Lögberg


Lögberg - 16.07.1936, Qupperneq 1

Lögberg - 16.07.1936, Qupperneq 1
49. ABGANÖUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 16. JÚLÍ 1936 NÚMER 29 • LJÓÐ • Eftir Sigurð Sigurðsson frá Arnarholti. MANSÖNGUR Gaman væri ’ að ganga með þér einni og gleyma öllum sora' og verða hreinni. Þitt unaðsbros, það bræðir af mér trega og breytir bausti’ í vorið yndislega. Þú ert mildibalsam auga’ og eyra, engill, barn og lilja’ og miklu fleira. Engan grunar hvort það mýkir meira að mega sjá þig, eða fá að heyra. Það er svo gott að verða ungur aftur í annað sinn og verða fjör og kraftur; það reynist hverfult, heimsins ys og þysinn, og hvorugt vex í augum, lukkan eða slysin. Nú veit eg, að eg ætti’ að yrkja betur. ekki’ er seinna vænna, bráðum vetur. Héðan af krota’ eg ekkert ástaletur, sem æskan skilur eða nokkurs metur. Þú verður seinust kvenna yrkisefni — — ein einasta kannske til, sem eg ei nefni! Hvort þetta verður úr og á að rætast er efamál. En brosið þitt er sætast. GAGNRYNIR Mér finst eins og öllum sé nú bannað að yrkja’ af guðs náð. Það er kannske verst, að eg vil heimta hitt og þetta annað hjá þeim, sem nú yrkja lengst og mest— eitthvað, sem var ekki áður prentað orðrétt, því að nýtt er varla til, en eitthvað, sem er öðruvísi pentað og ofurlítil gáta — sem eg skil! ÁSTIN Ekkert nema ástin getur svikið að ósekju og drepið alt, sem lifir. Hún er Drottins verk og öllu yfir, eilíf, og hún fyrirgefur mikið öllum, nema einni sjálfri sér, syndir allar mér og þér. Hana skortir heimsvit, sem menn kalla, en liefir fyr eða síðar mátað alla. Frumsterk, brothætt, einföld, slæg og slóttug, slyng í söng og tvöföld, bljúg og þóttug, undursamleg, er hún elskar líka aumingjana, hetjur, snauða’ og ríka— almáttug er ástin liiminborin ei»s á sumri’ og hausti’, vetri’ og vorin. TIL SKÁLD& Þitt ljóð var eins og lystiskúta’ á tjörnum, þitt líf var dægrastytting uppi’ í sveit; það var gáta anda efagjörnum, auðskilin hverju barni, er lítið veit. Þú varst eins og kraftakvæði ’ í morgun, kjökur í dag og rímað fyrir borgun. Þeir kasta’ ei hjarta’ á torg, sem ekkert eiga, opna’_ ei pyngju þá, sem ekki ’ er til. Hvrnig máttu bikar blóma teyga, sem búinn ertu’ að fleygja’ í leirugt gil? Þitt ljóð er dautt og löngu þulinn sálmur, lífið autt og söngurinn — gulur liálmur. Þitt líf er eins og lag, sem enginn skilur, ljóð á tungu þeirri, er enginn kann.— Það var forðum nístings norðanbylur, nú er það orðið fuglatíst í rann, _ í hengibúri, livergi sól í glugga — hljótt og visið eins og njóli ’ í skugga. —Eimreiðin. Or borg og bygð íslendingar norðan til á Kyrra- hafsströndinni, hafa saniið við Dr. Björn B. Jónsson um að koma þang. að vestur og flytja þar nokkur erindi bæði á ísienzku og ensku. Verður fyrsta erindið flutt á miðsumársmóti íslendinga í Blaine þann 26. þ. m. Annað erindi flytur Dr. Björn á ensku í State Normal School í Bell- ingham um “Bókmentir og listir Is- lendinga.” Nokkur fleiri erindi flyt- ur Dr. Björn þar vestra. Þau Dr. og Mrs. Jónsson leggja af stað vestur um miðja næstkomandi viku. Mr. og Mrs. Björn A. Björnsson frá Moose Jaw, Sask., komp til borgarinnar á sunnudaginn var á- samt syni sínum í heimsókn til Mr. og Mrs. Sigurður Björnson, 679 Beverley Street. Messufall verður í prestakalli séra Sigurðar Ólafssonar tvo næst- komandi sunnudaga. Meðlimir Karlakórs Islendinga í Winnipeg og Icelandic Choral Society, eru hér mintir á það, að kantötu-æfing verður haldin í Fyrstu lútersku kirkju á miðviku- dagskvöldið þann 29. þ. m. Athygli skal hér með leidd að því, að kvenfélagið Hekla í Minneapolis, Minn., heldur sína árlegu skemti- samkomu í Lake Harriett Park No. 2, þann 2. ágúst. Dr. Ófeigur J. Ófeigsson flytur þar ræðu. Skemti- skrá fjölbreytt og vonast eftir fjöl- menni. Frú Anna Ólafsson lagði af stað í gær suður til Princeton, Minn., í heimsókn til sonar síns séra Svein- björns Ólafssonar. í för mcð henni var dóttur dóttir hennar Miss Anna Arnason frá Oak Point: ishúsfélag Norðfirðinga Stofnað 27. júní f. á.—er vel á veg komið með að reisa hrað- frystihús í Neskaupstað — hið fyrsta á Austurlandi. Hefir það nú fullgert vélasal, kjötgeymslu sem rúmar 10 smálestir og síldar- geymslu fyrir 2000 tunnur. Allar vélar hafa verið settar niður og voru þær reyndar í gærdag að Viðstöddum nokkrum boðsgest- um. — Verið er að ljúka við hraðfrystihús fyrir fisk. Vélar hússins eru frá A. S. Atlas í Kaupmannahöfn og hefir vél- smiðjan Hamar Reykjavik, út- vegað þær og sett þær niður. Vél- arnar eru rafknúðar og mun raf- veita Neskaupstaðar leggja þeim til straum. Ráðgert er að húsið verði tekið til notkunar næstu daga.—Vísir 26. júní. TIIE NATURE LOVER I saw her tread the wakened earth And softly heard her sing, Bright upon her silvery hair The golden light of spring. Her moth’ring fingers lingered on Each lovely flower apart, That life from every growing thing Might flow into her heart. And radiant joy lit her face; She glimpsed a robin’s wing. Oh, would you think she greeted thus Her eightyseventh spring? How soon above her withered form Sweet Mother Earth shall close, That it may nourish happily A young and lovely rose. Caroline Gunnarsson. Frá Islandi Mikil Sildarvciði Mikil síld veiddist í gær á Húnaflóa, við Haganesvík og við Langanes. Mun hafa veiðst að minsta kosti 5—6 þúsund mál alls á þessum slóðum. Mestan afla fékk Bæjarútgerð- artogarinn “Brimir” frá Norð- firði—1700 mál. Mest allur síldveiðaflotinn mun nú vera á leiðinni austur undir Langanes. Sólskin og ágætt síldarveður var fyrir Norðurlandi i fyrradag og í gær komu mörg síld- veiðaskip inn til síldarverk- smiðjanna á Norðurlandi: Siglu- firði, Dagverðareyri og Djúpu- víkur. Höfðu þau flest fengið síldina á Húnaflóa og við Haganesvík. Til Siglufjarðar komu í nótt Freyja með 500 mál, Alden með 400 mál, Hringur með 700 mál, Fáfnir með 750 mál og Vébjörn með 250 mál. Auk þess komu nokkur önnur skip með minna. Síldin er nú mun feitari en áður og er meðalfita á þeirri síld sem madd var í gær á Siglufirði um 15% en feitasta síld sem mæld var var 17%. Til Dagverðareyrar koinu í gær línuveiðarinn Langanes með 250 mál. Er það fyrsta skipið, sem leggur upp síld í þeirri verk- smiðju í ár, en búist var við þremur skipum þangað i morgun. Þau skip höfðu einnig fengið síldina á Húnaflóa og við Skaga. Til Djúpuvíkur kom í gær Sur- prise með 240 mál, en von var í dag þangað á togaranum ólafi með 150 mál, sem hann hafði fengið i nótt og Garðari með 300 mál. Togarinn Brimir frá Norðfirði, eign bæjarins, kom til Norðfjarð- ar i morgun og landar þar í dag 1700 mál, sem hann hafði fengið við Langanes í gær. Er það mesti sildarafli sem eitt skip hefir fengið sem og fyrsti afli sem kemur til síldarverk- smiðjunnar á Norðfirði. Eftir þvi sem frézt hefir mun síldveiðaflotinn nú vfirleitt halda austur að Langanesi og og mun verksmiðjan á Raufarhöfn verða tilbúin að taka á móti síld eftir fáa daga. Flest skip, sem ætla að stunda síldveiðar í sumar eru nú farin á veiðar og munu þegar vera komin um annað hundrað skip til veiðanna. Sítd á Faxaflóa Vélbáturinn Eggert frá Sand- gerði kom í gær til Keflavíkur með 80 tunnur af síld til fryst- ingar í frystihúsi hlutafélags Keflavíkur. Síldin veiddist i rek- net síðastliðna nótt 15 sjómilur í vestur frá Sandgerði. Skip- stjólinn áleit mikla sild á þeim slóðum. Sildin er talin eins góð eða betri en sild sú er veiddist síðari hluta síðastliðins hausts. Alþbl. 23. júni. 1183 Tonn af Karfa á Land á 4 Dögnm. Karfaveiða-togararnir moka nú karfanum upp á Halamiðum. Hefir svo mikill afli borist til Sólbakkaverksmiðjunnar, að hún hefir ekki getað haft undan, og fóru þrír togarar til Siglufjarðar í gær með um 400 tonn af karfa. AIls hafa togararnir lagt á land á Sólbakka og á Siglufirði síðan á föstudag 1183 tonn af karfa, og er það mesti karfaafli, sem komið hefir á land á jafn skömmum tíma. f byrjun fyrri viku var áfli fremur tregur, en glæddist skvndilega um miðja vikuna. Á föstndag og laugardag komu allir f jórir togararnir til Sólbakka með afla eins og hér segir: Hafsteinn 180 tonn Hávarður 150 ” Þorfinnur 148 ” Sindri 120 ” Gat síldarverksmiðjan ekki annað meiru, og var send til- kynning til togaranna um að fara eina ferð í síldarverksmiðjurnar á Siglufirði. f gærmorgun komu svo þrír togarar til Siglufjarðar með afla eins og hér segir: Þorfinnur 145 tonn Hafsteinn 140 ” Sindri 125 ” Hávarður kom svo til Sólbakka verksmiðjunnar í morgun með 170 tonn. Togararnir hafa nú aflað alls síðan þeir byrjuðu veiðarnar eins og hér segir: Hafsteinn 1205 tonn, Hávarður 1157 tonn, Sindri 1063 tonn, Þorfinnur 833 tonn, eða samtals 4258 tonn. En við þetta bætist svo afli úr einni veiðiför Þorfinns, Sindra og Hávarðs, sem lagður var í verk- smiðjurnar i Siglufirði í byrjun þessa mánaðar, en það mun hafa Verið um 400 tonn. Hefir þessi nýji atvinnuvegur, sem skapaður hefir verið fyrir atbeina rikisstjórnarinnar og þá fyrst og fremst Alþýðuflokksins, skapar mikla atvinnu og mikinn auð. Svo illu auga lítur ihaldið þennan atvinnuveg, að aðalmál- gagn þess skýrir ekki frá afla- fréttunum.—Alþbl. 23. júni. Hið nýja farþegaskip, sem ráð- gert er að Eimskipafélagið láti byggja, samkvæmt heimild sem samþykt var á aðalfundi félags- ins síðastl. laugardag á að vera hraðskreitt inótorskip—geta far- ið 16 mílur á vöku. “Fossarnir” fara nú að jafnaði 1214 mílu á vöku. Skipið á að geta tekið 100 farþega á I. far- rými og 60 á II. og kostar um 214 miljón, og er það sama verð og “Goðafoss” kostaði. Guðmundur Vilhjálm s s o n framkvæmdarstjóri Eimskipafél- agsins lagði þetta mál fyrir fund- inn og flutti í því sambandi ræðu. í umræðunum, sem fram fóru um málið á fundinum, kom ým- islegt frain, sem skýrði enn bet- ur, hvað það er, sem vakir fyrir félagsstjórninni. Stjórn Eimskipafélagsins hugs- ar sér, að skipið verði í ferðum milli Kaupmannahafnar, Leith og Reykjavíkur. Því er fyrst og fremst ætlað að annast farþega- flutninga yfir sumarmánuðina. Skipið á að fara 14. hvern dag frá Reykjavík og Kaupmanna- höfn og því gert ráð fyrir, að það afkasti í einni ferð sama og Gullfoss gerir nú í tveimur ferð- um. Þótt skipið sé fyrst og fremst hugsað sem farþegaskip, verður lestarrúm þess þó meira en nokk- urs annars af skipum Eimskipa- félagsins, og verður m. a. útbúið með frystitækjum. Hið nýja skip verður m. ö. o. fullkomnasta farþega- og flutningaskip. Eftir sumarmánuðina er ætlast til, að skipið verði í hægari ferð- um, en að það ,sigli til sömu staða. Ekki er ráð gert, að skipið sigli til hafna út um land. Stjórn Eimskipafélagsins tók það skýrt fram á fundinum að ekki yrði ráðist i að byggja þetta nýja skip nema áður sé trygt, að ríkið styrki félagið riflega við rekstur skipsins. Félagsstjórninni er það ljóst, að það verði tap á rekstri svona skips. En hún lítur svo á, að rikið muni græða mikið, beint og óbeint við það, að slíkt skip yrði í ferðum, sem myndi taka mik- inn farþegaflutning milli landa. Þessvegna telur nú stjórn Eim- skipafélagsins sjálfsagt, að ríkið muni styðja þetta mál með ríf- legum fjárstyrk. Ef ekki tekst nú þegar að hrinda þessu stórmáli i fram- kvæmd, má fullyrða, að erlend skipafélög hefþst handa og setji skip inn á þessa siglingaleið, þvi að þau hafa orðið þess vör, að farþegaflutningi til íslands er nú mjög ábótavant. Það upplýstist á fundinum, að erlend skipafélög er þegar farin að hreifa þessu máli og hafa m. a. nýlega sent hingað mann þess- ara erinda. En það veltur fyrst og fremst á ríkisstjórninni islenzku, hvort úr framkvæmdum getur orðið. Vill ríkisstjórnin styrkja þetta þjóðarfyrirtækji—eða ætlar hún að láta erlend félög annast far- 'þegaflutningana?—Mbl. 23. júní. Frá Islandi Biskup íslands Sjötugur Dr. Jón Helgason biskup á sjö- tugsafmæli í dag. En hann ber þann aldur vel og lítur út fyrir að vera iniklu yngri. Og starfskraftar hans eru enn óbilaðir. Það sýna rit þau, sem frá honum hafa komið nú síð- ustu missirin. Hann hefir verið hinn mesti iðjumaður og er án efa einhver hinn fróðasti maður, sem nú er uppi hér á landi. Eftir hann liggur mikið og merkilegt starf á sviði kirkjumála og bók- menta þessa lands. Hann byrjaði hér starf sitt, að loknu námi á háskólanum í Kaupmannahöfn, sem kennari ýið Prestaskólann, og varð þá þegar þjóðkunnur maður fyrir prédikunarstarfsemi við dóm- kirkjuna og útgáfu trúmálablaðs- ins “Yerði ljós!” Síðan varð hann forstöðumaður Prestaskólans, ]>ar næst prófessor við Háskóla fslands, er hann var stofnaður 1911. En biskup íslands varð hann 1916, eftir Þórhall Bjarnason. Hann hefir vísiterað allar kirkjur landsins og gert uppdrætti af þeim öllum, og er það merkilegt safn, sem siðari tima mönnum mun þykja mjög svo fróðlegt. Bókmentastarf biskupsins er mikið, og get eg ekki að þessu sinni, tímans vegna, gert þvi þau skil, sem vert væri. En hann hef- ir samið kirkjusögu fslands á íslenzku og dönsku, mikið verk og gagnlegt. Einnig hefir hann skrifað sögu Reykjavíkurbæjar og sögu fslendinga, sem dvalið hafa í Danmörku. Fyrir nokkrum árum kom út eftir hann stórt prédikanasafn. Nú hefir hann að siðustu skrifað tvö minningarrit um merka isl- enska lærdómsmenn á fyrri tim- um: Hálfdán Einarsson skóla- meistara á Hólum og Hannes biskup Finnsson í Skálholti. Síð- arnefnda ritið er ný komið út. f öllum þessum ritum liggur mik- ið starf, sem unnið er, auk marg- breyttra embættisstarfa. En allir mæla það, að embættisstörf bisk- upsins hafi jafnan verið i beztu reglu. Dr. Jón Helgason er fæddur i Görðum í Álftanesi, en þar er einnig fæddur Jón biskup Víd- alín, 200 árum áður. í báðar ætt- ir er dr. Jón Helgason biskup af merkum mönnum kominn. Faðir hans var ágætismaðurinn séra Helgi Hálfdánarson, en móðurafi hans séra Tómas Sæmundsson, sem allir fslendingar kannast við. Biskupinn hefir nú búið hér í bænum i 42 ár og átt hér ágætt heimili. Hann ætlaði að hverfa frá embættinu er hann yrði sjö- tugur, en fyrir beiðni lands- stjórnarinnar gegnir hann því á- fram, og mun það einnig verða samkvæmt ósk prestastéttarinn- ar. Há,skólinn í Kaupmannahöfn gerði hann fyrir mörgum árum heiðursdoktor i guðfræði, og nú nýskeð gerði Háskóþ íslands hann einnið að heiðursdoktor. Var það á 25 ára afmæli háskól- ans, 11. þ.m. —Þorst. Gíslason. —Mbl. 21. jún). Mr. og Mrs. Jón Bjarnason og Dr. Ó. Björnsson voru á ferðalagi um íslenzku bygðirnar i North Dakota í vikunni sem leið. Miss Salóme Halldórsson skóla- kennari býður sig fram til þings í St. George kjördæmi af hálfu hinn- ar svokölluðu Social Credit hreyf- ingar. Mr. Einar Benjamínsson frá Geysir, Man., var staddur i borg- inni um miðja fyrri viku. Stór-kaupmaðurinn Eftir Anderson M. Scruggs. Lífs og gleði að njóta lmgðist hann er heila miljón ætti að fullu grædda; dag frá degi, ár frá ári vann sem erkiþræll með sál í tötra klædda. Loksins hafði ‘liann lokið reikningsgjörð og lagt alt saman—hér var mikill auður— Loksins átti að lifa hér á jörð, en lífið sýndi að hann var þegar dauður. • Sig. Júl. Jóhannesson.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.