Lögberg - 05.03.1936, Qupperneq 1
49. ÁRGANGUR ' WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 5. MARZ 1936 • || NÚMER 10
Ethiópiumenn sœta œgilegum hrakför
um á norðurvígstöðvunum. Tíu
þúsundir falla í orustu
Frá Manitoba þinginu
Á föstudaginn var lauk umræð-
unum um stjórnarboðskapinn í
Manitobaþinginu, og var hann siðan
meÖ uppástungu frá forsætisráð-
gjafa, Mr. Bracken, viðtekinn íreð
öllum greiddum atkvæðum. Tuttugu
og sex þingmenn höfðu tekið þátt í
umræðum, og voru þær allfjörugar
með köflum og lausar með öllu við
flokkslega beiskju. Lét Mr. Bracken
í ljós ánægju sína yfir því, hve hóg-
værlega hin ýmsu mismunandi atriði
hefði verið rædd, og þakkaði þing-
mönnum fyrir þá auðsæu einlægni.
er hvarvetna hefði komið fram við
umræðurnar.
Sá, úr hópi andstöðuflokkanna er
einna háværastur og bituryrtastur
var, var Mr. Webb, afturhalds þing-
maður fyrir Assiniboia kjördæmið
og fyrrum borgarstjóri í Winnipeg.
Þvöglumáli hans er óþarft að lýsa.
Var hann eitthvað að burðast við að
halda uppi vörnum fyrir Mr. Ben-
nett i sambandi viS vegabóta loforS
ýms, og ofurlitiS af vegabótum, inn_
an vébanda fylkisins, rétt fyrir síS-
ustu sambandskosningar. • KvaS
hann vera síSur en svo að nokkurr-
ar hlutdrægni hefði kent, aS því er
útboS verks, fjárframlög eSa hér-
aSslega afstöSu snerti.
ÞingmaSur Fairford kjördæmis,
Stuart Garson. K.C., leit næsta ólík-
um augum á mál þetta; veittist hann
þunglega aS Mr. Bennett og ráSu-
neyti hans, fyrir framkomuna i sam_
bandi viS val vega; kvaS hann kjós.
endur sína sárreiSa yfir því hvernig
þeir hefSu veriS settir hjá; svæðin
á milli vatnanna hefSu auSsjáanlega
ekki átt upp á pallborSiS hjá Mr.
Bennett; þp væri atvinnuvegir þar
það fjölþættir, aS brýnni nauSsyn
væri þar einmitt á þægilegum bíl-
vegum en víSa annarsstaSar; kvik-
fjárrækt væri mikil, heyafli til af-
gangjs, rjómaframleiSsla stórvægi-
leg og fiskiveiSar meS þeim mestu í
fylkinu. Mr. Stewart kvaSst ekki
betur sjá en aS Mr. Bennett hefSi
ráSstafaS vegabótafénu í fléstum til_
fellum þannig, aS því skyldi variS
til samgöngubóta í þeim kjördæmum
aSeins, sem helzt voru likur til aS
frambjóSendur aftufhaldsflokksins
gæti gert sér, þó ekki væri nema
daufa von, um aS ná kosningu.
Mr. Breakey, þingmaSur fyrir
Glenwood kjördæmiS, kvaS mestu
vandamál fylkisins, eins og til hag-
aði, vera atvinnuleysiS og skort á
kaupgetu bænda til þess aS afla sér
útsæðis. Úr hinu síSarnefnda
myndi þó sennilega ráðast á viSun-
andi hátt, þar sem aS víst væri aS
landbúnaSar ráSuneytiS undir for-
ustu Mr. McKenzie, stæSi um þess-
ar mundir í samningstilraunum viS
sambandsstjórnina um fjárstuSning
nokkurn málinu til fyrirgreiðslu;
sagSist hann ekki efast um aS mál-
inu yrSi sýnd full samúS af hálfu
hlutaSeigandi stjórnarvalda í Ot_
tawa. I sambandi við 2% skattinn
lét Mr. Breakey svo um mælt, að
hann teldi æskilegt að rýmkaS yrSi
til um undanþágur, þannig, að ein-
hleypir menn, er eigi fengi nema
$6oo kaup á ári yrSi undanþegnir
þessum skatti; svo og f jölskyldu-
feSur, er ekki hefðu yfir $12000 um
árið.
Mr. Barclay, utanflokka þingmaS-
ur fyrir Springfield kjördæmi, kvaS
það vel geta veriS aS Bracken-
stjórnin væri í mörgum tilfellum sú
bezta stjórn, er Manitoba-fylkiS
hefði nokkru sinni haft; þó færi
ekki hjá því, aS launasktts lögin yrði
henni til varanlegs ámælis.
Fjármálaráðgjafinn, Hon. E. A.
McPherson, hefir lagt fram fjár-
hagsáætlun sína og hljóðar hún upp
á $14,097,549 útgjöld til stjórnar-
starfrækslunnar á næsta fjárhags-
ári.
SKIPAÐUR í
DÓMARAEMBÆTTI
Mr. W. R. Howson, leiStogi
frjálslynda flokksins í Alberta og
þingmaður Edmontonborgar í fylk-
isþinginu, hefir veriS skipaSur dóm-
ari i yfirrétti Albertafylkis í staS J.
R. Boyle, dómara, sem látinn er fyr.
ir hálfum mánuði eða svo.
FRA JAPAN
Byltingin þar er nú sögS að vera
með öllu bæld niður og stjórnar-
farið komið í sitt fyrra horf. For-
sætisráSgjafinn Okada, sá, er sagð-
ur var að hafa veriS myrtur i vik-
unni sem leiS, er heill á húfi og
heldur áfram stjórnarforustu.
PRÓFESSOR RASMUS B.
ANDERSON LATINN
Þann 3. þ. m., lézt í borginni
Madison í Wisconsin ríki, fræSa-
þulurinn, prófessor Rasmus B. An-
derson. Hann átti níræðisafmæli
þann 12. janúar síSastliðinn. Mörg
hin síðari ár, gekk hann undir nafn.
inu “The Father of Norse Literature
in America.” Mælt er aS hann hafi
gefiS út eitthvaS um sextíu bækur.
NÝR SENATOR
SimaS er frá Ottawa þann 29. f.
m., að William Duff, þingmaður
Antigonish-Guysboro kjördæmisins
í Nova Scotia, hafi veriS skipaður
Senator í staS John McCormicks,
sem lézt fyrir nokkrum dögum.
Aukakosning fer fram i kjördæmi
þessu 23. yfirstandandi mánaðar.
Mr. Duff hefir átt sæti á sambands.
þingi síSan 1917, og jafnan þótt
meSal hinna áhrifamestu þingmanna
frjálslynda flokksins.
ISLENDINGAR TAKA
ÞATT 1 ÚTVARPI
Nefnd sú, er fyrir atbeina Mani-
toba háskólans, um fræðslu skeiS
fyrir fullorðna f jallar, lætur útvarpa
á næstunni söng, hljóSfæraslætti og
ræðum af hálfu hinna ýmsu þjóð-
flokka, er land þetta byggja. Láta
íslendingar til sín heyra tvo næstu
sunnudaga yfir CKY, kl. 1.30 e. h.
Central Standard Time.
Næsta sunnudag, þann 8. þ. m.:
Dr. Rögnvaldur Pétursson kem-
ur fram í samtali. Söngflokkur
Fyrsta lúterska safnaSar syng-
ur íslenzk þjóðlög.
Sunnudaginn þann 15. þ. m.:
Dr. Rögnvaldur Péturson. Mrs.
Connie Jóhanneson, Pálmi
Pálmason og Ragnar H. Ragn_
ar, íslenzk sönglög.
VERZLUN BRENNUR
Snemma á sunnudagsmorguninn
var, brann til kaldra kola sölubúð
Langruth Trading Co. í Langruth,
ásamt öllum vörum. Verzlunin var
eign Mr. B. Bjarnasonar. Einhver
vátrygging var á búð og vörum; þó
sennilega næsta lág.
Fregnir af styrjöldinni milli ítala
og Ethiópíumanna láta þess getiS,
aS hinir síSarnefndu hafi beðiS á-
takanlegan ósigur síðastliSinn laug-
ardag á norSurvígstöSvunum og mist
um tíu þúsundir manna. Fylgdi þaS
og sögunni, aS 5,000 hermenn séu
króaðir af í fjöllum, eitthvað um
tuttugu og fimm mílur vestur af
borginni Makale, og hafi þeir aðeins
Úr borg og bygð
Dr. P. H. T. Thorlakson er ný-
kominn heim úr ferSalagi suður um
Minnesotaríki. Dvaldi hann meSal
annars fjóra daga í spítalabænum
Rochester.
Frú Andrea Johnson frá Árborg,
var stödd í borginni seinni þart vik-
unnar sem leið.
Mrs. Oli Anderson frá Baldur,
kom til borgarinnar snemma i fyrri
viku og dvaldi hér fram á mánudag-
inn var.
Kvenfélag Fyrsta lúterska safn-
aðar heldur fund í samkomusal
kirkjunnar kl. 3 í dag (fimtudag)
5 marz. Frú Salome Bgckman flyt-
ur þar erindi um bindindi. Félags-
konur mega bjóða meS sér utan-
félagskonum á fundinn.
Mr. S- B. Olson frá Langruth var
i borginni í vikunni sem leiS.
Mr. P. N. Johnson og Stefán son.
ur hans frá Elfros. Sask.. komu til
borgarinnar á sunnudaginn var.
Jóns SigurSssonar félagiS I.Q.
D.E., heldur Birthday Bridge i
fundarsal sambandskirkjunrtar á
föstudagskvöldiS þann 20. þ. m.,
kl. 8.
Ilin nýkosna framkvæmdarnefpd
ÞjóSræknisfélagsins er þannig skip-
uS:
Dr. Rögnvaldur Pétursson, for-
seti; Dr. Richard Beck, vara-forseti;
Árni Eggertson, féhirðir; J. Walter
Jóhannsson, vara-féhirðir; Gísli
Jónsson, skrifari; Séra B. Theodore
Sigurðsson, vara-skrifari; GuSmann
Levy, f jármálaritari; S. W. Melsted,
vara-f jármálaritari; Séra Filipp
Pétursson, skjalavörður.
Mr. Harald J. Stephenson, 694
Victor Street, fór vestur til Melville,
Sask., síðastliSiS sunnudagskvöld,
til þess að vitja Jóns móSurbróður
síns, er nýlega hafði veriS fluttur
þangaS á sjúkrahús. — Þegar blaS-
iS fer á pressuna berast þær fregn-
ir, aS Jón hafi látist kl. 11 á þriðju.
dagskvöldið.
RANNSÓKN FANGELSA
FYRIRSKIPUÐ
Samkvæmt yfirlýsingu frá dóms-
málaráðgjafa sambandsstjórnarinn-
ar, Hon. Ernest Lapointe, hefir kon.
ungleg rannsóknarnefnd veriS skip-
uS til þess að gerkynna sér rekstur
fangelsa í landinu og tiltækilegar
umbætur í því sambandi. í nefnd
þessari eiga sæti Joseph Archam-
bault, dómari í yfirrétti Quebec-
fylkis, Hon. W. R. Craig, fyrrum
dómsmálaráSgjafi í Manitoba, og
Harry W. Anderson, fyrrum rit-
stjóri blaðsinsvToronto Globe. Allan
J. Fraser, lögfræðingur í Ottawa,
verSur skrifari nefndarinnar.
um þaS tvent aS velja, að gefast
samstundis upp, eSa verða skotnir
niður af hinum ítalska árásarher.—
Getið ér þess til, aS konungur
Ethiópíu muni hafa snúiS sér beint
til Edwards Bretakonungs meS þaS
fyrir augum, að fá hann til aS koma
sáttum á. Símfregnir um þetta
fluttu dagblöSin á þriðjudagsmorg-
uninn.
Samkoma sú, eSa hátíS, sem
Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar
efndi til í kirkjunni í tilefni af 21.
afmæli elliheimilisins Betel, var
prýðilega sótt og aS öllu leyti hin
virðulegasta.
Dr. B. J. Brandson, forseti Betel-
nefndar, stjórnaði samkomunni, og
flutti allítarlega inngangsræðu * um
nytsemi og rekstur stofnunarinnar;
varpaði ræSan skíru ljósi á þá nauS-
syn, sem til þess ber, að almenning-
ur vaki á verði og leggi fram nægi-
legt fé til þess aS jafna þann tekju-
halla, er af rekstrinum árlega leiSir.
Ungfrú Svanhvít Jóhannesson,
lögfræðingur, flutti ræðu; er ung-
frúin skarpgáfuS stúlka og prýSilega
máli farin ; en vel væri, aS hún byggi
betur umtalsefni sitt undir næst, og
hefði þaS hreinskrifaS ; meS því yrði
þaS samfeldara og lausara við mál-
fræðilegar yfirsjónir; ;margt sagði
hún vel og f jörlega.
Söngskráin var fyrirtak; ein-
söngvar frú SigríSar Olson hrífandi
eins og endrarnær, fiðluleikur Pálma
Pálmasonar ágætur; tónar fyllri og
breiðari, en aS jafnaði. Orianna
söngvararnir sérlega góðir; ánægju-
legt einkum aS heyra helgilag Pale-
strina, og brezkt þjóSlag frá 16. öld.
Framsagnarlist Miss Jean Hembroff
frumstæS og íhyglisverS.
Mr. Peter Logan söng einsöng,
öllum viðstöddum til yndis.
Svo vel var vandaS til þessarar
Betel samkomu yfirleitt, aS þeim
öllum, er hlut áttu að máli, var til
stórsæmdar.
Þær frú GuSrún Helgason og
ungfrú Snjólaug SigurSsson voru
við slaghörpuna.
MILLENNIAL HOCKEY
COMPETITION
The annual hockey competition
1 for the Millennial Trophy, donated
|by the Icelandic National League,
will be staged at Selkirk, Man.,
Wednesday and Thursday March
nth and i2th. Teams from Gimli,
Selkirk and Winnipeg will partici-
pate and the games start punctually
at 7.30 p.m. at the Selkirk Hockey
Rink. Gimli is the present holder
of the Trophy. Come to Selkirk and
support your team.
Trustees of MHlennial Trophy.
ÞINGNEFND SKIPUÐ
Dómsmálaráðgjafinn, Mr. Ia-
pointe, hefir tilkynt aS skipuS hafi
veriS þingnefnd til þess aS bera
fram væntanlegar breytingar á kosn,
ingalögum. I nefndinni eiga sæti
22 liberalar, 5 conservativar, 1
C.C.F. og 1 Social Credit þingmaS-
ur, auk H. H. Stevens, sem er einn
í flokki sínum.
Gj'óf til Jón Bjarnason Academy
Mrs. Ásdís Hinriksson, Gimli,
Man., $5.00.
Vinsamlega þakkaS,
Y. W. Melsted,
féhirðir skólans.
KRISTJAN N. JÚLÍUS
SKÁLD
■A nýafstöSnu ársþingi ÞjóSrækn.
isfélags íslendinga í Vesturheimi,
var DakotaskáldiS Kristjáti Július,
alias K. N. kjörinn heiðursfélagi
þeirrar stofnunar til lífstíðar. Var
þaS vel til fallin ráSstöfun og löngu
makleg.
Sambandsþingið
UmræSurnar í Santbandsþinginu
hafa undanfarna daga snúist um
viSskiftasamninga þá, er núverandi
stjórn, fyrir hönd hinnar canadisku
þjóðar, gerði viS Bandarikin, og i
gildi gengu þann 1. janúar siðastliS.
inn. Bar forsætisráðgjafinn, Mr.
King, fram tillögu til þingsályktun.
ar, er í þá átt gekk, aS þingiS féllist
á samningana í því formi, sem þeir
nú eru. Rakti hann jafnframt all-
itarlega feril gagnskiftamálsins frá
þeim tíma, er Laurier stjórnin 1911
beiS hinn sögufræga kosningaósigur
sinn vegna þess máls, þjóðinni til
margháttaðrar ógæfu á sviði viS-
skiftalífsins. Mr. King kvaS það
síður en svo, aS endilega væri út um
gagnskiftamálið gert meS þessurn
nýju samningum; um margt þyrfti
frekar aS liðka með tililti til við-
skifta milli þessara nágranna þjóSa;
meS samningunum væri stigiS mikil-
vægt spor í þá átt, þó vitað væri aS
fleiri og enn mikilvægari spor yrSi
aS stíga áSur en yfir lyki.
Töluvert 'kvað við annan tón hjá
Mr. Bennett. KvaSst hann líta svo
á, aS samningarnir væri stórskaSleg-
ir fyrir canadiskt viSskiftalíf ; ef um
hagnaS yrði aS ræða, þá yrði hann
víst mestmegis Bandarikja megin.
Ekki var Mr. Bennett þvi meS öllu
mótfallinn, aS Canada hefði ein-
hverja samninga viS Banadaríki;
einhverja aðra samninga en þessa, er
núverandi stjórn hefSi gert. Mr.
Bennett vék þvi næst orSum sínum
aS fjármálaráSgjafanum, Mr. Dun_
ning, og kvaðst óttast um aS honum
færist ekki alveg eins fimlega við-
vikjandi hinum ýmsu viðfangsefn-
urn í sambandi viS verzlunina innan
veldisheildarinnar brezku, og honum
hefSi lánast aS þjóna auðfélögunum,
því þaS hefði látiS honum vel. Mr.
Dunning stökk á fætur og krafðist
þess aS Mr. Bennett afturkallaði
slík ummæli, er bæði væri ósönn og
óþingleg. Deildarforsetinn baS Mr.
Bennett aS verSa viS þessu, og gerSi
hann þaS að lokum nokkuS semings-
lega.
Mr. J. T. Thorson, þingmaður
Selkirk kjördæmis, sagSist ekkert
hafa viS viSskiftasamningana aS at-
huga annaS erj helzt þaS, aS þeir
gengi ekki nógu langt; hann áfeltist
stranglega Ottawa-samningana, sem
kendir eru viS Mr. Bennett; taldi þá
grundvallaða á röngum forsendum,
þar sem þeir miSuðu að hömlun á
viðskiftum Canada viS aðrar þjóSir,
i staS greiðari og auknari viSskifta.
Mr. Thorson sagðist vonast til þess,
aS áSur en langt um liSi stofnaði nú_
verandi stjórn til gagnskifta viS
Rússland.
“ÞaS er ekkert hættulegt í sam-
bandi viS viðskiftasamninga milli
Canada og 'Rússlands,” sagði Mr.
1'borson, “en mikill hagnaður oss til
handa væntanlegur af slíkum viS-
skiftum.” Lauk Mr. Thorson hug-
leiðingum sínum ■ meS svofeldum
orSunn:
“Enn eru margar þjóðir, svo
sem land forfeðra minna, Island,
auk Þýzkalands, er auka mætti
verzlun vora viS aS drjúgum mun.”
Til góðra tíðinda af sambands-
þingi verSur þaS aS teljast, aS
verkamálaráðgjafinn hefir lýst yfir
því, aS sambandsstjórnin hafi komiS
því til vegar, aS járnbrautarfélögin
taki i þjónustu sína til sumarvinnu
10,000 einhleypa menn, sem nú eru
í atvinnuleysis-búðum og aS þeim
stofnunum muni verða lokaS þann
1. júlí næstkomandi.
ELLIHEIMILIÐ GRUND
Elliheimilið hefir gefiS út skýrslu
um vistmenn þar áriS 1935. Á henni
sézt þaS aS 95 hafa bæst viS á árinu,
57 konur og 38 karlmenn. Á árinu
dóu þar 10 konur og 12 karlmenn,
en fóru þaSan 47 konur og 25 karl-
menn. Alls hafa farið og dáiS 94,
eða einum færra en viS bættist.
Af vistmönnum voru 63 á vegum
bæjarsjóðs Reykjavikur, en 11 hafSi
hann komiS þar fyrir vegna annara
hreppa. Á vegum hreppa og annara
bæjarfélaga voru 8, á vegum vanda-
manna sinna 22, en 7 greiddu sjálfir
dvalarkostnaS sinn. Af öðrum vist.
mönnum voru þar þrenn hjón, meS
þrjú börn; þar aS auki 3 karlmenn
og 1 köna.
Karlmenn voru á aldrinum 43 til
86 ára, en konur á aldrinum 54 til
91 árs.—Mbl. 27. jan.
Vetur
Eftir Richard Beck.
Þú geisist yfir hauður á hvítum élja-fáki,
svo hríðarstrokur freyða, sem brim, um reistan makka;
en hófaslögin skelfa, sem hergnýr, jarðarbúa.
Þú hrekur sól í felur að baki skýjaklakka.
Á fáknum ííiifur-hærða þú stiklar stærstu djúpin,
og strendur nötra af ótta, er þig við sjónhring líta.
1 þröngan klakastakkinn þú hneppir fjöll og firði,
og færir gróður moldar í dauðahjúpinn hvíta.
Þú fyllist drambi, lilær svo, að hlymur þungt í björgum,
og hyggur einvaldsríki þitt standa daga alla.
Svo hugfanginn þú unir við hríðarsöngva þína,
að heyrir ei í storminum mýkri raddir kalla.
Þær raddir — vorsins raddir — þig, vetur, feigan dæma;
þitt veldi er reist á grunni, sem hljóður geislinn bræðir.
Svo fellur sérhver harðstjórn, það hermir líf og saga,
er heitur straumur ljóssins um jörð og sálir flæðir.
ÁRSIIATIÐ BETEL