Lögberg - 25.06.1936, Blaðsíða 1
I
49. ARGANGUÍfc
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 25. JÚNl 1936
NÚMER 26
Úr borg og bygð
Erindrekar og gestir er ætla sér
aÖ sækja þing Bandalags lúterskra
kvenna, sem verÖur haldiÖ aÖ
Lundar, Manitoba, 3-4-5 júli
næstk., eru beðnir að gefa sig fram
•við skrifara félagsins, Mrs. B. S.
Benson, 695 Sargent Ave., sem
fyrst. Lestin fer frá Westside Sta.
tion á föstudaginn 3. júlí kl. 2.20
e. h. Fargjald fram og til baka
$2.25.
Þau Mr. og Mrs. Thorsteinn
Sveinsson og tengdasonur þeirra,
Eiríkur Anderson, frá Argyle, komu
til borgarinnar nofðan frá Árborg á
þriðjudaginn. Var Mr. Anderson
einn af kirkjuþings fulltrúum.
Mr. AsmUndur P. Jóhannsson;'
910 Palmerston Ave., dvaldi norður
í Nýja Islandi um kirkjuþingstím-
ann. Hann kom heim á mánudags-
kvöldið.
Þeir séra Guttormur Guttormsson
frá Minneota, A. R. Johnson og
Marvin Anderson, komu af kirkju-
þingi á þriðjudaginn. Dvöldu þeir
hér í borginni fram á miðvikudag.
John J. Arklie optometrist, spe-
cialist on sight testing and fitting
of glasses will be at Riverton Hotel
Monday, June 29th; Arborg Hotel
Tuesday, June 3061; Lundar Hotel
Friday, July 3rd.
Mr. Ásmundur Benson lögfræð-
ingur og frú frá Bottineau, N. Dak.,
komu til borgarinnar á föstudags-
kvöldið, ásamt þeim Mr. og Mrs.
Guðmundur Freeman og Mr. Good-
man, frá Upham. Ferðafólk þetta
brá sér norður til Árborgar i tilefni
af kirkjuþinginu, en hélt heimleiðis
aftur á mánudagsmorguninn.
Miss Lina Josephson frá Glen-
boro, er dvalið hefir á íslandi síðan
1930, kom til borgarinnar á sunnu-
daginn. Fór hún vestur til átthaga
sinna snemma í vikunni. Miss
Josephson lét vel af dvöl sinni heima.
Mr. Bergur Johnson frá Baldur
var staddur í borginni i vikunni sem
leið.
Mrs. Oliver G. Björnson, 17
Evanson Street, lagði af stað vestur
að hafi á miðvikudaginn í fyrri viku.
Gerði hún ráð fyrir að heimsækja
fyrst systur sina, sem búsett er í
Victoria, en halda þaðan til Tacoma
og Blaine í heimsókn til tengdasyst-
ra sinna. Mrs. Björnson mun verða
að heiman í sex vikna tíma.
Þeir kirk'juþingsmennirnir Vil-
hjálmur Sigurdson frá Hensel og
Jónas Sturlaugsson frá Svold, komu
norðan frá Árborg á þriðjudags-
morguninn og héldu heimleiðis sam.
dægurs.
Mrs. B. S. Benson, bókhaldari
Columbia Press, Ltd., fór norður til
Áfborgar á kirkjuþing síðastliðinn
fimtudag og dvaldi þar fram á
sunnudaginn.
ÞAKKLÆTI
Þessar línur eiga að færa mitt I
innilegasta þakklæti til allra minna
nánustu vandamanna og vina, sem á
70 ára afmæli minu, s.l. föstudag,
heimsóttu mig og sýndu mér virð-
ingar og kærleiksvott, með árnaðar.
óskum, veitingum og rausnarlegum
gjöfum. Eg óska þeim öllum góðs
og mun aldrei gleyrna þeim áhrifum,
sem þessi stutta samverustund skildi
eftir í huga minum.
Guðrún Thorsteinsson,
781 Banning St., Wpeg.
Miss Myrtle Ruttan, pianokenn-
ari, fór suður til Chicago í vikunni
sem leið, sem fulltrúi fyrir Quota
Club. Miss Ruttan er i röð fremstu
pianokennara þessarar borgar. Hún
hefir kenslustofu sína í Music and
Arts byggingunni.
Þéir kirkjuþingsmennirnir, Joe
Josephson, Kandahar, Helgi Helga-
son, Foam Lake, Thomas Halldórs-
son, Leslie, Helgi Eyjólfsson, Leslie
og Gunnar Guðmundsson frá Wyn.
yard, komu til borgarinnar norðan
frá Árborg á þriðjudaginn.
The Jón Bjarnason Academy
Ladies Guild hélt ársfund sinn 10.
júni. Skýrslur embættiskvenna voru
lesnar og sýndu að félaginu hefir
gengið fyrirtæki sín vel og hefir þvi
aukist kraftar og álit á árinu.
Embættiskonur kosnár fyrir næsta
ár: — Heiðursforsetar, Mrs. R.
Marteinsson og Mrs. A. S. Bardal;
Forseti, Mrs. R. F. O’Brien; Vara-
forseti, Mrs. D. H. Ross; Skrifari,
Mrs. H. C. McCaw; Vara-skrifari,
Mrs Alf. Griffiths; Féhirðir, Mrs.
J. J. Bíldfell; Vara-féhirðir, Mrs. R.
Hornbeck.
í sambandi við sýninguna miklu í
Regina, verður þriðjudagurinn 28.
júlí eins konar þjóðræknisdagur, þar
sem hinir ýmsu þjóðflokkar þessa
lands koma fram í nafni þjóðernis
síns. í undirbúningsnefndinni fyrir
þátttöku Islendinga, er hr. Björn
Hjálmarsson, Inspector of Schools
fyrir Saskatchewan stjórnina.
Sjónleikurinn “MAÐUR OG
KONA’’ eftir Jón Thoroddsen,
verður sýndur af leikfélagi Sam-
bandssafnaðar í samkomusal safn-
aðarins, á föstudagskvöldið þann
26. þ. m. klukkan 8, eins og auglýst
var hér i blaðinu i vikunni sem leið.
Leikur þessi tókst yfir höfuð prýði-
lega, er hann var sýndur hér seinast,
og þarf ekki að efa að meðferð hans
i þetta sinn verði einnig hin ánægju-
legasta.
Símskeyti frá Eimskipafélagi
íslands, barst hr. Ásmundi P.
Jóhannssyni um helgina, þess efnis,
að hann hefði verið i einu hljóði
endurkosinn til tveggja ára í stjórn
félagsins. Ennfremur lét símskeyt.
ið þess getið, að félagið greiddi hlut-
höfum sínum, fyrir síðastliðið ár
4% í arð. Þrátt fyrir kreppuna hef-
ir starfræksla Eimskipafélagsins
gengið ákjósanlega og mun íslend-
ingum vestan hafs verða það hið
mesta fagnaðarefni.
Frú Þórunn McMillan frá Los
Angeles, Cal., kom til borgarinnar
seinni part vikunnar sem leið í heim.
sókn til móður sinnar, Mrs. P. S.
Bardal, sytkina og frændliðs. Frú
Þórunn hélt heimleiðis aftur í byrj-
un yfirstandandi viku.
Dr. Sigurgeir Bardal frá Shoal
Lake, var staddur í borgfnni ásamt
frú sinni um síðastliðna helgi.
Nöfn ungmenna, er séra Bjarni
A. Bjarnason fermdi í kirkju Víði-
nessafn., Husavick, Man., þ. 14.
júní, eru: Sigurjón Baldur ísfeld,
Morris Alexander Isfeld, Lárus
Gunnar Albettson, Guðmundur Emil
Stefán Albertson, Jón Arason, As-
mundur Kristján Sveinn Sigurdson,
Andrés Hólm, Sigurjón Ingvar
Sigurdson, Carl Herbert Albertson,
Júlíus Hólm.
ÞINGSLIT
Seinni part síðastliðins þriðjudags
var Sambandsþinginu i Ottawa slit-
ið. Athöfninni stýrði, í fjarveru
landstjóra, Rinfret hæstaréttardóm-
ari.
LÝKUR PRÓFI í
GUÐFRÆÐI
Cand. theol. Helgi Ingiberg S.
Borgford
Þessi efnilegi Jslendingur á fjöl-
þættan mentaferil að baki; hann út-
skrifaðist í verkfræði af háskóla
Manitobafylkis árið 1927, en hefir
nú lokið guðfræðaprófi með fyrstu
ágætiseinkunn við Chicago háskól-
ann. Hlaut hann hin svonefndu
Robert C. Billings verðlaun fyrir
framúrskarandi ástundun og sam-
vizkusemi við nám sitt.
Cand. Borgford er fæddur í Win-
nipeg þann 11. nóvember árið 1903;
sonur þeirra merkishjónanna Thor-
steins byggingameistara og frú Guð.
rúnar Borgford, sem heima eiga að
832 Boadway hér í horg; er hann
mælskumaður mikill og líklegur til
góðs frama, sem hann á kyn til.
MAXIM GORKY LATINN
Einn hinn allra víðkunnasti rit-
í FRA KIRKJUÞINGINU
Hið finitugasta og annað ársþing
Hins evangeliska lúterska kirkjufé-
lags íslendinga í Vesturheimi, var
sett í kirkju Árdalssafnaðar i Ár-
borg á fimtudaginn þann 18. þ. m.
Forseti, séra K. K. Ólafsson pré-
dikaði. Aðsókn að þingi var mkiil
•og veður hið yndislegasta; stóð
þingið yfir fram á mánudag.
Kosningar í embætti fóru þannig:
Séra K. K. Ólafsson, forseti
Séra Sigurður Ólafsson, varafors.
Séra Jóh. Bjarnason, skrifari
Séra Egill H. Fáfnis, varaskrifari
S. O. Bjerring, féhirðir
A. C. Johnson, varaféhirðir.
Kosnir í framkvæmdarnefnd auk
ofangreindra, séra Haraldur Sig-
mar og séra B. Theodore Sigurðs-
son.
Framkvæmdarstjóri Sameining-
arinnar: Mrs. B. S. Benson.
Gjörðabók kirkjuþingsins hefst
væntanlega i næstu blöðum.
ÞRIÐJA FORSET AEFNIÐ
Neðri málstofu þingmaður þjóð-
þingsins í Washington, William
Lemke, Republican frá North Dak-
ota, lýsti yfir þvi á föstudaginn var,
að hann byði sig fram til forseta i
Bandaríkjum af hálfu nýs flokks,
er nefndist Union Party. Thomas
Charles O’Brien, lögfræðingur i
Boston, verður að því^er símfregnir
herma, varaforsetaefni flokksins.
Detroit presturinn nafnkunni,
Father Coughlin, hefir lagt
blessun sína yfir þessa nýju
stjórnmálahreýfingu og spáir því að
j undir merki hennar safnist bændur,
höfundur rússnesku þjóðarinnar,
Maxim Gorky, lézt i Moscow á
fimtudaginn var, þann 18. þ. m.
Hann var fæddur af fátæku foreldri
í Ninji Novgarod þann 28. marz ár-
ið 1868. I æsku hallaðist hann þeg-
ar að stefnu hinna róttækari jafnað-
armanna; hann barðist ákaft á móti
Lenin og stjórnarbyltingu þeirri, sem
við hann er kend, fyrst framan af,
en hallaðist síðar ákveðið á sveif
rússneskra kommúnista, og varð
þeirra áhrifamesti málsvari; þó var
hann aldrei meðlimur kommúnista
flokksins. Hin síðustu ár æfi sinnar
var Gorky mjög þrotinn-að heilsu.
Útför hans fór fram á kostnað hinn-
ar rússnesku þjóðar.
verkamenn, óháðir kaupsýslumenn
og yfir höfuð þeir kjósendur, er
frelsi unm og hvorki sætti sig við
rotnandi kapítalisma né tryllingslegt
kommúnista ofríki.
98. GREIN HEGNINGAR-
LAGANNA NUMIN ÚR
GILDI
Þau tíðindi hafa nú gerst, að hin
margumrædda 98. grein hegningar-
laganna, er stafaði frá verkfallinu
mikla í Winnipeg árið 1919, hefir
verið numin úr gildi fyrir atbeina
King-stjórnarinnar, þrátt fyrir
skörp mótmæli af hálfu Mr. Ben-
netts og fylgifiska hans.
VOR
Ö blíða vor sem vekur alt
og vermir það sem fyr var kalt,
þitt hjarta andar lielgum blæ
um himinn, jörð og sæ.
Við unaðsríka óðinn þinn
eg endurnæring ljúfa finn,
þitt lögmál hljómar ljóssins vald
og lífsins áframhald.
JOE LOUIS VERÐUR
UNDIR 1 HNEFALEIK
Á föstudagskvöldið þann 19. þ.
m., þreyttu þeir Negrinn Joe Louis,
sá, er mest orð hefir farið-af i
hnefaleikaiþróttinni og Max Schme-
ling hinn þýzki, með sér sér hnefa-
leik í New York, við feykiEga að-
sókn. Stórfé hafði verið veðjað á
Louis og var honum alment talinn
sigur vís. Úrslit urðu þau, að í
tólftu atrennu vann Þjóðverjinn,
sem er 30 ára að aldri, fullnaðarsig-
ur á sinum dökka 22 ára keppinaut.
BREYTING A FRAM-
KVÆMDARSTJÓRN
ÞJÓÐEIGN ABRAUT ANN A
Eftir þjark nokkuð og beizka and.
úð af hálfu framsogumanns ihalds-
flokksins, senator Arthur Meighens,
afgreiddi efri málstofa sambands-
þingsins í Ottawa síðastliðinn föstu-
dag, frumvarp það, er stjórnin lagði
fyrir þing og i þá átt gekk, að í
stað núverandi “Trustee” fyrir-
komulags, skuli sjö “Directors” eiga
sæti á framkvæmdarráði þjóðeigna-
brautanna, Canadian National Rail-
ways.
REFSISAMTÖKIN GEGN
ITALIU NEMAST ÚR
GILDI
*
Stjórn Breta hefir ákveðið að
nema refsisamtökin gegn ítaliu úr
gildi. Hið nýja ráðuneyti Frakka
hefir komist að sömu niðurstöðu,
auk þess sem sjáltstjórnarþjóðirnar
brezku, með einni undantekningu,
Suður-Afríku, hafa hallast á sömu
sveif.
Við umræðumar í brezka þinginu
um þetta mál í lok fyrri viku, hélt
Lloyd George eina af sínum kröft-
ugustu ræðum, þótt kominn sé hann
nú á fjórða ár hins áttunda tugar.
Skammaði hann Baldwin-stjórnina
niður fyrir allar hellur og kvað hana
hafa á fyrirlitlegan hátt, brugðist
þeim meginatriðum öllum, er Þjóð-
bandalagið hefði verið grundvallað
á; afstaða stjórnarinnar til Ethi-
opíumálanna myndi um langan ald-
ur skoðast einn allra deksti dillinn í
sögu hinnar brezku þjóðar.
AFMÆLI KONUNGS
*
Á þriðjudaginn var átti Hans Há-
tign Játvarður Bretakonungur 42
ára afmæli. I tilefni af því var
Winnipegborg flöggum skreytt, og
stjórnvaldaskrifstofur allar lokaðar,
ásamt bönkum.
ATVINNULEYSINGJA-
SKÁLUM LOKAÐ ÞANN
1. JÚLÍ
%
Við tilverunnar töfra brag
nú titrar ótal radda lag
0g fisið verður fagur kranz
í faðmi gróandans.
Þú fagra vor með ástar óð
þín ungu blóm og sólar glóð,
við ljóss þíns skaut með lögin liá
fær líf hið minsta strá.
Á meðan væna vorið grær
og vermir mildur sunnanblær,
með gleðiljóð um loft og jörð
og lífsins þakkargjörð,
er tíð að lyfta hönd og hug
og hef ja sókn með von og dug,
því bráðum liaustið kemur kalt
með kall, sem hrífur alt.
M. Markússon.
Sambandsstjórnin hefir nú komið
um 9,000 einhleypum mönnum í at-
vinnu hjá járnbrautarfélögunum, og
verður þar af leiðandi atvinnuleysis-
skálunum fyrir einhleypa menn víðs-
vegar um land lokað þann 1. júlí
næstkomandi.
ÚTNEFNINGA RÞING
DEMÓKRATA
Síðastl. þriðjudag hófst í borg-
inni Philadelphia útnefningarþing
Demokrataflokksins í Bandaríkjum,
þar sem endurskoðuð verður stefnu-
skrá flokksins og útnefning forseta.
efnis fer fram. Fregnum öllum ber
saman urn^það, að þeir Roosevelt og
Garner verði útnefndir í einu hljóði.
PÓLITÍSK FRIÐSLIT
Fyrir fylkiskosningarnar í Que-
bec, sem fram fóru í haust er leið,
mynduðu þeir Paul Gouin, foringi
þess hluta liberal flokksins, er nefndi
sig Action Liberale Nationale, og
vildi Ta’schereau-stjórnina feiga, og
leiðtogi afturhaldsmanna, Maurice
Duplessis, með sér bandalag í þeim
tilgangi að koma Mr. Taschereau og
ráðuneyti hans fyrir kattarnef. Til-
raun þessi mistókst, með því að
Taschereau-stjórnin var endurkosin,
þó ekki hefði hún að vísu, að lokn-
um leik, nema sex þingsæta meiri-
hluta. Alveg nýverið hefir svo
stjórnin sagt af sér eins og þegar er
vitað.
Nú hafa þau tíðindi gerst í Que-
bec, að í stað þess að vinna saman
í kosningum þeim, er fyrir dyrum
standa, hafa þeir Gouin og Dup-
lessis sagt hvor öðrum strið á hend-
ur og hervæðast þar af leiðandi í
pólitískum skilningi. hvor i sinu
lagi.
Mr. Gouin telur ástæðuna fyrir
þessum friðslitum vera þá, að hann
hafi komist á snoðir um tvöfeldni
af hálfu Mr. Duplessis, er ætlað
hafi sér að hota stuðning sinn til
þess að koma afturhaldsflökknum
grímuklæddum til valda í fylkinu;
hafi hann meðal annars kallað sam-
an leynifund til þess að reyna að
koma ráðabruggi sínu í framkvæmd.
Mr. Paul Gouin er sonur Sir
Lómer Gouin’s fyrrum forsætis-
ráðherra Quebecfylkis, þess, er um
eitt skeið var dómsmálaráðgjafi
Kingst j órnarinnar.
HÆZTIRÉTTUR CANDA
ÓGILDIR MARGT AF UM-
BÓTALÖGGJÖF
MR BENNETTS
Þegar King-stjórnin kom til valda
í haust er leið, afréð hún að leita
álits hæstaréttar á hinni svonefndu
umbótalöggjöf Mr. Bennett, með því
að á þinginu í fyrra þótti það mjög
orka tvímælis hvort einstök atriði
ekki riði í bága við Stjórnskipulög
landsins, einkum að því er valdsviði
hinna einstöku fylkja viðkom. Nú
hefir hæztiréttur kveðið upp úr-
skurð, er í ef tirgreinda átt gengur:
Dominion Trades and Industries
Commission lögin, gild að nokkru.
Kafli 498A hegningarlaganna,
gildur að öllu.
Employment and Social Insurance
lögin, ógild.
Lágmarkslauna lögin, 48 klukku-
stunda vinnutími og einn hvíldar-
dagur af sjö—jöfn atkvæði.
Natural Products Marketing lög-
in, ógild.
Farmers Creditors Arrangement
lögin gild að öllu.
Dómsúrskurði þesum í öllum at-
riðum verður áfrýjað til hæzítarétt-
ar Breta.
AUKAKOSNING I
EDMONTON
Síðastliðinn mánudag fór fram
í Edmonton aukakosning tif fylkis-
þingsins í Alberta. Úrslit urðu þau,
að dr. Walter Morrish frambjóðandi
frjálslynda flokksins hlaut kosningu
með afarmiklu atkvæðamagni um-
fram keppinauta sína tvo. Atkvæði
féllu þannig:
Walter Morrish, liberal, 9,802
Margaret Crang, Unity Front, 6,057
H. D. Ainly, bæjarfulltrúi, C.C.F.,
1,087.
Ti4 aukakosningar þessarar var
stofnað vegna þess að Mr. Hawson,
sem kosinn var í Almennu kosning-
unum i fyrra, lét af þingmensku og
var skipaður 1 dómaraembætti.
S