Lögberg - 04.06.1936, Side 1

Lögberg - 04.06.1936, Side 1
PHONE 86 311 Seven Lines IW" Better Dry Cleaning and Laundry 49. ÁRG-ANGUR WINNIPEU, MAN., FIMTUDAGINN 4. JtJNl, 1936. NÚMER 23 MISS BERNICE JUNE BALDWIN, B.A. Þessi efnilega námsmær er dótt- ir þeirra Mr. og Mrs. B. Baldwin, 686 Victor Street hér i borginni. Hún lauk B.A. prófi vi8 Manitoba háskólann í maímánuði sífiastliðnum með hinum ágætasta vitnisburði. , BÓKAGJÖF (Ritstjórnargrein úr “Free Press” 23. maí, 1936) Með því að afhenda háskólanunr nrerkilegt safn íslenzkra bóka hefir herra A. B. Olson gert rneira en það, að gefa bókasafnið sjálft. Hann hefir með því gefið sýnilegt tákn þeirra dýrðlegu hugsjóna, sem ættland hans er svo auðugt af; hug- sjóna, sem auðgað hafa og lýst hans eigið líf alla æfi. Ef háskólanum auðnast að halda ljóma þessara hugsjóna umhverfis “Olsons safnið,” þá verður fram- tíðargildi þessara 2,500 bóka marg- falt meira en verð bókanna sjálfra nemur, þótt verðmætar séu. Þegar Mr. Olson kom hingað sem innflytjandi, var hann ungur maður að aldri; hann valdi sér framtíðar- bústað í þessu fylki. Ekki flutti hann með sér margt hinna svokölluðu veraldargæða; en hann hafði með- ferðis fult koffort af bókum. Atvinna hans hefir yfirleitt verið búnaður; en hans innra lif þurfti annað og meira til viðurværis en það sem búnaðarstörfin veittu. Hann varði frístundum sínum til lesturs, sérstaklega til þess að lesa bókmentir Norðurlanda. Ár frá ári bætti hann við bókasafn sitt og eftir því sem hann safnaði meiru, eftir því stækkuðu og fegruðust draumsjónir hans. Hann sá í anda nýja kynslóð vaxa upp hér í landi, sem skildi þessar bókmentir og virti þíer. Af þessum ástæðum hefir hann gefið safn sitt til háskólans, í þeirri von og með þeirri trú að þar verði síðar stofnað varanlegt em- bætti i íslenzkum og norrænum fræðum. SKIFT UM RAÐGJAFA Eins og kunnugt er, lét nýlendu- ráðgjafi Breta, J. H. Thomas, af embætti i vikunni sem leið, vegna orðróms sem á því lá, að hann hefði á einhvern hátt fært sér persónulega í nyt vitneskju sína sem ráðgjafi úm innihald fjárlaganna brezku áður en þau voru lögð fram í þinginu. Mr. Thomas neitaði stranglega öll- um ásökunum í þessu satnbandi, en kvaðst samt sem áður telja það skyldu sína að segja af sér. Nú hefir Baldwin stjórnarformaður lýst yfir því, að hann hafi útnefnt William Ormsby-Gore, fyrrum póstmálaráðgjafa til þess að takast á hendur forustu nýlendumála ráðu- neytisins, Er hann fimtíu og eins árs að aldri. Síðustu fregnir láta þess getið, að rannsóknarnefndin hafi fundið Mr. Thomas sekan um þær ákærur, er á hann voru bornar. ÚTSKRIFAST 1 LÆKNIS- FRÆÐI Meðal þeirra íslendinga, sem út- skrifuðust í læknisfræði við háskóla Manitobafylkis í síðastliðnum maí mánuði, var Jón Sigurðsson frá Selkirk, sonur séra Jónasar heitins Sigurðssonar og frú Stefaníu Sig- urðsson, hinn mesti efnismaður, eins og hann á kyn til. Er hann byrjaður á starfi við sjúkrahúsið í St. Boniface. “QUEEN MARY’’ SIGLIR FRA SOUTHAMPTON Á miðvikudaginn þann 27. mai síðastliðinn, lagði hið nýja og vold- uga farþegaskip Breta, “Queen Mary,” upp í sína fyrstu ferð frá Southampton til New York. Voru landfestar leystar klukkan 9.45 f.h. Centraí Standard Time. Skipið ýtti úr vör með 2,139 farþega inn- anborðs, og var fánum skreytt milli stafna. Yfir höfninni sveimuðu flugvélar lagðar borðum með áletr- uninni: “Góða ferð.” Þegar til Cherbourg á Frakklandi kom, sem er eini staðurinn sem skipið stað- næmdist í á þessari fyrstu ferð sinni til New York, bættust um 200 farþegar í hópinn. Skipstjórinn er Sir Edgar Britten. “Queen Mary” kom til New York á sunnudaginn, og hafði ferð- in staðið yfir í 4 daga, 12 klukku- stundir og 24 mínútur. ÍIIALDSMENN í ONTARIO KJÓSA FORINGJA Síðastliðinn fimtudag héldu í- haldsmenn í Ontario allfjölment flokksþing í Torontoborg í þeirn tilgangi að kjósa sér fylkisforingja í stað George S. Henrys, fyrrum for- sætisráðgjafa, er ófáanlegur var til þess að hafa forustu flokksins leng- ur á hendi. HTn 2,000 fulltrúar viðs- vegar að úr fylkinu sóttu þingið. Hon. WL Earl Rowe, sambands- þingmaður fyrir Dufferin-Simcoe kjördæmiðj varð fyrir foringjaval- inu; býr bann stórbúi i Simcoe- héraði, og átti sæti um hríð í ráðu- neyti Rt. Hon. R. B. Bennetts. Mr. Rowe er fjörutiu og tveggja ára að aldri. Var hann kosinn til flokks- forustunnar með 1,005 atkvæðum; sá er næstur honum gekk að fylgi var Lt.-Col. George A. Drew frá Guelph, er hlaut 660 atkvæði. Fullyrt er að Mr. Rowe haldi sæti sínu i smabandsþinginu, fyrst um sinn að minsta kosti. SENATOB FÆR SLAG Simað er frá Cascapedia í Quebec fylki þann 3. þ. m., að senator E. N. Rhodes, fyrrum f jármálaráðgjafi 'Bennett-stjórnarinnar, er þar var gestkomandi, hafi fengið slag og liggi allhættulega veikur. Frá Islandi Þrumuveður af suðri gekk yfir bæinn laust fyrir kl. 11 s.l. laugardagskveld. Elding- ar komu hver á fætur annari og voru þrjár mestar, en ein þó langmest. Þrumuveðrinu fylgdi haglél og voru stærstu haglkornin 1 — ij4 crri. i þvermál. Skömmu fyrir kl. 11 laust eldingu niður í eina stöng loft- skeytastöðvarinnar og varð af all- mikið tjón, loftnet skemdist, en ann. ar aðalsendarinn bilaði o. s. frv. Skeytasendingar töfðust þó ekki og mun viðgerð að mestu lokið í dag. # * # Skarphéðinn Jóha/nnsson og Ilelgi Hallgrímsson húsgagnasmiðir komu með Gullfossi núna síðast eftir hálfs árs nám í teikningu á “Det Tekniske Selskabs Skoler” i Kaupmannahöfn. Sam- kepnisteikning fór fram meðal nem- enda i skólanum í vetur, eins og venja hefir verið og voru teikningar heggja íslendinganna teknar gildar og farið fram á það, að þeir smíð- uðu eftir þeim, sem þeir og gerðu í frístundum sínum á kveldin eftir skólatíma. Nú fyrir nokkurum dög- um fengu þeir tilkynningu frá dóm- nefnd þeirri, sem dæmdi smíðis- gripi þessa, að þeir hafi hlotið hvor um sig verðlaunapening og 50 kr. i peningum í viðurkenningarskyni. Gripir þessir, sem eru kvenskrif- borð, verða nú á sýningum fram eft- ir mánuðinum í Kaupmannahöfn. * * * G a gnfræð askólanum í Reykjavík var sagt upp 2. þ. m. kl. 2 siðd. Alls voru í skólanum í vetur um 210 nemendur. Af þeim voru 180 nem. endur í aðalskólanum, en um 30 í kveldskóla. í 2. bekk voru skráðir 53 nemendur. Af þeim náðu prófi upp í 3. bekk 44 nemendur. í 3. bekk voru skráðir 22 nemendur. Af þeim náðu 14 prófi. Þessir luku gagnfræðaprófi: 1. Aðalsteinn P. Maack, 2. Anna S. Þorvaldsdóttir, 3. Bergljót L. Rútsdóttir, 4. Finn- bogi Þorsteinsson, 5. Gestur Kr. Árnason, 6. Guðmundur Gislason, 7. Gunnar Jónsson, 8. Helga Þ. Guðjónsdóttir, 9. Ingveldur Ey- vindsdóttir, 10. Jóna Rútsdóttir, 11. Karl P. Maack, 12. Sigríður Guð- mundsdóttir, 13. Þóra Kr. Runólfs- dóttir, 14. Þórunn Einarsdóttir. * # * Nýtt skip Vestmannaeyjum 2. maí. í gær var hleypt af stokkunum í Vestmannaeyjum stærsta skipi, er þar hefir verið smíðað. Er það 85 fet á kjöl, 100 fet milli stafna og er áætlað að bera 100 smáléstir. — Smíðameistari var Gunnar M. Jóns. son, en bátar sem Gunnar hefir áður smíðað hafa reynst vel. — Annað skip, um 30 smálestir, hefir Gunnar nú í smiðum.—Vísir 5. maí. MR. H. IV. MONSON söngstjóri Concordia College söng- flokksins frá Moorehead, Minn., er I heldur samsöng í Grace kirkjunni í kvöld, fimtudagskvöldið þann 4. júní, kl. 8.30. Landskuld og leigur á þjóðjörðum og kirkjujörðum t jarðræktarlögunum eru ákvæði um það, að leiguliðar á þjóðjörðum og kirkjujörðum megi vinna af sér landskuld og leigur. — Jafnframt hefir verið ákveðið, að hvert dags- verk í slíkum tilfellum sé reiknað á þrjár krónur. Árið 1934 notuðu sér þessa heimild 328 búendur (eða býli). Skiftist tala býlanna þannig eftir sýslum: Gullbringu- og Kjós- arsýsla 23, Borgarfjarðar 10, Mýra 4, Snæfellsness 31, Dala 3, Barða- strandar 11, ísafjarðar 7, Húna- vatns 6, Skagaf jarðar 15, Eyjaf jarð- ar 17, Suður-Þingeyjar 28, Norður. Þingeyjar 7, Norður-Múla 16, Suður-Múla 43, Austur-Skaftafells 4, Vestur-Skaftafells 29, Vest- mannaeyja 5, Rangárvalla 27, Ár- nessýsla 42. Árið 1933 var heimildin notuð fyrir 331 býli, 1932 fyrir 355 býli, 1931 fyrir 240 býli og 1930 fyrir 215 býli. Upphæð sú, sem bændur hafa unnið af sér með þessu greiðslu- fyrirkomulagi á landskuld og leig- um 1930—1934, nemur alls kr. 213,087.00 # # # Eskifirði 30. apríl. Blíðviðri og hláka hefir verið undanfarna daga. Autt er orðið i bygð og farið að sleppa sauðfé á út- nesjumi. — Allgóðan afla fá smá- bátar enn á handfæri úti fyrir Reyð- ■arfirði, þó á takmörkuðu svæði. FRA FRAKKLANDI Gert er ráð fyrir að hin nýja vinstrimannastjórn, er Leon Blum veitir forustu, taki við völdum í dag. Hin nýja stjórn hefir það fyrst á stefnuskrá sinni að þjóðnýta allar vopnaverksmiðjur. Hermálaráð- 'gjafi verður væntanlega Edouard Daladier, forseti hins róttækara fylkingararms jafnaðarmanna. LEYNDAR VONIR flntt á sumardags fyrsta samkomu kvenfclagsins “Ltkn” í Blaine, Wash. Af sjónarhæð tímans um ljósvakans leið sér lyftir vor önd móti sólu, | að gleðjast við sumarsins skínandi skeið er skuggatjöld vetrarins fólu. Ó, hversu dýrlegt er, drottinn, að sjá dásemdir vorgróðans þinar; leyndustu vonir manns fyllingu fá er frostið og veturinn dvínar. Þú gefur og blessar og græðir öll sár með guðlegum kærleika þínum. til ljóssins hver frjóangi léttur og smár nú lyftist frá vanmætti sínum. ! Ó, vorið, það lýtur með virðingu þér og veturinn löghlýðni sýnir að fullnægja mundu til farsældar hér framleiðslu vegirnir þínir. Vetur er ennþá í lýðanna lund og ljósið er allmörgum f jarri, í gjörræðis klaka menn grafa sitt pund og gróður er þar eigi nærri. Hvenær mun sumarið koma þar inn og kærleikans vorblómin dafna, að andlegan kjósi menn erfðahlut sinn og umboði mammons að hafna? Hvenær mun vegandans vopninu fleygt, vonzkan og ofbeldið dvína, illgresið verða til blygðunar beygt, en blessandi bróðurinn skína? Ljósið fer sigrandi myrkrinu mót og miskunin guðlega vinnur; öll yerður spillingar eyðilögð rót og engin til vansælu finnur. Kærleikans vermandi krafturinn þá kalsárin jarðlifsins græðir; andlega sumarið, algæskan há. eilífum vorblóma klæðir. Líknin og manndáðin ljúflega þá ljósinu fylgja að verki, yndislegt verður þær allar að sjá undir Guðs hjálpræðis merki. Kristín D. Johnson. ISLENZK MALVERKA- SÝNING I NEW JERSEY Stofnað hefir verið til sýningar í borginni Newark í New Jersey rík- inu, á málverkum Emile Walters af nafnkendustu sögustöðuni Islands. Að sýningu þessari standa þrjátíu menn og konur, framarla í röð ame- riskra listavina, og stendur hún yfir frá 2. þ. m. til hins 13. Daginn, sem sýningin var opnuð, flutti Vil- hjálmur Stefánsson landkönnuður, veigamikinn fyrirlestur um ísland og íslenzka þjóðmenningu. Aðsókn hafði verið mikil. Málverk Emile Walters að heim- an hafa þegar vakið viðtæka at- hygli á íslenzkri náttúrudýrð. Það mætti ekki minna vera en íslend- ingar sýndu honum þann sóma, að stuðla að því að kaupa eitt málverka hans fianda listasafni Winnipeg- borgar; borgarinnar, þar sem lista- maðurinn er borinn og barnfæddur. PIUS PAFI XI. SJÖTIU OG NIU ARA Síðastliðinn sunnudag átti Píus páfi XI. sjötíu og níu ára afmæli, og nýtur enn góðrar heilsu. Full- trúar 22 kaþólskra ríkja heimsóttu hann á afmælisdaginn og árnuðu honum heilla. Bað páfi þess þá síð- astra • orða, að vara sig á falsspá- mönnum kommúnista. KJÖRIN AÐ ÆFIFÉLAGA Veglegt samsæti í heiðursskyni við frú Berthu Thorpe, hélt Jóns Sigurðssonar flélagið, I.O.D.E., á Marlborough hótelinu hér i borg- inni síðastliðið fimtudagskvöld. Frú Thorpe hefir verið kappsamlega starfandi meðlimur félagsins um 20 ára skeið, og gegnt forseta og vara- forseta embætti, auk þess sem hún hefir verið forseti þeirrar nefndar, er það göfuga hlutverk hefir með höndum að vitja sjúkra á hinum ýmsu sjúkrahúsum borgarinnar. Yfir störfum hennar öllum hefir hvílt andi kærleiksríkrar mannúðar. Við háborð sátu, auk heiðurs- gestsins, Mrs. J. B. Skaptason, for- seti Jóns Sigurðssonar félagsins, Mrs. W. G. Lumbers, forseti alþjóð- arfélagsins, Mrs. Homer Bunnell, forseti Municipal Chapter, Mrs. J. A. Hughes, forseti Provincial Chap- ter og Mrs. Colin H. Campbell, O.B.E. Mrs. Lumbers afhenti frú Thorpe æfifélaga heiðursskýrteini, ásamt merki þess; þákkaði frúin þann heiður, er sér Væri auðsýndur með samsætinu, og kvaðst slíks mundu langminnug verða. Mrs. Campbell fór lofsamlegum orðum um starfsemi Jóns SÍgurðs- sonar félagsins og íslendinga innan vébanda fylkisins í heild, auk þess sem hún mintist sérstaklega hinnar merkilegu bókagjafar Arnljóts B. Olsonar til Manitoba háskólans. Frú Grace Thorlakson-Johnson skemti með einsöngvum, með að- stoð ungfrú Bjargar Frederickson pianista. FLUG UM ISLAND I JÚNI Kaupmannahöfn 3. maí. Daugaard-Jensen, forstjóri Græn- landsverzlunarinnar dönsku tilkynn- ir, að amerískur flugmaður, Lee að nafni, hafi fengið leyfi til þess að fljúga yfir Grænland. Leggur hann væntanlega af stað í júníbyrjun og flýgur yfir Norður-Ameríku og síð- sn til Julianehaab, Angmasahk. Reykjavíkur og þaðan til Englands eða Danmerkur.—Vísir. FRUMVARP UM UMRAÐ CENTRAL BANKANS Fjármálaráðgj. sambandsstjórn- arinnar, Hon. Charles A. Dunning, hefir lagt fram í þinginu frumvarp til laga, er fram á fer, að stjórnin kaupi 51 af hundraði í hlutum Central bankans og nái með því um. ráðum yfir framkvæmd og starf- semi stofnunarinnar. Hafa út af þessu spunnist snarpar umræður, og þykir ýmsum þingmanna, þar á meðal Mr. McGeer frá Vancouver- Burrard, stjórnin ekki ganga nánd- ar nærri nógu langt i þá átt að þjóð- nýta þessa peningastofnun. Úr borg og bygð Mr. Jón Pálmason gistihúseigandi í Keewatin, Ont., kom til borgar- innar snöggva ferð síðastliðinn þriðjudag. Séra Jóhann Bjarnason kom norð- an frá Winnipegosis á þriðjudag- inn, þar sem hann hafði flutt guðs- þjónustur um tvær undanfarnar helgar. Mr. Chris. Jónasson frá Kanda- har, Sask., hefir dvalið í borginni um hrið. Söngflokkur Concordia College, Mooréhead, Minn., er syngur í Grace kirkjunni í kvöld, fimtudagskvöldið þann 4. júni, undir umsjón lút- ersku kirknanna í Winnipeg.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.