Lögberg - 07.05.1936, Síða 1

Lögberg - 07.05.1936, Síða 1
PHONE 86 311 Seven Lines , J U^í0 For Service and Satisfaction PHONE 86 311 Seven Lines R*1?. d d UÍ*5rC For k' f£>^XX Better tií>*flO>lí Dry Cleaning and Laundry 49. ABGANGUR I WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 7. ]\IAt, 1936. NÚMER 19 Ethiópíumenn gefast upp—Haile Sel- assie keisari flýr úr landi og leitar landsvistar í Palestínu Þau tíðiiuli hafa gersjt, að Italir hafa unnið fullnaðar sigur á EJthiópíumönnum, og keisarinn liefir flúið land ásamt f jölskyldu sinni. Er þess vænst að úr þessu komi Mussolini þar á fót bráðabirgðar stjórn nær sem véra vill. Samkvæmt yfirlýsingu í brezka þinginu frá Anthony Eden utanríkisráðgjafa, hefir stjórn Breta fallist á að veita iíinum útlæga keisara Ethiópíumanna landvist í Palestínu gegn því skilyrði, að hann hafi engin afskifti af opinberum málum. Úrslit þessi í Afríkustríðinu hafa af eðlilegum ástæð- um veikt til muna álit og afstöðu Þjóðbandalagsins út á við, þar sem allar tilraunir þess til samkomulags og sátta fóru gersamlega út um þúfur. Frá Islandi « ÚTVARP « Almenningi í íslenzkwn bygðum er tilkynt, að íslenzkri guðsþjónustu verður útvarpað 'frá Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg sunnudag- inn 17. maí, kl. 7 e. h. STÓRT HÆNSNABO BRENNUR í fyrrinótt brann til kaldra kola hænsnabú við Langholtsveg 12 og fórust þar 12—14 hundruð hænsn, bæði ungar og fullorðið, og þrem kúm var með naumindum bjargað. Bílstjóri, sem staddur var hjá Ár. bæ ásamt tveimur mönnum öðrum kl. tæpl. 3 um nóttina kom íyrstur manna auga á eldinn og ók þangað í skyndi. Var hænsnahúsið mikið farið að brenna og eldur mestur austur af miðju húsinu. Eigandi hússins og húsdýranna, Högni Halldórsson verkstjóri hjá Mjólkurfél. Rvíkur,, sem býr rétt hiá hænsnabúinu, var þegar vakinn. Með aðstoð aðkomumanna tókst meíi naumindum að bjarga þrem kúm, er hafðar' voru í fjósi áföstu við hænsnahúsið. Alt annað brann til kaldra kola, og slökkviliðið, sem kom að um kl. 3, gat ekkert að gert. Þarna brunnu inni 5—6 hundruð hænsn fullorðin og 7—8 hundruð ungar, þeir elztu tveggja mánaða gamlir, en þeir yngstu skriðu úr egginij í fyrradag. Húsið, sem brann, var skúrbygging 33x5^4 m. að stærð, bygt úr timbri og járn- varið. Tvær útungunarvélar voru í húsinu og þrjár fósturmæður, sem hitaðar voru með oliulömpum, en húsið var raflýst. Ekkert verður vitað um það, með hverjum hætti eldurinn hefir komið upp, og varð einskis vart, er síðast var gengið um húsið, um miðnætti. Þótt húsið og hænsnin væru vá- trygt mun eigandinn hafa beðið til- finnanlegt tjón. —N. dagbl. 8. apríl. # * # KRISTLEIFUR A STÓRA-KROPPI 75 ARA I dag er hinn góðkunni fræði- maður, bændaöldungurinn, Krist- leifur á Stóra-Kroppi 75 ára. Krist- leifur á yfir að líta langa og* starí- sama æfi. Sem bóndi befir hann alla tíð verið sómi stéttar sinnar. ötull og framtakssamur, en þó gæt- inn og forsjáll. Eins og að líkindum lætur hafa öldur etfiðleikanna oft risið hátt, ekki sízt á frumbýlings- árunum, er börnin voru mörg í ó- megð — þá er mörg búmannsraun. En ávalt var þó sigur unninn. Samhliða búsáhyggjum hefir Kristleifi unnist tóm til að stunda ritstörf í stóruim stíl og með ágæt- um árangri. Hver bóndi, sem rækt- ar og bætir jörð sína, heldur áfram landnámi forfeðranna. Kristleifur er einn margra slíkra á seinni árum. En færri eru þeir, sem hann, er varðveitt hafa gullkorn sögulegra minninga úr lífi íslenzkrar alþýðu. Það starf mun halda nafni hans á lofti uim langa framtið ,og verða meira metið eftir þvi, sem lengra líður. Á þessum tímamótum æfi sinnar munu öldungnum á Kroppi og hinni ágætu konu hans berast margar hlýjar óskir æftingja og vina. Og sá hópur er stór, því að engan veit eg hans öfundarmann né óvin. Einar Guðnason. —N. dagbl. ip apríl. # # # FJ ARV EITIN GATILLÖGU R A ALÞINGI Nefndarálit og tillögur fjárveit- inganefndar voru lagðar fram á Al. þingi í gær. Hækkunartillögur nefndarinnar við fjárlögin nema 247 þús. kr., en lækkunartillögur 54 þús. kr. Raun- veruleg hækkun samkvæmt tillögun. um er því 193 þús. kr.' í fjárlagafrv. eru útgjöld ríkis- sjóðs áætluð 15.7 milj. kr. og tekj- urnar 15.5 milj. kr. Að viðbættum tillöguim nefndarinnar yrði um 400 þús. greiðsluhalli á frv. Nefndin' gerir ráð fyrir í áliti sínu, að gera við 3. umr. tillögur til hækkunar á tekjuliðunum þannig að fjárlögin geti orðið tekjuhalla- laus. Hækkunartillögur nefndarinnar skiftast þannig: Til vega- og hafn- argerðar 84 þús. kr., til sjúkrahúsa ríkisins 50 þús. kr., til skólabygg- inga 25 þús. kr., til embættiskostn- aðar presta 30 þús. kr. og afgangur er ýmsir smástyrkir til einstakr3 manna og félaga. Eru nokkrir þeirra taldir hér á eftir: Til Guð- mundar Thoroddsen próf. og Gísla F. Petersen til utanfara vegna rann- sóknar heilasjúkdóma 3,000 kr., til Guðmundar Matthíassonar til hljómlistarnáms 1200 kr., til dr. Þork. Jóhannessonar til ritstarfa 1,000 kr., til Tómasar Guðmunds- sonar skálds 1,000 kr., til Sigurðar Skúlasonar til þess að fullkomna sig í frásagnarlist 1,000 kr., tH Péturs Jónssonar söngvara 1,000 kr., til Eggerts Stefánssonar söngvara 1,000 kr., til Bjarna Björnssonar gamanleikat^i 1,000 kr„ til Þóru Borg til leiknáms erlendis 1,000 kr., til Jóhanns Sveinssonar til vísna- söfnunar 600 kr„ hækkun styrks til Leikfélags Reykjavíkur 4,000 kr„ til útgáfu fransk-íslenzkrar orða- bókar 2,500 kr. og hækkun styrks til skóggræðslu 3,200 kr. —N. dagbl. 5. apríl. # # # FISKAFLINN UM MANAÐAMÓTIN Hinn 31. marz s. 1. var aflinn samtals á öllu landinu 7,640 smál., miðað við fullverkaðan fisk. Á sama tíma í fyrra 16,252 smál., eða nokkru meiri en helmingi meiri. Miðað við þennan dag hafði afl- inn minkað um 4 þús. smál. á ári síðan 1933, en á þessu ári hefir afl- inn minkað um fullar 8 þús. smál. frá því i fyrra. Þó hefir afli aukist á nokkrum stöðum á þessari vertið, miðað við fyrra .ár: Á Eyrarbakka úr 5 smál. I 68 smál. Stokkseyri úr 84 smál. í 179 smál., í Þorlákshöfn og Sel- vogi úr 25 í 110 srnák, í Grindavík úr 167 smál. í 370 smál. 1 Gerðum og Leiru er aflinn að kalla jafn nú og í fyrra 257 smál. En á öllum öðrum stöðum mikið lægri. Mestu munar á togaraaflanum. í Reykjavík höfðu togarar aflað 283 smál. á móti 2,806 smál. i fyrra eða 10. hluta af fyrra árs veiði. 1 Hafnarfirði er veiði togaranna í marzlok 57 smál. á móti 1573 smál. á sama tima í fyrra, eða tæplega 27. hluta fyrra árs veiðar. Önnur skip í Reykjavík höfðu í marzlok veitt 352 smál. gegn 1143 smál. árið áður, en önnur skip en togarar i Hafnarfirði 155 smál. á móti 481 smál. árið áður. Af heildaraflanum kemur á: Sunnlendingaf jórðung 6,734 smál. Vestfirðingafjórðung 738 smál. Austfirðingafjórðung 167 smál. —Nýja Dagbl. 4. apríl. TEKST A HENDUR FORUSTU LANDBONAÐAR RAÐUNEYTISINS Eins og kunnugt er sagði Donald McKertzie af sér í haust er leið, em- bætti landbúnaðarráðgjafa í Bracken stjórninni, þó hann fyrir þrábeiðn; Mr. Brackens gengist undir að gegna því fram í lok síðasta þings. Nú hefir Mr. McKezie látið af em- bætti fyrir fult og alt, en Mr. Bracken tekið það að sér jafnframt stjórnarforustunni. Sparast við þetta full ráðgjafalaun. Mr. McKenzie gengur í þjónustu United Grain Growers félagsins og verður varaforseti þess. Er hann í hvívetna hinn liðtækasti maður ig eftirsjá að brottför hans úr stjórn Manitobafylkis. ÞJÓÐKUNNUR BLAÐA- MAÐUR LÁTINN Þann 30. apríl síðstliðinn lézt í Torontoborg, einn af hinum nafn- kendustu blaðamönnum canadisku þjóðarinnar, Harry W. Anderson, fyrrum ritstjóri Toronto Globe, sextugur að aldri. Hafði hann fyr- ir skömmu verið skipaður í þá hina konunglegu rannsóknarnefnd, er það verkefni hefir með höndum að kynna sér starfrækslu hegningar- húsa í landinu og bera fram tillögur viðvíkjandi umbótum á því sviði. FRA FRÖNSKU KOSNINGUNUM Nánari fregnir af kosningum þeim til franska þingsins, er fram fóru síðastliðinn sunnudag, bera með sér, að sigur hinna róttækari vinstri manna hefir orðið stórfeld- ari en hugað var í fyrstu. Jafnað- armannaflokkurinn, undir forustu Leon Blum, er langsterkastur, og myndar væntanlega ráðuneyti í fé- lagi við Kommúnista, er hlutu um 80 þingsæti. Þykir líklegt að með þessu breyti Frakkar mjög til hin= betra um stefnu sína í utanríkismál- um, með því að núverandi meiri- hluta flokkar höfðu Norðurálfu- friðinn efst á stefnuskrá sinni. SKIPAÐUR FYLKIS- STJÓRI Mr. Eric Wlerge Hamber hefir verið skipaður fylkisstjóri í British Columbia. Er hann fæddur i Win- nipeg þann 21. apríl 1879, sonur Erics Hamber, er um langt skeið gegndi skólastjórastöðu við St. Johns College. Hinn nýi fylkis- stjóri stundaði bankastörf lengi framan af æfinni, en tókst á hendur forstjórastöðu við British Columbia Mills, Timber & Trading félagið 1912 og hefir haft þann starfa með höndum jafnan síðan. Árið eftir var hann kosinn í bankaráð Dominion bankans. Mr. Hamber hefir mjög gefið sig við iþróttum, einkum kapp. róðri. SKARAR FRAM ÚR Allan Ilalderson Þessi kornungi og efnilegi, ís- lenzki piltur, sem getið var um í síðasta blaði að unnið hefði í hljóm- listarsamkepni Manitobafylkis, Manitoba Music Teachers Trophy, er sonur þeirra Mr. og Mrs. W. Halderson, 738 Banning Street. Hann hefir frá byrjun verið nem- andi Ragnars H. Ragnars í píanó- spili. TEKJUSKATTUR EYKST Við lok nýliðins fjárhagsárs nam tekjuskattur fylkisstjórnarinnar i Manitoba $130,000 umfram það, sem viðgekst árið þar á undan. Persónu- legur tekjuskattur gaf af sér $821,- 081 en skattur verzlana og fram- leiðslufyrirtækja hljóp upp á $371,- 751- FIMTI 1 RÖÐINNl Sámkvæmt rtýprentaðri skýrslu frá veðurstofunni í Ottawa, var sið- astliðinn aprílmánuður hinn fimti kaldasti í röðinni síðan árið 1880. SAMBANDSÞINGMAÐUR LÁTINN Síðastliðinn sunnudag lézt i Ot- tawa, Mr. D’Arcy Britton Plunkett, íhaldsflokks þingmaður fyrir Vic- toria, B.C., 64 ára að aldri. Er hann fyrsti neðrimálstofu þingmað- urinn, sem látist hefir frá því um síðustu sambandskðsningar. ÞINGKOSNINGAR Á EGYPTALANDI Almennar þingkosningar fóru fram á Egyptalandi síðastliðinn föstudag, og lauk þeim með allglæsi. legum sigri fyrir þjóðernissinna. Alls eiga sæti í neðri málstofunni 232 þingmenn. Egyptaland fékk þingræðisstjórn 1923, og voru þetta fimtu kosningarnar frá þeim tíma. Sambandsþingið Þann 1. þ. m., lagði Mr. Dunning fram fjárlagafrumvarp sitt í Sam- bandsþinginu og fylgdi því úr hlaði með langri og ítarlegri ræðu. Ýms- ar allverulegar breytingar tollög- gjöfinni viðvíkjandi, hefir frum- varpið til brunns að bera og ganga þær langflestar í þá átt að lækka verndartolla. Alls eru tolllækk- anirnar 104, en hækkanir í 12 til- fellum. Söluskattur hækkar um 2%, verður nú 8%. Tekjuskattur stórfyrirtækja hækkar um M/2% en einstaklingstekjuskattur helst ó- breyttur. Innfluthingstollur af búnaðará- höldtftn lækkar úr 25% ofan í 7ý4%. Tollur á gasolíu lækkar ofan í ic á gallónuna. Samkvæmt ákvæðum hins nýja gagnskiftasamnings við Bandaríkin, mega canadiskir ferða. menn kaupa og flytja inn $100 virði af Bandaríkjavörum án þess að borga af þeim toll, og ná hliðstæð ákvæði til amerískra ferðamanna, er hingað koma. Alls gerir f járhagsáætlunin 1936- 37, ráð fyrir $100,000,000 tekju- halla. Mr. Dunning var alt annað en myrkur í máli Viðvikjandi efna- hag þjóðarinnar og hvatti mjög til sparnaðar. Þó kvað hann ekki verða um það deilt, að horfurnar færi batnandi jafnt og þétt. Þingnefnd sú, undir forustu Mr. Euler, verzlunarráðgjafa, sem haft I hefir með höndum rannsókn hveiti- verzlunarinnar, hefir nú lokið störfum, og er þess vænst að hún lcggi fram álit sitt á næstunni. Eor- stjóri hveitisöluráðsins, Mr. Mur- ray, telur æskilegt að skipuð verði konungleg rannsóknarnefnd við- víkjandi hveitiverzluninni í heild. Enn er óráðið hvern byr slík uppá- stunga kann að fá. Til J. P. P. 2. maí, 1936. Eg sá það í Lögbergi i gær að þú hafir haldið ræðu um ísland, fyrir fullu húsi í Winnipeg, og hefir þetta skapað þá forvitni hjá mér og öðr- um hér, að eg treysti því að þú segir okkur frá ferðalagi þínu í Lögbergi, ekki sízt þar sem má lesa það á milli línanna í þessum fréttastúf blaðsins, að þú rnunir ekki hafa gengið um landið blindandi. Það sem þú segir vita allir, sem þið þekkja, að er rétt og satt. Við vitum vel hvað góður íslendingur þú hefir alt af verið, og það er kom- inn tírni til þess að fólk hér sjái gamla landið eins og það í rauninni er, en ekki í gegnum einhverja blá- móðu fávizkunnar, sem flestir þeir lifa í, sem hafa ekki séð Tsland í mörg ár, og sem margir á íslandi lifa í. Bobby Burns sagði eitthvað á þá leið að það sé gott að sjá okkur sjálfa eins og aðrir sjá okkur, og engum er betur treystandi til þess að segja rétt og skýrt og satt frá öllu en þér. Eg veit að þú hefir vit á þvi að halda í þér andanum í hvert skifti sem þú finnur að þú ert kominn út á hálan ís, sérstaklega hvað menn- ingu þjóðarinnar snertir, og að þú berir hana ekki saman við það sem hér er að finna í því efni, eða gerir annan samanburð, sem varð séra Albert að fótakefli. Hann hafði ekki vit á þvi að halda í sér atid- anum þegar að því kom að gera samanburð, og hafa þó víst engir bríxlað séra Albert um heimsku1 Auðvitað þykist eg vita dálítið um landið, því þar var eg nýlega. En eg mundi koma of klumbslega orðum um þá kurteysi, alúð og vinsemd, sem eg mætti hjá fólki minu, frænd- um og vinum, og hjá mörgum ó- kunnugum, ,og um þá ókurteysi andúð og fyrirlitningu, sem eg mætti hjá mörgum öðrum, að það yrði misskilið af þeim, sem ekkert vita um ísland, en þykjast þó vita alt, og færi kanske fyrir mér eins og í einu húsi, þar sem eg á að hafa talað svo illa um landið að það leið yfir konuna. maðurinn ældi 1 “sínkið” og blessuð börnin gufuðu upp á loft með tárin í augunum. Og samt sagði eg mikið meira gott en ilt um alt “heima” þó að eg sé ekki eins góður íslendingur nú og eg var áður en eg fór “heim.” Segðu okkur álit þitt um ísland —en haltu í þér andanum þegar það á við! Þú fyrirgefur ráðlegging- una. G. T. Athelstan. List of Contributors towards purchasing “The Glacia! Blink” a painting by EMILE WALTERS, to be presented to the Winnipeg Art Gallery and placed in the Winnipeg Auditorium. Pur- chase price $700.00. Mr. H. Halldorsson ....... $50.00 Dr. B. J. Brandson ....... 25.00 Dr. Jon Stefansson ........ 10.00 Dr. P. H. Thorlaksson ..... 20.00 Mr. Hannes Lindal 25.00 Anonymous .................. 1.00 Hon. W. J. Major ........... 5.00 Ald. Victor B. Artderson ... 5.00 Prof. Richard Beck ......... 5.00 Total ...................$146.00 Kærar þakkir, THE COLUMBIA PRESS, LTD. ---------------- • Mr. B. Bjarnason kaupmaður frá Langruth, var staddur í borginni í byrjun vikunnar. Hitin árlegi vor-bazaar Kvenfé- lags Fyrsta lúterska safnaðar, verð. ur haldinn í fundarsal kirkjunnar á þriðjudaginn þann 19. þ. m. Á sumardaginn fyréla Það vaknar alt af svefni á sumardaginn fyrsta og signir sig mót austri og þyrstu brjósti teygar úr loftsins djúpu skálum þær lífs og kraftaveigar, sem ljóssins andi veitir á sumardaginn fyrsta. Og ljóssins andi svífur á sumardaginn fyrsta á sólskinsmjúkum fjöðrum til smæstu og stærstu heima, með vængjaf}dli af lífi í gegnum loftsins geima og gleður alt, sem bærist, á sumardaginn fyrsta. Hann snertir kaldan svörðinn á sumardaginn fyrsta og sæng liins minsta frækorns liann endurvermast lætur; hann skapar því í moldinni þroskaráð og rætur og reisir það frá dauðum á sumardaginn fvrsta. Hver lífræn tunga syngur á sumardaginn fyrsta í samfagnandi tónum, er viðkvæm liugsun blandar; og söngnum fylgir kraftur sem berst frá strönd til strandar og stígur upp til himins á sumardaginn fyrsta. Og það er eins og sál vor á sumardaginn fyrsta ineð sigurvaldi rísi, til æðra skilnings vakni; sem andi vor sé flevgur sem höft og hnútar rakni og himininn sé opinn á sumardaginn fyrsta. Sig. Júl. Jóhannesson. I

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.