Lögberg - 04.05.1939, Side 5

Lögberg - 04.05.1939, Side 5
LÖGrBERG, FIMTUDAGINN 4. MAT, 1939 5 EATONIA 2-PANT SUITS $25 00 Sparkling new weaves, new colors, new rnodels in the Summer of Spring 1939—featuring that fine fit, thor- oughness of tailoring and fabric ex- eeilence that have made EATONIAS the favorites of thousands of Can- ada’s best dressed men! All wool worsteds, rugged tweeds, navy blue and grey serges. Budget Plan Available Men’s Clothing Secticn, The Hargrave Shops for Men, Main Floor T. EATON C?, LIMITED ekki einu sinni áfengur drykk- kg&ja fyrir ríkisþingið, sem frunmvarp til laga um uppfræðslu unglinga í skólum ríkisins. Nefndin lagði svo fram álit sitt a tilteknum tíma, og mentamála- ^eild ríkisins lýsti því yfir að skjaliís væri vísindalega ábyggi- iegt og mjög lærdómsríkt. 1 skjali þessu er gerð nákvæm vís- indaleg grein fyrir efnasambönd- um þeim san fyrirfinnast í á- fengum drykkjum, og áhrifun- um sem þeir hafa á hina ýmsu líkamshluta, undir mismunandi krinumstæðum. Nefndarálit þetta kont svo fyrir ríkisþingið á síð- astliðnum vetri. Eftir miklar umræður var ákveðið að vísa frumvarpinu frá. Eitt stórblað- ið þar suðurfrá hrópaði með sínu feitasta letri: “Nærri þúsund dollara virði af prentuðum skjöl- um kastað í eldinn.’’ Hvers- vegna féll löggjöfum ríkisins svo illa nefndarálit þetta, sem gert liafði verið að frumvarpi til lagai' Vegna þess að niðurstaða skýrslunnar var þessi: “Það er vísindalega staðfest að hægt sé að drekka áfenga drykki sér að skaðlausu, ef hófs er gætt. Þeir, sem mæltu á móti því, að frumvarp þetta væri gert að lög- um um kenslu barna, báru engar ðrigður á að hér væri um vís- indalegar niðurstöður að ræða. Þó eru aðrir vísindamenn, jafn- snjallir þeim, semi frumvarpið sömdu, á öðru máli, eins og síð- ar er komið fram. Jafnvel lækn- um og vísindamönnum ber ekki æfinlega saman. En andstæð- ingar frumvarpsins á þingi ótt- uðust að slíkar niðurstöður, birt- ar í nafni og með innsigli vís- Ljúffengt skozkt Visky Blandað og látið í flöskur í Canada undir beinu eftirliti eigendanna ADAIR & COMPANY GLASGOW hjá Goodeilham & Wlorts, Limited • 25 oz. Flaskan $2.40 40 oz. Flaskan $3.75 Að viðbœttum söluskatti ef nokkur er thíai® a(lvertlsement ls not inserted by Oovernment Llquor Control Com- slhfS V1' The Commls»lon Is not respon- * for statements made as to quallty OI Pfoducts advertlsed. indanna, væru blátt áfram hættu- legar vegna þess að þær yrðu misskildar af óþroskuðum ungl- ingurn. Aðal andstæðingur frumvarpsins á þingi þessu lét svo um mælt: “Það kann að vera vísindaleg staðreynd að hóf- drykkja áfengis sé ekki skaðleg, en eg vil ekki láta kenna tíu ára gömlurn syni mínmn það.” Eg hefi fjölyrt um frumvarp þetta, vegna þess, að vér erum hér að fjalla um kjarna þessa máls, sem vér beruiim öll svo mjög fyrir brjósti. Mér virðist að framsögumaður andstæðinga frumvarpsinsi hafi haft mikið til síns máls. Það er vissulega varasamt að kenna ungling það í nafni vísindanna að það sé alveg óhætt að drekka áfengi hóflega. í þessu máli; ef til vill öllum öðrum málum frennur er svo vandratað meðalhófið. Sumt fólk er þannig gjört að það get- ur ekki drukkið í hófi. Einn sopinn býður öðrum heim þang- að til menn missa alt vald yfir sjálfum sér, gleyma manndómi sínuitn og guðlegri köllun til lífs- ins. Ennfremur eru margir meðal vínsalanna og bjórstofustjóranna í orði kveðnu talmenn hóf- drykkjunnar. Þeir auglýsa mjög kænlega. Þeir hengja hóf- drykkjuauglýsingar á veggi búða sinna og i bjórstofurnar. Fljótt) á litið kemur þetta fyrir sem hógvær siðferðisprédikun. í insta eðli sínu er það aðeins slæ- leg viðski fta-auglýsing. Vínsal- arnir nota sálfræðilega aðferð til að taka vopnin úr höndum veikgeðja vesalinga sem eru að berjast við sinn innra mann. Þarna, sjá þeir sama boðskapinn og þann sem til þeirra kom úr herbúðum vísindanna á skóla- bekkjuum uppeldisfræðinganna, og í fordæmi og orðaræðu sumra lærisveina kirkjunnar. “Af á- vöxtunum skuluð þér þekkja þá,” segir Kristur. Hverjir eru þá ávextirnir af prédikunum og dæmi postula hófdrykkjunnar? Hvar fyrirfinnast þeir? Farið i hegningarhúsin og þér sjáið þá þar. Farið á vitfirringahælin, og þér sjáið þá þar. Farið á fá- tækraheimilin, munaðarleysingja- stofnanir allskonar, á gamal- mennahælin og þér munið finna fjölda af fórnarlömbum hóf- drykkjunnar þar, Hófdrykkj- unnarf Já, og aftur já! Að vísu eru ekki allir ávextir hóf- drykkjunnar á þessum stöðum. Margir eru nógu siðferðislega sterkir til að vera hófsomdar- menn í vínnautn alla æfi. En hinir eru miklu fleiri, sem byrja með hófdrykkju, en enda með ofdrykkju, annæðu og ótímabær- um dauða. Eitt af allra svaka- iegustu sárum mannkynsins staf- ar einmitt af áfengisbölinu — ai: því að þeir sem œtluðu scr að vcrða liófdrykkjumenn urðu of- drykkjumenn. Þetta er því nið- urstaða hugleiðinga vorra: Þó það kunni að vera talið óvísinda- legt, og harla gaimaldags, ber oss heilög skylda til þess, vegna sjálfra vor, og þeirra, sem oss er trúað fyrir til uppeldis og umsjónar að kenna þeim með orðum og dœmi að halda sig frá nautn áfengra drykkja. Þessi niðurstaða er ekki að- eins sprottin upp úr reynslu og athugun á gangi þessara mála með samtíð vorri, heldur er hún ávöxtur af anda hinnar kristnu trúar, og í samræmi við kenning postulans um kristilega sjálfs- afneitun. “Það er rétt að eta hvorki kjöt né drekka vín, né gjöra neitt sem bróðir þinn steytir sig á.” Vér skiljum þessa áminning aðeins í hinni sögulegu umgjörð sem hún stendur í. Postulinn er hér að tala um hið nýja frelsi, seml kristnum mönn- um er gefið. Þeir eru ekki leng- ur þrælar lögmálsins, af þvi Kristur hefir leyst þá undan því. Sumir skilja þetta ekki enn til fulls, eru harla blendnir i trúnni, og vilja halda sig við hin fornu ákvæði um mat og drykk. Hver skyldi þá afstaða hinna, sem sterkari voru og skilningsbetri ? Var notkun hins nýfengna frels- is einhverjum til ásteytingar? Ef svo var, bar mönnuim skylda til að neita sér um þá tegund frels- is, sem hneykslinu olli. Jesús lagði lífið í sölurnar fyrir sam- ferðamenn sína til þess að frelsa þá. Eiga þá ekki lærisveinar hans að hafa siðferðilegt þor og fúsleik hjartans til að neita sér um neyzlu kjöts og víns, ef með því móti er hægt að tryggja vel- ferð einhvers hinna veikari bræðra, og vinna þá til fylgis við meistarann mikla? Afstaða post- ulans er hógvær, öfgalaus, há- göfug og kristileg. Hann veit að ekkert er í sjálfu sér óhreint, ur. Sjálfur getur hann borðað með góðri samvizku það sent á borð var liorið; sjálfur gat hann einnig drukkið hóflega. En það var ekki öllum gefið. En hann er þess albúinn, ef nokkur hneykslast á því sam' hann borð- ar eða drekkur, að afsala sér þeirn tegundum niatar og drykkja sem hneykslaninni veldur. Þetta er andi Krists að verki í hjarta mannsins. Sá andi er enn starf- andi vor á meðal. Hver sá, sent lætur leiðast af anda Krists get- ur ekki farið villur vega í þeim málum sem áhræra bindindi eða vínnautn, né nokkrum öðrum máluim er varða tímanlega heill mannsins og eilífa sáluhjálp. s sir 1 couUln't <>» 1 “”S<1 * * ,„o(. MJ„trip9,oto«n. lor ducc, fi,c. sldtnes8' * #n “"mc Once » "’0"' cai, Mother «na , ,hc telephone »»<> « i8 rfonc o« i’&ssr

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.