Lögberg - 27.08.1936, Page 1
49. AROANGUE
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 27. ÁGÚST, 1936
NÚMER 35
Afhjúpun minnisvarða
Stephans G. Stephanssonar
John Bracken forsœtisráðherra
vinnur sinn stœrsta kosningasigur
Fær yfir 1,000 atkvæða meirihluta í kosningunum sem
fram fóru í Pas kjördæminu þann 21. þessa mánaðar.
Oddur Ólafsson gengur sigrandi af liólmi í Rupertsland
kjörda'mi í viðureign sinni við W. W. Kennedy, fríim-
bjóðanda afturhaldsliðsins.
SEXTAN ROtíSAE
LÍFLATNIR
Sí'ÖastliÖinn mánudag voru sextán
rússneskir þegnar teknir af lífi í
Móscow, er kærðir höfðu veriS fyrir
landráð og fundnir voru sekir, eða
höfðu játað á sig sök, a<5 því er sím.
fregnir herma. Tveir þessara manna
höföu um eitt skeið notið hárra
mannvirðinga innan vébanda Bol-
sheviki-flokksins í tíð Lenins. Voru
það þeir Gregory Zinovieff, er mjög
kom við ;sögu utanríkismálanna, og
Leon Kameneff. Þessir menn voru
sakaðir um það, að hafa fyrir for-
tölur Leons Trotsky, sem útlægur
var ger úr Rússlandi, en nú á land-
vist í Noregi, stofnað til uppreistar
gegn Soviet-stjórninni, jafnframt
því að reyna að ráða Joseph Stalin
alræðismann af dögum.
RÍKISSTJÓRINN í MINNE-
SOTA LATINN
Þann 24. þ. m. lézt á sjúkrahúsi i
Rodhester, Minn., ríkisstjórinn í
Minnesota, Floyd B. Olson, 44 ára
að aldri. Var hann foringi hins sam_
einaða bænda- og verkamannaflokks
i Minnesotaríkinu, málafylgjumaður
mikill og harður í horn að taka.
Hann hafði ákveðið að leita kosn-
ingar til öldungadeildar þjóðþings-
ins í Washington af hálfu flokks
síns við Nóvemberkosningarnar í
haust. En svo kom dauðinn og af-
vopnaði hann í blóma lífs. Þó Olson
væri ekki Demokrati frá flokkslegu
sjónarmiði séð, þá var hann því þó
hlyntur að flokkur sinn styddi að
endurkosningu Franklins D. Roose-
velt.
Stúlka setur met í langstökki
á Seyðisfirði
íþrótta- og Austfirðingamót var
haldið á Seyðisfirði dagana 2. og 3.
ágúst. Mótið hófst með guðsþjón-
ustu kl. 11 árdegis á sunnudag. Séra
Sveinn Víkingur prédikaði Sam-
koman var sett á íþróttavellinum kl.
1 e. h. af Karli Finnbogasyni. Síð-
an söng karlakórinn Bragi. Að því
loknu hófst íþróttadagsskrá móts-
ins. Kept var í eftirtöldum íþrótt-
agreinum:
100 metra hlaupi, 60 metra hlaupi
kvenna, kúluvarpi, hástökki karla og
hástökki kvenna. Kringlukasti,
stangarstökki karla og kvenna,
spjótkasti og þrístökki.
Að íþróttunum loknum var sýnd-
ur sjónleikurinn Æfintýri á göngu-
för, og loks var dans stiginn.
Síðari daginn hófst mótið með
sundkepni. Kept var í 50 metra
mannafélags Seyðisfjarðar nokkur
sundi karla og kvenna. Síðan tal-
aði Gísli Jónsson form. Verzlunar-
orð í tilefni dagsins. Karlakórinn
Bragi söng eftir ræðuhöldin. Þá
hófst kepni i 100 metra hlaupi og
síðan knattspyrnukepni milli Hugins
og utanbæjarmanna. Loks var leik.
sýning og dans.
Mótið sótti margt manna frá nær-
liggjandi f jörðuifl og af Héraði. Það
fór í alla staði mjög vel fram.
Seyðfirðingar höfðu ekkert til-
sparað að alt mætti fara sem bezt
fram og að samkoman yrði sem full.
komnust.
Er hér sérstök ástæða til að þakka
íþróttafélaginu Huginn, er sýndi
lofsamlegan áhuga með því að taka
þátt í öllum þeim íþróttum, sem að
framan greinir.
Á mótinu var isett nýtt íslenzkt
met í langstökki kvenna. Metið
setti ungfrú Ilrefnþ Gísládóttir,
stökk 4.20 metra.—Mbl. 5. ágúst.
Athöfn þessi fór fram sunnudag.
inn 19.’ júlí, síðastliðinn, og hófst
strax upp úr hádegi. Veður var hið
yndislegasta og fjölmenni mikið
saman komið frá nærliggjandi stöð-
um. íslendingar, er heima eiga á
þessum stöðvum, voru þar allflestir
og svo auk þeirra ýmsir annara
þjóða menn er þektu til skáldsins,
þar á meðal hinn gerfilegi og aldni
höfðingi Dana, Daniel Mörkeberg.
Grafreiturinn er á norðurbakka
Medicine árinnar á landi því er þau
hjón Kristinn Kristinsson og Sigur.
laug systir Stephans námu í önd-
verðu, eitthvað um þrjár inílur norð.
ur og vestur af þorpinu Markerville.
Er garðurinn eign f jölskyldanna
tveggja Kristins heitins og Stephans
og venzlafólks þeirra og hefir með
lagasamþykt verið tekinn undir um.
sjá sveitarinnar. Til beggja hliða,
að austan og vestan í reitnum standa
há og risavaxin grenitré og var sæt-
um komið fyrir undir þeim fyrir þá
er athöfnina sóttu. Ræður voru
fluttar frá fótstalli minnisvarðans,
og það sem lesið var úr ljóðum
skáldsins. Um söngflokk bygðar-
innar var búið undir grenitrjánum
austan við gröfina og stýrði Vil-
hjálmur Johnson verzlunarmaður í
Markerville söngnum, en ungfrú
Marion Plumimer, skólakennari frá
Blaine, Waishington lék á hljóð-
færi, er þangað hafði verið
flutt. Allan undirbúning fyrir at-
höfnina annaðist hinn góðkunni
sæmdarmaður Ófeigur Sigurðsson,
bóndi við Red Deer, er sjálfur gekst
fyrir því að reisa minnisvarðann og
unnið hefir að því verki endur-
gjaldslaust i nær því tvö ár. Al-
menn samskot voru hafin í samráði
við Þjóðræknisfélagið um það leyti,
en eigi imunu þau hafa hrokkið til
að greiða allan kostnað. Verður
gerð fullnaðar grein fyrir þeim áður
en langt um líúr, þó hinsvegar hafi
verið kvittað fyrir hverja gjöf jafn-
skjótt og á móti henni var tekið í
íslenzku blöðunum.
•
Samkomunni stýrði Ófeigur Sig.
urðsson og fórst það með hinni
mestu snild.
Röð þess sem fraim fór, var á
þessa leið:
1. Þjóðsöngur Canada: söngflokk-
urinn, ótilkynt.
2.. Ávarp forseta: Ófeigur Sigurðs.
son.
3. “Ó Guð vors lands” : söngflokk-
urinn.
4. Flutt kvæðið, “Við verkalok”
ásamt nokkrum inngangsorðum:
Bjarni Jónsson frá Auðnum,
5. “Svo lítil frétt var fæðing
hans”: söngflokkurinn.
6. Minningar ræða: Séra Rögnv.
Pétursson.
7. “Þótt þú langförull legðir:
söngflokkurinn.
8. Afhjúpun minnisvarðans: frú
Sigrún Plummer.
9. Lesin minningarorð um skáldið
úr Tímariti Þjóðræknisfélags-
ins — XVII. ár: Ófeigur Sig-
urðsson.
10. Ræða (á ensku) : Þorvaldur
Pétursson.
11. Lesin tvö kvæði skáldsins:
“Erfðaskráin” I. bls. 223. “Særi
eg yður við sól og báru,” I. bls.
226: Ófeigur Sigurðsson.
12. Sálmurinn 638: söngflokkurinn.
13. Ræða: Ed. Thorlaksson, skóla-
stjóri.
14. Ávörp frá gestum: Daniel
Mörkeberg, — Jóhann Björns-
son.
15. Samkomunni slitið: forseti
Ófeigur Sigurðsson.
16. Þjóðsöngvarnir: Eldgamla ísa-
fold, God Save the King: söng-
flokkurinn.
Að lokinni athöfninni bauð ekkja
skáldsins, frú Helga Steiáiansson,
öllum viðstöddum í nafni fjölskyld.
vunnar heim til sín, til máltíðar. Tóku
flestir ef ekki allir boðinu, og var
dvalið þar fram til kvelds.
Minnisvarðinn stendur við vestur
gafl grafarinnar. Undirstaðan er
tólf fet á hvern veg og tekur tæpt
fet upp fyrir jörð. Ofan á henni
hvílir plata úr stáli og cementssteypu
átta feta löng á hvern veg og um tiu
þumlunga þykk. Ofan á þetta hvort-
tveggja er minnisvarðinn sjálfur
hlaðinn. Er hann um átta fet á hæð
og um sex fet á hvern veg að um-
máli. í austurhlið hans er greypt
marmaraplata og á hana grafið naf n,
fæðingar. og dánardagur skáldsins,
enn fremur þessar linur úr kvæðinu
“Bræðrabýti” II. bls. 307:
“Að hugsa’ ekki í árurn en öldum,
að.alheimta’ ei daglaun að kvöldum,
þvi svo lengist mannsæfin mest.”
og í enskri þýðingu fyrstu línurnar
af kvæðinu “Þótt þú langförull
legðir.” Loks er sett mjög vönduð
cementssteypu og stálhlekkja girð-
ing uimhverfis allan reitinn. Var
henni komið fyrir í sumar og lokið
við hana nokkru áður en afhjúpunar
athöfnin fór fram.
R. P.
Frá Islandi
Nýjar skáldsögur eftir Kamban
og Gunnar Gunnarsson
Khöfn. 30. júlí.
Hasselbalchs Forlag hefir ákveð-
ið að gefa út tvær íslenzkar bækur
í haust, báðar í þýðingum. Önnur
er síðari hlutinn af skáldsögu Hall-
dórs Kiljan Laxness, “Sjálfstætt
fólk,” og hin “Börn jarðar,” eftir
Kristmann Guðmundsson. Að öðru
leyti tjáði forstjórinn fréttaritara
FÚ. að hin enska útgáfa af “Sölku
Völku” seldist með afbrigðum vel,
og að í Danmörku væri vaxandi á-
hugi fyrir ritum og skáldskap Hall.
dórs Kiljan Laxness.
Gyldendals Forlag gefur einnig
út i haust tvær bækur eftir islenzka
höfunda. Önnur er skáldsaga eftir
Gunnar Gunnarsson. Hann hefir
ekki enn afhent handritið, en það er
álitið að bókin verði einn liður i
þeirri röð skáldsagna, sem Gunnar
Gunnarsson hefir fyrirhugað að
semja og sem er ætlað að stikla á
aðalatriðum íslenzkrar sögu frá
landnámsöld og fram á vora daga.
Hin bókin er eftir Guðmund Kamb-
an. Það er stór skáldsaga, sem út
verður gefin í tveimur bindum, og
heitir Leifur heppni.
# * #
Endurminningar Finns
Jónssonar prófessors
Út kemur í haust í Kaupmanna-
höfn, að tilhlutun Hins íslenzka
fræðafélags, merkileg bók, sem lík-
legt er að veki athygli, ekki ein-
ungis á íslandi, heldur og hvarvetna
þar, sem norræn fræði eru stunduð.
Það eru endurminningar Finns Jóns-
sonar prófessors. Félagið gefur
einnig út í haust nýtt bindi, hið átt-
unda, af Jarðabók Árna Magnús-
sonar og Páls Vídalins.
# # #
Minningarrit í tilefni af 25 ára
ríkissjórnarafmœli
Kristjáns konungs X
Khöfn 30. júlí.
Á næsta ári á Kristján konungur
X. 25 ára ríkisstjórnarafmæli. Enn
hafa ekki verið teknar ákvarðanir
um það, hvernig eða að hve miklu
leyti þess skuli minst með opinber-
Mr. Ólafsson flutti ekki eina ein-
ustu ræðu í kosningahríðinni, held-
ur ferðaðist um og skýrði málstað
sinn fyrir kjósendum í samtali við
þá; hann ferðaðist í flugvél nálægt
tvö þúsud mílum.
Stefnufastir menn, sem vita hvað
þeir vilja, vinna sér ávalt traust sam-
ferðamanna sinna, hvort heldur er í
kosningum eða á öðrufn sviðum, þó
ekki kjafti á þeim hver tuska. En
það skiftir engu máli hversu kapp-
samlega málkvörnin malar; hún
verður aldrei annað en kvörn.
Jafnskjótt og úrslit hinna al-
mennu kosninga þann 17. júlí, urðu
heyrinkunn, kom það í ljós, að þó
Liberal-Progressive flokkurinn und-
ir forustu Mr. Brackens, væri lið-
sterkastur, þá skorti þó nokkuð á að
hann nyti ákveðins meirihluta á
þingi. I tveimur kjördæmum var
kosningum frestað til þess 21. yfir-
standandi mánaðar.
Með glöggri hliðsjón af því
hvernig komið var, og hvert stefndi
í tilliti til stjórnarfars, leitaði Mr.
Bracken fyrir um samvinnu við hinn
nýkjörna leiðtoga íhaldsflokksins,
Mr. Willis. I stað þess að sýna
slikum málaleitunum sjálfsagða
samúð, svarar Mr. Willis með þvi,
að róa að því öllum árum, að koma
Mr. Bracken í pólitískum skilningi
fyrir kattarnef í nýafstaðinni kosn-
ingu í Pas. Úrslitin þar skáru alveg
úr því hvorum þessara tveggja leið-
toga fólkið treysti betur. Nú verð.
ur það Mr. Willis, er ábyrgðina ber
um hátíðahöldum.
En í tilefni af 25 ára ríkisstjórn-
arafmæli konungs hefir Gyldendals
Forlag í Kaupmannahöfn ákveðið
að gefa út stprt minningarrit um
konunginn, skrifað af ýmsum þeim
mönnum, sem honum eru persónu-
lega kunnugastir og þekkja best til
starfa hans.
í bókinni verður fjöldi mynda,
þar á meðal myndir frá ferðalögum
konungs til íslands. Rit þetta verð-
ur gefið út í stóru upplagi, og er
ætlanin að selja það ódýrt.
Samtímis hefir annað bókaforlag
í Kaupmannahöfn ákveðið að gefa
út afar vandað og skrautlegt minn-
ingarrit um konung. Af því verða
aðeins prentuð 300 eintök, og á
hvert eintak að kosta 600 krónur.
—Mbl. 31. júlí.
# * #
Gamall íslandsvinur
heimsækir Island
Dr. F. Danmeyer frá Hamborg,
sem hér var 1927 við rannsóknir á
sólarljósinu, kom til íslands skemti-
ferð með Goðafossi um daginn. Hef.
ir hann ferðast hér víða, heimsótt
kunningja og fagra staði, en fór svo
aftur heimleiðis með Goðafossi í
gærkvöldi.
Morgunblaðið hitti hann að máli
í gær, og spurði hvernig ferðalagið
hefði gengið.
—Langt framar beztu vonum,
svaraði hann. ísland hefir dekrað
við mig og sýnt mér náttúrufegurð
sína í allri sinni ólýsanlegu dýrð.
Undir eins þegar við komum til
Vestmannaeyja, breyttist veðrið og
síðan var sól og sumar allan tímann.
Eg fór austur að Geysi og Gullfossi
og Geysir sýndi mér eitt sitt fegursta
á því, ef alt lendir í öngþveiti þegar
þing kemur saman, nema þvi aðeins,
HON. JOHN BRACKEN
að hann sjái að sér og bæti fyrir
flasið.
Að Bracken-stjórnin verði áfram
við völd, verður ekki dregið i efa.
Social Credit þingmennirnir hafa,
fyrir munn leiðtoga sins, heitið
henni að einhverju leyti stuðningi,
auk þess sem telja má líklegt að hún
njóti í meginmálum stuðnings óháðu
þingmannanna tveggja lika.
C.C.F. flokkurinn hefir jafnaðar-
legast reynst stjórninni samvinnu-
þýður á þingi, og sennilega verður
hann það engu síður, er næsta þing
kemur saman og málin taka að skýr.
ast.
gos. Það var stórfenglegt og töfr-
andi. Mér hafði þótt Grýta merki-
leg áður, en að svona fagurt og jafn-
fram hrikalegt gos gæti átt sér stað,
hafði mér ekki komið til hugar áður.
framt hrikalegt got gæti átt sér stað,
marga góða kunningja, sem eg eign.
aðist þegar eg dvaldist á Vestur-
landi 1927. Eins hitti eg kunningja
á Akureyri og svo fórum við aust-
ur að Goðafossi og upp í Mývatns-
sveit. Þar er fagurt — og ógleym-
anlegar verða mér endurminning-
arnar frá þessari íslandsför.
Dr. Danmeyer er Studienrat hjá
Bismarck-Oberrealschule í Ham-
borg og heiðursforseti fyrir Phys-
ikalischbiologische Lichtforschung í
Hamborg. Hann var nýlega sæmd-
ur Fálkaorðunni í viðurkenningar-
skyni fyrir rannsóknir sínar á Is-
landi og þau rit sem hann hefir
gefið út um þær, en þau eru átta.
—Mbl. 1. ágúst.
ÞRIGGJA MILJÓN DALA
FJARVEITING
Fjármálaráðherra sambands-
stjórnarinnar, Hon. C. A. Dunning,
hefir tilkynt, að stjórnin hafi ákveð-
ið að verja um þrem miljónum dala
til aðstoðar bændum í þeim hlutum
Saskatchewan og Alberta fylkja, er
uppskerubrestur hefir sorfið fast-
ast að.
DAGSLIT
Þegar sökkur sól í mar,
sendi’ eg klökkur hreiminn
yfir dökkbrýnt aldarfar
út í rökkurgeiminn.
Lúðvík Kristjánsson.'
Hér getur að líta ckkju stórskáldsins Stcphans G. Stcphanssonar,
börn þeirra og aðra afkomendur. Myndin er tekin við afhjúpun
minnisvarðans þann 19. júlí síðastliðinn.
Á mynd þessari sézt mannsöfnuðurinn, er var viðstaddur afhjúpun
minnisvarðans yfir Stephan G. Stephansson þann 19. júlí síðast-
liðinn í grend við Markerville í Alberta.