Lögberg - 04.05.1939, Qupperneq 1
PHONE 86 311
Seven Hlnes
Servloe
and Satisfaction
PHONE 86 311
Seven Iiines
Æ-
<é^’'
o:v
>V'
j«y>p
Better
Dry CleaninR
and Liaundry
52. ARGANOtUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. MAÍ, 1985)
NÚMER 18
Séra Hans B. Thorgrimsen og Frederick) ríkiserfingi íslands og
Úanmerkur. Myndin tekin í Minneapolis við komu hinna dönsku
Prónprinshjóna þangað til borgar fyrir skemstu.
Milliríkja-samningar
að vettugi virtir
Dánarfregn
Kjartan S.veinsson andaðist i
Edinhurg, N.D., 2<). apríl. HafÖi
hann um margra ára skeiS veriÖ
^ilaöur á heilsu, cn ekki alveg
rumfastur nema stuttan tíima.
ÚafÖi J>ó þolaÖ miklar jrjáning-
ar- Hann fæddist í Tungu i Fá-
skrú(5sfirði 4. júni 1860. For-
eklrar hans voru Sveinn Árnason
°£T Ingibjörg B.jörnsdóttir. Syst-
kini hans sem eru mörgum kunn
voru Ámi Sveinsson sál. í
■úgylebygð og Anna sál._Mýr-
4al í GarðarbygÖ. HafÖi Kjart-
an verið tvígiftur. Misti fyrri
konu sína snemma á árum, og
Se,nnj kónu sína 1920. Tvær
oaetur og þrír synir lifa hann,
dæturnar giftar og einn sonanna.
Kjartan sál. var dugnaÖarmað-
Or og vel gefinn, ráÖvandur og
VeI metinn.
Jaröarför hans för fram laug-
ardaginn 29. apríl frá Garðar-
kirkju. Voru öll börn hans við
otförina J>ó önnur dóttirin búi
nó vestur á Strönd. Séra H.
'kgmar jarðsöng.
4- 4-
Helga Sveinsdóttir Gíslason
andaÖist 26. apríl á heimili sonar
Sltls, Sgurjóns Gíslasonar i
öv’oldarbygÖ, N. Dak. Helga
^ddist á Svangrund í Húna-
vatnssýslu 12. imarz 1850, og var
fví fullra 8() ára að aldri. Hún
e,ir átt heimili hjá Sigurjóni
syni sínum um margra ára skeið,
hefir notið ástúðlegrar um-
°nnunar hans og sonar-dóttur
/ ILLU SKAPI
Dr. H. R. Fleming, lilveral-
þingmaður fyrir Humboldt kjör-
dæmið í Saskatchewan, hefir í
þingræðu úthúðað sambands-
stjórninni vegna afstöðu hennar
til ákvæðisverðs á hveiti og
verðlags búnaðarverkfæra. Hefir
Dr. Fleming lýst yfir því, að
hann muni greiða atkvæði á móti
fjárlagafrumvarpi Mr. Dunnings
og styðja breytingartillögu
C.C.F. flokksins, er í sér felur
vantraust til stjórnarinnar.
Mr. Jónas Helgason, Baldur
Man., sem legið hefir rúmfastur
hér í bænum af völdum bein-
lirots, lagði af stað heimleiðis
á sunnudaginn var; hann er á
mjög góðum batavegi.
sinnar, Láru, dóttur Hjálmars
sál., sem andaðist fyrir mörgum
árurn.
Fram að andlátinu fylgdi hún
fötum ávalt. Var hraust kona,
þó að mörg síðustu árin væru
kraftarnir takmarkaðir mljög.
Eiginmaður hennar, Gísli Einars-
sop lézt endur fyrir löngu á Is-
landi. Á liíi eru nú tvö börn
hennar, Mrs. Seamour i Sas-
katchewan, Canada og Sigurjón
hér í bygð.
Tarðarförin fór fram frá
kirkju Péturssafnaðar við Svold,
N.D., laugardaginn 29. april.
Hún var lögð til hvildar í graf-
reitnum á Mountain, þar sem
Hjálmar sonur hennar hvílir.
Séra H. Sigmar jarðsöng.
Adolf Hitler ríkiskanzlari
Þjóðverja flutti ræðu í Berlín
á föstudaginn þann 28. apríl
síðastliðinn, er átti að fela í sér
svar við uppástungu Roosevelts
Bandaríkjaforseta um tíu ára
Norðurálfufrið; þau atriði ræð-
unnar, er að afstöðu Mr. Roose-
velts lutu, voru skætingur einn
og annað ekki. Samningsrof
teljast ekki lengur með nýlundu í
herbúðum einvaldsherranna; þau
eru daglegt brauð. í ræðu sinni
lýsti Hitler yfir því, að flota-
málasamningurinn milli Þýzka-
lands og Bretlands væri hér með
úr gildi numinn ; svo og vináttu-
sáttmálinn milli Þýzkalands og
Póllands.
Þjóðátjórn
á Islandi
Hermann Jónassons For-
sæt.isráðherra, dóms- land-
búnaðar- kenslu- og kirkju-
málaráðherra.
Stefán Jóh. Stefánsson:
Fólagsmálaráðherra (trygg-
ingamál, hæjarmálefni, heil-
hrigðismál) og utanríkis-
málaráðherra.
Eysteinn Jónsson: Við-
skiftamálaráðherra (banka-
mál, verzlunarmál og gjald-
evrismál).
Ölafur Thors: Atvinnu-
málaráðherra (sjávarútvegs-
mál og iðnaðarmál).
Jakoh Möller: Fjármála-
ráðherra (fjárlög, skatta-
mál„ tollamál).—
Þessi nýja ríkisstjórn Is-
lands tók við völdum þann
18. apríl síðastliðinn, að því
er nýkomnu Alþýðublaði
segist frá. Þeir Hermann
Jónasson og Eysteinn' Jóns-
9011 eru Framsóknarflokks-
menn; Stefán Jóh. Stefáns-
son, Alþýðuflokksmaður, en
Ólafur Thors og Jakob
Möller sitja í stjórninni af
liálfu Sjálfstæðisflokksins.
HERSKYLDA
A BRETLANDI
Þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýs-
ingar Chamberlains forsætisráð-
herra um það gagnstæða, hefir
herskylda nú verið leidd í lög á
Bretlandi. Herskyldufrumvarpið
nær til 200,000 manna, er náð
hafa tvítugsaldri; er samkvæmt
þessu ráðgert, að 50,000 menn
verði árlega kvaddir tili herþjón-
ustu. — Liberalflokkurinn og
flokkur hinna óháðu verka-
manna, mótmæla herskyldufrum-
varpinu allkröftuglega.
Rósa Egilsson
Við það nafn • kannast flestir
eldri Winnipeg-lslendingar.
Hún var ein hinna allra
snjöllustu imeðal islenzkra leik-
enda um langt skeið. Hún hafði
t. d. leikið svo oft í leiknum
“Pcrnilla” eftir Holberg, að fólk
var farið að ruglast i því hvort
hún héti heldur Rósa eða
Pernilla.
Hún lék venjulega þá persón-
una, sem fjörugust- var, og fórst
það ágætlega. Margir landar
geyma i huga sér glaða stund
frá North West Hall, þegar
Rósa Egilsson var þar á leik-
sviðinu.
Þegar hún flutti frá Winni-
peg og vestur á Kyrrahafsströnd
lærði hún hjúkrunarfræði og
stundaði þá atvinnu um all-langt
skeið með miklum dugnaði og
sérstakri samvizkusemi.
Hún giftist siðan enskum
verzlunarmanni er A. W. Semple
heitir, i Victoria.
Mér hefir borist eintak af
blaðinu “Victoria Daily Times”
þar seimi frá_því er sagt að leik-
ið hafi verið leikrit eftir Rósu
Seniple, og er mikið látið af þvi
hversu skemtilegt að hafi þótt.
Hún stjórnaði leiknum sjálf og
lék eitt aðalhlutverkið.
Leikurinn heitir “Coward” og
segir blaðið að hann sé bráð-
fyndinn og skemtilegur.
Gömlum Winnipeg vinum höf-
undarins þótti gaman að sjá
þetta og óska henni til hamingju.
Siy. Júl. Jóhannesson.
Indriði Einarsson
látinn
Indriði Einarsson er dáinn.
Ilann dó í gær, að heimili sínu
hér í bæ, litla timburhúsinu við
Tjarnargötu, þar sem hann hafði
átt heima í marga áratugi, þar
sem hann hafði lifað sín beztu
ár, með konu og átta börnum,
og nú hin síðustu með dóttur
sinni, Emilíu, sem aldrei hefir
skilið við; hann.
Með Indriða Einarssyni er
sem horfinn síðasta lifandi satm-
band við löngu liðna tima i sögu
þjóðarinnar. Hann var nálega
88 ára, fæddur 30. april 1851,
árið sem þeir “mótmæltu” kröft-
uglegast hér á þjóðfundinum
sællar minningar. Lengst af
var Indriði heitinn mjög heilsu-
góður, eins og bezt sást á því,
hve keikur hann var svo gamall
maður og léttur í spori. Enda
unni hann lífinu meira en al-
ment gerist, og hegðaði sér eftir
því. Lífskjör hans og glaðværð
var sem ótæmandi.
—Morgunbl. 1. apríl.
Frá Lundar, Oak Point og
Gimli varð blaðið vart við þessa
gesti, er sóttu hljómleika Karla-
kórsins í Auditorium s.l. mið-
vikudag.
Frá Lundar: Mr. og Mrs. A.
V. Olson, Miss D. Guttormsson,
Mr. V. J. Guttormsson, Mr. H.
B. Hallson, Mr. og Mrs. W. F.
Breckman, Mr. Einar Eyford,
Miss K. Fjeldsted, Mr. K.
Olafsson, Mr. og Mrs. J. Breck-
man, Mr. S. Björnson, Mr. W.
G. Halldorsson, Mrs. A. John-
son, Rev. G. Ámason, Mr.
Heimir Thorgrimsson.
Frá Oak Point: Mr. J. John-
son.
Vor
Hvert strá fær yl og styrk i dag,
hver strengur hljómar gleðlag,
því nú er vor um ver og láð,
af valdi lífsins skráð.
Við upprisunnar megin mátt
hið minsta verður frítt og hátt;
frá öllum turigum talar fjör
og traust, við sældarkjör.
Ó, fagra vor, með ljóssins laug
og lífrænt afl í hverri taug.
Þú mýkir lífsins sorg og sár
við sól og daggar tár.
Þinn andi boðar áframhald
með endurlausnar kraft og vald,
er hrifur sjón og huga manns
í hæð til gjafarans.
Á meðan væna vorið grær
og vermir mildur sunnanblær
er tið að hef ja hönd og lund,
því hröð er æfistund.
Og bráðum kemur hinstá haust,
með húm og kalda dauðans raust,
þá verður hver með sjóðinn sinn
að sýna reikninginn.
M. Markússon.