Lögberg - 27.02.1936, Síða 1

Lögberg - 27.02.1936, Síða 1
49. ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 27. FEBRÚAR, 1936 NGMER 9 MANITOBAÞINGIÐ Umræðurnar um stjórnarboSskap. inn standa enn yfir. Af stjórnarinn. ar hálfu, hafa þeir Bracken stjórn- arformaður og Major dómsmála- ráðherra, einkum og sérílagi haldið uppi svörum. Þingleiðtogar mót- stöðuflokkanna, þeir Evans og Farmer, hafa haft sitthvað smá- vægilegt að athuga við gerðir stjórn- arinnar, en verið næsta mildir í dóm. um. Er afstaða þeirra slík, eins og annað dagblaðið hér í borginni komst að orði um daginn, að ætla megi að þeir séu orðnir með öllu úrkula vonar um það, að( flokkar sínir komist nokkru sinni hærra, en þeir nú standa; eða með öðrum orð. um, að þeir haldi áfram að vera sömu krílisbrotin í andstöðu við nú- verandi stjórn; þangað komist þeir, en ekki lengra. Ekki verður annað sagt en stjórn- inni hafi farnast vel á árinu, þó átt hafi hún við ramman reip að draga viðvíkjandi auknum útgjöldum til atvinnuleysismálanna. Tekjur hafa aukist á hinum ýmsu sviðum, og það beinlínis stórvægilega. Má þar eink. um til telja tekjurnar af stjórnar- vínsölunni og starfrækslu simakerf- isins. Úlfaþyt nokkurn gerðu þeir Evans, Farmer og Hyman út af því, að stjórnin skyldi ekki hafa látið fara fram aukakosningar í Winní- peg vegna þeirra þingsæta, er við það losnuðu, að John T. Haig vai gerður Senator, en Ralph Maybank kosinn á Sambandsþing. Mr. Brack. en svaraði því til, að er tekið væri tillit til þess hve langt væri liðið á kjörtímabil stjórnarinnar, hefði sér fundist lítt viðeigandi að eyða $50,- 000 til slíkra aukakosninga. Mun meginþorri þingheims hafa litið svipuðum augum á málið. ELZTI OG YNGSTI ÞING- MAÐUR 1 OTTAWA Elztur þeirra þingmanna, er sæti eiga á Sambandsþingi um þess- ar mundir, er Robert S. White, 79 ára að aldri, þingmaður fyrir St. Antoine . Westmount kjördæmið. Yngsti þingmaðurinn er Rene Pelle. tier. 27 ára, fulltrúi Peace River kjördæmisins í Alberta. ENDURNÝJAÐ LÁN U°n. Charles A. Dunning, fjár- málaráðgjafi sambandsstjórnarinn- ar, hefir lýst yfir því, að stjórnin- hafi endurnýjað $3,542,019, er fylk- isstjórnin í Saskatchewan fékk úr ríkissjóði i fyrra. Greiddir skulu 4 af hundraði í vöxtu af láni þessu. þjóðræknishvöt Sú var tíð þá kappar knáir knúðu gnoð um svala dröfn. Fjallatindar fagur bláir faðminn réttu móti höfn. Þá var f jör og dáð í drengjum, dygð og göfgi fljóðum hjá. Helg frá íslands hjartastrengjum hreystin vermdi lönd og sjá. Enn þá feðra andinn lifir ættarfold þó skilji haf, lýsir tímans öldum yfir arfurinn, sem Frónið gaf, óður, saga, mál og minni milli landa tengir bönd. Frægir leið með framtiðinni fornhelg dáð um vestræn lönd. íslenzk þjóð í álfu nýrri, upp með þrótt og huga ljóns. Víg þinn anda vorhvöt dýrri, vafurlogum móður fróns; regin gildi stofninn sterki styrkinn þínum taugum gaf. til að hef ja manndóms merki, mátt og völd um tímans haf. M. Markússon. Herinn í Japan nœr stjórninni í hendur sínar Símað er frá Tokyo þann 26. þ. m., að stjórnarbylting sé nýfarin fram í Japan með þeim hætti, að herinn hafi náð stjórninni á vald sitt. Þeir Okada forsætisráðgjafi, Takahashi f jármálaráðgjafi og Fumio Goto inanríkisráðgjafi, hafi allir verið myrtir. Hirohita keisari kvaddi þegar Mineo Osumi aðmírál á fund sinn, og fal honum á hendar myndun nýs ráðuneytis. IIUNDRAÐ OG FIMM ÁRA GAMALL Maður að nafni Murdock Mc- Lean, búsettur að Moosomin i Sas- katchewan fylki, átti 105 ára afmæli þann 20. þ. m., og nýtur enn hinnar beztu heilsu. Hann er fæddur á Skotlandi, og var sex ára gamall þegar Victoria drotning kom til valda. Mr. Murdock les gleraugna- laust, og heldur enn ósködduðum öllum tönnum sínum. Hann var elzti maðurinn í Saskatchewan, sem á kjörskrá var þar í síðustu sambands- kosningum, og lét ekki undir höfuð leggjast að koma á kjörstaðinn í tæka tíð. TIELDUR ÁRSFUND SINN Félagsskapur sá, er Industrial Development Board of Manitoba nefnist. hélt ársfund sinn hér í borg. inni siðastliðið miðvikudagskvöld. Forsetinn, Mr. Theodore Kipp, hafði búið undir ársskýrslu sína, en Mr. E. T. Leech, K.C., las hana. Félagsskapur þessi hefir það verk- efni einkum og sérílagi með hönd- um, að beina hingað nýjum iðnaði og auka með því atvinnu í borginni; hefir honum þó nokkuð unnist á í þessa átt. Nú hefir forstöðunefnd- in gefið út vandaða bók, Buyers Guide 1936, eða skrá yfir þær iðn- aðartegundir, sem framleiddar eru í Manitoba og Saskatchewan. Bókin er prentuð hjá Columbia Press, Ltd. Skrifari þessarar nýtu stofnunar, er Mr. J. M. Davidson, ötull áhuga- maður. SENATOR JOIIN McCORMICK LÁTINN Þann 22. þ. m., lézt að heimili sinu í bænum Sydney Mines í Nova Scotia, Senator John McCormick, 78 ára að aldri. Hann átti um hríð sæti á fylkisþingi. I fimm Sam- bandskosningum, 1904, 1906, 1908, 1911 og 1917 bauð hann sig fram í Cape Breton North-Victoria kjör- dæminu, en beið ávalt lægra hlut. En árið 1921 hlaut hann Senators útnefningu. LAUNASKATTUR Af skýrslum. sem fram hafa lagð- ar verið í Manitoba þinginu, má sjá að launaskattur fylkisstjórnarinnar á síðastliðnu fjárhagsári hefir num- ið $1,674,800. Drotningin “fótalausa.” Þegar Margrét frá Austurríki, drotning Filippusar 3., kom til Spánar árið 1599, ferðaðist hún um borg eina, sem fræg var fyrir fram- leiðslu sina á silkisokkum. Yfirvöld- in vildu koma sér í mjúkinn hjá drotningunni og sendu henni dýrind- is silkisokka. Gjöfin var afþökkuð og sendimönnunum, sem komu með sokkana trúað fyrir því, að Spánar. drotning hefði enga fætur. Síðan er það að orðtæki haft þar í landi, að opinberlega hafi Spánardrotning enga fætur! —•Visu. STOFNAÐ TIL FJÖRRÁÐA Símað er frá Addis Ababa þann 21. þ. m., að uppvíst hafi orðið um samsæri til þess að koma Haile Selassie konungi Ethiópiumanna fyrir kattarnef. Var þetta gert með þeim hætti að færa svo flugvél hans úr lagi, að slys hefði orðið óumflýj- anlegt. Eftir þes&u var þó tekið í 1 tæka tíð til þess að afstýra vandræð. um. ALBERT C. RITCHIE LÁTINN Á mánudaginn þann 24. þ. m., lézt af hjartaslagi í Baltimore, Albert C. Ritchie, fyrrum ríkisstjóri í Mary- land, því nær sextugur að aldri. Mr. Ritchie var í tölu hinna mestu áhrifamanna innan vébanda Demo- krata flokksins, og barðist hraust- lega fyrir forsetaútnefningu gegn Fraklin D. Roosevelt á útnefningar þinginu í Chicago 1932. Mr. Ritchie var fjórum sinnum kosinn til ríkis- stjóra í Maryland. Hann var óvin- veittur mjög viðreisnarlöggjöf Roosevelts forseta, og var staðráð- inn í að beita sér gegn því, að hann yrði útnefndur í ár. ÁVARP FRÁ KONUNGI Hans hátign Edward konungur hinn VIII., ávarpar þegna sina viðs- vegar um hið volduga, brezka veldi, yfir útvarpið þann 1. marz næstkom- andi, kl. 10 f. h. Central Standard Time. TÓLF BILJÓNIR TIL HERBÚN AÐAR Sir Edward Grigg, einn af hinr urn áhrifameiri þingmönnum íhalds- flokksins í brezka þinginu, flutti þann 24. þ. m. ræðu í borginni Ply- mouth á Englandi, þar sem hann gerði þá staðhæfingu, að síðastliðin þrjú ár hefðu Þjóðverjar varið 12 biljónum dala til herbúnaðar. þrír flugmenn FARAST Símað er frá Kaupmannahöfn þann 25 þ. m., að þrír danskir flug- menn hafi farist þar í grend dag- inn áður. Orsakir þær, er til slyss- ins leiddu voru þær, að í aftakabyl þá um daginn heyrðist við flug- stöðvarnar hljóð, er menn hugðu vera frá flugvél, er væri í vandræð- um með að lenda. Þrir menn voru valdir til þess að reyna að koma hjálp við, og fórust þeir allir. Við nánari rannsókn kom það í ljós, að hugmyndin um nauðlendingar til- raun var bygð á misskilningi, með því að engin slík flugvél var þar á ferð, heldur stafaði hljóðið frá snjó- þunga, er fallið hafði á símavirana í hríðinni. Þröngt í búi. Þegar séra Eyjólfur Kolbeinsson, mesti merkisklerkur, síðast prestur að Eyri í Skutilsfirði, var aðstoðar- prestur séra Jóns Ormssonar i Sauðlauksdal, og bjó að Bæ á Rauðasandi, um og eftir 1800, hafði hann litlar tekjur og bjó við ærið þröngan hag. Hann var hinn mesti dugnaðarmaður, en átti fyrir mikilli ómegð að sjá. Var þá löng- um ilt árferði og vandræði milli manna. — “Svo sagði merkiskonan Jóhanna Friðrika dóttir hans (kona Ólafs prófasts Sigurðssonar í Flat- ey), að ekkert hefði verið til matar eitt sinn á hvítasunnu hjá foreldrum sinum, nema selmagi einn, er hafð- ur var undir lýsi; var hann tekinn i sundur, skafinn vandlega, steiktur og síðan etinn. Sagði Jóhanna frá þessu, eftir að hún var orðin pró- fastskona í Flatey, og gat engum þeim, er hana þekti, blandast hugur um, að frásögn hennar var í alla staði sönn, enda mun flestar hörm- ungasögur frá þeim tíma hafa við gild rök að styðjast.” (Eftir Annál nítjándu aldar). Frá Islandi Harðindi Sökum dæmafárra harðinda og fannkyngi, er mjög gengið á fóður- birgðir bænda í Suður-Þingeyjar- sýslu og óttast þeir mjög fóðurþrot, ef eigi breytist tíð til batnaðar innan skamms. í gær átti blaðið tal við fréttarit- ara sinn í Suður-Þingeyjarsýslu, og sagði hann svo frá: —Vetur settist óvenju snemma í garð, og var f^ víðast komið á gjöf viku fyrir vetur. Má heita, að síðan hafi verið stöðug innigjöf nema nokkurn tíma fyrir jólin. Síðan fyr- ir jól hafa verið stöðug harðindi, snjókoma og frost mikil, en þó er veður nokkru betra tvo síðustu dag- ana. Fan-nkyngi er með ódæmum mik- ið, algerð jarðbönn, og það jafnve’ á beztu útbeitarjörðum. Sökum stöðugra innigjafa eru nú margir bændur búnir að gefa helm- ing heyja sinna eða meir, og er það fágætt. þegar svo skamt er liðið vetrar. Gerast bændur því mjög óttaslegnir um fóðurþrot, sem virð- ast óhjákvæmileg nema að tið breyL ist mjög til batnaðar innan skamms. Samgöngur eru mjög strjálar, enda hefir um lengri tíma ekki ver- ið hægt að fara bæja á milli nema á skíðum. Eru það mikil vonhrigði, því að stöðugar bílferðir hafa lerið um héraðið undanfarna vetur. — Nýja dagbl. 31. jan. Símábilanir Blaðið átti í gær tal við Guðmund Hlíðdal póst- og símamálastjóra. skýrði hann svo frá, að fannkyngi væri afar mikið á Norður- og Aust- urlandi. Snjóflóð og krapahriðar hafa valdið skemdum á símalinum. I f fyrradag bilaði símalínan milli Fljóta og Ólafsf jarðar. Símavörður, sem gekk með línunni, skýrir svo frá, að snjóflóð hafi fallið á línuna um y2 km. frá Þrasastöðum, og sópað burtu tveimur símastaurum. Einnig hafa slitnað símalínur milli Hafraness og Fáskrúðsf jarðar. í gær var víða þíðviðri í bygð, t. d. 4 stiga hiti á Akureyri, en á f jöllum mun hiti víða hafa verið um frostmark og eru símalínur í hættu vegna ísingar. Landsímastjóri skýrði að síðuslu frá því, að snjóflóðahætta væri mik- il og vaxandi á Norð-austurlandi, og vegna þess væri simaverðir tregir til að ganga með símanum. — Nýja dagbl. 31. jan. Bœr brennur Selfossi 30. jan. Laust eftir kl. 15 í gær brann í- búðarhús Jónatans Jóhannssonar bónda á Kotströnd í Ölfusi. Bóndinn var við gegningar skamt frá, en aðrir ekki heima. Varð því eldsins ekki vart fyr en húsið var alelda. Var þegar brugðið við frá næstu bæjum, en ekki varð við neitt ráðið. Var húsið gjörbrunnið eftir hálftíma og engu bjargað. Talið er að kviknað hafi í út frá eldavél. Var eldur í henni þegar skilið var við húsið. Húsið var lítið einlyft timb- urhús, eitthvað vátrygt, en munir allir óvátrygðir og bíður þvi eigand- in tilfinnanlegt tjón.—Nýja dagbl. 31- 3an- MiJcill trjárelci í Grímsey Grímseyingar komu í land til Húsavíkur 1. þ. m. Sögðu þeir ó- venjumikinn trjáreka við eyjuna. Á Miðgarðaf jöru einni voru rek- in 4 stór tré, er talið að allur rekinn í eyjunnr sé nær 200 tré. Gæftir hafa verið litlar en snjó- koma lítil og veturinn mildur fratnan af, svo að unnið var við jarðarhæt- ur á jólaföstu. Sjómælingar við eyjuna sýna að sjórinn hefir verið með kaldara móti. en er nú farinn að hlýna.— Morgunbl. 4. febr. Nýr togari “Reykjaborg” “Reykjaborg” heitir togarinn, semt þeir Guðmundur Jónsson skipstjóri og Geir Sigurðsson keyptu í Boul- ogne nýlega. Geir Sigurðsson kom heim með Goðafossi s.l. laugardag, en Guð- mundur Jónsson kemur væntanlega með hið nýja skip í næstu viku. Morgunblaðið átti tal við Geir Sigurðsson i gær og spurði hann um togarann. —Skipið er um 700 smálestir að stærð. segir Geir. Það hefir gengið i 6 ár frá Boulogne, aðallega á Ný- fundnalandsmið og Grænlandsmið. Guðmundur Jósson skipstj. er nú að útbúa skipið, og er verið að setja um borð í það beinamjölsvélar, en þær fáum við að láni til reynslu i vetur. Síðan er ráðgert að setja í það stærri og fleiri vélar, til að vinna úr lýsi o. þ. h. —Og nafnið Reykjaborg? —Þannig stendur á því, er svar Geirs, að fyrir ofan Reyki i Mos- felssveit, þar sem Guðmundur Jóns- son skipstj. hefir bú. eru sléttur, sem heita Reykjaborgir. Þaðan er nafn skipsins fengið.—Mbl. 5. febr. ATVINNULEYSI A SPANI Fram að þessu hefir Spánn að jafnaði haft fjölda útlendinga í há- íaunuðum stöðum, aðallega verk- fræðinga, en nú hefir verkfræðinga- félagið spænska, ásamt fleiri félög- um, hafist handa um að bæta úr þessu. Hafa félögin sent stjórn- inni skýrslu um þetta, og segir i henni. að um 600 af hinum bezt verkfræðilærðu mönnum landsins gangi nú atvinnulausir, vegna þess hve margir Frakkar og Þjóðverjar hafi þar verkfræðistöður. Auk þess sé þessum útlendingum greidd miklu hærri laun, en Spánverjar fengi, ef þeir væri i stöðunum, t. d. fái einn þeirra 43,000 dollara laun á ári. Vinna útlendingarnir aðallega við járnbrautir, námur og efnaverk- smiðjur. Útlendingar fá fremur vinnu en Spánverjar sakir þess. að þeir eru miklu duglegri og fúsari á að vinna líkamlega vinnu en Spán- verjarnir. Úr borg og bygð í slandsblöð láta þess getið, að séra Ragnar E. Kvaran hafi verið skip- aður leiðbeiningastjóri við Ferða- skrifstofu hins íslenzka rikis frá 1. febrúar að telja. Fimtugasta og þriðja ársþing Stórstúku Manitoba and North- west var haldið i Winnipeg dag- ana 19. og 20. febrúar. Var þing- ið í alla staði hið ánægjulegasta. Voru þar rædd ýins mál er mættu verða bindindismálinu til efling- ar. Br. H. Skattfeld, D. I. C. T., setti eftirfarandi systkini i em- bætti fyrir þetta ár: A. S. Bardal—Gr. C. T. G. Dann—P.G.C.T. H. Gíslason—Gr. Coun. V. Magnússon—Gr. V.T. Mrs. A. S. Bardal—Gr. Chap. Mrs. C. Chiswell—G.S.J.W. S. Eydal—Gr. Sec. S. Paulson—G.A.S. .1. T. Beck—Gr. Treas. C. Thorlakson—Gr. S. El. W. G. Jóhannsson—Gr. S. Ed. W. R. Magnússon—Gr. M. .1. Cooney—Gr. D.M. Mrs. Erickson—Gr. Mess. Mrs. S. Backinon—Gr. G. S. Mathews—Gr. S. Mr. Oddur Oddson, sem dvalið hefir um hríð hjá fólki sínu á Lundar, fór suður til Chicago a föstudaginn var, þar sem hann hefir stundað trésmiðar og önn- ur byggingastörfr undanfarin ár. Ritstjóri þessa blaðs hitti séra Jakob Jónsson allra snöggvast að ináli* fyrri part yfirstandandi viku; láut samtalið að skáldsögu þeirri, sem vikið var að í síðasta blaði að hann hefði i smiðum, og afráðið að lesa UPP i Sam- bandskirkjunni hér í borginni. Saga þessi, sem er all-löng, er að heita má fullskrifuð, gerist í íslenzku sjávarþorpi, og er að öllu levti iir nútíðarlifi íslenzkrar þjóðar. Með þvi að oss var ekki full- kunnugt um fvrri rit séra Jakobs á þessu sviði, fréttum vér hann í því sambandi nokkru ger; kvaðst hann hafa samið þrjár smásögur á islenzku, sem birtar hefði ver- ið á prenti, og eina sögu á dönsku, auk smásagnabálks, óprentaðs, er gerist í sama þorpinu og þessi nýja skáldsaga. Ákveðið hefir verið, að séra Jakob lesi nokkra þætti úr þess- ari nýju skáldsögu í Sambands- kirkjunni á laugardagskveldið þ. 29. þ. m. kl. 8.15. Þeir Pálmi fiðluleikari Pálmason og Ragnar H. Ragnar, pianisti, skemta á undan og á milli þátta. Aðgangur 25 cents. Hluti af ágóðanum verður gefinn i sjúkrasjóð Good- templara. Vafalaust má búast við fjöl- menni, því bæði les séra Jakob hið bezta upp jafnframt þvi sem fólk vitanlega fýsir að kynnast efni skáldsögunnar. Dr. B. J. Brandson var einn í allstórum hópi lækna, er/fór suð- ur til Minneapolis í vikunni sem leið í “Goodwill” heimsókn til læknadeildar Minnesota háskól- ans. Dr. Brandson kom heim um helgina. Sigríður Sólrún Sigfússon (24. júní 1859 — 24. janúar 1936) . Hyggjuglæsta gáfukona, góð var hvíldin þér. Bitur þjáning þungra nátta þreytir hvern sem er. Raunabót að samt um síðir sól að austan fer. Fas þitt alt og málfars mildi miðlaði sjúkum fró. Söngvinn strengur Islands ættar í þér grét og liló. Með þér ást, sem engum gleymist inn í lífið dó. Þreytta móðir, vestrænt vakir vor lijá þinni gröf. Tveggja lieima liugir flétta lieilög minniströf. Ástarkveðjur að þér strevma austan yfir liöf. Einar P. Jónsson. I

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.