Lögberg - 16.07.1936, Síða 3

Lögberg - 16.07.1936, Síða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. JÚU 1936 3 Páll G. Egilsson kaupmaður í bænum Calder nálægt Lögbergsbygð í Sask., andaðist að heimili sinu í þeim bæ, föstudaginn fyrsta maí síðastliðinn, fimtíu og fimm ára að aldri. Páll var fæddur að Hallson í Norður Dakota 28. dag marzmánaðar árið 1881. Foreldrar hans voru frumbyggja- hjónin góðkunnu, Gísli Egilsson, Gottskálkssonar, frá Skarðsá í Seiluhrepp í Skagafirði, og Ragnheiður Jóhanns- dóttir, Iandnámsmanns í Norður Dakota, Hallssonar, frá Egg í Hegranesi í sömu sýslu. » Með foreldrum sínum fluttist Páll átta ára gamall til Winnipeg, og þaðan vorið 1891 til Lögbergs-nýlendunnar, sem þá var að byggjast; og átti hann heimili þar í föðurhús- um til fullorðinsára. Vorið 1910 settist Páll að i bænum Calder, stöðvarþorpi ' við járnbrautargrein, sem lögð hafði verið einu eða tveim árum áður norðan við bygðina. Stofnaði hann þar járnvöru- og verkfæraverzlun í félagi með Halli bróður sínum. Bjó Páll þar síðan, nema í þrjú ár, er hann var i Canada hernum. Páll gekk í herinn 10. marz 1916. Var tekinn í 223 her- deildina, eins og fleiri íslenzkir menn úr Lögbergs-bygð. Ekki var hann sendur til Frakklands fyr en í nóvember 1917, en fram að þeim tíma hafði hann verið kennari á vélbyssu- skólum í herbúðunum vestan við Winnipeg. Tók hann þátt í ýmsum orustum á Frakklandi en komst af lífs og ósærður úr þeim mannraunum og koin aftur til Canada 27. apríl 1919. Veturinn 1921 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni, Elínu, dóttur landnemahjónanna alkunnu í Lögbergs-bygð, Jóhannesar Einarssonar frá Hvammi í Höfðahverfi í Þing- eyjarsýslu og Sigurlaugar Þorsteinsdóttur frá Grýtubakka i söinu sveit. Eignuðust þau Páll og Elín sex börn, fimm dætur og einn son, sem öll eru enn í bernsku. Páll var vinsæll maður, vel látinn og virtur mikils af ölJum sem þektu hann, þrekmenni með afbrigðum, stilling- armaður og réttsýnn. Ráðhollur var hann og hjálpsamur öllum sem til hans leituðu, og hinn bezti drengur i hvívetna. Naut lítillar skólamentunar í æsku en mannaðist vel, jafnvel þótt hann væri frá því bitinn að sækjast eftir mannvirðing- um. Hann var í bæjarstjórn Calder-bæjar í mörg ár og hafði ýms önnur ábyrgðarmikil störf á hendi. Páll var trúr og góður kirkjumaður eins og ættmenn hans; studdi bæði söfnuð sinn og kirkjufélagið drengilega, og liðsinti kirkjustarfi í Calderbæ á meðan honum entist ald- ur. Dauða hans bar nokkuð óvænt að og snögglega, og var hann þó búinn að kenna heilsulasleika í tvö eða þrjú missiri. Banamein hans var héilablóðfall. útfararathöfnin fór fram fyrst i samkomuhúsi Calder-bæjar og síðan í kirkju og graf- reit Lögbergssafnaðar, að viðstöddu fjölmenni, mánudaginn 4. maí. Tveir prestar aðstoðuðu kennimann safnaðarins, séra Sigurð S. Christopherson, við útförina, — þeir Rev. Munro, prestur canadisku kirkjunnar í Calder, og séra G. Guttormsson frá Minneota. Sex systkini Páls eru á lífi: tveir bræður, Hallur og Hannes, búsettir nálægt Calder, og fjórar systur, Guðrún (Mrs. John Rooke) sem býr nálægt Saltcoats, Sask., Rann- veig, kona séra Guttorms Guttormssonar í Minneota, Helga (Mrs. Joseph Jira) búsett í Calder, og María (Mrs. Alfred Keast) í Roblin, Man. Allir sem þektu Pál Egilsson munu hiklaust bera honum þann vitnisburð, að þar sé trúr maður og sannur til moldar hníginn. —Vi'nur. Lítið hefir verið unnið að vega-- bótum í vor, nema það sem sveitar- menn hafa kostað til sjálfir, þvi engir jjeningar hafa fengist tij vega- gjörða hjá stjórnarvöldqm. En nú lifa menn á glæsilegum loforðum. siðan kosningahríðin skall á, og er þegar byrjað á undirbúningi í þá átt. Verður þó helzt til stuttur timi til slíkra starfa fram að heyönnum, sem nú ættu að byrja í fyrra lagi. Félagslíf er hér fremur dauft, og svo hefir verið undanfarin ár. Þó er hér starfandi kvenfélag og “base ball” félag meðal hinna yngri manna, en við höfum dregist aftur úr gömlu mennirnir. Lestrarfélag hefir þó verið starfrækt hér síðan 1910, en fremur á það örðugt uppdráttar í seinni tíð. Unga kynslóðin sinnir því lítið en eldri mennirnir týna nú óðum1 tölunni. Gengur þvi stirðlega með samvinnu i þeim félagsskap. Okkur vantar unga mentamenn til að lifga félagsskapinn og sameina sundurdreifða krafta, en slíkir menn eru vandfengnir. Þó fáum við stundum góða gesti sem lífga félags- lifið. Eyrir skömmu fengum við próf. Richard Beck til að vera á aðalsamkomu lestrarfélags okkar. Hann hélt fróðlegan og skemtileg- an fyrrlestur um islenzk efni. Hing- að hefir enginn gestur komið, sem hefir haft eins lífgandi áhrif á alla, jafnt eldri og yngri. Fyrirlestur- inn var vel fluttur og auk þess má kalla að Richard sé “hrókur alls fagnáðar” í allri umgengni. Við fáum líka stundum góða gesti þar sem þer eru prestarnir og forsetar kirkjufélaganna, séra Krist- inn Ólafsson og Guðmundur Árna- son. Báðir eru þeir frjálslyndir menn bæði í trúmálum og veraldleg- um efnum, og má kalla að menn sæki messur þeirra jöfnum höndum. Við leggjum engan dóm á það, sem trú- málaflokkum ber á milli, en hlýðum á hvern sem að garði ber, sem ekki æsir til ófriðar og sundurlyndis. Verðum heldur ekki annars varir en að þessum prestum semji vel, og virði hvor annan mikils. Séra Kristinn heldur hér fyrir- lestra þessa dagana. í gærkvöldi hlýddum við á einn slíkan um póli- tík; þau efni eru nú rík í hugum manna. Hann lýsti ljóst og sköru- lega hinum nýju umbótastefnum, sem nú eru efstar á baugi í heimin- um. Munu tnargir hafa farið fróð- ari áf þeim fundi en þeir voru áður. Þess var líka þörf, því það gjörðist nú örðugt fyrir okkur bændurna að gjöra upp á milli þeirra pólitísku stórmenna, sem deila um þau efni. —En það inun ekki eiga við að skrifa um pólitík í fréttagrein Eg gat þess í fréttagrein í vetur að bændur í Siglunesbygð hefðu keypt smjörgerðarhús á Ashern. Það hefir verið starfrækt síðan með góðum árangri. Telja bændur sig hafa haft góðan hagnað af því, enda þótt verð á smjörfitu hafi verið líkt þar og hjá þeim, sem reka smjörgerð fyrir ’sjálfa sig. En á einhverju verða þeir að græða, og þann gróða ættu bændur að geta haft; þótt ekki sé gott að sjá í hverju hann liggur. Búast má við að þeir sem eiga smjörgerðarhús í nágrenni við okk- ur reyni að keppa við okkur, með verðhækkun á rjóma, en vonandi sjá bændur við þeþ'ri samkeppni. Nú er varla talað um annað en kosningar og pólitik, en ekki fer eg út í þá sálma. ‘“Spyrjum að leiks- lokum en ekki að vopnaviðskiftum.” Guðm. Jónsson, frá Húsey. STYRKIR TAUGAIt OG VEITIK | NYJA HEILSU N XJ G A-T O N E styrkir taugarnar skerpir matarlyst, hressir upp á melt- ingarfæri, stuðlar að væruin svefni. og bætir heilsuna yfirleitt. NUGA-TONE hefir gengiö manna á meðal í 45 ár, og hefir reynst konum sem körlum sönn lijálparhella. Notið NUGA-TONE. pað fæst I öllum lyfja- búðum. Kaupið hið hreina NUGA- TONE, því fá meðöl bera slíkan Srang- ur. Við hægðaleysi notið UGA-SOL — bezta lyfið, 50c. Útdráttur ;r skýrslu Landsbanka Islands 1935 Frá Seattle Sunnudaginn 2. ágúst 1936 verð- ur íslendingadagurinn haldinn að “Silver Lake” Wash. Kæru íslendingar: Nefndin, sem kosin var til að hafa umsjón með þjóðminningardeginum hér í ár, býðty yður alla velkomna til “Silver Lake” 2. ágúst. Enn á ný ætlum vér að koma hér saman til að minnast íslands, þjóð- ar vorrar og tungu, og í tíunda sinni á þessum stað. Þessi staður er því orðinn oþkur kær, hann er eins konar vermireitur islenzkra hug- sjóna, enda er útsýni hér svo undra- fagurt og minnir á íslenzka náttúnu fegurð fremur öllu öðru, sem við höfum séð í þessari álfu; f jallasýn á tvær þliðar: Olympic fjöllin í vesturátt, en Cascada f jöllin í austri. Skemtigarðurinn er umkringdur lág- um birkiskógf 'með hringmynduðu stöðuvatni, “Silver Lake” í miðju. Þar hafa verið reistir gistiskálar og danshallir alt í kring, ennfremur eru þar sundklefar, skemtibátar af ýms- um tegundum. Umhverfið alt hefir það seiðmagn, að hver setn eitt sinn sækir þangað skemtimót, þráir að líta staðinn aftur. Nefndin hefir, eins og að undan- förnu, útbúið fjölbreytta skemti- skrá fyrir daginn, lærðir menn og skáld flytja ræður og kvæði, þá verða sýndar íþróttir af rpörgum tengundum, og góð verðlaun gefin þeim, sem fram úr skara. Iþróttir unglinga byrja kl. 11 f. h. Hátíðin sett af forseta dagsins, kl. 2 é. h. framhald íþróttanna eftir þann tíma. Fátt getur verið meira upplifgandi og endurnærandi fyrir likama og sál, en koma saman á heiðskírum sumar- degi úti í skógarlundi, mæta þar ætt- ingjum og vinum, ryfja upp minn- ingar frá liðinni tíð og spá út í framtíðina. Nú vill svo vel til að þessi sunnu. dagur ber upp á mánaðardaginn annan ágúst, sem er merkur dagur í frelsisbaráttu íslands; þá sáust fyrst skýjarof í lofti eftir langnætti og myrkur, þegar Kristján konungur 9. færði Islendingum stjórnarskrána annan ágúst 1874. Það er því ein af ástæðunum fyrir því að búast má við fjölmenni að “Silver Lake,“ þess utan verður meira um ferðafólk austan yfir f jöll um þetta leyti, en nokkru sinni áð- ur. íslendingar hér á ströndinni hafa því tækifæri að mæta kanske gömlum og góðum vinum, sem þeir hafa ekki séð í fleiri ár; hver veit? Enginn, nema sá sem reynir. Hver sem skilur heilbrigt hjartalag, helgar minning íslands þennan dag, metur gull í gömlum ættarsjóð, guð sinn finnur þar sem vaggan stóð þar sem fyrst hann heyrði móðurmál milt og ljúft og hreint og traust sem stál, Svo er gott að finna handtök hlý, hitta vini og frændur enn á ný. Fyrir hönd nefndarinnar. H. B. Magnússon. (Framh.) Iðnaður. Töluvert dró úr húsabyggingum á árinu. I Reykjavík voru bygð 90 (120) ibúðarhús (svigatölurnar eru frá árinu áður—1934) 10 vinnu- stQÍu. og verksmiðjuhús, 38 gripa- og geymsluhús og 6 önnur hús, ,eða alls 144 (204) hús fyrir samtals um 4.74 milj. kr., eða 1 3/4 milj. kr. minna en 1934. í húsum þessum voru 220 (305) íbúðir. Á Akur- eyri voru bygð 26 hús fyrir samtals um 400,000 kr. (500,000 kr.), á ísa- firði 7 (18) hús fyrir samtals 210,- 000 (176,000 kr.), í Hafnarfirði 17 hús fyrir samtals 224,000 kr. Á árinu hafa smjörlíkisverk- smiðjurnar 7 (7) framleitt 1373 (1358) tonn af smjörlíki. Ullar- verksmiðjurnar 3 (3) unnu úr 168 (172) tonnumaf ull. Mjólkurbúin 4 (4) unnu úr 5990 (3449) tonnum af mjólk. Niðursuðuverksmiðjurn- :ar 2 (2) suðu niður 37 (32) tonn ■ af kjöti, 11 (35) tonn af fiski, 53 |(4i) tunnur af síld og 379 (454) tonn af mjólk. í garnastöð Sam- bands íslenzkra samvinnufélaga voru hreinsaðar 295 (300) þúsund garnir. Gþeruverksmiðjan afullaði 103 (95) þúsund gærur. Þrír (3) sútarar sútuðu 8000 (10000) gærur og um 1200 (1300) önnur skinn. Ölgerðin Egill Skallagrímsson framleiddi 3286 (3761) hl. af öli, gosdrykkjaverksmiðjurnar 3 (3) 2472 (1709) hl. af gosdrykkjum og í 8 (6) verksmiðjum voru fram- leiddir 359) hl. af saft. Sjóklæða- gerð íslands framleiddi 33700 (18820) st. sjóklæði og regnkápur, og vinnufatagerðin (2) 58300 (63000) flíkur. Kaffibætisgerðirn- ar 4 (4) framleiddu 239 (243) tonn af kaffibæti. I 5 (5) verksmiðjum voru framleidd 405 (386) tonn af sápu og i 2 (2) verksmiðjum 24 (17) tonn af kertum. í 5 (5) verksmiðjum voru framleidd 45 tonn af skóáburði, fægiáburði og fægilegi, í þremur verksmiðjum 26 tonn af þvottadufti og í 4 (3) verksmiðjum 21 (23) tonn af bök- unarefni.. I 3 (2) verksmiðjum voru framleidd 85 (60) tonn af súkkulaði, i 4 (3) verksmiðjum 28 (42) tonn af brjóstsykri, í 5 (4) verksmiðjum 9 (9.6) tonn af kara- mellum, í 3 (4) verksmiðjum 9.5 (7.5) tonn af konfekti og í 3 verk- smiðjum 9.5 (7.5) tonn af konfekti og í 3 verksmiðjum 44 tonn af á- v&xtasultu. Þfjár kexverksmiðj- ur framleiddu 236 (158) tonn af kexi. í einni verksmiðju (2) voru framleiddir 14.5 (27) hl. af hár- vatni og í 3 verksmiðjum 3.9 tonn af fegurðarmeði;lum. 1 Kassagerð Reykjavíkur voru smíðaðir 39500 (18500) kassar. Stáltunnugerðin smíðaði 15200 (8900) tunnur og Tunnuverksmiðja Akureyrar 19600 tunnur. Belgja- gerðin framleiddi 5000 (1600) belgi. ísaga framleiddi 8300 (7500) kg. af Ácetylengasi og 10800 (9000 m3 af súrefni. Tvær (2) skóverk- smiðjur smiðuðu 44400 (44000) pör af skóm. Tvær veiðarfæraverk- smiðjur framleiddu 5400 (3300) tylftir af fiskilínum og 6 (6) milj. öngultauma. I 9 (9) verksmiðjum voru fram- leidd 4852 (4756) tonn af fiski- mjöli. Var verðið á sólþurkuðu fiskimjöli í byrjun ársins um 300 kr, tonnið, en féll síðan mjög, og var í árslok komið niður í 200 kr. Mun láta nærri, að meðalverðið á seldu rnjöli hafi verið um kr. 210 tonnið. Tiu (9) síldarverksmiðjur störfuðu á árinu. Nam framleiðsla þeirra 6500 (8700) tonnum af síld- arlýsi á um 1.8 milj. kr. og 6700 ((10100) tonnum af síldarmjöli á Business and Professional Cards | PHYSICIANS crnd SURGEONS DR. B. J. BRANDSON 216-22 0 Medical Arta Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834—Office tímar 2-3 Heimili 214 WAVEIÍLEY ST. Phone 403 288 Winnipeg, Manitoba DR. B. H. OLSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone 21 834--Office tlmar 4.30-6 Helmlli: 5 ST. JAMES PLACE Winnipeg, Manitoba DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg. Talsími 26 68 8 Stundar augna, eyrna, neí og kverka sjúkdóma.—Er aó hitta kl. 2.30 til 5.30 e. h. Heimili: 638 McMILLAN AVE, Talsími 42 691 i Dr. P. H. T. Thorlakson 205 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy 8ta. Phones 21 218—21 144 Res. 114 GRENFELL BLVD. Phone 62 200 Dr. S. J. Johannesson Vlótalstlmi 3—5 e. h. 218 Sherburn St.—Sími 30877 G. W. MAGNUSSON Nuddlceknir 41 FURBY STREET Phone 36 137 Slmlð og semjió um samtalstfma 1 BARRISTERS, SOLICIIORS, ETC. H. A. BERGMAN, K.C. Islenzkur lögfrœOingur Skrifstofa: Room 811 McArthur Bullding, Portage Ave. P.O. Box 16 56 PHONES 95 052 og 39 048 J. T. THORSON, K.C. tslenzkur löpfrœðingur 800 GREAT WEST PERM. BLD. Phone 94 668 , BUSINESS CARDS \ DR. A. V. JOHNSON tsienzkur Tannlœknir 212 CURRY BLDG., WINNIPEG Gegnt pósthúslnu Slmi 96 210 HeimiUs 33 338 Drs. H. R. & H. W. TWEED Tannlœknar 406 TORONTO GENERAL TRUSTS BUILDING Cor. Portage Ave. og Smith St. PHONE 26 545 WINNIPEG CorntoaU ^otel Sérstakt verð á viku fyrir námu- og fiskimenn. Komió eins og þér eruó klæddlr. J. F. MAHONEY, framkvæmdarstj. MAIN & RUPERT WINNIPEO DR. T. GREENBERG Dentist Hours 10 a. m. to 9 p.m. PHONES: Office 36 196 Res. 61 458 Ste. 4 Norman Apts. 814 Sargent Ave., Winnipeg A. S. BARDAL 848 SHERBROOKE ST. Selur líkkístur og annast um út- farir. Allur útbúnaóur sá beztl. Ennfremur selur hann allskonar minnisvaróa og legstelna. Skrifstofu talslmi: 86 607 Heimilis talslmi: 601 662 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 601 PARIS BLDG., WINNIPEG Fasteignasalar. Lelgja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgð af öllu tægi. Phone 94 221 A. C. JOHNSON 907 CONFEDERATION LIFE BUILDING, WINNIPEG Annost um fasteignir manna. Tekur að sér aó ávaxta sparlfé fólks. Selur eldsábyrgð og bií. reiða ábyrgóir. Skrlflegum fyrir- spurnum svaraó samstundis. Skrifst.s. 96 757—Heimas. 33 828 ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST., WINNIPEG pœgilegur og rólegur bústaOur i miðbiki borgarinnar. Herbergl $.2.00 og þar yflr; meó baóklefa 33.00 og þar yflr. Ágætar máltlóir 40c—60c Free Parking for Gueats rúmlega 1.3 milj. kr. Sildarlýsið fór mjög hækkandi á árinu. Var verðið í ársbyrjun um 220 kr. og var tölu- vert selt fyrirfram fyrir það verð. Síðari hluta árs hækkaði það þó mjög og komst upp í rúmlega 380 kr. tonnið. Síldarmjölið var yfir- leitt selt á 200 kr. tonnið. Af karfa- lýsinu voru framleidd 347 tonn, og af karfamjöli 1063 tonn. Var verð- ið á lýsinu, þegar það kom á rnark- aðinn, 450 kr. tonnið, en á mjölinu 220 kr. tonnið. Á árinu tók til starfa hvalstöð. Framleiddi hún 122 tonn af hvallýsi. Samgöngur. Á árinu héldu þrjú gufuskipafélög uppi föstum áætlunarferðum hing- að með 11 skipum. Tala áætlunar- fcrða hingað til lands var 128, og vc>ru 65 eða rúmur hehringur þeirra frá Eimskipafélagi íslands. Þar af voru 53 frá Danmörku, 33 frá Noregi, 23 frá Þýzkalandi, 10 frá Belgíu og 9 frá Bretlandi. Tala áætlunarstrandferða var 110, þar af 23 hringferðir. Til Miðjarðarhafs- landanna fóru 5 skip, 13 ferðir sam- tals. Á árinu bættust 2 skip við ís- lenzka flutningaskipastólinn. Er annað 769 br. reg. tonn, en hitt 280 br. reg. tonn. Mun það fyrt^lda aðallega ætlað til millilandaferða. Á árinu var varið til vegamála úr ríkissjóði tæplega 1.6 milj. kr. Er það töluvert minna en árið áður. I júlí 1935 voru í landinu 1821 bif- reiðar. Haf ði þeim f jölgað um rúm- lega 100 frá því árið áður. Tala símskeyta, sem send voru til vþlanda á árinu, var 63749 (64029), en tala sendra innanlandsskeyta 143875 (139708). Tala sendra bréfa innanlands var árið 1934: 2167300, (1933: 2003100), en bókfærðra sendinga 718700 (199900). Árið 1934 voru send til útlanda 317900 bréf (1933: 302200) og bókfærðar sendingar 27700 (1933: 21570). Verzlun við útlönd. 1 framkvæmdinni hafa innflutn- ings- og'gjaldeyrishöftin verið enn- þá harðari en undanfarin ár. Þess hefir og ennþá meira gætt en undan- farið, að orðið hefir að beina þeim viðskiftum, sem um hefir verið að ræða, til þeirra landa, sem sérstak- 1ega kaupa útflutningsafurðir vorar, þó að það bæði rifti gömlum við- skiftasamböndum og oft og tíðum hafi i för með sér óhagstæðari inn- kaup. Er þetta i samræmi við hina gagnkvæmu viðskiftareglu, sem nú Framh. á bls. 7

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.