Lögberg - 30.04.1936, Side 1
t
PHONE 86 311
Seven Lines
d
. ^ted
v.
vS^1 v\ V' ‘
NsV>
«*•
For
Better
Dry Cleaning
and Laundry
49. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 30. APKÍL, 1936
NÚMER 18
PRÚFESSOR S. K. HALL
Ofí FRÚ SIGRI'ÐUR HALL
KVÖDD
Guðsþjónustan í Fyrstu lútersku
kirkju síðastliðið sunnudagskvöld,
tilkomumikil og áhrifarík, var helg-
uð þeim prófessor S- K. Hall og frú
SSgríði Hall, í tilefni af burtför
þeirra héðan úr borginni. Mr. Hall
hefir gegnt organistastarfi við
Fyrsta lúterska söfnuð i full þrjátíu
ár, en frúin verið þar aðal-sóló-
söngvari um langt skeið. Þau hjón
edu vinmörg og hafa unnið mikið
og merkilegt starf í þágu söngmenn-
ingarinnar vor á meðal. Kirkjan var
þéttskipuð fólki. Auk sóknarprests.
ins, Dr. B. B. Jónssonar, fluttu stutt.
ar tölur þeir Mr. Paul Bardal söng.
stjóri og Dr. B. J. Brandson forseti
safnaðarins. Voru tölurnar allar
hinar beztu, og báru ljóst vitni um
þá aðdáun og virðingu, er þau Halls
hjón hvarvetna njóta. í lok tölu
sinnar afhenti Dr. Brandson þeim
gjöf nokkra, sem vináttuvott af
hálfu safnaðarins. Sungið var ýmis.
legt af lögum' eftir Mr. Hall, er létu
vel i eyra og juku á innhaldsgildi
kveðjuathafnarinnar. Loks þakk-
aði svo Mr. Hall með hlýjum og
fögrum orðum, allan góðvilja í sinn
garð og konu sinnar, af hálfu safn-
aðarmeðlima og annara vina.—
Að lokinni athöfninni uppi í
kirkjunni safnaðist fólk saman í
fundarsalnum að hinum rausnarleg-
ustu veitingnm.
Þau Halls hjón hafa ákveðið að
setjast að í grend við Wynyard, og
lögou af stað þangað vestur á
þriðjudagskvöldið. Fylgja þeim
hugheilar árnaðaróskir fjölmenns
vinahóps.
Fimm ára gömul stúlka, Sigríður.
dóttir þeirra Mr. og Mrs. Paul Bar-
dal, afhenti Mrs. Hall forkunnar
fagran blómsveig.
Fréttapóstur
Innisfail, 18. apríl, 1936.
Gleðilegt sumar!
Það er búið að klæða Norðra karl
úr vetrarkápu sinni, svo mjólkur-
kýr og ungviði fengu, viku fyrir
sumar, að koma út á auðan blett.
Þær hafa staðið við stall síðan 25.
október. Það þykir kanske ekki
langur gj af atími—innistöðugj öf—
þó það sé 165 dagar, og fóðurbætir
og húsaskjól 35 daga enn, til að láta
það verða 200 daga úr árinu. Þessi
snjóavetur er eins og sumir aðrir,
sem hér hafa komið, en ef snögg
umskifti koma og vatnavextir, verða
oft stórkaðar. Þannig sópaði ís-
ruðningur í fyrradag C.N.R. brú
í Reed Deer bæ 24 mílur héðan
niður með ánni, burt. Hér er mikil
bleyta í jörð og gott útlit með arð
af sáðlöndum manna, ef tíð verður
liagstæð í júní og júlí.
Fólkinu hérna og fénaðinum lið-
ur ágætlega. Markaðsgripir fara nú
i stórlestum til Innisfail, Penhold
og Red Deer; er verðið á þessum
stöðum um y2 centi lægri en á gripa-
markaðinum í Calgary og er viku-
lega auglýstur i Manitoba Free
Press.
Giftingar og fæðingarfjölgun á
mönnum og skepnum xo% yfir
meðaltal á sama tíma og í fyrra;
dauðsföll færri. Gjaldeyrir streym.
ir inn á fyrsta fylkis-þjóðbanka
canda-rikis, og tveim miljónum
dollara skal eytt til þjóðvega í fylk-
inu næstu sex mánuðina, og fimtán
dollara mánaðarkaup á letigörðun!
stjórnarinnar, þar til þeir hverfa úr
sögunni með kreppuárum Alberta
fyjlkis. Þapnig pkédika ráðherr-
arnir umheiminum um þessar mund.
ir. En alt er gott þá endirinn allra
beztur verður.”
Guð gefi öllum íslendingum, nær
og fjær, gleðilegt sumar!
/. Björnson.
JÓN TÓNSKALD FRIÐFINNSSON
Svo hafa ýmsir alþýðunxenn, ís-
lenzkir, hneigðir verið til vísnagerð-
ar og söngs, að þeir máttu í raun
og veru aldrei ókveðandi eða ó-
syngjandi vera; hljóimarnir, í hvoru
forminu sem birtust, sprottnir af
einni og sömu rót.
Jón Friðfinnsson flyzt hingað
ungur til lands ofan úr inndölum
Austfjarða; hann gerist landnemi í
Argylebygð og nemur við herfið og
plóginn undirstöðuatriði hljómfræð-
innar; fer svo að semja lög og nær
slíkum þroskameð árunum, að hann
kemst i góðra lýrik skálda röð á
sviði tónlistarinnar.—
Miðvikudagskvöldið 6. mai, verð-
ur helgað tónskáldinu; fer þá fr.im
i Fyrstu lútersku kirkju, söngsam-
koma, þar sem sungin verða ein-
•vörðungu tónverk Jóns, svo sem
hátiðar-kantara hans í tilefni af
icoo ára afmæli Alþingis, auk ann-
ara srrtærri verka. Þakka má það
framtakssemi Karlakórs Islendinga
í Winnipeg og Icelandic Choral
Society, að íslendingum nú veitist
þess kostur, að kynnast þessurn tón-
verkum í heild.
Að kirkjan verði þéttskipuð við
þetta tækifæri, þarf ekki að efa. Það
er það allra minsta, sem fólk vort
getur á sig lagt í þakkar og virðing-
ar skyni við hið aldurhnigna en sí-
unga tónskáld.
VtSA
Jóns biskups Arasonar um ósóma
aldarfarsins.
Hnigna tekur hetms magn,
hvar finnur vin sinn?
Fær margur falsbjörg,
forsómar manndóm.
Trygðin er tryld sögð,
trúan gerist veik nú.
Drepinn held eg drengskap,
dygð er rekin í óbygð.
MAÐUR SLASAST
A RÚMSJÓ
Togarinn “Rán” kom til Hafnar-
fjarðar í gær vegna þess, að stýri-
maðurinn, Július Sigurðsson, hafði
fótbrotnað er sjór gekk yfir skipið
um kl. 4 í fyrrinótt.
Stýrimaður var þegar lagður á
Hafnarf jarðarspítala, en togarinn
hélt aftur til hafs á veiðar.
Manninum leið eftir atvikum ve!
í gærkvöldi.—N. dagbl. 8. apríl.
Sextíu og níu ár að
baki
Að kvöldi þess 18. apríl 1936,
komu saman að heimili Mrs. Ilelgu
Johnson í Seattle, Wash. um 60
af vinafólki hennar og ættniðjuirn, tii
að fagna og gleðjast með henni á
hennar sextugasta og níunda af-
mælisdegi. Hjálparfélagið “Ein-
ing” (The Icelandic Ivadies’ Aid) í
þessari borg, sem Mrs. Johnson er
ein af stofnendum, og hefir ávalt
heyrt til, stofnaði til þessa móts og
nefnd kvenna úr félaginu hafð:
stjórn mótsins með höndum. Nefnd-
ina skipuðu þessar konur: Mrs. S.
H. Ghristjánson, forstöðukona fé-
lagsins “Eining”; Mrs. George
Brown, Mrs. B. O. Jóhannsson,
Mrs. K. Thorsteinson og Mrs. C.
B. George. Fagurt blómabindi var
heiðursgestinuim afhent um leið og
hún var leidd til sætis að borði með
stórri afmælisköku á, bakaðri af
• amalli vinkonu hennar. Mrs. S.
Stefánsson. Við borðið sátu hjá
Mrs. Johnson, dætur hennar tvær.
Mrs. J. A. Jóhannsson, (Josephine)
og Mrs. A. D. Wells (Maria, og
börn þeirra beggja Aileen, Donald
og Gary Jóhannsson og Jack og
Dick Wells. Þriðja dóttir Mrs.
Johnson, sú elzta, Mrs. W. Fred-
ricks (Margrét), ásamt tveimur
barnabörnum, Juanita Kredrick og
Kenneth Jóhannsson, gátu ekki ver.
ið viðstödd þetta kvöld. Allir þess-
ir afkomendur Mrs. Johnson búa
hér í Seattle. Stutt en gott prógram
af söng og tölum fór þá fram, er
Mrs. Brown stýrði; bað hún þá
Mr. Karl Fredrick og Mr. Gunn-
ar Matthíasson að stýra söngnum.
Byrjað var með að syngja fyrsta
erindið af “Hvað er svo glatt,” er
allir sungu. Töluðu þá ýmsir eftir
tilmælum Mrs. Brown, og var sung-
ið á milli. Fyrstur manna talaði
séra Albert Kristjánsson, prestur
frjálslynda safnaðarins hér, nokk-
ur hlý orð í garð heiðursgestsins;
lýsti hann starfsþreki hennar, fórn.
fýsi og góðum vilja við störf í hin-
um ýmsu félögum, er hún hefir
heyrt til alla hennar tíð hér í þess-
ari borg, í 27 ár, sem hún verð-
skuldaði lof og heiður fyrir. Einnig
töluðu Mr. K. Fredrick, Mrs.
Framh. á bls. 5.
CELE B R J T_Y_ SER I_E S _ A_R TJS TS_ _1_9_3_6-_3_7
Á leið tii Islands
Jóhannes G. Nordal, B. Sc.
Jóhannes G. Nordal lagði af stað
frá Montreal síðastliðinn föstudag
áleiðis til Islands. Hann hefir ver-
ið ráðinn af íslenzku stjórninni til
þess að gera rannsóknir og verklegar
tilraunir með íslenzk jarðefni til
bygginga og annara nota.
Þar sem ísland þarf að kaupa alt
byggingarefni, leir og steinvöru, frá
útlöndum, sem nemur miljónum
króna, þá væri stórt spor stígið i
rétta átt .væri mögulegt að fram-
leiða það í landinu sjálfu, sem um
leið myndi opna nýjan atvinnuveg
fyrir fjölda fólks.
Þessi ungi mentamaður er fædd-
ur árið 1913 í Leslie, Saskatcbe-
wan. Hann er sonur þeirra hjóna
Mr. og Mrs. H. G. Nordal nú til
heimilis í Theodore, Sask.
Jóhannes lauk miðskólanámi í
Leslie 1928, það sama ár innritaðist
hann í háskóla fylkisins í Saska-
toon. Þess má hér getið, að hann
var yngsti nemandinn við þá menta.
stofnun það ár. Hann tók góðan
þátt í félagslífi stúdenta og vann
sér brátt traust og hylli kennara
og nemenda. Síðastliðnu þrjú árin
lék hann með fótboltaflokki skól-
ans, einnig var hann formaður
ýmsra nefnda í skólanum.
Árið 1934 útskrifaðist hann sem
“Bachelor of Science in Ceramic
Engineering,” með hæztu einkunn,
þá aðeins tuttugu og eins árs að
aldri. Mun hann vera, að eg frekast
veit, fyrsti íslendingurinn í Canada,
sem stúderað hefir Ceramic og út-
skrifast í þeirri grein. Það sama ár
réðist Jóhannes sem aðstoðar-kenn-
ari í Ceramic við háskólann í Saska-
toon. Siðastliðið sumar starfaði
hann að jarðfræðilegum rannsókn-
urn fyrir canadisku stjórnina. I
febrúar þetta ár mætti hann sem
fulltrúi frá háskóla fylkisins á þingi
Canadian Ceramic Society í borg-
inni Toronto, Ontario, og flutti þar
erindi.
Nú hefir Mr. J. G. Nordal verið
kvaddur til íslands og er vonandi
að för hans heim megi verða landi
og þjóð til gagns og blessunar.
Allir hans rnörgu vinir, fjær og
nær, árna honum heilla og hamingju
á hinu nýja verksviði.
B.
NÝJUSTU FRÉTTIR
Fjármálaráðgj. Sambandsstjórn-
arinnar i Ottawa, Hon. C. A. Dun-
ning. leggur frarn fjárlagafrumvarp
sitt á föstudaginn kemur.
Here are the artists to be presnted during the coming; sease,n 1936
—1937, by Fred M. Gee, in his Celebrity Concert Series. This is Mr.
Gee’s Silver Jubilee as a concert manageé' in Winnipeg and he states that
the programme of muscal entertainment announced for next season is
the best that has ever been offered in any one season.
The Minneapolis Symphony Orchestra wlli again be conducted by
Eugene Ormandy, whose dynamic leadership here in Octc,ber last, roused
his audiences to unprecedented enthusiasm.
Lawrence Tibbett, the most popular singer of the present day, will
return after 3% years absence; Josejjh Hofmann, considered by most
critlcs to be the world's greatest pianist, and Jascha Heifetz, who holds
the same position in the “fíddlé” world, wíll returri after 4 years absence
from local concert halls. The Six English Singors, directed by Cuthliert
Kelly, whose concerts in Central Church a few years ago were so delight-
ful, will appear in the series. The Jooss Buropean Ballet and Marian
Anderson, coloured Contralto, were the two real sepsations of the seaso.n
^in New York. Mr. Gee attended their performances in New York and
promises his audiences an unusual thrill when they appear here.
Three joint recitals will be included in next season’s offerings, com-
prising a vc.cal recital by Elizabeth Rethberg, one of the world’s greatest
dramatic sopranos, and Ezio Pinza, the leading basso of the Metropolitan
Opera Company; an instrumental duo recital by Ignaz Friedman, col-
lossus of the piano and Mademoiselle Raya Garbousova the sensatio,nal
young violoncellist, whose recent recitals in San Francisco and Los
Angeles have brought forth the most extravagant praise from the
critics; a cqncert by Giovanni Martinelli, the “top" tenor of the Metro-
politan Opera, with Richard Czerwornky, the distinguished violinist-
composer, completes the roster of ten attractions to be presented at the
Celebrity Concerts, which commence in October and continue until Apríl
next.
The Minneapolis Svmphony Orchestra, and the Jcoss European
Ballet, together with the remaining eight attractions, will appear in
Winnipeg for one night only.
Konungur Egypta, Fuad I. lézt í
Cairo síðastliðinn þriðjudag, 68 ára
að aldri. Ríkiserfinginn, sem nú
* i hefir tekið við völdum, Farouk, er
16 ára gamall.
Hjinar almejmu kosningar, sem
fram fóru til franska þingsins á
sunnudaginn, benda til þess, að hin.
ir róttækari jafnaðarmenn muni
taka við völdum.