamestu stjórn- málamönnum grísku þjóðarinnar, George Kondylis, fyrrum stjórnar- forseti, 55 ára að aldri. Hann varð bráðkvaddur. Þessi 'látni stjórn- málafrömuður átti í þvi mestan þátt að George II. var kvaddur á ný til konungdóms eftir útlegð sína. Skip. uð hefir verið fyrir rannsókn í til- efni af hinu svipleg’a fráfalli Kon- dylis með því að orðasveimur komst á um það, að hann kynni að hafa verið drepinn af eitri. SAMKEPNI / TÓNSMIÐ Milli fjörutíu og fimtíu menn og konur, er hljómlistarnám stunda, tóku þátt í tónsmíða samkepni, er nýverið var háð hér í fylkinu. Voru verk þessara allra send til Toronto, og fengin í hendur til álits og, um- sagnar Sir Ernest McMillan, for- stjóra Toronto Conservatory of Music. Tveir ungir fslendingar hlutu fyrsta flokks viðurkenningu hjá Sir Ernest fyrir tónsmíðar sínar, þau Miss Agnes Sigurðsson og Mr. Frank Thorolfson. Mr. Thorolfson hefir fyrir löngu vakið á sér athygli fyrir ýmiskonar hljómverk; enda stundað lengi nám, bæði við Mc- Gill háskólann og viðar. Miss Agnes Sigurðsson er korn- ung stúlka, dóttir þeirra Mr. og Mrs. Sigurbjörn Sigurðsson i Rivertori. Fékk hún viðurkenningu fyrir “Vögguljóð” fyrir fiðlu og slag- hörpu, og verður það spilað á Fort Garry hótelinu i klúbb þeirn, sem Wednesday Morning Musical nefn. ist, á miðvikudaginn þann 12. þ. m. “Eg verð að senda yður, sonum og dætrum hinna brezku þjóða, mína hjartfólgnustu þakkarkveðju, fyrir alla þá samúð, er þér hafið breitt á veg minn á þessurn sórgardögum æfi minnar. Þökk mín er dýpri en svo, að eg réttilega fái túlkað hana i orðum. Einföldu orðin erú jafnaðarlegast bezt. Eg endurtek þakkir mínar frá djúpi hjarta míns. Það er ekki ein- asta, að eg, í hinni miklu persónu- sorg, hafi orðið aðnjótandi ómæli- legs styrks í sainúð yðar, heldur hefir og jafnframt meðvitundin um það, og hin sýnilegu tákn þess, að hver einasti og einn þegn þessa mikla veldis, væri sjálfur hluthafi í sorginni út af fráfalli míns ástríka eiginmanns, orðið mér til ósegjan- legrar ununar og stuðnings. Eg fagna yfir því í sorg minni, að hann, eftir f jórðungs aldar ríkis- stjórn, skyldi eiga þess kost að verða vitni að því, hve ríkuleg uppskera hans var í ást og hollustu þegna Hefir þessi félagsskapur hljómlist- arsmkomur sínar á miðvikudögum frá kl. 11-12 fyrri partinn. Miss Agnes, Sigurðsson er bráð- gáfuð stúlka og mun eiga yfir að ráða sjaldgæfum efnivið í áttina til frumstæðrar tónlistar. SMJÖRGERÐ RIVERTON- BÆJAR Mr. Neil Christianson, smjör- gerðarmaður við Sameignar Rjóma- búið í Riverton, var í röð þeirra er hæztu verðlaun hlutu fyrir smjör- gerð á alþjóðarsýningunni canadisku árið sem leið. Voru sýningar haldn. ar í Brandon, Calgary, Edmonton, Regina, Vancouver, Saskatóon, Lon- don, Ottawa og Toronto. Mr. Christianson hlaut einnig sex verð- laun í smjörframleiðslu samkepni, sem haldin var í Winnipeg að til- stuðlan Dairy Association og Dairy Manufacturers Association sam- bandsins. Or borg og bygð Mr. J. G. Stephansson frá Kandahar, Sask., kom til borgár- innar á sunnudaginn og dvaldi hér fram um miðja vikuna. The annual meeting of the Jon Sigurdson Chapter I.O.D.E., was held át the home of Mrs. H. G. Nicholson, 557 Agnes St., on Tues- day evening, February 4th, 1936. After the meeting had been called | to order a two minute silence was observed in tribute to the memory of our late sovereign, George V. Annual reports presented showed a very gratifying progress in the various activities. A great many letters were received from those to whom the chapter had extended Christmas cheer. The election of officers resulted as follows: Hon. Regents: Mrs. B. J. Brand- son, Mrs. B. B.. Jónson, Mrs. R. Petursson. Regent: Mrs. J. B. Skaptason; ist vice-Regent: Mrs. J. Thorpe: 2nd vice-Regent: Mrs. P. S. Palson. Secretary: Mrs. J. F. Kristjánsson: Asst. Sec. and Press Rep.: Mrs. B. Og þó hann nú standi ekki framar við hlið mína, — engin orð fá megn_ að að lýsa söknuði mínum — þá treysti eg því, að mér auðnist með Guðs hjálp, að inna af hendi eitt- hvað af áíramhaldi þeirrar þjónustu i þarfir fólks míns og lands, er okk- ur til samans lánaðist að gera þau fjörutíu og tvö árin, er við nutum saman lífsins í hjónabandi. Eg veit, að á þeim árum, sem bíða mín, með öllum þeim óhj ákvæmilegu breytingum, er þau fela í skauti sínu, muni þér hugsa til mín og minnast mín í bænum yðar. Um leið og eg fel yður ástkæran son minn við valdatöku hans, treysti eg órjúfanlega því, að hann af hálfu yðar verði sömu ástúðarinnar, sömu hollustunnar aðnjótandi, og þér lét- uð föður hans í té í svo ríkum mæli. Guð blessi yður öll fyrir allá þá undursamlegu ást og samúð, er þér hafið huggað mig með og styrkt á brautum hinna þyngstu sorga.”— S. Benson; Echoes Sec.: Mrs. I. Ingaldson; Educational Sec.: Mrs. R. Johnson; Treasurer: Mrs. J. S. Gillies: Empire Study Convener: Mrs. B. S. Benson; Councillors: Mrs. S. Jakobson, Mrs. P. J. Sivert. son, Mrs. T. Thorvardson, Mrs. G. J. Jonasson, Mrs. L. E. Summers. Delegates to the Provincial Con- vention to be held in April: Mrs. J. B, Skaptason, Mrs. .T. Thorpe, Mrs. E. Hanson, Mrs. I. Ingaldson, Mrs. B. S Benson. Mrs. I. Ingaldson read a very interesting paper on Edward VIII. F. B. Mr. J. F. Friðriksson frá Holland, Man., var staddur í borginni á laug- ardaginn. Mrs. Oscar Johnson frá Mozart, Sask.. kom til borgarinnar á laugar- daginn. Mr. Gunnar Sæmundsson frá Ár- borg, var staddur í borginni seinni part vikunnar sem leið. Stúlka, sem hefir í hyggju að ganga á verzzlunarskóla hér í borg- inni, æskir staðar þar sem hún geti unnið fyrir fæði og húsnæði. Upp- lýsingar á skrifstofu Lögbergs. Þeir bræður, Árni G. Eggertsson lögmaður í Wynyard, Sask, og Ragnar fésýslumaður frá Saska- toon, kornu til borgarinnar á laug- ardaginn í heimsókn til föður síns og stjúpmóður, þeirra Mr. og Mrs. Arni Eggertsson, og annara vanda- manna. Dvöldu þeir í borginni fram á þriðjudagskvöld. GJAFIR TIL BETEL Mrs. Ásdís Hinriksson, Gimli, Man., $25.00; Kvenfélagið Fjall- konan, Winnipegosis, Man., $10.00; Mrs. J. T. Johnson, Kuroki, Sask., $10.00; Mr. A. S. Bardal, Winni- peg, Canvas Stretcher; Mr. John Johnson, P.O. Box 775, Blaine, Wash., áheit $5.00: Innilega þakkað fyrir hönd nefnd- arinnar. /. /. Swanson, féhirðir. 601 Paris Bldg., W.peg. 29 júní 1896 Nú rennur upp dagsins hinn dýrðlegi morgunn, en dimman er horfin og náttmyrkrið þver; mín fósturjörð nýja, það fullnaðarborgun er fyrir alt stríðið sem háðum með þér; sú borgun er frelsun frá auðvaldsins afli og ánauðarhlekkjum er heftu vorn þrótt; eg sé hvernig þau hafa setið að tafli og sólbjartan dag gert að koldimmri nótt. Að hafa mót lýginni’ og heimskunni barist og hlotið þann sigur, sem fenginn er nú, eg get ekki út af því gleðinni varist, til grafar hún endist — já, það veit mín trú. Mín fósturjörð nýja, með lifandi lotning, því láni eg fagna, sem okkar nú beið; eg.hvlli þig rétt eins og himneska drotning og helga, þér líf mitt um ófarið skeið. Já, framvegis neyt þess af frelsinu sjálfu, sem fullkomnun veitir í hverju sem er, en deyfðu það eitur frá auðvaldsins hálfu, er aflinu beitir til niðurdreps þér. Það væri svo fagurt ef framtíðin gæfi þér friðsælli daga óg hollari ráð. Svo blómgist þinn hagur um ókomna æfi, og öll verði saga þín gullstöfum skráð. Gestur Jóhannsson. ATHUGASEMD: Oscar G. Jóhannsson, sem nú á heima að Libau í Manitoba, sendi mér nýlega kvæði, sem faðir hans hafði Ort 29. júní 1896, þegar Sir Wilfrid Laurier var kosinn. Kvæðið er því fjörutíu ara. Gamla manninum og syni hans finst að kosn- mgaúrslitin 14. október 1935 séu álíka fagnaðarefni °g Þess vegna sé það viðeigandi að endurprenta kvæðið hér. Gestur Jóhannsson er nú orðinn háaldr- aður maður, 85 ára, og næstum sjónlaus, en að öðru lcyti við beztu heilsu, ugur í anda og fullur af fjöri. Sig. Júl. Jóhannesson. sinna.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.