Lögberg


Lögberg - 17.03.1938, Qupperneq 1

Lögberg - 17.03.1938, Qupperneq 1
51. ÁRGANGUR | WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 17. MARZ, 1938 | NÚMER 11 HITLER SENDIR HERSVEITIRINNIAUSTURRIKI OG INNLIMAR LANDIÐ Eitt af aðalsmerkjum hinnar ís lenzku þjóðar var og er þrá henn- ar til þjóðlegra fræða og oft hefir verið á það minst af útlendum ferðamönnum auk fræði- og menta- manna þjóðarinnar sjálfrar, hvílík- an auð og andlegan þroska þar sé um að ræða og þegar maður lætur hugann dvelja við þá menningar- hlið þjóðarinnar íslenzku, þá verða fyrst og fremst fyrir manni alþýðu- fræðimennirnir, þessir einkenriilegu menn, sem þrátt fyrir nálega óyfir- stíganlega erfiðleika hafa svo auðg- að anda sinn, að þá má óhætt telja í fremstu röð fræðimanna þjóðar- innar á ýmsum sviðum. Við höfum flest haft einhver kynni af slíkum mönnum, en að lik- indum ekki gjört okkur grein fyrir því, hvaða þýðing þeir hafa haft fyrir menning þjóðarinnar og í hve mikilli þakklætisskuld að hún stend- ur við þá, og hversu skörðin eru stór þegar þessara manna missir við. Hvernig að slik skörð verða fylt, er hverjmn íslendingi áhyggju- efni. Við megum ganga út frá því sem nokkurn veginn sjálfsögðu að heima á ættlandinu heldur fræði- menska lærðra manna, það er skóla- gengimja manna, áfram. En ekki er það óttalaust, að utan að komandi gáleysis glamur muni trufla svo fræðsluþrá alþýðunnar að þessir sérstöku alþýÖu fræðimenn hverfi með öllu. Hér hjá okkur Vestur- íslendingum má óhætt fullyrða að hver slíkur sem fellur verður að liggja óbættur. Sumir þessir íslenzku alþýðu fræðimenn eru þjóðkunnir af ritum sínum og fræðimannlegri starfsemi. Aðra höfum við máske naumast heyrt getið um, þeir hafa aldrei neitt látið á sér bera, nema í sínum hópi og á meðal góðvina sinna. Einn þeirra er Vigfús Þorvaldsson frá Nesjum, sem nú, níræður að aldri, situr í skugga lífsins hér í Winni peg. Vigfús var fæddur á Nesjum i Grafningi í Árnessýslu á Islandi 15. marz 1848; foreldrar hans voru þau Þorvaldur bóndi Helgason á Nesjum, Árnasonar frá Alviðru í Ölfusi og Anna Gísladóttir frá Vill- ingavatni í Grafningi, Gíslasonar frá Ásgarði í Grímsnesi. Vigfús ólst upp hjá foreldrum sínum fram á tvítugsaldur, en réðist þá í vinnu- mensku til bóndans í Öndverðar- nesi í Grímsnesi, þar sem hann dvaldi þar til 1880, að hann flutti til Reykjavíkur. Það sama ár kvæntist hann og gekk að eiga Höllu Kristjánsdóttur frá Hreiðurborg í Flóa, systur þeirra Björns Krist jánssonar kaupmanns og alþingis- manns í Reykjavík, Kristjáns Krist- jánssonar trésmiðs í Winnipeg og þeirra systkina, myndar og atkvæða konu. Stofnuðu þau til heimilis í Reykjavík, en eftir árlanga sam- búð, misti Vigfús konu sína. Er ein dóttir frá því hjónabandi, er Anna heitir. Um þessar mundir vann Vigfús fyrir sér með almennri daglauna- vinnu, þó einkum með sjómensku og sveitavinnu. Vinnumaður þótti hann afbragðs góður og svo fylginn sér og afkasta mikilþ að eftir hon- um var sótt af þeim, sem hann þektu, bæði til lands og sjávar verka, og svo var hann trúr þénari, að hvert verk sem honum var fengið, vann hann sem væri hann að vinna það fyrir sjálfan sig. Vigfús var frál>ærlega vel gefinn maður, ekki aðeins að líkamlegu at- gerfi,. verklægni og vinnumensku, heldur líka andlega. Gáfurnar voru skarpar, skilningurinn yfir- gripsmikill og glöggur. Minnið skarpt og svo haldgott; að það er fyrst nú við nítugsaldur að því er litið eitt farið að förla; og fróð- leiksþráin hjá honum er óseðjandi. En það var með hann eins og svo marga aðra velgefna menn á meðal íslendinga, á þeirri tíð, að hæfileik- arnir fengu ekki að njóta sín, og þrá æskumannsins varð að kafna i hversdagsþörfunum undir eins og hann gat farið að létta undir með þær. Ekki er mér unt að vita hvernig að Vigfús hefir farið að afla sér fróðleiks þess, sem hann átti og á yfir að ráða, þrátt fyrir hina góðu hæfileika sina; hvort heldur þeir eru fengnir við orfið eða árina, eða þá ljóstíruna, þegar allir aðrir sváfu og hvíldust, en á einhvern hátt hefir hann aflað sér auðs þjóðlegra fræða, ritaðra og ó- ritaðra, auk annarar þekkingar, sem þessi hljóði og yfirlætislausi mað- ur á yfir að ráða. Árið 1887 kvæntist Vigfús síðari konu sinni, Önnu Magnúsdóttur, hreppstjóra Bjarnasonar á Bjarna- stöðum á Álftanesi i Gullbringu- sýslu og það ár fluttu þau til Ame- ríku, og settust að í Winnipeg, þar sem þau hafa búið síðan samfleytt í full 50 ár. Þeim Vigfúsi og Önnu hefir orðið 7 barna auðið; þrjú þeirra dóu í æsku og eina dóttur mistu þau uppkomna og nýgifta, bráðmyndarlega bg efnilega konu. Hin þrjú, og fyrri konu barn Vig- fúsar, sem Anna kona Vigfúsar gekk í móðurstað, eru uppkomin og efnileg; þau eru Magnús, heima hjá foreldrum sínum, ógiftur; Halla, gift hérlendum manni, George Jones vélstjóri hjá Kanada Kyrra- hafsjárnbrautarfélaginu, og eiga heima i Winnipeg. Margrét, gift Ernest Rayment ljósmyndasmið í þjónustu T. Eaton verzlunarfélags- ins. Þau eru einnig búsett í Win- nipeg, og Anna fyrri konu barn Vigflúslair giftist Guðmundi Guð- mundssyni ísleifssonar frá Eyrar- bakka í Árnessýslu. Hún er nú til heimilis á Long Beach í Californíu. Bft?r að vestur 'kom, stundaiði Vigfús vinnu hér í borg af mikilli alúð og atorku, þar til árið 1916, að hann varð að fara að slá slöku við, sökum sjóndepru, sem ágerðist svo bráðlega að hann var orðinn al- blindur innan árs og hefir nú setið í skugga lífsins i full tuttugu ár. Þetta mótlæti hefir Vigfús borið eins og sannri hetju sæmir og hvorki æðrast eða möglað, en rætt við kunn- ingja sína og gesti með sömu ró og glaðværð og hann áður tamdi sér, enda hefir hann ekki borið þennan kross einn. Hin ágæta kona hans hefir annast hann með óþreytanlegri umönnun og nákvæmni í öll þessi tuttugu ár og hið sama má segja um börn þeirra hjóna, eftir að þau komust upp, sem lýst hefir og létt hina löngu myrkurstíð hans. Heimili þessara hjóna er ekki háreist. En þangað er samt gott að koma. Gest- risnin ríkmannlegt, þó þau aldrei hafi rik verið. Viðmótið vinalegt og glatt og þar hafa margir átt glaða stund yfir góðum kaf fibolla og glöð- um samræðum við hinn aldurimigna öldung. Þau hjón, Vigfús og Anna áttu gullbrúðkaup 16. desember s.l. Við það tækifæri heimsóttu börn þeirra þau, sem hér eiga heima í bænum, ásamt barnabörnum þeirra, sem öll eru sérlega mannvænleg, til minn- ingar um þann viðburð. /. /. B. NOTICE Plans are under way to hold an Agricultural Short Course at Arhorg; date ajmounced later. The growing of grass- seed, soil Types and Poultry will be discussed. Those in- terested will get in touch with B. I. Sigvaldason, Arborg. ARASARHERINN A SPANI VINNUR MIKH) A Símað er frá Zaragoza á Spáni á þriðjudagsmorguninn, að árásar- hersveitir Francos hafi unnið stór- sigra undanfarna daga og náð á vald sitt Alcanizborg á austurhluta Spánar. Fylgir það sögunni, að ítölsk og þýzk loftför hafi átt sinn drjúga þátt í sigurvinningum upp- reistraforingjans. Á uppreistar- herinn á stöðvum þessum nú ekki eftir nema 37 mílur til Miðjarðar hafsins. kFTÖKUR A RCSSLANDI Seytján menn, sem teknir voru fyrir skömmu fastir á Rússlandi og sakaðir um landráð, hafa verið fundnir sekir og dæmdir til dauða. Allir þessir menn, undantekningar- laust, voru um eitt skeið háttsettir herforingjar og embættismenn Sovietstjórnarinnar. Á meðal þeirra voru tveir frægir læknar, sem sagt er að hafi játað það á sig að hafa með eiturblöndu verið valdir að dauða rithöfundarins heimskunna, Maxim Gorkis. AUKAKOSNING l EDMONTON Þann 21. þ. m. fer fram auka- kosning til satriband^þingjs í Ed- monton East kjördæminu; þingsæti þetta losnaði við fráfall Dr. Hall, Social Credit þingmanns, er kosinn var i almennu kosningunum 1935. Þrír frambjóðendur eru í kjöri, R. C. Marshall, liberal, fyrrum borg- arstjóri í Calgary og um eitt skeið þingmaður í Albertafylkisþinginu; Arvis A. Kennedy af hálfu Soeial Credit-sinna og Walter W. Cleaver- ley, fyrrum bæjarfulltrúi i Edmon- ton, er býður sig fram undir merkj- um íhaldsflokksins. Kosning þessi er sótt af kappi miklu. Til Stuðn- ings við Mr. Marshall hafa flutf. ræður í kjördæminu þrír af ráð- gjöfum sambandsstjórnarinnar, þeir Ian Mackenzie, 'hermálaráðherra, Howe^ samgöngumálaráðherra og Gardiner ráðherra landbúnaðarmál- anna. Mr. Paul Bardal og varaborgarstjóri Séra Valdimar /. Eylands Séra Valdimar hóf starfsemi sína í þjónustu Selkirksafnaðar, sunnu- daginn 6. marz. Að lokinni kveld guðsþjónustu, efndi söfnuðurinn ti samsætis í samkomuhúsi íslendinga þar í bænum til þess að fagna hin- um nýja presti. Að morgni þess sama dags prédikaði séra Valdimar í kirkju Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg. Er gert ráð fyrir að hann prédiki við ensku morgun guðsþjónustuna annan hvorn sunnu dag í þeim söfnuði, og aðstoði þar við kirkjulegt starf tvo daga í viku hverri. bæjarfulltrúi, í Winnipeg, lagði af stað austur til Ottawa á laugardagskveldið var til þess að itja þar fund borgarstjóra sarntak- anna canadisku. Ritgerð um mikilvægt málefni sem einkum og sérílagi varðar mik- ils íslendinga á milli Winnipeg- og Manitobavatns, eftir Mrs. H. F. Danielson i Árborg, barst blaðinu of seint til þess að birt yrði í þess- ari viku; verður þarfafleiðandi að bíða næsta blaðs. Mrs. P. S. Bardal er nýkominn heim eftir allanga dvöl hjá syni sín- ura Dr. Sigurgeir Bardal í Shoal Lake. Mr. og Mfs. Th. J. Gíslason frá Brown, Man., er dvalið hafa hér í bor.ginni í tveggja mánaða tíma, lögðu af stað heimleiðis á mánu- daginn. Dr. A. Blöndal er nýlega lagður af stað ásamt frú sinni í þriggja vikna skemtiferð suður um Bandaríki. Mr. Walter J. Jóhannson leikhús stjóri frá Pine Falls er staddur í borginni þessa dagana. Miss Pearl Hanson pianokennari frá McCreary, Man., kom til borg- arinnar í fyrri viku, og lék pianó- sóló í Men’s Musical Club á laug- ardagskveldið. Mr. Otto Kristjánsson trésmíða- meistari frá Winnepgosis, kom til borgarinnar á mnudagskveldið, ásamt tvejim sonum áinum, þeim Kristjáni og Edwin. Voru þeir fegðar á leið austur í Ontariofylki. Mr. B. J. Lifman sveitaroddviti i Bifröst kom til borgarinnar á þriðjudaginn og dvelst í borginni nokkra daga. Frá Islandi Samkvæmt fjárlagaræðu hr. Ey- steins Jónssonar, f jármálaráðherra íslenzku stjórnarinnar, er hann flutti á Alþingi þann 23. febrúar síðast- liðinn, nam tekjuafgangur á árinu sem leið, 874 þúsundum króna. Skuldir ríkisins kvað fjármálaráð- herra hafa á sama tímabili lækkað um freka miljón króna. * * * Fornminjasafnið 75 ára Á morgun er liðin 75 ár síðan Þjóðminjasafnið var stofnað. Verð- ur þess minst með sérstöku samsæti sem haldið verður að Hótel Borg annað kvöld. Forgöngumenn að stofnun safns- ins voru Sigurður Guðmundsson málari og Helgi Sigurðsson, prestur að Jörfa. Gaf Helgi fyrstu gripina, 15 að tölu, en Sigurður hafði for- stöðu safnsins fyrstu árin. Yrði hér of langt mál að rekja sögu safnsins alla, en ekki verður þess minst, án þess að geta núverandi safnvarðar Matthíasar Þórðarson- ar, sem gegnt hefir þvi starfi í 30 ár og unnið stórmerkilegt starf í þágú safnsins. Safnið telur nú um 14—15 þús. gripi, þegar mannamyndasafnið og tiokkur smærri söfn eru ekki með talin. Hlýtur öllum að vera ljóst, að slíkum f jölda af gripum, sem þó þurfa og munu fjölga, er ekki hægt að koma fyrir svo að nokkru gagni verði, í jafn þröngu húsrúmi og safnið hefir nú. Auk þess vofir eldhætta stöðugt yfir þvi, meðan það er á þessum stað. Þessi tíma- mót í sögu safnsins ætti því að vekjla menn til framkvæmda um það, að koma safninu á betri og ör- uggari stað, sem sé samboðnari þeirri ræktarsemi. er þjóðinni ber að hafa fyrir fortíð sinni og forn- minjum.—N. dagbl. 23. febr. Þorskaflinn Þorskafli á öllu landinu var 15. febrúar síðastliðinn 1306 smálestir, miðað við, fullverkaðan fisk. y\ sama tíma í fyrra voru komnar á land 1214 smálestir fiskjar. Þorskafli Norðmanna um síðustu helgi, miðað við nýjan, flattan fisk. vari6,6n smál. Þar af hafa verið hertar 3,631 smál., en 9774 smál. saltaðar. Norðmenn eru búnir aÖ framleiða 6,558 hektólítra meðala- lýsis og salta 966 tunnur af hrogn- um. Á sama tíma í fyrra var þorsk- afli þeirra 18,286. þar af hertu þeir 3,525 smál. og söltuðu 9,566 smál. Af meðalalýsi höfðu þeir framleitt 9,474 hktólítra og saltað 3,115 tunnur af hrognum.—N. dagbl. 18. febrúar. Vélbátnrinn Vtðir talinn af Vonlaust er nú talið að vélbát- urinn “Víðir” frá Vestmannaeyjum sé ofan sjávar. Á bátnum voru 5 menn. Hefir stýrishús með nafni bátsins rekið á Álfhólsfjöru í Vest- ur-Landeyjum. Formaður var Gunnar Guðjóns- son frá Kirkjubæ, 32 ára gamall, ó- kvæntur. Vélstjóri var bróðir hans Gísli Guðjónsson, 24 ára gamall, ókvænt- ur. Móðir þeirra, Halla Guðmunds- dóttir, hefiir nú mist fjóra sonu sína í sjóinn. Áður druknuðu Guð- mundur við Eiðið, 1924 og Jóhann druknaði við heyflutninga frá landi satna ár. Á “Víði” voru ennfremur: Ólafur Markússon, Fagurhól, 22 ára. Hann var ókvæntur. Jón Árni Björnsson frá Tjörn á Eyrarbakka, 27 ára og ókvæntur. Halldór Þorleifsson, einnig frá Eyrarbakka, 21 árs að aldri. Eins og áður hefir verið skýrt frá fór “Víðir” í róður frá Vest- mannaeyjum á sunnudaglsmorgun. Síðari hluta dags á sunnudag sást til bátsins á Selvogsbanka, en síðan hefir ekkert til hans spurst. Varðskipið Þór hefir leitað síð- an á sunnudag að bátnum árangurs- laust. í gær tóku nokkrir bátar frá Eyj- utn þátt í leitinni, en þeir hættu er það fréttist að rekið hefði úr bátn- um. Víðir var keyptur til Vestmanna- eyja frá Keflavík 1936. Eigendur bátsins voru Þórdís Guðjónsdóttir og Gísli Guðjónsson, sem fórst með bátnum.—Mbl. 9. febr. Picture of an Old Lady Bowed by the weight of vears, she sits Rocking to and fro. Fashioning warmth, her gnarléd old hands, Backward and forward go. A faint light shines on her silvery liair On the twinkling needle tips. On the wrinkled face, and the once fair brow, And the sunken, smiling lips. Peaceful she sits, and she liums a lay, While her brown eyes glow, As she meets, in dreams of the davs now past, Her friends of long ago. Backward and forward the rockers sway, And the busy needles click, But the soft voice sings of davs of old As shadows grow deep and tliiek. Backward and forward, but now more slow As night draws darkness near, „ And the needles pause, as the hand goes forth To wipe away a tear. Lenora A. Johannson.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.