Lögberg - 13.02.1936, Blaðsíða 1
%
PHONE 86 311
Seven Lines
CO1-
■11 ^
V^v> " vVA'S „
V.W* £*» "v For
Service
and Satisfaction
i
PHONE 86 311
Seven Lines
For
*' 'vt Better
X Dry Cleaning
v> c»*- and Laundry
P>”'
iot'
49. ABG-ANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 13. FEBRÚAR, 1936
NÚMER 7
VIKIÐ FRA FL0KK8-
FORUSTU
Miðstjórn Republicana flokksins
i Xew Jersey ríkinu, hefir á einka-
fundi vikið Harold G. Hoffmann
rikisstjóra frá flokksforustu. Er
honunr gefin a8 sök afstaSa hans til
Hauptmann-málsins, eða tilraunir
bans í þá átt, að reyna a8 foröa hon-
um frá aftöku í rafstólnum. Fylgir
það og sögunni, að ríkisþingið hafi
í hótunum með að svifta Mr. Hoff-
mann að einhverju leyti því úr-
skurðarvaldi, er honum beri sem
ríkisstjóra. Grunt kvað mjög vera
á þvi góða milli ríkisstjóra og dóms-
málaráðgjafans, Davids T. Wilentz,
en hann var sá, er málið sótti gegn
Hauptmann fyrir hönd New Jersey
ríkis.
SKIPAÐUR / NÝJA
ÁRYRGÐARSTÖÐU
Mr. Paul Bardal, bæjarfulltrúi,
hefir verið af fylkisstjórninni skip-
aður í þá nefnd, £r Greater Winni-
peg Unemployment Board nefnist.
Áður var hann, sem kunnugt er,
kjörinn formaður þeirrar nefndar,
er um atvinnuleysismálin fjallar
fyrir bæjarstjórnarinnar hönd.
FYLKISÞINGIÐ I
SASKATCHEWAN
KEMUR SAMAN
Á fimtudaginn þann 6. þ. m., var
fylkisþingið í Saskatchewan sett, að
viðstöddu miklu fjölmenni. í til-
efni af fráfalli konungs, var athöfn-
in með öllu laus við ytri tákn vegs
og valda, svo sem fallbyssuskot og
skrautbúninga embættismanna; yfir
öllu hvíldi einfaldur samúðarblær.
Þetta er fyrsta þingið, sem hinn nýi
stjórnarformaður, Mr. Patterson,
hefir kvatt til funda, síðan hann tók
við völdum.
Samkvæmt ákvæðum stjórnarboð-
skaparins, gerir stjórnin ráð fyrir
að þess verði ekki Iangt að bíða unz
lögð verði fyrir þing tekjuhallalaus
fjárlög.
TVÖFALDAR LAUN SIN
Á nýafstöðnu þingi námamanna
samtakanna1 Bandaríkjunum, knúði
forseti þess félagsskapar, John M.
Uewis, það fram, að árslaun sín vrði
hækkuð um helming, eða úr $12,000
UPP í $25,000, auk ferðakostnaðar.
Töluvert voru skiftar skoðauir tc-
lagsmanna um launahækkun þessa,
þó að lokum yrði hún barin í gegn
með nokkurum meirihluta.
FYRRUM VAR'A-FORSETI
RANDARIKJANNA
CHARLES CURTIS LATINN
Síðastliðinn laugardag lézt í
Washington, fyrverandi varaforseti
Bandáríkjanna, Charles Curtis, 76
ára að aldri; varð hjartabilun hon-
um að bana.
Mr. Curtis var fæddur og uppal-
mn i Kansas-ríkinu, lauk ungur
prófi í lögum, en var kosinn þing-
maður til neðri málstofu þjóðþings.
ms í Washington árið 1892; átti
hann sæti í neðri málstofunni fram
á árið 1907, er hann hlaut kosningu
B1 öldungadeildarinnar sem senator
fyrir fæðingarriki sitt. Því sæti
hélt hann, að tveimur árum undan-
skildum, fram til ársins 1928, er
hann í Hoover-kosningum var kos-
inn varaforseti Bandarikjanna af
hálfu Republicana.
Eftir að Charles Curtis lét af
varaforseta-embætti, gaf hann sig
við malafærslu í Washington. Hann
var ekkjumaður, og bjó hjá systur
•sinm. Mrs. Edward Everett Garm
Mr._ Curtis var málafylgjumaður
nukill og lét sér ekki alt fyrir brjósti
brenna.
Nanna V. Bjerring látinn
Á sunnudaginn 9. þ. m. andaðist
á heimilinu Betel á Gimli, Nanna
Vilfríður Bjerring, 74 ára að aldri,
ekkja Óla Péturs Bjerring, sem dá-
inn er fyrir nokkrum árum.
Húskveðjuathöfn á heimilinu ann-
aðist séra Jóhann Bjarnason, en út-
föriú fór fram á þriðjudaginn þann
11., frá Fyrstu lútersku kirkju í
Winnipeg, sem Séra Björn B. Jóns-
son veitti forustu.
Nanna var fædd í Mýraseli í
Reykjadal í S.-Þingeyjarsýslu 10.
júlí 1861, dóttir Ólafs Indriðasonar
og Margrétar Jónsdóttur. Kvæntist
hún Óla Pétri árið 1882, og fluttu
þau sig til Ameríku árið 1893. Eign-
uðust þau ellefu börn; af þeim lifa
nú þrjú: Sigtryggur og Hermann i
Winnipeg og Vilhjálmur, á Gimli,
einnig ein stjúpdóttir, Jónína, (Mrs.
W. G. Montgomery) í Moose Jaw,
Sask.
Þrjú systkini hinnar látnu eru á
lífi: Óli Vilhjálmur, Gimli, (fyrrum
ráðsmaður Betel), Sigtryggur Frí-
mann í Winnipeg og Sigríður Ind-
riðadóttir. Einn bróðir, Ásgeir, dó
fyrir mörgum árum.
í anda kristinnar trúar, sem svo
oft hafði veitt þrótt í þrautum, urðu
síðustu stundirnar á erfiðri lífs-
braut bjartari, og i sólarlagi líðandi
daga lífsins ljómuðu morgungeislar
eilífðarinnar.
X. 0. B.
DEYR AF SLYSI
Brian De Valera, tvitugur að aldri,
sonur forseta írska fríríkisins,
Eamons De Valera, dó af„slysi síð-
astliðinn sunnudag, er hann var á
útreiðartúr í Phoenix Park, með
þeim hætti, að höfuð hans rakst á
trjágrein, er olli svo miklum áverka,
að hann beið bana af.
GILLIS LÖGREGLÚÞJÖNN
LÁTINN — BRYSON
AKÆRÐÚR UM MORÐ
Charles Gillis, lögregluþjónn, sá
er skotið var á fyrir rúmum hálfum
mánuði, er hann gerði tilraun til
þess að handsama ræningja við
gasolíustöðina á mótum St. Mary’s
og Donald Street hér í borginni, lézt
á Misericordia sjúkrahúsinu á föstu-
daginn 14. febrúar. Höfðu menn
lengi vel gert sér nokkrar von-
ir um að hann myndi smátt og sniátt
ná sér og komast til heilsu. En ofan
á blóðmissi eftir áverkann, og þar
af leiðandi þverrandi lífsmátt, bætt-
ist svo lungnabólga beggja megin, er
reið honum að fullu.
Hinn látni lögregluþjónn var 47
ára að aldri, vinsæll og ábyggilegur,
er að lokum fórnaði lifi sínu á altari
skyldunnar. Hann lætur eftir sig
konu og tvö börn.
Ian Bryson, 23. ára, sá er stofn-
aði til ránsins í gasolíustöðinni, og
skaut á Mr. Gillis, hefir nú form-
lega verið sakaður um morð.
Jarðarför hins harmaða lögreglu.
þjóns fór fram frá St. Ignatius
kirkjunni á þriðjudaginn var, að
viðstöddum miklum mannfjölda.
Meðal líkmanna var George Smith,
lögreglustjóri Winnipegborgar.
ALBERTA ÞINGIÐ SETT
Siðastliðinn fimtudag v^ir Alberta
þingið sett. Er það hið fyrsta þing
Social Credit stjórnar þeirrar, sem
Hon. William Aberhart veitir for-
ustu. í hásætisræðunni var vikið
að því, að stjórnin myndi á þessu
þingi gera nauðsynlegar ráðstafanir
í sambandi við kosningaloforð sín,
viðvíkjandi mánaðarlegum borgun-
um til fylkisbúa, og því öðru, er
Social Credit flokkurinn hét að
hrinda í framkvæmd. Af þessu
verður þó sennilega ekki í bráðina,
með því að fylkisritarinn, Mr. Man-
ning, hefir í ræðu, eftir að þing var
sett, lýst yfir því, að einungis venju-
leg lýðþrifa löggjöf verði lögð fyr-
ir þingið að þessu sinni.
Við silfurbrúðkaup
G. J. Oleson, lögregludómara og frúar hans,
Glenhoro, 10. febrúar, 1936
Þó fimbulvetur fari um lönd,
ei frjósa íslenzk hjónabönd;
því dýpst í þeirra hjartnahyl
er lieilög kaldavermsla til,
sem kyngimagn í barmi ber
og bræðir klakann út frá sér.
Og- hér er eitt slíkt hjónaband,
sem hefir numið blómgað land
í vinahjörtum út um alt,
og öllum rétta tíund galt.
Við fegurð alls, sem íslenzkt var,
er æfitrygðum þaldið þar.
Þó fámenn oft sú fylking sé,
sem forustunni helgar vé,
er þakkarvert að vita um þá,
sem veðrin ekki bíta á
og líta glaðir Ijósi mót,
þó leiðin sé um eggjagrjót.
Við aldarfjórðungs áning sézt,
að enn sem fyrri dugði bezt
liinn vígði þáttur ættararfs
í öllum myndum göfugs starfs;
að norrænt táp ei tapar sér
unz tjölduð hinzta búðin er.
Einar P. Jónsson.
Sambandsþingið sett
Islenzkur hagleiks-
maður
Þótt hin verklega menning ryðji
sér óðum til rúms hér á landi er gull-
ökl hagleiksmannanna ekki komin
enn. Þeir eiga stöðugt í höggi við
skilningsskort almennings og oftast
er þeirra einasta bjargráð að hjálpa
sér sjálfir, eða réttara sagt: þeir eru
settir á “guð og gaddinn.”
Og þessu mun verða svo varið þar
til þjóðin hefir lært að skilja að
fullu hve hin verklega menning er
mikilsverður þáttur í tilveru hennar.
Þá rennur upp gullöld hagleiks-
mannanna.
En þrátt fyrir það þótt ski'yrðin
séu lítil, tekst þó einstaka hagleiks-
manni með frábærum dugnaði að
vekja á sér eftirtekt, þótt launin
verði af skornum skamti.
Einn þessara manna er Axel
Helgason, sem vakið hefir athygli
með því að gera upphleyptar eftir-
myndir af íslandi. Axel er fæddur
upp við' allsleysi og þrátt fyrir af-
burða hæfileika hefir hann ekki leiTt
hugann að fjáröflun, heldur einbeit-
ir sér að áhugaefnum sínum, án til-
lits til fjárhagsafkomunnar. Hans
sigrar felast einvörðungu í því að
koma því í framkvæmd, sem hann
vill vinna.
Frá 1927 til 1931-32 var Axel
Helgason við trésmíði og kom brátt
í ljós, að hann var afburða hagleiks-
maður.
En brátt fékk hann sterkan áhuga
fyrir öðru viðfangsefni, og árið
1933 bjó hann til líkan af íslandi.
Var það til sýnis á skólasýningu,
sem haldin var sama ár, og var sið-
an sett utan á vegg Austurbæjar-
barnaskólans. Ennfremur veitti
fræðslumálaskrifstofan hinum unga
völundi styrk til að fullkomna líkan
sitt.
Mun Axel hafa verið á þriðja
mánuð með hina nýju frummynd.
Var hún gerð af pappa og olíuvaxi.
Hefir það kostað ótrúlega þolin-
mæði, útreikning og hagleik að gera
þessa eftirmynd.
Frummyndin var síðan steypt í
stál-aluminiummót og i þvi móti
hafa verið steyptir 25 uppdrættir,
sem eru í hlutfallinu 1:5oo,ooo.
Þessir uppdrættir eru nú notaðir í
skólum víðsvegar um land og líka
ágætlega.
En um siðustu áramót hafði Axel
lokið merkilegasta verki, sem hann
hefir enn gert. Það er upphleypt
rnynd af nokkrum hluta Suðvestur-
lands, sem gerð er fvrir tilstilli skól-
anna í Reykjavík. Mótast upp-
dráttur þessi af línu, sem dregin er
frá Hvaleyri að Klausturhólum í
Grímsnesi, þaðan i Ok, síðan niður
Flókadal í Straumfjörð í stefnu á
Hvaleyjar og þaðan til Hvaleyrar
aftur. Stærðarhlutfall líkansins er
1 50,000. Er uppdráttur þessi þvi
greinilegur og auk þess snildarlega
gerður. Hefir Axel unnið að frum.
myndinni siðan i febrúar í fyrra og
er því efamál hvort meira ber að dá
hagleik hans eða þrautseigju. T
frummyndina hefir Axel notað
sömu efni og áður, en betur get 1*
beitt nákvæmni sinni. Sjálfur hefir
hann búið til mót í gipsi og steypt
fjórar eftirmyndir í gips. Hefir
Eirikur Jónsson málari málað þær
og er það vel gert. Eru likön þessi
nú komin í barnaskólana og ljúka
kennarar miklu lofsorði á þau, telja
að þau gefi mjög gott yfirlit um
landið og létti landafræðiskcnsluna.
Enda er engu líkara, þegar Iit;ð er á
þetta verk Axels, en að landið sé séð
í f jarska úr mikilli hæð.
Eitt mesta þolimæðisverkið við
kortagerð þessa er að reikna út rétt
Framh. á bls. 5
Á fimtudaginn þann 6. þ. m., var
sambandsþingið sett. Hinn nýi
landsstjóri, Tweedsmuir lávarður,
las upp boðskap konungs til þings-
ins. Til forseta efri málstofunnar
var kosinn Mr. Foster, fyrrum for-
sætisráðgjafi í Nova Scotia, en í
'þeirri neðri, Pierre Casgrain frá
Quebec. Sætti kosning hans mót-
spyrnu nokkurri af hálfu þeirra
Woodsworths og Bennetts.
VINNUR KOSNINGU
Ráðgjafi sjálfstjórnar þjóðanna
brezku. Mr. Malcolm MacDonald,
gekk sigrandi af hólmi í aukakosn-
ingu til brezka þingsins, sem fram
fór í Ross-Cromarty kjördæminu á
þriðjudaginn. I almennu kosning-
unum síðustu, tapaði Mr. '•Mac-
Donald þingsæti sínu.
GREAT WEST LIFE
ASSURANCE FÉLAGIÐ
Á öðrum stað hér í blaðinu ,er
prentuð efnahags og rekstrar-
skýrsla þíssa volduga og velmetna
félags; ber hún það með sér, hve
félagið" þrátt fyrir kreppuna. hefir
fært út kvíarnar á liðnu starfsári, i
hinum ýmsu greinum viðskiftanna.
Mr. B. Dalman, fyrrum kaupmað-
ur í Selkirk og búsettur i þeim bæ,
hefir með höndum umboð fyrir
Great West Life, og geta Islending-
ar snúið sér til hans, bréflega eða
munnlega, viðvíkjandi tryggingum
hjá félaginu. Mun hann gefa þeim
góð og skjót svör. Mr. Dalman er
maður, sem ávalt má treysta.
ÆFINTÝRAFÖR
Maður að nafni Rene Leblanc,
hefir nýverið lokið því þrekvirki, að
ferðast á hundasleða alla leið frá
Montreal til Winnipeg. Ferðin stcð
yfir í 30 daga. Fimm hunda hafði
Mr. Leblanc í leiðangri þessutn.
OTGJÖLD LÆKKUÐ
Fjárhagsáætlun sú, sem f jármála.
ráðgjafinn, Hon. Charles A. Dun-
•ning lagði fyrir sambandsþing þann
11. þ. m., ber með sér, að gert er
ráð fyrir lækkun útgjalda sem nem-
ur $12,000,000 á næsta fjárhagsári.
Úr borg og bygð
Þann 6. janúar síðastliðinn, kom
hingað til borgarinnar Mrs. Valdi
Johnson frá Hecla P.O.. með fjögra
ára dóttur sína, Lilju, til lækninga.
Var hún skorin upp á Almenna
sjúkrahúsinu af Dr. B. J. Brandson,
og er nú konún til fullrar heilsu.
Þann tíma, sem Mrs. Johnson var
í bænum, dvaldi hún hjá tengda-
bróður sinum og systur, Mr. og Mrs.
I. Benson, Simcoe Street. Þær
mæðgur héldu heimleiðis þann 4.
þ. m.
Mrs. Hannes Egilsson frá Cal-
der, Sask., kom til borgarinnar
seinni part vikunnar sem leið, í
heimsókn til frænda og vina.
Winnipeg, Manitoba,
Jan. 27, 1936
Lögberg, Icelandic W’eekly,
Winnipeg, Man;
Dear Sirs:
On behalf of the Board of Dea-
cons of the First Lutheran Church
I wish to convey sincere thanks to
you for your contribution of copies
of the “Lögberg” for distribution
among the Icelandic reading patients
sick and convalescing in homes and
hospitals who are visited weekly by
members of the board.
v Yours sincerely,
B. Baldwin, secty.
Flokksforingjarnir fjórir, þeir
King, Bennett, Woodsworth og
Blackmore, mintust fagurlega hins
látna konungs, jafnframt því sem
þeir lýstu yfir hollustu sinni við
nýja konunginn, Játvarð hinn Átt-
unda. Vikið er nokkuð að megin-
dráttum konungsboðskaparins eða
hásætisræðunnar, á öðrum stað hér
í blaðinu.
“Peer Gynt,” hinn heimsfrægi
sjónleikur Ibsens verður sýndur á
Dominion Theatre þau kvöldin, sem
eftir eru af yfirstandandi viku, eins
og auglýst er á öðrum stað hér í
blaðinu. Það er ekki á hverjum degi
sem íslendingum gefst kostur á að
njóta slíks meistaraverks á leiksviði,
sem "Peer Gynt” er, og ættu þeir
þvi að tryggja sér aðgöngumiða i
tæka tíð.
Mrs. Svanbjörg Sigurðsson lagði
af stað vestur til Churchill, Man., á
miðvikudagsmorguninn, þar sem
framtíðarheimili hennar verður.
Með henni fór dóttir hennar, Mrs.
G. Philben, sem dvalið hefir um
hríð hér í borginni.
Mr. og Mrs. Árni Pálsson frá
Reykjavík, Man., dvelja í borginni
um þessar mundir.
Mrs. P. S. Bardal kom heim í lok
fyrri viku, eftir mánaðardvöl hjá
syni sinum, Dr. Sigurgeir Bardal
að Shoal Lake.
Munið eftir myndasýningunni og
þvi öðru, er fram fer i Goodtempl-
arahúsinu á fimtudagskvöldið þann
13. þ. m. Arðurinn af samkomunni
rennur í sjúkrasjóð stúkunnar
Heklu. Hr. Arinbjörn Bardal ann-
ast um sýningu myndanna.
Deild nr. 3 Kvenfélags Fyrsta
lúterska safnaðar heldur “Silver
Tea” að heimili Mrs. H. Baldwin.
620 Agnes Street á föstudaginn
kemur þann 14. þ. m., síðdegis og
að kvöldinu.
í síðasta blaði var þess getið, að
tveir, ungir, íslenzkir hljómfræðing-
ar, Frank Thorolfson og Agnes Sig-
urðsson, hefðu getið sér orðstír i
hljómlistarsamkepni, eða tónsmíði.
Frétt þessi barst blaðinu ekki fyr
en um þær mundir sem það var ful!
búið til prentunar, og þvi ekki frá
sagt eins nákvæmlega og átt hefði
að vera. Frank vann 1. verðhut’
fyrir Pastorale, fiðlu og piano, en
Agnes 2. verðlaun fyrir “Vöggu-
vísu,” einnig fyrir fiðlu og pianc.
Er það ávalt ánægjuefni, er íslend-
ingar skara fram úr í einhverju því,
sem til manngildis og sæmdar miðar.
Silver Tea — Home Cooking.
Fimtudaginn 20. febrúar, eftir
hádegi og urn kvöldið, verður hald-
ið “silver tea” og “home cooking”
sala í fundarsal lútersku kirkjunnar,
Victor St. Deild nr. 1, undir for-
stöðu Mrs. B. J. Brandson og Mrs.
Finnur Johnson og deild nr. 2 undir
forstöðu Mrs. H. Olson og Mrs. Kr.
Hannesson, standa fyrir sölunni.
Verður þar á boðstólum allskonar
heimabakað sætabrauð, brúnt brauð
og rúllupylsa, kæfa og margt annað
gómsætt og gott. — Konurnar von-
ast eftir að sem flestir heimsæki sig
þennan dag og komi með vin> sína.
—Um kvöldið verður stutt prógrarn
Bvrjar kl. 8:15. Góðskemtun!
Fjölmennið!
I